Með á nótunum cover

Með á nótunum

Natalie Gunnarsdóttir

Hispurslaust hjal milli tveggja vina.

Hispurslaust hjal milli tveggja vina.

MeðánótunumXmasSpecial

0:00 0:00

Þættir

MeðánótunumXmasSpecial 12 Dec 2025

Eftir langa fjarveru var ýtt á rec til að fara aðeins yfir málin. Kemur í ljós að Stranger Things er sannsögulegt. (Mögulega). Komumst að því að það er mismikið ris á útvarpsstönginni hjá fólki. Ráð gefin til að halda lundinni léttri og svo er Óli Hjörtur farinn að drekka sérrí þannig að það má með sanni segja að við lifum á stórkostlegum tímum. 90 mínútur af bremsulausu hjali...

Með Á Nótunum nr 100 01 Oct 2024

Jæja, kæru Landsmenn. Season 4 af Með á Nótunum er hafið. Óli Hjörtur og Natalie verða með þér annan hvern þriðjudag á þessum bremsulausa bíl með góða skapið og góða gesti. Í þessum fyrsta þætti fengum við hana Brynju Skjaldar í kaffi til að fara yfir helstu fréttirnar og afmælisbörnin góðu. Verið Með á Nótunum í boði Bíó Paradísar í vetur.

Með Á Nótunum 99 21 May 2024

Velheppnaðir Rottweiler tónleikar voru um helgina og fórum yfir það. Möguleg nýjung fyrir djammið var fundin upp í leiðinni. Cannes kvikmyndahátíðinn er í fullum gangi og Demi Moore er að slá þar í gegn. Óvænt heilsuhorn þáttarins var mætt aftur farið yfir þau mál. Björk Guðmundsdóttir veldur usla með Dj setti en við höldum með okkar konu. Aðeins lítið brot af því sem farið var yfir að ógleymdum afmælisbörnum.

Með Á Nótunum 98 14 May 2024

Það var farið yfir Eurovision sem er nýafstaðin og má segja að hún hafi ekki vakið mikla lukku. Þáttastjórnendur tóku kosningarprófið. Mataræði og heilsa kom mikið við sögu og Mannanafnanefnd. Óvæntur alheimshittari varð til þökk sé Sylvester Stallone og Steve Buscemi fékk óvænt kjaftshögg og kvikmynda og þátta meðmælin eru á sínum stað. Þetta er aðeins lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum.

Með Á Nótunum 97 08 May 2024

Gerðum forsetakappræðunum góð skil og fórum yfir hvernig Ásdís Rán er að fjármagna sína baráttu. Laufey Lín var á Met Gala mögulega fyrst Íslendinga. Dóttir söngkonunnar úr Mamas & the Papas stígur fram og leiðréttir dánarorsök móður sinnar. Whoopie Goldberg er að gefa út ævisögu sína og Starfsmenn kvikmyndahátíðarinnar Cannes eru á leiðinni í verkfall. Þátta og kvikmyndameðmæli að ógleymdum afmælisbörnum.

Með Á Nótunum 96 01 May 2024

Britney Spears er komin í vandræði og stefnir í gjald og andlegt þrot. Spáð í spilin með forsetakosningarnar. Kanye West er að byrja í klámbransanum og eltihrellirinn úr Baby Reindeer þáttunum er allt annað en sátt. Bíó meðmæli og afmælisbörn vikunnar.

Með Á Nótunum 95 18 Apr 2024

Það var nóg um að vera í þessum þætti. Óli Hjörtur fór á Edduna og vann styttuna og sagði frá öllu sem fór þar fram sem og á bakvið tjöldin. Dj Margeir góðvinur þáttarins varð fyrir árás og reynt að keyra yfir hann og vinnnubrögð lögreglu eru allt annað en til fyrirmyndar. Courtney Love er að rífja kjaft og Það er komin bleik sósa á markaðinn. Þetta ásamt svo miklu fleiru.

Með Á Nótunum 94 09 Apr 2024

Stockfish hátíðinn er í fullum gangi og var fjallað myndina Love lies bleeding sem er m.a sýnd. Forsetaskosningar og nýjasta útspil Katrínar Jakobsdóttur var rætt og sitt sýnist hverjum. Það var spáð í spilin með nýjustu frambjóðendur til forseta. Tenerife er að breytast í Sin City. Lily Allen er á vondum stað og tekur það út á Beyonce. Þetta er lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum

Með Á Nótunum 93 02 Apr 2024

Það er búið að kæra P. Diddy og gera húsleit og virðist sem búið sé að opna frekar ógeðslega ormagryfju þar við fyrstu sýn. Farið var yfir fyrstu fréttir af því máli og spáð í spilin. Beyonce gaf út nýja plötu og er kúrekaþemað að koma sterkt inn hjá þáttastjórnendum. Lizzo er hætt í bransanum og Óli gefur matreiðsluráð.

Með Á Nótunum 92 26 Mar 2024

Það eru páskar á næsta leiti og farið var lauflétt yfir súkkulaði stemmninguna. Það er mikill hasar í forsetakosningum sem eru á næsta leiti og farið var yfir nokkra frambjóðendur. Mikið um skrýtnar fréttir úr dagbók lögreglunar og mikið Drama í Hamraborg. Hildur Lillendahl í hörku orðaskaki sem skildi Óla eftir orðalausan. Aðeins lítið brot afþví sem farið var yfir.

Með Á Nótunum 91 19 Mar 2024

Bílastæðavörður hrellir Hverfisgötuna og fór Óli Hjörtur yfir stöðuna þar sem hann er einn af fórnarlömbum málsins. Rottur að borða marijúana, Tekknó menning Berlínar borgar komin á minjaskrá ásamt fleiri furðufréttum.

Með Á Nótunum 90 12 Mar 2024

Mikil hitamál þessa vikuna. Eurovision & Wok On. Óskarinn og sögur úr persónulega sarpinum.

Með Á Nótunum 89 27 Feb 2024

Þýsk Kvikmyndarhátíð stendur yfir í Bíó Paradís og fórum aðeins yfir þá veislu. Íslendingar eru að missa það á Spáni og í háloftunum, sem og á Þorrablótum. Hollywood slúðrið er á sínum stað og mjög vafasamar greinar um þáttarstjórnendur komu upp á yfirborðið. Að ógleymdum afmælisbörnum.

Með Á Nótunum 88 13 Feb 2024

Það var mikið um að vera í þessum þætti. Óli er nýkominn frá Spáni og var með Spánarsögur. Superbowl keppnin nýafstaðin og "the Taylor Swift effect" lét ekki á sér standa þar. Hollywood slúðrið er á sýnum og stað ásamt sögum úr persónulega sarpinum. Ásamt afmælisbörnunum

Með Á Nótunum 87 30 Jan 2024

Eurovision er að ganga í garð og þar er allt vitlaust. Nýjir þættir um Griseldu Blanco valda usla hjá fjölskyldumeðlimum. Reese Witherspoon styrkir ónæmiskerfið og veldur líka usla. Sem sagt mikill usli í þessum þætti svo ekki sé meira sagt. Að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með Á Nótunum 86 15 Jan 2024

Það var nóg um að vera í þessum þætti. Eldgos og forsetakosningar. Hollywood slúður og fórum yfir sigurvegara á Golden Globes hátíðinni. Óvenjuleg tenging er inn í dönsku konungsfjöldskylduna og þátturinn er með skúbb þar á ferð. Frönsk kvikmyndahátíð er á næsta leiti og fórum yfir hvað verður í boði þar ásamt mörgu fleiru.

Með Á Nótunum 85-Jóla 29 Dec 2023

Í þessum síðasta þætti ársins svífur jólandinn yfir vötnum og farið yfir hátíðina og hin ýmsu mál sem henni viðkemur. Mjög skrýtin rannsókn var gerð og virðist vera sem ákveðin tegund af slysi virðist eiga sér stað oftar yfir hátíðarnar. Óli fór í viðtal sem neytandi vikunnar og laug til um aldur en er með mjög góðar ábendingar þar. Að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með Á Nótunum 84 12 Dec 2023

Skoðanaglaði laxabóndinn Ólöf Skaftadóttir kom í þáttinn og það var farið yfir víðan völl.

Með Á Nótunum 83 05 Dec 2023

Það var farið yfir gamlar djamm sögur og það sem var ósagt í Tjútt þáttunum og nóg er til í þeim sarpi. Nýju tónleika myndinni Renaissance með Beyonce voru gerð góð skil að ógleymdum afmælisbörnum

Með Á Nótunum 82 29 Nov 2023

Það var farið yfir fréttir vikunnar og það má með sanni segja að það hafi verið nóg um að vera. Það kom ýmislegt í ljós þegar var farið yfir síðasta Tjútt þátt og nokkrar gamlar vafasamar sögur komu í ljós. Óli varpaði ljósi á fortíð sína sem Templari. Ölvuna þingkonu vekur upp spurningar og fóru þáttarstjórendur ofan í saumana á því máli. Hollywood slúðrið er á sínum stað að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með Á Nótunum 81 21 Nov 2023

Helgin var gerð upp og var farið yfir Gus Gus húllumhæið. Tjútt þættirnir voru ræddir enda er Óli viðmælandi og fá hlustendur að heyra sögur sem eru ekki birtingarhæfar fyrir sjónvarp. P Diddy er canceled og Andre 3000 er byrjaður að spila á flautu. Snopp Dog var með auglýsingarbrellu sem kom heldur betur aðdáendum hans í opna skjöldu ásamt fleiri sögum úr sarpinum.

Með Á Nótunum 80 16 Nov 2023

Það var nóg um að vera í þessum þætti. Mögulegt eldgos á leiðinni og þátturinn sendir risa ljós til Grindavíkur. Það á að gera söngleik úr skíðaharmleik Gwyneth Paltrow. Mögulega slys útaf fyrir sig. Eru Kevin Costner og Reese Witherspoon byrjuð saman? Will Smith gómaður á sófanum með rassinn úti og er Ameríka að breytast í bæinn Footloose? Þessum spurningum ásamt fleirum verður svarað í þættinum að ógleymdum afmælisbörnum.

Með Á Nótunum 79 07 Nov 2023

Það var nóg um að vera í fréttum vikunnar. Kvikmyndahátíð barnanna er nýafstaðin í Bíó Paradís. Mótmæli í borginni og sykurát. Er gos á næsta leiti? Hvað verður um Bláa lónið? Óli var vændur um afglöp í starfi sem barnapía í útvarpsþætti. Leikverk um Heiðar snyrti veldur usla . Goldie Hawn hitti geimverur ásamt sögum úr persónulegum sarpinum.

Með Á Nótunum 78 31 Oct 2023

Matthew Perry er látinn og skilur eftir sig stórt skarð. Það er mögulegt framhald á myndinni Bodyguard og þættinum stendur ekki á sama. Fjallað er um hinar ýmsu myndir sem þættinum finnst áugaverðar og Óli er með slúður af setti. Aðeins lítið brot af því sem fjallað var um

Með Á Nótunum 77 24 Oct 2023

Stór dagur hjá konum í dag. Kvennaverkfall og ævisaga Britney Spears kom út á sama tíma. Óli og Natalie fóru í bíó að sjá tónleikamynd með Talking Heads og var farið yfir það. Það er ýmislegt forvitnilegt sem kemur fram í nýju bókinni hennar Britney sem var fjallað um. Leikaraverkfall í Hollywood hefur óvænt áhrif á búningaval leikara í ár og fólk virðist vera að skilja í laumi. Adele er búin að setja tappann í flöskuna og Ásdís Rán ætlar að rústa ungfrú Ísland. Upptaka fór fram í Bíó Paradís heimili kvikmyndanna.

Með Á Nótunum 76 17 Oct 2023

Friðrik Þór er kominn á snúruna, botnlausir brönsar eru komnir úr böndunum og ný ævisaga Jada Pinket Smith er að valda usla. Þetta er lítið brot af því sem farið var yfir að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með Á Nótunum 75 10 Oct 2023

Það var allt vitlaust í fréttum vikunnar Bjarni Ben segir af sér. Það er allt brjálað í laugardalnum útaf jólaskrautinu. Íbúar í borginni eru ekki sáttir með bílastæðamálin og fólkið skiptist í fylkingar. Hollywood slúðrið er á sínum stað ásamt afmælisbörnunum.

Með Á Nótunum 74 06 Oct 2023

Það var nóg um að vera í þættinum. Óli Hjörtur hélt upp á afmælið sitt og Natalie fór á Stjórnar ball sem tók óvæntan snúning. Hvað verður um Íslenska laxinn og er gervigreindan að fara að taka yfir. Hollywood slúðrið er á sínum stað ásamt sögum úr persónulega sarpinum.

Með á Nótunum 73 26 Sep 2023

Það var farið yfir mörg mál í þessum þætti. Natalie horfði á þáttarseríu sem fór ekki alveg eins og átti að fara. Mikið drama í kringum American Horror story. Íslenskt boy band drama er í gangi. Alica Keys er komin með te línu. Svo voru draugasögur ræddar úr persónulega sarpinum. Aðeins lítið brot að ógleymdum afmælisbörnum.

Með á Nótunum 72 19 Sep 2023

Tilkynning á nýju kyni veldur usla í bænum. Russel Brand er vægast sagt í vondum málum eftir að hann hefur verið ákærður um alvarlegt kynferðisofbeldi á konum. Halle Berry er brjáluð út í Drake of leikarar í Hollywood koma starfsfólki í verkfalli til hjálpar. Aðeins lítið brot af því sem fjallað var um að ógleymdum afmælisbörnunum.

MÁN 71 12 Sep 2023

Krakkarnir eru komnir tilbaka úr sumarfríi og ekki vantar hitamálin. Fórum yfir bakslagið sem er að eiga sér stað í hinsegin baráttunni í þjóðfélaginu í dag. Óli fór á Burning man á sínum tíma og sagði frá þeirri svaðilför. Natalie og Óli sögðu sögur úr persónulega sarpinum. Beðmál í borginni og bareignir í Hollywood var rætt. Stephen King hlustar á mjög skrýtið lag á meðan hann skrifar sínar bækur sem endaði næstum með hjónaskilnaði. Þetta er lítið brot af því sem var rætt í þættinum.

Með Á Nótunum 70 25 May 2023

Stór og erfið tíðindi bárust heiminum þegar Tina Turner féll frá og gerði þátturinn hennar lífi góð skil sem og sendi stærsta ljósið. Oprah er mögulega að fara á þing og Hugleikur veldur usla í sænsku raunveruleikasjónvarpi. Leonice er með comeback og Charlize Theron er mögulega á leið í slag. Þetta er brot af því sem fjallað var um í þættinum. Þátturinn óskar landsmönnum gleðilegu sumri og sjáumst í haust.

Með Á Nótunum 69 15 May 2023

Eins og venjulega er að mikið að frétta og mörg hitamál sem farið var yfir. Eurovision keppnin er nýafstaðin og farið var yfir hvað gekk á þar. Það eru mikið drama hjá Hollywood stjörnunum og elsku Britney á ekki sjö dagana sæla. Það var vínabrauðslaust á Sauðarkróknum um helgina og Róbert Deniro var að verða pabbi 79 ára gamall. Lítið brot af því sem fjallað var um að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með Á nótunum 68 08 May 2023

Það voru ófáar djamm sögur úr sarpinum að þessu sinni og vonum að börn undir 16 ára hlusti ekki á þennan þátt og biðlum hér með til foreldra að gæta varúðar ef börn eru nærri. Fréttir vikunnar voru allskonar og í skrýtnari kanntinum en svona er bara lífið. Verði ykkur að góðu!

Með Á Nótunum 65 17 Apr 2023

Að þessu sinni voru engir gestir í settinu heldur bara gamla tvennan. Páskadjamminu voru gerð góð skil. Mikið var um sögur úr sarpinum enda á nóg að taka. Fjölluðum um dularfulla sakamálið sem skekur Suðurlandið þessa dagana. Óvænt neytendahorn kom upp úr spjallinu og var mikið um góð hot tips. Hollywood slúðrið er á sínum stað svo fátt eitt sé nefnt.

MÁN 64 - Lovísa 03 Apr 2023

Í þessum þætti buðum við upp á ákveðna áfallahjálp, en við fengum fráfarandi fréttastjóra Fréttablaðsins Lovísu Arnardóttur. Við fórum ofan í saumana á hvað gekk á bakvið tjöldin þegar blaðinu var skyndilega hætt. Við ræddum fréttir vikunnar og gerðum upp Stockfish kvikmyndahátíðina. Það er sjóðheitt slúður í þættinum og þáttastjórnendur afsala sér allri ábyrgð á því. Aðeins lítið brot af því sem fjallað var um.

MÁN-59-Svenni 20 Feb 2023

Að þessu sinni var með okkur í settinu Sveinn Rúnar Einarsson sem er landskunnur barþjónn og nú starfandi í kvikmyndagerð. Hann sagði okkur sögur af settinu í True Detective 4 sem er í tökum núna ásamt því að fara yfir hitamál vikunnar. Fórum yfir átök Sigríðar Andersen og Samtakana 78, Euróvision undankeppnina og ástir eldri borgara svo eitthvað sé nefnt. Kvikmyndaumfjöllunin er á sýnum stað að ógleymdum afmælisbörnunum.

MÁN 58 - ALLY 13 Feb 2023

Við fengum til okkar góðan liðsauka þessa vikuna og það er engin önnur en gleðigjafinn og stuðpinninn Aðalheiður Sveinsdóttur betur þekkt sem Allý. Við fórum yfir fréttir vikunnar og það var ekki lognmolla þar frekar en fyrri daginn. Ally var með mikið af innlendu og erlendu skúbbi og það var vægast sagt farið vel yfir málin í þessum þætti.

MÁN 57 - Ellen Lofts 06 Feb 2023

Að þessu sinni fengum við stjörnu stílistann Ellen Lofts til að fara yfir fréttir vikunnar. Ellen sagði okkur frá stílista lífinu og fengum að skyggnast bakvið tjöldin þar. Það var ýmislegt rætt og ýmsar bransasögur rifjaðar upp ásamt Hollywood slúðrinu. Það var mikið rætt og mikið hlegið.

Með á nótunum 51 12 Apr 2022

Það vantaði ekki umræðuefnin í þessum þætti. Óli mætti með óvænta tilkynningu sem kom vægast sagt mikið á óvart. Natalie kom líka með tilkynningu í þessum þætti. Britney Spears er ólétt og Kanye ætlar loksins að leyta sér hjálpar. Rifjuðum upp gamlar bransasögur og ekki má gleymast páskadjammið. Þetta er aðeins lítið brot af því sem fór í gegnum hakkavélina.

Með á nótunum 50 05 Apr 2022

Pólitískur skandall og skítastormur átti sér stað síðasliðna helgi þar sem ráðherra Framsóknar var með rasískt orðbragð. Þáttarstjórnendur fengu ofbirtu í augun af gaslýsingum Framsóknarmanna en skelltu upp sólgleraugunum og fjölluðu um málið. Hollywood slúðrið á sínum stað og sögur úr persónulega sarpinum.

Með á nótunum 42 19 Dec 2021

Síðasti þáttur fyrir jól og er á jólalegri nótunum. Löggan er komin á Twitter og djammið er að ganga af göflunum. Kemur í ljós að Sex in the City stjarna er ógeð en Dolly Parton og Mariah Carey eru að setja hvert metið á fætur öðru. Aðeins lítið brot af því sem fjallað var um. Gleðileg jól :)

Með á nótunum 38 23 Nov 2021

Það var farið yfir fréttir vikunnar að venju og af nógu er að taka. Drama innanlands og drama vestanhafs að ógleymdum afmælisbörnunum. Ekkert nema hispurslaust hjal milli tveggja vina.

Með á nótunum 37 Lolla 16 Nov 2021

Að þessu sinni fengum við góðan gest en erfiðan hana Ólöfu Skaftadóttir. Farið var yfir miserfið mál en nauðsynleg. Að ógleymdum afmælisbörnunum.

Með á nótunum 36-Svenni 07 Nov 2021

Í þessum þætti fengum við góðan gest og vin okkar Svein Rúnar Einarsson aka Svenni sem er þjónn og annar stjórnandi þáttarins Fyrsta Blikið. Gamlar sögur voru rifjaðar upp ásamt því að fara yfir fréttir vikunnar. Vægast sagt hispurslaust hjal.

Meðánótunum nr 30 31 May 2021

Síðasti þátturinn í bili og fórum yfir fréttir vikunnar innanlands og vestahafs. Hlaupahljólinn eru að leika landann grátt. Kim Kardashian er í hot water. Kristinlegur megrunarráðgjafi ferst í flugslysi og sendum risaljós en könnuðum aðeins hvað felst í því starfi. Óli horfði á friends rejúníonið og sagði frá hvernig það shit show fór fram. Þetta og svo margt margt fleira. Gleðilegt sumar gæs!

Meðánótunum nr 27 10 May 2021

Farið var í fréttir vikunnar og eru þær óvenju erfiðar í þetta skiptið. Matthew Perry er í hot water. Það er komin ástæða fyrir þyngdaraukningu Mark Wahlberg og Crocs eru með staðfest comeback. Óli upplýsir þáttinn um þegar hann gerði garðin frægan með Spice Girls dragshow-i og í kjölfarið spruttu fram mjög líflegar umræður og upp komu allskyns mál og uppljóstranir. Til að komast að því hver þau eru er bara ein leið. Ýta á play

Meðánótunum nr 20 15 Mar 2021

Farið var yfir fréttir vikunnar og var meðal annars farið yfir tímamótaviðtalið hennar Opruh við Meghan og Harry. Jói Fel stígur inn í myndlistarheiminn og veldur usla. Susan Sarandon er farin að deita en hún er með kröfur. Kayne er búinn að blokka Kim en ekki er allt með feldu þar á bæ. Weekend er brjálaður út í Grammy verðlaunin og Natalie er að stíga inn í deit menninguna og möguleikunum þar á bæ er velt fyrir sér. Aðeins lítið brot úr þessari hispurslausu hakkavél.

Með á nótunum 18 01 Mar 2021

Þættinum barst uppdate frá réttindarbaráttu samkynhneigðra í Færeyjum. Fréttayfirlit vikunnar er á sínum stað Lionel Richie komin með nýja kærustu og hvað eru 40 ár til og frá. Það kom skjálfti í beinni sem hristi vel upp í krökkunum, #skjálftavaktinn. Framing Britney er mál málanna og farið var aðeins yfir inntak hennar. Óli segir frá því þegar hann hitti Crystal Waters og fékk áritun og Natalie sagði frá því þegar hún fékk óvænta gjöf frá Patty Smith. Aðeins lítið brot af því sem um var rætt.

Með á nótunum númer 17 22 Feb 2021

Það er mikið um óvæntar uppljóstranir í þessum þætti. Óli Hjörtur fór á djammið um helgina og gaf skýrslu. Natalie upplýsir óvæntar upplýsingar um hljómsveitina ABBA og áhrif þeirra á heiminn og hvernig Björk okkar Guðmundsdóttir reyndi að stíga inní mál Britney Spears árið 2007. Aðeins lítið brot af því sem koma skal. Eina leiðin til að vera með á nótunum er að ýta á play.