Mál Málanna cover

Mál Málanna

Mál Málanna

Mál og dómar sem skipta máli í sögulegu ljósi. Skemmtilegir fræðsluþættir

Mál og dómar sem skipta máli í sögulegu ljósi. Skemmtilegir fræðsluþættir

Al-Kateb v Godwin - Hælisleitandi án heimaríkis

0:00 0:00

Þættir

Al-Kateb v Godwin - Hælisleitandi án heimaríkis 15 Feb 2021

Gleðilegan bollu-mánudag! Í dag tölum við um Ástralska málið hans Ahmed Al-Kateb sem var hvergi ríkisborgari... við segjum annað en meinum hitt...??

O'Conner v. Donaldson - Geðraskaður maður sem vildi vera frjáls 08 Feb 2021

Í dag segjum við ykkur frá Kenneth Donaldson sem var settur inn á geðdeild í Florída, átti að vera nokkrar vikur en breyttust í mörg ár! Ræðum einnig G-vítamín og #FreeBritney átakið!

Dunblane skotárásin - Breyting á byssu lögum í Bretlandi 01 Feb 2021

Mánudagur, og spurningin okkar til ykkar er flúor eða floor? Annars ætlum við að tala um Dunblane skotárásina í Skotlandi sem hafði áhrif á allt Bretland og setti fordæmi fyrir leyfum á byssum. Förum líka inn á hvað Ástralía er með þetta og við ætlum klárlega þangað!

Roman Catholic of Brooklyn v. Cuomo - Kirkjuferðir í COVID-19 25 Jan 2021

Hæ hó, betra seint en aldrei. Í þætti vikunnar tölum við um kirkjuferðir í Covid-19, lög og bönn sem tengjast covid og hvernig hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi nýverið í máli sem snertir þessi mál. Njótið vel og heyrumst í næstu viku!

Amber Viðvörunarkerfið - Saga Amber Hagerman 18 Jan 2021

Gleðilegan mánudag! Nýr þáttur og hann er átakanlegur. Við segjum frá máli Amber Hagerman sem var rænt fyrir 25 árum, og hvernig foreldrar hennar breyttu kerfinu til þess að bjarga öðrum börnum. Kristel er líka komin með nýja intro línu, hvað finnst ykkur? Minnum á Instagram @malmalanna og sendið okkur línu ef það er eitthvað!

R v R - Ákærður fyrir nauðgun á eiginkonunni 11 Jan 2021

LOKSINS erum við mættar til Bretlands, þar segjum við ykkur frá R sem reyndi að áfrýja nauðgunardómi sínum því að eiginmenn geta ekki nauðgað konum sínnum??? Við vörum auðvitað við umræðu þáttarins. Instagrammið okkar @malmalanna ef það er eitthvað!

Little Sisters of the Poor vs. Pennsylvania - Sjúkratryggingar og getnaðarvarnir 05 Jan 2021

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og vandamenn og takk fyrir það gamla! Í fyrsta þætti ársins förum við yfir mál frá árinu 2020, þar sem nunnurnar í hópnum Little Sisters of the Poor vilja ekki að getnaðarvarnir séu hluti af sjúkratryggingum á þeirra vinnustað. Við förum yfir Obamacare og líka Burwell v. Hobby Lobby frá árinu 2012. Minnum á okkur á Instagram, við elskum að heyra í ykkur @malmalanna

Michael H. v. Gerald D. - Réttur feðra 07 Dec 2020

Gleðilegan máundag! Nú förum við yfir mál Stanley v. Illionis og svo auðvitað mál Michael H og Gerald D., en annar var líffræðilegur faðir Victoriu D en hinn var giftur móður hennar.... hver fær þá að kalla sig föður hennar samkvæmt lagalegum skilningi? Þetta er síðasti þátturinn sem við gefum út fyrir jól, svo við þökkum fyrir samfylgdina á þessu ári og sjáumst hress og kát í janúar 2021. Gleðilegt afmæli (Malen og fleiri sem eiga afmæli í desember), gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár! Njótið hátíðarinnar elsku vinir!

Madison v. Alabama - Dauðarefsing fyrir geðbilaðan mann 30 Nov 2020

Smá erfiður þáttur, mikið sem þarf að hugsa um og stór umræða! Í þætti vikunnar tölum við um Ford v. Wainwright, Panetti v. Quarterman, 8undu lagabreytingu stjórnarskránnar og svo auðvitað mál Vernon Madison. Minnum á Instagrammið okkar og endilega segið okkur hvað ykkur finnst, Kristel svarar ykkur!

Hverfisskólar á Íslandi 2010-2011 23 Nov 2020

Jæja! Íslenskt mál um hverfisskóla eða forgangsskóla sem notast var við innritun í framhaldsskóla 2010 og 2011... og verður ekki endurtekið í bráð!

Fisher v. University of Texas - Jákvæðar aðgerð fyrir minnihlutahópa 16 Nov 2020

Þáttur vikunnar fjallar um Abigail Fisher og hennar lögsókn á höndum Háskólans í Texas, því hún komst ekki inn, að hennar mati því hún var hvít? Vegna affermative action, eða jákvæð aðgerð fyrir minnihlutahópa taldi Fisher að hennar höfnun í skólann væri byggð á hennar kynþætti. Við tölum einnig um eldri mál eins og Bakke v. University of California og Grutter v. Bollinger sem lögðu grunninn að þessu máli. Þar til í næstu viku!

Buck v. Bell - Löglegar leyni ófrjósemisaðgerðir 09 Nov 2020

Í þætti vikunnar förum við yfir gamalt mál frá árinu 1927 þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að læknar Carrie Buck mættu framkvæma ófrjósemisaðgerð á henni, en hún var talin óhæf til að fjölga sér. Eftir það voru svo gerðar 60.000-70.000 fleiri ófrjósemisaðgerðir á fólki sem vildi það ekki. Survival of the fittest? Minnum á Instagram! @malmalanna

Castle Rock v. Gonzales - Nálgunarbann + Heimilisofbeldi 02 Nov 2020

Mánudagur og gleðilegan nóvember! Þáttur vikunnar er erfiður og við vörum við efninu! Jessica Gonzales fékk nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann sinn vegna heimilisofbeldis sem hún þurfti að þola, en málið fór á allt aðra vegu en hún hefði getað ímyndað sér. Við ræðum einnig um Francine Hughes og Thomia Hunter. Njótið vel og við minnum á Instagrammið okkar, @malmalanna

Adoptive Couple v. Baby Girl - Saga Veronicu 26 Oct 2020

Mánudagur! Nú ætlum við að gefa þætti frekar út á mánudögum, en það hentar okkur betur. Þáttur vikunnar er um Baby Veronicu og hvernig hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í hennar máli hver skyldi vera með forsjá yfir henni. Spennó! Minnum á okkur á Instagram @malmalanna og segið vinum ykkar frá okkur!

Richards v. Wisconsin - Ekkert bank (No Knock Warrant) 14 Oct 2020

Þáttur vikunnar fjallar um leitarheimild sem lögreglan fær frá dómurum og þurfa ekki að banka eða tilkynna komu sína þegar farið er inn á heimili. Breonna's Law tekið fyrir og mál Baby Bou Bou! @malmalanna á Insta!!

Mapp v. Ohio - Leitarheimild 07 Oct 2020

Jæja, eftir djúpar samræður í síðustu viku erum við systur komnar aftur í góðan gír og ræðum leitarheimild, persónufriðhelgi og öryggi almennings! Ekki gleyma fylgja okkur á Instagram @malmalanna!

Líknardráp í Hollandi 30 Sep 2020

Jæja, loksins ekki í Bandaríkjunum! Þáttur vikunnar er ekki fyrir viðkvæma, enda viðkvæmt efni sem við systur tökum fyrir (reynum að gera það skemmtilegt samt lofa!).

Boy Scouts of America v Dale - Enga samkynhneigða skáta 23 Sep 2020

Þáttur vikunnar fjallar um James Dale og af hverju hann mátti ekki vera með í skátunum, eitt sinn skáti ávallt skáti ekki satt?

AUKA ÞÁTTUR: Ruth Bader Ginsburg, hvað næst? 22 Sep 2020

Auka þáttur, það kemur samt annar þáttur út á morgun, miðvikudag. Þessi þáttur er spjall um Ruth, hvað hún er flott og hvað gerist næst í USA.... Njótið og munið að followa okkur á Instagram!

Brown v. Board of Education - Aðgreining í skólum 18 Sep 2020

Þáttur vikunnar er um Lindu Brown og hennar réttindi að ganga í skóla með börnum af öllum kynþáttum en einnig er komið inn á Plessy v. Ferguson, aðskilið en jafnt... Spennandi!

Miranda v. Arizona - Rétturinn til þess að segja ekki neitt 10 Sep 2020

150 followers á Instagram, þá lofuðum við nýjum þætti! Þátturinn í dag fjallar um Ernesto Miranda og hans vandræði sem urði seinna meir að lögum sem allir sem horfa á löggu þætti í dag ættu að kannst við. You have the right to remain silent...

Roe v. Wade - Þungunarrof 06 Sep 2020

Fyrsti þáttur fjallar um sögu þungunarrofa í Bandaríkjunum. Hvernig urðu lögin til? Eru þau í hættu?