Húðkastið cover

Húðkastið

Húðlæknastöðin

Húðkastið er podkastþáttur Húðlæknastöðvarinnar um allt sem viðkemur húð, frá húðvandamálum til fegrunaraðgerða og allt þar á milli. Við heitum Ragna Hlín og Jenna Huld, og við erum húðlæknar með brennandi áhuga á húðinni.

Húðkastið er podkastþáttur Húðlæknastöðvarinnar um allt sem viðkemur húð, frá húðvandamálum til fegrunaraðgerða og allt þar á milli. Við heitum Ragna Hlín og Jenna Huld, og við erum húðlæknar með brennandi áhuga á húðinni.

Fæðingarblettir & sjálfsskoðun

0:00 0:00

Þættir

Fæðingarblettir & sjálfsskoðun 29 Oct 2026

Í þættinum í dag ræða Ragna og Jenna um fæðingarbletti og mikilvægi reglulegrar sjálfsskoðunar. Þær fara yfir hvað fæðingarblettir eru, hvaða breytingum mikilvægt er að fylgjast með og hvenær ástæða er til að leita álits sérfræðings. Einnig útskýra þær ABCDE-kerfið og hvernig hægt er að nýta það við sjálfsskoðun. Fylgstu með okkur: ⁠⁠⁠⁠Húðlæknastöðin.is⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Instagram⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠TikTok⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠SkinCeuticals vörur⁠⁠⁠⁠ Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar. *Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur/meðferðir sem fást á Húðlæknastöðinni.

Lasermeðferðir við örum 28 Aug 2026

Í þættinum í dag ræða Ragna og Jenna um lasermeðferðir við örum. Þær fara yfir hvernig ör myndast, hvaða meðferðir geta hentað við mismunandi tegundum öra og hvað er gott að hafa í huga þegar ör eru að myndast, til dæmis eftir aðgerðir. Fylgstu með okkur: ⁠⁠⁠Húðlæknastöðin.is⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠Instagram⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠TikTok⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠SkinCeuticals vörur⁠⁠⁠ Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar. *Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur/meðferðir sem fást á Húðlæknastöðinni.

"Brotox" og Heimsmeistaramótið 14 Jul 2026

Í þættinum í dag ræða Ragna og Jenna um "Brotox", hvað hugtakið þýðir, hvernig það tengist Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu og af hverju umræðan um það er að aukast. Fylgstu með okkur: ⁠⁠Húðlæknastöðin.is⁠⁠ ⁠⁠Instagram⁠⁠ ⁠⁠TikTok⁠⁠ ⁠⁠SkinCeuticals vörur⁠⁠ Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar. *Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur/meðferðir sem fást á Húðlæknastöðinni.

Q&A II 13 May 2026

Við fengum svo margar spurningar og því var ekkert annað í stöðunni en að svara restinni í dag! Við þökkum kærlega fyrir þessar frábæru spurningar og hvetjum ykkur eindregið til að senda áfram á okkur. Spurningar sem við förum yfir í þættinum: Toxín (bótox) á milli augnanna? Kemur það vel út? Á hvaða aldri er best að byrja í bótox? Hvað finnst ykkur um preventative (fyrirbyggjandi) bótox á yngri stelpur? Hvaða meðferð er vinsælust hjá 36 ára kvk með djúpar línur og þreytulegt andlit? Húðþétting á maga eftir meðgöngu? Er hægt að laga hrukkóttan háls? Er háreyðing varanleg? Á ég að bíða eftir að ég klára að eignast börn? Fylgstu með okkur: ⁠Húðlæknastöðin.is⁠ ⁠Instagram⁠ ⁠TikTok⁠ ⁠SkinCeuticals vörur⁠ Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar. *Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur sem fást á Húðlæknastöðinni.

Q&A I 30 Apr 2026

Við erum loksins mættar aftur og byrjum nýja þáttaröð á skemmtilegum spurningum sem við fengum frá fylgjendum okkar! Spurningar sem við förum yfir í þættinum: Er P-TIOX í lagi á rósroða? Hvaða meðferð er góð fyrir fimmtuga konu með vægan rósroða? Getur húðin versnað í upphafi lyfjameðferðar, td rósroði? Double cleansing, er það nauðsynlegt? Mineral eða chemical sólarvörn? Retinól á líkamann? Virkar það Strawberry skin og keratosis pilaris á leggjum - hvað er hægt að gera? Fylgstu með okkur: Húðlæknastöðin.is Instagram TikTok SkinCeuticals vörur Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar. *Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur sem fást á Húðlæknastöðinni.

Hidradenitis suppurativa (HS) sjúkdómurinn 27 Jun 2025

HS er langvinnur bólgusjúkdómur í húð sem veldur endurteknum bólgum og kýlum á viðkvæmum líkamssvæðum. Sjúkdómurinn getur haft mikil áhrif á lífsgæði fólks og krefst oft langvarandi meðferðar. Í þessum þætti ætlum við að kafa ofan í þennan erfiða sjúkdóm en oft falda sjúkdóm og hvernig hann birtist í daglegu lífi fólks og hvaða meðferðarúrræði eru í boði.

Perioral dermatitis 22 Aug 2024

Hvað er perioral dermatitis og af hverju er þetta svona algengur sjúkdómur? Getur verið að aukin notkun virkra húðvara ýti undir einkennin? Í þessum þætti svörum við þessum spurningum og mörgum fleiri varðandi bólgusjúkdóminn perioral dermatitis.

Decutan, sterka bólulyfið 17 Jan 2024

Fyrsti þáttur í nýrri seríu af Húðkastinu! Í fyrsta þætti er fjallað um sterka bólulyfið Decutan. Í þessum þætti ræðum við lyfið Decutan (Isotretinoin), sem er öflug meðferð við bólum. Við förum yfir hvernig lyfið virkar, mögulegar aukaverkanir og hvers vegna reglulegar blóðprufur skipta máli. Við svörum einnig algengum spurningum um varaþurrk, sólarvarnir og mikilvægi getnaðarvarna á meðan meðferð stendur.

Hvernig virkar háreyðingarlaser? 22 Nov 2022

Háreyðing með laser er vinsælasta lasermeðferðin sem við framkvæmum á Húðlæknastöðinni enda er aukin hárvöxtur vandamál sem allmargir glíma við. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga fyrir og eftir laserháreyðingu og ekki allir sem geta farið í þessa meðferð. Í þessum húðkastsþætti förum við í gegnum allt sem viðkemur laserháreyðingu.

Hvað er laser? 22 Nov 2022

Húðlæknar vinna mikið með lasermeðferðir í daglegu starfi. Bæði er hægt að nota laser í læknisfræðilegum tilgangi, sem og til að sporna við öldrun húðarinnar. Í þessum þætti útskýrum við í einföldu máli hvað laser er, hvernig hann virkar og hvað er hægt að meðhöndla með laserum.

PCOS - Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni 07 Jun 2022

Hvað er PCOS og hvernig er það greint? Hvaða húðeinkenni geta verið til staðar í PCOS og er hægt að meðhöndla sjúkdóminn? Í þessum þætti fær Dr. Ragna Hlín til sín tvo góða gesti, Dr. Heiðdísi Valgeirsdóttur kvensjúkdómalækni og Steinunni Arnarsdóttur innkirtlalækni, og saman fara þær yfir allt sem viðkemur PCOS eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni eins og það heitir á íslensku.

Atópískt exem (barnaexem) II - Meðferðir 07 Mar 2022

Hversu mikilvægt er fyrir fólk með atópískt exem að nota rakakrem daglega og hvaða meðferðir eru í boði ef sterakremin eru hætt að virka? Er hægt að lækna atópískt exem? Í þessum þætti förum við í gegnum þá meðferðarmöguleika sem eru í boði fyrir atópískt exem og hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja endurteknar versnanir á exeminu.

Atópískt exem (barnaexem) I – Orsakir og einkenni 22 Feb 2022

Hvers vegna er atópískt exem svona algengt og hverjar eru orsakir þess? Tengist þessi tegund exems matarofnæmi? Breytast einkenni exemsins með aldri og eru fullorðnir líka með atópískt exem? Þessum spurningum munum við svara og mörgum fleiri í þættinum.

Keratosis pilaris - kjúklingahúð? 06 Feb 2022

Ert þú með litlar bólur á handleggjum og lærum? Viltu vita hvað þetta er & hvort sé hægt að meðhöndla þetta? Í þessum þætti skoðum við þennan mjög svo algenga kvilla sem allt að 40% fullorðna og a.m.k. 50% barna eru með og útskýrum orsakir hans. Einnig ræðum við hvað sé hægt að gera til að halda honum í skefjum.

Blettaskoðanir og húðkrabbamein 15 Jun 2021

Hefur þú farið í blettaskoðun? Ef ekki, útskýrum við hvað felst í því að fara í blettaskoðun hjá húðlækni og hvernig við eigum að fylgjast með fæðingarblettunum okkar. Einnig ræðum við 3 algengustu tegundir húðkrabbameina, m.a. sortuæxli, og lærum að þekkja einkenni þeirra.

Af hverju þurfum við sólarvarnir? 04 Jun 2021

Útfjólublá geislun sólarinnar er megin orsök húðkrabbameina og 80% af öldrun húðarinnar stafar eingöngu af sólargeislun. Sólarvarnir eru þess vegna nauðsynlegar til að verja okkur. Í þessum þætti ræðum við hvers vegna við eigum að nota sólarvarnir, hvað ber að hafa í huga við val á sólarvörnum og hvernig við eigum að haga okkur í sólinni.

Lýtaaðgerðir og fylliefni með Hannes Sigurjónssyni lýtalækni 30 Apr 2021

Hannes Sigurjónsson, lýtalæknir á Dea Medica, kom í Húðkastið og sagði okkur frá fitusogi, svuntuaðgerðum, Brasilian buttlift og fleiri lýtaaðgerðum sem eru framkvæmdar á Íslandi. Eining ræðum við um fylliefni og vöntun á reglugerðum þegar kemur að hinum ýmsu fegrunaraðgerðum sem eru gerðar á Íslandi í dag.

Fylliefni 20 Apr 2021

Hvað eru þessi fylliefni sem allir eru að tala um? Eru þetta alveg náttúruleg og skaðlaus efni og til hvers eru þau notuð? Eru þau bara notuð í varafyllingar? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins sem fjallar um fylliefni.

Mýtur um bólur 09 Apr 2021

Virkar tannkrem á bólur?, Eru unglingar bara með bólur?, Má kreista bólur? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í Húðkastþættinum um algengar mýtur um bólur og bólumeðferðir.

Lýtaaðgerðir með Davíð Jenssyni lýtalækni 28 Mar 2021

Við fengum Davíð Jensson, lýtalækni hjá Dea Medica, til að koma og ræða við okkur um vinsælar lýtaaðgerðir sem boðið er uppá á Íslandi. Hann fræðir okkur meðal annars um augnlokaaðgerðir, facelift, fituflutninga og margt fleira spennandi.

Húðumhirða karlmanna með Helga Ómars 15 Mar 2021

Karlmenn hafa verið tregari til að hugsa vel um húðina en konur. Af hverju, er þetta feimnismál hjá körlum og hvað getum við ráðlagt þeim sem langar að byrja? Við fengum Helga Ómarsson samfélagsmiðlastjörnu með meiru til að ræða einmitt þetta og margt fleira.

Mýtur um húðumhirðu II 01 Mar 2021

,,Það skiptir ekki máli í hvaða röð vörur eru notaðar‘‘ & ,,allir verða að nota næturkrem“. Í þessum þætti ætlum við ræða þessa mýtur og margar fleiri varðandi umhirðu húðarinnar.

Mýtur um húðumhirðu I 19 Feb 2021

,,Retinól þynna húðina‘‘ & ,,olíukennd húð þarfnast ekki raka‘‘. Í þessum þætti ætlum við að hrekja þessar og fleiri mýtur um umhirðu húðarinnar.

Bólur II 17 Dec 2020

Við höldum áfram að ræða um bólur í þessum húðkastsþætti og ætlum meðal annars að ræða mismunandi meðferðarmöguleika og hversu mikilvægt það er að velja réttar húðvörur þegar verið er að kljást við bólur.

Bólur I 15 Dec 2020

Bólur eða Acne Vulgaris er gríðarlega algengur sjúkdómur sem hefur mikil áhrif á sjálfsmynd og sjálfstraust fólks. Það er mikilvægt að vita að til eru lausnir! Í þessu Húðkasti ætlum við meðal annars að kanna orsakir og mismunandi undirtegundir þessa húðsjúkdóms.

Toxín (Bótox) 03 Dec 2020

Við ætlum að fjalla eina allra vinsælustu fegrunarmeðferðina í heiminum í dag, toxín! Hvað er toxín, hvernig er það notað og í hvaða tilgangi? Er toxín hættulegt? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins.

Rósroði 26 Nov 2020

Rósroði er algengur langvinnur bólgusjúkdómur í húð, sem einkennist af roða, háræðaslitum og bólum í andliti. Í þessum þætti ræðum við tegundir, orsakir og hvaða meðferðir eru í boði fyrir fólk með rósroða.

Öldrun húðarinnar II 18 Nov 2020

Við höldum áfram að ræða öldrun húðarinnar og leggjum áherslu á virkar húðvörur sem geta hjálpað okkur að sporna við ótímabærri öldrun. Skoðun m.a. retinól, andoxunarefni og ávaxtasýrur. Svo má ekki gleyma sólarvörninni!

Öldrun húðarinnar I 06 Nov 2020

Í fyrsta þætti Húðkastsins ræðum við efni sem gætir sífellt meiri vinsælda eða öldrun húðarinnar. Við komum inn á orsakir húðöldrunar, hvað einkennir aldraða húð og hvað við getum gert til að fyrirbyggja ótímabæra öldrun hennar.

Af hverju Húðkast? 06 Nov 2020

Af hverju ákveða 3 húðlæknar að setja af stað hlaðvarp? Og ekki bara eitthvað hlaðvarp, heldur fyrsta læknahlaðvarpið á Íslandi! Ragna Hlín, Jenna Huld og Arna Björk útskýra það í kynningarþætti Húðkastsins og segja frá menntun, reynslu og störfum sínum.