Mín skoðun
Valtýr Björn
Mín skoðun með Valtý Birni
Mín skoðun með Valtý Birni
X977 - Mín skoðun - 46.þáttur. 13112026
Þættir
Heil og sæl. Það gengur á ýmsu í þættinum föstudaginn 13.nóvember. Ég heyri í Gumma Ben sem er staddur útí Búlgaríu en Ísland mætir heimamönnum í kvöld í Þjóðadeildinni. Ég opnaði fyrir símann, 5120977, og svo var það Kristinn Kjærnested fótbolta sérfræðingur sem var á línunni um boltann hér heima og erlendis. Takk fyrir að hlusta og takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Ég verð í beinu sambandi á Þróttarvöllinn þar sem Andri Már Eggertsson (Nablinn) er á leik Íslands og Grikklands U21 árs liða.Við spáum í leikina í Bónusdeildinni með Benna Guðmunds og Svanhvíti Valtýs og svo heyri ég í Theódór Inga Pálmasyni um Olísdeildina í handbolta. Sem sagt mikið fjör. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í dag kemur Heimir Guðjónsson nýráðinn þjálfari ÍA í heimsókn. Við förum um víðan völl og hringjum í beinni í Eggert Herbertsson formann ÍA. Þá hringi ég í Sigmund Má Herbertsson körfuboltadómara en hann hefur afrekað það að dæma 2.500 körfuboltaleiki sem er ótrúlegt afrek. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í dag kemur Þórhallur Dan í heimsókn og við tölum um íslenska þjálfarakapalinn, Man.United, íslenska landsliðið og margt fleira. Þá hringi ég á Sauðárkrók og heyri í Arnari Guðjónssyni þjálfara Tindastóls en þeir eru að fara í tvo hörku evrópuleiki á næstu dögum. Við tölum einnig um deildina hér heima og margt fleira. Takk fyrir að hlusta og takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í dag er Haraldur Hróðmarsson fótboltaþjálfari í heimsókn. Við tölum um enska boltann, norska boltann og aðeins um þann íslenska ásamt því að Haraldur ljóstrar því upp hvar hann er að fara að þjálfa. Þá hringi ég í Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara í handbolta og við tölum um landsliðið okkar og framhaldið þar á bæ. Takk fyrir að hlusta og takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag heyri í Þórahlli Dan. Við tölum um íslenska þjálfarakapalinn, U21 árs liðið, enska boltann og margt fleira. Þá heyri ég í Jakobi Erni Sigurðarsyni þjálfara KR í körfubolta en hans menn eru búnir að vinna alla sína leiki í Bónsudeildinni. Að lokum er það svo Jökull Elísabetarson sem er nýráðinn sem þjálfari Breiðabliks í Bestu deild karla. Njótið og takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Í þætti dagsins heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við förum ítarlega yfir leiki kvöldsins og umferðarinnar í Bónsudeildinni og margt fleira. Þá heyri ég í Einari Andra handboltagúrú og við förum yfir landsleikinn í gær þar sem Ísland vann 22 marka sigur á Úkraínu. Við tölum einnig um leikinn gegn Eistlandi á sunnudag. Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.
Í þætti dagsins eru þrír viðmælendur. Einar Jónsson talar við um karlalandsliðið okkar sem leikur í kvöld gegn Úkraínu í undankeppni EM. Pétur Már Sigurðsson þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta er á línunni en það er mikil gleði í Grindavík enda hefur liðið unnið alla sína leiki. Mikki Nik eða Mikael Nikulásson knattspyrnusérfræðingur er á línunni um meistaradeildina og svo einnig um landsliðshópinn sem Arnar Gunnlaugsson var að tilkynna í dag. Takk LENGJAN og POULSEN fyrir stuðninginn.
Í þætti dagsins kemur Þórhallur Dan í heimsókn. við förum um víðan völl, þjálfarakapallinn í fótboltanum hér heima, meistaradeildin, og fréttir og slúður. Þá heyri ég í Einari Árna þjálfara Njvarð´vikur í Bónsudeild kvenna í körfubolta en Njarðvík tekur á móti toppliði Grindavíkur í kvöld. Takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í dag er Haraldur Hróðmarsson fyrrum þjálfari Egersunds í Noregi, gestur þáttarins. Við förum yfir norska boltann, og aðeins í enska boltann og ég spyr hann um hvort hann sé kominn með þjálfarastarf? Þá heyri ég í Kristjáni Einari Kristjánssyni Formúlu 1 gúrú og við tölum um hinn ótrúlega ítala, Andrea 'Kimi' Antonelli sem varð heimsmeistari í gær aðeins tvítugur. Takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðning ykkar.
Heil og sæl. Í dag er mikið fjör að vanda. Þórhallur Dan kemur í heimsókn. Við förum yfir þjálfarakapalin, Amic Cosic, tippum á enska boltann og Auddi Blö kemur aðeins við sögu. Þá heyri ég í Benna Guðmunds körfuboltagúrú og við förum yfir leiki gærkvöldsins í Bónsudeild karla og spáum í leiki kvöldsins. Takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í dag hringi ég í Finn Frey Stefánsson afmælisbarn dagsins og ég ræði við hann um Bónusdeildina í körfubolta og margt fleira. Hjörtur Hjartarson íþróttafréttamaður, og sagnaritari er á línunni vegna útgáfu bókarinnar, Harðjaxlinn ljúfi, sem er um skagamanninn Ólaf Þórðarson. Að lokum hringi ég í höfuðstöðvar ÍA og heyri í Eggerti Herbergssyni formanni knattspyrnudeild ÍA en þeir réðu í dag Heimi Guðjónsson sem næsta þjálfara meistaraflokks karla. Takk LENGJAN og POULSEN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Einari Jónssyni handboltagúrú og við förum yfir gang mála í Olísdeildinni sem og í meistaradeildinni. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni og spurning er hvernig er staðan fyrir norðan eftir fall úr Bestu deildinni? Loks er Rikki G í spjalli um Ballon D'Or og ég spyr hann Manchester United og ástandið þar á bæ. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins byrja ég á að hringja til Færeyja í Sigurð Ragnar Eyjólfsson þjálfara NSI Runavik en hann stýrði liðinu til sigurs í deildinni um helgina. Þá hringi ég norður til Akureyrar í Sigurð Heiðar Höskuldsson þjálfara Þórs en hans menn héldu sér uppi í Bestu deildinni á kostnað KA. Takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Þáttur dagsins er tileinkaður Bestu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Arnar Páll Garðarsson og Kristinn Kjærnested fara yfir tímabilið. Velja bestu leikmenn, mestu vonbrigðin, besta þjálfarann og margt margt fleira í þeim dúr. Takk POULSEN og LENGJAN fyrir stuðninginn.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru Benedikt Guðmundsson og Svanhvít Valtýs á línunni en við spáum í spilin fyrir þriðju umferð Bónsudeildar karla í körfubolta. Margir athyglsiverðir leikri á dagskrá. Þá heyri ég í Einari Jónssyni handboltaþjálfara en við tölum um Olísdeild karla, kvennalandsliðið og svo meistaradeildina ásamt fleiru. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Einari Árna þjálfara kvennaliðs Njarðvíkur í Bónusdeildinni í körfubolta. Því næst hringi ég upp á skaga í Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar ÍA en þeir voru að fá skammarbréf frá mótanefnd KSÍ. Að lokum hringi ég síðan til Akureyrar í Þórodd Hjaltalín formann dómaranefndar KSÍ og spyr hann meðal annars að því hvort VAR sé á leiðinni í íslenska boltann. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í dag er Þórhallur Dan í heimsókn og við förum yfir margt og mikið, Bestu deildinrnar, Meistaradeildina, agamál í landsliðinu og margt margt fleira. Þá heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú um ófarir Grindavíkur í bikarnum í gær gegn 1.deildar liði Breiðabliks. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag hringi ég til Þýskalands og heyri í landsliðsfyrirliðanum í handbolta, Ómari Inga Magnússyni leikmanni Magdeburg. Við tölum um landsliðið og væntingar þar á bæ, Magdeburg, leikjaálag og margt fleira. Ian David Jeffs þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta er á línunni en Breiðablik getur í dag orðið Íslandsmeistari þegar liðið mætir Stjörnunni. Þá hringi ég í Guðmund Torfason formann knattspyrnudeildar Fram en í kvöld mætast Fram og ÍA og verða leikmenn Fram í sérstaklega hönnuðum treyjum til styrktar PÍETA-samtökunum. Takk POULSEN og LENGJAN.
Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan Jóhannssyni og við tölum um íslenska boltann og fleira. Kristinn Kjærnested er svo á línunni um enska boltann, landsliðið okkar og agamál þar á bæ ásamt fleiru. Loks heyri ég í Einari Jónssyni handboltaþjálfara en Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi í dag 20 leikmenn til þátttöku gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM en leikirnir fara fram í byrjun nóvember. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag eru þrír viðmælendur. Guðmundur Kristjánsson fótboltakappi sem nýlega tiklynnti um að hann væri hættur í fótbolta vegna hjartagalla verðu í fyrsta viðtali dagsins. Þá heyri ég í Einari Jónssyni handboltagúrú um leikina framundan í handboltanum hér heima og síðst er svo Benedikt Guðmundsson körfuboltagúrú sem spjallar við mig um körfuboltann í Bónusdeild karla. Takk LENGJAN og POULSEN
Í þætti dagsins heyri ég í Herði Unnsteinssyni körfuboltagúrú og við ræðum um Bónusdeild kvenna og framtíðina í íslenskum kvennakörfubolta ásamt fleiru. Þorsteinn Halldórsson þjálfari kvennalandsliðsins okkar í knattspyrnu kemur svo í heimsókn og við ræðum nútíðina, framtíðina, hann og framhaldið með landsliðið og margt margt fleira. Þá var einn hlustandi sem vildi endilega tjá sig um Norður-Írsku deildina í fótbolta. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins spjalla ég við Róbert Gunnarsson aðstoðarþjálfara Vals í handbolta karla en Valur mætir ungverska liðinu Tatabanya í Evrópudeildinni í kvöld. Þórhallur Dan mætir svo og við förum yfir gang mála í Bestu deildinni, tölum um Ísland-Króatíu í umspili HM kvenna og förum svo yfir agabrotin í íslenska karlalandsliðinu. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag eru síðustu tveir aðilarnir að spá fyrir um gengi liðanna í Bónusdeild karla á leiktiðinni, þetta eru Svanhvít Valtýs og Benedikt Guðmundsson. Þá heyri ég líka í Einar Jónssyni handboltagúrú og við tölum um bikarkeppnina, Olísdeild kvenna og meistaradeildina ásamt einhverju fleiru. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í dag er mikil landsliðs umræða eftir leikinn gegn Eistlandi í gær. Kjartan Atli, Lárus Orri, Kári Árna, Arnar Gunnlaugsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru í viðtali eftir leikinn. Þá mæta í beina útsendingu körfuboltagúrúarnir Tommi Steindórs og Stefán Árni Pálsson en Bónusdeild karla hefst á morgun. Þeir félagar raða liðunum niður í sæti. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera að vanda. Aron Guðmundsson er í beinni frá Tallin í Eistlandi þar og hitar upp fyrir leikinn í Þjóðadeildinni sem er í kvöld. Aron Pálmarsson þjálfari FH er á línunni en FH mætir Limoges frá Frakklandi í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld og verður leikið í Kaplakrika. Arnar Páll Garðarsson sérfræðingur í kvennafótboltanum hér heima spjallar við mig um Val og Víking sem féllu úr Bestu deild kvenna um síðustu helgi og Teitur Örlygsson körfuboltagoðsögn spáir svo í spilin fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag kemur Þórhallur Dan í heimsókn og við förum yfir landsleikinn gegn Búlgaríu og einnig um leikinn á morgun og svo förum við yfir helstu úrslit annarra leikja í Þjóðadeildinni. Þá heyri ég Einari Jónssyni handboltaþjálfara og við förum yfir gang mála á þeim bænum og Einar svarar því hvernig Fram fór að því að tapa með 18 marka mun fyrir Aftureldingu. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kjærnested og við förum yfir gang mála í Manchester City málinu, Ronaldo, tölum íslenska landsliðið og margt margt fleira. Arnar Páll Garðarsson er svo á línunni um Bestu deild kvenna en í dag skýrist það hvaða tvö lið falla í Lengjudeildina. Valur, Víkingur og Þór/KA eru að berjast og þá verður einnig leikið í efri hlutanum á sunnudag. Í lok þáttar gaf ég síðan í beinni útsendingu, miða á Ísland-Búlgaría á morgun. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera að vanda. Einar Jónsson og Björgvin Páll Gústavsson ræða við mig um handboltann hér heima og í útlöndum. Einn helsti stuðningsmaður Manchester City á Íslandi, Magnús Ingvarsson, er svo á línunni um stöðu City. Verður félagið dæmt niður um deild eða deildir eða er þetta allt bull og vitleysa. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. í dag heyri ég Eysteini Pétri Lárussyni framkvæmdastjóra KSÍ. Við tölum um verðlaunaafhendingar yngri flokka, nýjan Laugardalsvöll, þjóðsönginn og spyr afhverju leikir U21 árs liðsins eru alltaf klukkan 15 á deginum. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við tölum um sigurleikinn gegn Luxembourg í gær og fleira til. Að lokum gaf ég þremur heppnum hlustendum miða á landsleikinn á laugardag. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Óskari Bjarna Óskarssyni handboltagúrú og við tölum um evrópuleik Vals gegn danska liðinu Mors Thy sem er í kvöld og komum víðar við í handboltanum. Þá heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú um Bónusdeild kvenna sem hefst í kvöld og spáum í spilin. Þetta og ýmislegt fleira er í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag kemur Þórhallur Dan í heimsókn og við ræðum um A-landsliðið okkar í fótbolta og förum yfir málin þar á bæ. Er Arnar Gunnlaugsson kominn á endastöð? Við tölum einnig um U21 árs liðið okkar og svo förum við í gang mála í öðrum landsleikjum. Þá hringi ég til Spánar og heyri í Einar Andra handboltaþjálfara en FH er að fara að leika í evrópukeppninni gegn Bidasoa. Þetta og sitthvað fleira. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins er Kristinn Kjærnested á línunni og við tölum um Þjóðadeildina, íslenska landsliðið, Val og KR og fleira. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari NSI Runavik kemur svo í hljóðver og við tölum um hann og hans frábæra árangur í Fareyjum og ég spyr hvort hann verði áfram í Færeyjum. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins hringi ég til Noregs og spjalla við Frey Alexandersson þjálfara Rosenborg. Við ræðum um Noreg-Danmörk sem er í kvöld og leik Íslands og Eistlands ásamt ýmsu öðru. Þá er Einar Jónsson á línunni um handboltann en það er stórleikur í kvöld í Olísdeildinni, FH-Haukar. Þá gaf ég miða á landsleikinn en heppnir hlustendur hringdu í beina útsendingu á X977 í símann 5170977 og nældu sér í miða. Takk fyrir POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag er Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ í heimsókn og við förum yfir dæmgæsluna í sumar. Kemur VAR á næstu leiktíð? Afhverju eru ekki fleiri A dómarar í Bestu deild kvenna? Afhverju er meiri harka leyfð í dag og fleiri spurningar sem Þóroddur svarar. Þá heyri ég í Gunnar Birgissyni íþróttafréttamanni sem ræðir við mig um andstæðinga Breiðabliks og FH í evrópukeppni kvenna og svo var ég í gjafastuði og gaf miða a´landsleikinn á laugardag. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins er ítarlegt viðtal við Sölva Geir Ottesen þjálfara Íslandsmeistara Víkings. Við förum um víðan völl í þessu spjalli okkar. Þá heyri ég einnig í Ingvari Erni Ákasyni hjá KKÍ en í dag var dregið í 32-liða úrslit bikarkeppninnar. Við tölum einnig um nýja heimasíðu KKÍ og margt fleira. Takk fyrir að hlusta og takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Í dag eru Þórhallur Dan og Einar Jónsson gestir þáttarins. Við tölum um Bestu deild karla, Lengjudeildina, enska boltann, fyrirkomulagið í Bestu deildinni, Messi og svo handboltann hér heima þar sem Einar er mjög ósáttur með umfjöllun um sig í hlaðvarpsþætti. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.
Heil og sæl. Það er nóg um að vera í þætti dagsins. Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur í fótbolta kemur í heimsókn og við förum um víðan völl. Garpur Elísabetarson spjallar við mig um Bakgarðshlaupið sem hefst á morgun, laugardag og Bolli Már Bjarnason Þróttari og Kristján Gylfi Guðmundsson Fylkismaður koma í heimsókn og hita upp fyrir 100 milljón króna leikinn á Laugardalsvelli á morgun. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir viðmælendur. Baldur Sigurðsson og Kristinn Kjærnested fótboltagúrúar. Við veltum því upp hvort það eigi að fjölga liðum í Bestu karla og kvenna og hætta við þessa skiptingu. Landsliðsmálin, Lengjudeildin og margt margt fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir viðmælendur. Kristinn Kjærnested fótboltagúrú og Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA. Við tölum um valið á A-landsliði karla. Bestu deildina, á að fjölga í deildinni í 14 lið og 12 hjá konunum og í 14 í Lengjudeildinni? KA-Þór mætast í handbolta og fótbolta og allt er á hvolfi fyrir norðan. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir viðmælendur. Þórhallur Dan kemur í heimsókn og fer á kostum að vanda. Við tölum um Bestu deildina, Lengjudeildina, enska boltann, landsliðið og margt fleira. Síðan kemur Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks í heimsókn og svarar meðal annars fyrir gagnrýni Dagnýjar Brynjarsdóttur þar sem hún segir í viðtali á visi.is að aðbúnaði kvennafótboltans hér á landi hafi farið aftur á síðustu árum. Þetta og sitthvað fleira er í dag. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN fyrir ykkar stuðning.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir frábærir viðmælendur. Magnús Már Einarsson þjálfari karlaliðs Aftureldingar í knattspyrnu mætir og við förum um víðan völl skal ég nú segja ykkur. Þá kemur einnig í heimsókn Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta. Við tölum um Olísdeildirnar sem eru nýfarnar af stað á ný. Njótið og munið að símanúmerið í studiói Xins er 517-0977
Heil og sæl. Í þætti dagsins í beinni á Xinu 977 var nóg um að vera og bikarhelgin framundan í fótboltanum var aðalmálið. Haukur Guðberg Einarsson fyrrum formaður Grindavíkur og Bolli Már Bjarnason Þróttari og Köttari með meiru mættu í spjall um bikarúrslitaleik kvenna á milli Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar. Þá komu einnig í spjall Agnar Freyr Gunnarsson Aftureldingarmaður og Hilmar Jökull Breiðabliksmaður og ræddu um bikarúrslitaleik Aftureldingar og Breiðalbiks. Geggjað spjall við þessa aðila. Takk fyrir að hlusta og næsti þáttur er á mánudag. Takk Poulsen og Lengjan fyrir stuðninginn.
Í þessum fyrsta þætti af Mín skoðun á X-inu 977, eru þrír viðmælendur. Böddi Bergs, Gummi Ben og Einar Jónsson. Við tölum um fótbolta, handbolta, slúður, golf og allt milli himins og jarðar. Ég vil svo þakka Lengjunni og Poulsen innilega fyrir að vera samstarfsaðilar okkar. TAKK.
ENSKI BOLTINN-SPÁ. Í þætti dagsins spá fimm spekingar í spilin fyrir enska boltann á leiktíðinni sem nú er nýhafin. Böddi Bergs, Svanhvít Valtýs, Þórhallur Dan, Siggi Hlö og Kristinn Kjærnested eru spekingarnir og þau raða liðunum í sæti frá 1-20 ásamt rökstuðningi. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og Kristni Kjærnested. Við förum um víðan völl og tölum um Lengjudeildina, Bestu deildina, enska boltann, íslensku liðin í evrópukeppninni, fréttir og slúður og margt margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í þremur aðilum, Kristni Kjærnested, Einari Jónssyni og Þorkeli Mána Péturssyni. Við tölum um Bestu deildina, enska boltann, íslenka handboltann og Gianni Infantino forseta FIFA ásamt einhverju fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru Kristinn Kjærnested og Þórhallur Dan gestir. Við ræðum um HM í fótbolta, Bestu deildina og svo árangur íslensku liðanna í evrópukeppninni ásamt ýmsu fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er farið yfir gang mála hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta með Inga Þór körfuboltagúrú. Kristinn Kjærnested er svo á línunni og við tölum um HM í fótbolta, íslenska boltann og einnig aðeins um enska boltann ásamt því að tvær Krummasögur eru þættinum. Njótið og takk fyrir að hlusta.
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og viðð tölum um íslenska boltann sem og HM í fótbolta og fleira. Einar Jónsson er í spjalli um Meistaradeildina í handbolta og einnig um íslenska leikmannamarkaðinn og fleira. Að lokum tala ég við Úlfar Jónsson golf snilling og við förum yfir US Open sem hefst á morgun og þar verður Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal keppenda. Til hamingju með daginn íslendingar og takk fyrir að hlusta.