Listamenn cover

Listamenn

Hljóðkirkjan

Tónlistarmennirnir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn búa til sitt hvorn topp 10 listann yfir alls konar hluti, hugtök og fyrirbæri og ræða um þá sín á milli.

Tónlistarmennirnir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn búa til sitt hvorn topp 10 listann yfir alls konar hluti, hugtök og fyrirbæri og ræða um þá sín á milli.

#60 Íslensk lög ársins

0:00 0:00

Þættir

#60 Íslensk lög ársins 31 Dec 2022

HÆ! AFSAKIÐ BIÐINA! GLEÐILEGT ÁR! NÚ ERU ÞAÐ ÍSLENSKU LÖG ÁRSINS! BARA GAMAN!

#59 Lög fyrir hlaupið 26 Nov 2022

Örn skokkar, Valdimar gengur rösklega. Báðir eru þeir vel stemmdir því þeir eru að hlusta á hlaupalögin sín.

#58 Sjónvarpsþættir frá 10. áratugnum 19 Nov 2022

Valdimar og Örn horfðu mikið á sjónvarp þegar þeir voru börn og táningar á 10. áratugnum og tala hér um þá sjónvarpsþætti sem þeim þóttu skemmtilegastir á þeim tíma.

#57 Lyktir 12 Nov 2022

Valdi og Össi eru báðir með nef sem þeir nota til að finna lykt af hinum ýmsu hlutum. Nú ræða þeir um sínar uppáhalds lyktir.

#56 Byggingar á Íslandi 05 Nov 2022

Á Íslandi eru alls konar byggingar sem Valdi og Örn annað hvort fíla eða fíla ekki. Nú tala þeir um byggingarnar sem þeir fíla.

#55 Súpur 29 Oct 2022

Hæ. Listamenn hér. Súpur. Þær eru góðar. Þær eru margar. Þær eru umræðuefni þáttarins þessa vikuna.

# 54 Lög frá Prins Póló 22 Oct 2022

Svavar Pétur var einstakur maður. Listamenn telja sig heppna að hafa fengið að kynnast honum. Þessi þáttur er tileinkaður honum.

#53 Grænmeti 15 Oct 2022

Valdi og Össi ræða um grænmeti. Grænmeti er voðalega hollt.

#52 Lög sem voru samin fyrir bíómyndir 08 Oct 2022

HÆ! Listamenn tala hér um lög sem voru samin sérstaklega fyrir bíómyndir. Það er nú bara þannig.

#51 Hlutir sem við gerðum í sumar 08 Oct 2022

LISTAMENN ERU MÆTTIR AFTUR! Í þessum endurkomuþætti tala Valdi og Össi um allt það skemmtilega sem þeir gerðu í sumar.

#50 Íslenskar plötur frá 10. áratugnum 30 Apr 2022

ÞÁTTUR NÚMER 50! Þeir eru mættir aftur listadrengirnir og ætla nú að ræða um íslenskar hljómplötur úr 9unni. Gjössovel.

#49 Illmenni kvikmyndasögunnar 09 Apr 2022

Covid, illmenni lífs okkar allra síðustu 2 ára, olli því að Listamenn þurftu að taka sér smá pásu. Er þá ekki viðeigandi að ræða um illmenni kvikmyndasögunnar? Það höldum við.

#48 Tónleikar sem við höfum spilað á 26 Mar 2022

Valdi og Össi hafa spilað á rosalega mörgum tónleikum. Góðum og slæmum. Hvaða tónleikar ætli standi upp úr hjá þeim?

#47 Úr borðinu í bakaríinu 19 Mar 2022

Bakkelsi og kruðerí er svakalega gott með góðum kaffibolla. Össi og Valdi kíkja aðeins í bakaríið.

#46 Snjallsímaforrit 12 Mar 2022

Valdimar og Örn eiga báðir snjallsíma sem þeir nota ansi mikið, þar af leiðandi nota þeir einnig ansi mikið af snjallsímaforritum. Ansi snjallir strákar.

#45 Drykkir (gestalistamaður: Snæbjörn Ragnarsson) 05 Mar 2022

Drykkir eru afskaplega góðir. Þeir geta verið sætir, súrir, sterkir, beiskir, bragðlausir og allt þar á milli. Sérstakur gestur er geðþekki öðlingurinn og listaunnandinn Snæbjörn Ragnarsson.

#44 Íslensk lög sem komust ekki í Eurovision 26 Feb 2022

Þar sem undankeppnin fyrir Eurovision er handan við hornið ákváðu Listamenn að taka fyrir bestu íslensku lög sem komust ekki í keppnina stóru.

#43 Ofurhetjur 12 Feb 2022

Valdiman og Örninn fljúgandi eru mættir til að bjarga deginum! Ofurhetjur!

#42 Bland í poka 05 Feb 2022

Listamenn eru nammigrísir miklir. Nú velja þeir topp 10 „nömmin” sín í bland í poka.

#41 Skemmtistaðir 29 Jan 2022

Fyrir þá sem ekki vita, þá hafa Valdi og Össi sko djammað. Á alls konar stöðum. Skemmtistöðum.

#40 Bílalúgur 22 Jan 2022

Að geta keypt sér óhollan mat án þess að þurfa að stíga út úr bílnum sínum er lúxus sem Valdi og Össi gjörsamlega elska.

#39 Ávextir 15 Jan 2022

Gleðilegt nýtt ár! Valdimar og Örn eru loksins komnir aftur eftir jólafrí og nú er það sko nýársbomba: Ávextir!

#38 Jólahefðir 25 Dec 2021

Valdi og Össi tala um uppáhalds jólahefðirnar sínar. Gleðileg jól kæru listaunnendur. Við sjáumst svo alveg svakalega hress á nýju ári.

#37 Erlend lög sem urðu íslensk jólalög 18 Dec 2021

Við Íslendingar eigum mjög marga jólahittara sem voru upprunalega bara alls ekki jólalög. Valdi og Össi skoða þau aðeins á meðan þeir reyna að jafna sig á þynnkunni eftir gleðskap gærkvöldsins.

#36 Borðspil 11 Dec 2021

Okkar dyggasti hlustandi hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar beðið okkur um að taka fyrir borðspil. Nú getur hann hætt að spyrja.

#35 Kex 04 Dec 2021

Össi og Valdi eru nú meiru kallarnir. Jafnvel bara alveg kexruglaðir! Kex, gjöriði svo vel!

#34 NBA leikmenn 27 Nov 2021

Í þetta skiptið fékk Valdimar að ráða hvaða listi yrði tekinn fyrir. Líklega leiðinlegasti þáttur sem við höfum gert (samt alveg skemmtilegur sko).

#33 Skrýtnir og áhugaverðir hlutir í fari hins 20 Nov 2021

Við leyfðum facebook grúppunni okkar að velja listaefni þáttarins og það kom aldeilis í bakið á okkur. Takk Baldur.

#32 Morgunkorn 13 Nov 2021

Morgunstund gefur korn í munn-d. Valdi og Össi fara á dýptina hvað morgunkorn varðar, alveg niður í botn skálarinnar.

#31 Spendýr 06 Nov 2021

Valdimar og Örn raða hér sínum uppáhalds spendýrum á topp 10 lista. Valdimar og Örn eru fullorðnir menn. Og spendýr.

#30 Íslensk lög frá 9. áratugnum 30 Oct 2021

Valdi og Össi draga fram krumpugallann, setja svitaband á ennið og bíta í neðri vör. Það er áttan.

#29 Snakk 23 Oct 2021

Össi og Valdi tala um snakk. Alls konar snakk. Snakk er gott. #takksnakk

#28 Bjórar sem fást í ríkinu á Fáskrúðsfirði (gestalistamaður: Þorvaldur Halldórsson) 17 Oct 2021

Valdimar og Örn eru staddir á Stöðvarfirði í upptökusessjóni og fóru í ríkið á Fáskrúðsfirði og keyptu sér besta bjórinn sem var í boði þar. Trommuleikarinn Þorvaldur Halldórsson er sérstakur gestur.

#27 Íslensk orð 09 Oct 2021

Þó orðaforðinn hjá Valdimari og Erni sé ekki ríkur þá hafa þeir nú samt gaman af góðum íslenskum orðum.

#26 Tölvuleikir 02 Oct 2021

Jæja, nú eru það tölvuleikir. Þetta verður áhugavert.

#25 Gítarsóló 25 Sep 2021

Valdi og Össi elska góð gítarsóló. Það er vindur í hári og miklar munngeiflur í þessum þætti því nú taka strákarnir fyrir topp 10 gítarsóló.

#24 Sundlaugar Íslands 18 Sep 2021

Á Íslandi eru margar ofboðslega fínar sundlaugar. Valdi og Össi reyna í þessum þætti að koma því til skila hvaða sundlaugar þeim finnst vera bestar. Mikill guslugangur í þessum þætti.

#23 Hljómplötur 2000-2009 11 Sep 2021

Nú ætla Valdi og Össi að tækla tónlistina í núllunni. Erfitt verkefni.

#22 Meðlæti 04 Sep 2021

Valdimar og Örn eru mættir aftur eldhressir eftir sumarfrí og í þetta skiptið ætla þeir að vera með læti og ræða um meðlæti.

#21 Lög í bíómyndum 17 Jul 2021

Góð lög geta gert góðar bíómyndir ennþá betri. Hér eru okkar uppáhalds lög í bíómyndum.

#20 Kokteilar 10 Jul 2021

Valdimar og Erni þykir voða gott að fá sér kokteila. Sumarfílingur og kokteilar, hvað er betra?

#19 Rauðir dagar 03 Jul 2021

Hver elskar ekki frí? Valdimar og Örn ræða hér um sína uppáhalds frídaga.

#18 Krydd 26 Jun 2021

Valdimar og Örn elska krydd. Krydd er líka best. Topp 10 krydd gjöriði svo vel!

#17 Coverlög sem eru betri en orginallinn 19 Jun 2021

Listamenn stunda það mikið að spila coverlög. Nú velja þeir coverútgáfur af lögum sem þeim finnst vera betri en hjá upprunalegum flytjendum lagsins.

#16 Skyndibitastaðir á Íslandi 12 Jun 2021

Valdimar og Örn eru matgæðingar miklir. Nú taka þeir fyrir hornstein í íslenskri matarmenningu, skyndibita.

#15 Tónlistarfólk sem dó of ungt 05 Jun 2021

Listamenn eru staddir á hótelherbergi í Neskaupstað eftir vel heppnað gigg á Beituskúrnum. Með bjór og smá viskí í glösum ræða þeir um tónlistarfólk sem dó of ungt. Þessi þáttur er svolítið dökkur, biðjumst velvirðingar á því.

#14 Vandræðaleg augnablik 29 May 2021

Listamenn rifja upp sín vandræðalegustu augnablik. Mjög vandró þáttur.

#13 Tónleikastaðir á Íslandi 22 May 2021

Valdimar og Örn hafa haldið tónleika á ýmsum stöðum víðs vegar um landið. Nú ætla þeir að tala um sína uppáhalds tónleikastaði.

#12 Hlutir sem við myndum taka með okkur í neðanjarðarbyrgi 15 May 2021

Valdimar og Örn undirbúa sig fyrir heimsendi, sem er vonandi alls ekki í nánd.

#11 Peppandi lög 08 May 2021

Strákarnir eru í miklum gír þennan laugardaginn og tala um þau lög sem ná að peppa þá mest.