Fjármálakastið
Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Þáttur 122 - Óttast að uppsagnir haldi áfram um nokkurt skeið
Þættir
Gestur þáttarins er Kári Friðriksson hagfræðingur í Arion greiningu. Rætt er um efnahagsástandið um þessar mundir, vinnumarkaðinn, hugmyndir ríkisstjórnarinnar um leigubremsu og verðtrygginguna. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Gestur þáttarins er Tryggvi Pálsson en hann er einn reyndasti stjórnandi og stjórnarmaður íslensks atvinnulífs. Hann hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnarháttum og samskiptum stjórna og framkvæmdastjórna. Hann er einnig einn af fjölmörgum gestakennurum á námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn sem haldið er á vegum Akademias. Í þessum þætt er rætt um hlutverk stjórna í fyrirtækjum, stjórnarhætti, reynslu Tryggva af stjórnarsetu og sitthvað fleira. Þátturinn fellur undir liðinn Sviðið í Fjármálakastinu og er gefinn út í samstarfi við Akademias. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Gestur þáttarins þessa vikuna er Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og ýmislegt fleira. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og á fjarmalakastid.substack.com. Þar má einnig gerast áskrifandi af fréttabréfi Fjármálakastsins. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira. ------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech. Umræddur þáttur er undir liðnum Sviðið en það er vettvangur þar sem samstarfsaðilar Fjármálakastsins fá aðgang að sviðsljósinu. --------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books Reykjavik Fintech Akademias
Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag. Samstarfsaðilar: Reykjavík Fintech Akademias Bella Books
Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------ Samstarfsaðilar Reykjavík Fintech Bella Books Akademias
Í þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira. ----------- Samstarfsaðilar Akademias Reykjavík Fintech
Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira. ------------- Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.
Í þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira. ---------- Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira. Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com. Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira. Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.substack.com. Fjármálakastið er í samstarfi við Reykjavik Fintech. Beiðnir um auglýsingar, styrki eða annars konar samstarf má senda á magdalena@reykjavikfintech.is.
Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, vöxt hins opinbera og efnahagsmálin.
Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.
Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.
Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.
Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.
Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um persónuleg fjármál og markmiðasetningu í fjármálum. Hann segir að besta fjármálaráðið sem hann gefi fólki gjarnan er að þróa með sér ofnæmi fyrir því að skulda og kveðst ekki vera hrifinn af því viðhorfi sem virðist vera ríkjandi um að nánast ómögulegt sé fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þá er einnig rætt um hvernig foreldrar ættu að ræða við börnin sín um fjármál, efnahagsmálin og margt fleira. ----------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í fyrsta þætti ársins 2026 er rætt við Orra Hauksson stjórnarformann First Water og fyrrum forstjóra Símans. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um fjárfestingar í landeldi, starfsemi First Water og hvað sé á döfinni hjá fyrirtækinu. Þá var einnig rætt um erindi Orra á Skattadegi Deloitte, horfur í efnahagsmálunum og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti var rætt um efnahagsmálin við Kára Friðriksson hagfræðing í Arion greiningu. Rætt var um áhrifin af biluninni á Grundartanga á efnahagslífið, áhrifin af falli Play á ferðaþjónustuna, vaxta og verðbólguhorfur og horfur á fasteignamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Þá var farið yfir nýja Hagspá Arion banka og að lokum rætt um skýrslu bankans um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi. -------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Fjármálakastið snýr aftur eftir smá sumarfrí og er þétt dagskrá fram undan í haust. Í þessum þætti er farið yfir allt það helsta sem fram kom í uppgjörum skráðu félaganna í Kauphöllinni fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors mætti í settið til Magdalenu Torfadóttur. Í þættinum er rætt um horfur í starfsemi allra félaganna og einnig hvernig markaðurinn í heild sinni muni þróast á næstunni. Þá er einnig rætt um hvaða nýskráningar gætu verið væntanlegar í Kauphöllina, tækifærin í landeldi og ýmislegt fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt um rafmyntamarkaði og allt það helsta sem hefur gerst í geiranum að undanförnu. Einnig er farið yfir mikla skuldasöfnun í Bandaríkjunum og þá staðreynd að fjárfestar eru í meiri mæli farnir að horfa til þess að fjárfesta utan Bandaríkjanna. Þá er einnig rætt um horfur á innlendum og erlendum mörkuðum og loks velt vöngum um nýjustu vendingar í samrunamálum banka. ---------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í vikunni sendu stjórnir Arion banka og Íslandsbanka bréf til stjórnar Kviku þar sem óskað var eftir samrunaviðræðum við Kviku. Þá er ekki langt síðan Íslandsbankaútboðið kláraðist og hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér að undanförnu. Í síðustu viku voru vextir lækkaðir um 25 punkta og verðbólgan mælist nú 3,8%. Í þessum þætti er rætt um þessi mál ásamt fleiru við Má Wolfgang Mixa, dósent í fjármálum við Háskóla Íslands. ----------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin en Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka mætti í settið. Rætt er um væntingar fyrir stýrivaxtaákvörðunina í næstu viku, væntingingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hjöðnun verðbólgu og horfur á því sviði. Þá var einnig rætt um áhrif mögulegra tolla áforma Bandaríkjaforseta á íslenskt efnhagslíf og horfur á innlenda hlutabréfamarkaðnum. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai stofnanda og framkvæmdastjóra Víkonnekt. Rætt er um gervigreind almennt, hvernig hægt er að nýta hana í fjárhagslegum ákvarðanatöku, hvað er nýjast í fræðunum, hvað er fram undan, hvernig standa íslensk fyrirtæki á þessu sviði og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Jón Inga Bergsteinsson formann ICEBAN - Samtök englafjárfesta á Íslandi og fjárfesti. Rætt er um englafjárfestingar, fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja, stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum nýsköpunarfyrirtækja og ýmislegt fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þættinum er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs um nýja úttekt Viðskiptaráðs á rekstraumhverfi fjölmiðla. Einnig er rætt um hagræðingartillögur fyrir ríkisstjórnina, gagnrýni á frumvarp um almannatryggingar, leigubílalögin og fleira. Þá er spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir við næstu vaxtaákvörðun sem verður næstkomandi miðvikudag og hvaða áhrif tollastríð myndi hafa á Ísland. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað. --------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, regluverkið og séríslenskar kröfur á banka. Einnig er rætt um hvað sé fram undan hjá SFF og um nýlega ráðstefnu samtakanna á sviði fjártækni. Léttu nóturnar eru á sínum stað ásamt spurningum frá hlustendum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka. Rætt var um ganginn í efnahagslífinu á síðasta ári og horfurnar fyrir þetta ár. Spáð í spilin varðandi þróun verðbólgu og vaxta og rætt um ganginn í útflutningsgreinum Íslands ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Alexander Jensen Hjálmarsson stofnanda nýs greiningarfyrirtækis sem nefnist Akkur - Greining og ráðgjöf. Rætt er um greiningar og verðmöt, stöðu og horfur á mörkuðum, nýútkomna greiningu Akkurs á Arion banka, farið er yfir spurningar frá hlustendum og sitthvað fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson stofnanda Visku Digital Assets. Rætt er um allt það helsta sem er að eiga sér stað í heimi rafmyntanna, m.a. miklar verðhækkanir á Bitcoin, kjör Trumps og þýðingu þess fyrir geirann, framtíð rafmynta, regluverkið og breytingar á því, skuldasöfnun ríkja og margt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Matvælafyrirtækið Good Good sem framleiðir sultur og smyrjur hefur verið í mikilli sókn á Bandaríkjamarkaði undanfarin ár. Í þessum þætti er rætt við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good um uppbyggingu fyrirtækisins, reksturinn, helstu markaði fyrirtækisins og markaðsetningu. Þá er rætt um samninginn sem fyrirtækið landaði við verslunarkeðjuna Costco í Bandaríkjunum og ýmislegt fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans. Rætt er um vaxtaákvörðunina í síðustu viku og spáð í spilin varðandi verðbólguþróun, ferðaþjónustuna, fasteignamarkaðinn og hagvaxtarhorfur. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Hoobla. Harpa starfar einnig sem mannauðsráðgjafi. Rætt var um starfsemi Hoobla, tekjumódel og rekstur nýsköpunarfyrirtækja, umhverfi nýsköpunarfyrirtækja og mannauðsmál. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Rætt er um nýjustu verðbólgutölur, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur, stöðu ferðaþjónustunnar og skuldabréfamarkaðinn. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis. Rætt er um stöðu og horfur á hlutabréfa og skuldabréfamarkaði, skuldasöfnun ríkisins, ESG-fjárfestingar og sjóðastýringu. Þá er einnig rætt um kaup sjóðs á vegum Stefnis á Heimstaden á Íslandi, fjárfestingar lífeyrissjóða á fasteignamarkaðnum, leigumarkaðinn, skipulagsmál og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um nýja skýrslu IMD viðskiptaháskólans sem sýnir samkeppnishæfni ríkja og stöðu Íslands á því sviði. Einnig er rætt um sérstakan vaxtastuðning, fasteignamarkaðinn, efnahagsmál og golf. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk. Jónína hefur starfað í fjármála og færsluhirðingargeiranum í fjölda ára og starfaði á tímabili sem forstjóri Teya (SaltPay). Rætt er um starfsemi Blikk, fjártækni, færsluhirðingu og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Davíð Torfa Ólafsson, forstjóra Íslandshótela. Rætt er um skráningu félagins á Aðalmarkað sem verður 30. maí næstkomandi, sögu hótelkeðjunnar, íslenska ferðaþjónustu og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics. Rætt er um efnahagshorfur, stýrivexti, aukningu ríkisútgjalda, fasteignamarkaði í OECD, atvinnuhúsnæði og sitthvað fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt er um nokkrar rannsóknir á sviði heilsuhagfræði en Tinna Laufey hefur leitt margar rannsóknir á því sviði. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite en það félag fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum á hugmyndastigi. Rætt er um stofnun félagsins og hvert það stefnir, fjárfestingar í nýsköpun og fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
Í þessum þætti er rætt við Kára S. Friðriksson, hagfræðing hjá Arion banka og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum. Farið var yfir stýrivaxtaákvörðunina, verðbólguhorfur, kjarasamningana og aðkomu ríkisins að þeim, íbúðamarkaðinn, horfur erlendis og fleira.