Vísindavarp Ævars cover

Vísindavarp Ævars

RÚV

Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri. Umsjón: Ævar Þór Benediktsson.

Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri. Umsjón: Ævar Þór Benediktsson.

Flöskuskeyti!

0:00 0:00

Þættir

Flöskuskeyti! 24 May 2017

Bæði flöskuskeyti Ævars og Verkís eru komin aftur heim til Íslands. Ævar segir frá ferðalaginu og fær svo Arnór Þóri Sigfússon frá Verkís í heimsókn til að útskýra betur hvernig í ósköpunum skeytin virka. krakkaruv.is/aevar krakkaruv.is/floskuskeyti

Vísindamenn óska eftir fleiri heilum 10 May 2017

Vísindafréttir verða allsráðandi í Vísindavarpi dagsins. Vísindakonu-LEGO, jógúrt og óeðlilega flókið hár eru bara nokkrar af fréttunum sem við ætlum að skoða. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan www.hvatinn.is krakkaruv.is/aevar

Skjaldbökur og mengun sjávar 26 Apr 2017

Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við mengun sjávar og skoðum skjaldbökur. krakkaruv.is/aevar

Fuglar og fuglaskoðun 12 Apr 2017

Í Vísindavarpi vikunnar skoðar Ævar fugla og hvernig maður getur skoðað þá. Sérstakar þakkir fær Fuglavernd. krakkaruv.is/aevar

Geimrusl, hjólabretti og tíu tær 29 Mar 2017

Í Vísindavarpi dagsins fjöllum við m.a. um fyrsta geimfarið, geimrusl, hvers vegna við höfum tíu tær og tíu fingur og svo skoðum við sögu hjólabrettisins. Sérstakar þakkir fær Vísindavefur HÍ. krakkaruv.is/aevar

Talandi apar og ofurhetjuhvalir 15 Mar 2017

Í Vísindavarpi vikunnar rannsökum við hvernig apar myndu hljóma ef þeir gætu talað, hvers vegna hvalir eiga það til að bjarga öðrum dýrum, við skoðum skó úr plastrusli og veltum því fyrir okkur hvort hundar séu í alvörunni með samviskubit þegar þeir setja upp skömmustulegan svip. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is krakkaruv.is/aevar

Nýtt sólkerfi! 01 Mar 2017

Fyrir stuttu síðan fundu vísindamenn glænýtt sólkerfi! Ævar fær Sævar Helga Bragason stjörnufræðing í heimsókn og spyr hann allt milli himins og jarðar um þessa merku uppgvötun. krakkaruv.is/aevar

Dularfull geimhljóð 15 Feb 2017

Í Vísindavarpi dagsins hlustar Ævar á furðuleg hljóð úr geimnum, skoðar kosti þess að horfa á kattamyndbönd á netinu og rannsakar skordýralýsi. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is http://krakkaruv.is/aevar

Uppvakningar, risaeðlur og flugufótspor 01 Feb 2017

Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar uppvakninga og risaeðluegg, geimfara, flugufótspor og fimm sekúndna regluna. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is. http://krakkaruv.is/aevar

Málvísindi 18 Jan 2017

Í Vísindavarpi dagsins skoðum við hvernig tungumál verða til, hvað esperantó er eiginlega (Vísbending: Esperantó ekki eitthvað sem þú pantar á kaffihúsi) og hvert fallegasta íslenska orðið sé. http://krakkaruv.is/aevar

Vísindafréttir 04 Jan 2017

Í þættinum verður farið yfir helstu vísindafréttir í heiminum í dag; Farsímar sem tengja má við heilann, umhverfisvænar líkkistur og tónlist fyrir ketti er bara brotabrot af því sem við fjöllum um í Vísindavarpi dagsins. http://krakkaruv.is/aevar

Málið.is 21 Dec 2016

Í Vísindavarpi dagsins setjum við íslenska tungumálið undir smásjánna og spjöllum við Evu Maríu Jónsdóttur, miðaldafræðing og starfsmann hjá Stofnun Árna Magnússonar. www.krakkaruv.is/aevar

Saga tölvunnar - Seinni hluti 07 Dec 2016

Ævar heldur áfram að fjalla um sögu tölvunnar, internetið og erfiðasta tölvuleik sögunnar. http://krakkaruv.is/aevar

Saga tölvunnar - Fyrri hluti 23 Nov 2016

Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við sögu tölvunnar. http://krakkaruv.is/aevar

Af vingangi og öðrum gangtegundum 09 Nov 2016

Í þætti dagsins rannsökum við hvernig piss getur hlaðið farsíma, skoðum hvort hægt sé að flýja fret og veltum því fyrir okkur hvernig það myndi ganga að fljúga flugvél á annarri plánetu. http://krakkaruv.is/aevar

Alls konar vísindi 26 Oct 2016

Í Vísindavarpi dagsins förum við um víðan völl. Við skoðum alls konar vísindi, fjöllum um stærðfræði og hvers vegna hún er mikilvæg, skoðum hrakfarir vísindamanna, rannsökum tilfinningar og merkjum mörgæsir. http://krakkaruv.is/aevar

Út í veður og vind 12 Oct 2016

Elín Björk Jónasdóttir frá Veðurstofu Íslands kíkir í heimsókn og talar um hvernig maður lærir að verða veðurfræðingur, svarar spurningum um eldingar og segir frá því þegar hún elti skýstróka! http://krakkaruv.is/aevar

Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir 28 Sep 2016

Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri karla og konur úr sögu vísindanna. Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir koma við sögu, ásamt manninum sem bjó til lotukerfið. http://krakkaruv.is/aevar

Eldflaugastelpur og aðrar vísindakonur 14 Sep 2016

Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri merkilegar konur úr sögu vísindanna. http://krakkaruv.is/aevar

Sögur af forritun og hvernig á að haga sér á netinu 31 Aug 2016

Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer Ævar yfir sögu internetsins og hvernig maður á að haga sér á því. http://krakkaruv.is/aevar

Á íslensku má alltaf finna svar ... 09 Jun 2016

Í þætti dagsins kemur málvísindamaðurinn Bragi Valdimar Skúlason í heimsókn og segir okkur frá því hvers vegna honum finnist íslenska svona skemmtilegt tungumál. Svo ætlum við líka að skoða hvernig tungumál verður til. http://krakkaruv.is/aevar

Jörð í hættu 08 May 2016

Í þættinum í dag fáum við góðan gest; Margréti Hugadóttur. Hún ætlar að segja okkur frá verkefninu ,,Jörð í hættu!?" Að spjallinu loknum skoðum við svo risastórar plasteyjar. http://krakkaruv.is/aevar

Geimverur og grýlukerta-geimfarar 24 Apr 2016

Í dag ætlum við að fjalla um geiminn. Við veltum því fyrir okkur hvort geimverur séu til, skoðum hvað gerist ef geimfari deyr í geimnum og rannsökum flottasta stjörnusjónauka í heimi (og geimi). http://krakkaruv.is/aevar

Mistök og múmíur 20 Apr 2016

Í þættinum í dag ætlum við að tala um mistök, bæði góð og slæm. Við opnum líka póstkassann og rannsökum múmíur.

Út fyrir endimörk alheimsins! 06 Apr 2016

Í dag fáum við góðan gest í heimsókn; engan annan en Sævar Helga Bragason stjörnufræðing.

Enn fleiri konur í vísindum 23 Mar 2016

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um vísindamenn úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur. Við skoðum fyrstu konuna sem fór út í geim, fjöllum um hina einu sönu Jane Goodall og svo ætla ég að segja ykkur frá ótrúlega merkilegri konu sem fann upp alveg ótrúlega merkilegt efni.

Enn fleiri vísindamenn 09 Mar 2016

Í þættinum í dag ætlum við að tala um fræga vísindamenn úr mannkynssögunni. Við skoðum Wright-bræður sem bjuggu til fyrstu flugvélina, Carl Linné, föður flokkunarfræðinnar og svo rannsökum við eðlisfræðinginn Niels Bohr, sem kom að hönnun kjarnorkusprengjunnar.

Risaeðlur 24 Feb 2016

Ævar fær afar áhugavert bréf í póstinum um risaeðlur og óskabein. Svo skoðar hann líka hvað það þýðir að vera í útrýmingarhættu.

Hor, farartæki og gróðurhúsaáhrif 10 Feb 2016

Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar hor, fjallar um sögu farartækjanna og rannsakar gróðurhúsaáhrif.

Ef ég væri orðin lítil fluga... 27 Jan 2016

Í þætti dagsins fjallar Ævar um flugur. Ólöf Haraldsdóttir, býflugnabóndi, kíkir í heimsókn og segir okkur frá því hvernig maður ræktar býflugur á Íslandi og svo segir Ævar okkur frá hræðilegum Vitsugu-vespum! http://www.krakkaruv.is/aevar

110 þúsund plastpokar á dag! 13 Jan 2016

Í þætti dagsins fjöllum við um jörðina okkar og hvernig henni líður. Rakel Garðarsdóttir kemur í heimsókn, en hún er algjör sérfræðingur í því hvernig má hugsa betur um umhverfið og í lok þáttarins les ég alls kyns upplýsingar um rusl - m.a. að við Íslendingar hendum um 110 þúsund plastpokum á dag! http://www.krakkaruv.is/aevar

Áramótaþáttur Ævars! 30 Dec 2015

Gleðilegt nýtt ár! Í þessum síðasta þætti ársins 2015 rannsakar Ævar flugelda og hvernig þeir komast eiginlega á loft. Hann fær tvo góða gesti frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í heimsókn og spjallar við þau um öryggi og hvers vegna maður má alls ekki fikta í flugeldum. Í lok þáttarins flytur hann svo hið ótrúlega (og vonandi árlega) áramótaávarp Ævars.

Að baka regndropa 16 Dec 2015

Í þætti dagsins ætlar Ævar að kenna okkur að baka regndropa og búa til okkar eigin jökul. Við skoðum líka íslensk skrímsli og heyrum sögu af ótrúlegu skeljaheimsmeti!

Ævar á afmæli 09 Dec 2015

9. desember á Ævar afmæli og þess vegna ætlar hann að rannsaka afmælisdaga, heimsins stærstu afmælistertu og heimsækja gömlu sveitina sína sem hann ólst upp í þegar hann var lítill: Borgarfjörðinn.

Kartöflustöpputilraunir og risafótboltar 25 Nov 2015

Í Vísindavarpi dagsins verður farið um víðan fótboltavöll. Við skoðum sögu þessarar vinsælu íþróttar á milli þess sem við gerum tilraunir og skoðum hinar ýmsu stórhættulegu þjóðsagnapersónur.

Hvalir, göng og dýpsta hola í heimi! 11 Nov 2015

Ævar rannsakar Kjalarnesið, Hvalfjörðinn og hin hættulega djúpu Hvalfjarðargöng. Hann segir okkur þjóðsögu af stórhættulegum hval og kíkir ofan í dýpstu holu í heimi.

Hættulegasti staður í heimi 28 Oct 2015

Ævar fær sent bréf þar sem spurt er um hættulegasta stað í heimi. Þetta er frábær spurning, en um leið spurning sem ekki er hægt að svara í einni setningu. Fyrst þarf að skoða heiminn, svo hvað er hættulegt og svo - á einhvern ótrúlegan hátt - bætast hákarlar í spilið. Hlustaðu ef þú þorir!

KrakkaRÚV og internetið 14 Oct 2015

Ævar rannsakar internetið og allt (eða svona næstum því) sem því tengist. Hver var til dæmis fyrsti tölvupósturinn og hvað stóð í honum? Ævar spjallar líka við Sindra Bergmann Þórarinsson, KrakkaRÚV-stjóra, en Sindri er algjör netsérfræðingur.

Sprengju-Kata 30 Sep 2015

Í dag fær Ævar bestu vinkonu sína í heimsókn, hana Katrínu Lilju - betur þekkta sem Sprengju-Kötu. Hann spyr hana um allt milli himins og jarðar, en þó sérstaklega út í það hvernig maður verður vísindamaður.

Risastórir hlaupbangsar og svefnsnuddur 23 Sep 2015

Ævar kennir okkur þrjár tilraunir og opnar póstkassann sinn - sem er hreinlega að springa!

Dagur íslenskrar náttúru 16 Sep 2015

Í þættinum í dag setjum við náttúru Íslands undir stækkunarglerið.

Af goshverum og kindum 09 Sep 2015

Í þætti dagsins fjallar Ævar um goshveri, kindur, Perluklifur og hvað maður á eiginlega að gera ef það er svakalega vont veður úti.

Kíkt í póstkassann 26 Aug 2015

Ævar opnar póstkassann sinn og svarar bréfum frá hlustendum. Hér verður talað um ketti og mannsheilann, ís sem skiptir um lit og risaskordýr.

Þingvellir 19 Aug 2015

Ævar heimsækir Þingvelli, dembir sér á bólakaf í Íslandssöguna, rannsakar Alþingi (það er skemmtilegra en það hljómar, ég lofa) og veltir fyrir sér jarðfræðinni á bak við þennan merkilega stað. www.ruv.is/aevar

Frá galdrafári til vélmenna 12 Aug 2015

Við förum um víðan völl í vísindavarpi dagsins: Fjarflutningur, vélmenni, uppvakningar og galdrafár koma við sögu. Hlustaðu á þáttinn til að heyra meira.

Eureka! 05 Aug 2015

Í þessum þætti rannsakar Ævar fjóra merka vísindamenn úr mannkynssögunni; Arkímedes, Leonardi Da Vinci, Charles Darwin og Albert Eintstein. www.ruv.is/aevar

Í grænum sjó 29 Jul 2015

Ævar rannsakar hafið, hvað býr þar, mengun af mannavöldum, LEGO-sjóslys og svaðilför til Surtseyjar.

Konur í vísindum 22 Jul 2015

Í Vísindavarpi dagsins segir Ævar frá merkilegum vísindamönnum úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur.

Háspenna/Lífshætta 15 Jul 2015

Þáttur dagsins er einstaklega hættulegur. Hvað ætlarðu að gera ef þú lendir á eyðieyju? En ef þú sekkur í kviksyndi? Ævar segir sögur af lirfum, slími, flöskuskeytum og hversu erfitt er að velja góða útvarpsstöð sem allir í bílnum eru sáttir við þegar maður er á ferð um landið.

Framtíðin 08 Jul 2015

Í þætti dagsins veltir Ævar fyrir sér framtíðinni, hverju var búið að lofa okkur og hverju við gætum átt von á. Við fjöllum um geislasverð, svifbretti og geimferðir, klónun, risaeðlur og draumalesara. Allt þetta og miklu meira til!