Handkastið cover

Handkastið

Handkastið

Podcast by Handkastið

Podcast by Handkastið

Verður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannanna

0:00 0:00

Þættir

Verður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannanna 12 Nov 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Gunn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins í kvöld og gerðu upp vikuna í handboltanum. Fyrsta skóflustunga var tekin af nýrri þjóðarhöll í dag. Enn einn Íslendingurinn er á leið til Þýskalands. FH unnu stórleikinn við Val. Einvígi landsliðsmarkmannanna var á allra vörum eftir leik kvöldsins. Haukar orðnir deildarmeistarar? Munu KA/Þór einnig slíta samstarfinu í handboltanum á næstu leiktíð? ÍR lentu á Valsveggnum í síðari hálfleik. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Gönguferð í Tallinn og hverjir ákveða búningana fyrir leiki? 08 Nov 2026

Stymmi Klippari, Davíð Már og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Þægilegur sigur landsliðsins í Tallinn. Bjarki Már var frábær í þessu verkefni. Reynir Þór að stimpla sig inn í landsliðið. Bjöggi kominn í 300 leiki. Kvennalið Hauka með stórsigur í Evrópu. "Nýliðar" Selfoss safna stigum í Olís deildinni. Olís deildin fer aftur af stað í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Nýtt vopn í Reyni Þór og þróun handboltans 06 Nov 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka klúbbinn. Reynir Þór með frábæra innkomu og gæti verið nýtt vopn fyrir Snorra Stein. Leikgleðin lak af Jóni Bjarna í hans fyrsta heimaleik með landsliðinu. Haukar eru á toppi Olís deildinnar og spila í Evrópu um helgina. Hvað hefur komið okkur mest á óvart í Olís deildunum, Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Landsleikjavika og línur farnar að skýrast í Olís deildinni 02 Nov 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum. Fáliðaðir Eyjamenn unnu frábæran sigur á Stjörnunni. Vandræði Frammara halda áfram eftir tap gegn Víking. Eyjakonur unnu Gróttu án Birnu Berg. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Arnar Pétursson ræðir EM hópinn - vegferðina og framtíð sína sem landsliðsþjálfari Íslands 30 Oct 2026

Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst árið 2019 og er því á sínu sjötti ári með liðið. Hann er á leið á sitt fjórða stórmót í röð en samningur hans við HSÍ rennur út eftir mótið. Hann ræddi EM hópinn, framtíðina, stöðuna á leikmönnum hópsins, vegferðina og framtíð sína sem þjálfara íslenska landsliðsins.

Besta byrjun Hauka síðan 2000 og Selfoss á síðasta séns 29 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun síðan árið 2000. KA fór í Kaplakrika og rassskellti FH. Selfoss eru á síðasta séns hjá Séffanum. ÍBV fóru fáliðaðir í Virkið og tóku bæðin stigin með sér til Eyja. Gunnar Róberts hafði hægt um sig í þessari umferð en þá mætti Arnór Snær til leiks. Olís deild kvenna er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik 26 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart? 23 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi 19 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna 15 Oct 2026

Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.

Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram? 12 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.

Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum? 08 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni 05 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi hjá stelpunum í vetur. Álaborg skíttapaði gegn GOG í dönsku deildinni um helgina. Strákarnir okkar eru hættir að vera í liði umferðarinnar í Þýsklandi. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum? 02 Oct 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferðinni. Mikill handbolti alla helgina bæði hjá strákunum og stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla 28 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur? 24 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik 21 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar? 16 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára 14 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti 10 Sep 2026

Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks 07 Sep 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu 04 Sep 2026

Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.

Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna 31 Aug 2026

Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Tvær bombur úr Virkinu og yfirferð yfir Olís deild karla 27 Aug 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik. Stiven Tobar Valencia er ennþá án liðs. Fórum yfir öll liðin í Olís deild karla og veltum fyrir okkur félagskiptaglugga liðanna, áhyggjum fyrir komandi tímabil, þakinu, gólfinu og hver er með lyklavöldin þegar nýtt tímabil fer af stað. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót 06 Aug 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Stútfullur fréttapakki í sumarútgáfu Handkastsins 09 Jul 2026

Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á íslenska markaðnum. Ótímabær spá í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Gústi Jó fer yfir tímabilið og fréttir vikunnar með Handkastinu 02 Jun 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf stöðuna á strákunum sínum erlendis eftir hvert ´tímabil. Aron Pálmarsson tekinn við FH. Handboltafólkið okkar heldur áfram að gera frábæra hluti erlendis með félagsliðum sínum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Viðtal við nýráðinn þjálfara FH - Aron Pálmarsson 28 May 2026

Aron Pálmarsson var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í dag.

Viðtal við Steina Arndal fráfarandi þjálfara FH 28 May 2026

Viðtal við Steina Arndal eftir að hann var kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH og stígur til hliðar sem aðalþjálfari liðsins eftir sjö ár í starfi.

Þjálfarabreytingar í Krikanum og samningarlausir Íslendingar 26 May 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum. Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins. Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig. Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim? Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð. Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar? Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Egyptaland sigrað og hver er framtíð Handboltapassans? 18 May 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdí´ó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Landsliðið gerði góða ferð til Egyptalands og sigraði heimamenn í tveim æfingarleikjum. Yngri flokkarnir kláruðust um helgina með handboltaveislu í Kaplakrika. Hafa niðurstöður kosninganna áhrif á þj´álfaramál ÍR? Óvænt úrslit í undankeppni HM. Skuldir HSÍ og hvað ætlum við að gera með Handboltapassan? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Til hamingju Valur og þjálfarakapallinn fer að leysast 12 May 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé komu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp síðustu daga í handboltanum hér heima og erlendis. Til hamingju Valskonur með Íslandsmeistaratitilinn. Landsliðið spilar 2 æfingaleiki við Egypta í vikunni í beinni á Rúv Afturelding og Selfoss eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil en það ætti að fara að skýrast. Búið að draga í undanúrslit í Meistaradeild karla. Ársþingið enn og aftur til umræðu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

ÍBV svara fyrir sig og fyrsta ótímabær spáin 10 May 2026

Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga. ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim. Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári. Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan. Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valur Íslandsmeistari eftir frábært úrslitaeinvígi 07 May 2026

Stymmi Klippari, Geiri Sly og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp úrslitaeinvígi karla og kvenna. Valur er Íslandsmeistari eftir eins marks sigur á FH á Hlíðarenda. Er verið að sprengja konfetti á vitlausum tímapunktum í leikjum? Ársþing hjá HSÍ framundan og verður spennandi að sjá hvaða breytingar verða. Læti í Vestmannaeyjum og umgjörðin ekki nógu góð? Final 4 er klárt og Álaborg eru einu nýliðarnir. Þetta og svo miklu miklu í nýjasta þætti Handkastsins.

Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán 04 May 2026

Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Thea Imani er á leið í atvinnumennsku. Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu. Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Ræðst einvígið í næsta leik og tveir oddaleikir framundan 27 Apr 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. FH svaraði fyrir sig í einvíginu gegn Val og allt er orðið jafnt. Ræðst einvígið í næsta leik á Hlíðarenda og er pressan komin yfir á Val? Þurfum að Haukar að fara sjóleiðina í oddaleikinn gegn ÍBV? Stjarnan og Grótta mætast í oddaleik en það er vonlaust að spá fyrir um sigurvegara í því eftir síðustu leiki liðanna. Meistaradeildin fer aftur af stað í vikunni og Final 4 er undir. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Hiti innan og utan vallar og djók rautt spjald er Valur vann FH 24 Apr 2026

Það hefur verið mikill hiti innan og utan vallar í Þjóðaríþróttinni síðustu sólarhringa en Handkastið gerir upp það helsta í þessum þætti. Valur leiðir í úrslitaeinvíginu gegn FH 1-0 eftir sigur á heimavelli þar sem Jóni Bjarna Ólafssyni var vikið upp í stúku af dómurum leiksins - sem ekki allir virðast sammála um.

Afhverju hætti Grétar Áki? - Dönsk nýlenda í Þorpinu 22 Apr 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp helgina í handboltanum. Afhverju eru ÍR að ráðast í þjálfarabreytingar á kvennaliðinu? Valur er komið í úrslit í kvennaboltanum meðan það er allt í járnum í einvígi ÍBV og Hauka. HSÍ fer nýjar leiðir í blaðamannafundum. Mikil spenna í umspili hjá stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

FH leika um Íslandsmeistaratitilinn og Stelpurnar Okkar fara til Rúmeníu 17 Apr 2026

Stymmi Klippari, Ásgeir Gunnars og Davíð Már Kristinsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. FH eru komnir í úrslitaeinvígið eftir ótrúlegar lokasekúndur á Ásvöllum. Stelpurnar Okkar spila í Rúmeníu á EM 2026. Stjarnan leikur í Olís deildinni á næsta tímabili eftir sigur á Herði. Stelpurnar hófu leik í úrslitakeppninni og Haukar gerðu góða ferð til Vestmannaeyja. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Allt undir á föstudaginn í Hafnarfirði og stelpurnar fara aftur af stað 14 Apr 2026

Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Valur mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Snorri Steinn og Arnór Atlason gerðu samning við HSÍ til 2032. Stelpurnar Okkar eru á leiðinni á fjórða stórmótið í röð. Valsmenn sópuðu meiðslahrjáðum KA mönnum út Heimaliðin vinna ennþá í einvígi FH og Hauka. Heldur Stjarnan sæti sínu í deildinni í kvöld? Stelpurnar Fara loksins aftur af stað eftir stuttan undirbúning. Þetta og svo miklu miklum meira í nýjasta þætti Handkastins.

Snorri Steinn ræðir sex ára samning við HSÍ 14 Apr 2026

Snorri Steinn ræðir sex ára samning við HSÍ by Handkastið

Allt undir hjá Stelpunum Okkar og spennan er í Hafnarfirðinum 10 Apr 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp handbolta vikuna. Stelpurnar Okkar fengu skell í Færeyjum og eru í úrslitaleik gegn Portúgölum á sunnudaginn. Markmennirnir eru að ráða úrslitum í einvígi FH og Hauka. Valsmenn höfðu reynsluna þegar þeir kláruðu spennutrylli á Akureyri. Stjarnan alltof stór biti fyrir Hörð. 8 liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu eru klár og það eru sömu lið þar og í fyrra. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valsarar slátruðu KA í kyrrþey og FH með montréttinn næstu 3 daga 07 Apr 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Bergur Elí gerðu upp páskahelgina í handboltanum. Ferðalagið suður reyndist KA mönnum erfitt þegar nýtt met var sett á Hlíðarenda. Það var fámennt en góðmennt þegar leikur Vals og KA fór fram. FH vann Hauka í miklum spennuleik þó lokatölurnar segi annað. Grétar Ari og Darri meiddust á versta tíma fyrir Haukanna. Stjarnan og Hörður mætast í einvígi um laust sæti í Olís deildinni. Stelpurnar okkar eiga leik gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Loksins fáum við Hafnarfjarðarslag og ótrúlegar senur á Ísafirði 02 Apr 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp vikuna í Handboltanum. Loksins fáum við Hafnarfjarðarslag milli FH og Hauka í úrslitakeppninni. Hörður á Ísafirði eru komnir í úrslitaleik um sæti í Olís deildinni. Stjarnan vann loksins leik. Lítil spenna í Umspili og Olísdeild kvenna þetta árið. Meistaradeildin í Evrópu er byrjuð að rúlla aftur. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Einn oddaleikur þetta árið og íslenskur aðstoðarþjálfari hjá Dönum? 30 Mar 2026

Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Er Arnór Atla að fara í danska landsliðið? Við fáum einungis einn oddaleik þetta árið í 8 liða úrslitum. Einar Baldvin vaknaði af værum blundi og tryggði Aftureldingu oddaleik Ágúst Elí sendi ÍBV í sumarfrí. Úrslitakeppni kvenna fór af stað um helgina. Óvænt úrslit í umspilinu þar sem Fjölnir og Hörður unnu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Framlengingar, Hiti í stúkunni og Valsarar á flautunni 26 Mar 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó´Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Valur þurfti framlengingu og smá hjálp við að leggja HK. Fáliðaðir KA-menn náðu að halda út í tvíframlengdum leik í Eyjum. Stuðningsmenn Fram máttu ekki sitja hvar sem er þegar FH vann gífurlegar sterkan sigur. Haukur rúlluðu yfir Mosfellinga. Stelpurnar fara af stað um helgina. Þjálfarar hverfa á braut í Olís deild karla. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Leikhléið sem felldi Selfoss og fjölgun í Olísdeildinni? 23 Mar 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Úrslitakeppnin hefst í vikunni hjá körlunum. Leikhléið hjá Haukum sem felldi Selfyssinga í Grill 66 deildina. Það þarf að fjölga í Olís deild kvenna fyrir næsta tímabil. Íslenska landsliðið tapaði aftur gegn Svíum um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.

Æfingaleikjabragur í tapi gegn Svíum og Selfoss og Stjarnan berjast fyrir lífi sínu 19 Mar 2026

Stymmi Klippari, Geiri Sly og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerði upp vikuna í handboltanum. Íslenska landsliðið tapaði gegn Svíum 33-35 í æfingarleik. Teitur eru draumur þjálfarans. Reynir Þorsteinn Leó of mikið þegar hann fær sénsinn? Handboltaþing fer fram um helgina. Stjarnan voru rændar marki á mikilvægu augnabliki. Verður fjölgað í 10 lið í Olís deild kvenna á næsta ári? Hvaða lið fellur um helgina? þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valskonur deildarmeistarar og Víkingar í deild þeirra bestu 16 Mar 2026

Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Víkingar eru komnir í deild þeirra bestu en ná þeir að halda sæti sínu á næsta ári? Spennandi umspil framundan um sæti í Olís deildinni á næsta tímabili. Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir mikil meiðsli í herbúðum þeirra. Stjarnan er komin í botnsætið eftir tap gegn Selfoss. Lið ársins í Olís deild karla er klárt Olís deild kvenna klárast í vikunni með tveim umferðum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Valur deildarmeistari, sumarfrí á önnur lið og rosalega úrslitakeppni framundan 13 Mar 2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp lokaumferðina í Olís deild karla. Valur eru deildarmeistarar eftir harða baráttu við FH. ÍR hafa kvatt deild þeirra bestu og leika í Grill 66 deildinni á næsta ári. Stjarnan er á leið í umspil. Frábærir leikir í 8 liða úrslitum sem hefjast 25.mars. Stelpurnar spila um helgina og rosalegur botnbaráttuleikur á Selfossi. Nú fer allt að gerast í Meistaradeild Evrópu! Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Tengd hlaðvörp