Ástríðucastið cover

Ástríðucastið

astriducastid

Gerður Arinbjarnar og Rakel Orra ræða saman um kynlíf, sambönd, samskipti, rómantík og ástríðu

Gerður Arinbjarnar og Rakel Orra ræða saman um kynlíf, sambönd, samskipti, rómantík og ástríðu

Sólborg Guðbrands - Fávitar

0:00 0:00

Þættir

Sólborg Guðbrands - Fávitar 22 Nov 2021

Sólborg Guðbrands kíkti í spjall til Gerðar og Rakelar. Þátturinn var upprunalega gefinn út í áskrift en nú er hægt að njóta hans frítt.

Hormónahringur karla 27 Oct 2021

Í þessum þætti fara Gerður og Rakel yfir hormónahring karla ásamt því að spjalla um daginn og veginn. Þátturinn var upprunalega gefinn út í áskrift á Podify en nú er hægt að njóta hans frítt.

Að finna hamingjuna með sjálfum sér 06 Sep 2021

Gerður og Rakel fara yfir hversu mikilvægt það er að getað fundið hamingjuna með sjálfum sér áður en farið sé í samband. Rakel er á persónulegum nótum, opnar dagbókina sína fyrir hlustendum og fer yfir nokkra góða punkta frá þeim tíma þegar hún var ekki í sambandi. Þátturinn var upprunalega gefinn út í áskrift á Podify en nú er hægt að njóta hans frítt.

Leitin að kynhvötinni 19 Jul 2021

Gerður og Rakel spjalla um kynhvöt, hvað hefur neikvæð og jákvæð áhrif á hana. Gerður er á persónulegum nótum og deilir sínum vangaveltum. Þátturinn var upprunalega gefinn út á áskriftarveitu Podify í mars en nú er hægt að njóta hans frítt.

Kynlíf og reynirí 07 Jul 2021

Rakel og Gerður ræða um kynlíf þegar verið er að reyna að búa til barn. Þátturinn var gefinn út í apríl á Podify en nú er hægt að njóta hans frítt. Minnum á @astriducastid á Instagram og Blush.is fyrir skemmtilegar stundir í svefnherberginu.

Viðtal við Tedda, klínískan félagsráðgjafa. 24 Jun 2021

Ef þú ættir að velja einn þátt af Ástríðucastinu til að hlusta á þá er það þessi þáttur. Gerðu sambandinu þínu greiða og hlustaðu á Rakel og Gerði spjalla við Tedda. Þátturinn var tekinn upp í desember og var upprunalega gefinn út sem áskriftarþáttur á Podify en nú er hægt að njóta hans frítt. Theodór Francis Birgisson, eða Teddi eins og hann sjálfur vill láta kalla sig, er klínískur félagsráðgjafi sem aðstoðar pör. Hann er einn eigenda Lausnarinnar sem er fjölskyldu- og áfallamiðstöð og býr yfir áratugalangri reynslu þegar kemur að því að aðstoða fólk í parsamböndum. @astriducastid á Instagram Blush opnaði nýja og glæsilega verslun á Dalvegi 32b í apríl. Nú styttist í opnunarpartýið sem fékk að bíða vegna covid. Fylgist með á instagram: @blush.is

Traust - Volume 2 14 Jun 2021

Framhald af síðasta þætti þar sem Gerður og Rakel ræða traust. Þátturinn var gefinn út sem áskriftarþáttur á Podify í Nóvember 2020 en nú er hægt að njóta hans frítt. Minnum á Blush.is þar sem má finna ótrúlegt úrval unaðstækja og einnig er hægt að kíkja í nýju verslunina á Dalvegi 32b.

Traust 09 Jun 2021

Gerður og Rakel ræða um traust og hvernig hægt er að undirbúa sig undir nýtt samband þegar traustið manns hefur verið brotið. Þátturinn var gefinn út sem áskriftarþáttur á Podify í nóvember 2020 en nú er hægt að njóta hans frítt. Blush hefur opnað glæsilega verslun á Dalvegi 32B en einnig er alltaf hægt að versla á Blush.is.

Það sem ég hefði viljað vita 28 Mar 2021

Í þættinum fara Rakel og Gerður yfir nokkra hluti sem þær hefðu viljað vita þegar þær voru yngri. Hlutir tengdir kynlífi, samböndum, samskiptum og fleiru. Ástríðucastið er kostað af Blush.is sem opnar ævintýralega verslun á Dalvegi 32b í apríl. Fylgist með! Ástríðucastið á Instagram

Aldursmunur í samböndum 02 Nov 2020

Í þessum þætti ræða Gerður og Rakel um aldursmun í samböndum.

Ást á almannafæri 19 Oct 2020

Í þessum þætti ræða Rakel og Gerður um ást á almannafæri. Hvar liggur línan? Er til einhver lína? Blush.is er kostandi þáttarins og nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér jóladagatal Blush þetta árið.

Spurningar og spjall 10 Oct 2020

Rakel og Gerður taka fyrir nokkrar spurningar frá hlustendum og spjalla saman um daginn og veginn. Kostandi þáttarins er Blush.is en jóladagatölin eru komin í sölu.

Fjarsambönd 22 Sep 2020

Rakel og Gerður ræða um fjarsambönd og koma með nokkur góð ráð til að láta þau ganga. Þær draga úr leiknum sem hefur verið í gangi á Instagram @astriducastid þar sem tveir heppnir vinna 50 þúsund króna gjafabréf hjá Blush.

Fjármál í samböndum 11 Sep 2020

Hvenær er rétti tíminn til þess að ræða fjármál við maka? Rakel og Gerður koma með nokkur frábær ráð til að koma fjármálunum á gott skrið. Leikur í gangi á Instagram @astriducastid í samstarfi við Blush.is sem er kostandi þáttarins.

Ágreiningastjórnun í samböndum 04 Sep 2020

Rakel og Gerður fara yfir nokkur verkfæri sem koma öllum vel þegar kemur að ágreiningi og rifrildum í samböndum. Kostandi þáttarins er Blush.is en @astriducastid á Instagram er með leik í gangi þar sem 2 heppnir geta unnið 50.000 kr. gjafabréf í Blush.

Sambönd og sumarfrí 29 Aug 2020

Rakel og Gerður eru komnar aftur eftir langt sumarfrí og ræða um hvernig er hægt að hlúa að sambandinu í sumarfríi með börnunum. Þátturinn er í boði Blush.is

Spurt & svarað 14 May 2020

Í þessum þætti fara Rakel og Gerður yfir allskonar spurningar sem þær hafa verið að fá undanfarið í gegnum Instagram þáttarins: @astriducastid. Blush.is er kostandi þáttarins en á allra næstu dögum opnar ný og glæsileg netverslun og hvetjum við alla til að fylgjast spennt með því.

Sambandsslit 05 May 2020

Í þessum þætti fara Rakel og Gerður yfir sambandsslit. Hvernig er ferlið sem fylgir sambandsslitum, hvernig er best að bera sig að í gegnum þau og hvað tekur við eftir að samband endar? Minnum á að Blush.is er kostandi þáttarins og Instagram þáttarins er @astriducastid.

Dos and don'ts 28 Apr 2020

Í þættinum fara Rakel og Gerður yfir dos og don'ts bæði á deitum og í samböndum. Þær gerast persónulegar og koma með nokkrar sögur. Minnum á @astriducastid á Instagram og www.blush.is sem er kostandi þáttarins.

Sambönd í sóttkví 22 Apr 2020

Gerður er laus úr einangrun og Rakel fær loksins umgengnisrétt aftur. Í þessum þætti ræða þær um sambönd í sóttkví og koma með nokkur góð ráð til að halda neistanum á lofti. Kostandi þáttarins er Blush.is sem minnir á fría samdægurs heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu til 2. maí en annars er líka frítt að senda með póstinum hvert á land sem er fyrir pantanir yfir 5000 kr. @astriducastid á Instagram og www.blush.is

Rauð flögg 02 Mar 2020

Hvað er rautt flagg? Gerður og Rakel ræða um rauð flögg í samböndum, taka nokkur dæmi um rauð flögg og koma með nokkur góð ráð um hvernig er hægt að taka á þeim. Kostandi þáttarins er Blush.is og minnum á Instagram þáttarins: @astriducastid

Blandaðar fjölskyldur 19 Feb 2020

Í þættinum tala Gerður og Rakel um blandaðar fjölskyldur og stjúptengsl. Hvernig er best að kynna nýjan maka fyrir börnunum? Stelpurnar miðla sinni reynslu af stjúptengslum og gefa nokkur góð ráð. Blush.is, sem er kostandi þáttarins, minnir á konudaginn á sunnudaginn, 23. febrúar, og býður öllum sem versla fyrir yfir 5000 kr, frían kaupauka sem inniheldur sogtæki, nuddolíu og sleipiefni. Instagram: @astriducastid og @blush.is

Rómantík 12 Feb 2020

Í þætti vikunnar er rætt um rómantík. Hvað er rómantík og hvernig er hægt að búa til rómantík í sambandi? Vara þáttarins, í boði Blush.is, er Luv Egg sem fæst hjá Blush og hentar frábærlega sem fyrsta kynlífstæki en einnig fyrir þá sem vilja bæta við safnið. Instagram: @astriducastid

Afbrýðisemi 05 Feb 2020

Í þættinum ræða Gerður og Rakel um afbrýðisemi. Hvað er afbrýðisemi, er til heilbrigð afbrýðisemi? Stelpurnar miðla sinni reynslu og koma með nokkur góð verkfæri sem hægt er að nota til að vinna á svona tilfinningum. Vara þáttarins, í boði Blush.is, er Discover Your Lover sem er bráðskemmtilegt spil sem hjálpar til við að fá pör til að opna sig við hvort annað. Instagram þáttarins: @astriducastid

Kynhvöt á unglingsárunum 29 Jan 2020

Í þættinum tala Gerður og Rakel um það hvernig þær upplifðu kynhvöt og kynlíf á unglingsárunum. Var fyrsta kynlífsreynslan góð eða slæm? Hvernig eiga foreldrar að ræða þetta viðkvæma mál við börnin sín? Vara þáttarins, í boði Blush.is, er Satisfyer One Night Stand sem er fullkomin vara fyrir þá sem ekki hafa prófað sogtæki áður en vilja prófa. Instagram þáttarins er @astriducastid, fyrir spurningar, leiki og fleira skemmtilegt tengt þáttunum.

Fyrstu mánuðirnir í nýju sambandi 21 Jan 2020

Hvernig eru fyrstu mánuðirnir í nýjum samböndum? Bleika skýið, mismunandi tilfinningar eins og óöryggi, spenna, óvissa og forvitni. Hvernig þróast tilfinningarnar eftir því sem líður á? Vara þáttarins í boði Blush.is er Flip Orb múffan frá Tenga en í tilefni af Bóndadeginum eru herradagar í Blush til 24. janúar.

Sjálfstraust í svefnherberginu 16 Jan 2020

Í þættinum fara stelpurnar yfir óöryggi og sjálfstraust innan veggja svefnherbergisins og koma með nokkur góð ráð til að efla það. Í þættinum leynist einnig afsláttarkóði á sexy undirföt frá Blush.is. Instagram þáttarins er @astriducastid þar sem verkefni og annað tengt þættinum birtist.

Markmið í samböndum og spurningar frá hlustendum. 09 Jan 2020

Í þættinum er farið í erfiðleika og hindranir sem geta komið upp í samböndum og mikilvægi þess að setja sér markmið tengd sambandinu sínu. Einnig fara Gerður og Rakel yfir nokkrar algengar spurningar sem þær hafa fengið í gegnum Instagram þáttarins @astriducastid. Vara þáttarins er titrarinn Iris frá Svakom sem fæst hjá BLUSH.IS sem er kostandi þáttarins.

Kynlíf á og eftir meðgöngu 21 Dec 2019

í þættinum ræða Gerður og Rakel um kynlíf á og eftir meðgöngu. Þátturinn er í boði Blush.is og vara vikunnar er grindarbotnskúlur sem fást hjá Blush. Minnum á Instagram þáttarins, @astriducastid fyrir gjafaleik og aðra hluti tengda þættinum.

Hlutir sem koma á óvart í kynlífi 12 Dec 2019

Gerður og Rakel tala um hvað það var sem kom þeim á óvart þegar þær stunduðu kynlíf í fyrsta skipti. Vara vikunnar er skógjöf en Blush.is býður upp á mikið úrval af ýmiskonar smávöru sem hægt er að gleðja með í desember.

Kryddaðu uppá kynlífið 05 Dec 2019

Hvernig er hægt að krydda uppá kynlífið? Gerður og Rakel fara yfir nokkrar aðferðir sem hægt er að nota til að krydda uppá kynlífið.

Tinder og stefnumót 27 Nov 2019

Gerður og Rakel ræða saman um stefnumót, stefnumótamenningu og Tinder. Rakel hefur aldrei verið á Tinder en Gerður hefur masterað þann miðil. Hvað er best að gera til að ná árangri á Tinder og hvað skal forðast? Er nauðsynlegt að fyrsta deit sé þriggja rétta máltíð eða er kaffibolli nóg? Má deita fleiri en einn í einu? Vara vikunnar er Satisfyer Pro Traveler og þátturinn í boði Blush.

Ástríða 20 Nov 2019

Gerður og Rakel tala um ástríðu. Hvað er ástríða? Hvernig búum við til ástríðu? Hvernig er hægt að viðhalda ástríðu í langtíma samböndum?

Kynning 20 Nov 2019

Gerður Arinbjarnar og Rakel Orra kynna sig og fara yfir hvað er framundan í Ástríðucastinu.