MATADOR
Starkaður Pétursson, Kristín Pétursdóttir
Matador er blaðurrás í umsjá systkinanna Kristínar og Starkaðar Pétursbarna þar sem stungið er á kýlum fortíðar, nútímans og framtíðar með það eitt að leiðarljósi að skemmta sjálfum sér og vonandi öðrum í kjölfarið.
Matador er blaðurrás í umsjá systkinanna Kristínar og Starkaðar Pétursbarna þar sem stungið er á kýlum fortíðar, nútímans og framtíðar með það eitt að leiðarljósi að skemmta sjálfum sér og vonandi öðrum í kjölfarið.
MATADOR - Ammæli
Þættir
Kristín 41 árs og komin á fimmtugsaldurinn. Starki ekki nema 23 og still young and single. Whoopi Goldberg, tunglendinging. Allir elska ammæli.
Spilafíklarnir spá í spilin. Lífið er eitt stórt Slönguspil. Starki er stórskuldugur eftir Monopoly-appið, Kristín einbeitir sér að drykkjuspili.
Búúúú! Spúkí sjitt þessa vikuna. Gleðilega hrekkjavöku.
S-in 3? Stuttur, sætur, skritinn. Æ hlustið bara. Þið vitið hvað á við
Allt og ekkert sem tengist sjúkdómum, Starki leysir frá leyndarmálum og Kristín hættir ekki að bryðja brjóstsykur. Heilsukvíði, kynsjúkdómar og harmsögur. Er læknir í húsinu?
Ekki bara systkini, líka (að mörgu leiti) dýravinir. Heitar skoðanir, dýraníð og athyglisbrestur. Oft eru góð ráð DÝR: Verði ykkur að góðu.
Kristín nýkomin heim frá Ibiza úr gelluferð. Starkaður nýkominn heim úr andlegu ferðalagi. Þema þáttarins: ÚTLÖND
Kynningarþáttur hlaðvarpsins Matador í umsjá systkinanna Kristínar og Starkaðar Péturs. Farið verður yfir víðan völl, en aðallega gert til þess að þú kynnist okkur betur þú fallegi hlustandi
Systkinin fara yfir farinn veg, Hlátur, grátur, fortíðarþrá: Að hlusta á hlaðvarp er góð skemmtun. Börn fædd eftir 2000 skulu vera í fylgd með fullorðnum. Góða skemmtun. Sérstakar þakkir: Einar Már Harðarsson