Brúðkaup og smáatriðin cover

Brúðkaup og smáatriðin

Alina Vilhjálmsdóttir

Brúðkaupshlaðvarp sem mun gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt með þessu hlaðvarpi er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika. Í bland við solo þætti þar sem við köfum djúpt inn í allskonar viðfangsefni ásamt skemmtilegum viðtölum við söluaðila og brúðhjón, vonast ég til að gera einmitt það ✨

Brúðkaupshlaðvarp sem mun gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt með þessu hlaðvarpi er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika. Í bland við solo þætti þar sem við köfum djúpt inn í allskonar viðfangsefni ásamt skemmtilegum viðtölum við söluaðila og brúðhjón, vonast ég til að gera einmitt það ✨

Hversu mikið áfengi þarftu fyrir brúðkaupið þitt? [S3E32]

0:00 0:00

Þættir

Hversu mikið áfengi þarftu fyrir brúðkaupið þitt? [S3E32] 31 Jul 2025

Ertu óviss hversu mikið áfengi þú þarft fyrir stóra daginn þinn? Í þessum solo þætti vildi ég deila með ykkur minni þekkingu á áfengi og magni þess svo að áfengið klárist ekki allt of snemma. Við förum yfir magn miðað við tíma, hvaða reglur gilda almennt um fjölda drykkja í fordrykk, með kvöldmat og svo í partýinu. Einnig kem ég með marga góða punkta varðandi tegundir af áfengi og óáfenga drykki. Hægt að kaupa geggjaða óáfenga drykki hér: https://cincin.is/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þetta podast hefur hjálpað þér í skipulaginu eða þig langar að halda þessu hlaðvarpi auglýsingalaust væri geggjað ef þú gætir stutt mig um kaffibolla hér: ⁠⁠⁠⁠https://buymeacoffee.com/ogsmaatridin⁠⁠⁠⁠ Fullt af gagnlegu efni ásamt vefverslun okkar má finna á síðunni hér: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/hlekkir⁠⁠⁠⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina(hjá)ogsmaatridin.is

Hvernig á að gera daginn að sínum með Silju [S3E31] 26 Jun 2025

Ég ræddi við Silju um mikilvægi þess að gera daginn að sínum og fara sínar eigin leiðir. Hún skipulagði daginn sinn sem var fullt af smáatriðum sem endurspegluðu þau sem par. Eins og sérhannað skilti, vintage köku diskar, blúndur og fullt fleira. Svo falleg skilaboð í þessum þætti sem allir ættu að taka til sín. Hægt að finna Silju hér: https://www.instagram.com/siljabjorkk/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þetta podast hefur hjálpað þér í skipulaginu eða þig langar að halda þessu hlaðvarpi auglýsingalaust væri geggjað ef þú gætir stutt mig um kaffibolla hér: ⁠⁠⁠https://buymeacoffee.com/ogsmaatridin⁠⁠⁠ Fullt af gagnlegu efni ásamt vefverslun okkar má finna á síðunni hér: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/hlekkir⁠⁠⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina(hjá)ogsmaatridin.is

Allt um vín með Heiðrúnu Sommelier [S3E30] 29 May 2025

Tókum spjallið með Heiðrúnu sem er vínsérfræðingur og heldur uppi Tiktokinu Heidrunvinkona og rekur fyrirtækið Vínvísar - www.vinvisar.is þar sem hægt er að bóka vínsmakk fyrir hópa. Við ræddum allt það helsta sem kemur að vínum og vonandi finnst ykkur þetta jafn fræðandi og skemmtilegt og mér. ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þetta podast hefur hjálpað þér í skipulaginu eða þig langar að halda þessu hlaðvarpi auglýsingalaust væri geggjað ef þú gætir stutt mig um kaffibolla hér: ⁠⁠https://buymeacoffee.com/ogsmaatridin⁠⁠ Fullt af gagnlegu efni ásamt vefverslun okkar má finna á síðunni hér: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/hlekkir⁠⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

DIY brúðkaup fullt af smáatriðum með Kristínu [S3E29] 24 Apr 2025

Tökum spjallið við hana Kristínu sem skipulagði skemmtilegt og skrautlegt brúðkaup fullt af smáatriðum með 2 börn og vinnu. Veislan var haldin í Félagsgarð í Kjós og það var smíðað sér sætaskipan stand, boðskort og keypt inn 200 vasa. Þetta er sjón að sjá og hægt er að fylgja henni hér: https://www.instagram.com/stinaasa/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þetta podast hefur hjálpað þér í skipulaginu eða þig langar að halda þessu hlaðvarpi auglýsingalaust væri geggjað ef þú gætir stutt mig um kaffibolla hér: ⁠https://buymeacoffee.com/ogsmaatridin⁠ Fullt af gagnlegu efni ásamt vefverslun okkar má finna á síðunni hér: ⁠⁠⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/hlekkir⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Töfrandi brúðkaup í kastala með Ragnheiði [S3E28] 27 Mar 2025

Hér sest ég niður með henni Ragnheiði sem gifti sig ásamt manninum sínum í KASTALA í Írlandi. Þetta var svo sannarlega eins og saga úr ævintýri með fairy godmother, kórónu og draumakjól. Við ræddum líka praktísk atriði og hvað það kostar að gifta sig í kastala. Mjög skemmtilegur þáttur og vonandi gefur þeim von sem langar að gifta sig í kastala að gera slíkt hið sama. Hér er kastalin sem þau giftu sig í fyrir þá sem hafa áhuga: Bellingham castle ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þetta podast hefur hjálpað þér í skipulaginu eða þig langar að halda þessu hlaðvarpi auglýsingalaust væri geggjað ef þú gætir stutt mig um kaffibolla hér: https://buymeacoffee.com/ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni ásamt vefverslun okkar má finna á síðunni hér: ⁠⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/hlekkir Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Allt um hár með Kötu frá Sprey [S3E27] 27 Feb 2025

Þessi þáttur er möst til að hlusta á þó að hljóðið er pínu ónýtt mín megin. Hér fer Katrín Sif yfir allt sem er mikilvægt að vita um hárumhirðu og hár þegar kemur að brúðkaupsgreiðslunni. Ég lærði svo margt og ég veit að þú munt gera það líka. You do you merkið sem Kata nefndi með fallegu hárskrauti : https://youdoyou.is ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á ⁠⁠⁠@ogsmaatridin⁠⁠⁠ Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: ⁠⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/⁠⁠⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Planaði brúðkaup á 3 mánuðum með Simona [S2E26] 30 Apr 2024

Spjölluðum við Simona sem sagði okkur allt um brúðkaupið sitt sem hún planaði á 3 mánuðum svo það gæti verið á brúðkaupsafmælinu þeirra. Fullt af ráðum um það hvernig maður getur notið sín á deginum og ekki verið að stressa sig á littlu hlutunum. ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á ⁠⁠@ogsmaatridin⁠⁠ Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: ⁠⁠https://www.ogsmaatridin.is/⁠⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Skiptir maturinn máli með Bjarna frá Nomy Veisluþjónustunni [S2E25] 02 Nov 2023

Í þessum skemmtilega þætti tölum við um allt sem kemur að mat með honum Bjarna frá Nomy en þeir eru búnir að vera í þessum bransa lengi og sérhæfa sig í veisluþjónustu og geggjuðum mat. Við skyggnumst á bakvið tjöldin og fáum ráð um hvað skiptir máli þegar kemur að því að velja mat fyrir brúðkaupið þitt. Vefsíða Nomy: https://nomy.is/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á ⁠@ogsmaatridin⁠ Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: ⁠https://www.ogsmaatridin.is/⁠ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Skreytinga spjall með Láru frá Skreytingaþjónustunni [S2E24] 06 Jul 2023

Geggjað skemmtilegt viðtal við hana Láru frá Skreytingaþjónustunni þar sem við ræðum hvernig hún byrjaði í þessu öllu og hversu mikil vinna það fer í það að skreyta sal. Einnig gefur hún okkur góð ráð sem koma að skreytingum og hvað er gott að hafa í huga þegar þú ert að skreyta þinn eigin sal. Vefsíða : http://www.skreytingathjonustan.is/ Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=100063441593822 ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið ogsmaatridin@ogsmaatridin.is

Allt um kokteila með Ivani frá Reykjavik Cocktails [S2E23] 02 Jun 2023

Tölum við hann Ivan frá Reykjavik Cocktails um allt sem kemur að kokteilum í brúðkaupum, hvað er gott að hafa í huga, hvers vegna það skiptir máli og fáum að skyggnast á bakvið tjöldin og heyra um alla littlu hlutina sem fer í það að stylla upp kokteila bar í veislu. Þetta er geggjaður þáttur og ég lærði svo mikið sem ég er spennt að deila með þér. Vonandi hjálpar þetta þér að ákveða hvort þú viljir kokteila í þitt brúðkaup eða ekki. Vefsíða : https://www.rvkcocktails.is/ Instagram: https://www.instagram.com/rvkcocktails/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina@ogsmaatridin.is

Allt um brúðkaupsvefsíður [S2E22] 21 Mar 2023

Mig langaði að tala við þig um brúðkaupsvefsíður og mikilvægi þeirra, afhverju ég er svona hrifin af þeim og það mikilvæga, hvað á að vera í þeim. Ég fer vel yfir allar upplýsingar sem er gott að hafa á vegsíðunni ykkar, hvað þið gætuð bætt við og munurinn á vefsíðunni og Facebook. Einnig deili ég nokkrum stöðum þar sem þið getið hannað fallegar vefsíður á ódýran máta, sem ég vona að nýtast ykkur. Sendu mér skilaboð ef ég náið að sannfæra þig til að setja saman brúðkaupsvefsíðu og ef þú hefur verið með síðu, hver var þín reynsla af því? ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina@ogsmaatridin.is

Söngur í athöfninni með Ingu Maríu [S2E21] 08 Mar 2023

Í þessum skemmtilega þætti talaði ég við hana Ingu Maríu sem er söngkona um allt sem kemur að söng í athöfninni og fullt fleirra. Hún gefur okkur góð ráð um það hvað er gott að huga að þegar verið er að velja lag í athöfnina, hverskonar lög er gott að vera með, ferdlið hennar og fullt fleirra. Algjörlega jam packed þáttur sem þú mátt ekki missa af og ef þú vilt bóka hana Ingu Maríu getur þú haft samband við hana hér að neðan. Vefsíða: https://www.brudkaupid.is/ingamaria Instagram : https://www.instagram.com/ingabjorgvins/ ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina@ogsmaatridin.is

Það sem ég lærði á mínu fyrsta ári sem brúðkaupsplanari [S2E20] 07 Feb 2023

Þá er sería TVÖ gengin í garð, en þið munið fá sömu góðu þættina og skemmtilegu viðtölin við áhugaverða söluaðila og brúðhjón sem deila sinni reynslu og brúðkaupsdegi. Eini munurinn er hversu oft ég get lofað mér að koma út með þætti, en ég mun ekki lengur gefa út einn þá í hverri viku heldur einn þá í mánuði í það minnsta, ef ég næ að taka fleirri viðtöl og hef meiri tíma þá munu þið auðvitað fá nokkra auka þætti yfir árið. Í þessum þætti langaði mig að segja þér frá mínu fyrstu ári sem brúðkaupsplanari, það sem ég gerði rétt og rangt og allt það sem ég lærði. Ég vona að þú getið lært eitthvað af því hvort sem þú ert að skipuleggja þitt eigið brúðkaup eða að spá í að gerast brúðkaupsplanari. Lexíurnar eru af allskonar toga og tengjast bæði skipuleginu og fyrirtækjarekstri, eins og að vinna með vinum og rauðir flaggar frá söluaðilum. ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband í tölvupóstfangið alina@ogsmaatridin.is

Tölum um brúðkaupsathafnir [S1E19] 11 Jan 2023

Ég vildi tala við þig um allt sem kemur að athöfnum, eins og að plana tímalínuna, hvernig þú getur haft athöfnina meira persónulega og gefa þér hugmyndir af athöfnum og stöðum sem þú hefur kanski ekki pælt í bæði í kirkju og á öðrum stöðum. Láttu mig vita ef þér fannst þetta ganglegt eða ef það er eitthvað fleirra sem þér langar að vita um athafnir. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

Allt um brúðartertur með Evu Maríu frá Sætum Syndum [S1E18] 04 Jan 2023

Við tökum spjall með Evu Maríu frá Sætum Syndum en hún er búin að vera að reka fyrirtæki í 9 ár og er komin með 2 útibú. Hún er að sérhæfa sig í glæsilegum kökum og eftirréttum. Við spjöllum saman um upphaf hennar í rekstrinum, hvernig hugmyndin að Sætum Syndum varð til ásamt því að gefa þér allskonar brúðarterturáðum og fullt fleirra. Þetta viðtal var tekið í sumar og því sumt af því sem við ræðum búið að gerast og við mikið að tala um sumarið og veiruna en ég vildi bara ekki að þú myndir missa af þessum skemmtilega þætti. Njóttu!! Þú getur fundið allt um Sætar Syndir hér: Vefsíða : https://saetarsyndir.is/ Instagram: @sætarsyndir ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

5 tól sem þú þarft í skipulagsferlinu [S1E17] 03 May 2022

Maður þarf að meðhöndla svo mikið af skjölum, allskonar efni og plön þegar maður er að skipuleggja brúðkaup og það geta farið margir tímar í það að finna hluti sem eru hér og þar. Til að stytta þér tíma og auðvelda líf þitt vildi ég deila með þér 5 tólum sem munu hjálpa þér að skupuleggja þig og öll skjölin. Svo ákvað ég að henda inn 3 bónus tólum alveg í lokinn ef þú elskar tól eins mikið og ég. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

Hvað gerir brúðkaupsljósmyndari með Gunnhildi Lind? [S1E16] 12 Apr 2022

Við tökum spjall með Gunnhildi Lind sem er fjölskyldu og brúðkaups ljósmyndari um hvernig það er að vera ljósmyndari, hvað fellst í starfinu og afhverju það skiptir máli. Einnig ræðum við aðeins um góð samskipti og fagið sjálft og gefur þér innsýn inn í orðalag og hugtök sem gott er að vita. Vonandi hjálpar þessi þáttur þér að fá innsýn inn í hvernig það er að vera ljósymndari og hvernig þú getur valið þann sem hentar þér best og mun ná drauma myndunum þínum. Þú getur fundið Gunnhildi hér: Instagram: @gunnhildurlindphotography ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

Velkomin í Brúðkaup og Smáatriðin 11 Apr 2022

Velkomin í littla hljóðplássið mitt sem er Brúðkaup og smáatriðin þar sem við ræðum um allt sem við kemur brúðkaupum. Ég heiti Alína og er fyrrum brúði og áhugamaður um brúðkaup sem gerðist brúðkaupsplanari og held nú uppi þessu hlaðvarpi til að hjálpa þér og fræða þig um allt sem snertir brúðkaup.

Eftirsjá [S1E15] 05 Apr 2022

Þó ég sé alltaf að reyna að vera uppbyggjandi og peppandi þá held ég að það sé líka verðmætt að læra af reynslu annara og spá í hvað fólk er að sjá eftir að hafa gert þegar brúðkaupsdeginum líkur. Því við eigum oft erfitt með að fjárfesta í ákveðna hluti og teljum þá kanski ekki mikilvægara eða nauðsynlega þegar við erum í skipulaginu en getum svo séð eftir því eftir stóra daginn. Þess vegna vildi ég aðeins fara með þér yfir þær eftirsjár sem margir sjá eftir að hafa og hafa ekki gert. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

3 daga brúðkaup á Siglufirði með Guðrúnu Ingibjörgu [S1E14] 29 Mar 2022

Í þessum þætti fáum við geggjaða innsýn inn í daginn þeirra Guðrúnar og Hauks sem giftu sig á Siglufirði seinasta sumar. Hún er með einstaka reynslu þar sem ég skipulagði daginn þeirra og sá um bréfsefnið. Þeim langaði að gifta sig á Ítalíu en faraldurinn kom í veg fyrir það svo þau tóku Ítalíu með sér á Siglufjörð með glæsilegum blómu, fullt af smáatriðum og heilli brúðkaupshelgi til að halda uppá ástina. Ef þú vilt sjá myndir eða ert með spurningar endilega tékkið á Instagrammi hennar @dr.ladyreykjavik ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

Allt um brúðkaupsboðskortið [S1E13] 15 Mar 2022

Við tökum spjall með eiganda Andartaksins aka ég 😉 þar sem við förum yfir allt sem þú þarft að vita um boðskort, taktu daginn frá kort of fleirra. Við spjöllum um hvernær er best að senda kortin, hvað á að vera í þeim og líka allskonar góð ráð ef þú ert að plana að hanna þitt eigið. Ef þú vilt skoða kortin mín endilega segðu hæ á Intagram @andartakid www.andartakid.com ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars klukkan 17:00 í Sjálandi!! Meria info að finna hér: https://fb.me/e/22faHUAlC Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Hverskonar athöfn vilt þú halda með Ingu Auðbjörg frá Siðmennt [S1E12] 09 Mar 2022

Þessi þáttur kafar djúpt í athafnir og mikilvægi þeirra, hvað er gott að hafa í huga, tímalína athafnarinnar og hvaða táknræn atriði er hægt að vefja inn í athöfnina ykkar til að gera hana meira persónulega og einstaka. Inga vinnur sem athafnarsstjóri hjá Siðmennt og leyfir okkur líka að kíkja á bakvið tjöldin þar og hvernig það er rekið og hvað gerir þann stað einstakan og skemmtilegan. Hægt er að hafa samband við Siðmennt hér: www.sidmennt.is Endilega sendið Ingu líka línu eða takið áframhaldandi spjall með henni á Instagram hér: @ingaausa ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meria info að finna hér: https://fb.me/e/22faHUAlC Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Hringborð eða Langborð [S1E11] 01 Mar 2022

Stuttur þáttur um það heita málefni sem er, ætti maður að vera með hringborð eða langborð? Hér fer ég vel yfir mál borða, hver er kosturinn og gallarnir við hverja borðategund og spái í allskonar hlutum sem þú hefur kanski ekki pælt um. Ef að þig langar að rökræða þetta frekar endilega sendu mér skilaboð á Instagram og ég er alveg til í að tala um þetta enn meira 🙈 ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Hvernig er best að skipuleggja sitt eigið brúðkaup með Andreu Ísleifs [S1E10] 22 Feb 2022

Spjöllum við hana Andreu um allt ferðalagið hennar í gegnum brúðkaupsskipulagsferlið er hún skipuleggur sitt eigið brúðkaup frá A til Ö með hjálp vina og vandamanna auðvitað. Þau hjónin smíðuðu sína eigin kassa, pöntuðu allar skreitingarnar að utan, hönnuðu allt bréfsefnið sjálf og enduðu svo á að setja þetta allt upp nokkrum dögum fyrir brúðkaup. Það var fullt af smáatriðum og hugað var fyrir nánast öllu 😉 Ekki hika við að spyrja Andreu frekar út í daginn og hægt er að finna hana og myndir frá deginum á Instagram síðu hennar. @andreaisleifsd ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Hvernig á að framkvæma Pinterest brúðkaup drauma sinna [S1E09] 15 Feb 2022

Við ætlum að tala um allt sem kemur að Pinterest, hvernig er hægt að nýta sér þann miðil sem best, hvernig á að leita og fá hugmyndir, skipulag þar inni og margt fleirra. Í þessum þætti er ég algjörlega opinn bók og segi þér frá öllum leyndarmálum mínu, hvað ég geri og hvernig ég geri það til að hjálpa þér að skipuleggja og framkvæma drauma brúðkaupið þitt. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Spjöllum um brúðkaupsskartið með Elísu frá Mjöll [S1E08] 08 Feb 2022

Í þessum þætti spjöllum við um allt sem þú þarft að vita þegar kemur að brúðkaupsskarti. Við förum yfir það hvernig ferlið lítúr út, hvað þarf að hafa í huga við val, verð mun á málmum og hvaða steinar eru í boði þegar kemur að trúlofunarhringjum. Öll pör sem eru að fara að gifta sig þurfa giftingahringi svo þessi þáttur er ómissandi ef þú vilt vera allar upplýsingarnar á hreinu. Mjöll er einnig að fara að kynna nýja brúðarlínu núna um helgina og verður með glæsilegn viðburð, afslætti og fleirra sem þú mátt ekki missa af sérstaklega ef þú ert búin að vera að auga skartið hennar í dágóðan tíma núna. Tékkaðu á viðburðinum hér og ég sé þig þar : Viðburður Hægt er að nálgast Mjöll á Instagram hér : @mjoll Facebook hér: @mjoll.is Vefsíðan er svo hér þar sem hægt er að versla skartið á netinu líka : https://mjoll.is ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin

Hvaða þarf að hafa í huga þegar verið er að velja sal? [S1E07] 01 Feb 2022

Ef þú ert að fara að gifta þig þá þarftu sal undir veisluna en hvaða sal ættir þú að velja og hvaða spurningar þarftu að vera vera viss um að spyrja? Við förum saman yfir allskonar sala pælingar, hvaða þarf að huga að, hvaða spurningar þarftu að spyrja og fullt fleirra. Þú vilt ekki vera með of lítinn sal eða rangan sal og oft getur verið falinn kostnaður bakvið ódýran sal sem við ætlum að krifja og pæla í. Það þurfa ekki allir að vera með rándýran sal en það er gott að huga að öllum þessum punktum og spá hvert peningurinn ætti að fara. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Spjöllum saman á Instagram : @ogsmaatridin

Vilt þú umhverfisvænan brúðarkjól með Eyrún Birnu frá Bloom [S1E06] 25 Jan 2022

Geggjað spjall við hana Eyrún Birnu sem er algjör galdrakona þegar kemur að umhverfisvænum og þæginlegum brúðarkjólum. Við ræðum við hana hvernig hún fór út í þennan feril, hvernig er hægt að vera meira umhverfisvænn á brúðkaupsdaginn þegar kemur að kjólnum og fullt fleirra. Kjólar hennar hafa verið á forsíðu Brúðarblaði Vikunar og hún hefur einnig hannað fullt af kjólum fyrir Sölku Sól og sérsaumaði meðal annars brúðarkjólinn hennar. Einnig var hún að gefa út nýja línu af kjólum sem þið gerið skoðað á Instagraminu hennar. Instagram: @brudarkjolar_eyrunbirna Facebook: @BrudarkjolarEyrunBirna ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin

Förum yfir brúðkaupstímalínuna [S1E05] 18 Jan 2022

Það mikilvægasta við að skipuleggja brúðkaup er að vera skipulagður og ég veit að það helsta sem flestir spyrja út í er brúðkaupstímalínuna eða hvenær á maður að gera hvað til að vera viss um að ná öllum söluaðilunum sem manni dreymir um að ráða og langar að hafa á brúðkaupsdeginum sínum. Þess vegna ákvað ég í þessum þætti að fara með þér yfir tímalínuna mína og gefa þér nokkur góð ráð við hverni punkt og mína innsýn inn í algeng mistök og hvað er gott að hafa í huga. Þessi er stútfullur af upplýsingum svo það er ekki slæm hugmynd að taka með sér blað og penna og skrifa nokkra punkta niður. Ég vona að þeir nýtist þér og gangi þér súper vel að plana brúðkaupið þitt, hafður endilega samband ef þú ert með einhverjar spurningar eða pælingar. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin

Brúðkaupið á Borgarfirði eystra með Vigdísi Diljá [S1E04] 11 Jan 2022

Þessi þáttur er stútfullur af frábærum ráðum, fyndnum sögum og skemmtilegum uppákomum. Vigdís Diljá segir okkur frá öllu sem komst í einn þátt, sem gerðist á brúðkaupsdaginn þeirra þann 14. ágúst 2021, sem var haldinn á Borgarfirði eystra. Vigdís Diljá er 27 ára landbyggðar tútta sem er mikið á Instagram, starfar sem verkefnastjóri íþrótta og æskulýðsmála í Múlaþingi. Hún var með frábæra pössunarpíu fyrir stelpuna sína á stóra deginum, geggjaðar skreytingar, allt of flottan kagga og fullt fleirra sem hún deilir með okkur í þessum sprenghlægilega þætti. Fylgstu með Vigdísi á @vigdisdiljao ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin

10 ráð til að skapa drauma brúðkaupið þitt [S1E03] 04 Jan 2022

Ég veit að okkur langar öllum að skapa drauma brúðkaupið okkar og í þessum jam packed þætti fer ég yfir 10 hluti sem ég held að muni hjálpa þér að skapa drauma brúðkaupið þitt. Við ræðum hvað fólks sér oft eftir að hafa slept, hvað er gott að hafa í huga og hvað skiptir raunverulega máli...Pss það er ekki að gera bara það sama og allir ;) Taktu með þér penna og stílabók í þennan þátt því þú munt vilja skrifa þetta niður!! ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin

Hvað gerir blómaskreytir með Dísu frá Luna studio [S1E02] 04 Jan 2022

Hefur þú einhverntíman spáð í því hvað blómaskreytir gerir og hvað starf þeirra inniheldur? Í þessum þætti sest ég niður með henni Eydísi frá Luna Studio og við gröfum djúpt í það hvað það þýðir að vera blómaskreytir, hvað þarf að hafa í huga og gefur þér nokkur góð ráð fyrir brúðkaupsdaginn þinn hvort sem þú varst að plana að ráða blómaskreytir eða hætta þér í þetta sjálf. Vertu í bandi við Eydísi ef þú vilt vita meira um þjónustuna hennar eða spjalla við hana um fleirra blómatengt. Instagram: @lunastudio.is Facebook: @lunastudio.is Vefsíða: luna-studio.net ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin

Það sem ég lærði af brúðkaupinu mínu [S1E01] 04 Jan 2022

Það var svo ótrúlega margt sem ég lærði af mínu eigin brúðkaupi enda var ég eins og þú að gera þetta í fyrsta sinn og vissi lítið um þennan bransa, hvað væri gott að gera og hvaða hlutir taka langan tíma. Ég vildi deila því með þér hvað ég lærði og gerði og hvað ég hefði viljað gera öðruvísi. Einnig inniheldur þessi saga afhverju ég stofnaði þetta hlaðvarp og Og Smáatriðin sem er brúðkaupsskipulags og skreytingar fyrirtæki. Hver fókusinn minn er og öll skemmtilegu plöninn sem ég er með. ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Komdu í Opnunarpartýið þann 24. mars Meira info kemur síðar ;) Segðu hæ við Alínu á Instagram : @ogsmaatridin