Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧
Afmælisþáttur 🩵 Bíddu bara er 1 árs!! 🎂✨
Þættir
Bíddu bara er 1 árs!! 🩵🥳🎂 Við lítum yfir farinn veg, spjöllum um árið sem er liðið og allt það sem við erum spenntar fyrir framundan.
Það er kominn tími til að ghosta nokkra hluti 👻 Mömmusamviskubit, samanburð, tiltektarkvíða og alls konar annað sem fylgir stundum mömmulífinu. Í þættinum förum við yfir það sem við viljum kveðja og röbbum að sjálfsögðu um allskonar annað líka.
Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, foreldrafræðari, uppeldisráðgjafi og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra, kom til okkar í virkilega áhugavert spjall 💛 Við ræddum bókina, hennar eigin sögu og allt á milli himins og jarðar þegar kemur að uppeldi barna. Skapofsaköst, skjátími, svefnþjálfun og margt fleira!
Við fórum yfir aðlögun í leikskóla og allar tilfinningarnar sem geta fylgt því hjá foreldrum. Ræddum líka lífið með leikskólabarn og fórum um víðan völl í allskonar skemmtilegar umræður 💛
Ásdís Björg Pálmadóttir er mamma, nýbökuð amma, stjörnuspekisnemi, íþróttakona, áhrifavaldur og margt, margt fleira. Hún kom til okkar og deildi sinni sögu af járnskorti sem á endanum leiddi hana alla leið til Bretlands í járngjöf, eftir að hafa upplifað að hún fengi ekki þá aðstoð sem hún þurfti hér heima. Miklar blæðingar, meðganga og mikil hreyfing eru meðal þess sem getur haft áhrif á járnbirgðir líkamans og margar konur upplifa einkenni járskorts. Þátturinn er í boði: 🩵 Fjarðarkaup 🩵 Vörður 🩵 KIDS-WORLD
Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið!
Haustið, Halloween, kertaljós og kósý! Þátturinn er í boði: 🩵 Fjarðarkaup 🩵 KIDS-WORLD 🩵 Vörður 🩵 Child´s Farm
Í þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í coma! Þátturinn er í boði: 🩵 Vörður 🩵 Fjarðarkaup 🩵 Kids-World 🩵 Childs Farm
Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar? Valgerður hefur bæði persónulega reynslu af stjúpfjölskyldum og faglega þekkingu á þessum málum, svo þetta varð virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall.
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft.
Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti! Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨
Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér. Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶
Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu. Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu. Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litlu ljósin fái að lifa áfram í minningunni.
Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í lífinu. Skemmtilegt mömmuspjall um algjöra draumaferð! 🏖️✈️☀️
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig hægt er að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar án þess að skjár komi til sögu.
Í þessum þætti förum við yfir það sem okkur finnst raunverulega vera peningana virði, bæði fyrir börnin og okkur sjálfar 💸👶
Förum yfir mýtur sem við höfum heyrt í gegnum tíðina um meðgöngu, börn og uppeldi. Er virkilega hægt að sjá kyn barnsins á lögun bumbunnar? er satt að börn fái hita þegar þau taka tennur?
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨ Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.
Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.
Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️ Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.
Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið. Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.
Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík. Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin. Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.
Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!
Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛 Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!
Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum. Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál. Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaflokknum, fræðir um birtingamyndir heimilisofbeldis, rauð flögg í upphafi sambanda og hvert hægt er að leita eftir hjálp og stuðningi.
Í þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft alls konar tilfinningar.
Helga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við þær aðstæður ❤️🩹
Guðrún Sortveit áhrifavaldur kom til okkar í spjall um mömmulífið og hvernig það er að finna sig og stílinn sinn aftur eftir meðgöngu og orlof.
Í þessum þætti segir Ásdís frá sínum tveimur meðgöngum og fæðingum. Við deilum líka fréttum tengdum hlaðvarpinu 💬✨
Má borða páskaegg fyrir páska? förum yfir páskahátíðina - hefðir og venjur. Léttur og góður þáttur fyrir fríið.
María Ellen kom í heimsókn til okkar og deildi sinni persónulegu og heiðarlegu sögu af ófrjósemi. Það gekk ekki áfallalaust fyrir hana að verða ólétt og hún ræðir opinskátt um sína reynslu.
Eyrún Ösp greindist með þriðja stigs krabbamein í leghálsi þegar hún fæddi þriðja barnið sitt. Hún deilir ótrúlegri baráttu sinni og fjölskyldunnar á krefjandi tíma, en skömmu síðar varð rýming í Grindavík þar sem þau bjuggu.
Fanney Dóra, mamma og áhrifavaldur kemur til okkar að spjalla um spennandi og stressandi tímann þegar maður byrjar að gefa barninu sínu að borða.
Í þessum þætti tölum við um allt sem tengist babyshower og skírnar/nafna-veislum. Förum yfir undirbúninginn, vafaatriði, hugmyndir að gjöfum, veitingar og fleira. Léttur og skemmtilegur þáttur fullur af praktískum ráðum og svörum við algengum spurningum!
Köfum aðeins ofan í æskuna okkar og rifjum upp hvernig það var að alast upp á tíunda áratugnum (90s) og svo auðvitað aldamótastemninguna sem fylgdi í kjölfarið. Ef þú ert „millennial“ eins og við, eða bara elska fortíðina og nostalgíu, þá munt þú elska þennan!
Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega áhrifamikla og persónulega frásögn Kristínar Gunnarsdóttur af því þegar nýfæddur sonur hennar veiktist alvarlega. Kristín deilir upplifun sinni af þessum ólýsanlega erfiða tíma, frá fyrstu einkennum og allt þar til lífi sonarins var á ótrúlegan hátt bjargað á elleftu stundu. Við ræðum hvernig er að takast á við svona erfitt ferðalag með makanum sér við hlið og hvað skiptir mestu máli þegar þarf að styðja hvort annað í gegnum það ómögulega. Þetta er einstaklega einlægur þáttur, kraftaverkasaga sem gefur von og minnir okkur sterklega á hvað fólkið í kringum okkur skiptir miklu máli þegar lífið reynir á ❤️
Fengum þá Benna og Fannar úr Hlaðfréttum í alvöru pabbaspjall. Þeir tveir eiga, eins og þeir orða það "saman" sex börn og við ræddum við þá um pabbalífið og lífið almennt! Mjög einlægt, fyndið og skemmtilegt spjall.
Einn léttur, ljúfur og kátur þar sem við kveðjum lengsta mánuð ársins og tökum fagnandi á móti fallegum febrúar! Skemmtilegt yapp um allskonar og mömmupepp fyrir komandi mánuð!
Í þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt. Mjög áhugavert og mikilvægt spjall um eitt heitasta málefni landsins um þessar mundir.
Gott og fræðandi spjall við Kristínu svefnráðgjafa um svefn ungabarna 👼💤
Nýtt ár - nýr þáttur! Kick störtum þessu ári og ræðum hitt og þetta. Mömmumarkimið ársins, rant um leikskólamál, mömmviskubit, framtíðarsýn Bíddu bara og margt fleira!
Einn léttur, ljúfur og kátur korter í jól. Við förum yfir skemmtilegar staðreyndir um okkur og deilum mömmujátningum - hlutum sem við gerðum eftir að við urðum mömmur, sem við héldum að við myndum aldrei gera eða viðurkenna! Gleðileg jól 🎅✨
Guðrún og Nadia frá Orka Studio ræða hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu, kvenheilsu og allt það sem oft fær ekki nægt pláss í umræðunni. Mælum heilshugar með hlustun fyrir allar konur .
Hér er sannkallaður jólaþáttur á ferð. Við rifjum upp okkar eigin hefðir og ræðum hvernig það er allt í einu komið að okkur að skapa jólatöfrana fyrir börnin okkar. Förum yfir nokkur sniðug ráð til að gera desember aðeins auðveldari og skemmtilegri fyrir alla fjölskylduna. Léttur, hlýlegur og jólalegur þáttur þennan þriðjudaginn✨
Í þessum þætti fáið þið að kynnast okkur aðeins betur. Við deilum átta skemmtilegum staðreyndum um okkur sem eru líka misgáfulegar. Erla Guðmundsdóttir (heilsuerla) kemur að auki til okkar í spjall um ungbarnasund og margvíslegan ávinning þess.
Í þessum þætti ræðum við brjóstagjöf, pelagjöf og „combo feeding“ út frá okkar eigin reynslu. Þetta er opin og hreinskilin umræða um málefni sem liggur þungt á mörgum nýbökuðum foreldrum. Við deilum persónulegum sögum og áskorunum, því allar leiðir eru í lagi, svo lengi sem barnið fær ást og næringu. ATH! Við erum ekki sérfræðngar, allt sem kemur fram er út frá persónulegri reynslu.
Í þessum þætti förum við yfir hvernig er best að ferðast innanlands og erlendis með börn. Við deilum reynslunni, góðum ráðum og sögum úr okkar ferðum! Ef þú ert ekki að fara ferðast á næstunni lofum við samt góðri skemmtun.