Blanda – hlaðvarp Sögufélags
Sögufélag
Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.
Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.
#65 Anna Agnarsdóttir og Bréfið sem leiddi til byltingar
Þættir
Bréfið sem leiddi til byltingar eftir Önnu Agnarsdóttur fjallar um hinn stutta en ævintýralega valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi, allt frá því að dramatískt bréf Magnúsar Stephensen dómstjóra til Sir Joseph Banks hrinti atburðarásinni af stað árið 1807. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Önnu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags. Kaldastríðsborg eftir Rósu Magnúsdóttur hefst á sögulegum leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov í Reykjavík haustið 1986. Bókin kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda menningarstríðsins svokallaða, áróðursstríðs austurs og vesturs. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Rósu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags.
Haustið 1986 funduðu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, um afvopnunarmál í Höfða. Kaldastríðsborg kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda stríðsins. Við sögu koma heimsfrægir listamenn og sérlundaðir skákmenn, amerískur bjór og ungverskir strætisvagnar.
Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?Í samstarfi Blöndu, hlaðvarpi Sögufélags og Íslandssögunnar, hlaðvarpi Jóns Kristins Einarssonar, ræða þeir saman Sverrir Jakobsson prófessor og Jón Kristinn um Sturlungaöld og hvort hún hafi verið mesti ófriðartími Íslandssögunnar? Spjall þeirra leiðir okkur nær ríkjandi söguskoðun.
Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.
Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðstoð.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.
Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.
Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.
Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.
Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi. Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að rækja skyldur sínar við stórfjölskylduna. Hvaða augum leit fólk piparmeyjar um aldamótin 1900 og hvaða augum litu þær sig sjálfar? Höfðu þær eitthvert raunverulegt val í lífinu? Og hvað með ástina? Þátturinn er gerður í samstarfi við Forlagið.
Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags. Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem hefðu einnig geta orðið þjóðhátíðardagur og einnig hvað varð til þess að fæðingardagur sjálfstæðishetjunnar Jóns Sigurðssonar varð ofan á án ákvörðunar yfirvalda. Markús og Páll ræða líka margt það sem einkennir þjóðríki nútímans, ýmislegt það sem ekki hefði orðið til í samfélögum fortíðar. Fjallkonan og íþróttir koma við sögu, sjálfsmynd og þjóðbúningar ásamt nýlegum hátíðardögum sem á einhvern hátt keppa við þjóðhátíðardaginn sjálfan.
Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen? Hér verður það rætt í hlaðvarpi sem er samstarf Sólarinnar, hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu, og Blöndu, hlaðvarpi Sögufélagsins.
Í þættinum ræðir Kristín Svava Tómasdóttir við Davíð Ólafsson, sagnfræðing og dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, um nýútkomna bók hans og Arndísar S. Árnadóttur, Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Í þættinum spjalla Kristín Svava og Davíð vítt og breytt um bókina og sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að hann hóf að starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallara við Hverfisgötu árið 1939 og þar til hann var lagður niður samhliða stofnun Listaháskóla Íslands árið 1999.
Forsíðugrein Sögu að þessu sinni fjallar um myndabókina Tindátanna eftir Nínu Tryggvadóttur og Stein Steinarr sem Ragnar í Smára gaf út árið 1943. Í Blöndu að þessu sinni ræðir Haukur Ingvarsson við höfund greinarinnar, Jón Karl Helgason bókmenntafræðing.Meðal þess sem ber á góma er sú merkilega forspá sem í bókinni felst. Nína og Steinn spá þar ekki aðeins fyrir um endalok Adolfs Hiltlers heldur einnig fund leiðtoga bandamanna, þeirra Stalíns, Roosevelts of Churchills, sem fram fór í borginni Yalta vorið 1945.
Í þessum þætti Blöndu ræðir Markús Þórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, prófessor emerítus í sagnfræði, um sjálfsævisögu Klemensar Jónssonar sem Sögufélag gefur út og hún ritstýrir ásamt Áslaugu systur sinni. Klemens var af fátæku fólki kominn sem tryggði honum þó þá bestu menntun sem möguleg var á seinni hluta 19. aldar. Þessi föðurafi systranna komst til metorða á umbrota- og breytingatímum í íslensku samfélagi. Hann var framfarasinnaður og djarfhuga að sögn Önnu, „hann var alltaf iðinn“ segir hún. Sjálfsævisagan er hispurslaus, bæði um stjórnmál, gleði og harm Klemensar og um menn og málefni hans tíðar.
Var vistarbandið ánauð og vinnuhjú þrælar? Um það skeggræða höfundur bókarinnar Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld, Vilhelm Vilhelmsson og Markús Þórhallsson.
Ævar Kjartansson ræðir við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.
Mörk (grænser / borders) er yfirskrift Norræna sagnfræðingaþingsins sem haldið verður í Háskóla Íslands dagana 13–15 ágúst. Dagskráin er gríðarlega fjölbreytt og spennandi en meðal efna sem fjallað verður um eru: Samskipti manna og dýra, umhverfissaga, stríð og friður, menning og stjórnmál miðalda, kalda stríðið í nýju ljósi, söguskoðun, minni og stjórnmál, áskoranir í sögukennslu og norræn einsöguhefð.Ása Ester Sigurðardóttir og Valgerður Pálmadóttir úr skipulagsnefnd Norræna sagnfræðingaþingsins 2025 ræða saman um dagskrána og mikilvægi þingsins fyrir íslenska sagnfræði í léttu spjalli!
Hverjir áttu Ísland? Jón Kristinn Einarsson ræðir við Guðmund Jónsson, ritstjóra bókarinnar, Ástand Íslands um 1700, í glænýjum Blönduþætti. Þeir fara vítt og breitt um sviðið og velta upp hvernig var að búa á gamla Íslandi, landi bænda og sjómanna, höfðingja og almúgamanna. Bókin er samstarfsverkefni sjö fræðimanna og byggir á stórmerkilegum heimildum, jarðabókinni, kvikfjártalinu og manntalinu, sem var safnað saman á Íslandi við upphaf átjándu aldar. Í ritinu kynnumst við hinu íslenska bændasamfélagi á alveg nýjan hátt. Fjölskyldur og heimili, byggð og búsvæði, jarðaskipan og ólík húsakynni fólks birtast okkur ljóslifandi. Staða og hagur ólíkra stétta og hópa, allt frá höfðingjum til lausingja og ómaga er til umræðu sem og eignarhald jarða.
Það fer vel á því að ræða um mótun lýðræðis á 80 afmælisári lýðveldisins. Nýr þáttur að Blöndu kominn í loftið. Jón Kristinn Einarsson og Hrafnkel Lárusson spjalla um bók Hrafnkels, Lýðræði í mótun. Þar spjalla þeir um vöxt frjálsra félaga og samtaka á árabilinu 1874-1915 og hvernig almenningur, með þátttöku sinni í þeim, setti mark sitt á íslenska samfélags- og lýðræðisþróun. Hvernig breytingar á hugsun venjulegs fólks urðu á tímabilinu, hvernig það efldist af þrótti í félagslegu tilliti, stofnaði félög, ræddi saman um áhugamál sín og vandamál, en lenti líka í deilum við aðra í kringum sig, jafnvel málaferlum, og hvernig félagsstarfið varð til þess að móta og þjálfa lýðræðislega undirstöðu fyrir þátttöku venjulegs fólks í samfélaginu, ekki síst þegar formlegum réttindum var náð þegar líða tók á 20. öld.
Í þættinum ræðir Katrín Lilja við Kolbein Rastrick sem ritaði grein við forsíðumynd Sögu tímarits Sögufélagsins sem kom út í lok árs 2023. Í greininni, sem er byggð á BA-ritgerð Kolbeins úr kvikmyndafræði, greinir Kolbeinn kvikmyndir sem teknar voru af óeirðunum við Austurvöll 30. mars 1949, daginn sem umræður voru á Alþingi um inngöngu Íslands í NATO.
Bókin, Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1808-1871, sem hlaut viðurkenningu Hagþenkis nú á dögunum er til umfjöllunar í nýjum Blöndu þætti Sögufélags. Bragi Þorgrímur Ólafsson og Erla Hulda ræða saman um sögu Sigríðar Pálsdóttur, sem skildi eftir sig vitnisburð um ævi sína í formi 250 bréfa sem hún skrifaði bróður sínum, Páli Pálssyni stúdent, 1817-1871. Þessi bréf, og viðamikið bréfasafn Páls stúdents, nýtir Erla Hulda til að lýsa ævi Sigríðar, lífi hennar og viðhorfum, börnum, fjölskyldum og vinafólki, flutningum, sigrum og áföllum. Í spjallinu er rætt um líf Sigríðar, stefnur og strauma innan ævisagnaritunar, bréf kvenna á nítjándu öld, tengsl við stórsögu, kynhlutverk og kvenréttindi um miðja 19. öld, tengsl höfundar við viðfangsefni sitt og margt fleira.
Þátturinn er helgaður íslenskri kvikmyndasögu. Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur á Kvikmyndasafni Íslands og doktorsnemi í kvikmyndafræði, hefur verið ötull við að skrifa í tímaritið Sögu undanfarin ár. Hann hefur birt greinar um fyrstu konurnar sem leikstýrðu kvikmyndum á Íslandi, Ruth Hanson og Svölu Hannesdóttur, og um kvikmyndagerð Vigfúsar Sigurgeirssonar. Nýjasta grein hans mun birtast í vorhefti Sögu 2025 en hún fjallar um kynslóðaskiptin í íslenskri kvikmyndagerð á sjöunda áratug 20. aldar og kvikmyndir Ósvalds Knudsen, sem var maður á mörkum tveggja tíma. Kristín Svava Tómasdóttir, ritstjóri Sögu, ræðir við Gunnar Tómas um rannsóknir hans en einnig um Kvikmyndasafn Íslands og þann fjársjóð sem þar leynist.
Markús Þórhallsson ræðir við Eggert Ágúst Sverrisson um nýútkomna bók hans Drottningin í Dalnum. Þetta er fyrsta bók Eggerts á þessum vettvangi. Hann lauk námi í viðskiptafræðum 1974 og starfaði að mestu við fjármál og vátryggingar á starfsferli sínum. Þegar hann lét af störfum fór hann í nám í sagnfræði og lauk BA námi 2019. Þá hóf hann að skrifa þessa einstöku bók sem er gott heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld. Þar sem megin stef bókarinnar er samfélagslýsing árin 1800 til 1940 ræða þeir Markús og Eggert Ágúst nokkuð hinar ýmsu hliðar samfélagsgerðarinnar á 19. öld s.s. híbýli fólks, fátækraframfærslu, vinnufólk og stöðu jarðeigenda og leiguliða og samskipti þeirra í gegnum aldirnar. Sérstaklega er áhugavert mat Eggerts á leigu jarða um miðja 19. öld og samanburður við leigukjör nútímans. Þeir ræða þjóðfélags breytingarnar frá sveitasamfélaginu í þéttbýlissamfélagið sem jafna má við byltingu. Markús og Eggert ræða töluvert efnahagsþróun tímabilsins en þar nýtir Eggert hagfærði- og sagnfræðiþekkingu sína m.a. með því að greina 140 ára tímaskeið í 11 hagþróunar tímabil þar sem farið er mjög ítarlega í gegnum efnahagsstarfsemi hvers tímabils.
Sumarólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að standa sig vel. Ísland sendi því stóran flokk á leikana og íslenskar konur þreyttu frumraun sína á Ólympíuleikum.
Haraldur Sigurðsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Í þessum þætti Blöndu ræðir hann við Einar Kára Jóhannsson um víðfeðmt efni bókarinnar. Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skipulagsfræðanna og módernismans. Sjónum er einkum beint að mótun borgarskipulags í höfuðstað landsins en einnig að viðleitni ríkisvaldsins til að koma skipulagi á smærri bæi og þorp landsins. Sagan snertir á mörgum helstu álitamálum nútímasamfélaga, hvort sem litið er til húsnæðismála, samgöngumála, lýðsheilsumála eða umhverfismála. Þetta er yfirgripsmikið sagnfræðirit, með gagnrýnum undirtóni, sem byggir á áralangri rannsókn og víðtækri reynslu Haraldar af skipulagsmálum.
Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, segir hlustendum Blöndu frá nýrri bók sinni Andlit til sýnis. Í bókinni er lítið safn á Kanaríeyjum í brennidepli en þar má finna brjóstafsteypur af fólki frá ólíkum stöðum heimsins sem gerðar voru á nítjándu öld. Þar á meðal eru brjóstmyndir sjö Íslendinga.
Í þættinum ræðir Jón Kristinn við Kristjönu Kristinsdóttur um bókina Lénið Ísland sem kom út árið 2021. Bókin er byggð á doktorsritgerð hennar og er mikilvæg grunnrannsókn á vanræktu tímabili í Íslandssöguni.
Rithöfundurinn Sjón hefur skrifað margar sögulegar skáldsögur. Í þessum þætti ræðir hann við Einar Kára um hvernig hann nýtir sér frumheimildir og nýjustu rannsóknir í sagnfræði. Hann ræðir einnig viðhorf sitt til sögunnar og muninn á stöðu fræðimannsins og skáldsins.
Í tilefni þjóðhátíðardagsins ræðir Jón Kristinn við Pál Björnsson um framhaldslíf Jóns Sigurðssonar í sögulegu minni landsmanna. Lagt er út af bók Páls, Jón forseti allur? sem kom út árið 2011 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár.
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og forseti Íslands, ræðir bók sína Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 við Markús Þórhallsson. Upptaka fór fram á bókakvöldi eftir aðalfund Sögufélags þann 21. febrúar 2023. Guðni segir meðal annars að saga landhelgismálsins sé þjóðarsaga og að forðast skal að reisa glæstar vörður þegar slík mál eru tekin fyrir. Hann segir frá breyttum áherslum sínun í sagnaritun eftir að hann tók við embætti forseta Íslands og áhrif spennusagnahöfundarins Tom Clancy á skrif sín. Þá kom honum á óvart að nýjar upplýsingar um pólitískar hleranir og njósnir hafi ekki vakið meira umtal.
Jón Kristinn ræðir við Hjalta Snæ Ægisson bókmenntafræðing, sem er einn aðstandenda nýrrar útgáfu á ritinu Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland, heldur land bókmennta og menningar eftir Jón Thorchillius (1697-1759). Jón ritaði verkið rétt fyrir miðbik átjándu aldar sem svar við níðskrifum erlendra manna um Ísland. Hún hefur þó aldrei komið fyrir sjónir almennings fyrr en nú.
Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um nýútkomna bók hans Á Sögustöðum, um Ísland sem nýlendu, söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, samband Íslands við Danmörku, Guðmund góða Arason og ýmislegt fleira.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir um bókina Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Í bókin er sögð saga sjúkdóma, lækninga og tilrauna til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki. Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi og seinast gistiskýli fyrir heimilislausa.
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur um hinsegin sögu og Mennina með bleika þríhyrninginn: Frásögn homma af vist sinni í fangabúðum nasista á árunum 1939-1945, sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Hafdís Erla ritaði eftirmála að bókinni þar sem hún fjallar um ferðalag bleika þríhyrningsins frá fangabúningum samkynhneigðra manna til baráttutákns hinsegin fólks, kynjakerfi Þriðja ríkisins, minningapólitík og margt fleira sem tekið er til umfjöllunar í þættinum.
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Bergsvein Birgisson um viðhorfsgrein hans í Sögu 1 2022. Þar fer Bergsveinn yfir ásakanir sínar um ritstuld eða rannsóknastuld á hendur Ásgeiri Jónssyni og andmæli bæði Ásgeirs og Helga Þorlákssonar þegar málið var lagt fyrir Siðanefnd Háskóla Íslands. Þá er fjallað um bók hans, Leitin að svarta víkingnum, og rannsóknir á Geirmundi Heljarskinn. Einnig berst talið að akademískum vinnubrögðum og hlutverki fræðafólks í miðlun á rannsóknum sínum. Að lokum er aðeins komið að skáldverkum Bergsveins og hvað sé á döfinni hjá honum.
Markús Þorhallsson ræðir við Hrafnkel Lárusson um grein hans, Íslenska dyggðarsamfélagið í lok 19. aldar, sem birtist í Sögu LIX - 2 2021. Hrafnkell Lárusson skrifar um einkenni, áhrif og hnignun þess sem hann kallar íslenska dyggðasamfélagið og það hvernig viðurkenndar dyggðir, trúarhugmyndir og siðferðisviðmið tóku breytingum á Íslandi um aldamótin 1900, með sérstakri áherslu á frumheimildir frá Austurlandi. Grein Hrafnkels byggir að hluta á doktorsritgerð hans í sagnfræði sem hann varði við Háskóla Íslands í apríl 2021.
Í tilefni af 120 ára afmæli Sögufélags ræðir Markús Þoórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, fyrrum forseta félagsins, og Hrefnu Róbertsdóttur núverandi forseta. Margt ber á góma, til að mynda stofnun og þróun félagsins í gegnum árin og margt skemmtilegt sem í vændum er. Sögufélag fagnaði 120 ára afmæli, 7. mars 2022. Félagið var stofnað árið 1902 með það að markmiði að gefa út tímarit, heimildarit og annað efni um sagnfræði og söguleg efni, einkum um sögu Íslands. Enn í dag er félagið helsti útgefandi rita af þessu tagi og vinnur ötullega að því að auka þekkingu, skilning og áhuga á sögu Íslands, og ná til almennings, fræðimanna, sagnfræðinema og annars áhugafólks um sögu.
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar í fortíð í samhengi við stöðu hennar í samtímanum og jafnvel í framtíðinni. Kristjana Vigdís hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu sem Sögufélag gefur út.
Í þessum þætti af Blöndu spjallar Davíð Ólafsson sagnfræðingur um efni nýju bókarinnar hans sem heitir Frá degi til dags og er 27. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Umræðuefnið er í aðra röndina eðli og umfang dagbókaritunar á Íslandi um tveggja alda skeið, frá 1720 til 1920 og hins vegar allar þær raddir alþýðufólks sem heyrst hafa í skrifum sagnfræðinga frá því um 1970. Þróun sagnfræðinnar, eðli hennar og tilgangur er heldur hvergi langt undan.
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Þorstein Vilhjálmsson um grein hans, Betra fólk: Tengsl takmarkana barneigna og mannkynbóta í íslenskri orðræðu 1923-1938, sem birtist í vorhefti Sögu 2021. Í greininni er fjallað um hugmyndir um getnaðarvarnir í mannkynbóta skyni frá fyrstu skrifum Guðmundar Hannessonar, í læknablaðið 1923, þar til slíkt ratar í íslenska löggjöf á síðari hluta fjórða áratugarins. Við sögu koma menntamenn sem flytja inn erlenda hugmyndafræði, menntakonur sem standa að útgáfu róttækra handbóka, ólöglegar ófrjósemisaðgerðir og heilsufræðisýning í Reykjavík með áróðursefni beint frá nasistum í Þýskalandi.
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á borð við Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson og Halldór Laxness, hvernig þeir fengu þetta hlutverk, hvað það þýðir og hvernig það hefur þróast. Einnig tengir hann sögu þeirra við aðra þjóðardýrlinga í Evrópu og segir frá alþjóðlegu samstarfsverkefnum á þessu sviði. Nýlega var greinasafn um þetta efni, Great Immortality: Studies on European Cultural Sainthood (Brill 2019) sem Jón Karl ritstýrði ásamt Marijan Dović, ein af fjórum fræðibókum til að hljóta tilnefningu til verðlauna evrópskra samanburðarbókmenntafræðinga (ESCL Excellence Award for Collaborative Research).
Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson Sögu. Þetta fyrra hefti 2021 er óvenju þykkt og í því eru fjórar ritrýndar greinar, 14 ritdómar, svar við ritdóm og ein ritfregn.
Í ellefta þætti fáum við til okkar Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Á síðasta ári kom út bók eftir Sverri hjá forlaginu Palgrave Macmillan sem ber heitið The Varangians: In God's Holy Fire, en þar rekur Sverrir sögu norrænna manna í austurvegi, og varpar nýju ljósi á ýmislegt í þeim efnum.
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifaði grein í hausthefti Sögu 2020 sem ber heitið „Landnám kynjasögunnar“. Þar leggur hún út af grein sem Margrét Guðmundsdóttir ritaði í aldamótahefti Sögu árið 2000 um sagnaritun kvennasögu á 20. öld. Hafdís tekst á við sama verkefni hér, en beinir sjónum sínum að kynjasögu og sambúð hennar við kvennasögu á fyrstu tveimur áratugum tuttugustu aldar.
Í áttunda þætti Blöndu fáum við til okkar Svein Mána Jóhannesson sagnfræðing. Umræðuefnið er doktorsritgerð hans, sem hann varði við Cambridge-háskóla árið 2018. Hún fjallaði um ríkisþróun í Bandaríkjunum á fyrri hluti nítjándu aldar og ber heitið "The Scientific-Military State, Science and the Making of American Government, 1776-1855". Sveinn færir þar rök fyrir því að bandarískir ráðamenn hafi nýtt sér vísindi og tækni við uppbyggingu alríkisins í ríkara mæli en áður hefur verið talið.
Í sjöunda þætti fáum við til okkar Kristínu Svövu Tómasdóttur, annan ristjóra Sögu. Hún ræðir við okkur um splunkunýja Sögu - haustheftið 2020.
Í sjötta þætti Blöndu ræðir Dr. Áslaug Sverrisdóttir við Markús og Jón Kristin um bók sína Handa á milli. Saga Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013. Hún segir okkur frá uppruna heimilisiðnaðar á Íslandi, hvernig Heimilisiðnaðarfélagi hefur reynst landsmönnum vel á krepputímum, gullaldarárum félagsins áratugina eftir seinni heimsstyrjöld og því hvernig félagið hefur breyst og þróast í takt við samfélagsbreytingar hér á landi.