Athyglisbrestur á lokastigi cover

Athyglisbrestur á lokastigi

Útvarp 101

https://www.patreon.com/athyglisbrestur Athyglisbrestur á lokastigi er vikulegur hlaðvarpsþáttur um þjóðfélagsmál, poppmenningu og samtímann útfrá sjónarhorni tveggja kvenna sem komnar eru yfir 23 ára aldurinn en eru ekki ennþá orðnar þrítugar sem þýðir að þær vita allt best og eru ennþá...heitar? Salvör Gullbrá og Lóa Björk eru sviðslistakonur, grínistar og sérfræðingar í poppkúltúr.

https://www.patreon.com/athyglisbrestur Athyglisbrestur á lokastigi er vikulegur hlaðvarpsþáttur um þjóðfélagsmál, poppmenningu og samtímann útfrá sjónarhorni tveggja kvenna sem komnar eru yfir 23 ára aldurinn en eru ekki ennþá orðnar þrítugar sem þýðir að þær vita allt best og eru ennþá...heitar? Salvör Gullbrá og Lóa Björk eru sviðslistakonur, grínistar og sérfræðingar í poppkúltúr.

Hjalti Vigfússon: Taylor Swift , Beaches og leikkonur

0:00 0:00

Þættir

Hjalti Vigfússon: Taylor Swift , Beaches og leikkonur 23 Jun 2019

Hjalti Vigfússon er viðmælandi Lóu og Sölku, hann er með leikkonufíkn, er skoðanasterkur og vill ekki lengur vera kallaður „Hjalti femínisti“. Í fyrsta þætti af Athyglisbresti á lokastigi er tónlistarmyndbandið hennar Taylor Swift, You need to calm down, rætt, greint og gagnrýnt. Er hún „Hinsegin icon“? Tókst Miley Cyrus það sem Taylor Swift tókst ekki? Afhverju elskum við kvikmyndina Beaches (1988) með Bette Midler í aðalhlutverki svona mikið?

Kristín Ólafsdóttir: King of Queens, fangirls, Lizzo og ásættanleg hegðun karlmanna 30 Jun 2019

Kristín Ólafsdóttir er annar viðmælandi í Athyglisbrestur á lokastigi. Kristín er blaðamaður á Vísi, býr í Vesturbænum og er með BA-gráðu í íslensku, elskar Britney og skilur ekki hvernig Doug í King of Queens er nógu góður fyrir Carrie. Við skildum ekki hvað Britney var að syngja um í „Oops I did it again“ sem var MÓMENTIÐ SEM BREYTTI ÖLLU fyrir stínu. Og LIZZO, við tölum um LIZZO.

Ólafur Ásgeirsson: Spuni, Alkóhólismi og Íslenska Netflix 07 Jul 2019

Ólafur Ásgeirsson vinsæll og skemmtilegur gaur. Hann er leikari, spunaleikari OG spunakennari. Hann er með yfirvaraskegg og gleraugu og var að koma heim frá Berlín þar sem hann var á spunafestivalinu Das Improv Festival. Eru spunaleikarar meira næs en uppistandarar? Hvaða menningu dýrkar Óli?

Gígja Sara Björnsson: kynlífsvinna, Aziz Ansari og Beyoncé 14 Jul 2019

Gígja Sara Björnsson, hálf-frönsk, femínisti, vegan aktívisti, móðir og vinkona okkar. Við ræddum að þessu sinni kynlífsvinnu og vændi, skvettum smá shade á íslenska femínista og ákváðum hver er cancelled og hver ekki. Kannski þarf að cancela Lóu eftir þáttinn. Stelpurnar fara all in í rönt vikunnar og hlustendur gætu þurft að lækka í hljóðinu þegar hitnar í kolunum.

Sólbjört Vera Ómarsdóttir: Superbad, Stranger Things 3 og unglingagredda 21 Jul 2019

Sólbjört Vera Ómarsdóttir er myndlistarkona, ljóðskáld og skoðanasterk gella. Við ræddum Michael Cera, Stranger Things 3, ódeyjandi ást Lóu á John Snow og bíómyndirnar sem við horfðum á hvern einasta dag sem unglingar og hvernig þær mótuðu okkur - mögulega til hins verra. Rant vikunnar er á sínum stað og Sólbjört er með sjóðheitt take á ákveðna karlkyns listamenn.

Bónusþáttur: A Star is Born 28 Jul 2019

Hjalti Vigfússon, gesturinn í fyrsta þætti af Athyglisbresti á Lokastigi, í áður óbirtum bónusþætti um stórmyndina A Star is Born.

Kamilla Einarsdóttir 04 Aug 2019

Klámkynslóðin, Eymdin og lausnin á loftslagsvandanum. Kamilla Einarsdóttir hefur marga fjöruna sopið, hún er einn skemmtilegasti rithöfundurinn í augnablikinu og heldur fylgjendum sínum á Twitter á tánum. Nýjasti Athyglisbresturinn fjallar að þessu sinni um hugðarefni Kamillu, ást hennar á tónleikum, vinnu hennar á strippstað rétt fyrir aldarmótin, það að elska eymdina og lausn hennar á loftslagsvandanum. Svo tölum við að sjálfsögðu um heita gaura og piss.

Ásdís María 11 Aug 2019

Ásdís María er söngdrottning (hún keppti í Söngvakeppni sjónvarpsins áður en það var nett að gera það), lagahöfundur sem býr í Berlín og ógeðslega fyndin gella. Salka og Ásdís kynntust þegar Ásdís kyssti strákinn sem Salka var að deita, óafvitandi. Núna er Ásdís María sjúk í að horfa á geðveika sleika í kvikmyndum og fer yfir nokkra af sínum uppáhalds í þessum glænýja þætti af Athyglisbrestinum. Mwah mwah, kiss kiss.

Hugleikur Dagsson 18 Aug 2019

Hugleik Dagsson þarf vart að kynna. Maðurinn er ekki bara teiknimyndasöguhöfundur og grínisti heldur líka hlaðvarpssmiður, sem þýðir að það eru til hundruðir klukkustunda af upptökum af honum að tala. Við veltum fyrir okkur allskonar mikilvægum hlutum eins og hvernig maður vaxar eiginlega punghár, hvort það sé tilefni til að cancella Hugleik og hvort Lóa og Salka séu yfirleitt réttu manneskjurnar í það. Fyrst og fremst er hann eins og frændaímynd okkar í gríni og gefur okkur góð ráð eins og að við verðum að prófa sveppi.

Rebecca Scott Lord 25 Aug 2019

"Can a man and a woman truly ever be in an instagram story together?" Loksins fengum við þriðju bestu okkar úr grín-tríóinu Fyndnustu mínar í pod-ið, enga aðra en fjöllistakonuna Rebeccu Scott Lord. Við ræðum sýninguna Björn Bragi Djöfulsson, fjölskylduhátíð í álveri, Millionaire Matchmaker, Pokémon og þá uggvænlegu staðreynd að þetta er líklegast illkvitnasti þáttur Lóu hingað til. ATH þátturinn fer mestmegnis fram á engil-saxnesku!

Eygló Hilmarsdóttir, pt.1 01 Sep 2019

Leikkonan Eygló Hilmarsdóttir er athyglisbrests drottning, tbh. Salka, Lóa og Eygló tala um eldfima umræðuefnið... BARNEIGNIR og loftslagsvánna í þessum fyrsta hluta af Athyglisbrestinum. Afhverju ætti fólk að sleppa því að eignast börn? Afhverju drepum við þá okkur ekki bara strax? Er níhilismi afbrigðilegur? Bæði Salka og Eygló eru með BIG REVEAL í þættinum. Þátturinn var svo langur að við skiptum honum í tvo hluta, sem er bara best fyrir alla.

Eygló Hilmarsdóttir pt.2 08 Sep 2019

Seinni hluti Athyglisbrests með Eygló Hilmarsdóttir. Við höldum áfram að svara áleitnum spurningum en höfum horfið frá umræðum um loftslagsvánna. Spurningar: Hvað er menningarmóment vikunnar? Hvað er menning? Afhverju hlustar Eygló ekki á vinsæla tónlist? Hún er vintage og hlustar á vínyl-plötur! Þetta og margt margt fleira í ATHYGLISBRESTI Á LOKASTIGI. P.S. FÓLK Á EKKI AÐ VERA SEGJA HLUTI VIÐ ÓLETTAR KONUR.

Pálmi Freyr Hauksson 15 Sep 2019

Hann er spunaleikari, sketsahöfundur, leikskáld og hefur helgað líf sitt gríninu. Hann er Pálmi Freyr Hauksson. Við tölum um allt! í þessum 700aðsta þætti af Athyglisbresti á lokastigi. Við tölum um GRÍN, fyrsta uppistandið hans Pálma, versta GIGGIÐ hans. Spuna! Hlutina sem við horfðum á þegar við vorum lítil, alka (já, við erum enn að vinna okkur í gegnum kynslóðarbundið trauma sem tengist alkahólisma) Við hverfum aftur til seinni heimstyrjaldar (við erum sagnfræðingar) og hellaða þætti sem Pálmi er nýbúinn að horfa á. Þessi athyglisbrestur inniheldur allt þetta góða dót, trúnó, grín, dramatík og rönt.

Berglind Festival 22 Sep 2019

Berglind Festival er 13. gesturinn í Athyglisbresti á lokastigi og er mikill heiður að fá hana í podcast-hljóðverið. Við tölum um Ingó og nýja lagið hans KENYA sem hann samdi í Úganda. Við tölum ekki um hlutinn sem allir voru að ræða þessa vikuna Re*******r*æ*** og *nnu*Sv***. Berglind festival hellir sér yfir fyrirbæri sem hún hefur kynnst óþarflega náið í PLASTLAUSUM SEPTEMBER, já hún er að taka þátt ÞVÍ HÚN ER WOKE QUEEN. Lóa Björk hellir sér yfir litla bróður Sölku, sem er 8 ára. Við tölum um áhrifavalda Landsbankasparnaðarherferðina því jú ef það er ekki spegill á samtímamenningu þá vitum við ekki hvað er það. Verði ykkur að góðu, elskum ykkur.

Hekla Elísabet 29 Sep 2019

Það er komið að leiðarlokum.... í bili! Gestur lokaþáttarins var drottningin Hekla Elísabet. Umræðuefni þáttarins var Metoo-ráðstefnan í Hörpu, J-Lo, stráka, kynlíf, vídjóleigur, menntaskólalífið, grunnskólalífið, Guðna Th, Guðna Th og kynlíf. Hvað ef Gréta Thunberg myndi tjá sig um vændi? Væri hún sama woke-queenið þá? Hvaða vegferð er samfélagið á? Við vitum það ekki og þessi lokaþáttur mun ekki svara því!

Tinderlaugin, Skaupið og Ricky Gervais 13 Jan 2020

Salka og Lóa eru BACCK baby. Í fyrsta þætti í 2.seríu af Athyglisbresti ræða þær Skaupið, Tinderlaugina og Golden Globes og sérstaklega aðkomu Ricky Gervais. Ekki missa af sjóðheitum takes, ranti vikunnar og athyglisbrestinum.

Sjónvarpsþættir og samfélagsmiðlar 20 Jan 2020

HÆ! Nú ræða stelpurnar þættina The Circle og Tinderlaugina í þaula. Samfélagsmiðlar eru gerviheimur sem hefur svo mótandi áhrif á hvernig við upplifum allt og því er löngu kominn tími á góða þætti sem fjalla um samfélagsmiðla. The Circle eru geggjaðir þættir en á allt annann hátt en Tinderlaugin, og já við erum ennþá að tala um Tinderlaugina og við erum að tala um Keppanda númer 2.

Við erum fyrst og fremst leikhúskonur 27 Jan 2020

Þriðji þáttur í annari seríu af Athyglisbresti á lokastigi fjallar um leikhús, kynslóðarbil og Ísland. Ættum við að yfirgefa Ísland? Eigum við von á heimsfaraldri? Stelpurnar eru LIVING. En jörðin, er hún dying?

Hvítar, ríkar konur á sveppum 03 Feb 2020

Salka og Lóa fá til sín gest að þessu sinni, í fjórða þætti af Athyglisbresti á lokastigi. Það er engin önnur er ólétti tvíburinn, sviðshöfundurinn og blaðakonan Alma Mjöll Ólafsdóttir. Þær ræða ráðningu Útvarpsstjóra, rasismann sem kemur upp á yfirborðið í kjölfar útbreiðslu kórónaveirunnar og Goop, nýjan netflix þátt Gwyneth Paltrow. Við erum living, en ert þú living?

Botnhegðun og Bjarni Ben í Söngvakeppninni 10 Feb 2020

NRK- sjónvarpsþættirnir Exit, Söngvakeppni sjónvarpsins, botnhegðun og Bernie Sanders. Málefni vikunnar tækluð á óyfirvegaðan en einlægan hátt. Elskum ykkur.

Rænum ríka menn 17 Feb 2020

Salka og Lóa ræða ríka menn og konur á lágum launum. Erkióvinur þáttarins er valinn og svissneska menningu, raunveruleikaþætti og Söngvakeppni sjónvarpsins ber á góma.

Lokaþáttur á lokastigi 28 Feb 2020

Kaflaskil í lífi stelpnanna leiða þær að lokaþætti af þessum frábæra hlaðvarpsþætti sem hefur umbreytt hugsun landsmanna. Nei, djók, en þetta er samt lokaþáttur og hann fjallar um miðaldra konur, leikhús, stelpur sem gera list, nýjan síma og líðan Sölku á lokametrum meðgöngu.

Athyglisbrestur snýr aftur 27 Nov 2020

Þær eru komnar aftur! Lóa og Salka hafa neyðst til að liggja á skoðunum sínum svo mánuðum skiptir en nú eru þær loks mættar aftur í hljóðver, og þær hafa meira að segja en nokkru sinni. Salka tekur upp sinn fyrsta hlaðvarpsþátt án þess að bera barn undir belti, Lóa fylgist með fíkniefnasölu á Telegram og stelpurnar ræða muninn á að kynnast femínisma núna og þegar þær voru unglingar(það er rosa langt síðan). Rant vikunnar er svo auðvitað á sínum stað! Stelpurnar íhuguðu að stofna OnlyFans en ákváðu að byrja á Patreon og sjá hvert það leiðir. Patreon linkur kemur upp í næstu viku!

Gæða sjónvarpsefni og hin kapítalíska óhamingja (með Þóru Tómasdóttur) 04 Dec 2020

cw: umræða um kynferðisofbeldi // Stelpurnar eru með spennandi tilkynningu, þær eru farnar að selja merch, það er komið nýtt intro lag og í þessum þætti fá þær GEGGJAÐAN GEST. Þær ræða við legendary fjölmiðlakonu, Þóru Tómasdóttur, sem tókst á seinustu stundu að redda þeim podcast upptökuherbergi í Advania. Spekingarnir þrír, Salka, Lóa og Þóra ræddu um norrænt gæða sjónvarpsefni, Reese Witherspoon, konur sem þátttakendur í ofbeldismenningu og #MeToo sem þema í sjónvarpsþáttum. Þær velta steinum, þær tala um Rúv, The Morning Show, kapítalíska óhamingju, skandinavíska lífstílinn, þránna eftir frelsi og svo margt fleira. Ráðgátur lífsins eru ekki endilega leystar í þessum þætti en þær gera heiðarlega tilraun til þess. https://www.patreon.com/athyglisbrestur

Relapse og deyfing 11 Dec 2020

Þriðji þáttur í þriðju seríu en Lóa er í seríu eitt skapi (af hverju er svona mikill munur á seríu eitt og hinum spyr Salka). Lóa relapsaði og tók ekki athyglisbrestslyfin sín. Salka hins vegar kom beint úr deyfingu frá tannlækni. Þátturinn er tekinn upp Against all ODDS. Tannlæknar fá að heyra það fyrir verðlagningu sína, Salka talar um vinstri sinnaða karla og BÓ og Lóa lætur STELPUR á internetinu heyra það. Sundlaugar eru að opna, alkóhólistar fá stórt shout out og Leifur, 9 ára, bróðir Sölku er manneskja ársins.

Gefum fullorðnum jólagjafir á kostnað barna 18 Dec 2020

Salka og Lóa benda á augljósa mismunun sem á sér stað í kringum jólin sem fáir þora að ræða. Genaminnið er farið að kicka inn sem þýðir bara eitt: Stanslaus jólakvíði og órökréttar ákvarðanir. Athyglisbresturinn fer með þær á áður ókannaðar slóðir: Sambönd og meðvirkni! Eitthvað sem hefur aldrei verið áður rætt. Skáld og karlkyns skáld, sérstaklega fá að heyra það, íslensk poppstjarna fær á baukinn og stelpurnar gremjubonda yfir því að hafa aldrei verið músur listamanna. Þú getur gerst styrktaraðili þáttanna á https://www.patreon.com/athyglisbrestur.

Meine komische Mädchen (með Ásdísi Maríu) 25 Dec 2020

Söngkonan, lagasmiðurinn, Berlínarbúinn, grínistinn, fyndnasta, besta vinkona Sölku, Ásdís María Viðarsdóttir var gestur í podinu að þessu sinni. Stelpurnar töluðu um þýskt take-over á Fyndnustu mínar like-síðunni, tónlistarkonuna Sögu B, Diet-culture og Lizzo juice cleanse. Þátturinn er extra exxxtra langur að þessu sinni og nóg af jólastemmingu. Hvað eiga stelpurnar að gefa í jólagjafir? Þær eru 100 prósent ekki búnar að kaupa neitt og það eru tveir dagar til jóla!!! Ef þú ert ein rjúkandi rúst fyrir jól þá er þetta þátturinn sem hjálpar þér að GET THROUGH IT.

Árið 2020 á lokastigi (með Hjalta Vigfússyni) 31 Dec 2020

Áramótaþáttur Athyglisbrests er eini þátturinn sem þið þurfið að hlusta á þessi áramót. Þátturinn er fullkomin, kaotísk yfirferð á öllu því góða og slæma sem þetta ár færði okkur. Lóa og Salka fá til sín O.G gest þáttarins, hann var með þeim í allra fyrsta þættinum af Athyglisbresti, Hjalta Vigfússon. Í sameiningu fara þau yfir hæðir og lægðir ruglaðasta ársins: Fræga fólkið söng Imagine til að losna við Covid, Söngvakeppnin sem var haldin rétt áður en samkomutakmarkanir skullu á, Mentor kom út, Salka gerði sitt fyrsta tattú, Hjalti ákvað að verða sjálfstæður í Plex-málum, það var hrækt á Lóu á Hlemmi - og það er bara toppurinn á ísjakanum.

Ég er hvít kona ég get ekki sagt Kaní West 08 Jan 2021

Stelpurnar héldu að skilnaður Kim og Kanye yrði stóra frétt dagsins, það reyndist ekki rétt. Neckbeards í USA gerðu tilraun til valdaráns, en stelpurnar ræða það ekki neitt. Hvenær lauk hjónabandi Kimye í raun og veru? Stelpurnar eru ekki sammála um það. Salka kom þó ekki bara til að rífast við Lóu um skilnaðinn heldur kom hún líka spitting facts um brauð og co og færandi hendi með rjúkandi heitt eintak af Lífsbiblíunni beint úr prentsmiðjunni. Það er bókakynning á þessari merku útgáfu og stelpurnar kveða upp dóm sinn. Lóa, aumkunarverður leigjandi, beitir stéttaofbeldi þegar hún ræðst gegn lægstu stétt samfélagsins, afgreiðslufólki.

„Kaþólskur king“ 18 Jan 2021

Þrítugasti þáttur af Athyglisbresti á lokastigi og guð minn góður stelpurnar eru í stuði. Loksins hafa þær fundið tíma til að kryfja mál Hilaria Baldwin. Lóa er að vanda Team Alec Baldwin, Sölku til mikils ama. Er siðferðilega réttlætanlegt að kalla 12 ára dóttur sína svín því hún svarar ekki símanum? Er kaþólsk trú góð? Stelpurnar ræða auðvitað lestarslysið sem er soc med nærvera Lönu Del Rey, Sigurjón Sighvats í viðtali hjá Jakobi Bjarnar - tveir stórkostlegir listamenn þar á ferðinni (kemur í ljós að Sigurjón er svolítill Banksy í sér) og tvær gjörólíkar Netflix seríur eru teknar fyrir, Bridgerton (sem er ekkert nema 3,2,1 - horny klám cringe í búningum (... eða hvað....?) og þátturinn Pretend it's a city - þar sem rithöfundurinn og New York-erkitýpan Fran Leibowitz fær sviðið.

Haturskomment frá börnum 25 Jan 2021

Veistu hvað barnið þitt er að gera á tiktok? Líklegast kommenta haturskommentum á vídjóin hennar Lóu. Salka og Lóa ræða í þætti vikunnar málefni snjallmiðla. Þeirra einstaka sýn varpar að þessu sinni litlu ljósi á alvarleika stöðunnar og niðurstaðan er engin, því miður. Áframhaldandi fíknihegðun og botnhegðun í símanum er mögulega það eina í stöðunni? Salka fer yfir þrjú mest horny gymmin og stelpurnar fara yfir týpurnar sem þú gætir fundið í gymminu. Lóa vill ekki verða fræg (loksins) og Salka Low-Key ekki heldur. Við erum að lifa versta tíma ársins, allir að vera duglegir í D-vítamíninu. Kellyanne Conway, kosningastýra Trump og dóttir hennar Claudia eru trending á soc med eftir að Claudia afhjúpar ofbeldi mömmu sinnar.

„Ég vil bara að ljótir menn séu leiðinlegir við mig“ 01 Feb 2021

Er í lagi að finnast einhver sem óbeint/beint olli íslenska efnahagshruninu sexy a.f? Til umræðu í þessum nýja þætti eru enn á ný menn sem stelpurnar eru ósammála um hvort séu heitir eða ekki. Jón Ásgeir Jóhannesson og.... ofc allir mennirnir í Dönsku kvikmyndinni Druk. Stórar siðferðislegar spurningar vakna þegar stelpurnar ræða Kveiksviðtalið sem Helgi Seljan (virðing á nafnið) tók við Jón Ásgeir. Lóa opinberar óra sem hið kapítalíska samfélag hefur kveikt innra með henni. Salka fer ófögrum orðum um nýlegt fyrirbæri á íslenskum vefsíðum.

Gríslingur Marteinn (með Gísla Marteini Baldurssyni) 15 Feb 2021

Eftir klúður seinustu viku þurftum við að sækja stóru byssurnar. Enginn annar en TV-superstar, Vikan með Gísla Marteini kom til okkar í podið. Gísli vígir með okkur nýjan lið í þættinum, Seven Minutes in Heaven. Stelpurnar ræða gestina í Gísla Marteini, sænsku sjónvarpsþættina Gösta, Eurovison, Málsvörn, Hrunið 2008, svo fátt eitt sé nefnt. Allt nema borgarskipulag og bóluefni er á borðinu.

It's Britney, bitch (með Grétu Þorkelsdóttur) 22 Feb 2021

Heimildarmyndinn Framing Britney kom út þann 5. febrúar síðastliðinn. Af því tilefni fengum við til okkar sérfræðing í Britney Spears, hana Grétu Þorkelsdóttur til að ræða við okkur um heimildarmyndina, goðsögnina Britney, allt sem er ekki í myndinni og sömuleiðis útskriftarverkið hennar úr grafískri hönnun í LHÍ, sem var glæislegt bókverk um Britney. Hvernig fóru fjölmiðlar svona illa með yndislega stelpu frá Kentwood, Louisiana?

Hver heldur með litlum stelpum? 01 Mar 2021

Ef það var einhverntímann athyglisbrestsþáttur þar sem við tölum um jafnrétti kynjanna, kynin, menntakerfið, félagsmótun, hvernig strákar haga sér og hvernig stelpur haga sér, þá er þetta sá þáttur. Þetta er ultimate SÁ þáttur. Heimildarmyndin 'Hækkum rána' snerti einhverja strengi innra með okkur. Okkar innri litlu stelpur töluðu í gegnum okkur í þessum þætti. Myndin er sýnd á Sjónvarpi Símans og fjallar um stúlknalið í körfubolta og þjálfara þeirra. Þjálfarinn beitir aðferðum og hörku sem ekki tíðkast varla á Íslandi í dag og sér í lagi ekki í stúlknaþjálfun. Þjálfarinn, Brynjar Karl, er vægast sagt umdeildur þó hann eigi sér vissulega einhverja stuðningsmenn/talsmenn, en heimildarmyndin er allavega í öllu falli stórkostleg.

Þegar uppáhalds hlutirnir þínir eru „cancelled“ 08 Mar 2021

Hvernig er rétt að bregðast við þegar fólk verður uppvíst að rasisma? Finnst okkur sem hvítu fólki stundum pirrandi að annað hvítt fólk þurfi að axla ábyrgð á hlutum sem virka smávægilegir þegar kemur að kynþáttafordómum? Við köfuðum aðeins ofan í atburðina í Reply All v.s. Bon Appetit málinu, Salka útskýrir hvernig Bachelor-vörumerkinu hefur mistekist að taka á þessu og svo ræða stelpurnar myndirnar Small Axe sem eru í uppáhalds efnisveitunni okkar, Rúv Sarpinum. https://www.patreon.com/athyglisbrestur

Trúðaskólinn (með Gretti Valssyni) 15 Mar 2021

Gestur þáttarins er íslensk barnastjarna, vinur, fyrrum nágranni, leikari í sjónvarpsþáttunum Brot, MH-goðsögn og hingað til yngsti viðmælandi þáttarins. Enginn annar en fyndnasti og besti Grettir Valsson. Grettir er Grettir og þessi þáttur hét næstum Greiningarnar hans Grettis eða Grettir og Greiningarnar, því að við hreinlega gátum ekki hætt að sjúkdómsgreina hann. Við förum yfir allt það helsta, ástina, menntaskóla, Gillz, uppgang feminisma, OPRAH viðtalið (!!!!) og framtíðarhorfur Grettis. Þegar unga fólkið talar þá eigum við að hlusta. Þegar unga fólkið segist ætla í Trúðaskóla þá berum við virðingu fyrir því.

Narsissistar og þorstagildrur 22 Mar 2021

Stelpurnar eru tvær í þættinum að þessu sinni en menningarlífið er í fullum gangi: Salka horfði á óvæntusta viðbót inn í umræðu um rasisma í meginstraumnum í langan tíma: Lokaþátt The Bachelor. Á meðan rakst Lóa rakst á mann drauma sinna í skíðaskála og gekk betur að klára allt grænmetið sem hún fékk frá Austurlands Coop. Allir eru svo að horfa á nýju seríuna af EXIT og stelpurnar ræða sjálfhverfuna í samfélaginu sem birtist í þáttunum og reyna að skilja huga narsissista.

A.C.A.B. 29 Mar 2021

Tjah. Hvað getum við sagt? Bókstaflega? Í þessum nýja þætti förum við kannski létt yfir tilfinningarnar sem fylgja hertum aðgerðum. Hvar stöndum við í menningarstríðinu um eldfjallið? Erum við bugaðar? Já. Munum við hætta að tjá okkur um poppmenningu? Aldrei. Við erum hérum og við erum ekki almannavarnir heldur bara tvær konur með míkrafóna og það er betra en nokkuð annað í þessum heimi og betra en kári stef að tala um bóluefni. Og þú veist það. Þátturinn fjallar að stærstum hluta um réttarhöld yfir kunningja okkar, Elínborgu, sem er sótt til saka fyrir mörg smávægileg brot gegn lögreglunni. Sjá titil þáttar.

Free Bassi Maraj 05 Apr 2021

Í þessum extra (jafnvel aðeins of) langa þætti af Athyglisbrest kafa stelpurnar á dýpið í umræðu um trúðinn Chet Hanks sem hefur lýst yfir að sumarið 2021 verði White Boy Summer, svik þjóðarinnar við hetjuna Bassa Maraj og hvort það sé Hrúta-orka í loftinu, eða kannski er það bara svifryk?

Efnilegar ungar konur 12 Apr 2021

Stelpurnar eru komnar ferskar úr páskafríi. Lóa fer yfir lyfin sín og Salka opinberar ótta sinn gagnvart hugsanlegum framtíðar kærasta Lóu. TIl umræðu í þessum þætti eru kvartanir til fyrirtækja (siðlaust eða samfélagslega ábyrgt?), heimilisstörf og appið HEIMA, 3 myndir sem Lóa mælir með og svo ítarleg kvikmyndarýni um myndina Promising Young Woman, sem er skrifuð og leikstýrt af Emerald Fennell (2020).

Mömmur okkar (fyrri hluti) 19 Apr 2021

Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu viku.

Mömmur okkar (seinni hluti) 26 Apr 2021

Hér er þá komið að seinni hlutanum með mæðraveldinu. Mömmu eru bestar, við föttuðum það í part 1. en núna er part two og þá förum við að tala um hvernig við gerum heiminn að betri stað og af hverju manni finnst stundum sitt eigið barn ekki vera fyndnasta barnið á uppistandinu. Stóru málin.

#GirlGang #WomenEmpowerment 03 May 2021

Í þessum þætti af Athyglisbresti á lokastigi ræðum við nýja seríu af The Circle á Netflix, sem við mælum með af öllu hjarta. En það hlaut líka að koma að því við mellurnar tækjum þátt í Official OnlyFans „Umræðunni“ sem hefur tjahhhhhhhhhhh sett íslenska internetið á hliðina í nokkra daga. P.s. Lóa hafði neytt ceremonial Cacao í þessum þætti og hafði tekið lyf þannig vonandi útskýrir það sumt sem fór fram. P.s. 2 Salka er líka að reyna að hætta á nikótíni en hún var ekkert grumpy

Bólusett fyrir ástinni (með Hjalta Vigfússyni) 10 May 2021

JÆJA. Lóa Janssen er komin með bólusetningu og Salka fór (ekki viljandi) á fyrirlestur hjá Begga Ólafs um daginn svo það mætti segja að þær báðar séu betri manneskjur í dag en í gær. Þar sem það er eins og allir vita EKKERT í gangi í samfélaginu sem þarf að ræða fengu stelpurnar til sín í þáttinn góðan fastagest Athyglisbrestsins, HJALTA VIGFÚSSON, sem jafnframt er lögfræðingur stelpnanna. Kaotísk orka í þætti vikunnar og krakkarnir ræða hvort Athyglisbrestur á lokastigi sé kristilegt podcast, hvort það sé þess virði að vera í langtímasambandi og stærsta sakamál í sjávarútvegi sem upp hefur komið í Danmörku(Salka horfði á kvöldfréttir á RÚV í gær).

Toxic sonur minn (með Tatjönu Dís og Jóhanni Kristófer) 17 May 2021

Í þessum splunkunýja þætti af Athyglisbresti fáum við iconic listatvíeykið, Tatjönu Dís og Jóhann Kristófer í hljóðverið til okkar. Við tölum um hypothetical toxic syni, mæðradaginn sem snerist ekki um Lóu, að Tatjana djammaði í LHÍ, Salka horfði á Nomadland og Jói komi alltaf seint. Og vegna þess að það er gagnkynhneigður maður í þættinum þá ræðum við fjárfestingar og rafmyntir. Ztonelove á lokalag þáttarins.

Við erum með besta podcast á Íslandi 24 May 2021

Í þessum þætti Athyglsibrests ræða Lóa og Salka af hverju konur yfir 25 mega ekki vera einlægir aðdáendur ungra tónlistarmanna(spoiler: það er af því það má ekkert lengur) og rjúfum ærandi þögn okkar(sem var ekki það ærandi) um nýja bylgju #metoo. Salka fór að gráta yfir að Jóhann í Gagnamagninu væri með Covid en Lóu er alveg sama enda skortir hana almennt samkennd með öðrum. Lóa frumflytur líka einkennissetningar (catchphrase endilega dm um hvort það sé góð þýðing) nýrrar seríu af Æði....mhm...

Kvöldvaka í Evrópu 01 Jun 2021

Í þessum þætti grafa stelpurnar stríðsöxina, en það var stutt í vinslit meðan á Evróvisíón stóð. Þær gera upp reiðina og ósættið og greina kepnnina fyrir fans og ekki fans af þessum menningarviðburði vikunnar. Þær krýna arftaka Dúu Lipa og Ariönu Grande, ræða stuttlega óvinsæla skoðun Lóu sem gerir heiðarlega tilraun til að vera cancelled af woke bullies í þættinum. Aldursmunur í unglingasamböndum, trauma porn í metoo, fósturlát og kynferðisofbeldi eru til umræðu svo það sé tekið fram. Þáttur sem byrjar léttur en endar þungur eins og allt sem er gott í þessum heimi.

Keratínmeðferð og Palestínumótmæli með Kolfinnu Nikulásdóttur (fyrri hluti) 07 Jun 2021

Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Lóa er alltaf að ýta á takka sem gera pirrandi hljóð effekta á meðan á upptöku stendur <3 Við ræðum fasisma á Íslandi, alkóhólisma(auðvitað), hvort pabbar ættu í raun að sjá meira um börnin en mæður, af hverju það er in að gera listaverk með mömmu sinni og af hvers vegna allir eru allt í einu að mækródósa?

Palestínumótmæli og Keratínmeðferð með Kolfinnu Nikulásdóttur (seinni hluti) 14 Jun 2021

Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Lóa er alltaf að ýta á takka sem gera pirrandi hljóð effekta á meðan á upptöku stendur <3 Við ræðum fasisma á Íslandi, alkóhólisma(auðvitað), hvort pabbar ættu í raun að sjá meira um börnin en mæður, af hverju það er in að gera listaverk með mömmu sinni og af hvers vegna allir eru allt í einu að mækródósa?