Álhatturinn
Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
Þættir
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnustu sviðsetningu og blekkingarleik sögunnar? Opinbera sagan segir að Artemis 2 sé mönnuð geimferð, en hvers vegna var henni skotið á loft á sjálfan 1. apríl? Er skuggavaldið hreinlega að hlæja framan í okkur á sjálfan alþjóðlega hrekkjadeginum? Strákarnir rýna í myndatökur úr hylkinu sem sýna undarleg sjónarhorn þar sem enginn hefði átti að vera; hver hélt á myndavélinni og „panna“ yfir á jörðina með svona mikilli nákvæmni ef allir geimfararnir voru í mynd? Voru hinir meintu geimfarar bara leikarar frá „Central Casting“ eða raunverulegir geimfarar? Strákarnir rýna í feril Christina Koch og velta því fyrir sér hvernig hún hefur tíma til að vera bæði geimfari og leikkona með IMDb-prófíl. Hvers vegna er háskerpumyndin svona „fullkomin“ á köflum en líkist svo camcorder-upptöku frá 1998 þegar lendingin í hafinu á sér stað? Hvar er gufan og sjóðandi vatnið þegar hylkið, sem á að hafa náð 5.000 gráðu hita, lendir í sjónum? Og hvernig geta starfsmenn strandgæslunnar snert hylkið með berum höndum án þess að brenna sig? Er NASA hreinlega hætt að reyna að fela grænskjáinn og CGI-brellurnar? Svo eru það hin einkennilegu mismæli og framkoma geimfaranna á blaðamannafundum. Hvers vegna verða þeir flóttalegir þegar spurt er út í stjörnurnar eða Van Allen geislunarbeltið? Hvað á konan við með setningunni “þið eruð áhöfnin”(e:you are the crew)? Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í Artemis-áætlunina. Þeir ræða meintar myndatökur Stanley Kubrick, týndu segulböndin og spyrja hversu lengi er hægt að halda úti þessu sjónarspili þegar eldflaugarnar sjást bókstaflega „beygja“ út af leið og hverfa út í hafið í stað þess að fara upp í himinhvolfið. Þetta CGI-geimfarar og svo margt, margt fleira í Álhattinum. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástríðu fyrir rökræðum og stjórnmálaumræðu og Charliei. Hann átti eldheita og dygga stuðningsmenn en líka blóðheita andstæðinga sem gjörsamlega hötuðu hann, einungis vegna skoðana hans. Fólk sem að var við það að froðufella af reiði í hvert sinn sem Charlie leyfði sér að tjá sig um sín hjartans mál. Svo á björtum september degi í Orem í Utah var hann skotinn til bana af leyniskyttu, á viðburði sem Turning Point stóð fyrir þar sem byssueign almennings var eitt af umræðuefnunum. Viðburðurinn er tekinn upp frá öllum sjónarhornum, sendur út í beinni og dreifist um netið á ógnarhraða. Líkt og eldur í sinu. Og líkt og hendi sé veifað vöknuð strax grunsemdir á netinu. Var þetta bara einmanna veikur einstaklingur með byssu eða hluti af einhverju stærra plotti? Var markmiðið að vekja reiði, búa til píslarvott og hleypa af stað hringekju hefnda? Hella olíu á eld pólitískra deilna og magna enn frekar upp klofning í nú þegar tvístruðu samfélagi? Eða var þetta kannski bara afleiðing stundarbrjálæðis í virkilega veikum manni? Hverjir hefðu hag af því að kveikja slíkan eld? Vinstrið sem hefur sterk ítök í háskólum og vill lama hægri vænginn? Öfgahægrið sem vill nýta sér Kirk sem píslarvott til að réttlæta hefndaraðgerðir? Djúpíkið sem vill herða öryggislög og auka eftirlit með okkur öllum? Eða erlend ríki sem fagna sundrungu og upplausn í Bandaríkjunum ? Eða mesti óvinur allra sannra Álhatta, hið alræmda siðblinda Skuggavald sem svífst einskis og raunverulega stjórnar öllu með harðri hendi bakvið tjöldi. Hvað sem átti sér stað í Utah þennan dag er eitt alveg morgunljóst. Morðið á Charlie Kirk hefur hækkað hitastigið í bandarískri pólitík og blásið vel upp í eldi menningarstríðsins. Er þetta upphafið af stærra átakaskeiði og mögulegri borgarastyrjöld eða hræðilegur einstakur atburður sem sumt fólk er að lesa of mikið í? Allt þetta og margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort morðið á Charlie Kirk hafi verið plott til að kveikja borgarastyrjöld í Bandaríkjunum HLEKKIR Á ÍTAREFNI: https://www.youtube.com/watch?v=sX773_Wvky0 https://www.youtube.com/shorts/Gzp_x8Y6KjQ Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Krabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hvernig getur ein stök stökkbreytt fruma endað sem svæsið meinvarp í líffærum um allan líkama?? Hvað gera læknar í dag þegar á reynir? Skera meinið í burt og dæla svo allskonar ólyfjan og geislavirkum efnum í fólk í von og óvon um að meinið hverfi? Og til hvers? Til þess eins að taki sig upp aftur að vörmu spori? Er árangur af þessum meðferðum algerlega ótvíræður og óumdeildur? Og ef ekki, hversvegna má þá ekki reyna aðrar óhefðbundnar aðferðir? Steve Jobs, Andy Kaufmann og aðrir fóru sínar eigin leiðir í þessum efnum og uppskáru ekki erindi sem erfiði. En þýðir það að enginn annar megi reyna? Hvað með alla hina sem tókst að losna við meinið með óhefðbundnum aðferðum? Burzynski segist hafa læknað fjöldan allan af fólki og er með helling af vitnisburðum frá fólki sem staðfestir að hann hafi læknað sig Þá hljóta allir sannir Álhattar að spyrja sig. Eru til einfaldari, betri, þægilegri og ódýrari lausnir sem yfirvöld eða hulduöflin þaga eða jafnvel hylma yfir? Hvað eru þessir Antineóplastónar og hver er eiginlega þessi Burzynski? Í hverju fólust rannsóknir hans á amínósýrum og peptíð afleiðum, sem sumir dásama og lofsyngja á meðan hið svokallaða vísindasamfélag krefst betri prófana á? Hvað ræður því hverjir og hvaða rannsóknir fá fjármagn eða viðurkenningu? Kannabínóíðar og Rick Simpson olían. China Study og plöntumiðað mataræði ber á góma. Auk fjölda annara svokallaðra óhefðbundinna lækninga sem margir vija meina og hafa jafnvel borið vitnisburð um að virki. Hversvegna ætti allt þetta fólk að ljúga því að okkur að það hafi nýtt sér óhefðbundnar leiðir til þess að losna við krabbamein? Eru raunverulega til lækningar í stað þeirra skelfilega sársaukafullu meðferða sem við beytum í dag og ef svo er hversvegna eru þær lækningar ekki notaðar í meira magni? Hverjir eru það sem bæla niður þessar meintu hugsanlegu lækningar og hversvegna? Hvaða hagsmunir gætu hugsanlega búið þar að baki? Einnig velta strákarnir því fyrir sér hvort að vandamálið sé kannski kerfið sjálft. Hverjir velja hvaða rannsóknir og lyf fá fjármagn og hverju er stungið lengst ofan í skúffu og grafið yfir? Hvort einkaleyfi og gróðafíkn jakkafatakakkalakkanna halda einföldum og ódýrum lausnum niðri svo hægt sé að selja okkur rándýra meðferð, sem er á endanum mögulega mun skaðlegri en meinið sjálft Getum við fullkomlega treyst frásögnum og persónulegum upplifunum fólks, þegar allar blindar slembirannsóknir vantar? Eða getum við einungistekið mark á virtum og viðurkenndum vísindalegum aðferðum, sérstaklega vottuðum af mennta elítunni og valdastéttinni. Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum þar sem þeir félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór leitast við að svara þeirri erfiðu spurningu hvort að lækning sé til við krabbameini en henni sé vísvitandi haldið frá fólki. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=Ro8C75XykLo https://www.youtube.com/watch?v=sZ17-ionKIM Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi hátt. En hver eða hvað er Nessie í raun og veru? Er hún mögulega einhverskonar leifar eða minnismerki um forsögulega tíma risaeðlanna? Skynvilla eða hugarburður misvitra og brenglaðra einstaklinga? Eða meðvituð og þaulskipulögð blekking? Í þessum þætti Álhattsins skoða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sögur og heimildir sem tengjast skrímslinu eða fyrirbærinu í Loch Ness. Þeir kanna hvernig fyrstu frásagnir ná allt aftur til 6. aldar, þegar Kólumkill(e.Columba)i á að hafa hrakið skrímslið á brott með bænina eina að vopni. Þeir rekja líka hvernig atburðir ársins 1933 komu Nessie aftur fram í sviðsljósið og vitund almennings. Hvernig ein fræg ljósmynd sem enn er milli tanna fólks festi skrímslið í sessi sem alþjóðlegt tákn dulúðar. En hvers vegna lifir þessi hugmynd áfram í vitund fólks, nærri hundrað árum síðar, þrátt fyrir skort á sönnunum? Hvaða hlutverki gegnir veraní menningu, ferðamennsku og sjálfsmynd Skota? Og hvað með systur skrímslin víðsvegar um heiminn. Morag í Loch Morar, Storsjöodjuret í Svíþjóð, Selmu í Noregi og hinn rammíslenska Lagarfljótsorm hjá Egilsstöðum? Eru þau náskyld fyrirbæri af sama meiði? Eða staðfestir þetta kannski bara hina sameiginlegu þörf mannsins til þess að reyna að skilja hið óútskýranlega Er einhver samfelldur rauður þráður í gegnum þessar sagnir? Eða er þetta einfaldlega ótti við hið óþekkta í bland við dýpri löngun til að skýra heiminn með rökum, jafnvel þegar engin rök duga eða eru fyrir hendi? Getur verið að í djúpum vötnum búi eitthvað sem vísindin geta ekki útskýrt? Eða eru þetta kannski tilraunir valdhafa og hagsmunaaðila til að beina athyglinni frá öðrum, raunverulegri vandamálum? Hvað sýna þrívíddar myndirnar og sónar myndirnar sem hafa verið teknar í gegnum tíðina? Hvers vegna virðist mönnum ekki takast að svara því fyrir fullt og allt hvort að eitthvað misjafnt leynist í myrkrinu eða vatnin? Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattsins þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór kafa djúpt ofan í dýpstu hyli Loch Ness, kanna hvern króka og kima vatnsins og velta því fyrir sér hvort að loch ness skrímslið sé til í raun og veru. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=ceW51ruoQDM https://www.youtube.com/watch?v=bcK4efWckyE&t https://www.youtube.com/watch?v=tktlgInOAF8&t Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér framsækið orkukerfi, háþróaða byggingarlist og mögulega allskonar tækni sem við eigum erfitt með að skilja enn þann dag líkt og fría endurnýjanlega þráðlausa orku. En hvernig má það vera? Ef Tartaría var eitt af stórveldunum miklu, hvers vegna hefur það verið þurrkað út úr bókstaflega öllum sögubókum allstaðar? Ef þetta var svona stór og valdamikið stórveldi hvernig tókst þá einhverjum að sigra það? Í þessum þætti af Álhattinum skoða strákarnir gögnin, kortin, ljósmyndirnar, byggingarnar og hina gríðarlega dularfullu þögn sem virðist ríkja um þetta mikla eða meinta stórveldi. Hvers vegna eru gömul heimskort virtra og þekktra kortagerðarmanna full af tilvísunum í Tartaríu en samt hvergi minnst á hana í opinberri sagnfræðikennslu? Af hverju virðast stórfenglegar byggingar frá 19. öld með glæsilegum sùlum og mikilfenglegum hvelfingum hafa hafa verið reistar með mun þróaðari byggingartækni en við höfum í nútímanum? Hvað voru heimsýningarinnar í raun? Voru þær notaðar til að endurnýta byggingar sem þegar stóðu og höfðu grafist undir leðjuflóðinu mikla? Hvers vegna voru þessar byggingar nærri því allar sprengdar niður eða jafnaðar við jörðu eftir heimssýningarnar? Er „mud flood“ kenningin, um leðjuflóð sem á að hafa grafið niður menningarminjar, ekki jafn fáránleg og hún hljómar í fyrstu? Strákarnir kafa ofan í heim dularfullra huldra sögubóka, gamallra korta, grafinnar tækni og mögulegs fallins stórveldis í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér hvort Tartaría hafið verið háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókunum og falin fyrir mannkyninu HLEKKIR Á ÍTAREFNI Introduction to Tartaria Tartaria: The Lost Empire They Erased from History Joe Rogan:Lost civilization theory? with Aaron Rodgers Joe Rogan gets Tartaria pilled Falsifying History by Destroying Cities The Lost Civilization of Tartaria The Incredible Story Of The 1893 World's Fair The World's Fair was Too Weird Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri i opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist yrði á flotastöð hersins, hvað þá svona rétt í bakgarðinum heima fyrir. Rúmlega 3400 mans féllu í árásinni sem vakti upp mikla reiði og ótta hjá Bandarísku þjóðinni. Franklin D. Rooseveltuk þ Bandaríkjaforseti, sem hafði verið kjörinn m.a vegan loforða um að Bandaríkin myndu ekki láta draga sig út í þáttöku í stríðinu varð að bregðast skjótt við og sýna að Bandaríkin væru engar undirlægjur sem létu vaða yfir sig á skítugum skónum. Bandaríkin brugðust því skjótt og örugglega við og svöruðu fyrir árásirnar af fullum krafti. Stuðningur við þáttöku í stríðinu rauk upp meðal almennings og nýskráningum í herinn fjölgaði svo um munaði. Efnahagurinn sem hafði verið í tómu tjóni og algjöru rugli allt frá kreppunni miklu tók skyndilega mikla hreppstjórabeygju og einhver mesta efnahagslega velsæld sögunnar tók við af harðindum og eymd. Mikið atvinnuleysi hafði plagað þjóðina og nú rétt einsog hendi væri veifað var það orðið að engu og allir sem á annaðborð höfðu áhuga á að vinna gátu fengið vinnu og FDR var endurkjörinn forseti með yfirburðum. Oftar en einusinni. Enginn Bandaríkjaforseti hefur setið jafn lengi á valdastóli eða náð viðlíka vinsældum og Franklin D. Roosevelt. En getur virkilega verið að árás Japana hafi komið Bandaríkjunum í algjörlega opna skjöldu? Grunaði engan í hernum eða stjórninni nokkurn skapaðan hlut? Heyrst hefur að viðvaranir hafi borist frábæði Kínverjum og Rússum auk þess er starfsmaður bandaríska sendiráðsins í Japan hafði virðað áhyggjur sínar af því að Japanir hygðust ráðast á bandaríska herstöð. Dulkóðunar g dulmálssérfræðingar innan hersins höfðu ráðið í skeytasendingar Japana og einhverjir vilja meina að það sé ekki nokkur leið að Bandaríkin afi ekki vitað af hinni yfirvofandi árás. Til eru sagnfræðingar sem segja að bandaríski rauði krosinn hafi flutt gífurlegt magn líkpoka, blóðbyrgða og lyfja til Hawaii á dögunum fyrir árásirnar og þá hefur það vakið mikla furðu Álhatta að stærstu flugmóðuskip Bandaríkjanna hafi skyndilega verið flutt úr höfn rétt áður en árásirnar urðu. Tilviljun? Guðleg íhlutun eða var það gert af yfirlögðu ráði í ljósi þess sem koma skyldi.Þetta og svo margt fleira áhugavert og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar em þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Bandaríkin hafi leyft árásunum á Pearl Harbor að gerast svo þau hefðu ástæðu til þess að taka þátt í seinni heimsstyrjöldinni. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: https://youtu.be/JBDbrf6Nktk?si=ddKqySFqW1Y-TE85 https://www.youtube.com/watch?si=qSu_w2ec0286h-h6&v=lK8gYGg0dkE&feature=youtu.be https://y2mate.nu/en-NLKu/ Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
NBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint á síðustu öld og mögulega áttir þú eitthvað af körfuboltamyndum. NBA deildin er oft á tíðum gífurlega spennandi og skemmtileg og milljónir horfa á útsendingar frá deildinni í viku hverri. Margir leikmenn verða heimsfrægir eða jafnvel goðsagnir og það verður að teljast afskaplega eftirsótt að leika í deildinni. Jafnvel fyrir einhver af minni og ómerkari liðum deildarinnar. Fólk elskar þessa íþrótt og ástríða leikmanna og stuðningsmanna er gífurlega mikil. En getur verið að þessi fallega íþrótt sé kannski ekki svo falleg þegar betur er að gáð? Hvað ef það er eitthvað rotið og morkið undir niðri og brögð eru í tafli? Peningarnir hafa löngum ráðið ansi miklum í íþróttum almennt og þá sérstaklega kannski í bandarískum íþróttum en NBA deildin hefur reynt að verjast áhrifum peningaaflanna með launaþaki og takmörkunum á heildarlaunakostnaði liðanna í deildinni. Þá er nýliðavalið í deildinni sett þannig upp að minni spámennirnir og slökustu lið deildarinnar eiga meiri möguleika á að fá fyrsta val og þannig meiri líkur á að fá bestu nýliðina til sín. Þannig reynir deildin að tryggja jafnræði milli liða og koma í veg fyrir að tiltekin lið einoki toppbaráttuna og titlana ár eftir ár eftir ár líkt og þekkist t.d í knattspyrnu deildum víðsvegar í Evrópu. Hvar öll spenna hefur verið mergsogin úr keppninni til þess að hygla örfáum ógnarsstórum og valdamiklum liðum. Eins og t.d þegar talað er um stóru liðin sex á englandi sem knattspyrnuiðkendur ættu vel að kannast við. En duga þessar reglur til? Virka þær í raun? Hversu oft fá litlu eða svokölluðu lélegu liðin raunverulega fyrsta val í nýliða valinu og hvernig er tryggt að stærri liðin bjóði ekki bara leikmönnunum gull og græna skóga síðar til þess að lokka þá til sín? Hvað ef við segðum þér lesandi góður að leikmennirnir sjálfir hafa í raun ekkert að segja um framtíð sína og geti ekki með nokkru móti komið í veg fyrir félagaskipti ef liðið þeirra ákveður að skipta þeim út? Það er því eðlilegt að álhattar um víða veröld og aðrir jaðarhópar sem eiga það til að hugsa út fyrir kassann spyrji sig hvort hægt sé að treysta ráðamönnum deildarinnar eða úrslitum í deildinni. Hvað býr raunverulega að baki flóknum og illskijanlegum ákvörðunartökum þessara frómu herra? Spilling? Hagur deildarinnar? Snýst þetta um að gera það besta fyrir leikmanninn, liðið og stuðningsmennina eða hittast bara einhverjir siðblindir sultupardusar og fjörulallar í reykfylltum bakherbergjum og ákveða þetta allt með einungis sína eiginhagsmuni í huga? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir kumpánar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu kenningu að NBA deildin í körfubolta sé töluvert rigguð(sviðsett/ákveðin fyrirfram). HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/shorts/zG1D2G8d7wE https://www.youtube.com/watch?v=ZYl6bQNvcWQ https://www.youtube.com/watch?v=9lRlaUKBdTw https://www.youtube.com/watch?v=KKCXnovChTs https://www.youtube.com/watch?v=9lRlaUKBdTw Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St James þar sem haldin voru tryllt teiti þar sem ógeðsleg svöll þessum viðrinum til yndisauka og ánægju á meðan fórnarlömbin þjáðust og allt var fest á filmu. Eitt þessara fórnarlamba, Virginia Giuffre, steig fram og ræddi opinskátt og óheflað um lífssreyslu sína sem nuddari hjá Epstein. En er kannski þekktust fyrir frásögn sína af samskiptum þeirra Prince Andrew. Virginia var ákveðinn drifkraftur og kyndilberi í baráttu fórnarlambanna og fékk mikið lof fyrir baráttu sína. Hún var harðákveðin í að láta ekki deigan síga og opinbera og afhjúpa allan viðbjóðinn og alla svæsnu sóðapésana sem heimsóttu eyjuna og teitin hans Epstein. Margoft steig hún fram og sagðit svo enginn vafi leikur á að hún væri full af eldmóði og í miklum baráttuhug og að hún myndi aldrei undir nokkrum kringumstæðum taka eigið líf. Aldrei. Það vakti því óneitanlega mikla furðu og athygli álhatta um allan heim þegar hún fannst látin fyrir nokkru og banamein hennar var sagt vera sjálfsvíg. Mannekjan sem hafði tekið það fram að hún væri alls ekki í neinum sjálfsvígshugleiðingum og að enginn ætti nokkurtíman að taka frásögnum af sjálfsvígi hennar trúanlegar. Virginia hafði vissulega lifað stormasömu og þyrnistráðu lífi sem, einkenndist af hverju áfallinu af fætur öðru. En einhvern veginn hafði hún ætíð staðið sterkari upp aftur, sama hversu oft lífið brá fyrir hana fæti. Eins Og misnotkun í æsku og hörmungin hjá Epstein væri ekki nóg þá hafði hún einnig lent í heimilisofbeldi og nú nýlega hafði skólabíll keyrt inn í hliðina á bíl hennar svo læknar töldu að hún ætti einungis örfáa daga eftir ólifaða. Svo fannst hún látin og andlátinu var lýst sem sjálfsvígi. Hentugt fyrir Epsteina og Andrewa þessa heims. Óheppilegt fyrir réttlætið. En hvað gerðist í raun og veru? Getur verið að þessi mikli eldhugi og baráttu kona hafi bara misst móðinn og gefist upp? Eftir alla þá þrotlausu vinnu sm hún hafði lagt í að opinbera viðbjóðinn. Þetta og svo margt, margt fleira dularfullt og áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum. Þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri skuggalegu samsæriskenningu að Virginia Giuffre hafi verið sjálfsmyrt. HLEKKIR Á ÍTAREFNI Prince Andrew uses 'inability to sweat' to refute Epstein allegations Hillary Clinton adopts a southern drawl "Somebody Got To Her" Virginia Giuffre Father Interview + Evidence of 'Fake' Prince Andrew Photo Charles Manson - Look At Your Game Girl The Biggest Moments From Prince Andrew Accuser Virginia Giuffre’s BBC Interview | TIME Surviving Jeffrey Epstein: Virginia Giuffre Tells Her Story | Lifetime Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu, góðu og áhyggjulausu lífi. Heilsuhraust og hamingjusöm. Ekki satt? En hvaðan koma eiginlega þessar ráðleggingar yfirvalda og hverjir skrifa þær? Snúast þær raunverulega um að nýta bestu mögulegu vísindalegu þekkinguna hverju sinni til þess að bæta lýðheilsu og auka vellíðan okkar allra eða eru dekkri annarlegri markmið að baki? Ef læknar og vísindamenn eru svona klárir og ráðleggingarnar eru svona skotheldar og góðar af hverju erum við ekki að verða heilbrigðari og hraustari? Hvernig má þá vera að hjarta og æðasjúkdómar verða sífellt algengari og nánast önnur hver manneskja er orðin sykursjúk og í ofþyngd? Hvert er upphaf þessara ráðlegginga og hvert er raunverulegt markmið þeirra? Í rúmlega hálfa öld höfum við hlustað á yfirvöld og hlustað á sérfræðinga en samt verðum við bara feitari og feitari og veikari og veikari. Hvaðan kom fæðu pýramídinn og hver ber ábyrgð á honum? Getur verið að pýramídinn sé á hvolfi eða ætti hann kannski að vera hringur? Er fita hinn raunverulegi óvinir eða eru það kolvetnin sem eru gjörsamlega að ganga fram af okkur? Getur plöntufæði bjargað málunum eða er kjötið kjörið til þess að bæta meltingu heilsufar og fas? Hversu mikið af kolvetnum, trefjum eða kjöti er ráðlagt að borða og er raunverulega raunhæft að lifa eftir ráðleggingum landlæknis og yfirvalda? Það er flókið og kostnaðarsamt lifa heilbrigðu lífi og erfitt getur verið að leggja mat á hvaða ráðleggingar reynist bestar? Er virkilega raunhæft að smíða ráðleggingar sem raunverulega virka fyrir alla, óháð kyni, kynþætti og aldri? Eða erum við kannski bara öll mismunandi og það sem virkar fyrir einhvern einn virkar ekkert endilega fyrir aðra? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum skoða vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór nýjustu fæðuráðleggingar landlæknis og fara yfir sögu og þróun fæðuráðlegginga á vesturlöndum. Um leið og þeir velta því fyrir sér hvort eitthvað sé til í þeirri skemmtilegu samsæriskenningu að fæðuráðleggingar yfirvalda snúist ekki um að bæta almennings heldur gróða stórfyrirtækja. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=0_OjKe4BuDE https://www.youtube.com/watch?v=qQsFeaQdGAc https://www.youtube.com/watch?v=fIGXkh6S8Zw&t Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins. Auk þess er þessir sjóðir eiga stóran hlut í uþb 89% af fyrirtækjunum sem skráð eru á SPP500 hlutabréfavísitöluna. Í öllum þessum fyrirtækjum eiga sjóðirnir stjórnarmenn sem ganga erinda þeirra og kjósa eftir þeirra höfði. Það má því með sanni segja að sjóðirnir fari með völd og ráði yfir allflestum fyrirtækjum á bandarískum hlutabréfamarkaði og jafnvel víðar. Sjóðirnir eiga til að mynda hlut í íslenskum fyrirtækjum á borð við Marel og Össur auk þess að erfitt er að finna það alþjóðlega fyrirtæki sem þeir eiga ekki hlut í. Getur verið að þessir sjóðir hafi t.d áhrif á efnisval sjónvarpsstöðva eða streymisveita í þeirra eigu? Hvaðan kemur þessi krafa um svokallaðar sjálfbærnis og jafnréttis vottanir og eru þær smfélaginu í raun til góða eða búa annarlegar og afkáralegar hvatir að baki? Getur verið að illa innrætt fólk vilji knésetja fjölskyldueininguna og útrýma öllum þjóðlegum eða persónulegum gildum? Til þess að við missum sjónar af sjálfum okkur og því sem raun skiptir máli. Vilja stjórnvöld að við upplifum okkur útundan og ein svo auðveldara sé að selja okkur lygina og stjórna okkur? Hvað og hverjir ráða því í hvaða fyrirtækjum sé fjárfest og hvaða fyrirtækjum ekki? Og til hvers eru eiginlega allar þessar tilgerðarlegu og tilbúnu vottanir sem þýða í raun ekkert þar sem þær ganga hvort sem er kaupum og sölum á almennum markaði? Allt tal um lífrænar vottanir, kolefnisfótspor og jafnlauna vottanir er í raun tilgangslaust hjal og merkingarlaust þvaður þegar vottanirnar eru keyptar og seldar á markaði og seldar hæstbjóðanda. Snúast þessar vottanir þá fyrst og fremst um peninga en ekki umhverfisvernd? Þurfa fyrirtæki þá að þóknast þessum sjóðum og ákveðnum stjórnmálamönnum til þess að eiga séns á að lifa af, fremur en að fara eftir þar til gerðum umhverfis reglum? Snýst þetta bara allt um ofsagróða hinna fáu og ríku fremur en hagsmuni náttúrunnar og almennings? Og hvernig stendur eiginlega á því að sömu þrír sjóðirnir fái að eiga svo stóra hluti í svo gott sem öllum fyrirtækjum á markaði. Hverra erinda ganga þeir og hversvegna? Snýst þetta einungis um að tryggja sjálfbærni og velferð mannkyns eða eru annarlegar og vofeiginlegar ástæður að baki. Þetta og svo margt, margt fleira skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarni Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að BlackRock og Vanguard stjórni heiminum í gegnum krosseignarhald. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=iCa4L22Fle4 https://www.youtube.com/watch?v=k1gG0twZIEs https://www.youtube.com/watch?v=Mvh4o6x3-GQ Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina. Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fyrir aldur fram. Eða svo segir sagan. En getur verið að Elvis eða einhverjri aðrir á hans vegum hafi hreinlega sviðsett dauða hans? Var þetta ein allsherjar blekking skipulögð af Elvis og útgáfurisunum til þess að græða meiri peninga? Eða fór Elvis í vitnavernd og felur eftir að hafa borið vitni gegn svikahrappi fyrir rétti? Eða getur verið að mafían og aðrir eigendur spilavídda í Vegas hafi haft eitthvað með málið að gera? Hvað með vini allra álhatta í FBI? Eða vildu Elvis og fjölskylda kannski fá frið frá öllu sviðsljósinu og um leið skapa mystík í kringum andlát hans til þess að geta markaðssett búgarð hans og heimili Graceland sem stórfenglegan ferðamannastað um ókomna tíð og gera plötur hans vinsælli? Lengi hefur fólk karpað um það hvort Elvis hafi raunverulega látist 16.Ágúst 1977 eða hreinlega farið í felur. Ef Elvis væri enn á lífi væri hann orðinn níræður sem verður að teljast afar ólíklegt í ljósi óheilbrigðra lifnaðarhátta hans og rokkstjörnu lífernis. Hann var í mikilli yfirþyngd og bruddi allskyns lyfseðilsskyld lyf af mikilli áfergju, slíkt getur hæglega dregið mann til dauða. En kannski er það bara yfirklór frá FBI, mafíósum til þess að fela sannleika? Heyrst hefur að maður að nafninu John Burroughs, sme var þekkt dulnefni Elvisar, hafi keypt flug frá Menphis til Argentínu sama dag og Elvis lést, en það hefur ekki fengið staðfest auk þess er ekkert beint flug var frá Memphis til Argentínu á þessum tíma. Hvers vegna var nafnið hans rangt skrifað á dánarvottorðið og legsteininn? Hvað raunverulega varð um Elvis, hvort hann lést 16.ágúst 1977 eða mörgum árum síðar eða lifir jafnvel enn góðu lífi á einhverri sólarströnd, hefur löngum verið mörgum aðdáendum tónlistarmannsins og Álhöttum um veröld alla mikil ráðgáta. En þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri langlífu og mjög svo áhugaverðu samsæriskenningu að dauði Elvis Presley hafi verið sviðsettur og eitt stórt sjónarspil. Yfirgaf Elvis í raun bygginguna sem vér köllum Hótel Jörð eða er hann etv enn í byggingunni og á meðal vor? HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://youtu.be/rtiIkgfHnWQ?si=2s_V1v-XNC2d9WGvV https://youtu.be/szH-VfhXejQ?si=X9NhZYh6k8r_Fcy- https://www.youtube.com/watch?v=EDTbURuSPp4 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk? Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni? Drónarnir hafa flestir sést í og við bandarískar herstöðvar og orkuver sem gæti bent til þess að drónarnir séu að fylgjast sérstaklega með herstöðvum og leita uppi hernaðarleg gögn eða leynilega tækni sem bandaríkin vinna að. En gætu þessi ógnarstóru fljúgandi fyrirbæri átt heima á herstöðvunum og verið á vegum bandarískra yfirvalda? Hvað ef flýgildin eru hönnuð til þess að fylgjast með almenningi? Þá hefur heyrst að bandarísk yfirvöld hafi tekið að sér að varðveita úkraínskan kjarnaodd en síðar týnt honum og drónadónarnir séu á sveimi í leit að þessum kjarnaoddi. Önnur skýring er að þarna séu kínverskir njósna drónar á ferð og hefur það verið rökstutt með því að drónarnir sjást oft á sveimi nálægt bóndabýlum og ræktarlandi í eigu kínverskra fyrirtækja. Einhverjir vilja meina að drónarnir komi upp úr sjónum og að á hafsbotni séu risastórar og hátæknilegar herstöðvar kínverja. Aðrir trúa nokkurnvegin því sama nema segja herstöðvarnar og drónadónana vera á vegum Írana eða jafnvel Rússa. Hvað sem því líður og hvaðan sem þessi flýgildi og drónadónar koma þá er morgunljóst að eitthvað verulega bogið er við þetta mál. Drónadónarnir eru svo margir og svo mikið á víð og dreif um heiminn að það er eiginlega ekki hægt að útsskýra þá. Jafnvel þó allir miðaldra karlmenn í heiminum hefðu ákveðið að fá drónaæði á sama tíma gætum við ekki útskýrt þessa dróna fjölgun. Enda eru þessir drónadónar langtum stærri en hefðbundnir drónar sem eru aðgengilegir almenningi á almennum markaði og töluvert hljóðlátari en nokkuð sem sést hefur áður. Jafnvel stærstu iðnaðar dónar sem Amazon og fleiri nota til þess að afhenda vörur eru ekki svo stórir. Hver er skýringin? Þetta er einmitt viðfangsefni nýjasta þáttarins af Álhattinum, hvar þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu samsæriskenningu að „Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin og víðar séu leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur.“ HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://rumble.com/v2yiy06-how-a-ufo-shuts-down-nuclear-warheads.html https://www.youtube.com/watch?v=VgziDyPSUog https://www.youtube.com/watch?v=Ag44dRO8LEA https://www.youtube.com/watch?v=_iBH9LKOKy0 https://www.youtube.com/watch?v=xglaXVtQcis Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu. Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölvar og ragnar þjálfaranum og liðinu. En getur verið að þetta hafi ekkert með liðið, þjálfarann óheppni eða meiðsli að gera? Hvað ef það er verið að svindla á okkur? Getur verið að einhver eða einhverjir hafi mútað dómurunum? Eða að úrslitin séu hreinlega ákveðin fyrirfram og að íslenska liðið hafi í raun aldrei átt séns gegn því gjörspillta ofurefli sem evrópska og alþjóða handknattleikssamböndin eru? Í þessum þætti af Álhattinum kynna þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér skuggahliðar íþrótta og þá sérstaklega handknattleiks velt upp þeirri spurningu hvort úrslitum á stórmótum í handbolta sé ítrekað og skipulega hagrætt með vitneskju og samþykki alþjóða sambandanna. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.playthegame.org/news/match-fixing-in-handball-a-reminder-of-the-need-for-a-world-anti-corruption-agency/ https://www.mbl.is/sport/hm_handbolta/2023/01/15/domarar_a_hm_grunadir_um_thatttoku_i_vedmalasvindli/ https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2023-01-15-domarar-a-hm-bendladir-vid-vedmalasvindl https://www.visir.is/g/20242517516d/em-i-dag-thetta-var-gjorsamlega-otholandi https://www.mbl.is/sport/handbolti/2023/12/12/domari_i_thriggja_ara_bann/ https://www.visir.is/g/20242625291d/serbarnir-fa-aldrei-aftur-ad-daema https://www.france24.com/en/20121001-montpellier-handball-players-admit-betting-deny-game-fixing-france-gambling-cheating https://www.handball-planet.com/fines-for-brothers-karabatic-and-five-more-players-for-betting-scandal/ https://www.france24.com/en/20121001-montpellier-handball-players-admit-betting-deny-game-fixing-france-gambling-cheating https://www.bbc.com/news/world-middle-east-31031852 https://play.tv2.dk/serie/mistaenkeligt-spil-tv2 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum. Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstjórn bróður síns. Árið 1968 ákveður Bobby Kennedy nokkuð óvænt að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta Lyndon B Johnson í forvali demókrata og sigrar fyrsta forvalið í New Hampshire nokkuð örugglega og stuttu seinna sigrar hann í Kaliforníu. Allt leit út fyrir að Bobby yrði næsta forsetaefni Demókrata og miklar líkur voru taldar á að hann yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Vinsældir hans voru svo gífurlegar, þvert á alla þjóðfélagshópa. Hann virðist hafa verið dáður af öllum. Algjörlega óháð kyni, kynþætti eða efnahag. Það var því mikið reiðarslag fyrir bandarískt samfélag þegar hann var myrtur af Sirhan Sirhan á Ambassador hótelinu í Los Angeles eftir að hafa sigrað í forvali Demókrata í Kaliforníu sama kvöld. Sirhan Sirhan, ungur maður af Palestínskum uppruna, vatt sér þá að Bobby nokkuð auðveldlega og óhindrað og skaut hann fjórum sinnum með 22 kalibera byssu. Sirhan var snögglega yfirbugaður af nærstöddum og færður í varðhald. Upphaflega játaði Sirhan morðið og lýsti því yfir að stuðningur Bobby við Ísrael væri ástæða voðaverksins. Í dagbókum Sirhan fundust blaðsíður fullar af setningunni RFK must die og fjölmörg vitni voru að því þegar Sirhan Sirhan skaut bobby inni í eldhúsi á hótelinu svo þetta ætti að vera nokkuð borðliggjandi mál ekki satt? Margt er loðið við atburðinn og Robert F Kennedy Jr, sonur Bobby Kennedy, efast um opinberu skýringuna og lýst því yfir að Sirhan Sirhan eigi að fá reynslulausn. Sirhan hefur ítrekað sjálfur lýst því yfir að hann muni ekkert eftir verknaðnum og hefur fólk velt því fyrir sér hvort hann hafi jafnvel verið dáleiddur eða heilaþveginn á einhvern hátt til verksins. Jafnvel af háttsettum aðilum innan bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem var í nöp við Bobby Kennedy. Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guuðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að "Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, hafi verið dáleiddurt af CIA til verksins, Zoolander oolander style" HLEKKIR Á ÍTAREFNI RFK Must die Bobby kennedy for president miniseries Who killed Robert Kennedy? RFK: America's Lost President MK ULTRA style dáleiðsla? RFK jr telur að annar skotmaður hafi verið að verki Project Artichok Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða gefa sem flestum tækifæri? Eða búa aðrar og annarlegar ástæður að baki? Hvað ræður því hvaða fögum er gert hátt undir höfði og hvaða fögum ekki? Hvaða fólk er þetta sem tekur þessar ákvarðanir og í hvaða tilgangi? Skiptir kannski engu sérstöku máli hvað er á námskrá og hvað ekki? Eða er þetta alltsaman þaulskipulagt og vel undirbúið ráðabrugg illa innrætts fólks með myrkar hvatir? Dæmi eru um það í mannkynssögunni að hin ýmsu yfirvöld hafi beitt menntakerfinu markvisst til þess að gera ákveðinni hugmyndafræði hátt undir höfði eða bæla aðrar hugmyndirniður, m.a til þess að tryggja sjálfum sér enn frekari eða áframhaldandi völd eða koma í veg fyrir einhverskonar uppreisn eða mótmæli borgaranna. Ef menntakerfið getur aukið þekkingu og færni á ákveðnum sviðum með áherslubreytingum, gætu stjórnvöld þá ekki allt eins ákveðið að halda aftur af ákveðnum fögum eða þekkingu og letja fólk til þess að sækja sér ákveðna þekkingu eða færni í stað þess að hvetja? Mao í Kína og Nasistarnir í Þýskalandi nýttu menntakerfið grimmt til að heilaþvo þjóðir sínar og ota sínum tota til að selha fólkinu hugmyndafræði sína og dæmi eru um samfélög þar sem yfirvöld hafa keyrt í gegn gífurlegar endurbætur á menntakerfi sínu til þess að ná fram auknum lífsgæðum og velmegun td með aukinni áherslu á hátækni, vísindi eða verkfræði. Önnur samfélög hafa jafnvel lagt ofur áherslu menntun lækna og heilbrigðisstarfsfólks svo hægt sé að koma á heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða. Það er staðreynd en ekki kenning eða samsæri að stjórnvöld hafa margoft í gegnum tíðina gert róttækar breytingar á menntakerfum og grunn menntastefnu landa sinna og oft með góðum árangri. Hvað er því þá til fyrirstöðu að ákveðin stjórnvöld nýti sér menntakerfið til eigin hagsmuna eða til lýðsstjórnunnar? Eru yfirvöld raunverulega að undirbúa okkur af kostgæfni fyrir lífið eða eru þau einfaldlega að reyna að gera okkur háð þeirra kerfi og hlekkja okkur í einhverskonar hugmyndafræðilegan þrældóm svo auðveldara sér að stjórna okkur eftir hentugleika? Þetta og svo margt, margt fleira er snýr að menntakerfi heimsins í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Valdastéttin nýti menntakerfið til þess að framleiða undirgefna borgara. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=6TLo4Z_LWu4 Þessi í heild bara 40 sek https://www.youtube.com/watch?v=8QBylIs_lXI 00,00-00:19 https://www.youtube.com/watch?v=ICx9wOdtZJE Öll klippan https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGE 2:20-4:44 https://www.youtube.com/watch?v=1lgeKD-VGtM YES! https://www.youtube.com/watch?v=YNQDp3v-VGE Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki. Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægrardvöl og oft á tíðum jafnvel fræðandi í leiðinni. En getur verið að þessi dægurmenning sé ekki einunigs saklaust afþreyingarefni hannað til að stytta fólki stundir og okkur til yndisauka? Hvað ef Hollywood stúdíóin og streymisveiturnar eru að lauma duldum skilaboðum og jafnvel heilaþvotti í afþreyinguna til þess að ganga erinda eiganda sinna eða hulduaflanna? Eru moldríku jakkafatakakkalakkarnir í Hollywood með stór plön og annarleg markmið um að stýra heiminum og umræðunni í ákveðna átt, svo þeir geti grætt enn meiri pening eða komið sínu fólki að í stjórnmálum? Eða snýst þetta kannski bara um að reyna að gera gott bíó og þjóna almenningi með því að færa fólki það sem það vill? Stýra fjölmiðlar samfélaginu eða endurspegla þeir einfaldlega samfélagið hverju sinni? Eða eru hin margumræddu hulduöfl allt í öllu í kvikmynda og skemmtanaiðnaðinum og ekki verður komist hjá því að lenda í heilaþvottavélum iðnaðarins? Hverjir eiga í alvörunni þessar streymisveitur og kvikmyndaver og hversu mikil raunveruleg afskipti hafa þessir aðilar af efnistökum afþreyingarinnar? Ef einhver? Hittast oligarkarnir og peningapúkarnir reglulega í reykfylltum bakherbergjum og ræða hvaða woke málefni skuli sett á oddinn næst og hvaða hræðsluáróður skuli næst notaður til að stjórna fólki? Þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum hvar þeir kumpánar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Netflix og stóru Hollywood kvikmyndaverin séu heilaþvottavélar fyrir hulduöflin í samfélaginu. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Brainwashed America: The Secret Of Subliminal Messaging | Absolute Documentaries How Hollywood Sells Us War Bill Clinton's Favorite Movie: CNN "High Noon" Interview With Harvey Weinstein Harvey Weinstein gave inaugural Advocate for Change Award to former President Bill Clinton p.1 George Harrison talking about taking LSD with John Lennon .. "the notorious wonder drug" (1971) KGB defector Yuri Bezmenov's warning to America (1984) Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um leið höfðu þessi fúlmenni og keyrt öfgastefnu sína fram af slíku offorsi að þeim hafði tekist að murkað lífið úr miljónum manna og leggja hálfa heimsálfuna í rúst og gott betur en það. Að lokum tókst Bandamönnum og Sovétmönnum þó blessunarlega að þjarma nóg að nasistunum svo Hitler og kumpánar gáfust upp og Hitler flúði ofan í neðanjarðarbyrgi sitt, þar sem hann ákvað að binda endi á þetta allt saman og taka bæði inn blásýru og skjóta sig. Eða hvað? Er möguleiki í að Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu 30.Apríl 1945 og komist lífs af til Argentínu? Lengi hafa verið til sagnfræðingar sem efast hafa um söguskýringuna og bent hafa á að það sé örlítið varasamt að fara að treysta orðum Sovétmanna, sem segjast hafa komið á vettvang eftir að líkið hafði verið brennt og flutt öskuna í burtu og grafið á leynilegum stað. Það myndi eflaust henta þeim afar vel að stjórna söguskýringunni og koma út einsog einhverskonar sigurvegarar og frelsarar Evrópu. Svo hefur fundist fjöldinn allur af neðanjarðarbyrgjum og leynigöngum í allar áttir, sem staðfest hefur verið, að notuð voru af öðrum háttsettum nasistum, sem síðar dúkkuðu upp í Argentínu og víðar í S-Ameríku. Þá eru það allir sjónarvottarnir hingað og þangað um heiminn sem eru sannfærð um að þau hafi séð Hitler á vappi, sprelllifandi og kampakátann. Allt frá Danmörku og Noregi til Spánar, Portúgal og jafnvel Kólumbíu, Brasilíu og einmitt Argentínu. Allskonar fólk sem er alveg 100% sannfært um að það hafi séð Hitler sprækan einhversstaðar á stangli. Meira að segja er til fólk sem fullyrðir að þau hafi aðstoðað við að koma Hitler undan huldu höfði. Eru þetta bara glórulausar staðhæfingar einhverra vitfirringa í óráði eða er eitthvað mögulega til í þessum staðhæfingum? Hvers vegna eyddi Bandaríska alríkislögreglan(FBI) tíma og orku í að rannsaka málið ef ekki er arða af sannindum til í kenningunni? Hvernig stendur þá á því að Josef Stalin, og Dwight D Eisenhower stóðu í þeirri trú að Hitler hafi komist undan? Við erum vissulega með framburð fjölda vitna úr neðanjarðarbyrginu sem segjast öll hafa séð Hitler skjóta sig en þau voru öll nánir samstarfsmenn Hitlers og yfirlýstir nasistar, af hverju ættum við að treysta þeim? Gætu þau ekki allt eins hafa verið með í ráðum? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór, ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Adolf Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu, heldur komist lífs af og flúið til Argentínu, þar sem hann lifði til gamals aldurs. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem eiga sér hugsanlega enga stoð í raunveruleikanum. Eða eru þau mögulega þau einu sem muna eftir hinum sanna raunveruleika og við hin erum eitthvað að misskilja eða í sýndarveruleika? Hér er um að ræða mjög sambærilega hluti og þeim sem finnast í hinum ruleikanum, bara örlítið frábrugðna. Eða eru mögulega til fleiri en einn veruleiki? Og er kannski hægt að flakka um þessa veruleika eða víddir, bæði óvart og jafnvel vísvitandi? Þessi meinti misskilningur, eða fölsku minningar, sem einhver vilja meina að sé staðfesting á tilvist víddaflakks hafa verið kölluð Mandela áhrifin og eru nefnd eftir þeirri algengu falsminningu eða misskilningi að Nelson Mandela fyrrverandi forseti Suður Afríku hafi látist í fangelsi og aldrei orðið forseti. Til eru fjölmörg dæmi um bækur, bíómyndir, teiknimyndir og jafnvel heimsþekkt vörumerki sem fólk er sannfært um að haf eitt sinn verið á einn veg en séu nú á annan veg. Næstum því eins, en samt ekki. Líkt og heimur okkar sé farinn að skarast eða renna saman við annan heim eða aðra vídd sem sé svo ótrúlega lík okkar veröld að erfitt sé að átta sig á muninum. En hvernig gæti þetta hafa gerst? Hvenær byrjuðu heimarnir að renna saman og fólk að upplifa þessar fölsku minningar og hvað veldur þessu? Er um einn alsherjar misskilning að ræða eða er einhver að rugla í okkur til að skapa sundrungu og óeiningu innan samfélagsins? Hvað græðir nokkur maður á því að rugla í minningum fólks og valda misskilningi okkar á milli? Er þetta bara gert til þess að fá fólk til að þræta um ómerkilega hluti frekar en einbeita sér að því sem raunverulegu máli skiptir? Þetta og um það bil allt það sem þú vildir vita um Mandela áhrifin og meira til í þessum nýjasta þætti Álhattarins, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða um tilvist hinna skemmtilegu og áhugaverðu Mandela áhrifa og hvað geti mögulega búið að baki þeim. Hlekkir á ítarefni: The Mandela Effect Phenomenon Mandela Melodies Starter Pack | Countdown List of Mandela Effect'd Music Gotthard Base Tunnel opening ceremony The Contestant (2023 film) The Empire Strikes Back "No, I am your father" Zurich's Burning Snowman Festival | Sechseläuten Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim. Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi. En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í meðlimi sveitarinnar og fljótt fór að bera á orðrómum um mikla vímuefnaneyslu meðlima og þá sérstaklega söngvarns Kurt Cobain. Hann átti I stormasömu sambandi við Courtney Love sem var söngkona grugg sveitarinnar Hole og saman áttu þau eina dóttur að nafni Frances Bean Cobain. Að endingu gekk neyslan það langt að hann sá sér ekkert annað fært en að skrá sig í meðferð á Exodus meðferðarheimilið í Kaliforníu. En einungis degi síðar gengur Kurt út af meðferðarheimilinu og fer heim í bíl með æsku vini sínum sem hafði komið að sækja hann. Nokkrum dögum síðar finnst Kurt látinn í gróðurhúsi á heimili sínu, þar sem talið er að hann hafi fyrirfarið sér með hagglabyssu. Fljótlega runnu þó tvær grímur á fólk sem töldu afar ólíklegt að Kurt hafi þar sjálfur verið að verki. Benti fólk á þá staðreynd að gífurlega mikið magn af heróíni hafi mælst í blóði Kurt og að afskaplega ólíklegt þætti að hann hefði haft mátt í líkamanum til þess að hleypa af byssunni. Þá eru víst afar fátítt að fólk í heróín vímu skjóti sig og vilja einverjir álhattar jafnvel meina að Kurt sé eini maðurinn í sögunni sem hefur skotið sig í hausinn með hagglabyssu í heróín vímu. Þá hafa einnig stigið fram einstaklingar sem hafa sagt að Courtney hafi boðið þeim peninga fyrir að myrða Kurt en þessir einstaklingar fundust svo afhausaðir á lestarteinum stuttu síðar. Sviplegur og óvæntur dauði Kristen Pfaff, bassaleikara Hole, berst einnig í tal og því velt fyrir sér hvort Courtney hafi mögulega einnig haft eitthvað með hann að gera, enda voru Kristen og Kurt milir og góðir vinir og neyslufélagar. Sem gæti hafa valdið öfund eða afbrýðissemi hjá Courtney. Þetta og margt margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri lífseigu og afar áhugaverðu samsæriskeningu að Kurt Cobain hafi ekki framið sjálfsmorð árið 1994 heldur hafi hann verið myrtur. HLEKKIR Á ÍTAREFNI Soaked in Bleach - Kurt Cobain Murdered Documentary The Last 48 Hours of Kurt Cobain Kurt & Courtney heimildarmynd frá 1998 what Actually Happened To Kurt Cobain? Did Allen Wrench Kill Kurt Cobain? Did Courtney Love Kill Kurt Cobain? What Happened During His Final Days? Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna? Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu og drottna yfir náttúrunni? Samsæriskenningin um efnarákir(chemtrails) er síður en svo ný af nálinni og kenningin nýtur merkilega mikils stuðnings víðsvegar um heiminn. Svo virðist vera sem rákirnar megi finna á himnum í svo til hverju einasta sveitafélagi, fylki eða borg í hverju einasta landi varaldar. Ef um samsæri er að ræða, þá er væntanlega um eitt stærsta og umfangsmesta samsæri veraldar að ræða. Hversu margir eru með í ráðum? Allir flugmenn, flugumferðarstjórar, hleðslu fólk á jörðu niðri? Eða er kannski samsærið falið fyrir þeim öllum líka? Og leynilegum eiturefnum blandað í flugvélabensínið? Hvað í veröldinni voru Project Cirrus, Project Cumulus eða Project Skyfire? Hvers vegna myndu stjórnvöld og vísindamenn vilja stjórna veðrinu og hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Opinberu skýringarnar eru þær að mögulega megi koma í veg fyrir þurrka og uppskerubrest og þannig hugsanlega einnig koma í veg fyrir kreppur og ef til vill afstýra byltingum og óeirðum. Hvað ef þau eru ekki bara að reyna stjórna veðrinu? Geta þau kannski stjórnað hugsunum okkar og gjörðum með þessum efnum? Hverju eru þau að spreyja og hvaða heilsufarsleg áhrif hefur það á fólk, plöntur og dýr? Eru ál, baríum og brennisteinn í snefilmagni raunverulega skaðleg og ástæða þess að svo gífurleg aukning hefur orðið í tilfellum krabbameina og alzheimers í heiminum? Eða hefur það kannski meira með hækkandi aldur og auknar lífslíkur fólks að gera? Hvað í veröldinni er skýja sáning(e.cloud seeding)? Hver eru Council of foreign relations og hvers vegna í veröldinni vilja þau samtök dimma himininn? Getur verið að hér sé hugsanleg lausn á loftslagsvánni og hamfarahlýnun? Eða eru hér á ferðinni gífurlega valdamikil hagsmunasamtök sem bera einungis eigin hag í húfi? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sneisafullur af bitastæðu efni, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá stórkostlega skemmtilegu og áhugaverðu kenningu að efnarákum(chemtrails) sé skipulega úðað í andrúmsloftið með annarleg markmið að leiðarljósi. Hlekkir á ítarefni: The dimming, climate engineering documentary Holes in Heaven? HAARP and Advances in Tesla Technology" (1998) Frankenskies What in the World Are They Spraying Why in the World Are They Spraying Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í lagi hjá unga fólkinu. Plötur þeirra seldust í bílförmum og hvert sem þeir fóru voru þeir eltir á röndum af æstum aðdáendum og enn þann dag í dag njóta plötur þeirra og lög gífurlegra vinsælda. Færri, en þó einhverjir, kannast þó við áhugaverða samsæriskenningu um að einn Bítlanna, Paul Mccartney, hafi látiast í bílslysi árið 1966 og verið skipt út fyrir tvífara sinn og loddara. Í upphafi var bara um einhverskonar flippkattar flökkusögu að ræða, sem virðist aðallega hafa verið rædd í hipstera partýjum og reykfylltum herbergjum á háskóla heimavistum. Það breyttist haustið 1969 þegar háskólablaðið Drake Times-Delphic í Iowa birtir grein með fyrirsögninni Paul is dead þar sem sú kenning að Paul Mccartney hafi látist í bílslysi er reifuð. Í október sama ár vekur hinn goðsagnakenndi útvarpsmaður Russ Gibb athygli á málinu í útvarpsþætti sínum, eftir að diggur hlustandi og aðdáandi þáttarins hafði hringt inn í þáttinn og vakið athygli Russ á kenningunni. Eftir það var kötturinn kominn úr tunnunni og sagan dreifðist hratt um heiminn líkt og eldur í sinu. Bítlaaðdáendur sem og aðrir lögðust yfir myndir, texta og annað efni frá Bítlunum og reyndu að lesa í meint falið dulmál eða myndmál, sem kenningarsmiðir vildu meina að Bítlarnir hefðu skilið eftir á framhliðum platna eða í textum laga sinna. Þá voru einnig einhverjir sem vildu meina að með því að spila ákveðin lög Bítlanna afturábak mætti finna enn frekari leynd og dulúðleg skilaboð. En er einhver fótur fyrir þessum kenningum? Lést Paul McCartney raunverulega í slysi á léttbifhjóli sínu árið 1966 eða er bara um reykmettaðar pælingar einhverra misvitra hippa, með kannski aðeins of mikinn frítíma eða örlítið of óhindrað aðgengi að hinum ýmsu ofskynjunarefnum og vímuefnum að ræða? Er eitthvað til í þessari flökkusögu og samsæriskenningu eða er fyrst og fremst um fyndnar og skemmtilegar pælingar rammskakkra háskólanema að ræða? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá langlífu, stórskemmtilegu en mögulega örlítið fjarstæðukenndu samsæriskenningu að Paul McCartney úr Bítlunum hafi látist af slysförum árið 1966 og verið skipt út fyrir loddarann Faul. HLEKKIR Á ÍTAREFNI Paul McCartney vs Billy Shears - voice comparison - Yesterday 1965 vs 1973. Very different voices. The Beatles - Revolution 9 (vinyl LP - first 40 seconds backwards) Strawberry Fields Forever - I Buried Paul - TURN UP VOLUME AND LISTEN CAREFULLY! Paul McCartney Recalls The Beatles' 1964 U.S. TV Debut | Letterman The Bizarre Fan Theory Claiming Paul McCartney Is Dead Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á fólk og ýmsa fór að gruna að ekki væri allt með felldu og mögulega væri þarna eitthvert óreint mjöl í pokahorninu. En hver var Dag Hammerskjöld eiginlega, hvernig hlaut hann þessa stöðu hjá sameinuðu þjóðunum og hví ætti einhver að vilja hann feigann?? Getur verið að yfirlýsingaglaður og skoðanagjarn Dag hafi aflað sér það mikillar óvildar innan sameinuðu þjóðanna með gengdarlausri baráttu sinni fyrir því sem hann taldi réttlátari og betri heim? Er möguleiki á að nýlenduherrar á borð við Belgar og/eða Bretar hafi hreinlega fengið nóg af þessum óþreytandi réttlætisriddara sem hætti ekki að tjá sig um arðrán og þjófnað vesturveldanna í Afríku og látið koma honum fyrir kattarnef? Hver er The Lone Ranger og hvernig tengist málið belgískum námufélögum og Suður-Afrísku hafrannsóknarstofnunni? Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri áhugaverðu en kannski lítt þekktu samsæriakenningu að nýlendunherrarnir hafi látið granda vél Dag Hammerskjöld framkvæmdastjóra sameinuðu þjóðanna. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Cold Case Hammarskjöld | Documentary Dag Hammarskjold: The Man Who Built the United Nations The Mysterious Death of a UN Secretary-General Nýjustu fréttir og skjöl í rannsóknum á Hammarskjold UN extends investigation into mysterious death of its former Secretary-general Dag Hammarskjöld in 1961 JFK Patrice Lumumba Dag Hammarskjöld CIA Allen Dulles Hammarskjold the Movie Cold Case Hammarskjöld - Exclusive Clip - Hammarskjöld the Flaming Idealist Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga? Ef eitthvað er að marka flatneskjufræðinga og ákveðna Álhatta á borð við Eric Dubay, Mark Sargent og Patricia Steere þá hafa geimvísindamenn og stofnanir verið að ljúga að okkur, ekki bara í nokkra áratugi heldur í fleiri fleiri aldir og eru ekkert að fara að hætta því í bráð. Allt sem okkur verið kennt um sólina, tunglið, sólkerfið og alheiminn er eitt stórt platgabb og allar meintar geimferðir manna(og hunda) hvort sem er til Tunglsins eða eitthvað annað eru ekkert annað en hugarburður og skáldskapur einhverra brjálaðra spunameistara á vegum ríkisins og hagsmunaðilla. Getur verið að ríkiskassar um allan heim séu mergsognir og blóðmjólkaðir af gráðugum peningaplokkurum, sem hafa selt heiminum einhver falsvísindi um hnöttótta jörð, himingeim og aðrar plánetur þegar staðreyndin er sú að jörðin er flöt og að við búum öll undir einhverskonar glerhjúp? Svífast þessir hnattlingar einskis? Kenningin um að jörðin sé flöt er alls ekki ný af nálinni og einsog við þekkjum af sögubókunum er sú skýring mun eldri en allar hugmyndir manna um að jörðin sé einhverskonar hnöttur eða kúla. Hvað ef að fólk hafði rétt fyrir sér í upphafi en var síðar blekkt? Hvað höfum við raunverulega fyrir okkur í því að jörðin sé hnöttur? Kenningin um að jörðin sé flöt er eldgömul og lífseig og varla lifði svona lengi í gömlum glóðum þessarar kenningar, ef ekki væri nokkur fótur fyrir kenningunni, eða hvað? V Í þessum nýjasta þætti Álhattarins ræða vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór einstaklega skemmtilegu og áhugaverða kenningu sem notið hefur gífurlegra vinsælda á samféalgsmiðlu og veraldarvefnum á undanförnum árum, þá skemmtilegu og afskaplega áhugaverðu kenningu að jörðin sé í raun og veru flöt. Hlekkir á ítarefni: BEHIND THE CURVE movie trailer Convex Earth - The Documentary - The Flat Earth Scientific Proof LEVEL (Flat Earth Film) 2021 Jimmy Kimmel Asks Shaq if He Really Thinks the Earth is Flat Joe Rogan - Neil deGrasse Tyson on Eric Dubay & Flat Earth https://www.youtube.com/@truthavision https://www.youtube.com/@flateartheric https://www.youtube.com/@markksargent Phillip Is Absolutely Baffled by the Men Who Believe the Earth Is Flat | This Morning Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt. Hversvegna ættu einkaaðillar að fá að stjórna magni og flæði peninga í hagkerfinu fremur en ríkið sjálft og hversvegna fá þessir einkaaðillar að prenta peninga af vild án þess að ríkisvaldið hafi eitthvað að segja um það? Eru einkaaðillar kannski betur til þess fallnir að taka vaxtaákvarðanir og sjá um stjórn hagkerfisins, fremur en að setja valdið í hendur dittótra og sérlundaðra atvinnu-pólitíkussa sem stjórnast eingöngu af eiginhagsmunum og eigin metnaðargirni JP-Morgan, Rothschild og félagar hans myndu færa fyrir því rök að það væri óráð og hálfgalið að setja slíkar ákvarðanir í hendur stjórnmálamanna enda getur slíkt leitt til óreið og glundroða í hvert sinn sem skipt er um ríkisstjórn eða seðlabankastjóra? Stjórnmálamenn eltast við vinsældir almennings og gætu tekið glórulausar og efnahagslega hættulegar ákvarðanir í tilraun sinni til atkvæðaveiða, með tilheyrandi efnahagslegri áhættu og auknum líkum á sveiflukenndu hagkerfi, á meðan einkaaðillar þurfa ekki að reiða sig á atkvæði eða vinsældir hjá almenningi og eru því líklegri til þess að taka réttar ákvarðanir sem þjóna hagkerfinu öllu, ekki satt Eða getur verið að um eitt allsherjar samsæri og plott örfárra ríkra fjölskyldna til að stjórna heiminum sé að ræða, í krafti auðs og fjármagns? Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem félgarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að valdarán hafi verið framið á seðlabanka bandríkjanna og hafi leitt af sér algjöra stjórn á landinu. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Money for nothing heimildamynd um federal reserve Money Masters heimildarmynd Century of Enslavement: The History of the Federal Reserve" NPR podcast um leynifundinn á bakvið federal reserve Money, Banking, and the Federal Reserve Escaping the Rat Race: What School Failed to Teach You About Money. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víðar. Mannaparnir eða stórfótarnir eru sumir hverjir ógnar stórir en aðrir smærri, allt eftir því frá hvaða menningarheimi sögurnar eru. En þrátt fyrir fjöldan allan af þjóðsögum og munnmælum um þessar gríðarstóru verur þá hefur engum tengist að sanna tilvist þeirra. Engar beinagrindur, hauskúpur eða ummerki um verurnar hafa fundist og ekki svo mikið sem ein hárlufsa, sem tekist hefur að sanna að tilheyri stórfæti eða einhverskonar risavöxnum mannapa. Þá virðist líka allt myndefni af verunum vera frá sjötta eða sjöunda áratug tuttugustu aldar og af einhverjum ástæðum hefur enginn stórfótur náðst á mynd eftir tilkomu myndavélasímanna. Er það vegna þess að stórfætur eru raunverulega ekki til eða er það vegna þess að stjórnvöld um allan heim og vísindasamfélagið þegja og hylma yfir tilvist þeirra? Búa þessar verur mögulega yfir einhverskonar hæfileikum til þess að gera sig ósýnilegar mönnum og tekst þeim sífellt að fela sig fyrir okkur? Mögulega er bara um þjóðsögu eða skáldskap að ræða en hvernig útskýrum við þá allan þennan fjölda vitnisburða og sambærilegra munnmæla frá jafn ólíkum menningarheimum og löndum? Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að stórfótur hinn ógurlegi sé til. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: A Flash of Beauty: Bigfoot Revealed (The Official Documentary) Bigfoot and Wildboy Theme Bigfoot Patterson film hoax solved 2005 Shocking New Bigfoot Documentary! Is Big Foot an Inter-dimensional Creature? OVER 1 HOUR OF BIGFOOT ENCOUNTERS Bigfoot Chasing Car in Colorado The Proof Is Out There: The Man Who Killed Bigfoot Is this Sasquatch? He was spotted near Washington mountain passes The UnXplained: Bigfoot Sighting BAFFLES Researchers Top 10 Concerning Bigfoot Evidence The Government Is Hiding From Us Big Foot Sighting " Hi Deff " ‘Bigfoot’ sighting in Colorado? BIGFOOT SIGHTINGS BY MONTH Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans. Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur, gullkeðjur og aðrar vörur sem tengdar eru við gengja lífsstíl seldust eins og heitar lummur. En hvað olli þessum skyndilegu og óvæntu vinsældum bófarappsins? Hversvegna fóru plötufyrirtæki allt í einu og að því er virðist upp úr þurru að leggja höfuðáherslu á tónlist og dægurmenningu sem lofsamar eiturlyfjasölu, morð og aðra glæpi? Hvað hefur þetta allt saman með menningarstríð austurstrandarinnar og vesturstrandarinnar að gera og hvers vegna var annað tónlistarfólk í öðrum geirum ekki jafn iðið við glæpastarfsemi? Hvað hvatti þessar stóru útgáfur til þess að ýta undir samfélagsmein eins og morð og fíkniefnaneyslu? Getur verið að plötuútgefendur hafi mögulega haft hagsmuni af því að halda glæpatíðni hárri? Hvað hefur þetta með einkarekin fangelsi að gera og getur verið að eigendur fangelsanna tengist eigendum plötufyrirtækja á einhvern hátt? Þetta, stríðið gegn fíkniefnum, deilurnar milli oasis og blur, nýjustu vendingar í rappstríðinu í Chicago og svo margt, margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum af Álhattinum. Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að eigendur plötufyrirtækja og einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum hafi vísvitandi ýtt undir vinsældir bófarapps á 10.áratug síðustu aldar til þess að fylla fangelsin. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Ice Cube Admits 90's Gangster Rap was a Government Psyop ÁTRÚNAÐARGOÐIN - Tungumálarar Blondie - Rapture Coolio - Gangsta's Paradise Chief Keef - I Don't Like f/ Lil Reese Scapegoat Fbg Duck - Dead Bitches Official Video King Von "Crazy Story" Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons. Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína gegn frumvörpunum SOPA og PIPA sem voru frumvörp sem hefðu takmarkað verulega athafnar og tjáningarfrelsi fólks á netinu. En þökk sé baráttu Aaron og fleiri þá tókst almenningi að stöðva frumvörpin ógurlegu. Auk þess að brjótast inn í MIT háskólann og fela þar fartölvu sem hann hafði forritað sérstaklega til þess að stela gífurlegu magni af gögnum á ógnarhraða. Fyrir þetta sóttu Bandarísk yfirvöld fast á hælar honum og hugðust draga Aaron fyrir alríkisdóm og skella honum í margra áratuga fangelsi. En á meðan Aaron beið réttarhalda sinna fremur hann öllum á óvörum sjálfvíg í búð sinni. Eða svo segir amk opinbera sagan sem yfirvöld vilja að við trúum. En ekki eru allir sem kaupa þessa sögu yfirvalda og telja afar ólíklegt að Aaron hafi fallið fyrir eigin hendi. Getur kannski verið að Aaron hafi fundið eða séð eitthvað af gögnum sem ekki máttu líta dagsins ljós eða komast í hendur almennings? Hvernig tengist þetta hinum títtnefndu og margumræddu hulduöflum og hvað í veröldinni hefur Epstein góðvinur þáttarins með málið að gera? Hversvegna valdi Aaron að brjótast inn í MIT en ekki einhvern annan háskóla og hvernig tengist þetta hinum gífurlega metnaðarfullu "góðgerðarverkefni" One Laptop Per Child? Þetta, Julian Assange, Alexei Navalny og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: The Internet's Own Boy: The Story of Aaron Swartz | full movie (2014) 'The Murder of Aaron Swartz' - Rumble Dad_ The govt. killed my son, Reddit co-founder President Joe Biden Boasted About Using A Billion-Dollar Loan Agreement With Ukraine As Leverage Aaron Swartz_ How We Stopped SOPA What Is Reddit_ How Reddit became the front page of the internet Hunter Biden on _Beautiful Things_ and his struggles with substance abuse How Downloading Too Much Destroyed Reddit's Founder One Laptop Per Child Top MIT Official Resigns Over Epstein Donations Cornyn Questions Holder Over Death of Aaron Swartz Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor þeirra. En getur verið að þrátt fyrir blátt bann við klónun manna hafi fólk samt verið klónað? Hvað ef að frægum og valdamiklum einstaklingum hefur jafnvel verið skipt út fyrir klóna, sem láta auðveldlega af stjórn, og gera allt sem þeim er sagt þegjandi og hljóðalaust, líkt og strengjabrúður? Ef svo er, hvar eru þessir klónar geymdir á meðan þeir alast upp og vaxa úr grasi eða fæðast þeir kannski fullvaxta? Hver er það sem er að klóna þessa einstaklinga, hvernig og hversvegna? Hverra hagur er að það að skipta þessum aðillum út? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort það sé mögulega búið að klóna fólk og þagað sé yfir því og skoða strákarnir líka hvort frægum og áhrifamiklum einstaklingum hafi jafnvel verið skipt út fyrir undirgefna klóna sem fylgja fyrirskipunum að ofan í blindni. Strákarnir kynna sér líka hvað í veröldinni hönnunarbörn(e: designer babies) séu og hvernig yfirstéttarfólk á vesturlöndum sækir í auknu mæli í glasafrjóvganir í Kína og öðrum löndum, hvar þau geta “hannað sín eigin börn” með því að velja t.d hárlit, augnlit og önnur útlitseinkenni algjörlega eftir eigin höfði og smekk. Gæti yfirstéttin og hulduöflin gert sjálf sig að ofurmanneskjum sem eru ónæm fyrir allskyns sjúkdómum sem munu herja á almenning í framtíðini? Verða krabbamein sykursýki og aðrir kvillar eingöngu áhyggjuefni okkar pöpulsins í framtíðinni á meðan valdaklíkan og fína fólkið lifir áhyggjulausu lífi laust við alla erfðagalla og hættulega sjúkdóma? Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum Álhattinum. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Rappers Who Have Been CLONED (Kodak Black, Eminem, Gucci Mane And MORE!) Actor Jamie Foxx speaks out about his mysterious medical issue that landed him in the hospital Designer Babies South Korea’s Dog Cloning Industry Kid Buu Exposes Clone Theory Clonaid Claims First Cloned Human Baby (2002) Doctor Claims He Cloned Human Embryos Eminem ESPN Interview - Notre Dame vs. Michigan Halftime 2013 MMLP2 Britney Spears glitch Gene Editing: How CRISPR Will Change EVERYTHING & Create Designer Babies Anderson Cooper mocks Al Roker's frozen pose 10 Famous People Who Look EXACTLY The Same Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl. En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum). Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls kyns hindrunum sem mögulega gætu staðið í vegi fyrir frekari þróun mannkyns. Það þarf að tryggja efnahagslegan vöxt án þess að ganga á náttúruna eða að vöxturinn bitni á framtíðar kynslóðum. Það þarf að tryggja sjálfbæra þróun. Trilateral Comission, Club of Rome og Council On Foreign relations eru allt samtök sem gefa sig öll út fyrir þessi sömu óræðu markmið og hafa tekið upp teygjanleg og túlkandi tískuorð sem sín einkunnarorð og gildi. En WEF er enmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattarinum. Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að það geti verið að WEF starfi undir fölsku flaggi? Hvað ef þetta snýst ekkert um aukna sjálfbærni eða jafnræði heldur um aukin völd og enn frekari söfnun auðs á fárra hendur. Þetta og svo margt margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hin stórmerkilegu en jafnframt furðulegu samtök WEF og velta því fyrir sér hvað felist eiginlega í hinni miklu endurræsingu HLEKKIR Á ÍTAREFNI Frá WEF í Davos - COVID-19: The Great Reset Viðtal við Klaus Schwab What is the Great Reset? í orðum WEF The Great Reset auglýsing You will own nothing be happy auglýsing World Economic Forum's "8 Predictions for the World in 2030" Karl Bretakonungur talar um The Great Reset Can you rent everything you need in life? How we'll live in 2030? Warnings of ‘Orwellian’ Great Reset How we can stop them from stealing everything from us King Charles | We have no alternative How To Prepare For The GREAT RESET (It's Happening) What is "The Great Reset" | Economics Explained WEF Davos Ræða frá Yuval Noah Harari Yuval - The Great Reset Yuval | Drugs & Video Games Dutch banker exposes religion of the elite & who they worship Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans. En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það? Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til? Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri samsæriskenningum sem til eru en lifir þó góðu lífi og á sér merkilega marga fylgjendur. Svo marga fylgjendur að sjónvarpsstöðvar framleiða heilu þáttaraðirnar um kenninguna og fylgjendur hennar og reglulega er vísað í kenninguna í bíómyndum og annari dægurmenningu. En er eitthvað sem raunverulega styður við kenninguna eða er þetta bara glórulaust en fyndið þvaður misvitra einstaklinga? Hvað hefur þetta td með blóðflokka að gera(ef eitthvað) og hversvegna fæðist sumt fólk með skott? Eru þau kannski afkomendur eðla? Tengist þetta jafnvel á einhvern hátt fornri menningu Egyptalands eða Mesopotamiu? Eða er þetta kannski bara eitt stórt peningaplokk og svikamylla og David Icke og félagar eru einungis að ganga erinda hulduaflanna og í raun gagngert og skipulega að reyna að kasta rýrð á samsæriskenningar og fylgjendur þeirra? Svo eru þau til sem segja kenninguna ekkert annað en dulbúið gyðingahatur. Hvort sem að eðlufólk er til og hversu valdamikil sem þau eru í raun verður amk að viðurkennast að kenningin er í það minnsta áhugaverð þó sumt fólk kunni að kalla hana gjörsamlega galna. Þetta er einmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór reyna að ræða á eins vitrænan en jafnframt glórulausan hátt og á annað borð er hægt um þá kenningu að einhverskonar eðlufólk gangi á meðal vor og sé búið að koma sér fyrir í öllum krókum og kimum samfélagsins þar sem þau stjórna í raun öllu bakvið tjöldin. Allt frá stjórnmálum til skemmtanaiðnaðarins. Hlekkir á ítarefni sem er til umræðu í þættinum: THEY LIVE Clip - Obey (1988) Species (1995) | Official Trailer David Icke claims that he's the "Son of God" David Icke talks conspiracy theories - BBC News David Icke: Conspiracy of the Lizard Illuminati (Part 1/2) David Icke Animated Video - The Spider, The Cult & The Pyramid Ancient Aliens: The Hollow Earth Theory (Season 10) | History Richard E. Byrd's second trip to the Antarctic, 1935 Louis C.K. Asks Donald Rumsfeld If He Is A Lizard Crab people....crab people Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á tunglið. Í huga þessara Álhatta var einungis um einn allsherjar blekkingarleik og sjónarspil í boði Hollywood að ræða og Neil Armstrong Buzz Aldrin og Michael Collins ekki aðeins fóru aldrei til tunglsins heldur yfirgáfu þeir hreinlega aldrei gufuhvolf jarðar. Hvernig stóð til dæmis á því að bandaríski fáninn gat gefið frá sér skugga í margar mismunandi áttir líkt og ljós kæmi úr mörgum áttum, þegar eina ljóstíran kom frá sólu? Voru tunglfararnir kannski með kvikmyndaljós með sér í ferðinni? Hversvegna blakti fáninn líkt og í rammíslenskri sunnanátt ef hann var í raun í þyngdarleysi á tunglinu Hvernig gat eiginlega Neil Armstrong skilið eftir sig djúp fótspor í tunglinu ef tunglfarið sjálft, sem var töluvert stærra og þyngra, skildi enga djúpa gíga eftir sig? Hvernig í veröldinni þoldu hinir meintu tunglfarar allan þann bilaðslega kulda og gífurlega hita sem myndast getur á tunglinu og afhverju sjást engar stjörnur á himninum á neinum af þeim ljósmyndum sem þeir tóku í ferð sinni? Ættu stjörnurnar einmitt ekki að sjást betur úti í geimnum. Hvað hafa heimsóknir tunglfaranna til Íslands árin 1965 og 1967 með þetta að gera, hvað í veröldinni er eiginlega þetta Van Allen belti og hvernig tengist þetta allt kvikmynda leikstjóranum Stanley Kubrick? Er jörðin raunverulega hnöttótt eða er hún kannski kartöflulaga og hvernig stendur þá á því að allar myndir frá NASA sýna jörðina hnöttótta? Getur verið NASA séu að blekkja okkur? Var um raunverulegt einstakt og stórkostlegt tækniundur og mannlegan sigur að ræða sem sameinaði heimsbyggðina alla? Eða voru bandarísk yfirvöld hreinlegar orðin þreytt á því að tapa geimkapphlaupinu fyrir Sovétríkjunum svo þeir settu á svið einn allsherjar leikþátt með hjálp Hollywood og kvikmyndatækni. Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn oh Ómar Þór ræða eina þekktustu og klassískustu samsæriskenningu fyrr og síðar. Sjálfa tungllendingu Bandaríkjamanna. Hlekkir á ítarefni sem er til umræðu í þættinum: Apollo 13 - Trailer NASA Apollo 11 moon landing with Walter Cronkite Why files skoðar tungllendinguna MythBusters “tækla” samsærið A funny thing happened on the way to the moon Speglar á tunglinu? Neil Armstrong's Son Explains the Origins The Moon Landing: Stanley Kubrick's Greatest Film THE SHINING fake moon landing theory Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög. Áður höfðu kaup Roman Abramovich á Chelsea vissulega vakið efasemdir einhverra stuðningsmanna annara liða og einhverjir kváðu oft við þegar Real Madrid og Barcelona kepptust við að slá metin yfir dýrustu leikmenn sögunnar á sínumtíma. En sú gagnrýni var ekkert í líkingu við þá gagnrýni sem komið hefur fram eftir kaup olíusjóðs sameinuðu arabísku furstadæmanna á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. En hvað hefur þetta eiginlega að gera með Álhatta og samsæri kann einhver að spyrja? Er möguleiki á að eigendur Manchester City séu það auðugir og valdamiklir í krafti auðjöfra sinna að það sé farið að hafa áhrif á dómara og dómgæslu í úrvalsdeildinni almennt? Í nýjasta þættinum af Álhattinum ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór þá skemmtilegu samsæriskenningu að Manchester City séu ekki bara skekkja leikinn og kaupa titla með kaupum á öllum dýrustu og bestu leikmönnum á markaðnum heldur séu þeir einnig að hafa óeðlileg áhrif á dómara í ensku úrvalsdeildinni. Hlekkir á efni rætt í þættinum: Man City boosted its finances through creative plays, documents show Why Haven't Man City Been Punished Yet? Heimildarmynd um spillingu City Vörn City stuðningsmanna GAGNRÝNIR ÞAÐ AÐ DÓMARI FRÁ MANCHESTER DÆMI MAN CITY - LIVERPOOL The issues with multi-club ownership City Football Group. A Brand Of Its Own Hvaða úrvalsdeildarlið græða mest á VAR? 2019-20 2020-21 2021-22 2022-23 2023-24 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða. Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um. Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrrverandi forseti borgarstjórnar og einn fremsti Simpsons sérfræðingur landsins. Spádómar ræddir í hlaðvarpinu Apple Watch og skjásímar Hestakjöti blandað í máltíðir Snjallsímar og auto-correct FIFA spilling Grikkland er til sölu á ebay Disney kaupir 20 Century Fox Lady Gaga á Super Bow Sigfried og Roy tígrisdýra árás Top 4 spádómar Donald Trump er forseti USA Boson guðeindin og formúlan The Simpsons sýna hringborð ræða plott um að sleppa Zika Virus á almenning Spádómur um 11 september 2001 Hlekkir á annað ítarefni sem er nefnt í þættinum: Listi yfir allar spár í Simpsons 25 atriði sem Simpsons hafa spáð Sjónarhorn Sviss (hlutlausa fólksins) Hvernig fókus þáttana færist frá prakkaranum Bart yfir til “vitleysingsins” Hómer Góð yfirferð þar sem spádómarnir eru útskýrðir frá sjónarhorni efahyggjufólks Kenningin rifin í sig af efasemdarfólkinu á snopes.com Reuters með áreiðanleika athugun á fullyrðingunni og spádómunum Hvað er forvirk samfélagsforritun og hvernig virkar hún? Matt groening ferðast með lolita express Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna? Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað síðsumars og í haust 2023 eru sagðir vera umfangsmestu skógareldar í sögu Hawaii og mestu náttúruhamfarir sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum á síðustu hundrað árum. En voru þetta raunverulegar og óumflýjanlegar náttúruhamfarir líkt og stjórnvöld og opinbera skýringin vilja meina? Eða getur verið að eitthvað mun dekkra búi að baki? Er möguleiki að eldarnir hafi verið kveiktir viljandi og þá hvers vegna? Einnig ræða þeir undarlegar ákvarðanatökur lögreglu og annara viðbragðsaðila sem virðast um það bil allir hafa tekið eintómar rangar ákvarðanir auk þess að ræða það einfaldlega hvað í veröldinni háþróuð örbylgjuvopn séu. Orkuveita Hawaii og eignarhald hennar ber einnig á góma og þeirri spurningu velt upp hvernig eldur geti kviknað út frá rafmagnslínum löngu eftir að rafmagnið hefur verið rofið af línunum. Strákarnir spá einnig í það hvers vegna yfirvöld skrúfuðu fyrir vatnið í miðjum björgunaraðgerðum og takmörkuðu þannig möguleika slökkviliðsins til þess að berjast við eldana og hvað bjó að baki þeim ákvörðunum að loka öllum vegum út af meintu hamfarasvæðinu? Getur verið að hús með bláum þökkum brenni síður en önnur hús og hvernig í veröldinni þetta eiginlega lögreglustjórum á Hawaii og hans fortíð? Og hvað hafa Oprah Winfrey og Dwayne “The Rock” Johnson með málið að gera. Blackrock, Vanguard, Lockheed Martin og aðrir reglulegir vinir þáttarins eru að sjálfsögðu til umræðu auk John Podesta "uppáhalds" miljarðarmæringi Guðjóns Heiðars. Þetta og margt meira í nýjasta þætti Álhattarins. LINKAR Á VIDEO Í ÞÆTTINUM: https://rumble.com/v3gel61-maui-directed-energy-weapon-documentary-dew-.html https://www.youtube.com/watch?v=acNRX80azMo https://www.youtube.com/shorts/G1DVip6WEDw https://www.youtube.com/watch?v=Prf06UIPoEM https://www.youtube.com/watch?v=eKpB_CY9zts https://www.youtube.com/watch?v=2prmks-6Xq4&pp=ygUVbWF1aSBmaXJlICtDT05TUElSQUNZ https://www.youtube.com/watch?v=xVID8jENuzQ https://www.youtube.com/watch?v=dIAGYwtPvjE https://www.youtube.com/watch?v=gG_ZWu6NoK8 https://www.youtube.com/watch?v=vx414-uS3qY https://www.youtube.com/watch?v=o-qLg7g_iuo https://www.youtube.com/shorts/vbDwShFIGKk https://www.youtube.com/watch?v=NCz4vwn70xk https://www.youtube.com/watch?v=tg8dDoxJyeA&pp=ygUVbWF1aSBmaXJlcyBjb25zcGlyYWN5 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni. Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að hvíslast út sögur um ótryggð og framhjáhald þeirra hjóna. En það var ekki bara stormasamt sambandið sem Díana vakti athygli fyrir. Því auk þess að þykja einstaklega vel gefin og máli farin þá þótti hún einnig einkar glæsileg og var hún talin ein fegursta kona Bretlands. Eftir nokkur hræðilega erfið og óhamingjusöm ár í hjónabandi skyldu Karl og Díana að borði og sæng árið 1992 þó lögformlegum skilnaði hafi ekki lokið fyrr en 1996. Eftir það voru bæði Karl og Díana mikið á milli tannana á fólki og stöðugt fjallað um þau í breskum götublöðum og fjölmiðlum. Það var svo að kvöldi 31.ágúst 1997 sem Díana og elskhugi hennar Dodi Fayed létust í árekstri ásamt bílstjóra sínum, Henri Paul, í Pont de Alma göngunum í París. Upphaflega var talið að um slys vegna háskaaksturs væri að ræða, sem skrifa mætti á glæfralegan eltilingarleik undan ágengum blaðaljósmyndurum en síðar breyttist skýringin og skuldinni skelt á bílstjórann, sem var sagður hafa verið dauðadrukkinn og sótölvaður. En hvað ef að ekki var um slys að ræða? Getur verið að áreksturinn hafi verið planaður af konungsfjölskyldunni til þess að taka Díönnu og Dodi úr umferð? Var samband Díönnu og Dodi í óþökk fjölskyldunnar eða getur verið að pólitísk barátta Díönnu, td barátta hennar gegn jarðsprengjum, hafi verið það sem kom henni í koll? Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum? Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum við einhverntímann heyrt talað um félög einsog Skulls & Bones, templarana, frímúrara ofl. En þekktast þeirra allra, af undanskildum Frímúrurum kannski, er þó eflaust fyrirbærið Illuminati. Hulduhópurinn og meinta valdaklíkan sem samsærissinnum og Álhöttum um víða veröld er svo tíðrætt um. En þó flest okkar hafi kannski einhverntímann heyrt um Illuminati einhversstaðar á veraldarvefnum eða í sjónvarpsþáttum & kvikmyndum, þá gera sér kannski færri grein fyrir því nákvæmlega hvað Illuminati er. Hvaða fólk er þetta sem stjórnar heiminum bakvið tjöldin líkt og brúðuleikhússtjórar og hvert er endanlegt markmið þeirra? Hvernig er hægt að ganga til liðs við Illuminati og hvernig er ákvarðanatöku og valdastrúktur háttað innan svona leynireglna? Hversu stórir fundir eru þetta og hversu reglulega eru þeir haldnir. Í þessum þætti af Álhattinum fjalla Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór um þá vinsælu og víðförlu samsæriskenningu að heiminum sé leynilega og skipulega stjórnað bakvið tjöldin, af valdagráðugu fólki sem tilheyrir leynireglunni Illuminati. Strákarnir ræða m.a um furðuleg og afar óræðin fyrirbæri einsog World Economic Forum, Trilateral Commission, Club of Rome, Bilderberg Group, Bohemian Grove ofl hópa sem virðast allir hafa sameiginleg eða mjög sambærileg markmið. Afhverju er allt þetta stjórnmalafólk í sífellu að funda með einhverjum vafasömum miljarðamæringum og jakkafatakakkalökkum í reykfylltum bakherbergjum bakvið luktar dyr? Snýst þetta í alvöru eingöngu um tengslamyndun og að auðvelda samskipti eða viðskipti milli landa eða býr eitthvað mun dekkra og alvarleg að baki? Afhverju þarf elítan eiginlega öll þessi mismunandi samtök og félög ef þau ganga í raun öll út á það sama? Hversu mikið og oft er hægt að ræða um alþjóðavæðingu, sjálfbærni og framtíðarskipan efnahagsmála án þess að tala einfaldlega í hringi? Eru aukin alþjóðleg viðskipti og sjálfbærni kannski af hinu góða og hver veit nema þessir fundir snúist eingöngu um það að gera heiminn að betri stað fyrir alla með aukinni sjálfbærni, hagvexti og alþjóðahyggju? Eða er þetta alltsaman blekking og gildra til þess að hreppa almenning í hlekki? Er raunverulega verið að blekkja okkur öll eða er þetta bara einhver endemis vitleysa og þvæla? Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn? Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu um afdrif og örlög Titanic. Getur verið að Titanic hafi í raun aldrei farist og að um annað skip hafi verið að ræða? Eða var Titanic grandað vísvitandi til þess að taka af lífi óþægilega einstaklinga sem stóðu í vegi J.P Morgan og viðskiptafélaga hans? Hvort var Titanic ótrúlega óheppilegt slys eða þaulskipulagt tryggingasvik? Hvað hefur þetta með seðlabanka Bandaríkjanna að gera? Hvernig blandast Hersey súkkulaði inn í málið og hvað varð um systurskipin Olympic og Brittanic eftir atvikið hörmulega? Málsmetandi aðilli þáttarins er Bjarni Jónsson tónlistar spekúlant, frumkvöðull og athafnamaður sem hefur m.a komið að skipulagi tónlistarhátíða á borð við secret solstice og komið á fót nikotínpúða fyrirtæki sem framleiðir cbd nikótípúða. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra. Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim. Eru geimverur til? Eru þær greindar eða bara einfaldar örverur? Hafa þær heimsótt jörðina? Ef svo er, hvar eru sönnunargögnin og af hverju eru ekki allir að tala um þetta? Til eru endalausar sögur af geimverum að heimsækja jörðina, vitnisburður við misgáfulegt fólk sem segist hafa verið brottnumið og mörg okkar hafa séð myndefni af fljúgandi furðuhlutum í misgóðum gæðum. En hvað er til í þessu? Gæti verið að yfirvöld séu vísvitandi að láta okkur halda að þær hafi heimsótt okkur af annarlegum ástæðum til þess að dreifa athygli fólks frá mikilvægari málum? Eru þetta falsfréttir og hugarburður ruglaðra einstaklinga með mikilmennsku brjálæði? Eru þetta einfaldlega fake og photoshoppuð video? Ef aðeins ein af þessum sögum, vitnisburðum eða myndefni er raunverulegt - þá myndi það kollvarpa heimsýn okkar sem jarðarbúar. Þetta og margt fleira munu þeir félagar tækla í þessum þætti sem sem tekur á kenningu margir vilja meina að sé ein mikilvægasta samsæriskenningin af þeim öllum. Þátturinn er tekinn upp og birtur í júlí / ágúst 2023. Áhugavert ítarefni: Gimball fljúgandi furðuhluturinn frá Pentagon https://www.youtube.com/watch?v=QKHg-vnTFsM Margskonar video af fljúgandi furðuhlutum https://www.youtube.com/watch?v=HW7wfetKAU0 Nýlegur vitnisburður fyrir þinginu í BNA https://www.youtube.com/watch?v=7ZDZGLaWEak Viðtal við fólkið sem sá fljúgandi furðuhlut í skólanum í Ástralíu https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs Viðtal við Buzz Aldrin, geimfara https://www.youtube.com/watch?v=ZNkmhY_ju8o Unacknowledged heimildamyndin https://youtube.com/watch?v=iXxeGUcmGFs&feature=share Sirius heimildamyndin https://youtu.be/5C_-HLD21hA Egyptar og geimverur https://www.youtube.com/watch?v=sPHVvg-dXOs Gömul málverk og geimverur https://www.youtube.com/watch?v=39hMIgshgSo https://www.youtube.com/watch?v=l-yNxkCLGjw&pp=ygUWcGFpbnRpbmdzIGV2aWRlbmNlIHVmbw%3D%3D https://www.youtube.com/watch?v=vBLKYhfwyc4 Viðtalið við Bob Lazaar sem segist hafa unnið á area 51 https://open.spotify.com/episode/7Gg4Qi578G5SXoEtaLVVpx?si=25f24c69b43a41cf https://www.youtube.com/watch?v=2GRjgBVw9Pk Útskýring á Project Blue Beam - Yfirvöld eru að blekkja okkur https://www.youtube.com/watch?v=wLZTaCL4yA0 Viðtalið við Travis Walton sem segist hafa verið brottnuminn https://open.spotify.com/episode/0mCfpeY0Ga4meTanFzOkkL?si=81281143aef647c6 Viðtalið við Ryan Graves, orrustuflugmann í BNA hernum https://open.spotify.com/episode/68t6BZRHenCslyLLaviW1H?si=cb499f7fcc724b Grein um litlu geimveruna sem fannst í Chile https://edition.cnn.com/2018/03/22/health/atacama-skeleton-mystery/index.html Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni. Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna algjört kjaftæði en fjölmargir aðdáendur um allan heim segjast sjá miklar breytingar á Avril síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og þetta hreinlega sé ekki sama manneskjan. Er hin raunverulega Avril enn á lífi? Eða hefur henni verið skipt út fyrir klón/tvífara? Er hún fangi í dýflissu níðinga eða lést hún kannski í bílslysi? Af hverju myndi einhver skipta henni út og hvar væri á bakvið slíkan óverknað? Strákarnir gefa einkunn á skalanum 1-10 í byrjun þáttarins sem og í lok þáttarins og kemur þá í ljós hversu mikið eða lítið þeir hafa breytt um skoðun í afstöðu sinni til kenningarinnar. Hér má finna ítarefni sem minnst er á í þættinum: Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=5vCRFCLdvkQ Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=zCecV_hg1FM Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=9pqRQlpkdWE Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=LiaYDPRedWQ Heimildarmyndin hans Guðjóns - https://www.bitchute.com/video/4Ivy8v4sXWZw/?fbclid=IwAR1sCn8dlKJZ2fhJuBJ9un616OodO8wRxe7MKby_aqDJQU-_n7eDta3Obt0 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkjunni í sitt eigið persónulega einræðisríki, þar sem enginn er óhultur. Nokkuð sem virðist eiga jafnt við um hans nánustu fjölskyldu sem og æðstu samstarfsmenn, sem hafa margir hverjir þurft að þola ótrúlega meðferð og niðurlægingu í nafni trúarinnar og agans. Strákarnir fara vel yfir hið miskunnarlausa valdarán sem átti sér stað eftir dauða Hubbards árið 1986 þegar Miscavige var rétt um tvítugt. Þeir félagar skoða hvernig hinum metnaðarfulla unga manni tókst að rýma brautina og hrekja réttmæta arftaka á borð við hjónin Pat og Anne Broeker út í kuldann og algjöra einangrun. Hvað varð raunverulega um Pat Broeker og af hverju sá kirkjan ástæðu til að eyða yfir 10 milljónum dollara í að láta einkaspæjarana Paul og Greg Powell elta hann á hverjum einasta degi í tvo áratugi? Var Pat mögulega með leynileg skjöl í fórum sínum sem gátu steypt Miscavige af stóli og afhjúpað svikin við hinstu óskir Hubbards? Félagarnir skoða hrollvekjandi vitnisburði þeirra sem þekkja leiðtogann best og hvernig hann herjar á sína nánustu með aðferðum sem minna einna helst á vinnubrögð mafíu. Hvaða sögu hefur Ron Miscavige faðir Davids að segja um soninn, sem hann kynnti sjálfur fyrir söfnuðnum? Eftir að Ron flúði samtökin árið 2012 voru sömu Powell-feðgarnir og njósnuðu um Broeker hjónin fengnir til að vakta hvert einasta spor hans í skiptum fyrir 10.000 dollara á viku. Getur virkilega verið að David hafi skipað einkaspæjurum sínum sitja hjá aðgerðarlausir án þess að grípa inní og láta föður sinn hreinlega deyja þegar þeir sáu hann grípa um brjósti sér á bílastæði og virðast fá hjartaáfall? Þegar spæjararnir hringdu í David í geðshræringu og báðu um leiðbeiningar var svarið einfalt, kalt og hrollvekjandi: „Ef það er hans tími til að deyja, látið hann þá deyja. Ekki grípa inn í.“ Stóra spurningin sem brennur á öllum er svo hvar í ósköpunum Shelly Miscavige sé niðurkomin en eiginkona leiðtogans hefur ekki sést opinberlega í tæp 20 ár. Álhatturinn kafar einnig ofan í dularfullt andlát móður hennar, Flo Barnett, sem sögð er hafa framið sjálfsvíg með fjórum skotum úr löngum Ruger-riffli. En hvernig getur smágerð veikburða eldri kona skotið sjálfa sig þrisvar í brjóstið og svo í höfuðið með tæplega metra löngu vopni þar sem hún náði varla til gikksins? Strákarnir kynna sér rjúkandi byssukúluna sem lögreglan gat aldrei útskýrt: hvers vegna fundust fimm eydd skothylki á vettvangi þegar aðeins fjögur skot hæfðu líkamann? Hvað varð um fimmta skotið? Allt þetta og fleiri stórar níþungar sleggjur í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér hvort vísindakirkjan stundi skipulagðar njósnir og pyntingar á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaulskipulagðasta glæpastofnun heims, sem nýtir heilaþvott, njósnir og hrottalega kúgun til að halda meðlimum sínum í gíslingu? Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í ótrúlega sögu L. Ron Hubbard, vísindaskáldsagnahöfundarins sem átti sér myrka fortíð í kynlífs-okkúltisma. Hvað var Hubbard raunverulega að bralla í Pasadena með Jack Parsons, eldflaugasérfræðingnum, sem hjálpaði til við að koma manninum á tunglið (eða hvað?), þegar þeir reyndu að kalla fram „Babalon“ sjálfa móður viðbjóðsins í eyðimörkinni? Hvers vegna varaði Aleister Crowley við Hubbard og kallaði hann einfaldan svikahrapp sem væri einungis úti eftir peningum og konum annarra manna? Strákarnir fletta ofan af hetjusögu Hubbards og skoða hvernig hann skáldaði eða stórlega ýkti afrekaskrá sína í hernum. Læknaði hann raunverulega „blindu og limlestingar“ með eigin hugarorku, eða sýna opinber gögn hersins fram á að hann hafi í raun verið meðhöndlaður við magasári og augnsýkingu á meðan hann skaut óvart á hlutlausa eyju í Mexíkó? Hvernig tókst honum að stela ævisparnaði Parsons, flýja með kærustu hans og enda sem tvíkvæntur loddari á flótta undan réttvísinni? Strákarnir skoða hvernig kirkjan náði að knésetja bandaríska skattinn , IRS, í einu stærsta dómstólastríði sögunnar. Var það trúarlegur sigur eða hrein og klár „litigious terrorism“ þar sem yfirvöld hreinlega gáfu eftir undan 2.400 málsóknum og persónulegu áreiti einkaspæjara? Má það vera að trúfélagsstaðan sé einungis skjöldur yfir „Operation Snow White“ stærstu njósnaaðgerð gegn bandarískum stjórnvöldum í sögunni, þar sem þúsundir meðlima smugu inn í ríkisstofnanir til að eyða sönnunargögnum? Hvað varð raunverulega um Shelly Miscavige, eiginkonu núverandi leiðtoga kirkjunnar, sem hefur ekki sést opinberlega síðan hún „hvarf“ árið 2007? Er hún kannski fangi í hátæknilegu neðanjarðarbyrgi Og hvað gerist í holunni svoköluðu? Strákarnir velta því fyrir sér hvort kirkjan sé í raun ríki í ríkinu, með eigin leyniþjónustu (OSA) sem nýtir „Dead Agenting“ og „Fair Game“ regluna til að eyðileggja mannorð blaðamanna og andstæðinga. Vinirnir ræða mál Paulette Cooper, sem kirkjan reyndi að keyra til sjálfsvígs með því að ramma hana inn fyrir sprengjuhótanir, og hvernig samtökin nota „PC-möppur“ safn af dýpstu leyndarmálum meðlima sinna til að kúga þá til þagnar og hlíðni. Er Vísindakirkjan leiðin að „algeru frelsi“ eða er hún ein fullkomnasta svikamylla nútímans sem nýtir stjórnarskrárvarin réttindi til að stunda kerfisbundna misnotkun? Allt þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum, þar sem við þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að Vísindakirkjan stundi njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagssskráningar. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know. Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki í neinum fötum. Allt þar til þann 6. ágúst 2021, þegar Trevor lagði frá sér hljóðnemann og þagnaði í eitt skipti fyrir öll, aðeins 41 árs að aldri. Opinbera skýringin er snyrtileg, hrein og bein: Hörmulega óheppilegt slys. Fall fram af svölum á heimili hans í Malibu að næturlagi eftir að hafa aðeins verið að fá sér. Einsog menn gera. En rétt eins og með aðra „góðvini þáttarins“ sem falla frá á grunsamlegan hátt, þá eru ekki allir sem kaupa hreinu og beinu söguna sem yfirvöld og meginstraumsmiðlarnir vilja að við trúum. Var Trevor Moore ef til vill komið fyrir kattarnef? Ef svo er, hversvegna? Og að undirlagi hverra? Var hann ef til vill farinn að hreyfa við hlutum sem hefðu betur mátt kyrrt liggja? Trevor gerði nefnilega vægast sagt beitta ádeilu á tónlistariðnaðinn og Hollywood í sketsinum „Help Me“, þar sem hann söng um fórnir, mansal og myrkraverk elítunnar bak við tjöldin, myndband sem endar á dularfullan hátt með hans eigin andláti. Og hvað með ástríðufullan áhuga hans á öllu því sem Álhattar elska að ræða og pæla í? Hann gerði sketsa um Illuminati, Seðlabanka Bandaríkjanna, dularfullt andlát JFK og atburðina 11. september. Var hann orðinn mögulega of óþekkur og óþægilegur vegna þess að hann sáði fræjum sannleikans í gríni sínu og fékk almenning til að staldra við og spyrja spurninga? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í feril þessa óvenjulega listamanns. Þeir rannsaka aðstæður á svölunum í Malibu, spyrja út í bilaðar eftirlitsmyndavélar, kynna sér falið myndmál í sketsunum og velta því fyrir sér hvort Trevor Moore hafi í raun greitt sína vitneskju og uppljómun með lífi sínu. Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að grínistanum Trevor Moore hafi verið komið fyrir kattarnef. HLEKKIR Á ÍTAREFNI Intro https://youtu.be/nCP3LZoxABs?is=vQv1PB0oWQ9-HP66 Biden Kynnir Elton John kllippa https://youtu.be/sGvUDMNHLZ Jim Carrey Illuminati í kimmel : https://www.youtube.com/watch?v=eG9i7d8yfKQ 9/11 sketch klippa https://youtu.be/vq6p4wX88Z0 Grapist sketch https://youtu.be/EzgUGY36gqM Help me/8bieber https://youtu.be/Edi_hydymNQ Illuminati sketch https://youtu.be/_574Rxxez2c Saga bandaríkjanna sketch - https://youtu.be/0-Lvv1f5Qu4 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samstarfi við önnur stórveldi og jafnvel einkafyrirtæki, hafi byggt upp heilan skuggaveruleika utan almennrar vitundar? Er til “Secret Space Program” sem starfar utan NASA, utan hefðbundinna hernaðarstofnana og utan fjárlaga sem nokkur kjörinn fulltrúi fær að sjá? Í kenningunum er talað um börn sem séu valin ung að aldri, þjálfuð í háþróuðum og leynilegum hernaðarverkefnum, send út fyrir jörðina og svo “aldursendurstillt” og skilað aftur inn í samfélagið án minninga. Það er talað um samninga við framandi lífverur, herstöðvar neðanjarðar og utanjarðar, og að tæknin sem við sjáum opinberlega sé aðeins brotabrot af þeirri tækni sem raunverulega sé til. Þeir félagar fara yfir helstu frásagnir og nöfn sem hafa haldið þessari hugmynd á lofti, greina hvað á að vera skjalfest og hvað byggir eingöngu á einhverskonar vitnisburði eða frásögn einhverra mis traustvekjandi eða trúverðugra aðilla. Hvað er raunveruleg hernaðarleynd, hvað er vísindaskáldskapur í dulargervi, og hvenær verður samsæri svo stórt að það hrynur undan eigin þunga? Eru sögurnar um Mars-bækistöðvar og tungl herstöðvar bara fantasía sem lifir góðu lífi á netinu? Eða gæti verið að geimkapphlaupið hafi aldrei hætt, það hafi einfaldlega farið undir yfirborðið og verið sópað undir teppið fjarri vökulum og forvitnum augum almennings? Hvernig tengist þetta allt saman nasistum, the Dracos og mögulega vampírum, klónum eða varúlfum? Og hvað í veröldinni eru Supersoldiers eða Lightwarriors? Þetta og margt fleira í þessum þætti af Álhattinum þar sem þeir velta fyrir sér þeirri spurningu hvort mannkynið hafi komið upp bækistöðvum eða herstöðvum á fjarlægum plánetum(amk Mars og Tunglinu) án vitundar almennings. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið við af UFO, herinn og allskonar dularfullar stofnanir hafa neyðst til að viðurkenna að eitthvað óútskýrt sé á sveimi og svo hafa menn með allskonar skírteini, vottanir, gráður hernaðarferil og “trúnaðarupplýsingar” stigið fram og hljómað eins og mestu Álhattar eða illa skrifaðar persónur í ótrúverðugri vísindaskáldsögu. Undarleg óútskýranleg fyrirbæri, stórfurðuleg hegðun radarskjáa, óskýr og gruggug myndbönd sem þó eru ekki jafn óskýr og áður og kerfi sem virðist vera hannað til að tryggja að enginn fái neitt endanlegt eða afgerandi svar. Sama hversu mergra spurninga er varpað fram eða hversu merkilegir pappírar einstaklingarnir eru, sem spyrja þeirra. Hvað í veröldinni er eiginlega í gangi!? Strákarnir fara yfir þingmannayfirheyrslurnar og vitnisburðinn sem setti internetið á hliðina, hvað var sagt, hvað var ekki sagt og hvers vegna þetta endar alltaf ‘a s-mu g-mlu tuggunni: “Við getum hvorki staðfest neitt né afneitað neinu” Þeir félagar ræða líka mótrökin, þar sem bent er á að leyndarhyggja og óljósar yfirlýsingar geti allt eins verið merki um jarðneska tækni í þróun, óvandaðar ályktanir, rangtúlkun eða klassískt psyop sem á að láta almenning elta ljósbletti á himninum í örvæntingu til þess að athyglin beinist ekki að einhverju merkilegra og mikilvægara eins og td Epstein skjölunum. Hvað varð t.d um alla drónana sem virtust svífa um í tuga eða hundraðavís alls staðar og hvergi.. Dularfull flýgildi við herstöðvar, orkuver og viðkvæma innviði, er þetta nýtt og hátæknilegt njósnakerfi, heræfing eða eitthvað sem á ekki að sjást? Eru þetta Kínverjar, Rússar eða jafnvel einkaaðilar? Eða einfaldlega tilraunir yfirvalda? Eða sama gamla sagan í nýjum búningi þar sem “ógnin” er notuð til að réttlæta meiri leynd, meiri fjárframlög og færri spurningar? Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar velta fyrir sér fullyrðingu sem margir hæðast að, en aðrir hræðast að sé sönn, að geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hylmi yfir tilvist þeirra. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð til húsa í sömu byggingu. Flutningaþjónusta sem á á pappír að vera burðarás kerfisins, en virðist í raunheimum vera draugafyrirtæki. En er þetta raunverulega þaulskipulagt samsæri, eða bara kerfisbundin vanhæfni, sem fékk að blómstra og grassera vegna þess að enginn þorði að spyrja spurninga eða benda á að keisarinn væri ekki í neinum fötum? Hvernig geta milljónir dollara runnið til “þjónustu” sem enginn sér eða veit hvort að er í raun til? Hvernig gat eftirlitið brugðist ítrekað aftur og aftur? Eru þetta einangruð tilvik eða mynstur sem birtist þegar opinbert fé, eftirlitslausir einkaaðilar og veik stjórnsýsla mætast? Og svo stóra spurningin sem enginn virðist vilja svara, án þess að æsa allt upp: Af hverju virðist umræðan beinast svona oft að sómalska samfélaginu? Er það vegna þess að öll spjót beinast þangað, eða vegna þess að pólitík og fjölmiðlar kunna að græða á “réttum” sökudólgum? Er þetta kannski allt saman bara kynþáttahyggja og fordómar hvítra miðaldra karla? Hverjir raunverulega græða, hverjir tapa, og hverjir þegja vísvitandi? Og ef þetta er “viljandi” frekar en “óvart” … hverjum þjónar það? Hverjir græða á þessu? Spilltir stjórnmálamenn? Tim Walz? Stjórnvöld í Sómalíu? Þetta og svo margt, margt fleira undarlegt og áhugavert í nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem strákarnir reyna að átta sig á því hvað í veröldinni sé eiginlega í gangi í Minnesota og spyrja sig þeirrar mikilvægu spurningar hvort að yfirvöld í Minnesota séu viðriðin milljarða dollara svikamyllu í fylkinu, sem stundum hefur verið nefnt Sómalíusvindlið. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið að verja fórnarlömb eða heldur einhverskonar verndarengill hlífiskildi yfir áhrifamiklum og valdamiklum einstaklingum? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sá fjórði sem fjallar um málefni Jeffrey Epstein, skoða þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór málið út frá hlið sem hefur lengi verið á sveimi en lítið verið tekin alvarlega í meginstraumsmiðlunum. Getur verið að Epstein sé enn á lífi? Ef skjölin eru birt í nafni gagnsæis, af hverju eru þá heilu kaflarnir þaktir svörtu bleki?. Hvers vegna eru nöfn, tengingar og lykilatriði afmáð úr skjölunum? Hvað veldur því að almenningur fær einungis að sjá síður sem skilja eftir fleiri spurningar en svör? Og ef þetta er gert til að vernda saklaus fórnarlömb, hvers vegna virðist leyndin fyrst og g fremst henta þeim sem hafa mestu að tapa við birtingu skjalanna og þeim sem hafa hvað mest að fela? Hver hefði mestan hag af dauða Epstein? Hverjir græða mest á eilífri þögn han og því að hann geti aldrei bent á aðra eða dregið viðbjóðinn fram í dagsljósið?. Svo erþað hin spurningin. Hver hefði hugsanlega hag af því að falsa dauða hans? Var Epstein of hættulegur til að lifa frjáls, en of verðmætur til að vera látinn deyja? Getur verið að yfirvöld sjálf hefðu hagsmuni af því að láta hann hverfa af sjónarsviðinu. Ekki til að sleppa honum, heldur til að ná utan um málið, rannsaka það án sýnilegs þrýstings og fá hann til að tala á bak við luktar dyr? Til að byggja mál á þeim sem sátu ofar í keðjunni. En ef svo er, hvað er þá verið að undirbúa og hvers vegna er almenningur látinn horfa á yfirstrikaðar síður í stað yfirgripsmikillar afhjúunnar? Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar kafa ofan í nýju skjölin, yfirstrikanirnar, leyndina og þá skuggalegu spurningu hvort Jeffrey Epstein sé enn á lífi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefur talað um 11. september, Íraksstríðið, innrásina í Lýbíu, fall Gaddafis, peningakerfið, hlýnun jarðar, covid og óteljandi önnur hitamál sem flestir almennir borgarar kjósa algerlega að hundsa. Allt í nafni þess sem hann kallar réttlæti og sannleiksleit. Hann var meðal þeirra fyrstu hérlendis sem gagnrýndu samkomutakmarkanir og sóttvarnaráaðgerðir í Covidinu. Hann var með Epstein málið á vörunum áður en almenningur vissi hver sá maður yfir höfuð væri. Hann stóð fremstur í broddi fylkingar í búsáhaldabyltingunni, beitti RÚV þrýstingi til að sýna Zeitgeist Addendum, sem þeir svo gerðu og kastaði snjóbolta í Jón Ásgeir eins og frægt er orðið. Sumum fannst hann táknmynd mótmælanda og anarkista. Aðrir sáu bara ruglaðan gaur með mikinn hávaða. Enn aðrir litu á hann sem athyglissjúkan trúð. Svo líður tíminn og eitthvað breytist. Sami maður og áður var áður flokkaður í hóp róttækra stjórnleysingja, þá frekar vinstra meginn línunnar, sem barðist gegn NATO, nýfrjálshyggju og alþjóðlegum valdablokkum er í dag farinn að dásama Donald Trump og Miðflokkinn, auk þess sem hann kallar aðgerðir í loftslagsmálum plott leynilegrar valdaklíku til að ná heimsyfirráðum. Hvað gerðist eiginlega? Er Guðjón einfaldlega enn eitt skólabókadæmið um gamla síendurtekna sögu, um ungan róttækan vinstri mann mann sem eldist, þroskast og mýkist í sumu, harðnar í öðru og færist hægt og rólega frá róttæku vinstri yfir í íhaldssamt hægri? Er það bara það að svokallaðar samsæriskenningar Trump og Miðflokksins eigi við rök að styðjast og hann sé ennþá, eins og áður bara í einlægri leit að sannleikanum, tilbúinn að standa upp fyrir málsstöðum sem almenningur sér sem óvinsæl eða skammarleg. Eða er eitthvað mun vafasamara og óhugnanlegra í gangi? Er einhver að stýra Guðjóni á bakvið tjöldin eða er hann sjálfur að spinna psyop á allt samfélagið með því að gera álhatta að samheiti yfir ruglumbull, tóma tjöru og vitleysu. Eða erum við einfaldlega að horfa á mann sem hefur alltaf verið eins og hinar meintu nýju skoðanir ekki kúvending heldur ný einfaldlega birtingarmynd eða önnur hlið á sama gamla peningnum? Í þessum þætti af Álhattinum velta þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því upp hvort Guðjón sé raunverulegur Álhattur eða undirförull og útsmoginn leppur hulduaflanna (e.psyop). Hvort hann sé ósérhlífinn sannleiksleitandi, sem sannleiksleitin leiddi á þessar óvæntu slóðir eða hvort hann sé búinn að hafa okkur öll að háði og spotti, í einhverju í stærra leikriti, þar sem hann gefur sig út fyrir að vera „borgarstjóri Samsæríu“ en handritið er í raun skrifað annars staðar á bakvið tjöldin af Skuggavaldinu. Þetta og svo margt margt fleira áhugavert, undarlegt og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeirri spurningu er velt fyrir sér hvort að Guðjón Heiðar sé í raun leiksoppur og leppur hulduaflanna(e.Psyop) Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Hann tók að endingu alfarið yfir sviðið og varð að stærstu poppstjörnu allra tíma. Sannkallaður og óumdeildur konungur poppsins. Thriller, Bad og Dangerous seldust í bílförmum og ruku út allstaðar eins og heitar lummur. Tónlistarmyndböndin voru stórfengleg og íburðamikil líktog óskarsverðlaunamyndir og einstakur dansstíllinn mótaði heila kynslóð. Líklega besti söngvari og dansari síons tíma, ef ekki allra tíma Á sama tíma fjarlægðist hann sífellt hið hefðbundna líf, breyttist gífurlega í útliti og dvaldist sífellt meira í lokuðum heimi aðdáenda, öryggisvarða og ráðgjafa. Michael Jackson varð að einhverskonar flókinni blöndu af barnastjörnu, ofurviðkvæmum listamanni og sérlunduðum og mislyndum furðufugl,i sem virtist ekki finna sinn stað í heimi fullorðinna. Á móti koma grófar og alvarlegar ásakanirnar og þeir sem setja Jackson í hlutverk geranda. Chandler fjölskyldan sem lýsir kynferðislegri misnotkun, fer fyrst allra til lögfræðings og ræðir um bótaupphæðir áður en lögregla eða barnavernd koma að borðinu. Þetta og svo margt margt fleira bæði óhugnalegt og áhugavert í þessum þætti af Álhattinum, þar sem góð vinirnir Guðjón Heiðar og Haukur Ísbjörn aka fyrir þá fullyrðingu að Michael Jackson hafi verið saklaus af ásökunum um barnaníð. Þeir fara vandlega yfir feril hans, persónuleika, Neverland og ásakanirnar sem komu fram á mismunandi tímum, skoða sögurnar frá sjónarhorni meintra fórnarlamba, frá sjónarhorni varnaraðila, lögreglu, fjölmiðla og plötu iðnaðarins. Þeir spyrja líkt og alltaf áður hverjir séu að gera hvað, hvernig og hversvegna, og velta vandlega fyrir sér hvað það sé sem styður við sakleysi og hvað styður sekt, án þess að fella endanlegan dóm. Markmiðið Álhattsins er ekki að hreinsa nafn eða hengja mann, heldur að rýna í öll helstu gögn málsins og draga þau fram í dagsljósi því Álhatturinn er alltaf leitandi og alltaf spyrjandi en Álhatturinn fellir aldrei endanlegan dóm. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: https://youtu.be/rCy_wPTW_Ww?si=F8IQ51A6K8udBgUL https://youtu.be/yBw-t37co2Q?si=EpcoKze8ER4GSMpA https://youtu.be/VC7OT90_nG0?si=N9UvtdwfjDuWFoCx https://youtu.be/SRAhsLnhenE?si=rTH1oahyveGJK_mP https://youtu.be/4QqoFYwFq9s?si=5N5cX_9MCVHnZGem https://youtu.be/-_452akeOkU?si=M1kwc8LFuGjgIDc4 https://youtu.be/fXf3uXDTRsk?si=x-M4yLzXXeyBBJfS Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti hafi þessi lönd öll sammælst um að ekkert þeirra mætti eiga Suðurskautið og þar mættu einungis útvaldir aðilar dvelja til skamms tíma í rannsóknarskyni. Ferðir almennings til Suðurskautsins eru nánast bannaðar eða verulega takmarkaðar og svo virðist sem nánast sé ólöglegt að fljúga yfir tiltekin hluta jökulsins. Þá hafa huldir eða skyggðir blettir af svæði á google maps vakið undrun og forvitni Álhatta og íbúa Samsæríu og velta einhverjir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela undir ísnum eða á pólnum sjálfum. Admiral Byrd, sem er alls ekkert skyldur körfubolta manninum Larry Bird, fullyrti að hann hafi séð leynilega hurð eða op inn í gríðar stóran hulinn heim undir ísnum og nýlegar radar myndir staðfesta að svo virðist sem stórt og mikið lífríki og heill heimur með ám, fossum fjöllum og vötnum sé að finna undir ísnum. Þetta hefur enn frekar rennt stoðum undir kenningar álhatta um að ekki sé allt með felldu á Suðurskautinu og að mögulega sé verið að ljúga að okkur um hvað sé þar að finna. Í þessum síðari hluta Álhattarins um Suðurskautið halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram að kafa djúpt ofan í kanínuholu heimskautakenninga og velta því fyrir sér hvort að allt sem að við teljum okkur vita um Suðurskautið sé mögulega bara þvættingur lygi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivæddar herstöðvar eða bækistöðvar nasista og jafnvel heilt samfélag geimvera eða einhverskonar stökkbreytts eðlufólks og elíutunnar er allt sagt að sá mögulega undir ísnum. Svo eru það flatneskjufræðingarnir sem vilja meina að þarna sé ekkert annað en risastór ísveggur eða einhverskonar endimörk jarðarinnar eða alheimsins. Nýlegar rannsóknir staðfesta að undir ísnum er heill heimur með ár, vötn og fossa og jafnvel lífríki sem mögulega hefur varðveist í hundruðir ef ekki þúsundir ára. Þá eru vísbendingar um að Suðurskautslandið hafi fyrir þúsundum ára verið skógi vaxið og gróðursælt land þar með gríðarlega fjölskrúðugt og fjölbreytt lífríki. Eru einhver þessara dýra enn á lífi undir ísnum, í einhverskonar hindurveröld? Getur virkilega verið að á pólnum sé hurð sem leiðir inn í holrými jarðar? Er allt tal um kjarna, jarðskorpu og möttul kannski bull og jörðin okkar gal tóm að innan? Hvaðan kemur þá hraunið sem vellur upp úr jörðinni á Reykjanesi og hinum eldfjöllunum á Íslandi? Er Eyjafjallajökull kannski bara plat? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór djúpt ofan í kanínuholuna og stinga höfðinu á bólakaf í hyldýpi aragrúans af samsæriskenningum er snúa að Suðurskautslandinu. Flúðu nasistar til suðurskautsins þar sem þeir búa í velsæld í leynilegum bækistöðvum undir ísnum? Eða er hátæknivætt samfélag háþróaðra geimvera eða eðlufólks eitthvað að brasa og bralla undir ísnum? Hversvegna eru svo mörg stórveldi og lönd með herstöðvar og rannsóknarstöðvar á pólnum? Hví er aðgangur almennings takmarkaður og er eitthvað til í því að bannað sé að fljúga yfir suðurskautið og hvað eru yfirvöld þá að fela fyrir almenningi? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir vinirnir skeggræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að allt sem við teljum okkur vita um Suðurskautslandið sé lygi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.