Læknaspjallið cover

Læknaspjallið

Edda Thorunn Thorarinsdottir

Læknaspjallið er viðtalshlaðvarp þar sem þriðja árs læknanemarnir, Ólöf og Edda, ræða við íslenska sérfræðilækna um sitt líf og leið þeirra í átt að sérhæfingu. Hlaðvarpið kemur til með að fræða áhugamenn læknisfræðinnar um ólíku svið hennar og hjálpar fólki að fá betri sýn inn í líf ýmissa sérfræðinga.

Læknaspjallið er viðtalshlaðvarp þar sem þriðja árs læknanemarnir, Ólöf og Edda, ræða við íslenska sérfræðilækna um sitt líf og leið þeirra í átt að sérhæfingu. Hlaðvarpið kemur til með að fræða áhugamenn læknisfræðinnar um ólíku svið hennar og hjálpar fólki að fá betri sýn inn í líf ýmissa sérfræðinga.

#15 Aðalsteinn Arnarson - "Hvað eru efnaskiptaaðgerðir?"

0:00 0:00

Þættir

#15 Aðalsteinn Arnarson - "Hvað eru efnaskiptaaðgerðir?" 03 Dec 2022

Rætt var við Aðalstein Arnarson, kviðarholsskurðlækni, um lífið áður en hann valdi læknisfræðina, læknisfræðinám í Þýskalandi, sérnámið í Svíþjóð sem og efnnaskiptaaðgerðir og skurðaðgerðir sem hann sinnir mest í sínu starfi í dag. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: krauma.is fiskfelagid.is fitnessport.is hudfegrun.is definethelinesport.com matarkjallarinn.is keilir.net/heilsuakademia

#14 Sunna Snædal - "Hvað er skilunarmeðferð?" 31 Oct 2022

Rætt var við Sunnu Snædal, lyf- og nýrnalækni, um lífið fyrir læknisfræðina, undirbúning í menntaskóla fyrir námið, áhugamálin hennar, saltjónaáhugann sem kviknaði snemma, sérnámið á Karolinska sem og starfið hennar í dag sem nýrnalæknir á Landspítalanum. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: krauma.is fiskfelagid.is fitnesssport.is hudfegrun.is definethelinesport.com matarkjallarinnis keilir.net/heilsuakademia

#13 Haukur Hjaltason - "Hvað er MS ?" 20 Sep 2022

Rætt var við Hauk Hjaltason, taugalækni, um lífið áður en læknisfræðin varð fyrir valinu, sálfræðibakgrunn hans, ástina og fjölskyldulífið í námi, sem og sjúkdóminn Multiple Sclerosis, undirtýpur sjúkdómsins, framgang og framþróun í nýjum meðferðum MS. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: hudfegrun.is fitnesssport.is krauma.is matarkjallarinn.is kolrestaurant.is fiskfelagid.is definethelinesport.com

#12 Tómas Guðbjartsson - "Hvernig var að snerta hjarta í fyrsta sinn?" 21 Feb 2022

Rætt var við Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlækni, um æskuna hans og fjölskyldulíf í námi, fjölbreyttar aðgerðir á hjörtum og lungum, hvernig hann kemst að hjartanu í opnum skurðaðgerðum, samfélagsmiðla og samskipti lækna við fjölmiðla og mikilvægi samkenndar sem og dómgreindar hjá læknum. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarinns eru: aukahlutir.is kjotburid.is prentsmidur.is heilsuakademia.is

#11 Arna Dögg Einarsdóttir - "Hver er munurinn á líknarmeðferð og lífslokameðferð?" 12 Dec 2021

Rætt var við Örnu Dögg Einarsdóttur, líknarlækni, um lífið sitt áður en hún valdi læknisfræðina, hvernig móðurhlutverkið var í þungu námi, leiðina að sérfræðingnum, og líknarlækningar í heild sinni. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: Aukahlutir.is - Kóðinn spjallid20 gefur afslátt af hulstrum og skjávörnum á síðunni. Kjötbúrið. Prentsmiður. Heilsuakademía Keilis - heilsuakademia.is

#10 Hannes Sigurjónsson - "Hvað eru kynleiðréttingaaðgerðir?" 15 Oct 2021

Rætt var við Hannes Sigurjónsson, lýtalækni frá Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi, um hans uppruna, afhverju læknisfræðin varð fyrir valinu, frumkvöðlaaðgerðir í kynleiðréttingum og hvernig var að læra á einu virtasta sjúkrahúsinu á Norðurlöndunum. Upphafssstef: Slaeemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: Aukahlutir.is - Kóðinn spjallid20 gefur afslátt af hulstrum og skjávörnum á síðunni. Kjötbúrið Prentsmiður.is - Kóðinn læknaspjallið gefur 15% afslátt af seglum, dagatölum og dagbókum á síðunni út október mánuð.

#9 Þórólfur Guðnason - "Hvað felst í því að vera sóttvarnarlæknir?" 10 Aug 2021

Rætt var við Þórólf Guðnason, sóttvarnarlækni og smitsjúkdómalækni barna, um flutninga á fyrstu árum lífsins, persónuna sem er Þórólfur, að elta drauminn ásamt því að elta ástina, hreinskilnina í starfinu í dag, hvernig það er að starfa í svona ábyrgðarmiklu starfi og ótal margt fleira sem gerði þennan merka einstakling að manneskjunni sem hann er í dag. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins: Aukahlutir.is - Kóðinn spjallid20 gefur 20% afslátt af hulstrum og skjávörnum á síðunni. Kjötbúrið á Selfossi. Prentsmiður.is - Kóðinn læknaspjallið gefur 15% afslátt af seglum, dagatölum og dagbókum á síðunni.

#8 Tinna Baldvinsdóttir - "Hvernig var tilfinningin að taka á móti barni í fyrsta sinn?" 10 Jul 2021

Rætt var við Tinnu Baldvinsdóttur, fæðinga- og kvensjúkdómalækni, um menntaskólaárin, inntökuprófið inn í læknadeildina, hvað legnám og keisaraskurðir væru og hvaða gleði fylgir því að fá að fylgjast með þegar nýjir einstaklingar koma inn í heiminn. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðilli þáttarins er Heilsa og Útlit (heilsaogutlit.is)

#7 Pétur Guðmann - "Hvernig var tilfinningin að kryfja lík í fysta sinn?" 03 Jun 2021

Rætt er við Pétur Guðmann, réttarlækni, um æskuna sína, tónskáldsdrauminn, afhverju hann fór að starfa í kringum látið fólk og hvað felst í réttarlækningum almennt. Einnig var rætt um hvort það væri eitthvað til í því að réttarlæknar væru introvertar og hvaða starfstéttir Pétur vinnur náið með eins og t.d. lögreglunni og hvernig tilfinningin er að mæta á vettvang morðmála. Upphafstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar: Heilsa og Útlit.

#6 Sigurveig Pétursdóttir - "Hvaða barnabæklunaraðgerðir eru þær flóknustu sem þið framkvæmið hér á landi?" 20 May 2021

Í þessum þætti fengum við hana Sigurveigu Pétursdóttur, barnabæklunarlækni, til okkar í spjall. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, m.a. lífið, júdóferilinn, hvernig það var að læra í Svíþjóð, hvernig það er að vinna með börnum, hvað felst í rauninni í því að vera barnabæklunarlæknir og fleira, svo eitthvað sé nefnt. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar: Heilsa og útlit (heilsaogutlit.is) Nágrannar. Afsláttarkóði Nágranna er "laeknaspjallid" - veitir 15% afslátt (appið er hægt að nálgast í appstore og google play)

#5 Magnús Karl Magnússon - "Hvernig er að starfa við rannsóknir með sérfræðigrunn í blóðlækningum?" 07 May 2021

Rætt er við Magnús Karl Magnússson, blóðlækni, um æsku sína, fjölskyldulífið og afhverju blóðlækningar urðu fyrst fyrir valinu. Einnig var talað um námið í Bandaríkjunum, ásamt leiðina að rannsóknarverkefnavinnu, hvernig er að starfa innan Íslenskrar Erfðagreiningar og afhverju kennsla í lyflæknisfræði við læknadeild HÍ tók í kjölfarið við. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar: Eirberg, Fætur Toga og Heilsa og útlit.

#4 Hróðmar Helgason - "Hvernig færðu börnin til að vinna með þér?" 22 Apr 2021

Rætt er við Hróðmar Helgason, barnahjartalækni, um lífið og leiðina að læknisfræðinni, ákvörðunina að stunda nám við Harvard háskólann í Boston og tímann sinn þar ásamt því að fara inn á tengsl mígrenis við hjartagalla í fólki, og hvernig það er að vinna með börnum. Ef þið viljið fara beint í viðtalið og sleppa auglýsingunum, þá hefst það á 03:00 mínútu. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar: Eirberg og Fætur toga.

#3 Elfar Úlfarsson - "Hvernig var að snerta heila í fyrsta sinn?" 08 Apr 2021

Rætt er við Elfar Úlfarsson, heila- tauga- og mænuskurðlækni, um ákvörðunina að fara í læknisfræði, fjölskyldulífið í sérnáminu á Karólínska sjúkrahúsinu, leiðina að markmiðunum og almennt um hans líf. Við ákváðum að kynna okkur aðeins í upphafi þessa þáttar, en ef þið viljið sleppa kynningunni og fara beint í viðtalið, þá hefst það á 15:20 mínútu. Upphafsstef: Slaemi Styrktaraðilar: Stuðlaberg heilbrigðistækni, WOK ON

#2 Snorri Einarsson - "Hvað er ófrjósemi?" 25 Mar 2021

Rætt er við Snorra Einarsson, ófrjósemislækni, um uppvaxtarárin, hans leið í áttina að sérhæfingu ásamt því hvernig það var að stofna LIVIO á Íslandi. Upphafsstef: Slaemi Styrktaraðilar: Stuðlaberg heilbrigðistækni, WOK ON

#1 Alma Möller - "Hvernig er að vera landlæknir?" 11 Mar 2021

Rætt er við Ölmu Möller, landlækni, um hennar ótalmörgu afrek í lífinu, fjölskyldulífið sem og sína leið í átt að sérhæfingu.