Orlofið cover

Orlofið

Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh

Orlofið er létt og einlægt hlaðvarp um foreldralífið. Uppeldi, fjölskylda, sambönd og allt sem fylgir því.

Orlofið er létt og einlægt hlaðvarp um foreldralífið. Uppeldi, fjölskylda, sambönd og allt sem fylgir því.

Mamma eftir misheppnað þungunarrof x Viðmælandi

0:00 0:00

Þættir

Mamma eftir misheppnað þungunarrof x Viðmælandi 10 Nov 2026

Hvað gerist þegar þungunarrof mistekst? Í þætti vikunnar fengum við til okkar viðmælanda sem er ein af aðeins níu konum á Íslandi sem hafa upplifað misheppnað þungunarrof. Hún opnar sig um áfallið, tilfinningarnar, óvissuna og hvernig lífið breyttist eftir þessa reynslu. Þátturinn er í boði playroom.is og babybrezza. 00:45 Hvað er efst í huga? 6:39 Viðmælandi Njótið þáttarins!

Orlof í myrkri: Candyman 01 Nov 2026

Gleðilega hrekkjavöku! Í þessum þætti ræðum við candyman mannin sem breytti hrekkjavökuleiknum. Þátturinn er í boði playroom.is og babybreeza! 3:20 Hvað er efst í huga? 6: 57 Candy man! Njótið þáttarins!

Úlfatíminn 25 Oct 2026

Hér förum við yfir 9 bjargráð á úlfatímanum! Þátturinn er í boði playroom.is og babybreeza 4:08 Hvað er efst í huga? 12:18 Úlfatíminn Njótið þáttarins!

Skilnaðarbörn x Samvinna eftir skilnað 18 Oct 2026

Í þessum þætti fengum við til okkar þær Gyðu og Stefaníu sem standa á bak við verkefnið SES Family. Þær starfa báðar sem ráðgjafar hjá Barna- og fjölskyldustofu, þar sem verkefnið er starfrækt. Við settumst niður með þeim og ræddum skilnað, áhrif hans á börn og hvernig foreldrar geta best stutt við börnin sín þegar fjölskyldan tekur breytingum. Við förum yfir spurningar sem margir foreldrar velta fyrir sér, hvað er mikilvægt að hafa í huga og hvernig við getum hjálpað börnum að komast í gegnum þessar breytingar með sem mest öryggi og stuðning. Þátturinn er í boði playroom.is, Babybrezza og akkurat.store 5:30 Hvað er efst í huga? 9:50 Gyða og Stefanía Njótið þáttarins!

Unglingar og samfélagsmiðlar 11 Oct 2026

Skjátími unglinga, algoriþminn, pressan frá samfélagsmiðlum, hvernig getum við mætt unglingunum okkar? Þátturinn er í boði playroom.is og babybrezza 0:00 Intro 3:38 Hvað er efst í huga? 6:35 Skjátími unglinga 21:20 Leikur 24:50 Umræðuefni hefst aftur Njótið þáttarins!

Orlof í myrkri: Cornell 7! 05 Oct 2026

Trigger warning: Í þessum þætti förum við yfir Cornell 7 málið og ræðum það frá ólíkum hliðum. Við veltum meðal annars fyrir okkur samfélaginu , ábyrgð einstaklinga, hópamenningu og hvernig ákveðin hegðun getur þróast innan hópa. Þetta er þungt og viðkvæmt málefni og því gott að hafa trigger warning í huga áður en hlustað er. Þátturinn er í boði playroom.is og Babybrezza! 4:20 Hvað er efst í huga? 7:05 Cornell 7 málið 20:15 Umræða Takk fyrir að hlusta!

Orlof í myrkri: Tom Philips 04 Oct 2026

Í þætti vikunar fer Hafdís með okkur yfir mál Philips fjölskyldunar. Rán á börnum, Fáranleg vinnubröð lögreglu og miklar gellu pælingar í lok þáttarins! Þátturinn er í boði playroom.is og Babybrezza! 4:25 Hvað er efst í huga? 7:26 Mál Philips fjölskyldunar 42:10 Pælingar um málið Njótið þáttarins!

Meðganga eftir fósturmissir x Helena Reynis 27 Sep 2026

Frábæra Helena kom til okkar í svo einlægt , fallegt og fræðandi spjall! Vá hvað við mælum með þessum þætti <3 Þátturinn er í boði playroom.is 1: 55 Hvað er efst í huga? 8:10 Helena Njótið þáttarins!

Fósturmissir x Birta Líf 20 Sep 2026

Birta Líf og Hafdís fara yfir barneignaferlið, fósturmissir og lífið þess á milli (TW). Þátturinn er í boð playroom.is .... Hvað er efst í huga? 10:23 Birta Líf Njótið þáttarins!

Ömmur og afar 15 Sep 2026

Hlutverk ömmu og afa, breytt samskipti og munur milli kynslóða. Þátturinn er í boði playroom.is 3:27 Hvað er efst í huga? 8:25 Ömmur og afar 24:50 Leikur 27:55 Ömmur og afar Njótið þáttarins!

Fæðingarþunglyndi x Rakel Sif 08 Sep 2026

Rakel Sif kom til okkar í einlægt og fallegt spjall um fæðingarþunglyndi sem hún fékk með fyrsta barnið sitt. Erfiðar hugsanir og tilfinngar eru til umræðu og því setjum við TW við þáttinn. Þátturinn er í boði playroom.is 4:48 Hvað er efst í huga? 9:40 Rakel Sif Njótið þáttarins!

Orlof í myrkri: Chris Watts 01 Sep 2026

(TW) Í þætti dagsins þræðum við mál Chris Watts. Þátturinn er í boði playroom.is 2:50 Hvað er efst í huga? 6:50 mál Chris Watts Njótið þáttarins!

One and done 25 Aug 2026

Í þættinum í dag veltum við fyrir okkur ákvörðuninni að eignast bara eitt barn. Þátturinn er í boði playroom.is 5:25 one and done 19:45 leikur Njótið þáttarins!

Að alast upp með skjám! 18 Aug 2026

Börn og skjátími er alltaf hot topic! Hér tökum við annað take en foreldrar hafa fengið að heyra. Þátturinn er í boði playroom.is 1:58 Hvað er efst í huga? 5:35 Skjátími foreldra 17:00 Leikjahorn 21:58 Skjátími barna Njótið þáttarins!

Orlof í myrkri: Lindsay Clancy 13 Aug 2026

Heitasta mál TikTok þessa dagana. Mál hinnar venjulegu og ástríku móður Lindsay Clancy sem endaði með harmleik. Þátturinn er í boði playroom.is 1:14 Hvað er efst í huga? 6:15 Mál Lindsay Njótið þáttarins!

Leikskólalífið x Fanney Dóra 11 Aug 2026

Þátturinn er í boði playroom.is! Fanney Dóra kom til okkar í spjall og gaf okkur frábært innsýn í leikskólakennara lífið. 2:55 Hvað er efst í huga? 6:20 Fanney Dóra Njótið þáttarins!

Orlof í myrkri: Raðmorðingi í Chicago? 04 Aug 2026

Í fyrsta dark þættinum fer Hafdís yfir dularfullt mál í Chicago. Mæli með að hlusta! 5:55 Hvað er þér efst í huga? 16:15 Málið! 21:50 Leikur!! Njótið þáttarins!

Frá einu í tvö 28 Jul 2026

Frá einu í tvö. Í þessum þætti ræðum við það sem er gott að hafa í huga þegar fjölskyldan stækkar. Við förum yfir undirbúning, væntingar, tilfinningar, breytingar á fjölskyldulífinu og deilum ráðum sem geta gert þetta tímabil aðeins auðveldara. Hvort sem þú ert ólétt að bíða eftir öðru barninu eða bara farin að velta þessu fyrir þér, þá er þessi þáttur fyrir þig. 8:00 Hvað er þér efst í huga 14:00 Frá einu í tvö 25:15 Leikjahorn Hafdísar Njótið þáttarins!

Mini: Kynbundin vonbrigði 23 Jul 2026

Jasmín nýtt tíman vel og henti í okkar fyrsta mini þátt um kynbundin vonbrigði eða gender disapointment. Hún fer yfir sína upplifun og fleira sem mæður gætu tengt við. Að vonast eftir stelpu en eiga von á strák. Njótið þáttarins!

Bleikur eða blár 21 Jul 2026

Er virkilega munur á stelpum og strákum eða er það samfélagið sem mótar okkur? Í þessum þætti veltum við fyrir okkur kynjum, væntingum, staðalímyndum og þeim skilaboðum sem börn fá frá fyrstu dögum. Við ræðum félagsskap, fyrirmyndir, tilfinningar, uppeldi og hvort við setjum ómeðvitað mismunandi kröfur á stelpur og stráka. Við deilum eigin reynslu, skiptumst á skoðunum og ræðum hvað rannsóknir segja um efnið. Létt og skemmtilegt spjall sem vonandi fær ykkur líka til að velta eigin hugmyndum fyrir ykkur. Njótið þáttarins!

Hver er Hafdís? 14 Jul 2026

Léttur, persónulegur og skemmtilegur kynningarþáttur sem leggur grunninn að því sem koma skal. Njótið þáttarins!

Tengd hlaðvörp