Stjörnuspeki – Orkugreining cover

Stjörnuspeki – Orkugreining

stjornuspeki

Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá. Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.

Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá. Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.

110 Gestur: Fjóla frænka. Erfiðir transitar – áföll eða tækifæri?

0:00 0:00

Þættir

110 Gestur: Fjóla frænka. Erfiðir transitar – áföll eða tækifæri? 08 Nov 2026

Þáttarlýsing Getum við lært að skilja okkur sjálf betur með því að skoða bæði fortíðina og stjörnukortið okkar? Í þessum þætti fá Ásgeir og Hera til sín góðan gest, Fjólu frænku, sem er uppeldisráðgjafi, kennari og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra. Fjóla segir frá því hvernig hún lifði árum saman með áfallastreitu án þess að átta sig á því og hvernig hún tókst á við fortíðina. Við ræðum hvernig stjörnuspekin hefur hjálpað henni að skilja sjálfa sig og aðra, sérstaklega börn og ólíkar þarfir þeirra. Einnig skoðum við áhrif Úranusar, afturvirkar plánetur, ólíkar orkur í daglegu lífi og hvernig stjörnukortið getur gefið okkur nýja sýn á þau tímabil sem við göngum í gegnum. 5 punktar úr þættinum Er hægt að lifa með áfallastreitu án þess að vita af því? Fjóla segir frá eigin reynslu, hvernig fortíðin mótaði líf hennar og hvað gerðist þegar hún fór loksins að horfast í augu við það sem hún hafði upplifað. Er barnið þitt erfitt – eða einfaldlega öðruvísi? Hvernig getur stjörnuspekin hjálpað foreldrum að sjá styrkleika barna sinna í stað þess að reyna að breyta þeim? Úranus – þegar lífið tekur óvænta stefnu. Hvers vegna upplifa sumir breytingar og óstöðugleika mun sterkar en aðrir? Og getur það sem virðist vera erfið orka reynst okkur nauðsynlegt? Af hverju eru svona margar plánetur afturvirkar? Við skoðum hvað afturvirkni þýðir í stjörnuspeki og hvers vegna slík tímabil eru oft tengd endurskoðun, uppgjöri og því að horfa til baka áður en haldið er áfram. Getur stjörnukortið hjálpað okkur í gegnum erfið tímabil? Fjóla segir frá því hvernig stjörnuspekin gaf henni nýjan skilning og sameiginlegt tungumál til að ræða það sem hún var að ganga í gegnum.

109: Tvíburinn og Bogmaðurinn / Samskipti og ólíkar þarfir 19 Oct 2026

Hvað er það sem aðgreinir Tvíburann og Bogmanninn þótt þeir virðist eiga svo margt sameiginlegt? Og hvernig getur stjörnuspekin hjálpað okkur að skilja ólíkar þarfir fólks í samskiptum og samböndum? Í þessum þætti förum við vítt og breitt um stjörnuspekina. Við skoðum andstæður merkjanna, mikilvægi þess að sjá aðra á þeirra eigin forsendum og hvernig ólíkar orkur geta bæði skapað togstreitu og styrkt sambönd. Einnig skoðum við stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise og Xi Jinping, forseta Kína. Punktar úr þættinum Tvíburinn og Bogmaðurinn – hver er munurinn? Bæði merkin eru forvitin, jákvæð og sífellt á ferðinni. En á meðan Tvíburinn safnar hugmyndum, miðlar upplýsingum og spyr spurninga leitar Bogmaðurinn að dýpri merkingu, þekkingu og sannfæringu. Tvíburinn efast – Bogmaðurinn trúir. Samskipti – að læra að sjá aðra eins og þeir eru. Við eigum það til að sýna öðrum ást og umhyggju á þann hátt sem við sjálf viljum fá hana. En hvað ef hinn aðilinn hefur allt aðrar þarfir? Stjörnuspekin getur hjálpað okkur að skilja þennan mun og bæta samskipti okkar. Ljónið vill ekki bara hrós – það vill láta sjá sig. Hera og Ásgeir ræða hvernig ólíkar orkur þeirra birtast í sambandinu. Fyrir Ljónið getur viðurkenning og það að tekið sé eftir framlagi þess skipt miklu máli, á meðan Steingeitin lítur kannski á sömu hluti sem sjálfsagða. Michael Olise – hæfileikar, sjálfstæði og sterkar tilfinningar. Stjörnukort knattspyrnumannsins Michael Olise er skoðað út frá Bogmanninum, tungli í Sporðdreka og spennum frá Satúrnusi, Plútó og Úranusi. Hvernig geta miklir hæfileikar, jákvæðni og tilfinningaleg hlédrægni farið saman? Xi Jinping – Tvíburinn sem stjórnar Kína. Stjörnukort forseta Kína er tekið til skoðunar, sérstaklega Merkúr í Krabba og tengsl hans við Satúrnus og Úranus. Rætt er um hvernig þessar afstöður eru túlkaðar í tengslum við agaða hugsun, útsjónarsemi og nýsköpun.

108: Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin 22 Sep 2026

Loftmerkin – Tvíburinn og Vogin Loftið – heimur hugmynda og tengsla Tvíburi, Vog og Vatnsberi tilheyra loftinu. Loftið tengir saman, flytur upplýsingar og hugmyndir á milli fólks og lifir sterkt í samskiptum, tengslum og hugsun. En hvað gerist þegar loftið verður of mikið og við festumst uppi í höfðinu? Tvíburinn – hugmyndir, húmor og endalaust upplýsingaflæði Tvíburinn er forvitinn, fljótur, félagslyndur og þarf oft að hafa marga bolta á lofti. Hann miðlar, tengir fólk saman og sáir hugmyndum – en í niðurspíral getur hann farið í ofhugsun, slúður, leiða og lofað meiru en hann nær að framkvæma. Af hverju þarf Tvíburinn alltaf að „skreppa“? Það þarf eitthvað að vera að gerast. Nýtt fólk, nýjar upplýsingar, ný verkefni og nýjar hugmyndir. Tvíburinn getur verið eins og kónguló í miðju tengslaneti sem veit hver þekkir hvern, hvert á að fara og við hvern þarf að tala. Vogin – miklu ákveðnari en margir halda Vogin vill frið, fegurð, réttlæti og jafnvægi og er góð í að sjá fleiri en eina hlið málsins. Hún getur virst óákveðin vegna þess að hún vill fyrst vega og meta. Þegar hún hefur hins vegar komist að niðurstöðu getur hún verið mjög ákveðin – „stálhnefi í silkihanska“. Þegar friðarsókn Vogarinnar verður að meðvirkni Vogin vill forðast átök og getur þess vegna látið of mikið yfir sig ganga, þagað og reynt að halda öllum góðum. Þá safnast orkan upp þar til hún springur eða fer í hina vogarskálina. Verkefnið er ekki að forðast átök heldur að læra málefnalega ákveðni og standa með sjálfri sér.

107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton 07 Sep 2026

1. Hvernig væri heimurinn ef allir væru sama stjörnumerkið? Hvað myndi gerast ef það væru bara hrútar á jörðinni? Eða bara steingeitur, fiskar eða ljón? Það kemur fljótt í ljós hvers vegna við þurfum á öllum 12 merkjunum að halda – hvert þeirra hefur sitt hlutverk og saman mynda þau ákveðna lífskeðju. 2. Ljónið kann að tala – en kann það að hlusta? Ljónið hefur sterka þörf fyrir að tjá sig, segja frá og láta ljós sitt skína. En þegar tvö sterk ljón hittast getur komið upp ákveðið vandamál: Hver ætlar eiginlega að hlusta þegar báðir vilja segja söguna? 3. Dolly Parton – hvernig getur þessi kona verið Steingeit og Meyja? Sól í Steingeit, tungl í Meyju og rísandi Meyja hljómar kannski ekki eins og augljós uppskrift að glimmeri, risastórum hárkollum og showbusiness. En þegar líf Dolly Parton er skoðað betur kemur jarðarorkan ótrúlega skýrt í ljós: vinnusemi, skipulag, viðskiptavit, þúsundir laga og heilt viðskiptaveldi. 4. Af hverju sagði Dolly Parton NEI við Elvis Presley? Elvis Presley vildi syngja „I Will Always Love You“, en til þess hefði Dolly þurft að gefa eftir stóran hluta höfundarréttarins. Hún neitaði. Árum síðar tók Whitney Houston lagið og ákvörðun Dolly reyndist henni gríðarlega verðmæt. Stundum sést Steingeitin og Meyjan best þegar kemur að stóru ákvörðununum. 5. Stjörnumerkið þitt segir langt frá því alla söguna. Dolly Parton er frábært dæmi um hvers vegna ekki er nóg að spyrja: „Hvaða merki ertu?“ Þegar stjörnukortið hennar er skoðað í heild – pláneturnar, húsin og afstöðurnar – kemur miklu stærri mynd í ljós. Þar sjáum við bæði skemmtikraftinn, viðskiptakonuna og konuna sem hefur látið gríðarlega gott af sér leiða.

106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi 21 Aug 2026

Guðni Gunnarsson er gestur þáttarins og að þessu sinni förum við djúpt í mátt orðanna, ábyrgð, vitund og það að taka aftur valdið í eigin lífi. Hvað er „guðníska“? Erum við heppin eða gæfurík? Hvað þýðir það raunverulega að vilja eitthvað – og hversu mikil áhrif hafa orðin sem við notum á veruleikann okkar? Við skoðum líka stjörnukort Guðna og veltum fyrir okkur hvernig sterk Sporðdrekaorka, Merkúr og Mars endurspegla manninn, hugsunina og lífsstarfið. Þáttur um sjálfsþekkingu, heimild, viðnám, gagnrýni og muninn á því að þekkja viskuna – og að lifa hana. Hér eru nokkrir punktar um efni þáttarins. 1. „Þú ert ekki heppinn – þú ert gæfuríkur.“ Hvað ef „heppni“ er ekki til? Guðni setur fram áhugaverða sýn á muninn á því að vera heppinn, lánsöm manneskja og gæfurík – og hvernig við sjálf tökum þátt í að skapa aðstæður lífs okkar. 2. „Ef þú ert bara að reyna – ætlarðu þá í raun að gera það?“ Það er gríðarlegur munur á mig langar, ég ætla, ég reyni og ég vil. Í þættinum er farið djúpt í orðið „vilji“ og þá hugmynd að raunverulegur vilji birtist fyrst þegar við framkvæmum. 3. Hversu mikið vald ertu búinn að gefa öðrum yfir líðan þinni? Símtal sem þú „verður“ að svara. Skilaboð sem þú „átt“ að bregðast við. Ásakanir eða skoðanir annarra sem þú hleypir inn. Hvar liggja mörkin milli samskipta og þess að afhenda öðrum valdið yfir eigin lífi? 4. „Gagnrýni“ þýðir ekki það sem við höldum. Að rýna eitthvað til gagns er eitt. Að ráðast á, ásaka eða rífa niður er allt annað. En hvers vegna tökum við skoðanir annarra svona auðveldlega inn á okkur – og þurfum við yfirhöfuð að gera það? 5. Stjörnukort Guðna útskýrir ótrúlega margt. Sól og Satúrnus í Sporðdreka, Venus í Sporðdreka, Mars í Vatnsbera og sterkur Merkúr. Kortið sýnir mann sem vill fara alla leið niður á kjarnann, umbreyta veikleikum í styrk og hefur lítinn áhuga á yfirborðinu.

105: Sjálfhverfa / Fullkomnunarárátta / Merkúr í elementum og merkjum 12 Aug 2026
104: Niðurspírall, þunglyndi og hvernig einhverfa getur birst í fæðingarkorti. 05 Aug 2026
103: Höldum áfram með afstöður. Nú er það Neptúnus og Plútó. 21 Jul 2026
102: Almennt spjall um stjörnuspeki og afstöður, Júpíter / Satúrnus og Úranus 05 Jul 2026
101: Orkufræði og hugarástand / Hildur Björnsdóttir Borgarstjóri Reykjavíkur 04 Jun 2026
99: David Attenborough / Aðeins um húsin / Líf í hærri tíðni 30 May 2026
98: Michael Jackson / Tungl og Venus / Andstæður sem mynda togstreitu innra með okkur 23 May 2026
97: Hvað er að vera með ótengdar plánetur, kóngurinn Björgvin Halldórsson og auðvitað morgunbollinn. 05 May 2026
96: Spennandi morgunbolli og Tiger Woods / Stjörnuspeki í vexti og spjall um Orkufræði. 22 Apr 2026
95: Hvað er Satúrnusarhringur / Pælingar frá diggum hlustanda / Neptúnusarorka 06 Apr 2026
94: Hvað leyfa merkin hvort öðru þegar um Sól og Tungl er að ræða. 30 Mar 2026
93: Keppendur á Vetrarólympíuleikum / Að vera í Hvergilandi / Og svo margt annað skemmtilegt. 25 Mar 2026
92: Vatnsberar / Davíð Oddsson / Jörð og loft og almennt spjall 16 Mar 2026
91: James Garnes / Gunnar Smári / Bragi Guðbrandsson / Hrúturinn og nýji tíminn ! 05 Mar 2026
90: HM þjálfarar / Bakkakot / krónprinsessan í Noregi og sonur hennar, vandræði þeirra greind ! 21 Feb 2026
89: Almennt spjall um stjörnuspeki og inngangur í stóru breytingarnar í heiminum ! 08 Feb 2026
88: Nýtt ár komið af stað og við sömuleiðis. Fyrsti þáttur 2026. 27 Jan 2026
87: Vatnið og Neptúnus, framkoma fólks ( rísandi ) og almennt spjall. 31 Dec 2025
86: Smá um rísanda, fólk sem gefur ráðleggingar sem eiga ekki við, klæða sig eftir "veðri" og almennt spjall. 16 Dec 2025
85: Hvaða merki eru frumkvæð, stöðug og breytileg ásamt umræðu um fólk sem lýsir þessu vel. 10 Dec 2025
84 Gestur: Tanja Ýr. Frumkvöðull, viðskiptakona, vatnsberi / hrútur og fyrrum Ungfrú Ísland. 27 Nov 2025
83: Morgunbollinn / Sporðdrekinn / Kortið hennar Heru og fleira. 17 Nov 2025
82: Morgunbollinn + breytileg merki + fleiri skemmtilegt.....eins og alltaf :) 30 Oct 2025
81: Framtíðar og þjóðarstjörnuspeki ásamt almennu spjalli. 16 Oct 2025
80: Strangheiðarleg kaffihúsaspjall. 09 Oct 2025
79 Gestur: Ástrós Trausta. Ein fallegasta kona landsins. Sporðdreki með tungl í Ljóni. 25 Sep 2025
78 Gestur: Sigga Ósk. Söngkona og margfaldur eldur. Enda er það þar sem eldurinn á heima. 17 Sep 2025
77 Gestur: Sylvía Briem. Krabbi + Ljón. Athafnakona, fyrirtækjaeigandi og 3ja barna móðir. 10 Sep 2025
76 Gestur: Rakel María. Fjölhæfur tvíburi, og já með tungl í ljóni. 02 Sep 2025
75 Gestur: Dr. Beggi Ólafs. Umræða um mikilvægi stjörnuspekinnar sem verkfæris til sjálfsþekkingar. 25 Aug 2025
74 Gestur: Einar Bárðarson sem samið hefur mörg af bestu lögum þjóðarinnar í einlægu viðtali. 15 Aug 2025
73 Gestur: Hin eina sanna Birgitta Haukdal í einlægu og skemmtilegu spjalli. 06 Aug 2025
72 Gestur: Þórdís Björk ( Dísa ). Söngkona, leikkona og hreinn og beinn Hrútur.. 24 Jul 2025
71 Gestur: Camilla Rut. Ræðir meðal annars átök sín við berskjöldunar þynnku. 18 Jul 2025
70: KENNSLA: TUNGL / Tilfinningar okkar og vanahegðun. 10 Jul 2025
69: KENNSLA: SÓL / Ræðum mikilvægi þess að vera með sterkt EGÓ... 03 Jul 2025
67: KENNSLA: Afstöður og þekkt fólk með áhugaverðar afstöður. 26 Jun 2025
66 Gestur: Fjóla frænka...Já þessi sem Hera talar um í næstum því hverjum einasta þætti. 18 Jun 2025
65: Kaffihúsaspjall og pælingar um framtíðina. 13 Jun 2025
64: KENNSLA: Hluti 3/3: Hverjir eru stjórnendur síðustu 3ja merkjanna. Steingeit, Vatnsberi, Fiskur 02 Jun 2025
63: KENNSLA: Hluti 2/3: Hverjir eru stjórnendur næstu 3ja merkja. Vog, Sporðdreki, Bogmaður 26 May 2025
62: KENNSLA: Hluti 1/3: Hverjir eru stjórnendur fyrstu 6 merkjanna. Hrútur, Naut, Tvíburi, Krabbi, Ljón, Meyja 13 May 2025
61: KENNSLA: Andstæðu merkin og munurinn á frumefnunum. 07 May 2025
60: KENNSLA: Frumefnið VATN og fólk í vatnsmerkjum 29 Apr 2025
59: KENNSLA: Frumefnið LOFT og fólk í loftmerkjum. 21 Apr 2025

Tengd hlaðvörp