Leiðin til bata cover

Leiðin til bata

Podcaststöðin

Hlaðvarpsþáttur sem unninn er í samstarfi við Podcaststöðina. Í þættinum segja einstaklingar sem háð hafa baráttu við alkahólisma sögu sína af sigrum, ósigrum, sorginni og gleðinni á leið sinni í átt að batanum.

Hlaðvarpsþáttur sem unninn er í samstarfi við Podcaststöðina. Í þættinum segja einstaklingar sem háð hafa baráttu við alkahólisma sögu sína af sigrum, ósigrum, sorginni og gleðinni á leið sinni í átt að batanum.

Leiðin til bata #31

0:00 0:00

Þættir

Leiðin til bata #31 17 Nov 2020

Þegar maður vaknar við það að hafa stungið mann með hníf og sært hann lífshættulega verður maður fyrst hræddur.

Leiðin til bata #30 29 Oct 2020

Tveim tímum eftir fyrsta bjórinnn eftir 3 ára edrúmennsku var ég kominn á klósettið á Naza með alla vasa fulla af fíkniefnum. Ég ætlaði samt bara fá mér einn bjór.

Leiðin til bata #29 21 Oct 2020

Símtal við 8 ára dóttur þegar hann var inni á Vogi snarbreytti öllum vangaveltum hans um meðferðina. 36 ára karlmaður segir okkur sögu sína gegnum 3 meðferðir.

Leiðin til bata #28 23 Sep 2020

Læknirinn sem tók á móti honum á gjörgæslu eftir sjálfsvígstilraun varð svo sponsorinn hans.

Leiðin til bata #27 04 Aug 2020

Mamma kunni ekki faðirvorið og því þurfti ég að finna minn guð sjálf.

Leiðin til bata #26 23 Jul 2020

Ung kona segir okkur sögu sína sem er lituð af kynferðisáreiti sem elti hana úr neyslu inn í AA samtökin og hvernig það hefur verið að glíma edrú við dómskerfið og sjálfan gerandann.

Leiðin til bata #25 16 Jul 2020

Eina leiðin sem hann sá var að svipta sig lífi og eftir að hafa gert alvarlega tilraun til þess fór hann að leitast eftir þeirri aðstoð sem hann þurfti.

Leiðin til bata #24 02 Jul 2020

Hann er búinn að vera fjölmörg ár edrú og hefur uppgvötvað að það er ekki nóg að hætta að drekka. Hann var ekki í góðum bata þegar hann mætti í vikudvöl á Staðarfell eftir 2 ára edrúmennsku.

Leiðin til bata #23 25 Jun 2020

Eftir 11 ár í neyslu þar sem nánast allt var prófað og 13 innlagnir á hinar ýmsu stofnanir er þessi 42 ára kona komin með 18 ár edrú. Hún fer í gegnum þetta allt með okkur en það hefur líka gengið á ýmsu síðustu ár.

Leiðin til bata #22 09 Jun 2020

Alanon þáttur sem margir hafa verið að bíða eftir og biðja um.

Leiðin til bata #21 05 Jun 2020

33 ára gömul kona sem er búin að vera edrú í tæp 7 ár segir okkur sögu sína. Algerlega trúlaus kom hún í samtökin og það tók tíma fyrir hana að tengjast sínum ætði mætti.

Leiðin til bata #20 28 May 2020

Við þekkjum það vel þegar okkur finnst við ekki eiga við vandamál að stríða því við drekkum bara léttvín eða drekkum bara rauðvín á kvöldin. Hún kom til okkar og sagði sína mögnuðu sögu á einlægan hátt um kynferðismisnotkun í æsku, ofbeldissambönd og sína rauðvínsneyslu.

Leiðin til bata #19 25 May 2020

Eftir sína fyrstu og einu meðferð tók hann AA samtökin föstum tökum og segir okkur sögu sína sem er nánast skylduhlustun.

Leiðin til bata #18 17 May 2020

Líf hans hefur snúist um neyslu eða meðferðir. Eftir ótal innlagnir á meðferðastofnanir segir 56 ára karlmaður okkur söguna hvernig hann náði bata.

Leiðin til bata #17 06 May 2020

Hún reyndi að flýja alkóhólismann sinn með að flytja til hunna ýmsu boorga um allan heim en áttaði sig svo loks á að við flýjum ekki frá sjúkdómnum. Einlæg og hrikalega falleg saga ungrar konu sem barðist við sjúkdóminn í mörg ár áður en hún fann leiðina sína að batanum.

Leiðin til bata #16 28 Apr 2020

Eftir fjöldan allan af meðferðum náði hann loks árangri eftir 6 mánaða dvöl á Krísuvík og hefur náð að búa sér til farsælt líf i dag. Það hefur þó gengið á ýmsu og meðal annars lést barnsmóðir hans úr sjúkdómnum.

Leiðin til Bata #15 17 Apr 2020

Hún var komin í dagneyslu á fíkniefnum og öllu sem hún komst yfir aðeins 12 ára gömul. Eftir margítrekaðar innlagnir inn á Vog opnuðust augu hennar þegar hún týndi kornungu barni sínu en klukkutíma pössun varð að nokkrum dögum. Mögnuð frásögn konu sem hefur nú verið edrú í mörg ár og á frábært líf í dag.

Leiðin til bata #14 26 Mar 2020

Af æðruleysi segir hann okkur söguna af því hvernig hann fann sinn botn þegar hann ætlaði að setja barn sitt í hættu þegar hann var þjakaður af alkóhólisma. Í dag vinnur hann við að hjálpa öðrum sem vilja komast á leiðina til bata.

Leiðin til bata #13 17 Mar 2020

Þegar bæði fjölskyldan og meðferðastofnanir voru búin að loka öllum dyrum á hann tók Krýsuvík við honum. Þar náði hann loksins að snúa við lífinu og fékk lífsvonina aftur. Það hefur þó tekið mikið á. Þrjú ár edrú og hann segir sögu sína þessa vikuna.

Leiðin til Bata #12 11 Mar 2020

Hann byrjaði varla að smakka áfengi fyrr en rétt um 19 ára en 10 árum síðar reynir hann sjálfsvíg og rankar við sér á gjörgæslu. Á afar einlægan hátt segir þessi 31 árs gamli karlmaður sína sögu.

Leiðin til bata #11 04 Mar 2020

Gestur vikunnar segir á einlægan hátt hversu erfitt líf hann átti án þess að vera virkur í samtökunum þó hann væri edrú. „Ég hefði alveg eins getað verið að nota. Edrú líf án prógrammsins er bara mjög slæmur staður að vera á“.

Leiðin til bata #10 25 Feb 2020

Stelpa sem var tekin fyrir fíkniefnasmygl og sat inni i heilt ár, á undan því var búið að taka barnið af henni, hún misst móður sína og ekki til það efni sem hún hefur ekki notað. Er buin að vera edrú í 7 ár núna og á eiginlega ótrúlega flottum stað. Hún var fyrir nokkrum árum í sjónvarpsþætti sem hét Burðardýr. Hún sagði í kvöld frá hlutum og neyslu sem hefur aldrei áður komið fram.

Leiðin til bata #9 19 Feb 2020

„Ég man ekki eftir einu einasta fylleríi þar sem maður gat sagt að það hefði verið gaman. Þetta endaði alltaf með ofdrykkju og blackouti.“

Alanon samtökin #8 10 Feb 2020

Maðurinn hennar er alkóhólisti og hún missti dóttur sína aðeins 11 ára í heim fíkniefna. Ótrúleg saga Alanon konu sem settist niður með okkur með sína sögu.

Leiðin til bata #7 04 Feb 2020

Eftir 10 eða 11 meðferðir og ótal tilraunir til að snúa við blaðinu er komin með sinn fyrsta góða edrútíma. 31 árs gömul kona settist niður með okkur og sagði sögu sína hvernig hún lærði að segja já takk í stað já en......

12 reynsluspor #6 29 Jan 2020

Viðmælandi okkar þennan þáttinn lýsti afar vel sinni göngu gegnum 12 spora kerfi AA samtakanna eftir mikla og harða neyslu vímuefna.

Leiðin til bata #5 21 Jan 2020

"Ég sjálfur sá engin vandamál við mitt líf eða mína neyslu. Það var þjálfarinn minn sagði hingað og ekki lengra."

Leiðin til bata #4 16 Jan 2020

Hún var komin í dagneyslu á kanabis 12 ára, 14 ára svaf hún í stigagöngum. Siðustu ár hefur hún verið fangi morfíns. 33 ára kona sagði okkur sögu sína og hversu frábært líf hún hefur eignast á aðeins tveim árum.

Leiðin til bata #3 10 Jan 2020

Hann byrjaði seint að drekka og þó hann hafi aðeins drukkið um helgar var hann kominn með líf sitt á mjög slæman stað. 33 ára karlmaður sem fagnar 2 ára edrúmennsku sinni segir okkur sögu sína.

Leiðin til bata #2 30 Dec 2019

Í öðrum þætti fæ ég til mín 55 ára viðmælanda sem hefur verið edrú í 28 ár. Þátturinn er unninn í samstarfi við Podcaststöðina.

Leiðin til bata #1 20 Dec 2019

"Ég er búinn að vera edrú í ca 6 ár þegar ég er farin að velta því fyrir mér að drekka aftur því allt í einu finnst mér eitthvað vanta í minn bata". Hann er búinn að vera edrú í 28 ár og segir okkur sögu sína. í fyrsta þættinum Á leið til bata.