Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp cover

Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp

Von ráðgjöf - Lausnin hlaðvarp

"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.

"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.

Átakapunktur 2

0:00 0:00

Þættir

Átakapunktur 2 21 Aug 2025

Send us Fan Mail 🎙️ Átakapunktur #2 – Fjórir reiðmenn og hvað við getum gert í staðinn Í þessum þætti förum við í gegnum fjóra hegðunarmynstur sem samkvæmt rannsóknum Gottman-hjónanna geta spáð fyrir um sambandsslit – ef ekkert er gert. Þetta eru „Fjórir reiðmenn“: gagnrýni, varnarviðbrögð, fyrirlitning og lokun. En það er von ✨ – því fyrir hvern og einn er til gagnlegt andsvar sem hjálpar pörum að tengjast á ný, byggja upp traust, öryggi og virðingu í sambandinu. Við ræðum dæmi, lausnir og æfingar sem pör geta notað strax í dag til að snúa ágreiningi í styrk. 👉 Endilega deildu þættinum með öðrum #átakapunktur #fjörirreiðmenn #gottman #pararáðgjöf #vonráðgjöf

Átakspunktur #1 – Að skilja sjónarhorn maka (Gottman-Rapoport aðferðin) 11 Mar 2025

Send us Fan Mail Lýsing: Í þessum hlaðvarpsþætti förum við yfir hvernig hægt er að leysa ágreining í samböndum á uppbyggilegan hátt, áður en reynt er að “sigra” í rifrildi. Við skoðum Gottman-Rapoport nálgunina, innblásna af rannsóknum John Gottman, sem snýst um að hlusta og draga saman sjónarmið hins aðila áður en við reynum að svara fyrir okkur eða sannfæra makann um eitthvað. Hvað lærir þú? • Skipta um hugarfar: Hvernig forvitni og opin hugarfarsbreyting getur dregið úr varnarviðbrögðum. • Hlutverk þess sem talar: Notkun “ég”-setninga, að forðast ásakanir og tjá raunverulega þörf. • Hlutverk þess sem hlustar: Að taka punkta, draga saman og staðfesta tilfinningar — allt til að auka traust og tengingu. • Fresta sannfæringu: Af hverju það er svo gagnlegt að skilja sjónarhorn maka fyllilega áður en maður reynir að koma sínum rökum á framfæri. • Ávinningurinn: Hvernig þessi samskiptaaðferð skapar meiri nálægð, dregur úr misskilningi og styrkir sambandið til lengri tíma. Ef þú vilt uppgötva raunvirka leið til að læra að hlusta betur og minnka togstreitu í sambandinu þínu er þessi þáttur fyrir þig! Við förum í gegnum helstu aðferðir, algeng mistök og rannsóknarniðurstöður sem sýna hversu áhrifarík Gottman-Rapoport nálgunin er til að bæta samskipti og auka nánd. Slökkvum eldana með skilningi í stað varnartilfinninga – hlustaðu og fáðu verkfæri til að styrkja samskiptin þín enn frekar!

Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 2 af 2 23 Jan 2025

Send us Fan Mail Hvernig getur líkamleg hreyfing bætt bæði líkamlega og andlega vellíðan? Í þessum þætti köfum við ofan í hvernig hreyfing getur hjálpað við að draga úr streitu, þunglyndi og kvíða, og hvernig hún styður við bataferli eftir áföll. Við fáum til okkar sérfræðing í líkamsrækt til að svara mikilvægum spurningum um hvernig hægt er að byrja, forðast algeng mistök og finna jafnvægi milli hreyfingar, mataræðis og andlegrar heilsu. Þú munt fá innsýn í: •Hvaða tegundir hreyfingar henta best fyrir andlega heilsu. •Hvernig á að byggja upp sjálfbæra rútínu, jafnvel á erfiðum dögum. •Hagnýt ráð til að finna hreyfingu sem veitir gleði og vellíðan. •Hvernig líkamleg og andleg heilsa vinna saman til að skapa jafnvægi í daglegu lífi. Við tökum einnig fyrir spurningar frá hlustendum um hvernig hægt er að styðja maka, byggja upp fjölskylduheilsu og setja raunhæf markmið fyrir nýtt ár. Þetta er þátturinn fyrir þig ef þú vilt byrja á nýju heilsuferðalagi, dýpka skilning þinn á hreyfingu sem verkfæri fyrir vellíðan eða einfaldlega fá hvatningu til að halda áfram. https://fafitness.is/ #HeilbrigðSál #HrausturLíkami #HreyfingOgVellíðan #Markmið2024

Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 1 af 2 06 Jan 2025

Send us Fan Mail „Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan“ Í þessum þætti förum við yfir hvernig þú getur nálgast líkamlega og andlega heilsu á markvissan hátt, sett raunhæf markmið fyrir nýtt ár, og fundið leiðir til að styrkja sambönd þín. Við deilum okkar persónulegu vegferð að vellíðan og gefum hagnýt ráð sem hjálpa þér að gera 2024 að besta árinu þínu. Við fjöllum einnig um hvernig hægt er að takast á við áskoranir tengdar tengdafjölskyldum, byggja upp heilbrigð mörk og eiga árangursríkar samræður við maka. Lærðu að styrkja sambandið þitt og skapa jafnvægi í lífi þínu með litlum, en áhrifaríkum skrefum. Við minnum einnig á Stefnumót mánaðarins! •Njóttu 20% afsláttar af matseðli á Grazie og upplifðu ítalska stemningu í hjarta borgarinnar. Tilboð gildir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. •Eða slakaðu á með makanum í Laugar Spa, þar sem þú færð tvo fyrir einn í aðgang alla daga í janúar. #HeilbrigðSál #HrausturLíkami #Tengdafjölskyldur #Sambandsráð #2024Markmið #StefnumótMánaðarins

Jólaþáttur um það sem getur verið erfitt við jólin 19 Dec 2024

Send us Fan Mail Þáttur 2: "Að finna merkingu og lækningu á jólunum" Í þessum þætti skoðum við leiðir til að finna huggun og merkingu á hátíðinni. Við fjöllum um: Að takast á við missi: Aðferðir til að heiðra minningu ástvina og finna huggun í minningum. Fimm stig sorgar Mikilvægi samfélagsstuðnings og að forðast einangrun Hlutverk samskipta: Ráð fyrir opin og heiðarleg samskipti um jólaplön og væntingar Áhersla á þakklæti og árangursrík samskipti til að styrkja tengsl Sjálfsumönnun á jólunum: Hagnýt ráð fyrir líkamlega og andlega heilsu Mikilvægi sjálf-góðvildar og núvitundar Að finna merkingu í hátíðinni: Andlegir og tilfinningalegir þættir jólanna Ávinningur af góðverkum og hvernig þau auka vellíðan og félagsleg tengsl Fyrstu jólin eftir skilnað: Tilfinningalegar áskoranir og nýjar hefðir Mikilvægi sterkra stuðningskerfa fyrir seiglu og vöxt Vertu með okkur þar sem við deilum persónulegum sögum og innsýn til að hjálpa þér að sigla um þessa hátíð með von og lækningu.

Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun 04 Dec 2024

Send us Fan Mail Í þessum þætti könnum við gleðina af jólasiðum og hvernig þeir móta sjálfsmynd okkar og styrkja fjölskyldutengsl. Við skoðum alþjóðlega jólasiði til að fá innblástur að skapa nýjar hefðir sem endurspegla nútíma fjölskyldudýnamík og gildi. Við ræðum mikilvægi hefða í að veita fyrirsjáanleika og öryggi, sérstaklega fyrir börn, og deilum persónulegum sögum um kærar fjölskylduhefðir. Við fjöllum einnig um þrýsting fjölmiðla um "fullkomin" jól og leggjum áherslu á að forgangsraða tengslum og persónulegum vexti fram yfir efnisleg gildi. Lærðu hagnýt ráð til að stjórna væntingum, eins og fjölskyldufundi og þakklætislista, til að auka jólánægju. Að halda utan um fjölskyldutengsl getur verið áskorun á jólunum. Við ræðum hugtakið fjölskyldukerfi og "þríhyrninga" samskipti sem valda spennu. Að finna jafnvægi á tíma er lykilatriði fyrir ánægjulega jólahátíð. Við leggjum áherslu á gildi gæðatíma með ástvinum og sjálfsumönnun, og veitum hagnýt ráð fyrir að skapa jafnvægi í jólaskipulagningu. Að lokum hvetjum við til að skapa nýjar minningar skemmtilega minningar með þínu fólki. Taktu þátt í athöfnum sem stuðla að vellíðan og fangaðu gleði hátíðarinnar.

Hvernig förum við að því að eyðileggja EKKI parsambandið 01 Nov 2024

Send us Fan Mail Útdráttur: Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl.Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. Við hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf Meira um green cola: https://us.greencola.com/

Framhjáhald: Mismunandi birtingarmyndir og áhrif á sambönd 13 Oct 2024

Send us Fan Mail Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum Í þessum þætti ræða Barbara og Baldur, stjórnendur hlaðvarpsins Von ráðgjöf um fjölbreyttar tegundir framhjáhalds í parsamböndum sbr., líkamlegt, tilfinningalegt og andlegt framhjáhald. Hvernig getum við greint þessi form framhjáhalds, og hvaða áhrif hafa þau á parsambandið? Hlustendur fá innsýn í hvernig tilfinningalegt framhjáhald, sem oft byrjar sem saklaus vinátta, getur vaxið í eitthvað miklu dýpra. Sérstaklega áhugavert er hvernig klámnotkun getur skapað tilfinningalega fjarlægð og orðið form af tilfinningalegu og andlegu framhjáhaldi, í þættinum skoða B&B líka hvernig andlegt framhjáhald – þegar einhver verður hugfangin af hugsunum/fantasíum sínum – getur valdið sundrungu í samböndum. Í þættinum verður einnig rýnt í hvernig sambönd geta náð bata eftir framhjáhald og hvernig pör geta unnið saman að því að endurheimta traust og tengsl. Hlustið á þáttinn og fáið innsýn inn í hvort og þá hvernig meðferð getur hjálpað pörum að takast á við þessa erfiðu reynslu. Lykilorð: • Framhjáhald í samböndum • Líkamlegt framhjáhald • Tilfinningalegt framhjáhald • Klám og svik • Andlegt framhjáhald • Traust og nánd • Sambandsráðgjöf

Ágreiningur sem leiðir til dýpri tengingar 06 Sep 2023

Send us Fan Mail Hér förum við yfir hvernig við getum styrkt parsambandið með uppbyggilegum hætti þrátt fyrir átök. Við lærum að takast á við ágeining – um leið og hann kemur upp Við lærum að meta aðstæður, er þetta eitthvað sem er vert að ræða og leysa? Við lærum að hvað það þýðir að vera vistaddur á meðan á ágreiningi stendur Við lærum að setja grunnreglur í samskiptum á meðan á ágreiningi stendur Við lærum aðferð/ir til að ná okkur niður í hita leiksins og róa okkur niður Við lærum inn á árangursríka samskiptahæfni – t.d. að nota ég staðhæfingar Við lærum einnig „viðgerð eftir átök“ – „do you wan´t to be right or do you wan´t to be happy? Munið að við erum komin á youtube

Gildi - Von 18 Oct 2022

Send us Fan Mail í þessum þætti förum við yfir Gildi Vonarinnar. Fjöllum um mikilvægi þess að eiga von, Vonina sem er vogaraflið milli þess mögulega og ómögulega. Við leitumst líka við að svara spurningu sem kom inn frá einum hlustanda. Eigið góða daga framundan.

Gildi Tengsl 06 Oct 2022

Send us Fan Mail I þessum þætti ætlum við að ræða um tengsl og ávinning þess að eiga í góðum tengslum við fólk sem að marga ef ekki að allra mati er lífsnauðsynlegur þáttur til að öðlast hamingju. Endilega deilið þessu fyrir okkur! Hérna er meira um píramýda Maslow https://www.simplypsychology.org/maslow.html

Gildi sjálfsmynd 27 Sep 2022

Send us Fan Mail Í þessum þætti tölum við um gildi Sjálfsmyndar. Hversu mikilvægt það er að eiga heilbrigða og sterka sjálfsmynd og ávinninginn af því að stuðla að heilbrigðri sjálfsmynd. Við vonum að þið njótið vel og þökkum kærlega fyrir hlustunina.

Gildi Taumhalds 13 Sep 2022

Send us Fan Mail í þessum þætti tölum við aðeins um að hafa stjórn á orðum okkar. Það sem við segjum getur haft ótrúlega sterk og mikil áhrif á fólk í kringum okkur. Annað hvort slæm eða góð. Taumhald er þjálfun sem fæst með stöðugri og samviskulegri ástudnun. Við höfum getuna til að skapa góðar jafnt sem slæmar aðstæður með mættinum sem liggur í orðum okkar. Gættu þess því hvaða orð líða af vörum þínum: Framtíð þín veltur á því!

Gildi þess að hlusta 10 May 2022

Send us Fan Mail Í þessum þætti förum við yfir gildið að hlusta og áhrif þess á okkur sem einstaklinga og pör. Getur það haft áhrif á raunveruleika okkar sem og samskipti að læra að hlusta á aðra? Endilega deilið þættinum fyrir okkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur.

Gildi þess að skilja fólk 14 Apr 2022

Send us Fan Mail Í þessum þætti förum við yfir gildi þess að skilja fólk. Við munum ræða um tengslamiðuð samskipti í þessari nýju þáttaröð.

Úr Heljargreipum - Ævisaga Baldurs Freys 16 Nov 2021

Send us Fan Mail Jæja það hlaut að koma að því að við færum yfir upphafið. Hérna kemur það. Við viljum bjóða hlustendum okkar að versla bókina á https://baldurfreyr.is Notist við afsláttarkóðan von og fáið 10% afslátt og auk þess fáið þið fría heimsendingu. Veljið bara að sækja bókina og sendið okkur póst á baldur@lausnin.is Njótið og deilið :)

Loksins aftur! 24 Aug 2021

Send us Fan Mail Vá hvað við erum búin að sakna ykkar!

Sjálfsvirði vs Sjálfsálit 03 May 2021

Send us Fan Mail Við tölum aðeins um hvað það þýðir að hafa virði, erum við öll jöfn? Hvað hefur áhrif á það hjá mér? Hvernig hafa áföll áhrif á mig og hvað er til ráða :) Njótið

Fjórir reiðmenn hamfaranna - Gottmann 02 Dec 2020

Send us Fan Mail Þessi reiðmenn eru ferlegir! Reiðhestur no 1 Gagnrýni, Reiðhestur no 2 Vörn Reiðhestur no 3 Fyrirlitning Reiðhestur no 4: Steinveggur

Endurtökum litlu hlutina - Gottmann 14 Sep 2020

Send us Fan Mail “Áður en leiðir skilja og 6 sek kossinn” Áður en leiðir skilja á morgnanna, verjið 2 mín í að spjalla við maka ykkar til að uppgötva allavega einn áhugaverðan viðburð sem mun eiga sér stað um daginn hjá honum/henni. Munið svo að kveðja hvert annað með kossi sem endist allavega í 6 sekúndur (þekktur sem 6 sek. kossinn). Þetta gerið þið svo alla virka daga. “Aðdáun/ástúð og þakklæti/þakklátssemi” Til að viðhalda innilegu parsambandi þurfum við að gera og tjá ákv. þætti/hluti. Það er ekki nóg að hafa góðar, þekklátar hugsanir um makann, það er mjög mikilvægt að orða þær upphátt og láta hann/hana vita. Regluleg tjáning aðdáun og þakklæti gagnvart maka hjálpar okkur að byggja upp ástargrunn. Hér eru nokkrar aðferðir til þess: · Deildu einhverju karaktereinkenni maka og ákv. atvik þar sem þetta karaktereinkenni kemur sterkt fram: Dæmi: Ég dáist að því hvað þú ert (umhyggjusöm, nærgætin, góð, kröftug, blíð, ljúf og skilningsrík) sérstaklega áðan þegar þú varst að leika við barnið okkar. · Gríptu maka þinn að því að gera eitthvað “rétt” og þakkaðu fyrir það · Sendu tölvupóst/sms eða hringdu yfir daginn og láttu maka þinn vita að þú sért að hugsa til hans/hennar · Stingdu skrifaðri ástarkveðju í bílinn/veskið hennar/hans Heilsaðu maka þínum með kossi þegar þið hittist. Finnið svo tíma þar sem þið getið átt samræður sem losa um streitu í líkamanum Árangur ykkar til að halda utan um streitu skiptir sköpum fyrir parsambandið. Rannsóknir hafa sýnt að pör sem hafa náð að halda utanaðkomandi streitu frá parsambandinu sínu eins og hægt er gátu viðhaldið jákvæðum breytingum í sambandinu til lengri tíma.

Gottman við lærum að hlusta 09 Jul 2020

Send us Fan Mail Makinn hlustar ekkert á mig. Við heyrum þessa setningu svo oft og er hun grunnurinn að tengslaleysi. Í þessum þætti skoðum við hvernig ég get orðið góður hlustandi! Æfið ykkur endilega á þessu1 Spurningar sem þú getur spurt á meðan þú hlustar: 1. Hvað ertu að upplifa? 2. Hvað annað ertu að upplifa? 3. Hverjar eru grunnþarfir þínar hérna? 4. Hvers óskar þú þér helst? 5. Hvernig þróaðist þetta allt? 6. Hverjir eru aðal karakterarnir í þessum grunn tilfinningum sem þú ert að tala um? 7. Hvað viltu raunverulega segja hérna? Og við hvern? 8. Hvaða tilfinningar eru hér sem þú óttast að tala um? 9. Eru einhverjar blandaðar tifinningar hér? Hverjar eru þær? 10. Hverjir eru valmöguleikar þínir eins og þú sérð þá? 11. Hverjir eru + og - við valmöguleika þína? 12. Upplifir þú að þetta hafi haft áhrif á samband þitt (eða önnur sambönd) ef svo, hvernig? 13. Er einhver möguleiki á að þú hafir viljað gera hlutina öðruvísi? Ef svo, hvernig? 14. Hverjar eru skyldur þínar hér? 15. Áttu einhverja möguleika? 16. Hvers væntir þú af mér? 17. Hvað segja gildi þín þér hérna? 18. Hugsaðu um einhver sem þú lítur upp til, hvað myndi hann eða hún gera og hvernig myndi viðkomandi sjá þessar aðstæður? Tjá skilning og samkennd á meðan þú hlustar: 1. Ég get sett mig í þín spor 2. Þú hlýtur að upplifa þessar aðstæður erfiðar/vonlausar 3. Þú ert í erfiðum aðstæðum hérna 4. Ég get fundið sársauka þinn 5. Ég vildi óska að þú þyrftir ekki að upplifa þetta 6. Þetta hljómar virkilega illa og hlýtur að taka á 7. Þú hlýtur að upplifa þig hjálparlausa/n 8. Ég er algjörlega sammála þér 9. Þú hljómar virkilega sannfærandi 10. Ég skil mjög vel að þú sért í uppnámi 11. Ég held þú hafir rétt fyrir þér hérna 12. Ég skil, leyfðu mér að draga þetta saman, það sem þú ert að upplifa hér er... Hlustunar æfing: Skiptist á að spyrja hvert annað þessara spurninga: Notaðu þá listann á undanförnum bls. til að hjálpa þér að verða góður hlustandi Segðu mér hvað í heiminum fær þig til að upplifa þessar tilfinningar: Reiði sorg hrædd/ur/áhyggjufull/ur vonglaða/n Hamingjusama/n Bjartsýn/n Örvængingarfull/ur Streitufulla/n

39. Dagleg samskipti sem stuðla að tengingu 30 Mar 2020

Send us Fan Mail Dagleg samskipti okkar við makan stuðla að því að við lærum að tengjast! Þessi samskiptauppskrift heldur okkur frá ágreiningi

38. Hvernig getum við lært af átökum/rifrildum í samskiptum 23 Mar 2020

Send us Fan Mail Það eru margar leiðir til að læra af átökum sem við eigum í við ástvini okkar. Þessi þáttur fer í að útskýra nokkrar aðferðir

37. Hvenær er rétti tíminn að fara í ráðgjöf? 16 Mar 2020

Send us Fan Mail Við þurfum öll að fara í ráðgjöf :)

36. Makinn minn kemur ekki eins fram við mín börn og sín börn 03 Mar 2020

Send us Fan Mail Mín börn og þín börn! Við leitumst við að skoða þetta aðeins saman. Munum bara að tengsl eru það sem allir þrá!

35. Hvað á ég að gera við allar þessar tilfinningar 24 Feb 2020

Send us Fan Mail Við tölum aðeins um tilfinningar og raunveruleika þeirra :) Endilega deilið þessu fyrir okkur :)

34. Ég upplifi að makinn minn elski mig ekki lengur 17 Feb 2020

Send us Fan Mail Fyrst langar okkur að þakka þér fyrir að deila þessu hlaðvarpi með öðrum! Það er ótrúlega hvetjandi að heyra viðbrögð ykkar allra! Þið megið endilega gefa okkur umsögn á Itunes :) Við svörum spurningu frá hlustanda í þessum þætti og förum vel í það hversu mikilvægt það er að laga samskiptin þegar við erum farin að upplifa að makinn elski okkur ekki lengur. Við minnum á námskeið sem við erum með 18. apríl Haltu mér þétt hægt að kaupa miða á Lausnin.is

33. Gleði færni 13 & 14 10 Feb 2020

Send us Fan Mail Við höldum áfram að tala um gleðina og mikilvægi hennar í okkar daglega lífi. 1. Mikilvægi þess að sýna samkennd eða hjartans meðaumkun og sjá hlutina með hjartasýn okkar. 2. Mikilvægi þess að sleppa sjálfshyggjunni sem er andstæða hjartasýnar Endilega deilið þessu fyrir okkur og njótið :)

32. Gleði færni 10 - 12 03 Feb 2020

Send us Fan Mail Við höldum áfram að tala um gleðina. Við tölum hérna um hversu mikilvægt er að vera með orðlaus samskipti sem eru líkamstjáning okkar og raddblær. Við tölum um mikilvægi þess að láta ekki tilfinningarnar okkar ráða og halda okkur í vanlíðan. Hvernig við getum haldið okkar auðkenni þrátt fyrir að upplifa slæmar tilfinningar!

31. Gleði færni 8 & 9 27 Jan 2020

Send us Fan Mail Við höldum áfram að tala um gleðina!

30. Gleði færni 6 & 7 20 Jan 2020

Send us Fan Mail Við höldum áfram að tala um gleðina. Sjá kjarnavirði sársaukans og segja samstillta frásögu eru gildi vikunnar.

29. Gleði Færni 3 - 5 13 Jan 2020

Send us Fan Mail Við höldum áfram að dvelja við þetta frábæra viðfangsefni. Gleðin er eitthvað sem við getum þjálfað heilan okkar uppí að læra. Við tölum um að móta tengsl fyrir tvo, skapa umhverfi þakklætis og fjölskyldubönd. Við vonum að þú njótir þess að hlusta á þetta og endilega deila þessu með fólki!

Gleði færni 1 & 2 06 Jan 2020

Send us Fan Mail Í þættinum hefjum við nýtt þema: Gleði Við skoðum færni 1-17 sem unnin er af Chris Coursey sem er félagsfræðingur og tengir Gleðina við líffræðina. Við óskum ykkur svo gleðilegs árs og þökkum fyrir samfylgdina á liðnu ári. Hlökkum til að takast á við nýtt ár og breiða út boðskapinn. Færni 1 Að deila Gleði Færni 2 Að sefa sig Ef þið viljið bóka viðtal hjá Baldri eða Barböru eða á námskeið Lausnarinnar farið á Lausnin.is

27. Heilbrigð Mörk 30 Dec 2019

Send us Fan Mail Við förum aðeins inná heilbrigð mörk og hvað það þýðir að segja nei. Hvernig getum við lifað og haft stjórn á okkur. Við skoðum áhrifin sem val hefur á líf okkar! Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar!

26. Meðvirkni 9 23 Dec 2019

Send us Fan Mail

25. Meðvirkni 8 16 Dec 2019

Send us Fan Mail Hvernig get ég lært að bera virðingu fyrir mér og ástvinum! Þessi þáttur gefur okkur verkfæri til að sjá hvernig við setjum mörk og heiðrum virði þeirra sem í kringum okkur eru! Við erum ótrúlega þakklát fyrir viðbrögðin ykkar við podcastinu og yrðum ykkur ótrúlega þakklát ef þið deilið því með öðrum. Panta tíma hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri Námskeið sem lausnin er með Verkefni! Settu 2-3 hluti sem þú ætlar að gefa forgang til að heiðra það sem er þér mikilvægt Guð/æðri máttur,Maki/Besti vinur,Börnin,Nánir vinir/fjölskylda,Vinnufélagar,Samfélag,Heimur Taktu þér tíma að hugsa og biðja hvar þú átt erfitt með að setja heilbrigð mörk í lífi þínu. Skrifaðu niður það sem kemur til þín Spyrðu 1 eða 2 af þínum nánustu ef þeir sjá einhverjar stillingar sem þurfa að vera gerðar til að samskiptin séu betri?

24. Meðvirkni 7 09 Dec 2019

Send us Fan Mail Við förum vel í það í þessum þætti hvernig við eigum að bregðast við þegar það á sér stað samskiptabrestur eða þegar einhver fer yfir mörkin mín. Hvernig getum við látið það leiða til dýpri tengingar. Það er velmögulegt að lifa í frelsi þegar kemur að tengingu og að leyfa tengingunni að dýpka þegar það koma upp brestir í samskiptum. Við erum afarþakklát fyrir hlustunina og viljum endilega heyra frá ykkur ef þið hafið spurninga eða annað slíkt sem við getum svarað. Linkar: Panta tíma hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri Námskeið sem eru framundan Verkefni vikunnar Styrktu kjarna tengsla í kringum þig. Byrjaðu virðingarstamtöl með því að gera skýrt að þér þykir virkilega vænt um að mæta þörfum aðilans Sendu og fáðu skýr skilaboð Neitaðu að taka þátt í samtölum sem halda ekki virðingu gagnvart þér Veldu að hafa kveikt á kærleikanum, eyddu óttanum, trúðu því besta um fólk og treystu þeim til að vera ekki sama Ef þeim er sama: fyrirgefðu þeim þá Farðu nær þeim serm þú elskar líka þegar það er erfitt!

23. Meðvirkni 6 02 Dec 2019

Send us Fan Mail Við förum aðeins í berskjöldun í þessum þætti. Hvetjum fólk til að eiga betri jól en í fyrra. Við ræðum samskipti út frá meðvirkni og kærleika og hversu mikilvægt það er að hafa kærleikan að leiðarljósi í samskiptum. Við leyfum ekki óttanum að ræna okkur af sannleikanum því þar sem við lærum að tjá sannleikan hvert við annað þá náum við að búa til hring trausts. Þegar við erum í trausti þá lærum við að bregðast rétt við! Við minntum aðeins á námskeið sem eru á lausnin.is Panta tíma hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri Verkefni vikunnar Hvers þarfnastu í þínum nánu samskiptum? Hvernig getum við verið berskjölduð og heiðarleg í tjáningu á tilfinningum og þörfum Hvernig get ég styrkt traustið við þá sem ég elska og deilt með þeim hvernig áhrif þeir eru að hafa á mig bæði gott og slæmt? Talaðu við einhvern í þessari viku og notaðu ég boð, skrifaðu niður hvernig það gengur Ég upplifi (tilfinning) þegar (útskýrðu upplifun) og ég þarf að upplifa (tilfinning)

22. Meðvirkni 5 25 Nov 2019

Send us Fan Mail Við erum að halda áfram með meðvirknina og hvernig við lærum að að lifa frjáls. Við töluðum um samskipta form og stíl sem við notum þegar við erum að tjá okkur út frá ótta. Við viljum leitast við að skilja alla og þurfa þar af leiðandi ekki að skilja við fólk. Það hjálpar okkur ótrúlega mikið að sjá og heyra hvernig við erum að bregðast við og leitast við að skilja hvað er raunverulega að gerast innra með okkur þegar við bregðumst við. Panta tima hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri Verkefni vikunnar Taka eftir hvað þú hugsar, upplifir og þarf og ert að búast við og virtu þeirra virði Byrjaðu að gera það sama fyrir annað fólk Skoðaðu þig þegar þér langar að gera lítið úr upplifun einhvers eða hjarta þeirra Hlustaðu til að skilja í samtali - sérstaklega til að skilja það sem einstaklingurinn er að finna eða hvers hann þarfnast Leitastu eftir lækningu frá fyrrum reynslum sem hafa leitt þig að því að óttast sannleika hjarta þíns og verða passífur, árasagjarn, passíft árásagjarn. Vertu raunverulegur við þig! Ef þú rennur í gamla stílinn gerðu þá það sem þarf til að gera hlutina rétt. Skrifaðu niður hugsanir þínar, vinnslu og velgengi. Aðeins þeir sem meta og skilja sjálfan sig geta metið og skilið aðra. Finnst þér þú virða og skilja sjálfan þig? Aðeins þeir sem geta sagt heiðarlega við sjálfan sig geta sagt heiðarlega við aðra. Finnst þér þú geta sagt heiðarlega við aðra? Hvað með að segja þarfir þínar til annarra? Útskýrðu

21. Meðvirkni 4 18 Nov 2019

Send us Fan Mail Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni á áhrif hennar á samskipti okkar og mikilvægi þess að eiga góð samskipti við fólkið okkar. Við snertum aðeins á því mikilvægi að sýna fólki skilning í stað þess að dæma og hvernig við getum lifað lífinu okkar frjálsari með því að hafa stjórn á okkur sjálfum! Grunnurinn af góðum samskiptum er skilyrðislaus elska og að gefa okkur að fólk vilji okkur alltaf það besta. Svo eru það stólparnir 7 Kærleikur Heiður Sjálfsstjórn Ábyrgð Sannleikur Trú Hugsjón Með því að byggja svona samkskipti þá lifum við í friði, von og gleði! Smelltu læk á facebook hjá okkur Panta hjá Barböru Panta hjá Baldri Meðvirkninámskeið Lausnarinnar Verkefni vikunnar! Myndiru segja að þín nánustu sambönd séu byggð þessum trausta grunni elsku? Afhverju? Afhvejru ekki? Horfandi á þessa sjö stólpa, hverja finnst þér þú hafa sett í sambönd þín nú þegar? Hvar geturu bætt þig? Gefðu mér nokkur dæmi um hvernig á að hafa heiður í samböndum? Hver er hugsjón þínfyrir þín persónulegu sambönd? Á hvaða hátt ertu að vinna þig að þessu?

20. Meðvirkni 3 af 8 11 Nov 2019

Send us Fan Mail Við skoðum í þessum þætti óttan og kærleikan út frá meðvirkninni! Við skoðum hversu mikilvægt það er að velja tengsl út frá kærleika í stað þess að velja að trúa því sem óttinn segir við okkur. Við förum aðeins í það að skilja tilfinninguna á bakvið hegðunina er það ótti eða kærleikur. Á góðum degi getum við aðeins stjórnað okkur sjálfum! Námskeið framundan Dramalaus samskipti Meðvirkninámskeið Lausnarinnar Panta tíma hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri Verkefni vikunnar: Spurðu sjálfa/n þig þessara spurninga. Trúi ég því að ég geti stjórnað öðru fólki? Hvernig stend ég mig í því að hafa stjórn á mér í stað þess að stjórna öðrum? Spurðu nú, hvað get ég gert betur í að stjórna mér? Hvað get ég gert til að vernda tenginguna þegar ég upplifi mig sáran/særða eða hrædda/n Segðu þetta upphátt Það er mitt verk að stjórna mér! Ég á ekki að stjórna öðru fólki. Ég fæ ekki að stjórna öðru fólki! Mitt aðalmarkmið og forgangur í samböndum er að byggja og vernda tenginguna.

19. Meðvirkni 2 af 8 04 Nov 2019

Send us Fan Mail Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni og hvernig við getum losnað undan áhrifum hennar eða minkað áhrif meðvirkni í líf okkar. Við fengum til okkar góðan gest hann Theodór Francis sem er að halda námskeið ásamt Baldri í Meðvirkni þann 30 nóv. Hægt er að finna námskeið á heimasíðu lausnarinnar. Við leitumst við að vera kraftimikil og berskjölduð til að halda okkur frá meðvirkni! Verkefni vikunnar! Hvert er markmið í þínum nánustu samskiptum, náin tengsl eða örugg fjarlægð? Ertu að byggja tækni til að stjórna fjarlægðinni eða til að færa þig nær þeim og kveikja á kærleikanum sama hvað? Hugsaðu um þrjár manneskjur sem eru þér mikilvægar. Skrifaðu niður einn hlut sem þú getur gert í vikunni til að tala til þeirra á þeirra ástartungumáli og senda skilaboðin; Ég elska þig mjög mikið og þetta samband er mér mjög mikilvægt. Ertu Kraftmikil/l í sað segja frá þínum tilfinningalegu þörfum á skýran hátt í þínum innsta hring? Seturu upp hvernig fólk á að mæta þér? Ef ekki sestu þá niður með þessu fólki og skiptist á að segja ég upplifi mig elskaða þegar!

18. Meðvirkni 1 af 8 28 Oct 2019

Send us Fan Mail Við erum að hefja spjall um meðvirkni. Þetta er fyrsti þáttur af átta í þáttaseríu sem fjallar um að læra að tengjast og vera í elsku þegar við tökum ákvarðanir í nánum samböndum sem við erum í við fjölskyldu og vini. Það er ótrúlega mikilvægt að læra að taka rétta á erfiðum málum sem fylgja meðvirkninni. Leitastu við að svara þessum spurningum. Hugsaðu um þrjú mismunandi sambönd í lifi þínu. Myndiru segja að grunnurinn í þeim sé ég vel þig? Afhverju eða afhvejru ekki Í þessum þremur samböndum, hefuru reynt að velja eða stjórna hlið hinnar persónurnnar í sambandinu? Hvernig? Hefuru tekið þátt í vítarhringnum. Ef svo er hver ertu vanalega ? Hvernig gætiru orðið kraftmikil/l í þeim aðstæðum Hver er kraftmesta persónan sem þú þekkir. Hvaða karakter einkenni finnst þér bera af í henni eða honum? Hugsaru um sjálfan þig meira sem kraftimikin/kraftmikla eða kraftlausan/kraftlausa? Hvaða skref getur þú tekið til að verða kraftmeiri? Hvað ætlar þú að gera þessa viku til að verða kraftmeiri? Gefðu mér dæmi um kraftmikið tungumál sem þú ætlar að nota og kraftmikla hegðun sem við vilt æfa. Hvernig ertu að hafa stjórn á þér og þínum hluta af sambandinu? Panta tíma hjá Barböru Panta tíma hjá Baldri

17. kynning á meðvirkni, námskeið og fl. 22 Oct 2019

Send us Fan Mail Við ætlum að byrja að fjalla um meðvirkni í næstu þáttum snertum aðeins á því í þessum þætti. Við tölum um ástina og fleirra skemmilegt námskeið sem eru framundan hjá okkur! Hvað ef við erum meðvirk og þurfum hjálp til að yfirstíga hana? Hlustið og deilið.

16. Afbrýðsemi, stúptengsl og fl. 15 Oct 2019

Send us Fan Mail Fengum spurningu frá hlustanda sem við leituðumst við að svara. Afbrýðsemi út í fortíð maka. Það getur verið erfitt að burðast með tilinnnguna afbrýðisemi hún getur grafið undan trausti í parsambandinu. Við ýtum makanum meira frá okkur og oft getur hann upplifað að það sé eitthvað að honum eða upplifað makann með lítið sjálfstraust. Bæði virkar ekki vel á parsambandið. Hvað er til ráða? Tala saman, tengjast tilfinningalega og gefa maka sínum rými til að vinna með óöryggið. Samkennd og skilningur er það sem virkar best hérna. Við fórum einnig inn á umræðuna um stjúptengsl og hvernig við höfum tæklað það á okkar heimili. Það sem virkar best á flestar tegundir af verkefnum / vandamálum í parsambandinu er samkennd og að setja sig í spor maka/fjölskyldumeðlims. Þannig fjarlægjum við spennuna og getum horft á vandamálið sem verkefni sem fjölskyldan er að vinna að saman. Hvað ef þetta er alls ekki persónulegt?

15. Unglingar með áhættuhegðun 07 Oct 2019

Send us Fan Mail Við viljum stuðla að heilbrigði fjölskyldna að það séu tengsl í fjölskyldum. Áhættuhegðun unglinga er stórt vandamál í samfélaginu okkar og við þurfum að losa okkur við meðvirknina til að geta horfst í augu við vandan og tekið á honum. Við fengum frábæran gest til okkar hana Guðrúnu Ágústu en hjartað hennar brennur fyrir börnum með áhættuhegðun og er okkur sannur heiður að fá að ræða við hana. Guðrún á sér langa sögu í vinnu með unglingum og vann meðal annars uppá Vogi á bangsadeildinni. Námskeið unglingar með áhættuhegðun er framundan og er það hugsað fyrir foreldra með börn í vanda. Panta tíma Guðrún Ágústa Barbara H. Þórðardóttir Baldur Einarsson Linkar Instagram Lausnarinnar Instagram Vonráðgjöf á facebook Lausnin á facebook

14. Parsambandið og samskipti 03 Oct 2019

Send us Fan Mail Samskipti er það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem einstaklinga í samfélagi sem er orðið velrænt. Við töluðum um parsambandið, fjölskylduna, tengslavanda og sjálfsmynd. Sameining Lausnarinnar og Von hvað ber það í skauti sér. Við fengum til okkar góðan gest hann Theodór Francis hjónaráðgjafi Námskeiðstenglar: Haltu mér þétt Samskipti og sjálfsmynd Panta tíma í ráðgjöf: Theodór Francis Barbara H. Þórðardóttir Baldur Einarsson

13. Að halda lífi í ástinni 23 Sep 2019

Send us Fan Mail Baldur og Barbara fjalla hérna um leyndardóma þess að halda ástinni lifandi út frá vísindum ástarinnar. Samskipti eru svo mikilvæg ekki hvað við segjum endilega meira hvernig við segjum það. Tengsl eru mikilvægasti partur samskipta og það er svo mikilvægt að við leggjum áherslu á þau meira en rétt og rangt. Það skiptir ekki máli hver hefur rétt fyrir sér heldur frekar hver er fyrri til að tengja sig! Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! Heimasíðan okkar https://www.instagram.com/vonradgjof.is/

12. Tölum aðeins um KYNLÍF 16 Sep 2019

Send us Fan Mail LETS talk about sex! Kynlíf er eitthvað sem er gríðarlega mikilvægur hluti af góðu hjónabandi. Það er talað um að það séu til þrjár mismunandi gerðir af kynlifi sem við ræðum aðeins hérna. Við tölum líka um sjokkerandi staðreyndir eins og "karlmönnum leiðist tengsla laust kynlíf". Við erum opin fyrir umræðunni og spurningum. Njótið og deilið podcastinu okkar að vild Minnum á næsta námskeið þann 5. Október Linkar: Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! Heimasíðan okkar https://www.instagram.com/vonradgjof.is/

11. Að fyrirgefa særindi 09 Sep 2019

Send us Fan Mail Þessi þáttur fer í það að skoða hvernig er best að fara til baka og fyrirgefa særindi sem eru í hjarta okkar. Þegar við fyrirgefum þá eigum við heilsusamlegra líf. Við tölum aðeins um það hversu mikilvægt það er til að eiga góða samsipti og hvernig áföll fortíðar geta ennþá verið að hafa áhrifa á parsambandið eða hjónabandið. Njótið og deilið podcastinu okkar að vild Minnum á næsta námskeið þann 14. september Linkar: Panta sæti á námskeiðið "Haltu mér þétt" Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! Heimasíðan okkar https://www.instagram.com/vonradgjof.is/

Tengd hlaðvörp