Umræðan cover

Umræðan

Landsbankinn

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur

0:00 0:00

Þættir

Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur 19 Oct 2026

Ný hagspá Greiningardeildar Landsbankans til ársins 2029 ber titilinn Hægur vöxtur en batnandi horfur. Verðbólga er enn há, vextir sömuleiðis og hagvöxtur hóflegur, en ýmislegt bendir til þess að bjartari tímar séu fram undan. Í þættinum er rætt um samspil verðbólgu, hárra vaxta, gengi krónunnar, þróun á vinnumarkaði og stöðuna á húsnæðismarkaði. Eru vaxtalækkanir handan við hornið? Og hvað getur helst breytt horfunum næstu misserin? Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, og Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í Greiningardeild bankans, ræða nýju hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.

Verðbólgan lætur ekki undan 28 Aug 2026

Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson, hagfræðingar hjá Greiningardeild Landsbankans, ræða stöðu efnahagsmála og framtíðarhorfurnar við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.

Hagvöxtur í kólnandi hagkerfi 02 Jun 2026

Í nýjasta þætti Umræðunnar fara Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson yfir nýjustu vendingar í efnahagsmálum með Kristínu Gunnarsdóttur. Stýrivextir voru hækkaðir, hagvöxtur mældist 2,7% á fyrsta ársfjórðungi, verðbólga mældist 5,1% í maí en undir yfirborðinu má sjá merki um kólnandi hagkerfi. Rætt er um áhrif gagnavera á hagvöxt, stöðu húsnæðismarkaðar, verðbólguþróun og horfur næstu mánaða.

Það helsta úr nýrri hagspá til 2028 17 Apr 2026

Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans (setja link). Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson úr greiningardeild Landsbankans ræða hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.

Pallborð - Komum hreyfingu á hlutina 14 Mar 2025

Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Lilja, Teitur, Kashif - Komum hreyfingu á hlutina 14 Mar 2025

Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Ingólfur Bender - Komum hreyfingu á hlutina 14 Mar 2025

Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Lilja Björk Einarsdóttir - Komum hreyfingu á hlutina 14 Mar 2025

Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Teitur Samuelsen - Komum hreyfingu á hlutina 14 Mar 2025

Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Verðbólga þokast niður og vextir lækka 06 Feb 2025

Verðbólga hefur hjaðnað á síðustu mánuðum og vextir þokast niður á við. Viðnámsþróttur hagkerfisins virðist samt þó nokkur og segja má að hagkerfið stefni í átt að mjúkri lendingu. Óvissa í heimshagkerfinu hefur þó magnast á síðustu vikum og Ísland er í viðkvæmri stöðu gagnvart hnökrum á alþjóðaviðskiptum. Hagfræðingar greiningardeildar bankans stikla á stóru um efnahagsmál í nýjasta þætti Umræðunnar.

Vextir þokast niður í takt við væntingar 22 Nov 2024

Stýrivextir voru lækkaðir um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn og peningastefnunefnd hittist ekki aftur fyrr en í febrúar. Ef verðbólga hjaðnar í takt við spár má gera ráð fyrir að raunvextir hækki um heilt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Áfram er verðbólga þó langt yfir markmiði og vextir himinháir, og ýmsir óvissþættir kunna að setja strik í reikninginn. Hagfræðingar í Greiningardeild Landsbankans stikla á stóru um stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

Það helsta úr nýrri hagspá 17 Oct 2024

Horfurnar eru nokkuð bjartar, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans, þrátt fyrir lítils háttar samdrátt á þessu ári. Með hjaðnandi verðbólgu og auknum slaka á vinnumarkaði skapast svigrúm til áframhaldandi vaxtalækkana sem blása lífi í hagkerfið. Hagfræðingar Greiningardeildar bankans ræða hagspána í nýjasta þætti Umræðunnar.

Hæg kólnun og harður tónn 23 Aug 2024

Eftir heilt ár af óbreyttu vaxtastigi virðist enn bið eftir að hægt verði að slaka á aðhaldinu. Verðbólga færðist lítillega í aukana í sumar, íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og kortavelta landsmanna hefur aukist milli ára að raunvirði. Staðan er snúin og væntingar um verðbólguþróunina eru enn langt yfir markmiði. Þetta er á meðal þess sem er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

Þarftu að endurfjármagna? 12 Jun 2024

Fjölmargir lántakendur standa frammi fyrir því að fastir vextir á íbúðalánum þeirra eru að losna og horfa fram á að taka ákvörðun um hvað skuli gera næst. Í þætti Umræðunnar förum við yfir stöðuna, hvernig endurfjármögnun virkar og kynnum nýja lausn í appinu sem gerir endurfjármögnun þægilegri.

Aukin verðbólga og 4% samdráttur 04 Jun 2024

Verðbólga var umfram spár í maí og jókst milli mánaða. Hagkerfið dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og þar með varð samdráttur í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2021. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

Þrautseigt hagkerfi við háa vexti 03 May 2024

Hagfræðideild spáir því í nýrri hagspá að enn sé þó nokkur bið eftir fyrstu vaxtalækkun. Verðbólgan hjaðni smám saman á næstu árum og efnahagsumsvif aukist eftir því sem vextir lækka. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða hagspána í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

Lengist biðin eftir vaxtalækkun? 21 Mar 2024

Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum á miðvikudag og sló harðari tón en búist var við. Markaðsaðilar gerðu flestir ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist í maí, en lengist biðin kannski fram í haust? Hvað þarf að gerast áður en hægt verður að slaka á taumhaldinu?

Stormasamt stjórnmálaár og varkár vaxtalækkun 15 Feb 2024

James Ashley, forstöðumaður markaða og stefnumála í Goldman Sachs, er gestur í nýjasta þætti Umræðunnar. Hann ræðir efnahagshorfur í heiminum, óvissuþætti í tengslum við komandi kosningar í Bandaríkjunum og ólgu í alþjóðastjórnmálum. Karítas Ríkharðsdóttir, sérfræðingur í Samskiptum, stýrir þættinum og með henni er Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur.

Vaxtalækkun ólíkleg þótt verðbólga hjaðni 02 Feb 2024

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólguhorfur hafi batnað stígi peningastefnunefnd varlega til jarðar, ekki síst í ljósi óvissu í tengslum við náttúruhamfarir og kjaraviðræður. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson ræða meðal annars vaxta- og verðbólguhorfur í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

Íbúðaverð á uppleið en hægir á hagvexti 08 Dec 2023

Verðbólguhorfur hafa versnað lítillega á síðustu vikum. Seðlabankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í vetur, íbúðaverð er aftur á uppleið en hagvöxtur er mun minni en í upphafi árs. Hagfræðideildin ræðir þetta og fleira í nýjasta hlaðvarpsþættinum.

Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi 19 Oct 2023

Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni.

Rými til bætinga í fjármálum ungs fólks 27 Jun 2023

Fjármál ungs fólks hafa verið sérstaklega til umfjöllunar hjá fræðsludeild Landsbankans að undanförnu. Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans, og Guðrún H. Bjarnadóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum, ræða við Karítas Ríkharðsdóttur um hvað gögn bankans segja um fjárhagsstöðu ungs fólks. Meðal annars kemur fram að nokkuð sé um að ungt fólk geymi háar fjárhæðir á veltureikningum og að ungir karlar fjárfesti í hlutabréfum í meiri mæli en ungar konur. Þá eru ungar konur síður skráðar einar fyrir fasteignalánum.

Hagvöxtur, spenna á vinnumarkaði og þrálát verðbólga 13 Jun 2023

Fjölgun ferðamanna og aukin einkaneysla eru á meðal þeirra þátta sem halda uppi hagvexti. Laun hafa hækkað, enda spenna á vinnumarkaði og skortur á starfsfólki. Þrátt fyrir háa vexti kyndir kröftug eftirspurn undir verðbólgu, sem þó vonandi er á niðurleið. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson spjalla um þetta og ýmislegt fleira í nýjasta þætti Umræðunnar.

Nýtt hús Landsbankans - Frá samkeppnistillögu til vinnustaðar 16 May 2023

Landsbankinn bauð fólki nýlega í fyrsta sinn í nýtt húsnæði sitt við Reykjastræti á viðburði í tengslum við HönnunarMars. Viðburðirnir voru vel sóttir og ljóst að mikill áhugi er á hönnun og virkni hússins. Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Halldóru Vífilsdóttur, framkvæmdastjóra arkitektastofunnar Nordic og verkefnastjóra nýbyggingarinnar, Helga Mar Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic og Jonas Toft Lehmann, arkitekt og partner hjá dönsku arkitektastofunni CF Möller, um hugmyndafræði hússins frá samkeppnistillögu að raunverulegum vinnustað, áskoranir og árangur.

Hagspá 2023-2025: Góðar hagvaxtarhorfur þótt hægi á 25 Apr 2023

Útlit er fyrir ágætis hagvöxt næstu ár þótt hægi á hagkerfinu, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar. Ferðamönnum fjölgar og einkaneysla eykst áfram, en allt í skugga þrálátrar verðbólgu. Vextir hækka áfram og byrja ekki að lækka fyrr en á næsta ári. Hagspáin er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþættinum þar sem Una Jónsdóttir, Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson fara yfir helstu atriðin.

Netsvik - Dæmi um að fólk tapi tugum milljóna 29 Mar 2023

Netsvik hafa sótt verulega í sig veðrið að undanförnu og eru dæmi um að tugir milljóna hafi verið sviknir út úr einstaklingum og fyrirtækjum. Viðbragð við netsvikum er orðinn hluti af daglegri starfsemi Landsbankans. Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Brynju Maríu Ólafsdóttur, sérfræðing í regluvörslu, og Arinbjörn Ólafsson, framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs, um netsvik og varnir og viðbrögð við þeim.

Stýrivaxtaspá og versnandi verðbólguhorfur 17 Mar 2023

Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku. Verðbólguhorfur versnuðu í febrúar, verðbólgan er almennari en áður og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur aukist. Þrátt fyrir að meginvextir bankans hafi hækkað úr 0,75% í 6,5% á tæpum tveimur árum virðast þeir síður en svo hafa dregið allan þrótt úr hagkerfinu. Í þættinum ræða hagfræðingarnir Una Jónsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivaxtaspána og stikla á stóru um stöðuna í hagkerfinu.

Hvert fara stýrivextir og hvað er að gerast á íbúðamarkaði? 03 Feb 2023

Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir fyrstu stýrivaxtaákvörðun ársins miðvikudaginn 8. febrúar. Verðbólgan hefur hjaðnað hægar en búist var við og samsetning hennar hefur breyst á síðustu mánuðum. Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi og ýmis merki eru um kröftuga íbúðauppbyggingu. Kann að vera að verið sé að byggja of mikið? Í þættinum spá hagfræðingarnir Una Jónsdóttir, Ari Skúlason og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fyrir um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, ræða verðbólguna, launahækkanir, fasteignamarkaðinn og fleira.

Verslun og þjónusta: Ferðaþjónusta á flugi en vaxta- og verðhækkanir bíta fast 08 Dec 2022

Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þurft að aðlagast sveiflukenndu rekstrarumhverfi á síðasta áratugnum. Ferðamannabylgja, heimsfaraldur og hvað svo? Horfurnar virðast góðar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu en róðurinn hugsanlega þyngri fyrir þau sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði. Í þættinum er fjallað um stöðu verslunar og þjónustu á Íslandi. Þar spjalla saman þær Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar bankans, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði bankans.

Hækkandi stýrivextir og ábyrgð fjármálageirans gagnvart loftslagsvandanum 24 Nov 2022

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær, enda hafa verðbólguhorfur versnað lítillega á síðustu vikum. Hvað þýðir að kjölfesta verðbólguvæntinga hafi veikst og hvenær getur Seðlabankinn slakað á taumhaldinu? Hvernig getur fjármálageirinn brugðist við loftslagsvandanum og hver er ábyrgð hans? Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í nýjasta hlaðvarpsþættinum. Þátturinn er tvískiptur, fyrst ræða hagfræðingarnir Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivexti, verðbólgu og fleira. Í seinni hluta þáttarins kemur Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri bankans, og ræðir við Hildi Margréti og Ara um sjálfbærni í fjármálageiranum og samfélagslegar fjárfestingar.

Kólnandi íbúðamarkaður og breytt lánaumhverfi 03 Nov 2022

Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný. Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði bankans, taka stöðuna á íbúðamarkaði.

Hagspáin – hver er staðan og hvert stefnum við? 21 Oct 2022

Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni. Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist á næstu árum.

Vaxtahækkanir á enda? 06 Oct 2022

Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli? Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í nýjum hlaðvarpsþætti. Þau koma líka inn á kaupmáttarrýrnun í aðdraganda kjaraviðræðna og þróun á íbúðamarkaði. Þá horfa þau út í heim og tala um verðbólgu og vaxtaákvarðanir erlendis og fjaðrafok í Bretlandi eftir að nýr forsætisráðherra boðaði mestu skattalækkanir í 50 ár.

Ekki nóg að huga bara að fjárhagnum 28 Sep 2022

Það er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins. Tjeerd annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærni og hefur verið leiðandi í að meta áhrif af lánum og fjárfestingum bankans (e. impact assessment). Þannig geti bankinn í senn unnið að sjálfbærni og minnkað áhættu til langs tíma. Hann ræðir við Aðalheiði Snæbjarnardóttur, sjálfbærnistjóra Landsbankans og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjá bankanum.

Staðan versnar áður en hún batnar - James Ashley frá Goldman Sachs 07 Sep 2022

Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi. Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðudeildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum.

Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkun? 24 Aug 2022

Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins.

Hagvöxtur í skugga verðbólgu 19 May 2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýjan leik. Það flækir stöðuna talsvert að kjarasamningar eru lausir, á sama tíma og verðbólgudraugurinn herjar á landann.

Af hverju eru stýrivextir að hækka? 05 May 2022

Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.

Íbúðauppbygging á tímum verðhækkana. Hvert stefnum við? 07 Apr 2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka, og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning? Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum.

Hækkandi fasteignaverð og salan á Íslandsbanka 24 Mar 2022

Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

Efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu 10 Mar 2022

Í hlaðvarpinu ræðum við um efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu, viðskiptaþvinganir og þróunina á hlutabréfamarkaði hér heima og erlendis. Mikil óvissa ríkir, sveiflur á mörkuðum, olíuverð er í hæstu hæðum og verðbólguhorfur versna. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, og hagfræðingarnir Ari Skúlason og Gústaf Steingrímsson taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

Efnahagshorfur og stýrivaxtahækkun 10 Feb 2022

Í hlaðvarpinu er fjallað um þróunina á hlutabréfamarkaði, verðbólgu hér heima og erlendis og stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands um 0.75 prósentustig. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Gústaf Steingrímsson hagfræðingur, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

Hækkandi fasteignaverð og yfirvofandi vaxtahækkanir í BNA 27 Jan 2022

Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, áhrif vaxtahækkana í Bandaríkjunum, hækkandi fasteignaverð, atvinnumarkaðinn og efnahagshorfur. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Una Jónsdóttir, okkar helsti sérfræðingur um fasteignamarkaðinn, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

Áhrif Ómíkron og nýtt fjárlagafrumvarp 02 Dec 2021

Í hlaðvarpinu fjöllum við um áhrif nýs afbrigðis af kórónuveirunni á fjármálamarkaði, nýtt fjárlagafrumvarp, nýjar upplýsingar um hagvöxt og fleira. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum og dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans.

Góð uppgjör og loftslagsráðstefnan í Glasgow 04 Nov 2021

Í hlaðvarpinu fjöllum við um lofstlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow og hlutverk fjármálageirans í baráttunni við loftslagsbreytingar. Auk þess tölum við um þróunina á fjármálamörkuðum, góð uppgjör hérlendis og erlendis og fleira. Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, og Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans.

Ný þjóðhagsspá: Kröftugur efnahagsbati hafinn 21 Oct 2021

Í hlaðvarpinu er ítarlega fjallað um nýja þjóðhagsspá Hagfræðdeildar Landsbankans. Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti 2021 og 2022. Ferðaþjónustan er vöknuð úr dvala, horfur eru á sérstaklega góðri loðnuvertíð og atvinnuleysi heldur áfram að minnka. Töluverðar áskoranir eru í ríkisfjármálum og kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga munu knýja á um töluverða hækkun stýrivaxta, áður en aðstæður skapast til að lækka þá á nýjan leik. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

Jákvæð tíðindi af sjávarútvegi og ferðaþjónustu 14 Oct 2021

Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt. Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur í Hagfræðideild taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

Efnahagshorfur og hækkun fasteignaverðs 01 Oct 2021

Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir einn okkar helsti sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

Ítarleg umfjöllun um nýja þjóðhagsspá 27 May 2021

Í hlaðvarpinu er farið yfir nýja þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar 2021-2023. Gert er ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist fyrr en áður var spáð og að landsframleiðslan vaxi um tæp 5% á árinu. Góður gangur í bólusetningum, bæði innanlands og í helstu viðskiptalöndum, bendir til þess að ferðaþjónustan taki fyrr við sér en áður var reiknað með.

Hvað er að gerast á fasteignamarkaði? 29 Apr 2021

Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. M.a. er rætt um verðbólguhorfur og aukna bjartsýni vegna bólusetninga. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn, ræðir ítarlega um þróunina á þeim markaði. Hún bendir á að eftirspurn sé ekki sama og þörf. Íbúðaþörf hafi í raun dregist saman þótt eftirspurn sé mikil og verð hækki. Varasamt sé að byggja inn í eftirspurn sem jókst skyndilega og skynsamlegt væri að horfa í gegnum skammtímasveiflur og byggja í takt við langtímaþörf.