Íslandssagan
Jón Kristinn Einarsson
Jón Kristinn ræðir við sérfræðinga og leiðir hlustendur í gegnum sögu Íslands og umheimsins. Hlaðvarpið er styrkt af menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals og er tekið upp í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar. Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við sérfræðinga og leiðir hlustendur í gegnum sögu Íslands og umheimsins. Hlaðvarpið er styrkt af menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals og er tekið upp í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar. Patreon.com/Islandssagan
12. Byltingin að ofan
Þættir
Jón Kristinn ræðir við Vilborgu Auði Ísleifsdóttur um siðaskiptin, og kenningar hennar um áhrif þeirra á íslenska velferðarkerfið, en einnig þróun mála í Danmörku áður en siðaskiptin bárust til Íslands.
Í fyrsta þætti nýrrar seríu, sem mun fjalla um árnýöld (árin 1500–1800) ræðir Jón Kristinn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og hagfræðiprófessor, um siðaskiptin og utanlandsverslun á Íslandi.
Jón Kristinn ræðir við Bergsvein Birgisson um tengsl rostungsveiða og landnáms Íslands. Lagt er út af bók Bergsveins, Leitin að svarta víkingnum.
Jón Kristinn ræðir við Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor í fornleifafræði, um klausturhald á miðöldum.
Jón Kristinn ræðir við Harald Hreinsson, dósent í guðfræði, um kristnun Íslands.
Jón Kristinn ræðir við Sif Ríkharðsdóttur um rómönsk áhrif í íslenskum bókmenntum á miðöldum; riddarasögur, rómönsur og annan rómantískan skáldskap. Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Ármann Jakobsson um miðaldabókmenntir, eddukvæði, dróttkvæði, Íslendingasögur og ýmislegt fleira. Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Árna Daníel Júlíusson um landbúnað á miðöldum. Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um utanlandsverslun Íslendinga á miðöldum; vaðmál, skreið, þýsku öldina og ensku öldina. Þetta er fyrri þáttur af tveimur um hagsögu Íslands á miðöldum.
Jón Kristinn ræðir við Sverri Jakobsson um Sturlungaöld, mesta ófriðartíma Íslandssögunnar. patreon.com/Islandssagan
Þjóðveldisöld, 930–1262/4, er sveipuð dýrðarljóma í Íslandssögunni. Jón Kristinn ræðir við Viðar Pálsson, prófessor í sagnfræði, um hugtakið þjóðveldisöld og stjórnmál og réttarfar á Íslandi fyrstu þrjár aldirnar eftir landnám. patreon.is/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Orra Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði, um landnám Íslands. Fyrsti þáttur af tíu um sögu Íslands á miðöldum.