Þrír á stöng
Þrír á stöng
Þrír á stöng er hlaðvarp um veiði, hnýtingar og tækni. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigurður G. Duret.
Þrír á stöng er hlaðvarp um veiði, hnýtingar og tækni. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigurður G. Duret.
#54 - Bjart er yfir birtingum - Bjartur Ari Hansson
Þættir
Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.
Veiiiióveiveiheyveiheyjó Lewis Hendrie og Ólafur Hilmar Foss mættu í þáttinn að þessu sinni. Óla þarf kannski ekki að kynna fyrir hlustendum því hann hefur áður verið gestur í þættinum en nú mætir hann með veiðivini sínum, Lewis. En Lewis sá er mikill veiðimaður og keppir í fluguveiði með enska landsliðinu um allan heim og hefur unnið til fjölda verðlauna í sportinu. Við fræddumst um veiðiferil hans og fáum að vita hvernig þessar keppnir fara fram og hvaða aðferðum er keppt í. Við fáum að vita allt um að mastera euro nymphing-tæknina og hvað ber að forðast en Lewis er þekktur fyrir að vera einstaklega óheppinn. Ef eitthvað getur farið úrskeiðis er næstum víst að það gerir það. Við vonum að þið njótið, við nutum.
Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er hinn eini sanni Alexander Stefánsson sem er oft kenndur við Alexander mikla, gríska konunginn, en marktækasti munurinn á þeim er jú kannski veiðiþekking og annað smotterí. Sá mikli var til dæmis ekki mikið inni í sjóbirtings- og laxveiðum en þar kemur okkar maður sterkur inn. Alexander kom og spjallaði við okkur um sinn veiðiferil og veiðisvæði sem hann hefur stundað í gegnum árin. Hann er mikill náttúrudýrkandi og við fórum yfir víðan völl, allt frá stórum sjóbirtingum yfir í að kafa með hákörlum út um allan heim. Njótið vel, það gerðum við
Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er engin annar en Tim Cammisa sem margir kannast við úr veiðiheiminum undir nafninu Trout & Feather. Tim hefur stundað stangveiði frá barnsaldri og fyrir nokkuð mörgum árum stofnaði hann YouTube-rás sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að verða betri fluguhnýtarar og betri veiðimenn. Hann hefur einnig skrifað bækur og skipulagt veiðiferðir um allan heim. Þáttur vikunnar fer fram á ensku og vona ég að þið njótið minnar frábæru (ísl) ensku 😅 Það fór vel á með okkur Tim og var gaman að fá að kafa í hans veiðiferil. Njótið við nutum. ——— This week's guest is none other than Tim Cammisa, who is well known in the world of fly fishing as Trout&Feather. Tim has been angling since childhood and years ago he started a YouTube channel with the goal of helping people become better fly tyers and better anglers. He has also written books and organized fishing trips all over the world. This week's episode is in English. We had a great time with Tim and it was fun to explore the depths of his fishing career. Enjoy.
Eyasey veyjo aweyjo Í þætti vikunnar mætti til okkar trommuþræll Íslands og veiðimaðurinn Arnar Rósenkranz Hilmarsson. Arnar er kannski flestum hlustendum kunnur sem meðlimur hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, en við þekkjum hann sem Arnar veiðimann. Arnar hefur stundað stangveiði frá unga aldri og er ekkert að stoppa. Veiðilendur Arnars hafa verið um allt land og laxinn er þar í fyrirrúmi, en hann er nú samt sem áður í silung og sjóbba líka. Einnig hefur hann getið sér gott orð í fluguhnýtingum og við köfum aðeins í djúpið þar líka. Það fór vel á með okkur þannig njótið því við nutum. HEY!
Veyjo aveijo Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið, netagerðarmaðurinn og veiðimaðurinn Hörður Birgir Hafsteinsson. Hödda ættu margir að þekkja úr Húseyjarkvíslinni og fyrir störf sín fyrir SVFR. Það fór afskaplega vel á með okkur stemningin góð og var erfitt að hætta því Höddi hafði frá alltof mörgu að segja. En njótið esskurnar því við nutum.
Aveyjo veio. Í þætti vikunnar mætti til okkar gæðablóðið og veiðimaðurinn Sævar Snorrason. Sæfar er einn af þessum veiðimönnum sem margir þekkja en þeir sem þekkja hann ekki vel þekkja hann kanski sem veiðvörð Veiðikortsins en hann er svo mikklu meira en það. Sævar er líka að smíða háfa og allskins veiðiteingt efni og handbragðið er allt uppá 110% Það fór vel á með okkur og var margt að tala um eins og svo oft áður og vonum við að þið fyrirgefið okkur lengdina en það var bara svo margt um að tala. Njótið við nutum
Eyseiaveijo veijo Í þessum fyrsta þætti ársins mættu tvær alltof veiðisjúkar veiðikonur, þær Elín Ingólfsdóttir og Helga Gísladóttir. Við fórum vel yfir stofnun kvennanefdar SVFR sem Elín kom á laggirnar og var Helga mætt þar með fyrstu konum. Við ræddum kvennanefndina, störfin og allt félagslífið í þessum nefndum og að sjálfsögðu aðalatriðið, veiðina. Einnig fórum við bara vel yfir þerra veiðsögu þeirra og var bara virkilega gaman að fá þessar miklu veiðikonur til okkar og það heyrist. Njótið því við nutum.
HOHOHOHO og gleðileg Jól. Í þætti vikunnar kemur til okkar virkilega veiðisýktur maður. Hann hefur nú ekki verið lengi í sportinu en þarna sannast það hvað þetta getur heltekið mann gjörsamlega. Gísli er maður sem er virkilega gaman að tala við og einnig eru Gísli og Siggi miklir veiðifélagar og það runnu ansi margar sögur í þættinum. Það ættu allir að hafa gaman af þessari sögustund. Njótið, við nutum í botn.
Jo eiveijo veijo veijooo. Þáttur vikunnar er heltekinn af vötnum og hnýtingum því gestur þáttarins er enginn annar en Örn Hjálmarsson. Flest allir veiðimenn ættu að þekkja Örn en ef þeir þekkja ekki manninn sjálfan ættu þeir að þekkja flugurnar hans svo sem Langskegg, Teppahreinsarann og Golden Eye. Við förum yfir þetta allt og að sjálfsögðu Veiðivötn og svo mörg önnur. Hlustun er sögu ríkari. Njótið, við nutum
Eyjo aveijoveio. Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið og veiðimaðurinn Hrannar Pétursson. Hrannar ættu margir að þekkja úr þessum veiðiheimi okkar því hann hefur verið nokkuð iðinn við veiðarnar síðustu ár og við fórum yfir allt það helsta á ferlinum hingað til. Einnig er Hrannar í stjórn SVFR og köfuðum við með honum í þeirra vinnu og hugsjón. Þetta var nú mest allt á léttu nótunum enda er Hrannar ekki bara skemmtilegur veiðimaður hann er gull í gegn. Njótið við nutum.
Yeiiiasey aveijo veyyo. Jæja vetrinum startað og það er gott og fátt betra en að fá hinn venjulega Jón, eins og hann kallaði sig sjálfur, sem gest í fyrsta þáttinn en sá Jón er Hörður Páll Guðmundsson. Hér er á ferðinni stuð- og stemningsþáttur, farið er yfir veiðina og ótal sögur fá að fjúka í þessum fyrsta þætti vetrarins.
Yjoeisei veyjo veio. Í þætti vikunnar kom til okkar enginn annar en atlasinn sjálfur, Ólafur Hilmar Foss. Óli er eldri en tvævetur í veiðinni og hefur komið víða við, allt frá Þingvallavatni sem barn og yfir í að veiða með heims- og Bretlandsmeisturum í veiði. Óli hefur komið víða við en það svæði sem Óla þykir hvað vænst um og hefur náð gríðarlegum tökum á eru Torfastaðir í Soginu. Við förum vel yfir Torfastaði ásamt því að tala um sjóbirting og að sjálfsögðu laxinn. Lindubuffið kemur einnig við sögu og það var allavega mjög gaman hjá okkur sem vonandi skín í gegn. Gestastjórnandi með mér í þessum þætti er hinn Caddis-bróðirinn og einn þriggja manna í tökustuði hann Ólafur Ágúst Haraldsson. Eins og oftast þarf ekkert að kynna hann fyrir íslenskum veiðimönnum því hann hefur verið víða. Laxárdalurinn er hans heimavöllur og svo er hann bara svo yndisleg persóna sem allir vita sem hafa hitt hann. En vonandi njótið þið, því við nutum.
Aaeyseyja aveyjó aveijó. Jæja, þá er þáttur vikunnar að þessu sinni að bakka til ykkar með fullt skott af skemmtun og fræðslu. Gestur þáttarins er enginn annar en fyrrum dælumaðurinn, kokkurinn og umfram allt veiðimaðurinn Ísak Vilhjálmsson. Það eru nokkrir staðir sem standa honum næst hjarta í veiðinni og förum við nokkuð ítarlega yfir þá í þættinum, hvernig hann kynntist þessum stöðum og hvernig hann svo féll fyrir þeim í kjölfarið. Þetta er að sjálfsögðu Mývatnssveitin og Þingvallavatn. Einnig tölum við um hina og þessa hluti og aðferðir í veiðinni. Þátturinn er ekki eins upp settur og vanalega því gestastjórnandinn í þessari viku var enginn annar en Caddis-bróðirinn Hrafn Ágústsson sem vildi prófa nýtt fyrirkomulag í þættinum sem var ansi skemmtilegt. Hrafn þarf varla að kynna fyrir nokkrum veiðimanni. Hann er annar bróðirinn í Caddis-bræðrum og einn þriggja í hópnum Tökustuð. Hrafn er magnaður veiðimaður og hnýtari og um fram allt góður drengur. Við vonum að þið hafið notið við nutum.
Eyjó aveijo veyjo Í þætti vikunnar kom enginn annar en líffræðingurinn, lífeðlisfræðingurinn og fyrrum Alþingismaðurinn Össur Skarphéðinsson í heimsókn. Össur er flest öllum sem komin eru af léttasta skeiðinu kunnur en bæði er hann mikill fræðimaður og veiðimaður. Við fórum með Össuri í gegnum hans veiðiferil, stikluðum á góðum veiðisögum og fórum nokkuð vel í bókina Urriðadans sem Össur skrifaði árið 1996 og fjallar aðallega um urriðann í Þingvallavatni. Það fór vel á með okkur og margar góðar sögur fengu að fljóta og skemmtum við okkur ansi vel. Gestastjórnandi þessa vikunna var Ólafur Tómas Guðbjartsson sem heldur úti Dagbók urriða. Það var mikill heiður að hafa Óla með mér í þessum þætti og jafnvel enginn betri. Óla þarf vart að kynna fyrir veiðimönnum því hann er búinn að gera þetta allt Snapchat, gefa út bók og sjónvarpsþætti og nú nýverið verið partur af Tökustuði sem hann og Caddis-bræður standa að. Þetta var gaman, við nutum og vonandi þið.
Eyaveijo vey. Jæja, kæru hlustendur. Þáttur vikunnar er mjög viðburðaríkur fyrir nokkrar sakir. Smávægilegar breytingar eru á þættinum þar sem Benni er fluttur af landinu og verð ég með gestastjórnendur það sem eftir lifir tímabils. Gestastjórnandi í þessum þætti er engin önnur en aflaklóin, bókaútgefandinn og besti makker í heimi; Anna Lea Friðriksdóttir. Og gestir vikunnar eru veiðisysturnar hressu Efemía og Stefanía sem hafa veitt víða frá blautu barnsbeini í Skagafirðinum. Það er ofboðslega gaman að fylgjast með þeim veiðisystrum á samfélagsmiðlum því leiðindi og vesen eru ekki til í þeirra huga. Því er svipað farið með þáttinn. Gleði, stemning og hlátrasköll lita þennan þátt og spjall okkar við þær systur lengdist vel því það var bara svo gaman. Njótið, við nutum.
Eiveyjo aveyeajó. Bassafantinn og náttúruunnandann Pálma Gunnarsson þarf ekki að kynna fyrir neinum veiðimanni en Pálmi kom til okkar í vikunni og við ræddum meðal annars þurrfluguveiði, straumflugur, sjóbirting, bleikjur, laxa, Rússland, Grænland og allt þar á milli. Njótið, við nutum.
Jeyesey weyjó veijo. Í þætti vikunnar kom heimshornaflakkarinn og veiðimaðurinn Stefán Jón Hafstein í heimsókn. Stefán ættu flest allir veiðimenn að þekkja en hann lét mikið fyrir sér fara í veiðiheiminum hér á árum áður. Við förum yfir gömlu góðu dagana með Stefáni, hvernig allt hefur breyst og hvernig þetta er orðið í dag ásamt því að ræða veiðimennsku hans í dag. Stefán hefur frá ansi mörgu mögnuðu að segja þannig njótið. Við nutum.
Jaaaa eyaveyijo veyeijo. Í þætti vikunnar er gestur okkar enginn annar en veiðisjúkasti maður landsins, já eða bara heimsins, Dagur Árni Guðmundsson. Hvað getur maður sagt um svona þátt? Tjaaa við fórum yfir nánast allt í sambandi við veiði frá taumum upp í risafiska hvort sem það séu laxar, urriðar eða fiskar í Kaliforníu. Hlustun er sögu ríkari. Njótið við nutum.
Aaaaeiiii aveiyiyjo veyo. Guðmundur Ingi Hjartarson, betur þekktur sem Dommi, kíkti til okkar og ræddi 30 ára draum sem hann er að láta rætast. Forritarinn sem sneri sér að fiskirækt er með margar frábærar veiðisögur í farteskinu og er að gera virkilega spennandi hluti sem leigutaki og veiðimaður Njótið kæru því við nutum.
Ajooooaveyjo vaejooo. Mikael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins 2023, kemur í heimsókn og ræðir málin. Mikael tók nýlega við barna- og unglingastarfi SVFR og er að gefa út fyrsta stangveiðispil Íslandssögunnar nú fyrir jólin. Mikael er sögukennari og mikill grúskari og á stærsta safn veiðibóka á landinu og nýttist kunnátta hans þar vel við gerð spilsins. Auk þess er Mikael mikill aðdáandi Grímsá og Brynjudalsá og komum við vel inn á þau svæði í þættinum. Ennig verðum við að kveðja gamlan vin sjálft veiðilagið í enda þáttar og vonandi hafa allir skylning á því.
Aveijó veijó Í þætti vikunnar mætti í settið enginn annar en stórgædinn og gæðablóðið Ingvi Örn Ingvason. Ingvi byrjaði nú frekar seint að gæda en afrekaði á ótrúlegan hátt að byrja að gæda áður en hann byrjaði sjálfur að veiða. Ansi magnað en Ingvi fer vel yfir þetta með okkur. Við tölum líka um burnout rekstur veiðihúsa og tökum Langá nokkuð vel fyrir. Svo er ekki hægt að tala við Ingva án þess að ræða um þessa stóru í Laxá en Ingvi hefur hefur verið svo heppinn að landa þeim nokkrum. Hlustun er heyrn ríkari. Njótið við nutum.
Jóeyveijó veijo Í þætti vikunnar kom engin önnur en Ragnheiður Thorsteinsson til okkar. Ragga er með skemmtilegri konum sem maður hittir á lífsleiðinni og geislar hún alltaf af gleði. Við förum stuttlega yfir veiðiferil Röggu en þó tölum við mest um setu hennar í stjórn SVFR og svo er að sjálfsögðu kafað vel í hvað hún ætlar sér að gera sem nýr formaður SVFR og hvar hún ætlar að beita sér mest en Ragga var á dögunum kosin formaður Stangó, fyrst kvenna. Stór hluti þáttarins er tileinkaður umræðu um félagið og farið yfir bæði það góða og slæma. Gleði en líka erfiðleikar og allt þar á milli. Njótið kæru hlustendur, við nutum
Aeiaaaaaaaveijo Veijooo Auke er magnaður veiðimaður og það var algjör veisla að fá hann loksins í þáttinn! Það má kalla Auke „the nicest guy in fly fishing“. Hann er hjálpsamur og einstakur karakter. Hann hafði frá nógu að segja og er sagan á bak við innkomu Auke í veiðiheiminn á Íslandi afar falleg. Hann segir okkur bæði drepfyndnar sögur sem koma á óvart og sögur sem munu koma við hjartað í hlustendum. Það er alltaf gaman að fá góðan vin i þáttinn, Auke van der Ploeg gott fólk, njótið!
Aveijó veiooo Óskar Örn er einn af þeim sem bókstaflega fæddist með veiðistöng í hendinni. Hann hefur veitt um allt land og segir okkur frá sínum uppáhaldsstöðum. Óskar er frábær sögumaður og enduðum við oftar en einu sinni í hláturskasti í þættinum. Hann er ekki að flækja málin þegar kemur að veiðiaðferðum og fer hann vel yfir það með okkur. Einnig er hann örugglega eini maðurinn sem kallar Collie Dog leynifluguna sína. Njótið, við nutum.
Eyjóveijó veijó. Þáttur vikunnar er með aðeins öðru sniði en venjulega því við fengum til okkar Bandaríkjamanninn Tim Flagler og er þátturinn því á útlEnsku. Tim Flagler er eigandi Tightline Productions, L.L.C., myndbandaframleiðslufyrirtækis staðsett í Califon, NJ. Þótt hann framleiði þætti sem fjalla um margvísleg efni er sérgrein hans fluguveiði og fluguhnýtingar. Tim er þekktur hnýtingakennari. YouTube myndböndin hans eru einhver af þeim bestu í bransanum og YouTube rásin hans, practicepatterns.com hefur nú yfir 108.000 áskrifendur og 33 milljónir áhorfa.Næstum í hverri viku framleiðir hann nýtt fluguhnýtinga- eða „how to“ myndband sem birtist ekki aðeins á YouTube rásinni hans heldur einnig á Midcurrent og Orvis News fluguveiðiblogginu líka. Þeir eru einnig sýndir á vefsíðu Trout Unlimited og í Orvis Learning Center. Að auki er hann með reglulegan dálk „Beginner's Masterclass with Tim Flagler“ í tímaritinu Fly Tyer, sem valdi Tim hnýtara ársins í vetrarhefti sínu 2022. Mörg myndbönd Tims taka áhorfandann langt umfram það að hnýta fluguna og sýna hvernig hún lítur út undir yfirborðinu, hverju hún líkir eftir og við hvaða aðstæður á að nota hana. Við vonum að þið njótið. Við nutum
Sjóeveijó veijó .Unnur Guðný er veiðikona sem margir ættu að þekkja en þó ekki allir. Unnur hefur veitt frá unga aldri en á síðustu árum heltók veiðin hana. Laxinn átti lengi hjarta hennar áður en hún uppgötvaði silunginn aftur. Eftir endurfundina varð hún heltekin af honum og í framhaldi fór hún að leiðsegja í veiðinni. Unnur er skemmtileg og fyndin og kemur það vel fram í þættinum svo endilega njótið. Við nutum.
eyjo veijó veio. Aron Jarl er nafn sem flestir silungsveiðimenn þekkja, hann er afar flinkur og fróður veiðimaður og þá sérstæklega í andstreymisveiði. Aron fer vel yfir þá tækni sem hann notar en síðustu ár hefur hann einnig tileinkað sér euro nymphing og er mjóg slungin á því sviði. Varmá er nefnd oftar en einusinni í þættinum en fáir leggja leið sína þangað jafn oft og Aron. njótið við nutum.
Uuuueiiisei aveijooo veijo Bjarki Már er nafn sem er vel þekkt nafn í veiðiheiminum og hefur í gegnum árin dregið ófáa stórfiska á land. Ytri ranga er honum mjög kær og förum við með honum nokkuð vel yfir hana þar sem hann var sem leiðsögumaður til margra ára. einnig förum við um land allt og og til Noregs þar sem hann hefur verið fastagestur til margra ára. Njótið við nutum.
Eseeejevejó veijooo Jæja, loksins mættir aftur og það með hvelli. Marvin (Hot) Þrastarson var gestur okkar þessa vikuna. Hér er farið yfir veiðina hjá Mr. Hot og tiplað á nokkuð mörgum málum. Förum í Kjósina, Veiðivötn, Varmá og Laxárdalinn. Einnig eru hnýtingarnar ræddar sem og euronymph svo fátt eitt sé nefnt. Njótið, við nutum.
Aveijó veyo Í þætti vikunnar kom Finnur Ingimarsson forstöðumaður Náttúrustofu Kópavogs. Finnur er líffræðingur og veit meira en flestir þegar kemur af lífinu sem er undir yfirborði vatna. Finnur fer með okkur um víðan völlen aðaláherslan er á Þingvallarvatni. Murtan er í brennidepli þar sem talið er að hún sé á undanhaldi, en það gæti verið að finnast nýtt afbrigði af bleikju í vatninu þannig umræðan var ekki öll neikvæð. Þetta er smá öðruvísi þáttur en alveg magnaður þar sem veiðimenn ræða við vísindarmann. Njótið og nærist
Getum við fengið Hoooooooooooyyaaaaaaaaaaa! Jæja, nýr þáttur nýr viðmælandi. Það er engin annar en Bjarki Bóasson æðsti strumpur. Þrátt fyrir stuttan tíma í veiðinni hefur Bjarki gert alveg ótrúlega hluti sama hvort það sé í veiði eða bara allt í kringum veiðina. Bjarki hefur verið mjög öflugur á samfélagsmiðlum og fundið tækifæri til að selja okkur veiðimönnum allan fjandann. Bjarki er mikill vinur okkar og það var stuð hjá okkur. Þessum má ekki missa af. Njótið.
Getum við fengið að heyra Hooooooooooyaaaaaaaaaaah? Jæja, þá erum við aftur komnir í loftið eftir langa pásu. Famundan er agalega skemmtilegur og fjölbreyttur vetur hjá okkur og byrjum við með hvelli. Jakob Sindri kom til okkar og fræddi okkur um nánast allt milli himins og jarðar. Við vonum að þið lærið helling af þessum mikla meistara. Njótið og veiðið
Aaaaaaveió veió Þrír á stöng lokar vetrinum með óhefbundnu sniði og fær til sín gestastjórnanda. Símalínur voru rauðglóandi og var hringt í nokkra valinkunna veiðimenn og -konur og staðan tekin á sumrinu það sem af er og rætt hvað liggi framundan. Fætinum var drepið niður víða og fræðumst við um veiði um víða veröld ásamt því að heimavöllurinn er tekinn fyrir. Við tökum svo upp þráðinn að nýju í haust uppfullir af veiðisögum og reynslunni ríkari. Við viljum þakka öllum okkar tryggu hlustendum fyrir hlustunina og fyrir að taka þátt í umræðunni með okkur. Síðast en alls ekki síst þökkum við styrktaraðilum þáttarins, án þeirra væri þetta ekki hægt! Takk @flugubúllan @malbygg @veiðikortið fyrir að styðja við bakið á okkur. Strekktar línur - heyrumst í haust!
Benedikt Þorgeirsson Jæja við erum komnir aftur eftir langa og erfiða pásu. Enginn annar er Benedikt þorgeirsson kom til okkar og fór yfir allt á milli himins og jarðar. Benni er þræl vanur veiðimaður og fluguhnýtari og fórum við djúpt í heim Hlíðrvatns, Þingvallavatns og veiði af belly bátum. Já þessi þáttur er sko ekkert slor, njótið elsku hlustendur.
Aaaaaveijó veijó. Í þessari viku kom enginn annar en Sigurður Kristjánsson til okkar. Hann er einn af okkar betri fluguhnýturum og hefur getið sér gott orð á þeim vettvangi. Í þættinum fer Siggi vel yfir nokkur veiðisvæði og segir frá leynistöðum og flugum sem gott er að nota þar. Siggi situr í stjórn Ármanna og er mikill buzzer veiðimaður og notar buzzer-flugur óspart þegar tækifæri gefst til. Að sjálfsögðu er einnig kafað djúpt í heim fluguhnýtinga í þættinum. Þetta er þáttur sem enginn veiðimaður eða hnýtari má láta framhjá sér fara. Njótið essssskurnar.
Aveijó veijóóóó Í þessari viku kom enginn annar en Sigurður Héðinn, eða Siggi Haugur, til okkar. Maður kemur ekki að tómum kofanum þegar rætt er um stangveiði, fluguhnýtingar og leiðsögn við Sigga. Hann fer yfir sögu sína í þættinum og við köfum nokkuð djúpt inn í heim fluguhnýtinga. Einnig tölum við nokkuð um skemmtilega framtak fos.is, Febrúarflugur. Þetta er þáttur sem engin veiðimaður eða hnýtari á að láta framhjá sér fara. Njótið.
EEEEaaaseiiiaveijó veijó Nafnið Árni Friðleifsson er nafn sem allflestir veiðimenn ættu að kannast við en hann mætti til okkar í þessari viku. Árni fer með okkur yfir sinn veiðiferil og gædamennsku. Einnig förum við yfir feril hans innan SVFR sem var langur og farsæll þar sem hann gengdi meðal annars formennsku. Árni fer vel yfir margar flottar laxveiðiár og Langá og Mýrarnar fá sérstaka umfjöllun. Þetta er negla, njótið.
AAAAAAAAAveijó veijó. Jæja, við erum komnir til baka eftir alltof langt frí. Gestur þáttarins er ekki af verri endanum, Kristján Friðriksson settist niður með okkur og ræddi um ýmislegt tengt silungsveiði, fluguhnýtingum og pælingum. Margir þekkja Kristján út af síðunni hans Fos.is, þar heldur hann utan um afar áhugavert blogg þar sem hann skrifar næstum því allar sínar pælingar. Einnig er hann forsprakki Febrúarflugna, sem eru handan við hornið! Kristján fræðir okkur um hin rómuðu framvötn, hann er fastagestur þar og hefur meðal annars séð um að grisja þau vötn. Þessi þáttur er negla, njótið!
Aveijó aveijó. Í þætti vikunnar fengum við gest sem vart þarf að kynna fyrir neinum veiðimanni því þetta er enginn annar en Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson. Þrátt fyrir ekkert svo háan aldur hefur Elías náð miklum og góðum tökum á tja nánast öllu sem kemur nálægt veiði. En í þessum þætti förum við djúpt í nokkur ársvæði meðfram því að kynnast Elíasi betur. Við köfum djúpt í Hólmsá, Skagaheiðina og Víðidalsá. Einnig fræðumst við um starfsemi NASF og það góða starf sem þar fer fram. Við droppum aðeins inn í laxeldisumræðuna og engu munaði að allt syði upp úr en það rétt slapp. Þetta er þáttur sem engin á að missa af. Njótið þó best með MALBYGG. ok bæ
Hó hó hó. Einar Páll Garðarsson eða Palli í Veiðihúsinu, eins og hann var áður þekktur, en Palli í Bendir og Camo í dag kom til okkar og fór yfir sinn veiðiferil. Palli er einn af okkar allra betri veiðimönnum og verður það sjálfsagt alla tíð. Hann fer hér yfir gædaárin, veiðina og sorgir og sigra í veiðinni. Palli er einn af þeim sem eru komnir á þá skoðun að veiða/sleppa eigi að heyra sögunni til. Við fórum vel yfir þetta og einnig flugurnar sem hann hefur hannað og hnýtt sem hafa virkað á köflum gífurlega vel. Palli er einn af þessum orginölum og hefur frá ógrynni að segja. Endilega njótið elskurnar því við meira en nutum.
Aaaaaa veijó veijó. Þessi þáttur er bæði mjög skemmtilegur og hjartahlýr, Andri Fannberg settist niður með félögunum og fór yfir sinn veiðiferil og áhugaverðar skoðanir á vinsælum veiðisvæðum. Það má segja að Andri sé töluvert á flandri en hann er mikið fyrir það að ferðast um landið og kynna sér ný veiðisvæði. Hann starfar á sumrin sem leiðsögumaður og er við bakkan rúma 100 daga á ári. látið þennan þátt ekki framhjá ykkur fara því hann er í hæðsta gæðaflokki. Njótið bers með gröfnum laxi.
Aaaaaaa seeeiii aaa veiiiiiiijóóóóó eiiii aaa veiiijóóó Ragnar Ingi Danner er gestur þáttarins. Við fórum yfir víðan völl, bæði í því sem tengist líffræði og veiði. Ragnar Ingi Danner er eins og hlustendur þáttarins vita hinn eini sanni líffræðingur sem við vitnum í þegar kemur að líffræðilegum pælingum og spurningum okkar. Ragnar Ingi ansaði ekki bara spurningum okkar í þættinum heldur líka ykkar hlustenda og einnig kom hann inn á alveg nýjan vinkil í þurrfluguveiði sem ætti að geta hjálpað hverjum veiðimanni. Þetta var algjör banger þáttur og vonum við að þið njótið því að við nutum og það mikið. Góðar stundir
Aseiii aveijó veijó Það var enginn annar en Brynjar Þór Hreggviðsson sem kom til okkar í þessari viku. Reyndar var hann fyrsti live gesturinn okkar á Malbygg taproominu og skemmtum við okkur konunglega fyrir fullum sal af fólki. Brynjar hefur komið víða við í veiðinni bæði sem leiðsögumaður og starfað hjá Lax-á, SVFR og nú í Norðurá. Við fórum rækilega yfir ferilinn og höfðum virkilega gaman af. Þetta þurfa höldum við allir áhugasamir um veiði að hlusta á. Njótið og þá best með héluðum Malbygg.
Ei veijó veijó. Úff hvað getum við sagt? Jú, Ólafur Tómas Guðbjartsson kom í vikunni og við ætluðum að fara yfir örfá mál en Óli er bæði það skemmtilegur og hefur frá svo miklu að segja og við vorum ekki búnir að hitta Óla svo lengi að þetta endaði í þessum tíma sem þetta er. Við fórum yfir mjög víðan völl og tekur ekki að nefna það hér. Hlustun er sögu ríkari. Við fengum líka jólabjórana frá Malbygg og kannski hjálpuðu þeir til við skemmtunina hjá okkur og vonandi ykkur líka. Njótið og þá kannski bara best með jólabjórum Malbyggs. Ok bæ
Veió veió Þröstur Elliðason kom til okkar í þátt vikunnar og við fórum yfir veiðiferil Þrastar, veiðisvæði hans, nýtt fyrirkomulag í Jöklu, allar tegundir af seiðasleppingum, blúsinn í Breiðdalnum og margt, margt fleira. Svo má ekki gleyma hinum eina sanna Steinólfi. Njótið kæru vinir.
Gestur þáttarsins er ekki af verri endanum, Sindri Hlíðar Jónsson kom til okkar og gerði upp sumarið. Sindri er einn af eigendum Fishpartner og fáir eru jafn mikið við árbakkann og hann á sumrin. Þátturinn er fullur af skemmtilegum sögum en það er reynt á tilfinningar og voru nokkur tár felld þegar sindri fer yfir hinar ýmsu hliðar þess að vera gæd og kynnast sorgum og sigrum í þeim heimi. Njótið, þessi þáttur er magnaður!
Jæja, fyrsti gestur vetrarins er enginn annar er Stefán Sigurðsson hjá Iceland Outfitters. Það er nóg að gera hjá honum þessa dagana því hann og Harpa Hlín konan hans voru að taka við Ytri Rangá. Stefán fer yfir fyrirkomulagið og útskýrir þær breytingar sem eiga sér stað fyrir næsta ár. Einnig förum við yfir hnúðlaxa, Leirá, Vatnasvæði Lýsu og síðan kemur mögulega eitt flottasta veiðilag sem við höfum heyrt. Njótið! Aveijó veijó
Jæja kæra veiðifólk Þá er komið að því að sumarið er að hörfa fyrir vetrinum og veiðin að klárast um allt land. Hvað er þá betra en að byrja aftur á fullu með Þremur á stöng? Í fyrsta þætti vetrarins förum við félagarnir yfir veiðisumarið okkar og komandi vetur. Smá sprell og stemning. Vonandi njótið þið því við nutum. Góðar stundir.
Gestur þáttarins er maður sem vart þarf að kynna. Gunnar Bender hefur verið í veiðinni síðan elstu menn muna. Fyrstur með fréttirnar og alltaf með puttann á púlsinum. Allir þekkja Benderinn. Njótið.