Mannlegi þátturinn cover

Mannlegi þátturinn

RÚV

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu

0:00 0:00

Þættir

Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu 13 Nov 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Valur Freyr Einarsson, leikari og leikstjóri. Hann lærði leiklist í Manchester í Bretlandi og hefur leikið í ótal leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum síðan hann útskrifaðist 1995. Hann hlaut tvenn Grímuverðlaun árið 2012 fyrir leik og sem leikskáld ársins fyrir sýninguna Tengdó. Um síðustu helgi var stórsýningin Þegar Trölli stal jólunum frumsýnd, en Valur Freyr leikstýrir sýningunni. Við fórum út um víðan völl og fram og aftur um tímann með honum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við hlusta á innslag frá árinu 1954 þar sem Helga Sigurðardóttir kemur með heilræði fyrir húsmæður landsins þegar kemur að því að frysta mat. Við fengum mikil viðbrögð við tveimur stuttum innslögum með Helgu sem við spiluðum á mánudaginn í þættinum. Við flettum einnig í einni af hennar þekktustu bókum, Matur og drykkur sem kom út árið 1947. Tónlist í þættinum: Öldueðli / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) You're A Mean One, Mr. Grinch / Thurl Ravenscroft & Boris Karloff (Albert Hague, Eugene Poddany & Theodor Seuss Geisel) You Can’t Always Get What You Want / Rolling Stones (Jagger & Richards) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Skotganga Ingu og Snorra, Glóð um jólin og Jónatan um Pétur Kristjánsson 12 Nov 2026

Skotganga er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi og fyrirtækið reka þau hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað 2008 og eins og nafnið gefur til kynna var í fyrstu boðið upp á gönguferðir í Skotlandi. Í dag eru í boði gönguferðir víða um Evrópu og sérstakar kvennaferðir svo eitthvað sé nefnt. Það stóð til að vera einungis 9 mánuði í Skotlandi en árin eru orðin 24 og þau hjónin segja gott að búa þar. Við spjölluðum við Snorra og Ingu í dag, en þau eru stödd á landinu bláa í nokkra daga. Við heyrðum svo af verkefninu Glóð um jólin til styrktar Konukoti. Þetta er fjórða árið sem Erling Jóhannesson gullsmiður býr til nýjan kertastjaka, en hann hefur nú gert þann fjórða, þeir verða að lokum sex. Við fengum þær Ilmi Kristjánsdóttur leikkonu sem hefur verið með í verkefninu frá upphafi og Halldóru R. Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Konukots til að segja okkur betur frá verkefninu og starfsemi Konukots. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í þetta sinn var komið að Pétri Kristjánssyni. Hann setti auðvitað sterkan svip á íslenska dægurtónlist, með Pops, Pelican og Paradís, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, en þær voru fleiri og byrjuðu ekki allar á Pé. Jónatan fór með okkur yfir feril Péturs í dag og við heyrðum auðvitað tvö lög sem hann söng. Tónlist í þættinum: Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon) These Boots are Made for Walkin’ / Nancy Sinatra (Lee Hazlewood) Seinna meir / Start (Jóhann Helgason) Jenny Darling / Pelican (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðgengi að íslenskukennslu, Vísnavinir fimmtugir og vísindaspjall um augun 11 Nov 2026

Í aðdraganda að degi íslenskrar tungu verður haldið málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Tilefnið er áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum utan EES sem búa og starfa her á landi með tímabundið dvalarleyfi, sem er svo forsenda ótímabundins dvalarleyfi. Líklegt þykir að gjöldin muni í reynd girða fyrir að stórir hópar fólks sem gegnir samfélagslega mikilvægum störfum og greiðir skatta og skyldur hér á landi geti sótt sér kennslu í íslensku sem öðru máli við Háskólann. Védís Ragnheiðardóttir, námsleiðarformaður Hagnýts náms í íslensku sem annað mál og Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á skrifstofu hjúkrunar á Landspítala sögðu okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Vísnavinir voru stofnaðir haustið 1976 og eiga því 50 ára afmæli um þessar mundir. Félagið var stofnað að norrænni fyrirmynd og er uppruni slíkra félaga í Svíþjóð og kölluðust þau Visans vänner. Norrænu vísnafélögin mynduðu með sér samband og voru Vísnavinir aðili að því. Vísnavinir héldu í nokkur ár úti mánaðarlegum vísnakvöldum á Hótel Borg og í Þjóðleikhúskjallaranum og þar kom fram tónlistarfólk eins og Bubbi Morthens, Bergþóra Árnadóttir, Eyjólfur Kristjánsson ofl. Við heyrðum í dag í þeim Hjalta Jóni Sveinssyni og Gísla Helgasyni sem voru meðal stofnmeðlima. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag sagði hún okkur frá rannsóknum þar sem sýnd er fram á tengingu augna við sogæðakerfið, hreinsunarkerfi líkamans. Tónlist í þættinum: Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason) Áframhald / Gísli Helgason (Gísli Helgason) Gott áttu veröld / Bergþóra Árnadóttir og Hálft í hvoru (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Tómas Guðmundsson) Augun þín blá / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Skýrsla vinnuhóps Landlæknis um ME, nýtt bókasafn í Smáralind og veðurspjall frá Kenýa 10 Nov 2026

Nýlega kom út skýrsla vinnuhóps Landlæknis um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem glíma við ME, langvinnt COVID-19, POTS og umhverfisveikindi. Hópurinn var skipaður að beiðni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni kemur fram að sjúklingahóparnir sem um ræðir búa við eina allra þyngstu sjúkdómsbyrði sé miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma, en að þjónustan við hópana sé í hrópandi ósamræmi við þá staðreynd og umönnunarbyrði aðstandenda sé mikil. Freyja Imsland var fulltrúi ME félagsins í vinnuhópnum og hefur sjálf glímt við ME frá 2011. Hún kom í þáttinn í dag ásamt Helgu Edwardsdóttur formanni ME félags Íslands. Bókasöfn hafa þróast úr hefðbundnum útlánastöðum í lifandi menningar- og samfélagsmiðstöðvar þar sem allir eru velkomnir, fyrir samveru, fræðslu, sköpun, lestur og menningarupplifun. Ný slík menningarmiðstöð sem verður 900 fermetrar er í smíðum í Smáralind og hugmyndin er að færa menningu og bókasafnsþjónustu nær fólkinu. Við ræddum við Elísabetu Sveinsdóttur, formann í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs og forseti bæjarstjórnar kom í þáttinn í dag til okkar hér á eftir. Í veðurspjallinu vorum við í beinu sambandi við Einar Sveinbjörnsson þar sem hann var staddur í Kenya. Hann talaði aðeins um veðrið í Austur-Afríku og regntímabilin þar. Svo voru það hlýindin sem hafa verið hér á landi undanfarið og hvort því tímabili sé lokið og svo í lokin skoðaði hann aðeins langtímaspárnar og hvað þær eru að segja okkur. Tónlist í þættinum: Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Leaves still green / Thin Jim and the Castaways(Jökull Jörgensen) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Útfararsjóður.is, Húsmæðraráð frá 1950 og Björg Jóna lesandi vikunnar 09 Nov 2026

Stofnað hefur verið almannaheillafélag um útfararsjóð barna og unglinga og er markmið sjóðsins að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini sína með reisn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reikningnum sem bíður þeirra að athöfn lokinni. Sindri Swan listamaður er stofnandi sjóðsins og hann segist vonast til að með tíð og tíma geti sjóðurinn staðið undir útfararkostnaði allra barna og unglinga hér á landi. við heyrðum í Sindra í þættinum. Við heyrðum svo reglulega skemmtilegt efni af safni RÚV, tvö innslög úr Húsmæðraþáttum sem voru í útvarpinu árið 1950. Þar gefur Helga Sigurðardóttir, sem var auðvitað landsfræg bæði fyrir matreiðslubækur sínar og svo var hún skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Í þessum innslögum gefur hún góð ráð í sambandi við matseðil vikunnar og svo sunnudagsmáltíð. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Björg Jóna Birgisdóttir fyrrverandi námsstjóri í Listaháskólanum. Hún skrifaði jólasögu fyrir börn sem heitir Jólahúsið hennar Sonju, en bókin er nýkomin út. Hún sagði okkur frá bókinni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Saga Reykjavíkur í 1000 ár e. Guðjón Friðriksson, Eggert Þór Bernharðsson og Þorleifur Óskarsson. Laugavegur e. Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg Kristín Þorkelsdóttir e. Bryndísi Björgvinsdóttur og Birnu Geirfinnsdóttur Flórulykillinn e. Ágúst H. Bjarnason Sigurverkið e. Arnald Indriðason Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur Karítas án titils e. Kristínu Mörju Baldursdóttur Dimmalimm e. Mugg Kvennaklósettið e. Marilyn French Híbýli vindanna e. Böðvar Guðmundsson Bókin hans pabba (e. Birgi Ísleif Gunnarsson, kom aldrei út) Tónlist í þættinum: Bjartsýni / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Haustvísa / Anna Pálína Árnadóttir (Erna Tauro-Aðalsteinn Ásberg) Söngur Dimmalimmar / Gunnar Gunnarsson (Atli Heimir Sveinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Vilhelm Anton föstudagsgestur og matarspjall um heitt súkkulaði með Pálma Gunnars 06 Nov 2026

Vilhelm Anton Jónsson, tónlistar-, sjónvarpsmaður, rithöfundur og leikari var föstudagsgesturinn okkar í dag. Villi lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og varð þekktur undir heitinu Villi naglbítur eftir hljómsveitinni 200.000 naglbítar. Einnig hefur hann verið kallaður Vísinda Villi en hann hefur skrifað barnabækur um vísindi. Vilhelm hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var um nokkurra ára skeið spurningahöfundur og dómari í spurningakeppninni Gettu betur. Við fórum með honum aftur í tímann, til dæmis til Skotlands, Akureyrar og víðar. Hann sagði okkur líka frá fyrstu skáldsögu sinni, Strákurinn með sægrænu augun, sem er nýkomin út. En sú saga kom óvænt til hans þegar hann ætlaði sér að skria allt aðra sögu. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, í dag ræddum við heitt súkkulaði og hringdum í vin, Pálma Gunnarsson söngvara, sem kann ýmislegt fyrir sér þegar kemur að heitu súkkulaði. Tónlist í þættinum: Jamaica / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Finnbogi Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Kling klang / Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Hoist the Colours / The Wellerman (Gregor Justin Verbinski, Hans Zimmer, Ted Andrew Elliott & Terry Rossio) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Umönnun aldraðra samhliða starfi, Verum viðbúin og Jónatan um Jón Múla og Jónas 05 Nov 2026

Öldrun þjóðarinnar og vaxandi ummönnunarþörf aldraðra auka líkur á að starfsfólk þurfi að samræma vinnu og umönnun aldraðra foreldra. Slík ábyrgð getur haft áhrif á líðan, streitu og atvinnuþáttöku. Vala Rún Magnúsdóttir nýútskrifaður meistaranemi í mannauðsstjórnun fjallaði einmitt um þetta í rannsókn í meistaraverkefni sínu. Markmið hennar var að kanna meðal annars hvaða úrræði íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa til að styðja við starfsfólk sem annast aldraða foreldra. Vala Rún var hjá okkur í dag og sagði okkur betur frá rannsókninni og niðurstöðum hennar. Almannavarnir hafa nýverið gefið út bækling og leiðbeiningar undir heitinu Verum viðbúin, og einnig er heimasíða tilbúin með þessu heiti, verumvidbuin.is. Tilgangurinn er að leiðbeina fólki um hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu sem getur haft áhrif á daglegt líf. Við reiðum okkur í ríkum mæli á raforku, fjarskipti og innflutning á nauðsynjunum og hvað gerum við og getum við án þess alls. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna kom í þáttinn í dag. Svo hélt Jónatan Garðarsson áfram að fræða okkur í dag um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni. Jón Múli samdi tónlistina og Jónas textana og Jónatan fræddi okkur betur um feril þeirra bræðra í þættinum í dag. Tónlist í þættinum: Tempó prímó / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason) Dancing in the Street / Mamas and the Papas (Marvin Gaye, William Stevenson & Joe Hunter) Eitt sumar á landinu bláa / Þrjú á palli (írskt þjóðlag, texti Jónas Árnasynir) Í hjarta þér / Haukur Morthens (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ráðgjöf við samfélagsmiðlanotkun, konur og kýr og vísindaspjall um tedrykkju 04 Nov 2026

Samverustundir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga milli kl. 16:00 – 18:00 í dag verður yfirskriftin Mjúkt net, þar sem allir geta komið sem vilja með símann sinn, spurningar, reynslu og jafnvel gremju. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, en einnig sérfræðingar í öryggi farsíma og í dag mun Anna Laufey Stefánsdóttir frá Stafrænni velferð, veita gestum ráðgjöf varðandi t.d. örugga símanotkun, persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og fleira. Anna kom í þáttinn í dag. Við fræddumst svo um erindi sem Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur hjá Þjóðminjasafnsins, hélt á Þjóðarspeglinum í síðustu viku. Yfirskrift erindisins var „Innilegt og náið samband“: Kýr og konur í gamla bændasamfélaginu. Þar fjallaði hún um þetta nána samband, þar sem kýrnar voru ekki bara nytjadýr heldur miklu meira og við fengum Sigurlaugu til að segja okkur betur frá þessu djúpa samband í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að tedrykkja gæti haft jákvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Tónlist í þættinum: Lag þetta gerir mig óðan / Ðe lónlí blú bojs (Tom T. Hall, texti Þorsteinn Eggertssson) Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Söngur dýranna í Týról / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (P. Doddoge, texti Flosi Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Nægjusamur nóvember, Evolytes stærðfræðikennsla og söfnun Bergs fyrir Ljósið 03 Nov 2026

Nú er nýhafin Nægjusamur nóvember, sem Landvernd stendur fyrir í fimmta sinn. Átakið hvetur fólk til að njóta meira með því að neyta minna og er mótsvar við neysluhyggju, ekki síst nú þegar alls konar tilboðsherferðir og dagar eins og t.d. Svartur föstudagur og fleiri eru fram undan. En hvað felst eiginlega í nægjusemi og hvernig getum við fundið meiri ánægju í því sem við eigum og gerum nú þegar? Í ár er áhersla lögð á þátttöku almennings með vikulegum hugmyndum og áskorunum. Við ræddum í dag við Ragnhildi Kötlu Jónsdóttur, upplýsingastjóra Landverndar. Evolytes námskerfið kennir börnum á aldrinum 5-11 ára stærðfræði í gegnum leik, sögur og ævintýraheim. Í rannsókn Evolytes, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, reyndust börn svara fjórfalt fleiri dæmum þegar þau æfðu sig í gegnum leik. Í fyrra tóku um 9.000 grunnskólabörn þátt í Stóru stærðfræðikeppninni sem Evolytes heldur utan um. Börnin svöruðu samanlagt yfir 1,7 milljónum stærðfræðispurninga á nokkrum vikum, en í ár munu tólf þúsund taka þátt. Við ræddum við Mathieu Gretti Skúlason framkvæmdastjóra Evolytes í dag og hann sagð okkur frá því á hvaða hátt þau reyna að höfða betur til barnanna til að ná betri árangri í stærðfræðikennslu og nú líka í lestrarkennslu. Við heyrðum svo í Bergi Vilhjálmssyni, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanni og björgunarkafara. Hann ætlar að þreyta þrekpróf, sem er eitt af inntökuskilyrðum í slökkviliðið, nema hann ætlar að gera það stanslaust í 12 tíma á meðan flestum öðrum dugar að fara í gegnum brautina einu sinni á um það bil tuttugu mínútum. Þetta ætlar hann að gera til styrktar Ljósinu, og þetta er ekki í fyrsta skipta sem hann leggur á sig þrekvirki til styrktar góðum málstað. Bergur sagði okkur meira frá þessu átaki og söfnuninni sem fer fram næsta laugardag. Tónlist í þættinum: Bless á meðan / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Halldór Gunnarsson) Musik skal bygges utav gledje / Lill Lindfors (Lill Lindfors & Björn Barlach) Rigning og súld / KK (Kristján Kristjánsson) Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Að kunna að hrósa, Sweeney Todd í Salnum og Lára V. Júlíusd. lesandi vikunnar 02 Nov 2026

Við ræddum um hrós í daglegu lífi í þættinum í dag. Hvers vegna erum við ekki duglegri við að hrósa öðrum? Margrét Reynisdóttir hefur í 20 ár unnið með fyrirtækjum að þjónustu og samskiptum og hún að það sé talsvert algengt að fólk sem hefur unnið mjög lengi á sama vinnustað án þess að hafa nokkurn tíma heyrt eitt einasta orð um hvernig þau stæðu sig, hvað þá hrós. Svo er ekki sama hvernig við hrósum. Við ræddum við Margréti í þættinum í dag. Sweeney Todd, söngleikurinn um rakarinn sem myrðir fólk úr valdastétt Lundúnaborgar í slagtogi við bökugerðarkonu, var frumsýndur á laugardaginn, á Hrekkjavöku, af Sviðlistakórnum Viðlagi. Verkið er eitt af þekktustu verkum Stephen Sondheim og var fyrst sýnt fyrir hartnær fimmtíu árum.Axel Ingi Árnason stjórnandi kórsins og Vala Fannel leikstjóri komu til okkar í dag. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum er Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Lára talaði um eftirfarandi bækur og höfundar: Þórarinn Eldjárn og ljóðabækur Egilssögur- á meðan ég man, samtalsbók Páls Valssonar við Egil Ólafsson Piparmeyjar, fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur Strá fyrir straumi e. Erlu Huldu Halldórsdóttur Leitin að tilgangi lífsins, e. Viktor E. Frankl, Páll Skúlason prófessor ritaði inngang að útgáfu bókarinnar á íslensku 1996. Tónlist í þættinum: Eitt lítið hrós / Jón Jónsson, Mugison og KK (Jón Jónsson) Rainbow Connection / Kermit the Frog (Paul Williams & Kenneth Asher) Sweeney Todd: Pretty Women / Bryn Terfel (Stephen Sondheim) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birgitta Haukdal föstudagsgestur og kálbögglar og blöðrukál í matarspjallinu 30 Oct 2026

Birgitta Haukdal söngkona og rithöfundur er ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar síðustu áratugi. Það má segja að símtal frá Gunnari Þórðarsyni hafi breytt lífi hennar, þegar hann bauð henni að taka þátt í ABBA-sýningu á Hótel Íslandi þegar hún var aðeins 17 ára. Sýningin varð gríðarlega vinsæl og gekk lengi. Í framhaldi af því flutti hún til Reykjavíkur, en hún er fædd og uppalin á Húsavík. Eftir að ABBA sýningin kláraðist gekk hún í hljómsveitina Írafár og þau náðu fljótt eyrum landsmanna og voru var um árabil ein vinsælasta hljómsveit landsins og sú hljómsveit er enn að koma fram á tónleikum. Árið 2015 gaf hún út sína fyrstu barnabók, Lára lærir að hjóla, og hefur í kjölfarið gefið út 30 bækur, flestar um Láru og Ljónsa, en líka tónlistarbækur fyrir börn. Við fórum með Birgittu aftur í tímann, norður á Húsavík og á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, en næst á dagskrá hjá henni eru jólastórtónleikar í Hörpu með stórskotaliði íslenskrar popptónlistar. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti í dag talaði hún um haust og vetrarmat, þar komu til dæmis kálbögglar og blöðrukál við sögu.Og svo glugguðum við aðeins aftur í Eldhúsbókina á gömul húsráð. Tónlist í þættinum: Ég sjálf / Írafár (Vignir Snær Vigfússon og Birgitta Haukdal) Móðir / Birgitta Haukdal (Birgitta Haukdal) Kisa mín / Birgitta Haukdal og Saga Júlía Benediktsdóttir (George Riedel, texti Böðvar Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þrjátíu ára upptökur fundust á Þjóðskjalasafninu, alþjóðlegi slagdagurinn og Jónatan um Jóhann G. 29 Oct 2026

3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. Árin liðu og ekkert gerðist en árið 2024 var ákveðið að reyna að finna upptökurnar og þær fundust á Þjóðskjalasafninu og nú árið 2026, 30 árum eftir upptökurnar, er tónlistin komin út á vínilplötu og á streymisveitum. Þeir félagar komu til okkar í dag og við fengum að heyra meira af þessu ævintýri í dag. Í dag er alþjóðlegi slagdagurinn og Heilaheill vill vekja athygli, eins og gert er um allan heim, á fyrstu einkennum heilablóðfalls, sem eru: sjóntruflun og skyntap, lömun útlima, andlitslömun og glatað mál. Saman koma þessi einkenni í skammstöfunina S-L-A-G. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans og Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, komu til okkar í dag og fræddu okkur um fyrstu einkennin og snjallforritið Heilaheill sem hægt er að fá ókeypis í snjallsíma. Jónatan Garðars kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að tónlistarmanninum Jóhanni G. Jóhannssyni. Hann samdi mikinn fjölda laga sem urðu gríðarlega vinsæl og fylgja þjóðinni enn og við heyrðum þrjú þeirra í þættinum og Jónatan sagði okkur frá ævi Jóhanns og tónlistarferli hans. Tónlist í þættinum: Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson) Mother / 3toOne (Egill Ólafsson, Ingólfur Sv. Guðjónsson og Sigurður Gröndal) Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti Páls Postula úr fyrra Kórinthubréfi) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Fjármál og ADHD, Stefán og ættfræðigrúsk og vísindaspjall um svefn kóngulóa 28 Oct 2026

Hvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með ADHD og hvernig það hefur áhrif á það hvernig við notum peninga og líður í kringum þá. Þar getur hvatvísi, gleymska, forðun og óöryggi spilað stórt hlutverk. Valdís kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu. Hverra manna ert þú? Þetta er spurning sem við Íslendingar spyrjum gjarnan hvert annað. Í dag er hægt að nýta gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldu þinnar allt að 200 ár aftur í tímann. Það er hægt að bera saman upplýsingar við lýsingar sagnfræðinga og annarra á lífskjörum og möguleikum almennings til að takast á við fátækt, barnadauða, vistarbönd, farsóttir og harðindi. „Þínu fólki tókst það – því annars værir þú ekki hér“, segir Stefán Halldórsson rekstrarhagfræðingur og félagsfræðingur en hann stendur fyrir námskeiði hjá Endurmenntun HÍ sem haldið verður í næstu viku. Stefán kom í þáttinn í dag og talaði um ættfræðigrúsk. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á svefni kóngulóa. Þar kom ýmislegt í ljós sem rímar við það sem við sjáum hjá okkur, mannfólkinu, sem kom á óvart, en vekur vonir um að niðurstöðurnar geti svarað spurningum um svefn sem geta nýst okkur. Tónlist í þættinum: Sjaddi Mollo / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Magnús R. Einarsson) Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Ættin mín / Raggi Bjarna og Bjarni Ara (Bjarni Hafþór Helgason) Þú ert vagga mín haf / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson (12.september), texti Reinhardt Reinhardtsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Steinunn um Hallgrím og Guðríði, Ísaksskóli 100 ára og veðurspjall með Einari 27 Oct 2026

Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur kom í þáttnn í dag og talaði um Hallgrím og minntist líka á Guðríði, konu Hallgríms en á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu en nú hefur bók Steinunnar „Reisubók Guðríðar“ verið þýdd yfir á ensku. Um 2000 gestir lögðu leið sína í Ísaksskóla fyrir skemmstu þegar 100 ára afmæli skólans var fagnað. Þar komu saman fyrrverandi og núverandi kennarar, starfsfólk og nemendur og velunnarar skólans. Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri kom til okkar í dag og sagði okkur sögu Ísaksskóla og því hvernig það atvikaðis að skólinn sé aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem verið hefur heimili skólastarfsíns um áratuga skeið. Svo var að veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Haustlægðir koma og fara, svo eru veðrabrigði framundan og að lokum rifjaði Einar upp ofsaveður sem fór yfir landið fyrir næstum nákvæmlega 90 árum með miklum afleiðingum, til dæmis í Hafnarfirði. Tónlist í þættinum í dag: Sveitapiltsins draumur / Hljómar (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Allt mitt líf / Elly (erlent lag, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Koffort þungt sem blý / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson) Þrjú tonn af sandi / Haukar (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Vala og Tyrkland, Jónas Árnason frá 1947 og Árni Friðriksson lesandi vikunnar 26 Oct 2026

Vala Þórsdóttir leikkona og höfundur kom til okkar í dag, en það eru ekki margir sem vita af því að verk eftir hana hafa verið talsvert oft sett á svið í Tyrklandi alveg frá árinu 2002 þegar einleikur hennar Háaloft var frumsýndur í Izmir, en Háaloft hefur verið sett upp nánast árlega í Tyrklandi og er nú leikið af mjög þekktri leikkonu. Vala hefur margoft farið til Tyrklands síðan þá og fer nú aftur í desember þar sem hún kennir og verður viðstödd dagskrá á verkum hennar sem verða sýnd henni til heiðurs. Vala sagði okkur frá hvernig þessi tenging hennar við Tyrkland komst á í upphafi og fleiru sem hún er að bralla nú og á næstunni. Við heyrðum svo 80 ára gamalt hljóðbrot úr safni Útvarpsins sem flutt var sunnudagskvöldið 27.júlí árið 1947 af Jónasi Árnasyni dagskrárgerðarmanni. Erindið var í þættinum Heyrt og séð og fjallaði meðal annars um póst- og skeytaþjónustu á landinu, vegakerfið í Hvalfirðinum og fleira og hann var aldeilis ekki að liggja á skoðunum sínum. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV sagði okkur frá þessu erinidi og leyfði okkur að heyra það. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Árni Friðriksson enskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum og leikskáld, söngvari, leikari og fleira. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Árni sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: East of Eden (Austan Eden) e. John Steinbeck Þú sem ert á jörðu e. Nínu Ólafsdóttir Oryx and Crake e. Margaret Atwood Það sem kann að leynast í eyra mínu e. Mosab Abu Toha Ray Bradbury Tónlist í þættinum í dag: Hvað með það? / Stefán Hilmarsson, Raggi Bjarna og Pétur Kristjánsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Hvað vita þeir? / Björgvin Halldórsson og Jón Jósep Snæbjörnsson (erlent lag, texti Karl Mann) Hvað er að? / Elly Vilhjálms (Jón Múli, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Guðmundur Andri föstudagsgestur og búðarferðanostalgía í matarspjallinu 23 Oct 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Hann hefur reynslu á mörgum sviðum, er fyrrverandi alþingismaður, var blaðamaður, ritstjóri og þáttagerðarmaður í útvarpi auk þess að vera söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Spaðar. Við fengum hann til að fara með okkur fram og aftur í tíma, í ræturnar í Vogunum og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann er að bralla þessa dagana. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Þar var nostalgían fyrirferðamikil og mislangar og misvelheppnaðar búðarferðir. Auk þess sem við hélldum áfram að blaða í Eldhúsbókinni góðu. Tónlist í þættinum í dag: Þú ert / Guðmundur Andri Thorsson með Tómasi R. Einarssyni og hljómsveit (Tómas R. Einarsson, texti Sigurður Guðmundsson) Haustvísa / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson) Sól í sinni / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Stella í orlofi fertug, Bleikur jazz og Jónatan um Henna Rasmus 22 Oct 2026

Í næsta mánuði verður blásið til afmælisveislu í Salnum í Kópavogi í tilefni þess að fjörutíu ár eru frá því kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd. Stella er fertug! Þessi bráfyndna mynd hefur fylgt þjóðinni í fjóra áratugi og ósjaldan er gripið í óborganlegar setningar úr myndinni eins og „ Boðið er búið, Bára er komin í bleyti og majónesan er orðin gul“, Lionsklúbburinn Kiddi með berjatýnurnar til sölu og „Fru Stella, veskan min er horfin“ og margar fleiri. Við rifjum upp þessa dásamlegu mynd hér á eftir í tilefni afmælisins. Sólveig Arnarsdóttir leikkona, sem var aðeins 13 ára þegar hún lék í myndinni, kom í þáttinn ásamt Hildi Berglindi Arndal og Thelmu Marín Jónsdóttur. Það er Bleikur október og á sunnudaginn verða tónleikar sem nefnast Bleikur Jazz þar sem allur aðgangseyrir mun renna til Ljóssins, endurhæfinga- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Það verður Agnar Már Magnússon jazzpíanóleikari sem leiðir tónleikana í Vídalínskirkju en þar er hann nýtekin við starfi organista. Við ræddum við Agnar um nýja starfið og umfang þess og hvernig það er að færa sig af flyglinum yfir á orgelið. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að lagahöfundinum Henna Rasmus, hann samdi fjölda laga og er líklega þekktastur fyrir lagið Viltu með mér vaka. Jónatan sagði okkur frá ferli Henna í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Ferðalangur til frambúðar / Stefán Hilmarsson (Stefán Örn Gunnlaugsson, texti Friðrik Sturluson) Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson) Órar/Agnar Már Magnússon(Agnar Már Magnússon) Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, ljóð Tómas Guðmundsson) Viltu með mér vaka / Lummurnar (Henni Rasmus, texti Valborg Bentsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Húmanískar útfarir, Virk í starfi og vísindaspjallið um aukaverkanir þyngdarstjórnunarlyfja 21 Oct 2026

Við fræddumst í dag um húmanískar eða veraldlegar útfarir eins og þær eru kallaðar hjá Siðmennt. Inga Auðbjörg K. Straumland er athafnastjóri hjá Siðmennt, við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig þær ganga fyrir sig, hver er munurinn á þeim og kirkjulegum útförum í þættinum í dag. VIRK stendur fyrir ráðstefnu á næstunni um það hvernig við nýtum tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu til að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu til vinnu. Virtir erlendir sérfræðingar í vinnusálfræði og vinnulæknisfræði flytja fyrirlestra en einnig mun Virk kynna nýtt úrræði sem nefnist Virk í starfi nýja þjónustuleið sem veitir einstaklingum á vinnumarkaði aðgang að fræðslu, ráðgjöf og þjónustu vegna erfiðleika sem hafa áhrif á starfsgetu þeirra. Markmiðið er að grípa snemma inn í ferlið, áður en vandinn verður of stór, og lágmarka þannig brottfall af vinnumarkaði. Vgdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK kom í þáttinn. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir að það séu tengsl á milli svokallaðra GLP-1 lyfja og naglaskemmda. En dæmi um GLP-1 lyf er t.d. Ozempic og svipuð lyf sem eru mikið notuð í dag til þess að létta sig. Edda útskýrði þetta fyrir okkur í dag og hvað þetta þýðir. Tónlist í þættinum í dag: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (erlent lag, texti Ásta Sigurðardóttir) Sail On / Regína Ósk Óskarsdóttir (Jóhann Helgason) Kom út 2004 Boat Behind / Kings of Convenience (Erlend Øye og Eirik Glambek Bøe) Nei sko / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ráðstefna um ME o.fl. og Samfélagsgarðar 20 Oct 2026

Heimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim í næstu viku til að tala á ráðstefnunni Brú milli heimsálfa. Þetta eru leiðandi, innlendir og erlendir, sérfræðingar á sviði ME, langvinns Covid, umhverfisveikinda og POTS sem þar munu koma saman og miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. En áhugi á þessum sjúkdómum hefur aukist verulega á síðustu árum, ekki síst í kjölfar heimsfaraldursins. Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir kom ásamt Helgu F. Edwardsdóttur, formanni ME félags Íslands í þáttinn og sögðu okkur frá ráðstefnunni og stöðunni þegar kemur að þessum sjúkdómum. Samfélagsgarðar hafa verið byggðir upp víða í nágrannalöndum með það að markmiði að nýta vannýtt svæði betur, skapa aðstæður fyrir meiri útiveru, efla tengsl fólks og bæta lífsgæði. Eyrún Gígja Káradóttir er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og hún skrifaði grein á miðilinn akureyri.net þar sem hún viðrar hugmynd sem áður hefur komið fram þar í bæ og bendir á að hægt sé að breyta vannýttu svæði í samfélagsgarð þar sem fólk á öllum aldri gæti komið saman, ræktað, hreyft sig og notið útiverunnar. Við ræddum við Eyrúnu og einnig við forstöðukonu matjurtagarða Akueyrar, Heiðrúnu Sigurðardóttur, en þær báður eru partur af hópi sem hefur verið myndaður um hugmyndina og vill þrýsta á bæjaryfirvöld að koma þessu í gagnið. Tónlist í þættinum í dag: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlísson (Boudleaux Bryant, texti Rúnar Júlíusson Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Sæunn Kjartansdóttir og gáfaða dýrið og Birgir Tjörvi lesandi vikunnar 19 Oct 2026

Hvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara spurninga og leitast við að svara þeim á námskeiði sem hún er með hjá Endurmenntun HÍ, og hún fjallaði um í bók sinni, Gáfaða dýrið, þar sem hún hjálpar lesandanum að átta sig betur á sjálfum sér og öðru fólki, skilja samskipti og samfélagið og takast á við streitu, ótta og einmanaleika. Þar kemur einmitt dýrið í okkur til sögunnar. Sæunn útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður og nú rithöfundur, en þessa dagana kemur út hans fyrsta skáldsaga, Skuggar af Kili þar sem söguhetjan leggur í rannsókn á uppruna sérkennilegra reglna sem móðurfjölskylda hans hefur farið eftir í 250 ár. Svo segir hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Birgir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda. Þöglu myndirnar, Pensilskrift og Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson. The Wind-Up Bird Chronicle e. Murakami Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren Stephen King Tónlist í þættinum í dag: Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) This fire! / Tina Dickow og Emilíana Torrini (Tina Dickow) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Selma Björns föstudagsgestur og matarspjall í beinni frá Róm 16 Oct 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað sætið í Eurovision og nú síðast frumsýndi hún nýja gamansýningu þar sem hún, ásamt Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól, þær kalla þetta sketsa og uppistandssýningu með frumsömdum lögum. Sýningin Bíddu bara - Þetta reddast! Og 25.október heldur hún tónleika í Salnum til heiðurs Dolly Parton, sem hún hefur haldið mikið upp á lengi. Selma sagði okkur í dag frá þessari sterku tengingu sem hún hefur við Dolly og kánrtítónlist. Við flökkuðum aðeins með henni aftur í tímann og fengum hana líka til að segja okkur frá starfi sínu sem athafnastjóri hjá Siðmennt, nýju sýningunni og tónleikunum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en hún er stödd í Rómarborg og Selma Björns sat áfram með okkur þar sem Sigurlaug sagði okkur í beinu sambandi frá rjúkandi rómarmat. Tónlist í þættinum í dag: 9 to 5 / Dolly Parton (Dolly Parton) I will Always Love You / Dolly Parton (Dolly Parton) Islands in the Stream / Dolly Parton og Kenny Rogers (Barry Gibb, Robin Gibb & Maurice Gibb) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

100 ára afmæli Fríkirkjuorgelsins og Jónatan Garðars um Ingimar Eydal 15 Oct 2026

Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma. Í tilefni af 100 ára afmæli þessa orgels stendur nú yfir tónleikaröð í Fríkirkjunni og við hittum Gunnar Gunnarsson núverandi organista við kirkjunna og skoðuðum með honum þetta merkilega hljóðfæri og fræddumst um sögu þess. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Ingimar Eydal, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður Norðurlands og hljómsveit hans er samofin tónlistarmenningunni þar og skóp einstaka stemningu meðal annars í Sjallanum á Akureyri. Jónatan rakti feril Ingimars eins og honum einum er lagið í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Hvínandi vindur / Skólakór Kársnes (Aðalsteinn Ásberg) Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal, Þorvaldur Halldórsson (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson) Í sól og sumaryl / Hljómsveit Ingimars Eydal, Bjarki Tryggvason (Gylfi Ægisson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Vínlaus lífstíll, tónlist Kurt Weill og vísindaspjall um hreyfingu og svefngæði 14 Oct 2026

Full af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að lifa án áfengis, eins og þau orða það þá miðla þau lyklum til að loka dyrum og opna aðrar til betri vegar. Lára G. Sigurðardóttir læknir er gestakennari á námskeiðinu þar fer hún yfir hvaða áhrif það hefur á líkamann að hætta að drekka áfengi í fimm vikur. Margrét og Lára komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Kurt Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar. Tónskáld sem samdi óperu-, leikhús-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Hann skapaði tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós. Í tilefni af afmælisári tónskáldsins tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði okkur frá rannsóknum sem sýna fram á tengingu daglegrar hreyfingar og bættra svefngæða. Tónlist í þættinum í dag: Í kjallaranum / KK Sextettinn og Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson) The tide is high / Blondie (Holt) Mac the knife / Quincy Jones og Frank Sinatra (Kurt Weill, texti Bertolt Brecht, þýð. Marc Blitzstein) Congratulations / Cliff Richard (Bill Martin & Phil Coulter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ráð og óráð við bakverkjum, sjónlýsingar á myndlistarsýningum og veðurspjallið með Hlyni og Einari 13 Oct 2026

Við fræddumst í dag um ráð og óráð við bakverkjum.Jósep Blöndal læknir og stofnandi háls- og bakdeildar SFS í Stykkishólmi og einn fremsti baksérfræðingur þjóðarinnar kom í þáttinn. Fólk með bak- og hálsverki fær ótal ráðleggingar, bæði frá fagfólki, en líka frá ættingjum, vinum og samstarfsfólki. Margar slíkar geta verið vita gagnslausar og jafnvel skaðlegar. Jósep fór betur yfir þessi ráð og órað í þættinum. Við kynntum okkur svo sjónlýsingar á myndlistasýningum. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona verður einmitt með eina slíka fyrir blinda og sjónskerta á sýningunni Lekir líkamar - sameiginlegir heimar í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudaginn, á vitundardegi blindra og sjónskertra. Halla Margrét sagði okkur frá sjónlýsingum og þessari sýningu í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, og með honum kom gestur, Hlynur Sveinsson sem rekur Veðurstofu Norðfjarðar. Það er leitun að öðrum eins veðuráhugamanni, en hann er einmitt staddur í höfuðborginni af því hann er að sækja námskeið hjá Veðurstofunni. Það er spurning hvort þeir félagar Einar og Hlynur verði svo sammála þegar kemur að veðurspánni framundan hér á fróni. Tónlist í þættinum í dag: Leiðin heim /Björgvin Halldórsson og Hjartagosarnir (C.Pyle, texti Bragi Valdimar Skúlason) Gulnuðu laufin / Sigvaldi Helgi Gunnarsson (Sigvaldi Helgi Gunnarsson, texti Andri Már Sigurðsson) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) The Tide is High / Blondie (J.Holt) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Solla um baunir í mat, viðtal við Albert Guðmundsson frá 1952 og Elín Sigrún lesandi vikunnar 12 Oct 2026

Baunir eru meðal næringarríkustu matvæla sem völ er á og spila stórt hlutverk í heilsusamlegu mataræði. Þær eru einstaklega ríkar af próteini og trefjum og þær styðja við meltingu, hjartaheilsu og stöðugan blóðsykur. En hvernig kemur maður baunum inní matargerðina og þarf til dæmis að leggja allar í bleyti? Sú sem svaraði þessum spurningum var Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla í Grænum kosti eða Solla í Gló. Við komum ekki að tómum kofanum hjá henni þegar kom að baunum, frekar en öðru þegar kemur að grænmetisfæði. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom enn með gullmola úr safni Útvarpsins og í dag var það viðtal við knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson í París sem var tekið af Daða Hjörvar 9.febrúar 1952. Albert ræðir þar um feril sinn í Frakklandi, leikform sitt, meiðsli og gang mála í deildar- og bikarkeppnum. Viðtalið var tekið á lakkplötu og var ekki útvarpað fyrr en tæpum mánuði eftir upptöku. Líklega hefur það tekið tíma að senda lakkplötuna til Íslands á þessum tíma. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður og stofnandi fyrirtækisins Búum vel. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Enginn venjulegur lesandi e. Alan Bennett Ótíð í víti e. Gyrðir Elíasson Varkár e. Margréti Bjarnadóttur Arfur og umhverfi e. Vigdis Hjorth Döstädning e. Margareta Magnusson Ævisaga Gunnars Thoroddsen, e. Guðna Th. Jóhannesson Náðarstund, söguleg skáldsaga um Agnesi Magnúsdóttur, e. Hönnu Kent Tónlist í þættinum í dag: Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Bíldudals grænar baunir / Baggalútur (Valgeir Guðjónsson) Non,je ne regrette rien / Edith Piaf (Dumont & Vaucaire) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðalsteinn Ásberg föstudagsgestur og matarspjall um sveskjur 09 Oct 2026

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og tónlistarmaður. Hann hefur loks lokið að þýða Vísur Svantes, gríðarlega vinsælu bókina og lögin, eftir Benny Anderssen, verkefni sem hefur legið í skúffu hjá honum lengi. Verkið kemur út í bók og á nýjum hljómdiski Svante og haldnir verða tónleikar í Norræna húsinu og Hannesarholti af tilefninu. Aðalsteinn er uppalinn í sveit fyrir norðan en ætlaði sér aldrei að verða bóndi heldur ákvað snemma að verða rithöfundur. Við heyrum tvö lög af nýja diskinum og Aðalsteinn reynir að útskýra fyrir okkur af hverju svona margir tengja við Svante. Svo er það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti en hún ætlar að ræða um sveskjur í mat, eitthvað sem hún hefur aldrei þolað en nú er spurning hvort það hafi breyst? Svo grípum við niður í Eldhúsbókinni en þar má finna ýmsan fróðleik sem nýttist húsmæðrum á sjöunda áratug síðustu aldar og sá fróðleikur eldest ekki allur vel. Tónlist í þættinum í dag: Woman / John Lennon (John Lennon) Drykkjuvísur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Hamingjudagur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Tilfinningagreind og Herramennirnir, kostir húsaskipta og áhrif ADHD á fullorðna 08 Oct 2026

Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, félags og vinnusálfræðingur og stofnandi Hugarheims, er þessa dagana með námskeið þar sem fjallað er um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti. Og Ragnheiður skoðar viðbrögð, viðhorf, samskiptamynstur og ólík persónueinkenni og hvað getur legið að baki. Ragnheiður útskýrði þetta betur fyrir okkur í þætti dagsins og hvernig hún notar barnasögurnar um Herramennina í þessu samhengi. Snæfríður Ingadóttir fjölmiðlakona hefur áratugareynslu af húsaskiptum og hefur leiðbeint mörgum með þetta fyrirkomulag. Húsaskipti eru hagkvæm og ef rétt er að staðið mjög góð leið til að vera fjarri helstu ferðamannastöðum og kynnast hverfum borga. Við heyrðum í Snæfríði í dag. Hvaða áhrif hafa einkenni ADHD á daglegt líf þeirra fullorðnu einstaklinga sem eru með ADHD? Til dæmis á náin sambönd og ástarsambönd, fjármálin, foreldrahlutverkið og fleira. Framundan er málþing ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér“ þar sem einmitt þetta verður skoðað. Elín H. Hinriksdóttir, sérfræðingur hjá samtökunum, og Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðstjóri forvarna hjá Virk, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá. Tónlist í þættinum: Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Yakkety yak smacketty smack / Changes (Jóhann Helgason) Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Bodleaux Bryant, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Tónlist og sálgæsla, Geðheilbrigðisvika í H.R. og vísindaspjall um örveruflóruna og alzheimer 07 Oct 2026

Kirstín Erna Blöndal er söngkona,tónskáld og sálgætir. Hún skrifaði í meistararitgerð sinni frá Listaháskóla Íslands um áherslu á nýjum leiðum i miðlun og tengsl tónlistar við sálgæslu og kannaði mikilvægi tónlistar í sálgæslu syrgjenda við útfarir og í sorgarferlinu. Á síðustu árum hefur hún einnig komið að kennslu og tónlistarsköpun ungra barna og fólks sem glímir við heilabilun. Kirstín Erna sagði okkur betur frá sínum störfum í dag. Alþjóði geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10.október og af því tilefni er Geðheilbrigðisvika HR haldin þessa vikuna og er þetta tíunda árið. Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf. Eva Rós Gunnarsdóttir og Auður Friðriksdóttir eru sálfræðingar í nemendaráðgjöf HR og þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá nýrri rannsók sem rannsakar áhrif örveiruflórunnar á Alzheimer. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum: Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson) Place in the Sun / Stevie Wonder (Stevie Wonder) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Allt í fína / Karl orgeltríó, Raggi Bjarna og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas 06 Oct 2026

Við veltum fyrir okkur hugmyndum um karlmennsku í dag með Þórði Kristinssyni kennara og doktorsnema í menntavísindum en hann veltir mikið fyrir sér karlmennskuhugmyndum og hvaða hugmyndir hafa karlmenn um karlmennsku. Hverjar eru fyrirmyndirnar? Nýlega birtust niðurstöður úr rannókn sem var unnin að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum og hugmyndir þeirra um karlmennsku. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli þó það sé rétt að taka fram að sett hafa verið spurningamerki við það hvernig hún var unnin, að úrtakið hafi verið skekkt. En spurningarnar og efnið voru áhugaverð og við ræddum það við Þórð í þættinum. Hver erum við þegar starfstitillinn er ekki lengur til staðar, við starfslok? Hvernig getum við skapað okkur ný tækifæri, nýjan tilgang og hlutverk og um leið haldið félagslegri virkni og tengslum þegar við erum ekki lengur hluti af samfélagi vinnustaðarins. Þetta er allt hluti af því að hætta að vinna, en starfslokin og þau tímamót eru eitt mesta breytingaskeið ævinnar. Við forvitnuðumst um námskeið um fjallar um undirbúning fyrir starfslok sem Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi stendur fyrir, hún sagði okkur frá í þættinum í dag. Jónatan Garðarsson kom svo í þáttinn í dag hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Megas og fór yfir langan feril hans, en Megast lést í sumar. Tónlist í þættinum: Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson) Spáðu í mig / Megas (Megas, Magnús Þór Jónsson) Tvær stjörnur / Ragnheiður Gröndal (Megas) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar 05 Oct 2026

Menntaskólinn í Reykjavík átti hvorki meira né minna en 180 ára afmæli síðasta fimmtudag. MR hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina, Lærði skólinn, Reykjavíkurskóli, Latínuskólinn eða Schola Reykjavicensis og svo frá árinu 1937 Menntaskólinn í Reykjavík. Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir þessa merkilegu sögu skólans og sagði okkur frá ljósmyndasýningu sem verður allan okktóber þar sem ljósmyndum er varpað á framhlið skólahússins við Lækjargötu. Alþjóðlegi kennaradagurinn er í dag og því var vel við hæfi að kynna tilnefningarnar til Íslensku menntaverðlaunanna í þættinum í dag. Verðlaunaafhendingunni verður svo sjónvarpað frá Bessastöðum 11. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: Fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, fyrir kennslu, fyrir þróunarverkefni og fyrir Iðn- og verkmenntun. Auk þess verða veitt sérstök hvatningarverðlaun. Guðfinna S Bjarnadóttir stjórnandi og eigandi í LC ráðgjöf og Magnavita kom í þáttinn og kynnti þessar 13 tilnefningar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elísabet Katrín Friðriksdóttir verkefnastjóri á réttar- og öryggisgeðdeildunum á Kleppi. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elísabet talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Vaxtarræktarkonan einmanna e. Yukiko Motoya Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur og óútgefna bók með vinnuheitið Umbreyting - leiðarvísir til framtíðar e. Guðrúnu Schmidt Bókin um veginn e. Lao Tse Dísa ljósálfur e. G.T. Rotman Tónlist í þættinum: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash and Young (Graham Nash) Gamli skólinn / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu 02 Oct 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Þórir Baldursson. Þórir á langan glæstan feril, bæði hér á landi og erlendis þar sem hann hefur unnið með þekktasta tónlistarfólki landsins og heimsþekktum nöfnum eins og Donnu Summer, Giorgio Moroder, Elton John og Grace Jones. Hann er auðvitað einn þriðji af Savanna tríóinu sem naut strax mikilla vinsælda á sjöunda áratugnum. Við litum yfir ferilinn og ferðuðumst aftur í tímann með Þóri í þættinum frá tónleikum sem hann heldur núna 16.október í Austurbæjarbíói sem kallast Tónlistarheimur í meir en hálfa öld. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað, þar var kakósúparædd í dag og ekki voru allir sammála um ágæti hennar svo kíktum við aðeins í Eldhúsbókina góðu. Tónlist í þættinum: Brúðarskórnir / Savanna tríóið (Þórir Baldursson, texti Davíð Stefánsson) C'est Magnifique / (La Bionda - Baldursson og Mazzoli) Í töfrandi heimi / Kjalar Martinsson Kollmar (Þórir Baldursson, texti Kristján Hreinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Heimildarmyndir um Leiðtogafundinn í Höfða og bók Matthildar um hamfarirnar í Grindavík 01 Oct 2026

Stríð og Friður í Reykjavík er heimildarmynd í þremur hlutum um leiðtogafund Reagan og Gorbachev í Reykjavík árið 1986. Íslensk stjórnvöld höfðu aðeins tólf daga til stefnu þegar ljóst varð að Reykjavík ætti að hýsa fundinn og Reykjavík umbreyttist á örfáum dögum. Árni Þór Jónsson leikstjóri myndarinnar fór með okkur í tímaferðalag fjörutíu ár aftur í tímann og við rifjuðum upp þennan merkilega tíma og viðburð og allt havaríið í kringum hann. Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlaut á dögunum Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026. Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Við ræddum við Matthildi, móður hennar Valgerður Jennýjardóttur og Þórunni Rakel í dag. Tónlist í þættinum: Ammæli / Sykurmolarnir (Sykurmolarnir) Moscow Moscow / Strax (Jakob Frímann Magnússon) Perfidia / Linda Ronstadt (Alberto Dominiques) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Stafræn heilsa, Prjónahelgi á Húsavík og vísindaspjall um Úralíþín A 30 Sep 2026

Við fræddumst í dag um Stafræna heilsu, miðstöð sem var stofnuð í upphafi árs og hefur það hlutverk að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Guðmundur Jóhannsson samskiptastjóri Stafrænnar heilsu sagði okkur í dag frá þeim markmiðum sem eru þar í gangi og horfa með okkur lengra fram í tímann á það hver þróunin er í heilbrigðistækni, til dæmis eitthvað sem kallast stafrænir tvíburar, skammtatölvur og nanó-örflögur og flutning Heilsuveru yfir á Ísland.is sem mun gerast á næstunni. Svo heyrðum við af Lykkjum í leyfi á Húsavík, en það verður prjónaviðburður haldinn þar 16.-18. október, svokölluð prjónahelgi, Lykkjur í leyfi.Þarna sameinast prjón, ferðalag, matur, kvöldvökur og samvera. Nanna Einarsdóttir og Thelma Steimann standa að helginni og sögðu okkur betur frá henni í þættinum. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn um efnið Úralíþín A sem getur mögulega verið notað til að meðhöndla erfið tilfelli hjartabilunar. En efnið Úralíþín A finnst til dæmis í granataeplum og bláberjum. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í vísindaspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Vals nr.1 / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Sous le ciel de Paris (Under Paris Himmel) / Sören Brix (Hubert Giraud) Love is Blue / Paul Mauriat and his orchestra (André Popp, Pierre Cour & Brian Blackburn) Stranger on the shore / Acker Bilk (Robert Mellin & Bilk Acker) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannauðsdagurinn, veðurspjall um El Nino og Jane Austen klúbburinn 29 Sep 2026

Á föstudaginn verður Mannauðsdagurinn 2026 haldinn í Hörpu og þar sem rúmlega þúsund ráðstefnugestir munu koma saman. Í síbreytilegum heimi fyrirtækjareksturs og vinnustaða gegnir fólk sem starfar við mannauðsmál mikilvægu hlutverki og þeirra aðkoma að mótun menningar vinnustaðarins og því að hlúa að mannauðnum. Adriana K. Pétursdóttir formaður Mannauðs og Unnur Ýr Konráðsdóttir, varaformaður Mannauðs, sem standa að Mannauðsdeginum komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. „Bókabíó“ fór fram á kvikmyndahátíðinni RIFF í gærkvöldi en þá var sýnd verðlaunakvikmyndin Pride & Prejudice (Hroki og hleypidómar) frá árinu 2005 sem byggð er á sígildri sögu Jane Austen. Einnig var boðið uppá spjall með þeim Kristínu Lindu Jónsdóttur, formanni Jane Austen klúbbsins á Íslandi, og Silju Aðalsteinsdóttur, rithöfundi en Silja er helsti þýðandi verka Jane Austen á Íslandi. Silja og Kristín Linda komu til okkar í dag. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði hann við okkur um El Nino og helstu áhrifin af honum, undarlega hegðun fellibyljarins Polo og svo veðrið hér á landi næstu daga. Tónlist í þættinum: Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar) Litlu hlutirnir / Hildur Jónsdóttir (Hildur Jónsdóttir) Theme From a Summer Place /Percy Faith Orchestra (Max Steiner) Gæfa eða gjörvileiki / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Íslenski dansflokkurinn, gullmoli úr safni frá 1995 og Gísli lesandi vikunnar 28 Sep 2026

Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan. Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd og karpa um allskonar ótengda hluti, peninga, kleinubakstur og skaphöfn hvorrar annarrar. Þetta voru þær Steinunn Gunnarsdóttir Grænumýrartungu í Hrútafirði, Margrét Oddsdóttir Jörfa í Haukadal og Gísla Sigríður Kristjánsdóttir frá Teigi í Hvammssveit. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Hvanndal íslenskukennari og meðlimur í leshringnum Austurlandahraðlestri. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Svanvængjuð þrá e. Valdimar Tómasson Næsta stríð e. Ásgeir H. Ingólfsson Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson Íslensk óhamingja e. Bragi Páll Sigurðarson bækur Steinars Braga og þjóðsagan Djákninn á Myrká Tónlist í þættinum: Komdu með / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Svantes lykkelige dag / Povl Dissing (Benny Andersen) Nótt / Friðrik Ómar Hjörleifsson (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Erlingsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Björn Thors föstudagsgestur og matarspjall á gondóla 25 Sep 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Björn Thors. Um síðustu helgi var leikritið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson, í leikstjórn Björns frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Við ferðuðumst með Birni aftur í tímann, til námsáranna í Hamrahlíðinni og Hlíðaskóla þar sem kviknaði fyrst á leiklistarperunni í höfði Björns og svo fórum við enn aftar með honum, þangað sem rætur hans liggja í eyjunum í Breiðafirði. Forfeður og formæður, nútíminn, fortíðin og framtíðin með Birni Thors föstudagsgesti í dag. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Hún var engu að síður stödd í Feneyjum, líklegast á gondóla, hvaðan hún fræddi okkur um matarmenningu staðarins. Tónlist í þættinum: Lífið yrði dans / HLH flokkurinn (erl.lag, texti Laddi, Þórhallur Sigurðsson) Raddir efans / Prins póló (Svavar Pétur Eysteinsson) Bambolero / Gipsy Kings UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

40 ára söngafmæli Elínar Óskar og Jónatan Garðarsson um Björgvin Halldórsson 24 Sep 2026

Elín Ósk Óskarsdóttir heldur upp á 40 ára söngafmæli sitt með tónleikum í Salnum í Kópavogi 4.október nk. Elín Ósk hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga 11 ára gömul. Hún stundaði svo nám við Söngskólann í Reykjavík frá 1979-1984 og lauk þaðan einsöngvaraprófi. Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og henni við hlið var Jórunn Viðar tónskáld sem sá um undirleikin. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu frá 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro tenór og prófessor í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði. Elín Ósk fór yfir ferilinn með okkur og sagði til dæmis frá því þegar hún missti röddina og ekki fannst orsök þess fyrr en hún loksins fór til kvensjúkdómalæknis sem gat greint hvað var að hrjá hana. Jónatan Garðarsson hélt svo áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að Björgvini Halldórssyni, Bo. Björgvin var auðvitað magnaður söngvari, en líka góður lagahöfundur og stjórnaði upptökum á fjölda hljómplatna fyrir aðra. Hann varð gríðarleg stjarna mjög ungur og hélt áfram allan ferilinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Jónatani þegar kemur að Björgvini, frekar en fyrri daginn. Tónlist í þættinum: Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (bandarískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson) Vissi d'arte / Elín Ósk Óskarsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Giacomo Puccini, texti Luigi Illica og Giuseppe Giacosa) Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (Bob Calili, Michael Brown & Tony Sansone, texti Kristmann Vilhjálmsson (duln.f. Hrafn Gunnlaugsson)) Skýið / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Jakob og Karl um 60 ára afmæli MH, Pabba Reif, vísindaspjallið um heilann 23 Sep 2026

Þann 24. september 1966 var Menntaskólinn við Hamrahlíð settur í fyrsta skipti og árið 1972 var hann fyrsti skólinn til að taka upp áfangakerfi. 60 ára afmæli skólans verður fagnað svo um munar næsta laugardag með dagskrá frá morgni til kvölds. Ofursveit skólans mun koma fram, Hamraskáld að fornu og nýju lesa úr verkum sínum, boðið verður uppá gönguleiðsögn um skólann og margt fleira. Tveir fyrrverandi nemendur og nú meðlimir í Ofursveit MH, Jakob Frímann Magnússon og Karl Sigurðsson Baggalútur komu í þáttinn í dag. Pabba Reif er heitið á nýju dansverki sem frumsýnt verður eftir áramót í Tjarnarbíói. Aðstandendur sýningarinnar auglýsa nú eftir þáttakendum fyrir verkið, en leitað er eftir feðrum og ungmennum, sem munu svo dansa saman í sýningunni. Í kynningartexta segir að í verkinu munu feður fá tækifæri til að tengjast ungmennum sínum í gegnum dans og tónlist. Anna Kolfinna Kuran sagði okkur betur frá þessu verkefni og opnum danstíma á sunnudaginn í Dansverkstæðinu á Hjarðarhaga á sunnudaginn, en hún er danshöfundur verksins. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að heilinn hafi tvo mismunandi uppruna í fósturþroska. Þessi vitneskja auðveldar vísindahópum sem eru að rannsaka sjúkdóma í heilastofninum, en heilastofninn á líklega uppruna sinn í öðrum stofnfrumum en t.a.m. framheilinn. Edda útskýrði þetta betur í þættinum. Tónlist í þættinum: Við arineld / Erla Stefánsdóttir (Magnús Eiríksson, texti Kristján frá Djúpalæk) 10 dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Eldur / Gissur Páll (Sveinn M Sveinsson, texti Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Lífræn ræktun á Íslandi, Fuglar (og menn), málþing um mikilvægi hvala 22 Sep 2026

Á laugardaginn var haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Lífræni dagurinn og í þetta sinn í Kringlunni. Þar gat fólk kynnst lífrænni ræktun og framleiðslu og ekki síst hitt fólkið sem stendur á bak við íslenska lífræna matinn. Anna María Björnsdóttir var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir stöðuna á lífrænum landbúnaði á Íslandi og hvernig framtíðin lítur út. Heimildarmyndin Fuglar (og menn) var frumsýnd í síðustu viku. Í henni er fylgst með hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Ólafsdóttur sem hafa í rúma tvo áratugi helgað sumur sín verndun og uppbyggingu æðarvarps í Loðmundafirði á Austfjörðum. Myndin sýnir á afar fallegan og hispurslausan hátt samband manns og náttúru, en Ólafur hefur til dæmis byggt sex þúsund fuglakofa í firðinum fyrir kollurnar enda koma sífellt fleiri fuglar þangað á hverju ári. Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra og framleiðandi myndarinnar, kom í þáttinn ásamt Pálma Benediktssyni, en hann er tengdasonur Ólafs og Jóhönnu og kemur sjálfur fram í myndinni. Að lokum kynntum við okkur málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar sem verður haldið á miðvikudaginn í Loftskeytasöðinni. Þar verður varpað ljósi á hlutverk hvala í vistkerfinu og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. María Theodóra Ólafsdóttir forstöðumaður Loftskeytastöðvarinnar og Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sögðu okkur frá því sem þar fer fram í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Ég elska þig í akkorði / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Neil Sedaka, texti Ómar Ragnarsson) Rogastans /Brek (Jóhann Helgi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson, texti Jóhann Helgi Benediktsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Breaking up is hard to do / Neil Sedaka (Neil Sedaka & Greenfield) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Bergur Þór Ingólfsson frá LA, hvað er Hoobla? og lesandinn Sigrún Tinna Sveinsdóttir 21 Sep 2026

Við héldum áfram yfirferð okkur um leiksvið landsins, hvað verður á fjölum þeirra þennan leikvetur. Nú var komið að Leikfélagi Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri kom til okkar og fór með okkur yfir það sem er framundan hjá þeim, meðal annars 120 ára afmælissýning samkomuhússins, þar sem LA hefur verið til húsa og óteljandi sýningar hafa verið settar upp í og margt fleira. Við kynntumst svo fyrirtæki sem heitir Hoobla, en það er vettvangur þar sem fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hafa aðgang að neti sérfræðinga, stjórnenda og ráðgjafa til að ráða í tímabundin verkefni, sem sagt eins konar umboðsskrifstofa fyrir fagfólk sem kýs að vinna í því sem hefur verið kallað gigg vinnumarkaðurinn eða hagkerfið. Hoobla er fimm ára um þessar mundir og stofnandi þess, Harpa Magnúsdóttir sagði okkur aðeins betur frá því. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Tinna Sveinsdóttir, sem var í beinu sambandi frá Nýju Delí á Indlandi, en hún vinnur fyrir utanríkisþjónustuna þar. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Shuka Saptati, Seventy Tales of the Parrot, höfundur óþekktur Saga af svartri geit e. Perumal Murugan Shattered Lands: Five partitions and the making of modern Asia e. Sam Dalrymple Ráðuneyti æðstu hamingju e. Arundhati Roy A Fine Balance e. Rohinton Mistry Tónlist í þættinum: Jambalaya / Carpenters (Hank Williams) Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Entre Amigos / Stan Getz og Big band Bossa Nova (Gary Mcfarland)

María Reyndal föstudagsgestur og húsráð frá 1966 í matarspjallinu 18 Sep 2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var María Reyndal leikstjóri og handritshöfundur. Annað kvöld verður leikritið Svikasögur frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins en María samdi og leikstýrir verkinu. Við fórum með henni aftur í tímann, þegar höfundurinn og leikstjórinn vöknuðu til lífs hjá henni ungri að árum, unglingsárin á níunda áratugnum, árin í London og margt fleira. Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti auðvitað á sínum stað í dag. Við rifjuðum upp skemmtileg, og stundum skrýtin, húsráð frá 1966 úr Eldhúsbókinni góðu. Sum af þeim standast tímans tönn en önnur ekki. Tónlist í þættinum: Einhvers staðar einhvern tíma aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Careless Whisper / George Michael (George Michael & Andrew Ridgeley) Rapper’s delight / The Sugarhill Gang (Nile Rodgers & Bernard Edwards) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ráðstefnan Töfrar tengslanna og Jónatan um Helga Pé 17 Sep 2026

Við fræddumst í þættinum í dag um ráðstefnuna Töfrar tengslanna, sem fór fram á vegum þekkingarseturs BUGL, Barna- og unglingageðdeildar, fyrr í mánuðinum. Mikilvægi tengsla fyrir vellíðan og þroska barna var yfirskrift ráðstefnunnar. BUGL hafði safnað saman fjölbreyttum erindum og fræðsluefni um líðan, þroska og velferð barna og ungmenna auk þess að ráðfæra sig við ungmennaráð, þar sem notendur þjónustunnar fengu að koma að sínum áherslum. Unnsteinn Jóhannsson, verkefnastjóri og ráðgjafi á BUGL og Daðey Albertsdóttir sálfræðingur sem flutti erindið „Ertu að tengja við unglinginn þinn?“ á ráðstefnunni, komu í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra íslenska tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Helga Pétursson, Helga Pé, sem lést í nóvember. Helgi stofnaði Ríó tríó ásamt þeim Ólafi Þórðarsyni og Halldóri Fannari árið 1965, en seinna átti Ágúst Atlason eftir að ganga til liðs við sveitina. Helgi spilaði á kontrabassa í sveitinni og söng. Jónatan fór betur yfir feril Helga í þættinum og við heyrðum tvö lög með honum. Tónlist í þættinum: Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Yr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson) Kvennaskólapía / Ríó tríó (Arlo Guthrie, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur (dulnefni f. Guðmund Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Örnefni á Íslandi, Geðveik mamma og vísindaspjallið um heilakrabbamein 16 Sep 2026

Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda, til að skoða rekja ferli örnefna í eynni. Birna fræddi okkur um örnefni í þættinum. Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Hera Guðmundsdóttir menningarmiðlari hefur gert þætti um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja eða segja ekki. Hera fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum. Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli og þá er hægt að nálgast í spilaranum á ruv.is en við fengum Heru Guðmundsdóttur til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum sem vekja vonir um lækningu á krabbameini í heila. Tónlist í þættinum: Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus-Tómas Guðmundsson) Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson) Von / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) Words / Bee Gees (Bee Gees) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari 15 Sep 2026

Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar 14 Sep 2026

Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt að segja að réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóð Emily Dickinson Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði Handmaid’s Tale e. Margret Atwood Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur Circe eftir Madeline Miller Tónlist í þættinum: Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk 11 Sep 2026

Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn. Tónlist í þættinum: Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson 10 Sep 2026

Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá. Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar. Tónlist í þættinum í dag: Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson) Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur 09 Sep 2026

Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig. Þorgrímur kom í þáttinn í dag. Í vikunni var áhugaverð frétt á ruv.is um að fundist hefði 255 ára skildingur sem náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson átti og hafði komið fyrir í vörðu af grjóti í Kvískerjum í Öræfum og Sveinn skrifaði í ferðabók sinni frá árinu 1794 að hann hefði einmitt komið téðum dönskum eirpeningi fyrir í vörðu. En í framhaldi af þessari frétt vildum við kynna okkur aðeins betur hver þessi maður, Sveinn Pálsson náttúrufræðingur var? Það vill svo skemmtilega til að væntanleg er sjö binda heildarútgáfa á verkum hans og Kristjan B. Jónasson bókmenntafræðingur er einn þeirra sem hefur unnið að útgáfu bókanna og hann kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um þennan stórmerkilega mann, ferðir hans um landið og hans ævistarf. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um leðurblökur og þann eiginleika þeirra að geta borið veirur í sér án þess þó að sýkjast sjálfar af þeim. Og það getur einmitt verið talsvert hættulegt fyrir okkur mannfólkið. Tónlist í þættinum í dag: Það vantar spýtur / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri 08 Sep 2026

Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir að það sé kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa að snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því að ná endum saman. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði þrátt fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Björn kom í þáttinn í dag ásamt Oddnýju Árnadóttur, framkvæmdastjóra LEB, og þau fóru yfir stöðuna með okkur. Flest okkar sem eru á vinnumarkaði þurfum að taka starfsmannaviðtöl við starfsfólk og/eða yfirmenn og flestir gera þetta reglulega, td einu sinni á ári. Það er hægt að fara á námskeið í að eiga árangursríkt starfsmannaviðtal. Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi er með hvorki meira né minna en þrjár gerðir af slíkum námskeiðum. Við heyrðum í henni í dag. Í lok þáttar tengdumst við við Ragnar Hólm Ragnarsson, þar sem hann var staddur í hljóðveri RÚV á Akureyri. En Ragnar stýrir Vatnslitahátíð Íslands sem hefst á Akureyri á fimmtudaginn, en þegar er uppselt á hana. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins, innlendum og erlendum, þar á meðal fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vantslitum. Ragnar sagði okkur betur frá vatnslitum og hátíðinni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) My Friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson, texti Jóhann Hjálmarsson, þýðandi Rúnar Júlíusson) When the Rain Has Gone / Unni Birna Björnsdóttir (Unnur Birna Björnsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Unnur Birna Björnsdóttir) Yes sir I can boogie / Baccara (Rolf Soja & Frank Dostal) Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar 07 Sep 2026

Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson Astrid Lindgren og fíllinn Babar Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins. Tónlist í þættinum í dag: Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson) Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR