Brestur cover

Brestur

Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen

Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD

Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD

72. Tímastjórnun á Tossa de Mar

0:00 0:00

Þættir

72. Tímastjórnun á Tossa de Mar 02 Jul 2024

Þar sem íslenska snemmsumarsveðrið hefur ekki verið upp á marga fiska vilja Brestssystur senda hlustendum smá sumargjöf og sól frá Tossa de Mar á Spáni. Þátturinn var tekinn upp í lok maí þegar Birna var sólkysst í Tossa en Bryndís að slást við trampólín í gulri viðvörun. Ef þið hafið áhuga að koma með hópi af landsins skemmtilegustu ADHD konum til Tossa de Mar í september þar sem sólarslökun, góður matur, náttúrutöfrar og misgóð tímastjórnun verður í hávegum höfð finnið þið allar upplýsingar á vef Visitor. Ath. lokað verður fyrir bókanir 26. júlí. ----- Brestssystur eru framúrskarandi í tímastjórnun eins og flestu öðru tengdu skipulagsfærni, en hafa þó heyrt af fólki þarna úti sem er að glíma við ýmis vandamál tengd tímastjórnun og -blindu. Af einskærri góðmennsku tóku þær því klukkutíma til að kenna hlustendum á þeirra helstu tips and tricks til að halda heimilislífi gangandi. Fyrir þau sem ekki vita að Birna og Bryndís eru lygasjúkar, þá var textinn hér að ofan eintóm lygi og fjallar þátturinn fyrst og fremst um vanhæfni þeirra á flestum sviðum. Fyrir utan umræður tengdar tímastjórnun ræða vinkonurnar einnig fjölnotagildi íþróttatoppa, sangríusósaðar moskítóflugur og margt margt fleira.

71. Afsakið hlé 04 Apr 2024

Nú taka við breytingar hjá Brestssystrum þar sem Birna ætlar að flytja af landi brott. Í þættinum útskýra þær fjarveru síðustu vikna, (ó)skipulag næstu vikurnar, nokkur góð nenni mér ekki móment og hvort Brestur muni lifa fjarsambandið af. Þú getur hlusta á þrjá þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur Upplýsingar um Brestur x Ofurkona í orlofi ferðina okkar til Tossa de Mar má finna á https://visitor.is/ferdir/brestur-x-ofurkona-i-orlofi

70. ADHD höfnunarnæmni 19 Mar 2024

Í þættinum fáum við allt það helsta af krísu Kensington kastala, en fréttaritari Brests var í Lundúnum á dögunum. Þá bar líka okkar helsta og besta RSD, Rejection sensitive dysphoria eða höfnunarnæmni á góma og ræddu Brestssystur orsök, afleiðingu og góð bjargráð því tengdu. Nenni mér ekki mómentin voru á sínum stað en að auki átti gamall og gleymdur þáttarliður einnig góða endurkomu; ADHD ráð vikunnar. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur Upplýsingar um Brestur x Ofurkona í orlofi ferðina okkar til Tossa de Mar má finna á https://visitor.is/ferdir/brestur-x-ofurkona-i-orlofi

69. ADHD misophonia (líkamlegt hljóðhatur) 14 Mar 2024

Mörg með ADHD glíma við misophonia. Ekki gátum við fundið íslenskt heiti yfir fyrirbærið en auðveldast er að lýsa því sem líkamlegu hljóðhatri. Misophonia er kvilli sem lýsir sér þannig að ákveðin (oft endurtekin) hljóð kalla fram tilfinningaleg viðbrögð sem mörgum gæti þótt full yfirdrifin. Við sem þekkjum tilfinninguna vitum þó að það er einfaldlega taugakerfið sem hatar hljóðið og það er jú erfitt að deila við taugakerfið. Í þætti vikunnar fara Birna og Bryndís yfir þó hljóð sem fá taugakerfi þeirra til að taka afturábak heljarstökk og hljóð sem láta sál þeirra syngja. Þær gleyma sér þó alveg nokkrum sinnum í gleðinni og fara að ræða málefni þessu al ótengd. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur Upplýsingar um Brestur x Ofurkona í orlofi ferðina okkar til Tossa de Mar má finna á https://visitor.is/ferdir/brestur-x-ofurkona-i-orlofi

68. ADHD innsæið 05 Mar 2024

Þáttur vikunnar var óvenju mikið kaos, meira að segja á Brestsmælikvarða. Birna og Bryndís ræddu mikilvægi þess að læra að hlusta á ADHD innsæið, viðburðamikla Brestsviku, dragdrottningar, dvínandi drykkjuþol og nærandi eða tæmandi vinabönd. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

67. ADHD og færnihvarf 27 Feb 2024

Mörg upplifa ýkt ADHD einkenni eftir greiningu. Þó það sé einstaklega pirrandi þá getum við huggað okkur við þá staðreynd þetta er klínískt! Í þætti vikunnar ræða Birna og Bryndís færnihvarf (e. skill regression) og hver birtingamynd þess hefur verið í þeirra lífi frá greiningu. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

66. Að koma útúr ADHD skápnum 20 Feb 2024

Það flækist fyrir mörgum hvernig best sé að snúa sér þegar kemur að því að tala opinskátt um greiningu sína eða barna sinna. Er hægt að segja öllum frá ? Mun ADHD greining koma í veg fyrir ný atvinnutækifæri ? Er hægt að tala opinskátt um ADHD greiningu og allt sem því fylgir við ung börn ? Í þætti vikunnar litu Birna og Bryndís yfir farinn veg og hvernig hugarfar þeirra gagnvart greiningunni hefur breyst eftir Brest. Þær ræddu það sem þær hefðu viljað gera öðruvísi, hversu miklu þær myndu deila ef þeim væri boðið í atvinnuviðtal í dag og hvernig þær tækla ADHD umræðuna við börnin sín. Að sjálfsögðu var óþarflega mikið af nenni mér ekki mómentum og segir Bryndís m.a. frá því hvers vegna hún mun aldrei geta stigið fæti inn á Sbarro aftur. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

65. ADHD sniðugt 13 Feb 2024

Skjáskotsárátta Brestssystra kom loksins að góðum notum. Birna og Bryndís rúlluðu í gegnum sniðugar ADHD staðreyndir og sögur í skjáskotum síðustu ára og úr því varð mjög svo kaótískt spjall. Það voru líka óvenju mörg nenni mér ekki móment í liðinni vikunni svo það var mikilvægt að gera þeim góð skil. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í : Nína Akranesi Garðashólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Siglufirði Gallerí Ozone Selfossi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

64. ADHD lömun 06 Feb 2024

Við sem erum að glíma við smávægilegan heilaskaða eigum það til að lamast þegar verkefnin verða of stór, of flókin, of tímafrek eða einfaldlega allt of leiðinleg. Í þætti vikunnar ræða Brestssystur hvernig birtingamynd ADHD lömunar þeirra hefur breyst með komu snjallsíma og hvort þær hafi fundið bjargràð við þessum leiðinlega ADHD kvilla. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í: Garðashólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Siglufirði Gallerí Ozone Selfossi Nína Akranesi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

Aukaþáttur - Fegurðin í brestunum 01 Feb 2024

Það má alltaf láta sig dreyma því draumar geta ræst! Frá því að Brestssystur fengu Bjargeyju í viðtal síðastliðið vor hafa þær látið sig dreyma um paradísarheiminn í Tossa de Mar á Spáni. Nú ætla þær að leggja land undir fót með verðandi en skemmtilegustu ADHD vinkonum sínum! Brestur x Ofurkona í orlofi kynnir: Sjö daga ferð fulla af brestum til Tossa de Mar á Spáni 16.-23. september 2024 í samstarfi við VISITOR ferðaskrifstofu. Taugakerfið fær langþráða hvíld, sólin mun gefa og grímur fá að falla. Birna Sif, Dísa og Bjargey munu dansa með ykkur inn í sólsetrið því frelsið er yndislegt þegar við leyfum okkur að sjá fegurðina öllum brestunum. Allar frekari upplýsingar má finna inni á heimasíðu Visitor

62. ADHD næring og heilsubras 31 Jan 2024

Þessi þáttur er tileinkaður þeim sem vilja vita hvernig best sé að næra ADHD heilann. Líkurnar á að farið verði eftir ráðleggingum eru engar, en það er jú aukaatriði. Þáttur vikunnar byrjar á heilsu(leysis)horni Birnu því hún fékk nýlega sjúkdómsgreiningar sem útskýra hina ýmsu heilsubresti sem hafa hrjáð hana síðustu ár. Þar sem margir kvillar tengjast beint eða óbeint ADHD heilanum fannst okkur tilvalið að deila með hlustendum sem gætu verið að glíma við sömu einkenni. Birna og Bryndís fara síðan yfir í næringarspjall, bera saman bækur um það sem þær hafa prófað til að vinna á leiðinlegum ADHD einkennum og hvernig það hefur virkað fyrir þær. Þær fóru einnig í rannsóknarleiðangur til að finna góð ráð frá næringarfræðingum og öðrum sérfræðingum, settu sér markmið sem þær voru búnar að gleyma að tökum loknum og ekki má gleyma nenni mér ekki mómentum vikunnar. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í : Garðashólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Siglufirði Gallerí Ozone Selfossi Nína Akranesi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

63. ADHD kamelljón 31 Jan 2024

Erum við félagsleg kamelljón vegna grímuofnotkunnar eða liggur meira þar að baki? Í þætti vikunnar dæsa Brestssystur sig í gegnum skömmina við að hafa klúðrað áskriftarviðtali, ræða flutninga til suðrænna landa og máta sig við litaflóru félagslega kamelljónsins. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í: Garðashólmi Húsavík⁠⁠ Paloma Grindavík⁠ Siglósport Siglufirði⁠⁠ Gallerí Ozone Selfossi⁠⁠ Nína Akranesi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠www.patreon.com/brestur

61. ADHD athafnir 16 Jan 2024

Hlustendur geta andað rólega, Birna er ekki búin að skipuleggja fyrstu samkomu sértrúarsöfnuð síns. Brestssystur fengu einfaldlega frábæra hugmynd frá hlustenda eftir síðasta þátt og úr því varð þáttur um ADHD athafnir eða seremóníur. Birna og Bryndís neyddust til að horfast í augu við þá staðreynd að þær eru sekar um óþarflega margar ADHD seremóníur. Einnig tóku þær smá internet snúning og komust þar að margvíslegum ástæðum fyrir þessari stórfurðulegu hegðun og hvernig þær geta einnig tengst öðrum taugaþroskaröskunum. Nenni mér ekki móment vikunnar eru einnig snúin aftur eftir smá fjarveru og allskonar galsi og látalæti! Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í : Garðashólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Siglufirði Gallerí Ozone Selfossi Nína Akranesi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

60. ADHD og svefn 09 Jan 2024

Við erum komnar aftur eftir dásamlegt jólafrí og því var innilega fagnað með því að ræða svefnmynstur einstaklinga með ADHD. Í þætti vikunnar ræðum við hina ýmsu svefnkvilla sem geta fylgt ADHD, Dísa skammar Birnu í 70000 skiptið fyrir almennt svefnleysi og Birna gerir grín að svefnsýki Dísu í fyrsta og síðasta skiptið. --- Þáttur vikunnar er í boði ⁠⁠⁠⁠Fulfil⁠⁠⁠⁠, ⁠⁠⁠⁠VITHIT ⁠⁠⁠⁠og ⁠⁠⁠⁠My Essential Wardrobe⁠⁠⁠⁠. Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: ⁠⁠⁠⁠Garðarshólmi Húsavík⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Paloma Grindavík⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Siglósport Siglufirði⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Gallerí Ozone Selfossi⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Nína Akranesi⁠⁠⁠⁠ Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠⁠⁠⁠www.patreon.com/brestur⁠⁠⁠⁠ Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

59. Brussast um jólin 27 Dec 2023

Hlustendur fá hér einstakt tækifæri til að hlusta á jólaþáttinn Brussast um jólin sem var í beinni útsendingu á Útvarpi Akraness 2. desember 2023. Í þættinum fá hlustendur að kíkja inn í jólaundirbúning kvenna með skerta stýrifærni, takmarkað skammtímaminni og frammúrskarandi lélega tímastjórnun. Umsjón: Brestssystur. Lög þáttarins hafa verið klippt út en fyrir þau sem vilja viðhalda góðum jólaanda má finna hlekki á lögin í þeirri röð sem þau voru spiluð hér: Patr!k - Prettyboi um jólin The Smiths - Panic Áslaug Fjóla - Litla jólatré Rammstein – Sonne Boney M – Mary‘s Boy Child The Pogues – Fairytale of New York

"Að hunsa tilfinningar sínar er eins og að slá með orfi og ljá árið 2023" 22 Dec 2023

Brot úr áskriftarviðtali við Kristínu Bragadóttur sálfræðing og uppgjörsþætti mánaðarins. Kristín er sálfræðingur með yfir 20 ára reynslu. Hún sérhæfir sig í áfallameðferðum og er í dag sjálfstætt starfandi hjá Hugarsetri, en hún er einnig menntaður grunnskólakennari, hefur starfað sem skólasálfræðingur og á geðdeild í Noregi. Hún er með ADHD sem og allir hennar afkomendur, þar á meðal dóttir hennar Birna. Í þættinum ræðir Kristín um algengar birtingamyndir hjá konum sem greinast með ADHD á fullorðinsaldri, ferlið að læra að greina eigin tilfinningar og hvað hún lærði sjálf á því þegar dóttir hennar fékk ADHD greiningu. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠⁠⁠⁠www.patreon.com/brestur

58. ADHD og dópamín 12 Dec 2023

Eins og fram hefur komið þá þjást Brestssystur af krónískum dópamínþorsta. Til að svala þeim þorsta (mjög tímabundið samt) fóru þær í leiðangur um internetið í leit að svörum við því hvað dópamín gerir fyrir almenna líkamsstarfsemi. Einnig fara þær yfir mislukkuleg nenni þér ekki móment og allskyns mál sem koma ADHD ekki neitt við. --- Þáttur vikunnar er í boði ⁠⁠⁠Fulfil⁠⁠⁠, ⁠⁠⁠VITHIT ⁠⁠⁠og ⁠⁠⁠My Essential Wardrobe⁠⁠⁠. Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: ⁠⁠⁠Garðarshólmi Húsavík⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Paloma Grindavík⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Siglósport Siglufirði⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Gallerí Ozone Selfossi⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Nína Akranesi⁠⁠⁠ Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠⁠⁠www.patreon.com/brestur⁠⁠⁠ Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

57. Að halda ADHD jól 05 Dec 2023

Þrjár konur með mismikið ADHD lögðu land undir fót til að koma saman, forðast jólastress og gera allt annað en skipuleggja jólahald. Þurfa jólin að vera stress? Þarf að halda í jólahefðir? Má vera á náttfötunum? Þarf að vera sykur? Brestssystur fá dygga hjálp frá jólahúsmóðurinni Bjargeyju við að svara þessu og öllu öðru í Bresti vikunnar. --- Þáttur vikunnar er í boði ⁠⁠Fulfil⁠⁠, ⁠⁠VITHIT ⁠⁠og ⁠⁠My Essential Wardrobe⁠⁠. Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: ⁠⁠Garðarshólmi Húsavík⁠⁠ ⁠⁠Paloma Grindavík⁠⁠ ⁠⁠Siglósport Siglufirði⁠⁠ ⁠⁠Gallerí Ozone Selfossi⁠⁠ ⁠⁠Nína Akranesi⁠⁠ Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠⁠www.patreon.com/brestur⁠⁠ Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

55. ADHD og sjálfstraust 21 Nov 2023

Hvað gerist þegar barn fær 20.000 fleiri neikvæðar athugasemdir en jákvæðar fyrir 10 ára aldur? Hvað veldur því að við erum kröfuharðari við okkur sjálfar en okkar bestu vinkonur? Er aukið dópamín lausn á öllum okkar vandamálum? Brestssystur ræða það og fleira tengt ADHD og sjálfstrausti í þætti vikunnar. --- Þáttur vikunnar er í boði ⁠Fulfil⁠, ⁠VITHIT ⁠og ⁠My Essential Wardrobe⁠. Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: ⁠Garðarshólmi Húsavík⁠ ⁠Paloma Grindavík⁠ ⁠Siglósport Siglufirði⁠ ⁠Gallerí Ozone Selfossi⁠ ⁠Nína Akranesi⁠ Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á ⁠www.patreon.com/brestur⁠ Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

54. Afmælishátíð - Eitt ár af (ATHYGLIS)BRESTI 14 Nov 2023

Litla ADHD barnið okkar er eins árs! Í þætti vikunnar lítum við yfir farinn veg, það sem við höfum lært/ekki lært á fyrsta lífsári Brests, aðdragandann að því að Pilot þátturinn fór í loftið, hvernig við fundum nafn á þáttinn og það helsta sem hefur staðið upp úr í ferlinu. Meyrar Brestssystur þakka fyrir móttökur umfram allar væntingar hlustenda síðastliðið ár <3 --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: Garðarshólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Siglufirði Gallerí Ozone Selfossi Nína Akranesi Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

53. Tiltekt í ADHD hausum 07 Nov 2023

Á þessum síðustu og verstu hafa Birna og Bryndís tekið saman lista af heillaráðum til að komast í gegnum lyfjalausa veturinn mikla. Hvort ráðin séu gagnleg eða hvort þær fylgi þeim sjálfar eftir er svo önnur saga. Þá skora þær stöllur á sig með aukinni hausatiltekt, en eru auk þess með háleitar væntingar um að draga hlustendur með sér í allsherjar body-doubling tiltektarverkefni, meira um það á Patreon. Engin pressa samt, það er ekki eins og þær séu viðkvæmar fyrir loddaralíðan (imposter syndrome) og höfnunarnæmni (rejection sensitive dysphoria). Rúsínan í pylsuendanum er svo óvænt tónverk úr vinnslu Birnu og HljóðkirkjuBaldurs. Allar líkur á að það endi í Eurovision. Þáttur vikunnar er í boði VITHIT og My Essential Wardrobe.

52. ADHD mótþrói 31 Oct 2023

Þið sem hafið alltaf velt því fyrir ykkur hversvegna einstaklingar með ADHD eru svona óþolandi erfiðir, þessi þáttur er fyrir ykkur! Í þætti vikunnar ræða Brestssystur margar birtingamyndir ADHD mótþróa, hvað veldur honum og ræða svo um það bil 15.000 aðra hluti þess á milli þegar þær gleyma sér og fara út fyrir efnið.

51. Þáttur sem átti að vera um grímur 24 Oct 2023

Í þessum þætti má heyra ástralska þingræðu um ADHD, eitthvað um grímur og annað um hugbreytandi efni á Netflix. Brestssystur kunna að velja bland í poka.

50. Skrítnar staðreyndir um ADHD 17 Oct 2023

Þátturinn sem næstum því aldrei varð því sumar gleymdu upptökugræjum í öðru bæjarfélagi. Við vitum margt um ADHD en þó er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. Brestssystrum þótti því tilvalið að skoða skrítnar og mis skemmtilegar staðreyndir tengdar ADHD. Í þætti vikunnar létu þær sig þó líka dreyma um lífið með góða stýrifærni, ræddu óvæntar nýjungar í hártísku grunnskólabarna og Birna fékk minnimáttarkennd yfir þekkingarleysi á tedrykkju.

49. ADHD kulnun 10 Oct 2023

Við erum búnar að fresta þessum þætti í næstum því ár en haustlægðirnar sem herja á okkur Íslendinga öskruðu á umræðuna: ADHD og kulnun. Er fólk með vægan heilaskaða líklegra til að lenda í kulnun/örmögnun? Hvað veldur því að við erum líklegri til að spóla yfir okkur og leita okkur seinna hjálpar ? Þurfum við liðveislu? Brestssystur ræddu í 49. þætti um helstu einkenni örmögnunar, gagnleg bjargráð og það sem Birna hefði viljað vita árið 2021.

48. Hitt eða þetta? 03 Oct 2023

Við rýnum inn í hugarheim Brestssystra og sjáum hversu líkar nú eða ólíkar þær eru í raun. Eru þær launsystur í raun og veru, eða er önnur þeirra frá Venus og hin frá Plútó?

47. Í hjónabandi með ADHD 26 Sep 2023

Framhald af sambandsþættinum átti að vera stuttur og laggóður þáttur, en varð það svo alls ekki. Birna og Dísa lögðu spurningar fyrir sambýlismenn sína varðandi áskoranir þess að búa með ADHD heila. Ekki er vitað hvort Brestssystur séu enn giftar eftir upptöku þáttarins.

46. Getuleysi heilans 19 Sep 2023

Í þætti vikunnar kynntu Brestssystur komandi áskriftarpakka til leiks. Þar voru þær þó rétt að byrja og fljótt og örugglega fór Birna að leggja drög að sértrúarsöfnuðinum Móður náttúru, Bryndís að opna sig um curly girl method áráttu og farið var í gegnum sameiginlegt tilfinningaúrvinnsluátak pylsufrekjukasts. Þáttur vikunnar er semsagt stútfullur af allskyns fróðleik og fíflalátum eins og aðrar vikur.

45. Þátturinn um það sem er bannað - á ADHD lyfjum 12 Sep 2023

Það væri vel séð ef hægt væri að minnka kvart undan lyfjaþyrstu fólki með ADHD í apótekum, handtökur þess á rúntinum og virðingarleysi í sjónvarpinu, svo þetta geti verið síðasti lyfjaþáttur haustsins. En hvað má eiginlega og hvað má ekki á ADHD lyfjum? Í miklum galsa ræddu Birna og Bryndís um störf og fleira skemmtilegt sem ekki má sinna á ADHD lyfjum og sömuleiðis störf sem henta vel fyrir ADHD heilann.

44. AUKAÞÁTTUR - Erum við öll á amfetamíni? Svar við Kastljósviðtali við Óttar Guðmundsson geðlækni 08 Sep 2023

Konur sáu sig knúnar til að rífa upp míkrafónana við dögurð eftir svefnlitla nótt.

43. Viðtal við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur 05 Sep 2023

Hvatvísi kattahvíslarinn, vélaverkfræðingurinn og einlægi samfélagamiðlaforkólfurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir heiðraði Brestssystur með nærveru sinni í þætti vikunnar. Umræðuefnið var að þessu sinni ADHD, líkt og í síðustu 42 þáttum.

42. Elvanse skortur 29 Aug 2023

Hvernig er lífið í Elvanse skorti ? Brestssystrum var heitt í hamsi í þætti dagsins vegna Elvanse skorts á Íslandi. Farið var yfir áhrif á daglegt líf þegar konur þurfa að helminga dagsskammt eða jafnvel taka lyfjalausa daga til að drýgja þau lyf sem til eru eins lengi og hægt er. Þátturinn er í boði NOW Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá NOW með kóðanum ´brestur´ Brestssytur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi hlekk. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur hlaðvarp á Instagram Brestur spjallið umræðuhópur Brestur hlaðvarp á Facebook

41. Spurt og svarað 22 Aug 2023

Er til meira viðeigandi titill á hlaðvarpsþætti sem fjallar um ADHD? Að spyrja linnulausra spurninga liðlangan daginn er sérlegt ADHD-áhugamál, en annað og alls ekki síðra áhugamál er að fá að svara slíkum heilabrjótum. Þættinum bárust spurningar, áskorun sem Brestssystur létu ekki framhjá sér fara. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

40. ADHD og skóla(ó)skipulag 15 Aug 2023

Fertugasti þáttur Brests er fyrsti þáttur Brests undir hatti Hljóðkirkjunnar - þvílík gleði! Í þættinum senda Brestssystur hugheilar stuðningskveðjur til námsmanna nær og fjær sem um þessar mundir eru að hreinskrifa stundaskrár í nýjar skipulagsbækur og litaraða pennaveskjum. Systurnar rifja upp ADHD-flækjustig fyrrum skólaganga og hvort, og þá hvernig, þær myndu tækla skólabekkinn í dag með betri skilning á eigin stýrifærnisbrestum. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

39. ADHD-vænir vinnustaðir 08 Aug 2023

Brestsystur hafa stokkið í ýmis hlutverk á vinnumarkaðinum, allt frá sorphirðu yfir í gógódansara. Þegar það uppgvötaðist u.þ.b. 5 tímum fyrir brottför Birnu frá Barcelona að enn ætti eftir að taka upp eitt stykki þátt, var því tilvalið að líta yfir farinn veg á vinnumarkaði og rýna í hversu ADHD-væn störfin hafa verið. Hafa fleiri velt vöngum yfir hvort tollgæsla og ofursamkennd sé vænleg samsetning? Leitið ekki lengra, hlustið og njótið. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

38. Hjólabrestur, bit og bjórsmakk 01 Aug 2023

Þáttur sem er eins kaótískur og titill hans ber til kynna. Hlustendur fá suðræn umhverfishljóð beint í æð úr einhverjum af fjölmögum almenningsgörðum Barselónaborgar, þar sem tvær konur með alla heimsins bresti brögðuðu á bjór eftir hjólreiðaferð sem átti að vera 10 mínútur en endaði óvart í 90. Hljóðperrar eru hvattir til að spóla fram um 16 mínútur vilji þeir ögra eyrum sínum með ögn skárri hljóðgæðum. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

37. Brestur í Barcelona 25 Jul 2023

Í svitabaði og sangríuslökun beint frá Barcelona er eirðarleysi, lyfjaofskömmtun, freknur, nærföt og túttufrelsi það helsta í fréttum. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠ Nældu þér í miða á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Vottaður tottari⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

36. Brestur í orlofi 18 Jul 2023

Í þætti dagsins taka Birna og Bryndís lauflétt spjall um áskoranir tengdar sumarfríinu. Maður þarf jú alltaf að taka brestina sína með sér í sumarfríið. Þær láta þó þar ekki við sitja heldur taka þær einnig fyrir tannholdsbólgur, tittlinga, nenni mér ekki móment og margt margt fleira. Sumsé, þáttur sem enginn má láta framhjá sér fara. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠ Nældu þér í miða á ⁠⁠⁠⁠⁠Vottaður tottari⁠⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

35. Jákvæða ADHD leiðsögukonan - Perla Magnúsdóttir 11 Jul 2023

Brestssystur hafa mögulega fundið jákvæðustu og peppuðustu leiðsögukonu landsins! Perla Magnúsdóttir er ferðamálafræðingur og leiðsögukona sem hefur tekist að virkja ADHD krafta sína í eigin fyrirtækjarekstri. Starf hennar er að sjá til þess að aðrir fái að njóta á ferðalögum sínum og fær á meðan að ferðast bæði innanlands og út fyrir landsteinana. Birna, Bryndís og Perla spjölluðu um krísustjórnun leiðsögukonu, að kunna ekki að vera fullorðin, kúnstina að útdeila þeim verkefnum sem þeim finnst leiðinleg, hvatvísi, þynnkudrauga og margt margt fleira. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW:⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠⁠ Nældu þér í miða á ⁠⁠⁠⁠Vottaður tottari⁠⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠hlekk⁠⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

34. ADHD og samkennd 04 Jul 2023

Góð samkennd, ofur-samkennd, skaðleg samkennd og bara allskonar samkennd ásamt upplestri frá fyrstu kynnum Birnu og Bryndísar. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW:⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠⁠⁠ Nældu þér í miða á ⁠⁠⁠Vottaður tottari⁠⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠hlekk⁠. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

33. Fjandans frestunaráráttan 27 Jun 2023

Eru allir með ADHD sóðabrækur? Hvort er betra að dreifa verkefnaálagi jafnt og þétt yfir lengri tíma, eða bíða þar til skilafrestsadrenalínið kikkar inn? Hvernig ætli hljómsveitarstjórinn líti út? Hvað hétu aftur föndurþættirnir vinsælu sem sýndir voru á RÚV fyrir jólin á tíunda áratugnum? Eru nokkuð til föndurhlaðvörp ? Hverjar eru bestu hárvörurnar fyrir curly girl method? Það má segja að ADHD heilinn hafi farið á yfirsnúning þegar Birna og Bryndís gerðu tilraun til að tækla frestunaráráttuvandann. Þátturinn er í boði - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW:⁠⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠⁠ Nældu þér í miða á ⁠⁠Vottaður tottari⁠⁠ Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi hlekk. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

32. Hvaða áhrif hefur ógreint ADHD á samfélagið? 20 Jun 2023

Birna og Bryndís bæta fjárhag ríkissjóðs á 65 mínútum. Léttur snúningur á þjóðfélagsmálum í þætti vikunnar sem er í boði: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - ⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW:⁠⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - ⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠:⁠ Nældu þér í miða á ⁠Vottaður tottari⁠ hér Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Brestur á Facebook

31. Ég nenni mér ekki 13 Jun 2023

Háþrýstidælur, háspennubakstur, handlagnar húsfreyjur og hyperfókusáverkar. Nenni mér ekki afrek vikunnar voru svo mörg að þau fylltu heilan þátt. Njótið vel. Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - ⁠⁠⁠⁠⁠NOW:⁠⁠⁠ Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠: Nældu þér í miða á Vottaður tottari hér Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠Brestur á Facebook

30. Skemmdar konur með lélegt stöðu- og hreyfiskyn 06 Jun 2023

Þegar ADHD fer að valda konum krónískum bólgum, liða- og vöðvaveseni er gott að vera með hlaðvarp til að ranta um vanhæfni ADHD heilans. Birna og Bryndís fara yfir minnisstæðustu nenni mér ekki atvik vikunnar, líkamsstöður úr Hringadrottinssögu og byltingu fyrir hönd kvenna með ADHD. Stiklað á þeim stóru semsagt. Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá ⁠⁠⁠⁠NOW ⁠⁠⁠⁠á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠Brestur á Facebook

29. Live Show - Brestur x Now með Ásu Ninnu 30 May 2023

Hvað er skemmtilegra en að tala mjög mikið í hlaðvarpi? Tala mjög mikið í hlaðvarpi með áhorfendur! Í þættinum má heyra upptöku af Live Showi Brests í boði Now sem fór fram í H verslun á dögunum. Ása Ninna Pétursdóttir fjölmiðlakona var viðmælandi þáttarins þar sem rætt var um margvíslegar áskoranir út frá ADHD í tengslum við á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Í bland við einlægt og áhrifamikið spjall lék Ása Ninna á hláturtaugar viðstaddra, meðal annars með skátasöng og þolfimiæfingum. Þú færð vörur frá ⁠⁠⁠⁠NOW ⁠⁠⁠⁠á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠Brestur á Facebook

28. ADHD og kynlíf - Spjallað við Indíönu Rós kynfræðing 23 May 2023

Miðvikudaginn 24. maí klukkan 20:00 verður Brestur með Live Show í H-verslun í boði Now. Frítt er á viðburðinn, nánari upplýsingar hér. Ætli kynlíf og almennt kynheilbrigði geti vafist fyrir fólki með ADHD? Þegar tvær hvatvísar konur tala um kynlíf er vissara að hafa fagaðila, sem einnig er hvatvís, á hliðarlínunni. Í þætti dagsins eiga Birna og Bryndís stórskemmtilegt spjall við Indíönu Rós kynfræðing um ADHD og kynlíf ásamt því að svara spurningum hlustenda. Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá ⁠⁠⁠NOW ⁠⁠⁠á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Brestur á Facebook

27. ADHD | DHDA - Þversagnir 16 May 2023

Að hafa of mikinn skilning á tilfinningum annara en engan skilning á eigin tilfinningum, að þrífast best í rútínu en hata rútínu, að þurfa svigrúm til að vinna úr tilfinningum en skilja ekki þegar aðrir þurfa það. Að vera með ADHD er stundum bara ein stór þversögn. Í þættinum eru líka upplýsingar um væntanlegt Live Show í H verslun í boði NOW, en þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá ⁠⁠NOW ⁠⁠á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠

26. Stýrifærnisbrestur og ADHD útúrsnúningar 09 May 2023

Gleðilegt hálft ár af Bresti! Þegar tvær konur með arfaslaka stýrifærni reyna að taka upp þátt um stýrifærni má svo sem alveg búast við því að spjallið fari frekar út í Bretsútrás til Færeyja, ný auglýsingastef, daginn sem Dísa hataði alla, Hoppkapphlaup í boði Birnu og margt fleira. Stútfullur hálfsárs afmælisgalsaþáttur í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá ⁠NOW ⁠á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠

25. Grímulaus ADHD lífstíll með Bjargeyju Ingólfsdóttur 02 May 2023

Bjargey Ingólfsdóttir er fararstjóri, fyrirlesari, félagsráðgjafi og fæðingardoula svo lengi mætti telja. Í 25. þætti Brests spjölluðu Birna og Bryndís við Bjargeyju um hyperfókus líðandi stundar, hvað varð til þess að hún hætti að gera það sem henni finnst leiðinlegt og öll þau spennandi verkefni sem hafa komið til hennar síðan. Þessi magnaði þáttur er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠

24. ADHD og dópamínkrass 25 Apr 2023

Brestskonur tóku nauðsynlega aktívistapásu í dag þar sem réttlætiskenndin hefur verið á yfirsnúningi síðustu vikur og mánuði. Birna og Bryndís bjóða því upp á dópamínskammt með nokkrum góðum nenni mér ekki sögum, léttri tungumálakennslu, gleymdum djammhljóðupptökum og fleira. Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠