Bíóblaður cover

Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

#340 Bíóspjall II með Kidda

0:00 0:00

Þættir

#340 Bíóspjall II með Kidda 14 Oct 2026

Það eru um fjögur ár síðan Kiddi kom síðast í spjall til Hafsteins og það var því tímabært að fá hann aftur í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon, stöðuna á Star Wars í dag, hvort það sé gott fyrir bransann að Paramount og WB séu að sameinast, hversu mikið Kiddi þolir ekki One Battle After Another, hvort A.I. geti bjargað okkur, hversu geggjuð Lanterns serían er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Kiddi snýr aftur eftir fjögurra ára hlé 02:20 - Star Wars 15:19 - DC 46:15 - Paramount og WB samruninn 53:09 - A.I. 59:52 - Star Wars 1:05:29 - Westeros heimurinn 1:26:12 - One Battle After Another og pólitík 1:45:51 - Tölvuleikjabíómyndir

#339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland 30 Sep 2026

Content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) kíkti til Hafsteins til að ræða sérstaklega The Odyssey og stöðuna á Marvel í dag. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Spider-Man: Brand New Day, hversu vel The Odyssey heppnaðist, hvort Avengers: Doomsday geti bjargað Marvel heiminum, hvort Dune 3 verði betri en númer 2 og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Coco Coast drykkurinn 05:34 - The Odyssey 1:00:00 - Brand New Day og Doomsday 2:03:31 - Hvað klikkaði með Blade myndina? 2:15:46 - The Batman Part II 2:22:27 - Dune og Obsession

#338 Topp 10 með Snorra Rafni 10 Sep 2026

Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven 06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi 32:00 - Honorable mentions 36:38 - Capote 40:20 - Phantom Thread 46:33 - There Will Be Blood 54:42 - Joker 1:03:28 - Dr. Strangelove 1:20:38 - Vonarstræti 1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind 1:42:10 - The Piano Teacher 1:46:44 - Forrest Gump 1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra 2:10:17 - Hot takes og grín

#337 Topp 10 með Coach Clean 02 Sep 2026

Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hvað gerir Coach Clean? 11:41 - Orra gæði 14:51 - Kvikmyndaspjall 24:27 - Honorable mentions og Will Smith 33:38 - Topp 10 listinn 35:17 - Tropic Thunder 49:57 - Snatch 56:17 - Ocean’s Eleven 1:07:11 - The Hateful Eight 1:19:22 - The Rock 1:30:30 - The Departed 1:40:25 - Die Hard with a Vengeance 1:54:04 - The Dark Knight 2:07:13 - Heat 2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra 2:43:41 - Lokaorð

#336 Bransaspjall með Christof Wehmeier 24 Aug 2026

Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð. Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit. Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hver er Christof Wehmeier? 04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum 20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð 35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi 42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð 53:35 - Christopher Nolan 57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið 1:00:26 - Christopher Nolan 1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday 1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur 1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag? 1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst 1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar 1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð 1:48:26 - Star Wars 1:56:39 - Framhaldsmyndir 2:02:26 - Michael Mann 2:06:01 - Handritagerð 2:19:12 - James Bond 2:31:13 - Gervigreind 2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál 2:37:41 - Tom Cruise

#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins 06 Jan 2026

Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira. 00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:14 - Intro 00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf 03:19 - Avatar: Fire and Ash 23:20 - Var árið gott? 32:42 - One Battle After Another 51:03 - Sinners 1:10:07 - Weapons 1:30:35 - Jurassic World: Rebirth 1:37:51 - Marvel myndir ársins 1:57:50 - Ballerina og Nobody 2 2:24:19 - Grínmyndir ársins 2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning 2:55:35 - F1 2:58:36 - Superman 3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth

#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni 21 Dec 2025

Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar. Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár! 00:10 - Intro 00:25 - Jólaþátturinn í ár! 00:48 - Er Die Hard jólamynd? 03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir! 04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur 14:48 - Atriði 30:22 - Almennar spurningar 41:48 - Plakatleikur 52:45 - Rétt eða rangt 1:02:19 - Persónur og leikarar 1:19:38 - Valmöguleikar 1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur) 1:57:29 - Sigurvegarar krýndir

#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat 10 Dec 2025

Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.

#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni 01 Dec 2025

Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin 07:10 - Best of the Best 11:40 - Plakatleikur 31:31 - Almennar spurningar 42:11 - Persóna og leikari 55:01 - Rétt eða rangt 1:02:25 - Atriði 1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix) 1:35:58 - Sigurvegarar krýndir

#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael 25 Nov 2025

Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 01:58 - Ísrael og Kilo 03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti) 10:40 - Almennar spurningar 16:00 - Plakatleikur 25:19 - Rétt eða rangt 38:09 - Atriði 50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain 59:17 - Persónur og leikarar 1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir) 1:36:40 - Sigurvegarar krýndir

#330 Nördaspjall með John Inga Matta 03 Nov 2025

John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar. John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd. Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Samanburður á ólíkum myndum 09:16 - Hver er John Ingi? 16:17 - Íslenski bransinn 24:55 - Hryllingsmyndir 48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood 51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film 1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir 1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat 1:29:10 - John Wick og Ballerina 1:35:05 - Weapons og Sinners 1:51:04 - One Battle After Another 2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix 2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix 2:58:59 - Marvel 3:12:14 - DC 3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind

#329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull 27 Oct 2025

Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu. Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni! Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar. 00:00 - Intro 00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið 10:17 - Atriði 22:00 - Plakatleikur 28:23 - Almennar spurningar 36:39 - Scream queens 46:54 - Rétt eða rangt 56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn) 1:13:16 - Sigurvegari krýndur 1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli

#328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael 13 Oct 2025

Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum. Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól! 03:07 - Kilo og Ísrael 12:35 - Plakatleikur 25:41 - Valmöguleikar 46:39 - IMDB leikur 56:42 - Atriði 1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989) 1:22:00 - Sigurvegari krýndur 1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?

#327 Dahmer með Kiddu Svarfdal 08 Oct 2025

Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.

#326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu 02 Oct 2025

Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir. Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil 02:01 - Handrit skipta máli 15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I. 25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita 38:46 - Sjónvarpsþættir 45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn 59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla 1:09:35 - Topp 10 möst 1:14:41 - Kvikmyndasjóður 1:28:20 - Genre myndir á Íslandi 1:30:36 - Topp 10 möst 1:50:16 - Grín er ekki að selja 2:06:57 - Kvikmyndasjóður 2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð

#325 Grindhouse með Pétri Ragnhildar 15 Sep 2025

Grindhouse myndin hafði mikil áhrif á kvikmyndaáhugamanninn Pétur Ragnhildarson þegar hún kom út árið 2007. Pétur kíkti til Hafsteins til að ræða þessa áhugaverðu kvikmynd. Strákarnir ræða einnig Quentin Tarantino, Robert Rodriguez, Machete, hvort Grindhouse myndi virka betur í dag, af hverju myndin floppaði á sínum tíma, hvort Tarantino geri nokkurn tímann tíundu myndina sína og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Pétur er loksins í solo þætti 03:03 - Af hverju Grindhouse? 09:37 - Rodriguez og Tarantino 14:11 - Grindhouse myndir og samband R og T 29:45 - Machete og Planet Terror 1:00:53 - Fake trailerarnir 1:09:23 - Death Proof og Tarantino

#324 90’s Gullmolar III með Bjarna Thor 04 Sep 2025

Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90’s sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90’s gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri. 00:00 Intro 00:16 - 90’s Gullmolar III 12:16 - My Blue Heaven 1990 25:45 - Dazed and Confused 1993 37:14 - Sneakers 1992 45:26 - Bulletproof 1996 54:39 - Raising Cain 1992 1:01:15 - The Full Monty 1997 1:12:05 - Split Second 1992 1:19:45 - Falling Down 1993 1:27:09 - Leap of Faith 1992 1:36:23 - Clifford 1994 1:43:39 - Red Rock West 1993 1:55:18 - Fair Game 1995 2:00:50 - Judgment Night 1993 2:07:44 - Bordello of Blood 1996 2:13:34 - The Paper 1994 2:17:09 - Fled 1996 2:22:49 - Cop land 1997 2:38:21 - The Siege 1998 2:43:55 - Stir of Echoes 1999 2:47:45 - Kolamolinn hans Hafsteins

#323 Bíóspjall með Benjamín Fannari 03 Sep 2025

Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa. Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá náminu og leiklistardraumum. Í þættinum ræða þeir einnig sjónvarpsseríuna The Boys, rithöfundinn Stephen King, Game of Thrones, Harry Potter, Jim Carrey myndir og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er jólagjöfin í ár 03:25 - Benjamín og leiklistin 09:21 - Benjamín hefur leikið Jesú 13:19 - Draumahlutverk 15:50 - Jim Carrey 20:09 - Grínmyndir 25:14 - Streymisveitur, Plex og videoleigur 30:12 - Blockbusters 35:35 - Prisoners 40:30 - Marvel og DC 53:40 - Nýlegar bíóferðir 59:17 - Harry Potter 1:07:15 - Sjónvarpsseríur 1:24:59 - Game of Thrones og Stephen King

#322 The Infinity Saga: Part II með Degi, Ragga og Ara 24 Aug 2025

Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming, Black Panther, Avengers: Infinity War og margar fleiri. 00:00 - Intro 00:43 - Ant-Man 2015 14:49 - Captain America: Civil War 2016 30:52 - Doctor Strange 2016 43:05 - Guardians 2 2017 56:58 - Spiderman: Homecoming 2017 1:09:28 - Thor: Ragnarök 2017 1:18:12 - Black Panther 2018 1:25:27 - Avengers: Infinity War 2018 1:35:42 - Ant-Man and the Wasp 2018 1:38:27 - Captain Marvel 2019 1:47:10 - Avengers: Endgame 2019

#321 The Infinity Saga: Part I með Degi, Ragga og Ara 24 Aug 2025

Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Iron Man, The Incredible Hulk, The Avengers, Thor, Guardians of the Galaxy og margar fleiri. 00:00 - Rétt MCU röð? 05:16 - Iron Man 2008 32:35 - The Incredible Hulk 2008 49:26 - Iron Man 2 2010 1:03:25 - Thor 2011 1:22:35 - Captain America 2011 1:38:03 - The Avengers 2012 1:54:16 - Iron Man 3 2013 2:05:59 - Thor: The Dark World 2013 2:17:31 - Captain America: The Winter Soldier 2014 2:28:16 - Guardians of the Galaxy 2014 2:40:37 - Avengers: Age of Ultron 2015

#320 Topp 10 með Vilhjálmi Þór 20 Aug 2025

Karate/einkaþjálfarinn Vilhjálmur Þór Þóruson er mikill kvikmyndaáhugamaður með sterkar skoðanir. Hann hefur fylgst með Bíóblaðri í nokkur ár og Hafsteinn var því spenntur að fá hann í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars topp 10 listann hans Villa, nokkur “hot takes” sem Villi er með, hvort Snape sé besta Harry Potter persónan, hversu vönduð Snerting er, hvort Marvel séu alveg búnir að missa það og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - NCIS og ótrúlegir hlutir 03:18 - The Amazing Spider-Man 2 05:19 - Villi og karate 14:02 - Eldamennska og kvikmyndir 15:49 - Villi er með hot takes! 31:25 - Snerting 40:39 - The Whale 48:11 - Primal Fear 1:03:08 - Sleepers 1:17:03 - Good Will Hunting 1:23:45 - Warrior 1:32:39 - Harry Potter and the Half-Blood Prince 1:58:41 - Captain America: Civil War 2:10:16 - Under Siege 2:19:05 - Uppáhalds myndin hans Villa

#319 Superman 2025 með Gumma Sósu 15 Jul 2025

Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Superman myndina eftir James Gunn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Gunn hafi tekist að gera góða mynd, hvort búningurinn sé flottur, hversu björt DCU framtíðin er, hvort þetta sé besti Lex Luthor sem fólk hefur fengið að sjá, hvort Lois Lane fái nóg að gera í myndinni og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Gummi er DC gaurinn 02:00 - Bíóblaður spurningaspil er væntanlegt fyrir jólin 04:59 - Superman 2025 (SPOILER FREE) 29:27 - Superman 2025 (SPOILER SPJALL) 1:35:00 - DCU framtíðin

#318 DCEU með Gumma Sósu 27 Jun 2025

Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi. Í þessum seinni hluta setja strákarnir sérstakan fókus á DCEU myndirnar en það eru meðal annars myndirnar Man of Steel, Batman v Superman, Suicide Squad, Aquaman, Wonder Woman, Justice League og Snyder Cut. 00:00 - Intro 00:15 - DCEU 01:08 - Man of Steel 2013 28:40 - Batman v Superman 2016 43:57 - Suicide Squad 2016 52:06 - DC og James Gunn 1:01:28 - Birds of Prey 2020 1:07:48 - Wonder Woman og WW84 1:17:51 - Aquaman 2018 1:27:06 - Shazam 2019 1:35:29 - Justice League 2017 og Snyder Cut 1:43:47 - Joker og The Batman

#317 DC með Gumma Sósu 27 Jun 2025

Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða stærstu DC myndir frá upphafi. Í þessum fyrri hluta setja strákarnir sérstakan fókus á Superman (1978), Superman II, Batman, Batman Returns, Batman Forever, Batman & Robin, Mask of the Phantasm, Constantine, Nolan Batman þríleikinn, Superman Returns, Watchmen og Green Lantern. 00:00 - Intro 00:13 - DC/WB þessa dagana 06:45 - Af hverju er Gummi DC aðdáandi? 13:37 - Superman 1978 30:06 - Superman II 1980 47:29 - Batman 1989 1:05:52 - Batman Returns 1992 1:14:13 - Batman Forever 1995 og Batman & Robin 1997 1:35:47 - Mask of the Phantasm 1993 1:42:13 - Constantine 2005 1:59:59 - Nolan Batman þríleikurinn 2005-2012 2:25:45 - Superman Returns 2006 2:41:08 - Watchmen 2009 2:49:40 - Green Lantern 2011

#316 John Wick: Chapters 1-3 með Adam Sebastian 04 Jun 2025

Kvikmyndaáhugamaðurinn Adam Sebastian Ástmundsson er mikill John Wick aðdáandi og kíkti hann til Hafsteins til að ræða fyrstu þrjár John Wick myndirnar. Í þættinum ræða þeir meðal annars hver er þeirra uppáhalds mynd, hvernig Wick er kominn inn í pop-culture-ið, hvort John Wick sé besti leigumorðingi kvikmyndasögunnar, hversu geðveikt hnífaatriðið er í þriðju myndinni, hversu flottur Common var sem Cassian, John Wick: Chapter 4 pælingar og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 01:07 - Af hverju vildi Adam tala um John Wick? 08:42 - John Wick 1:01:04 - John Wick: Chapter 2 1:37:59 - John Wick: Chapter 3 2:18:05 - John Wick: Chapter 4 pælingar

#315 1994 vs. 1999 með Bjarna Thor og Hödda 15 May 2025

Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90’s menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:12 - 1994 vs. 1999 07:46 - Pulp Fiction vs. Magnolia 15:22 - The Shawshank Redemption vs. American Beauty 21:54 - The Lion King vs. The Iron Giant 28:04 - Ace Ventura vs. Office Space 40:32 - Dumb and Dumber vs. Being John Malkovich 53:39 - Leon vs. The Matrix 1:08:01 - True Lies vs. Fight Club 1:15:36 - Forrest Gump vs. The Green Mile 1:25:30 - Once Were Warriors vs. The Insider 1:35:01 - The Crow vs. The Sixth Sense 1:39:16 - The Legends of the Fall vs. Eyes Wide Shut 1:46:51 - Ed Wood vs. Sleepy Hollow 1:56:18 - Almennt bíóspjall

#314 Star Wars: Andor með Birgi Ársæls 21 Apr 2025

Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi. Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone Wars styrkti prequel þríleikinn, hvort Star Wars eigi frekar heima í kvikmyndahúsum og margt, margt fleira.

#313 The Last of Us með Agli Nielsen 09 Apr 2025

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen er rosalegur The Last of Us aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða hina vinsælu HBO seríu sem hefur vakið mikla lukku meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Strákarnir ræða einnig tölvuleikinn, The Last of Us Part II, hversu góð Pedro og Bella eru í sínum hlutverkum, hvort það hefði ekki mátt vera aðeins meiri hasar í seríunni, hvort peningurinn hafi klárast í síðasta þættinum, hversu góð aðlögun serían er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Egill er grjótharður The Last of Us maður 01:38 - The Last of Us tölvuleikurinn 2013 04:54 - The Last of Us Part II 2020 06:20 - The Last of Us - HBO serían 1:46:41 - The Last of Us Part II - SPOILERSPJALL

#312 Indiana Jones með Óla og Mána 18 Mar 2025

Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu kvikmyndapersónu allra tíma, Indiana Jones. Strákarnir fara yfir fyrstu fjórar Indiana Jones myndirnar og ræða meðal annars hversu magnaður Harrison Ford er fyrir framan myndavélina, hvort The Last Crusade sé betri en Raiders of the Lost Ark, hvort gamall Ford eigi eftir að virka í fimmtu myndinni, hvort Temple of Doom sé vanmetin og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Af hverju gerðu þeir Indiana Jones? 05:37 - Raiders of the Lost Ark 53:23 - The Temple of Doom 1:09:26 - Sögur um mýs 1:16:02 - The Temple of Doom 1:29:37 - The Last Crusade 2:20:28 - The Kingdom of the Crystal Skull 2:47:26 - Warner Bros og Ezra Miller 2:49:41 - Indy og Tinni 2:54:36 - Indiana Jones 5

#311 Bíóblaður spurningaspil: Egill vs. Ísrael vs. Teitur 02 Mar 2025

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni. Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum. Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!

#310 Óskarinn 2025 með Agli, Ísrael og Teiti 02 Mar 2025

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir miklir Óskarsverðlaunaáhugamenn og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta kvikmynd ársins. Í þættinum ræða þeir myndirnar The Brutalist, Wicked, Emilia Peréz, Dune: Part Two, The Substance, Nickel Boys, A Complete Unknown, Anora, Conclave og I’m Still Here. 00:00 - Intro 00:15 - Lélegar myndir í ár? 05:10 - The Brutalist 34:55 - Wicked 48:34 - Emilia Peréz 1:10:06 - Dune: Part Two 1:27:28 - The Substance 1:52:29 - Nickel Boys 2:03:55 - A Complete Unknown 2:21:58 - Anora 2:47:03 - Conclave 3:03:18 - I’m Still Here 3:23:02 - Lokaorð

#309 Gott og Slæmt með Helga og Hauki 19 Feb 2025

Kvikmyndaáhugamennirnir Helgi Edwald Einarsson og Haukur Bjarnason kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skiptið vildu strákarnir ræða lélegar myndir og góðar myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Battlefield Earth, Batman and Robin, La La Land, The Room, X-Men: First Class og Bullet Train. 00:00 - Intro 00:12 - Helgi og Haukur hafa komið áður 03:52 - Ant-Man: Quantumania 10:36 - The Mandalorian: Season 3 17:45 - The Room 34:03 - Battlefield Earth 52:18 - Batman and Robin 1:11:34 - Mortal Kombat: Annihilation 1:23:25 - X-Men: First Class 1:36:22 - American Psycho 1:50:30 - Bullet Train 2:05:13 - La La Land

#308 Topp 10 með Donnu Cruz 04 Feb 2025

Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Í þættinum ræða þau meðal annars Tucker and Dale vs. Evil, Flipped, Grand Budapest Hotel, Spirited Away, sjónvarpsseríuna From, hversu æðislegur Tom Hiddleston er, hvort það sé í lagi að horfa á döbbaðar myndir, hvort það sé í lagi fyrir kvikmyndanörda að fara ekkert í bíó í þrjá mánuði, hversu skemmtileg She’s the Man er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Donna er fastagestur 04:11 - Bíó og golf 06:39 - Sjónvarpsseríur (From og Silo) 14:25 - She’s the Man 21:41 - Mean Girls 27:32 - Spider-Man: Into the Spider-Verse 38:39 - Rogue One 46:10 - Flipped 51:42 - Hereditary 58:38 - Treasure Planet 1:01:52 - Spirited Away 1:09:28 - The Shawshank Redemption 1:14:19 - Tucker and Dale vs. Evil 1:21:51 - Indiana Jones and the Last Crusade 1:27:36 - Coraline og Grand Budapest Hotel

#307 Stallone vs. Schwarzenegger með Ísrael og Binna 23 Jan 2025

Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að finna út hvort Stallone eða Schwarzenegger sé með betri myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Cliffhanger, Eraser, True Lies, Rambo II, Kindergarten Cop, Demolition Man, Tango & Cash og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Stallone vs. Schwarzenegger 07:24 - Cliffhanger vs. Eraser 23:41 - Tango & Cash vs. Twins 36:40 - Rocky vs. Predator 55:19 - Stop! or my Mom will Shoot vs. Kindergarten Cop 1:12:14 - Cobra vs. Commando 1:25:21 - Lock Up vs. Conan the Barbarian 1:37:50 - Rambo II vs. T2 1:54:33 - Demolition Man vs. True Lies 2:12:34 - Lokaorð

#306 Stanley Kubrick: Part II með Teiti Magnús 12 Jan 2025

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar 2001: A Space Odyssey, A Clockwork Orange, Barry Lyndon, The Shining, Full Metal Jacket og Eyes Wide Shut. Strákarnir ræða einnig sínar uppáhalds Kubrick myndir, samsæriskenningar, hinn sérstaka Leon Vitali og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:40 - Topp 5 Kubrick myndirnar 04:32 - 2001: A Space Odyssey 1968 43:57 - A Clockwork Orange 1971 1:12:34 - Barry Lyndon 1975 og Leon Vitali 1:43:17 - The Shining 1980 og samsæriskenningar 2:09:08 - Full Metal Jacket 1987 2:24:00 - Eyes Wide Shut 1999 og Tom Cruise

#305 Stanley Kubrick: Part I með Teiti Magnús 12 Jan 2025

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða einn merkilegasta kvikmyndagerðarmann allra tíma, Stanley Kubrick. Í þessum fyrri hluta fara strákarnir yfir fyrstu myndir Kubrick og ræða meðal annars Fear and Desire, Killer’s Kiss, The Killing, Paths of Glory, Spartacus, Lolita, Dr. Strangelove og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Loksins er komið að Kubrick! 01:37 - Stanley Kubrick var snillingur 06:36 - Hvernig ranka strákarnir Kubrick myndirnar? 08:22 - Hver var Stanley Kubrick? 22:20 - Fear and Desire 1953 40:35 - Killer’s Kiss 1955 44:09 - The Killing 1956 53:12 - Paths of Glory 1957 1:10:32 - Spartacus 1960 1:28:17 - Lolita 1962 1:48:02 - Dr. Strangelove 1964

#304 2024 með Ásgeiri Kolbeins 08 Jan 2025

Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2024. Strákarnir fara vel yfir árið en ræða helst vinsælustu kvikmyndirnar og sjónvarpsseríurnar á árinu. Í þættinum ræða þeir meðal annars stjörnuleikinn sem Naomi Scott sýnir í Smile 2, hvort Paul Mescal nái sömu hæðum í Gladiator II eins og Russell Crowe gerði í Gladiator, hversu miklum tíma þau eyða í sandinum í Dune II, hvort Furiosa hafi verið vel heppnuð, Venom og hversu lélegur þessi Sony/Marvel heimur er, hvort Deadpool & Wolverine sé lélegasta Deadpool myndin, hvort það sé erfiðara að búa til kvikmyndastjörnur í dag, hver staðan er á kvikmyndaiðnaðinum í dag og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:12 - Loksins kemur Ásgeir Kolbeins aftur! 03:04 - Var 2024 gott bíóár? 09:15 - Furiosa 25:19 - Dune: Part II 40:23 - Gladiator II og kvikmyndastjörnur 1:02:41 - Horizon: An American Saga 1:05:31 - Joker: Folie á Deux 1:19:33 - Moana 2 og Mufasa 1:25:22 - Deadpool & Wolverine 1:33:34 - Alien: Romulus og Beetlejuice Beetlejuice 1:42:01 - The Substance 1:46:52 - Smile 2 2:04:00 - Longlegs og Trap 2:11:16 - Twisters og Abigail 2:14:09 - Venom 3 og Madame Web 2:18:40 - Kingdom of the Planet of the Apes 2:22:50 - Road House 2:26:44 - Sjónvarpsseríur á árinu 2:53:03 - Staðan á kvikmyndaiðnaðinum 3:01:14 - 2025 kvikmyndir

#303 Harry Potter: Part II með Jes Gislason 10 Dec 2024

Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum seinna hluta ræða strákarnir fimmtu, sjöttu, sjöundu og áttundu Harry Potter myndina. 00:00 - Intro 00:14 - Round 2! 00:56 - Harry Potter and the Order of the Phoenix 49:24 - Harry Potter and the Half-Blood Prince 1:09:50 - Harry Potter and the Deathly Hallows 1:45:43 - Fantastic Beasts

#302 Harry Potter: Part I með Jes Gislason 03 Dec 2024

Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir fyrstu fjórar Harry Potter myndirnar. 00:00 - Intro 00:15 - Lengi í bígerð 03:57 - Hversu stórt er Harry Potter í London? 10:31 - Harry Potter töfrasprotar 20:48 - Harry Potter serían er góð 30:27 - Harry Potter and the Philosopher’s Stone 1:20:26 - Harry Potter and the Chamber of Secrets 1:56:29 - Harry Potter and the Prisoner of Azkaban 2:22:36 - Harry Potter and the Goblet of Fire

#301 Hot Takes með Arnari Tómas 20 Nov 2024

Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest sé fáránleg, hvort Star Wars sökki og margt, margt fleira.

#300 Part II (Illska og Hasar) 13 Nov 2024

Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum seinni hluta eru hóparnir ILLSKA (Kidda Svarfdal, Lovísa Lára og Jökull) og HASAR (Óli Bjarki, Máni og Ísrael)

#300 Part I (Disney, Sci-Fi og Blockbusters) 06 Nov 2024

Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum fyrri hluta eru hóparnir DISNEY (Arnar Freyr og Egill Andri), SCI-FI (Kilo, Teitur Magnússon og Snorri) og BLOCKBUSTERS (Bjöggi, Höddi og Blaffi).

#299 Halloween með Pétri og Jökli 31 Oct 2024

Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina stærstu slasher seríu allra tíma, Halloween. Í þættinum ræða þeir meðal annars allar þrettán Halloween myndirnar, af hverju fyrsta myndin er talin svona góð, hversu mikið gríman hans Myers virðist breytast með hverri mynd, hverjar eru bestu myndirnar, hversu góð Jamie Lee Curtis hefur verið sem Laurie Strode, hvort Rob Zombie hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann ákvað að sýna baksöguna hans Michael Myers og margt, margt fleira.

#298 Joker: Folie á Deux með Teiti Magnús 16 Oct 2024

Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða eina umtöluðustu mynd seinni ára, Joker: Folie á Deux. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst myndin, hvort Todd Philips hafi skuldað áhorfendum eitthvað, hvernig það heppnaðist að hafa söngatriði í myndinni, hvernig Lady Gaga stóð sig og margt, margt fleira.

#297 Bókamyndir: Part II með Óla Bjarka 02 Oct 2024

Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu góð The Social Network er, hversu mikið allir elska Tom Hanks, Liam Neeson og hversu góður dramaleikari hann er í kvikmyndinni The Grey, hversu mikið Óli Bjarki tengir persónulega við Big Fish, hvort V for Vendetta sé vanmetin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

#296 Bókamyndir: Part I með Óla Bjarka 18 Sep 2024

Kvikmyndasérfræðingurinn Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða ákveðnar kvikmyndir sem eru byggðar á bókum. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvað flokkast sem góð skáldsaga, hvað góð aðlögun þarf að uppfylla, Coraline og hversu mikil áhrif hún hafði á Óla, hversu frábær Gone Baby Gone er eftir Ben Affleck, hvernig strákunum fannst Dune 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

#295 007: Pierce Brosnan með Agli, Ísrael og Teiti 04 Sep 2024

Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon eru allir grjótharðir James Bond aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins í annan James Bond þátt en að þessu sinni var fjallað um Pierce Brosnan og hans fjórar Bond myndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Martin Campbell sé besti Bond leikstjórinn, hversu æðisleg Famke Janssen er í Goldeneye, hversu kjánalegur kvennabósi Bond getur verið, hvort Denise Richards sé trúverðug sem kjarnorkuvísindamaður í The World is not Enough, hversu fáránleg Die Another Day er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

#294 Topp 10 með Hansel Eagle 21 Aug 2024

Leikarinn Hansel Eagle kíkti til Hafsteins með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Armageddon sé góð eða ekki, hversu vanmetin 90´s myndin Sleepers er, Ex Machina og gervigreind, hvernig The Matrix breytti leiknum, hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu góður kvikmyndagerðarmaður Quentin Tarantino er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

#293 A Nightmare on Elm Street með Pétri og Jökli 07 Aug 2024

Í tilefni þess að A Nightmare on Elm Street fagnar 40 ára afmæli í ár þá kíktu kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson og Pétur Ragnhildarson til Hafsteins til að ræða þessa stórmerkilegu slasher seríu. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars allar Nightmare myndirnar, hversu frábær Freddy Krueger er sem karakter, hvort Dream Warriors sé besta Nightmare myndin, hvernig Wes Craven fékk hugmyndina að fyrstu myndinni, hversu öðruvísi New Nightmare var þegar hún kom út árið 1994, hvernig New Line Cinema tók séns árið 1984, hversu ömurleg endurgerðin frá 2010 var og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.

#292 Friday the 13th: Part II með Jökli, Pétri og Hödda 26 Jun 2024

ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 13. október 2023. Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th. Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars hvernig Jason berst í rauninni við Carrie í Part VII, hversu leiðinleg Jason Takes Manhattan er, af hverju Jason Goes to Hell er lélegasta myndin, hversu gaman það var að sjá Freddy Krueger berjast við Jason, hversu vel heppnuð 2009 endurgerðin er, hvort það sé ekki algjört möst að framleiða þrettándu myndina í seríunni og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.