GAZið
gazid
GAZið er frjáls og flæðandi íþróttatengdur þáttur með áherslu á körfubolta. Þó getur þátturinn tekið óvænta stefnu hvenær sem er því þú stjórnar ekki gasinu, það stjórnar þér.
GAZið er frjáls og flæðandi íþróttatengdur þáttur með áherslu á körfubolta. Þó getur þátturinn tekið óvænta stefnu hvenær sem er því þú stjórnar ekki gasinu, það stjórnar þér.
#34 - Hlynur og Ægir Gaza
Þættir
Fyrliðiðar Íslandsmeistara mættu í kompuna. Körfubolti í fyrri partinum og innsýn í fögnuðinn í þeim seinni.
Allt það helsta úr fyrstu tveimur leikjum úrslitanna.
Allt klárt fyrir úrsltin!!
Mikið gaz!
Brynjar Þór Björnsson á línunni Hvernig líta lokahóf liðanna sem töpuðu í 8 liða úrslitum út? Undanúrslit
- Guðmundur Björn frá Napolí -Teitur Örlygsson úr Njarðvík - Stefán Árni úr World Class
- Liðin komu aftur saman á B5, hvernig báru þau sig - 8 liða úrslit
Bikarinn 22. umf
Það er bikarvika. Undanúrslit frá og stór reykjavíkurslagur í úrslitum.
Langt körfubolta Gazkvöld hjá þáttastjórnendum. Allt gert upp. Allir vinklar skoðaðir.
SpesGaz! Kjartan Freyr Ásmundsson og Kristinn Albertsson eru í framboði til formanns KKÍ á komandi þingi. - Hlutverk formanns - Fjárhagur KKÍ - Samstarf ÍTK og KKÍ - Fjölgun leikja - Erlendir leikmenn Og fleira...
- Fyrsta deildin - 19 umf. - Leikmenn úr sögunni settir í núverandi lið - 20 umf.
- Craig Pedersen gazar - Ægir Þór Steinarsson fer með okkur í gegnum klukkutímana eftir Tyrkjaleikinn - Bónus Deild 19. umf
- Kristinn Jónasar formaður Hauka ræðir væntanlegar breytingar á reglum tengdar erlendum leikmönnum og almennan rekstur félaga. - Yfirferð
Gerðum okkar besta að rýna í stöðuna í deildinni. Dýfðum okkur svo í 17 umf.
- Vestfirðir - Luka - Hverjir eru með? - Hverjum vilja toppliðin mæta?
-Fréttir - Að labba inn í klefann hjá liðum -17 umferð
- Veitingahúsarýni - Handbolti - Körfuboltamarkaður að hitna - 16 umferð undirbúin
Arnar Guðjóns hringdur inn. Púslþátturinn stóri. Mikið action á föstudagskvöldi.
8 liða úrslit í bikar frá. Ræðum það. 15 umferð í deildinni klár, ræðum það. Tölum hreint út og setjum allt á borðið.
Gott körfuboltaGaz í boði Nings, World Class og Blue Car Rental.
Við höfum oft sagt þetta en við virkilega meinum það núna. Það er mikið undir í 14 umferð Bónus deild kk.
Brynjar Þór Björnsson á línunni frá meginlandinu. Helgi Magg í stúdíóinu.
1. Deildin með Tomma Steindórs og 13 umf. Bónus deilarinnar undirbúin. Sem fyrr, allt undir.
Seinni umferð Bónus deild kk hafin. Þá er loks hægt að ræða hvaða lið eiga raunverulegan séns á að vinna titil. Það vilja allir en hverjir geta.
Fyrri umferð Bónus deild karla lokið. Hvað næst?
Fyrri hluti jólauppgjörnsins. Við settum öll liðin saman á skemmtistað og veltum fyrir okkur hvernig þau myndu bera sig. Hver fær flöskuborð? Hver er enn að reyna að komast inn? Hverjir eru að dansa?
Hörðu Unnsteins á línunni. Síðasta og stærsta umferð ársins að fara í gang.
Pavel, Helgi og Hlynur Bæringsson svara aðsendum spurningum. - Hvar er best að staðsetja sig á bekknum til þess að fá athygli þjálfarans? - Hvar fer treyjan hans Hlyns upp? - Taktískt tap KR í bikarnum 2009? Þessum of fleiri spurningum er svarað.
Bikar og 10 umferð í hefðbundnu formi.
8 umferð gerð upp. Farið yfir önnur mál. Í fjarveru Helga Magg stigu suðurnesin sem fyrr upp og voru til í að ræða körfubolta. Dóri Dóra, Teitur Örlygs og Sævar Sævars með skemmtilega mola.
Helgi Magg blessunarlega kominn til baka og 9 umferð rannsökuð til hlítar. Tómas Steindórsson, sérstakur sérfræðingur þáttarins í 1. deild karla hoppaði inn og útskýrði hluti fyrir okkur.
Pavel mætti einn í stúdíóið í kvöld og læsti að sér. Hleypti engum inn og gazaði í klukkutíma um körfubolta. Svokallað SoloGaz fyrir lengra komna.
Allir meðlimir landsliðspanelsins koma við sögu eftir stórkostlegt körfuboltakvöld. Ótrúleg frammistaða landsliðsins skoðuð og einnig velt steinum um hvernig sigurfögnuður þeirra gæti mögulega litið út. Léttur snúningur á Bónus deildinni í restina. Hvað gerist eftir núllstillingu...
Athyglisverð blanda í settinu í kvöld. Stjórnmálamaðurinn Hlynur Bæringsson. Kraftlyftingamaðurinn Helgi Magg og fjármálasérfræðingurinn Jón Arnór Stefánsson. Almenn landsliðsumræða.
Helgi og Pavel fara yfir ýmis mál tengt körfunni eftir erfitt tap KR-b fyrr um kvöldið. Bættu upp fyrir mistök sín á vellinum í myrku stúdióinu.
7 umferð Bónus deild karla undirbúin og snert á fréttum vikunnar.
Sævar Sævarsson hringir inn frá Keflavík og skoðar framtíðina með okkur Helga. Hvar verða liðin stödd eftir 6 vikur eða þegar þau sigla inn í jólafríið.
Gestur þáttarins er góðvinur okkar Halldór Armand, rithöfundur og eigandi útgáfufélagsins Flatkökunnar. Halldór hefur einstaka sýn á íþróttir og pælir í hlutum sem fæstir sjá. Kaupið nýju bókina hans Mikilvægt Rusl.
Leikur Tindastóls og Stjörnunnar gerður upp og komandi umferð skoðuð með stækkunargleri.
Við tókum við spurningum frá körfuboltafjöskyldunni og svöruðum eftir bestu getu.
Í þessu fyrsta MiniGazi munum við Helgi kíkja á leikina í komandi umferð í körfunni. Fullt af áhugaverðum leikjum og mikið undir á flestum vígstöðum.
Helgi Magnússon á sínum stað og við ræðum hluti sem við teljum okkur vera vissa um í Bónus deildinni. Einni erum við loks ósammála.
Í þessum seinni SpesGaz þætti reynum við að svara spurningum og mótrökum gegn hugmyndinni um úrslitakeppni í fótbolta.
Farið yfir helstu atriðin úr liðinni körfuboltaviku. Einnig er heyrt frá aðilum úr hinum ýmsu samfélögum og forvitnast um hvernig stemningin sé.
Fyrsti partur af SpezGas seríu þar sem við látum okkur dreyma um alvöru úrslitakeppni í íslenskum fótbolta.
Öll lið Bónus deildar karla loks rædd.
Við förum í sarpinn í þetta skipti. Allra fyrsta Gaz sem var tekið upp var viðtal við Hlyn Bæringsson og Ægi Þór Steinarsson. Þetta er directors cut útgáfan.
Helgi Magg mættur. Einni umferð lokið í Bónus deildinni og við drögum sterkar ályktanir.
GAZið skoðar tölfræði. Við rífumst við Halldór Armand. Lærum af Gunnari Byrgissyni og hjálpum Degi Sigurðssyni.