Poppsálin cover

Poppsálin

Poppsálin

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams

0:00 0:00

Þættir

Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams 09 Aug 2023

Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir? Hvað kom fyrir Robin Williams? Bruce Willis og heilabilunin, Frontotemporal dementia Robin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia

OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin 31 Jul 2023

Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD. Sérstök undirtegund þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og árangur þeirrar meðferðar.

Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi 21 Jul 2023

TW Rætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew Tate Stuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma.

Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð 13 Jul 2023

TW Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð Í þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar leiðir til að takast á við sjálfsskaða. Þessi þáttur getur verið erfiður fyrir einstaklinga sem eru að glíma við sjálfsskaða og hvet ég alla til að hafa samband við t.d. Hjálarsíma Rauða Krossins 1770, Píeta samtökin 552 2218 eða einhvern sem þú treystir.

Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown 05 Jul 2023

TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldi Í þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown. Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni

Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna 29 Jun 2023

Geta börn fæðst "vond"? Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn? Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas

Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu 21 Jun 2023

Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun.

Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna 14 Jun 2023

Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar. Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum.

Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið 07 Feb 2023

Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar.

Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun 29 Dec 2022

Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks.

Persónaleikaraskanir og undirflokkar 26 Oct 2022

Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira. Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí.

Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna? 26 Oct 2022

Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Þetta er gamall áskriftarþáttur en birtist hér í fullri lengd.

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum 26 Oct 2022

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum! Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur

Incels morðin 17 Oct 2022

Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist: "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun 17 Oct 2022

Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu? Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn tengist öðrum þætti sem nefnist: Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði? 17 Oct 2022

Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á Norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku. Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma. (Þetta er gamall þáttur sem áður var eingöngu í boði fyrir áskrifendur)

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilinu 08 Sep 2022

Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur. Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.

Y2K: Endurkoma 90s tískunnar og heróínlúkksins 09 Aug 2022

Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega). TW: Átraskanir Í þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19. Takk kærlega fyrir að hlusta elsku Poppsálar hlustendur. Ef þið hafið áhuga á fleiri þáttum þá má finna um 15 aukaþætti inni á Patreon.com

Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper 09 Aug 2022

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper.

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilum í Utah (Áskriftarþáttur) 09 Aug 2022

Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Fyrsta ástin: Ýktar tilfinningar, hormónar og ástarsorg. 07 Aug 2022

Í þessum þætti er fjallað um fyrstu ástina. Nýju og ýktu tilfinningarnar, fyrstu skrefin í heimi fullorðinna, hormónar, heilastarfsemi og ástarsorg. TW: Rætt er um tengsl ástarsorgar og sjálfsvíga.

Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Allur þátturinn) 04 Aug 2022

Hér er aukaþáttur sem áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon fengu í júlí. Þið fáið þáttinn í fullri lengd núna því Poppsálin er enn í smá sumarfríi ;) Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman.

Greiningar geðlækna á Anders Breivik (Áskriftarþáttur) 24 Jul 2022

Þessi þáttur tengist þættinum um hryðjuverkin í Útey. Hér er farið yfir skýrslur geðlækna og sálfræðinga um Anders Breivik, hryðjuverkamanninn sem drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Er Breivik geðveikur? Er hann ósakhæfur? Er hann bara vondur? Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Hryðjuverk í Útey - Ótrúleg frásögn Adrian Pracon 23 Jul 2022

11 ár eru frá hryðjuverkunum í Noregi þar sem Anders Breivík drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Í þessum þætti verður sögð ótrúleg saga eins eftirlifanda, Adrian Pracon. Hægt er að nálgast aukaþátt um hryðjuverkamanninn Anders Breivík á Patreon. https://www.patreon.com/Poppsalin

Ariana Grande: Eltihrellar, hryðjuverkaárás og menningarnám 17 Jul 2022

Í þessum þætti er farið yfir atburði og áföll í lífi söngkonunnar Ariana Grande. Stalkerar, hryðjuverkaárásin í Manchester, neikvæða umfjöllunin og menningarnám. Einnig er talað um sálfræðihugtökin parasocial relationship og PTSD eða áfallastreituröskun og CPTSD.

Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Áskriftarþáttur) 13 Jul 2022

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John Lennon, Mark Chapman. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

BDSM og sálfræðilegar pælingar 10 Jul 2022

Í þessum þætti segir Magnús Hákonarson, fyrrum formaður BDSM á Íslandi okkur allt sem við viljum vita um BDSM. Sálfræðilegar pælingar bak við BDSM verða viðraðar, spjallað er um muninn á kínki/blæti og BDSM og sú hugmynd að BDSM sé kynhneigð. Hægt er að nálgast fleiri Poppsálarþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Réttarsálfræðileg greining á Manson fjölskyldunni (Áskriftarþáttur) 04 Jul 2022

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræði greiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Charles Manson og Manson fjölskyldunni. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Réttarsálfræðileg greining á Ted Bundy og The Night Stalker 02 Jul 2022

ATH: Hljóðgæðin ekki 100% í þessum þætti (sumarfrí :) ) Í þessum þætti verður sagt frá gríðarlega áhugaverðum sálfræði greiningum nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á fjöldamorðingjunum Ted Bundy og The Night Stalker Hægt er að nálgast aukaþátt um efnið á Patreon.com

Loðbolta (Furry) samfélagið (Áskriftarþáttur) 27 Jun 2022

Í þessum þætti er fjallað um samfélag loðbolta. Þessi þáttur tengist þættinum um Kisumanninn Dennis Avner. Fjallað er um loðbolta samfélagið á Íslandi og ástæður og tilgang Furry samfélags . Einnig verður fjallað um rannsókn sem gerð hefur verið á tengingu Furries við kynhneigð eða kynlíf. Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Kisumaðurinn - Ranghugmyndir um sjálfið eða Delusional Misidentification 27 Jun 2022

ATH: Hljóðgæðin eru ekki 100% í þessum þætti Í þessum þætti verður fjallað um nokkrar áhugaverðar raskanir sem tengjast ranghugmyndum um sjálfan sig, annað fólk, staði og hluti. Sagt verður frá sögu Kisumannsins, Dennis Avner sem taldi sig vera tígrisdýr. Hann setti heimsmet í lýtaðgerðum og gjörbreytti líkama sínum til að líkjast tígrisdýri. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði? (Áskriftarþáttur) 21 Jun 2022

Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku. Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma. Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin Áskriftarhópurinn hefur verið að stækka undanfarið og langar mig að gefa aðeins í og bjóða upp á fleiri þætti fyrir áskrifendur. Þannig að hér kemur einn djúsí ;)

Manson fjölskyldan - LSD tilraunir og fjöldamorð 17 Jun 2022

Í þessum þætti er fjallað um glæpamanninn Charles Manson og hina þekktu Manson fjölskyldu eða költ . Fjallað er um líf Manson, frægu vinina, hópinn eða söfnuðinn sem safnaðist í kringum hann og morðin sem þau frömdu. Farið verður í sálfræðilegar pælingar í tengslum við hegðun og líf Charles Manson. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum (Áskriftarþáttur) 14 Jun 2022

Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin Áskriftarhópurinn hefur verið að stækka undanfarið og langar mig að gefa aðeins í og bjóða upp á fleiri þætti fyrir áskrifendur. Þannig að hér kemur einn djúsí ;) Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum! Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri.

Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun (Áskriftarþáttur) 11 Jun 2022

Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um ástina og ástarsorg. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu?

Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf 11 Jun 2022

Poppsálin fékk sálfræði snillinginn Sólrúnu Ósk í heimsókn til að ræða um ástina, ástarsorg, óendurgoldna ást og þann sársauka sem ástarsorg getur valdið. Af hverju er ástarsorgin svona sár? Hvað einkennir óendurgoldna ást? Er óendurgoldin ást ást eða eitthvað annað? Hvað gerist þegar við upplifum ástarsorg? Aukaþáttur um vísindalegar skýringar á því af hverju við löðumst að ákveðnu fólki má finna á Patreon: https://www.patreon.com/Poppsalin

Gummi lögga: Týndu börnin og vandinn við afglæpavæðingu vímuefna 06 Jun 2022

Í þessum þætti er spjallað við lögreglumanninn Guðmund Fylkisson eða Gumma löggu sem er hvað þekktastur fyrir að finna týnd börn og ungmenni. Við ræðum um starf hans og áhyggjur hans af þeirri hugmynd að afglæpavæða vímuefni. Hægt er að styrkja Poppsálina fyrir 5 evrur á mánuði og fá aukaþætti í kaupbæti :) https://www.patreon.com/Poppsalin

Hvernig verða fordómar til? 29 May 2022

Í þessum þætti er fjallað um áhugaverðar sálfræðilegar kenningar sem skýra myndun fordóma. Farið verður í nokkrar áhugaverða og sérkennilega rannsóknir á fordómum.

Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna? (Áskriftarþáttur) 27 May 2022

Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um einhverfu. Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Einhverfa: Rófið, kakan og Elon Musk 23 May 2022

Í þessum þætti verður farið ítarlega í einhverfu. Einnig fær saga Elon Musk að blandast inn í umfjöllunina. Fjallað verður um skynúrvinnslu, að stimma, að maska, ósýnilegu einkennin og fleira sem tengist einhverfu. Rætt verður um muninn á viðteknu hugmyndinni um einhverfurófið og nýlegri hugmyndum um einhverfu eins og einhverfuhringinn eða kökuna. Hægt er að styrkja Poppsálina og nálgast fleiri þætti inni á https://www.patreon.com/Poppsalin

Vímuefni: skaðaminnkun og reynslusaga Kristjáns Ernis 12 May 2022

Poppsálin spjallar við Kristján Erni sem hefur persónulega reynslu af þeirri refsistefnu/bannstefnu sem er við lýði í dag í tengslum við vímuefni. Rætt er um hans reynslu af vímuefnum, áföll, skaðaminnkunarsjónarhornið og neysluskammta. Kristján Ernir situr í starfshópi Heilbrigðismálaráðuneytis um afglæpavæðingu neysluskammta.

Skaðaminnkun og afglæpavæðing vímuefna (Halldóra Mogensen Pírati) 08 May 2022

Í þessum þætti er rætt við Halldóru Mogensen úr Pírötum. Rætt er um skaðaminnkun, afglæpavæðingu vímuefna og mögulegar afleiðingar þess. Halldóra útskýrir muninn á aflæpavæðingu og lögleiðingu. Við ræðum um fíknivanda, áföll og tengsl. Hvet ykkur til að hlusta! Mjög fróðlegt!

Súpermamman sem hvarf 02 May 2022

Þessi þáttur fjallar um mjög sérstakt mannhvarfsmál þar sem Sherri Papini súpermamma hverfur frá heimili sínu í Kaliforníu. Þetta mál er mjög spes og kemur á óvart! Einnig er fjallað um ýmsar sálfræðilegar hugmyndir í tengslum við hvarfið. Sálfræðilegu pælingarnar eru dýpkaðar í aukaþætti sem áskrifendur geta nálgast á www.patreon.com/poppsalin Hægt er að styrkja Poppsálina á Patreon og fá áhugaverða aukaþætti.

Embla Wigum: Förðunarlistakona og TikTok stjarna 02 May 2022

Smá aukaþáttur :) Stutt og skemmtilega höktandi viðtal við snillinginn Emblu Wigum. Embla er orðin algjör stjarna á TikTok og ekki af ástæðulausu. Hvet ykkur til að hlusta. Hvet ykkur líka til að fylgjast með Emblu á t.d TikTok eða Youtube og Instagram. https://www.tiktok.com/@emblawigum

Guðsríki er aðeins fyrir granna – Lystarstol í söfnuði megrunardrottningarinnar 25 Apr 2022

Í þessum þætti verður fjallað um ótrúlega sérkennilega og hættulega konu, Gwen Shamblin Lara sem hannaði megrunarprógram fyrir kristilega söfnuði. Megrunarprógrammið sló í gegn og hún stofnaði að lokum einhvers konar megrunar sértrúarsöfnuð. Fyrirsögn þessa þáttar er "stolin" frá dv.is

Orthorexia eða réttfæðisárátta (Áskriftarþáttur) 19 Apr 2022

Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um Diönu Ross. Vona þið hafið gagn af. Rétt er um frekar nýlega átröskum sem nefnist réttfæðisárátta eða orthorexia. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Diana Ross: Sérkennilegt "ástar"samband við Michael Jacksons og lystarstol meðal tónlistarfólks 19 Apr 2022

Í þessum þætti verður farið stuttlega yfir áhugaverða sögu Diönu Ross. Þetta er svolítill "bland í poka" þáttur. Sérkennilegt "ástar"samband hennar og Michael Jackson verður útlistað. Útlitsþrýstingurinn sem fylgir því að vera í skemmtanabransanum verður kannaður og farið verður í rannsóknir á átröskunum meðal tónlistarfólks. Hægt er að nálgast aukaþátt tengt nýrri tegund af átröskun sem nefnist Orthorexia með því að gerast áskrifandi af Poppsálinni hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Incels morðin (Patreon þáttur) 11 Apr 2022

Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Í þessum þætti verður fjallað áfram um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

"Motorway Twins" - Óhugnanleg saga sænsku tvíburanna á M6 hraðbrautinni 11 Apr 2022

Í maí árið 2008 fór af stað ótrúlega sérstök og óhugnanleg atburðarás. Tvíburasysturnar Sabina og Ursula frá Svíþjóð virtust missa vitið á sama tíma þar sem þær reyndu ítrekað að verða fyrir bílum á M6 hraðbrautinni í Bretlandi.

"Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf" 04 Apr 2022

Þetta er svakalegur þáttur!!! Hvað eru Incels? Hverjir eru þessir menn? Hvað einkennir þessa karlmenn? Eru þeir hættulegir? Þversögnin um "góða gaurinn" Rætt verður við Arnór Stein blaðamann sem greindu orðræðu Incels á netinu. TW: Þátturinn fer í viðkæmt efni: Kvenhatur, ofbeldi, sjálfsvíg Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á Patreon https://www.patreon.com/Poppsalin