Ungar Mömmur cover

Ungar Mömmur

Ungar Mömmur

Hlaðvarpið okkar heitir ungar mömmur afþví við erum allar þrjár ungar mömmur við vorum allar á aldri í 20-22 ára þegar við áttum okkar fyrsta barn. Við erum samt sem áður ekki bara að fjalla um það að vera ungar mömmur held fáum við til okkar mömmur á öllum aldri til að segja okkur sína fæðingasögu eða eitthvað frá þeirra lífi sem mömmur, einnig fáum við til okkar fagfólk á ýmsum sviðum sem vinna með mömmum eða börnum til að fræða okkur og hlustendur.

Hlaðvarpið okkar heitir ungar mömmur afþví við erum allar þrjár ungar mömmur við vorum allar á aldri í 20-22 ára þegar við áttum okkar fyrsta barn. Við erum samt sem áður ekki bara að fjalla um það að vera ungar mömmur held fáum við til okkar mömmur á öllum aldri til að segja okkur sína fæðingasögu eða eitthvað frá þeirra lífi sem mömmur, einnig fáum við til okkar fagfólk á ýmsum sviðum sem vinna með mömmum eða börnum til að fræða okkur og hlustendur.

18. Viktoría Rós Jóhannsdóttir

0:00 0:00

Þættir

18. Viktoría Rós Jóhannsdóttir 14 Jun 2023

Viktoría Rós kom til okkar og sagði fæðingarsöguna sína og hvernig er að vera einstæð móðir. Hún er með instagramið og hlaðvarpið Einstæð og instagramið @viktoriajohannsd. Framleitt af Podcaststöðinni.

17. Camilla Hjördís Samúelsdóttir 31 May 2023

Yndislega Camilla er ung mamma og á 2 börn, eina dóttur og einn son. Hún segir okkur frá fæðingunni á dóttur sinni en hún var tekin með bráðakeisara. Framleitt af Podcaststöðinni.

16. Helga Reynis. ljósmóðir 24 May 2023

Helga Reynisdóttir er ljósmóðir sem er ein af eigendum Ljósa.is. Hún kom til okkar og sagði okkur aðeins frá sínum fæðingum og fræddi okkur um allskonar sem tengist meðgöngum og fæðingum. Framleitt af Podcaststöðinni.

15. Jóna Guðný Arthúrsdóttir 11 Apr 2023

Jóna er sjúkraþjálfari sem sérhæfir sig í sjúkraþjálfun barna en hún starfar hjá Æfingastöðinni. Hún kom og spjallaði við okkur um axlarklemmu, mýtur og fleira sem tengist sjúkraþjálfun hjá börnum. Framleitt af Podcaststöðinni.

14. Aníta Rós Tómasdóttir 26 Mar 2023

Aníta kom til okkar í spjall og sagði okkur frá meðgöngunni og fæðingunni sinni. Hún á eina dóttur hana Valgerði og er ung mamma eins og við. Framleitt af Podcaststöðinni.

13. Kristín Lind Sigmundsdóttir - Fósturmissir 01 Mar 2023

Kristín Lind kemur og segir okkur frá sinni reynslu á fósturmissi en hún hefur misst þrisvar sinnum á innan við ári. Framleitt af Podcaststöðinni.

12. Brjóstagjöfin 21 Feb 2023

Í þessum þætti ræðum við brjóstagjafirnar okkar og hversu mismunandi þær geta verið. Tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

11. Fyrstu dagarnir eftir fæðingu 14 Feb 2023

Við spjöllum um hvernig fyrstu dagarnir okkar voru eftir fæðingu. Framleitt af Podcaststöðinni.

10. Hvernig er að vera í orlofi 09 Feb 2023

Í þessum þætti spjöllum við um hvernig okkar upplifun á fæðingarorlofi er og komum einnig aðeins inn á þriðju vaktina svo kallaða. Framleitt af Podcaststöðinni.

9. Margrét Unnur Þórarinsdóttir 17 Jan 2023

Margrét er þriggja barna móðir og mamma Jóhönnu. Hún kom til okkar og sagði okkur frá því hvernig var að vera ung mamma fyrir 23 árum síðan og hvernig hún upplifir muninn í dag þegar hún horfir á dóttur sína í sömu sporum. Tekið upp í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

8. Spjallþáttur svefn og matur 14 Jan 2023

Jóhanna og Vigdís taka spjall um hvernig strákarnir eru að sofa, rútínu, hvernig þær byrjuðu að láta strákana sína borða mat og fleira.

7. Berglind Hlíðkvist 04 Jan 2023

Yndislega Berglind kom og spjallaði við okkur, hún á einn strák sem heitir Styrmir sem er fæddur í ágúst 2022. Hún segir okkur frá meðgöngunni sinni og fæðingarsögu sem byrjaði í Björkinni en endaði á Landspítalanum.

6. Aníta Björk Káradóttir 27 Dec 2022

Aníta Björk kom til okkar í spjall og sagði okkur frá sinni fæðingu ásamt því að tala um lífið í dag með langveikt barn, Aníta og Aldís eru algjörar ofurhetjur. Tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

5. Fæðingarsaga - Jóhanna 22 Dec 2022

Náttúrulega af stað, engin mænurótadeifing, annað barn. Tekið upp í Nóa Siríus stúdíói podcaststöðvarinnar.

4. Elín Sigurðardóttur. Hreyfing á meðgöngu og eftir fæðingu 13 Dec 2022

Elín er íþróttafræðingur, sérhæfð í meðgöngu og mömmuþjálfun hún segir frá fæðingarsögunni sinni og talar um hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu.

3. Fæðingarsaga - Alexandra 05 Dec 2022

Fæðing, meðganga, háþrýstingur, töflugangsetning og fleira.

2. Fæðingarsaga - Vigdís 28 Nov 2022

Meðganga, fæðing, sykursýki týpa 1, ballongangsetning, sogklukka og vökudeild.

1. Kynningaþáttur 28 Nov 2022

Kynning á okkur og podcastinu.