Dómsdagur cover

Dómsdagur

Hljóðkirkjan

Baldur, Birna og Haukur dæma allt á milli himins og jarðar, og mögulega himininn og jörðina í leiðinni. Og Eddi.

Baldur, Birna og Haukur dæma allt á milli himins og jarðar, og mögulega himininn og jörðina í leiðinni. Og Eddi.

#168 Lífið maður

0:00 0:00

Þættir

#168 Lífið maður 31 Jan 2022

Í dag tekur Dómsdagur lífið fyrir í heild sinni. Eða svona næstum. Fullt af tilfinningum. Gleðilegan Dómsdag!

#167 Heitur heimsendir 24 Jan 2022

Það færist hiti í þátt dagsins þar sem Dómsdagsfólk tekur fyrir margvísleg málefni. Gleðilegan Dómsdag!

#166 Ármann snýr aftur 17 Jan 2022

Góðkunningi Dómsdags mætir aftur í stúdíóið. Málefni dagsins spanna svo sannarlega allt blæbrigðarófið og þátturinn er smekkfullur af tilfinningum. Gleðilegan Dómsdag!

#165 Nýtt upphaf með hressu krökkunum í Dómsdegi 10 Jan 2022

Eftir stutta pásu hefur Dómsdagur enn eitt árið af samfélagsrýni. Engin afsökunarbeiðni er í boði fyrir þáttaleysi síðustu vikna en óljós útskýring er gefin. Gleðilegan nýjan Dómsdag!

#164 Ármann Guðmundsson 23 Dec 2021

Seint koma sumir en koma þó. Dómsdagur er mættur, þrútinn af lífshamingju og allskonar. Í þætti dagsins fá liðsmenn Dómsdags liðsauka, en það er enginn annar en gullfallegi ljóti hálfvitinn Ármann Guðmundsson. Við þökkum honum kærlega fyrir að færa okkur jólaandann í bland við raunsæi og mannhatur. Gleðileg jól!

#163 Með afa 15 Dec 2021

Agnes og Birna fá gamlan mann í heimsókn og spjalla um málefni líðandi stundar.

#162 Hlátrasköll og heitir réttir 07 Dec 2021

Söguleg stund! Karlpungum hefur verið úthýst um stundarsakir og kvenleggur Dómsdags leikur lausum hala á meðan, sennilega með rósavín í glösum. Og hver veit nema Sigga Kling mæti á svæðið. Við vitum það ekki, því við eigum eftir að hlusta á þáttinn, en gerum bara ráð fyrir því.

#161 Ósólemíó 29 Nov 2021

Það er kominn Dómsdagur!

#160 Nammidagur 22 Nov 2021

Það hrikti í stoðum feðraveldisins þegar Dómsdagur vikunnar var hljóðritaður, enda var kynjahlutfallið jafnt í fyrsta sinn frá upphafi. Agnes, Baldur, Birna og Haukur ræddu mikilvægu málin og komust alls ekki að neinni niðurstöðu.

#159 Eddi gæti kitlað nefið þitt 15 Nov 2021

Það er kominn Dómsdagur!

#158 Litlir katlar hafa og eyru 08 Nov 2021

Agnes, Baldur og Eggert settust niður og ræddu stóru málin.

#157 Háleitar hugmyndir 01 Nov 2021

Gamli skólinn er mættur — Baddi, Eddi og Hauddi. Hrútalykt. Neðanbeltishjal. Brothætt karlmennska.

#156 Opin búð 18 Oct 2021

Agnes, Baldur og Haukur dæma alls konar.

#155 Túrbótími 11 Oct 2021

Agnes, Baldur og Haukur dæma alls konar helvítis drasl sem enginn bað um að yrði dæmt. Eða jú, reyndar í lokin. En annars ekki.

#154 Gresju-Gnesið 04 Oct 2021

Hún hefur verið kölluð „útlagi íslenskra hlaðvarpa“ og í Dómsdegi vikunnar fáum við að kynnast konunni undir hattinum.

#153 Endurkoma spánarsnigilsins 27 Sep 2021

Haukur mætir næpuhvítur úr Spánarfríinu og rekst á ókunnugan þáttastjórnanda í sæti Birnu. Að stuttri vígsluathöfn lokinni hefst Dómsdagur. Valdatíð Agnesar er hafin!

#152 Agnes 2.0 20 Sep 2021

Aðra vikuna í röð skítur helmingur Dómsdags harkalega í sig, og svo mætir hinn helmingurinn ekki í tökur. En það er engu að kvíða, hún Agnes Grímsdóttir mætir aðra vikuna í röð og bjargar deginum. Gleðilegan Dómsdag!

#151 Lægð yfir Dómsdegi 13 Sep 2021

Mætingin í þennan Dómsdag var ansi dræm, einungis 50%. En örvæntið ekki, liðsstyrkur mætti í hljóðverið og ekki nóg með það, Sekkurinn er kominn í leitirnar.

#150 Hrat mannkyns 06 Sep 2021

Sekkur enn týndur. Haukur enn á klukkunni. Baldur án málefnis. Já, það er allt í volli hjá Dómsdegi, en okkur tókst allavega að vera á réttum tíma núna.

#149 Seinþáttungur 02 Sep 2021

Við skulduðum víst þátt. Hér er hann.

#148 Hæ 23 Aug 2021

Sumarfríi Dómsdags er formlega lokið. Grámi haustsins vofir yfir. Lauf visna og fjúka á vit eilífðarinnar. Það eru myrkir tímar framundan. Iðrist.

#A1 Einn í öllum og allir í einum 02 Aug 2021

Það var enginn stemmari fyrir því að fá gamla þætti inn á meðan Dómsdagur er í fríi. En við deyjum ekki ráðalaus, hér fáið þið einn aukaþátt sem inniheldur alla þættina hingað til í einu. Góða skemmtun og heyrumst eftir frí.

#147 Bæ 19 Jul 2021

Dómsdagur vikunnar er sá síðasti í bili. Heyrumst aftur eftir sirka mánuð.

#146 Pand-emic 12 Jul 2021

Allir elska pandabirni ... eða svo héldum við. Í Dómsdegi vikunnar kemur reyndar í ljós að einn meðlimur Dómsdags HATAR pandabirni. Sem er furðulegt, en við dæmum ekki. Eða jú, reyndar. Við dæmum fullt.

#145 Pallaball 05 Jul 2021

Eftir misjafnar viðtökur við Ræfildómi síðustu viku snýr hefðbundinn Dómsdagur aftur. Hér kemur ekkert á óvart. Þið þurfið ekki einu sinni að hlusta.

#144 Ræfildómur 28 Jun 2021

Jæja. Þáttur vikunnar er spes. Almennur aumingjaskapur varð þess valdandi að við gátum ekki hist til að taka upp þátt, en þá kom nýmóðins tækni að góðum notum.

#143 Góðir áhorfendur 21 Jun 2021

Hádegisfundur Dómsdags fór fram á dögunum.

#142 Syndir feðranna 14 Jun 2021

Við hefðum getað létt ykkur lundina í veðurofsanum, en nei ... Dómsdagur vikunnar er alvörugefnari en endurskoðandi á dánarbeðinu.

#141 Hópefli 07 Jun 2021

Umræður vikunnar byrja vel, en fara hressilega út af sporinu strax í öðru málefni. Mikil vanþekking. Bara allt eins og það á að vera.

#140 Hæstiréttur III 31 May 2021

Ferill Birnu sem Hæstaréttardómari er formlega hafinn. Gleðilegan Dómsdag!

#139 Gleði og glóaldin 24 May 2021

Njótið frídagsins sem Jesú Kristur, frelsari vor, færði okkur öllum. Það er kominn Dómsdagur!

#138 Sekkukotsannáll 17 May 2021

Það er ekki mikið bitastætt eftir af ónotuðum sekks-orðaleikjum. En Dómsdagur vikunnar er semsagt Sekksþáttur.

#137 Karpvarpið 10 May 2021

Það sauð hressilega upp úr í Dómsdegi vikunnar. Á köflum var þetta eins og Silfrið í aðdraganda kosninga, nema meira óþolandi. Góður þáttur samt. Mælum með honum.

#136 Kistu mig 03 May 2021

Það er maí. Bongó er orðið æ algengara — a.m.k. gluggabongó. En Dómsdagur vikunnar drepur sumarstemmarann á núll einni. Dragið fyrir gluggana og njótið.

#135 Þúfnalúra-lúra 26 Apr 2021

Gleðilegan Dómsdag!

#134 Litli lasarus 19 Apr 2021

Sígó, sjampó og fleiri hlutir sem enda þó ekki á ó. Aftur er smá suð á Baldri. Kemur ekki fyrir aftur. Gleðilegan Dómsdag!

#133 Hjálpartæki ostalífsins 12 Apr 2021

Enn ein helgin að baki og grimmur hversdagsleikinn tekur við. Dómsdagur gerir hann aðeins skárri. Hljómgæði eru þó eilítið skert, sökum bilaðrar hljóðnemasnúru. Pirrandi, en ekkert gríðarlega.

#132 Páskagáski 05 Apr 2021

Annar í páskum. Brotinn fótur af páskaeggi. Vinna á morgun. Brakandi ferskur Dómsdagur.

#131 Af limnum ofan 29 Mar 2021

Jæja hundasprellar. Það er kominn Dómsdagur.

#130 Hann hangir þurr 22 Mar 2021

Komum okkur beint að efninu: Birna er mætt.

#129 Skjálftamót 15 Mar 2021

Dómsdagur ræðir mál málanna — og önnur mál líka. Gleðilegan mánudag!

#128 Stutt í spuna 08 Mar 2021

Málefnin eru misgóð þessa vikuna. Best að segja sem minnst.

#127 Drottnarinn og undirlægjurnar 01 Mar 2021

Birna fjarstýrir þættinum frá Akureyri. Baldur, Eddi og Haukur hlýða.

#126 Hnyttnir og hnýttir 22 Feb 2021

Funheitur Dómsdagur er kominn í loftið, næstum því á rauntíma.

#125 Norðanstrengur 15 Feb 2021

Dómsdagsdrengjunum er stjórnað af norðlensku yfirvaldi í þætti vikunnar. Já, málefnin koma beina leið frá Akureyri — nánar tiltekið frá skepnunni henni Birnu.

#124 Svuntuhundurinn 08 Feb 2021

Hvað gerist þegar sjónvarpskokkurinn fær Covid og missir bragð- og lyktarskynið í kjölfarið? Svarið finnur þú í Svuntuhundinum. Frumsýnd haustið 2021.

#123 Hæstiréttur II 01 Feb 2021

Jákvæðnin svífur yfir vötnum í Dómsdegi vikunnar, þar sem Baldur, Eddi og Haukur fara yfir bestu hluti gervallrar mannkynssögunnar.

#122 Akskiptasemi 25 Jan 2021

Þrír. Aftur. Birna og nýmóðins tækni eiga ekki samleið. En Dómsdagsdrengirnir reyndu að gera gott úr þessu.

#121 Fíflunum fjölgar 18 Jan 2021

Baldur, Eddi og Haukur tækla stóru málin. Sekkurinn markar tímamót að þessu sinni.

#120 Lægstiréttur II 11 Jan 2021

Birnulausir Dómsdagsdelarnir keppast um að ná sem fæstum stjörnum.