ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp cover

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

Þú skiptir máli forvarnastarf

ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa einhverjum. - Njótið vel.

ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa einhverjum. - Njótið vel.

Æðruleysið - 19. þáttur / Ábyrgð og ákvarðanir

0:00 0:00

Þættir

Æðruleysið - 19. þáttur / Ábyrgð og ákvarðanir 25 Jan 2022

Velkomin í Æðruleysið Í þessum 19. þætti af Æðruleysinu kemur þáttastjórnandi til baka eftir mjög gott og langt frí, og talar um ábyrgð og ákvarðanir. Hversu mikil áhrif það hefur á okkur og okkar líf, og að taka eða ekki taka ákvarðanir og bera ábyrgð á að fylgja þeim eftir. Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Æðruleysið - 18. Þáttur 22 Jun 2021

Velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum 18. þætti talar Þórdís um þakklæti og nokkrar leiðir til að hafa lífið í jafnvægi. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Æðruleysið - 17. Þáttur 01 Jun 2021

Verið velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að klára yfirferð yfir bókina Lífsreglurnar 4 eftir Don Miguel Ruiz og tala um viðhorf sjálfra okkar til allra hluta. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! http://www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 16. Þáttur 25 May 2021

Verið velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer fjögur sem er að „Gerðu alltaf þitt besta“ og verður það svo verkefni þessarar viku. - Gangi ykkur vel. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!!

Við erum einstök - 11. Þáttur / Finndu þinn innri styrk 21 May 2021

Verið velkomin í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg R. Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum ellefta þætti sem við köllum „Finndu þinn innri styrk“ segir hún Ingibjörg okkur meira frá sjálfri sér, sinni vinnu með fólki og frá þeim andlega styrk sem hún býr yfir til að hjálpa öðrum. Já... Fjársjóðurinn þinn býr innra með þér. ÞÚ uppskerð eins og þú sáir , leggðu aðeins meira á þig og þú uppskerð enn betur. Nýttu þér styrk þinn alla leið, fyrir þig og til að hjálpa öðrum. þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir. Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 15. Þáttur 18 May 2021

Verið velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer þrjú sem er að „Ekki draga rangar ályktanir“ og verður það verkefni þessarar viku. - Gangi ykkur vel. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 14. Þáttur 11 May 2021

Verið velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer tvö sem er að „Ekki taka neitt persónulega“ og verður það svo verkefni þessarar viku. Gangi ykkur vel. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!!

Verkfærakassinn 30 - Katrín Ósk og Óskarbrunnur 06 May 2021

Verið velkomin í Verkfærassann Gestur 30. þáttar Verkfærakassans er Katrín Ósk Jóhannsdóttir barnabókahöfundur og eigandi Óskarbrunns. www.oskarbrunnur.is Katrín deilir með hlustendum reynslu sinni af baráttu fyrir bættri líðan sonar hennar sem glímt hefur við kvíða, vanlíðan og slæma skólaforðun í nokkur ár. Vonleysinu sem fylgdi því að koma sífellt að lokuðum dyrum eða þungum hengilásum og sjálfskoðuninni sem varð grunnur að verkfærinu sem reyndist mikilvæg leið að bættri líðan fyrir þau bæði. Einlægt og afar hugvekjandi spjall við hugrakka, hæfileikaríka og kraftmikla konu. þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Njótið www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 13. Þáttur 04 May 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að bjóða okkur í fjögurra vikna ferðalag, þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Og ætlar hún að taka fyrir eina lífsreglu í hverjum þætti næstu fjórar vikurnar. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Fyrirmyndir í tali og tónum - 33 01 May 2021

Verið velkomin í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. - Gestur : Marína Ósk Þórólfsdóttir. www.tonasmidjan.is

Verkfærakassinn 29 - Sigga Kling 29 Apr 2021

Verið velkomin í Verkfærassann Gestur 29. þáttar Verkfærakassans er þjóðardjásnið Sigga Kling. Það var bjartur vordagur á Álftanesinu þegar Hrabbý heimsótti Siggu og umhverfið iðaði af lífi. Í bakgrunni viðtalsins má því heyra börn og fullorðna að leik, fugla syngja og allskyns farartæki fara um. Hrabbý og Sigga ræddu lífið og tilveruna, lífshlaup hennar sjálfrar og svo margt, margt fleira. Að taka viðtal við Siggu er eins og að taka þátt í spennandi óvissuferð þar sem þú veist aldrei hvað kemur næst. Það eina sem þú getur verið viss um er að það verður alltaf gaman. Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Njótið! www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 12. þáttur 27 Apr 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum tólfta þætti talar hún um bata og bataferli. Hún fer yfir það hvað hefur virkað og hversu persónubundið það er hverju sinni. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! http://www.thuskiptirmali.is

Við erum einstök - 10. þáttur / Sól og sykur 26 Apr 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg R. Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Þennan tíunda þátt kallar Ingibjörg „Sól og sykur“ Margir eru að finna fyrir þreitu, streitu, áhyggjurnar hlaðast upp og um leið gefast margir upp á sínum markmiðum og rútínan fer í rugl. - Þá er nauðsynlegt að stoppa, kúpla sig út úr amstri daglegs lífs og leifa sér að njóta þess að taka sér frí og hlaða batterýið. Já, munum að lífið er núna, verum góð við okkur sjálf og njótum þess. þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir. Njótið <3

Hjartans mál - 9. þáttur 25 Apr 2021

Verið velkomin í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Í þessum þáttum okkar fræðumst við saman um andlega líðan, lesum hugvekjur hjarta og huga og finnum leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur „Ástríða“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðaraskóla Íslands. Ágústa opnaði nýverið stofu í Laugardalnum en hennar sérsvið eru til að mynda stjúptengsl, samskipti/samskiptaörðugleikar, kvíði, ótti við höfnun, að bera skömm, framhjáhalds meðferðir (pör sem eiga þá sögu), djúp sjálfsvinna og fleira. Ég hvet ykkur til að fylgjast með Águstu á instagram en hún heldur úti reikningunum @verumvakandi og @agustaosktherapist. Við þökkum Ágústu Ósk kærlega fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Verkfærakassinn 28 - Lilja Steingríms 22 Apr 2021

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann Gestur 28. þáttar Verkfærakassans er Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, hómópati, leiðsögukona og Bodynamic sálmeðferðarfræðingur. Undir nið þungavinnuvélanna í Vesturbænum segir Lilja hlustendum frá áhugaverðri ævi sinni, frá áskorunum þess að vera klínískur hjúkrunarfræðingur og andleg sál um leið og kynnir fyrir okkur þetta glænýja meðferðarform Bodynamic, en Lilja er eini slíki meðferðaraðilinn hér á Íslandi enn sem komið er. Áhugavert spjall við afar áhugaverða konu. Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Njótið! <3 www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 11. þáttur. 20 Apr 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum ellefta þætti talar hún Þórdís um sjálfsmildi og það að við sjálf eigum að vera okkar besti vinur. Hún fer yfir málefni tengt því og hvernig við komum fram og tölum við okkur sjálf. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 8. þáttur 18 Apr 2021

Verið velkomin í Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Þetta er fyrsti þáttur eftir páska, vor í lofti, það er að birta og sumardagurinn fyrsti handan við hornið. Eins og áður hefur komið fram munum við í þessum þáttum okkar fræðast saman um andlega líðan, lesa hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum áttunda þætti fær af Hjartans mál fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Þegar ekki sést til sólar“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Verkfærakassinn 27 - Ingrid Kuhlman 15 Apr 2021

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann Gestur 27. þáttar Verkfærakassans er Ingrid Kuhlman ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, brautryðjandi og baráttukona með meiru. Ingrid deilir m.a með hlustendum hvernig ást hennar á ABBA leiddi hana eftir krókaleiðum frá Hollandi til Íslands þar sem hún hefur nú búið í um 30 ár og hvernig veikindi föður hennar fyrir nær 2 áratugum urðu til þess að hún er nú í forsvari fyrir Lífsvirðingu, félag um dánaraðstoð þar sem baráttumálið er yfirráð einstaklingsins yfir eigin lífi og dauða. Þetta og margt, margt fleira sem vert er að sperra eyrun eftir. Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Njótið! http://www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 10. þáttur - Halldóra Skúla / seinni hluti 13 Apr 2021

Velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum tíunda þætti heldur Þórdís Jóna áfram að tala við hana Halldóru Skúladóttur og ræða þær að þessu sinni um breytingarskeið kvenna og málefni þeim tengd. Þær fara um víðan völl í þessu málefni enda af nægu að taka, þær velta fyrir sér hvernig hægt sé að tækla þetta óumflýjanlega tímabil á jákvæðari og betri hátt. Losa um tabúin og skömm sem fylgir þessum aldri kvenna. Þær vitna m.a. í Dr.Lisu Masconi sem rannsakað hefur breytingarskeiðið mikið. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 9. Þáttur. 06 Apr 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum níunda þætti deilir Þórdís Jóna með okkur sínum hugrenningum um valdeflingu einstaklingsins. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir http://www.thuskiptirmali.is

Fyrirmyndir í tali og tónum - 32 03 Apr 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Már Gunnarsson. www.tonasmidjan.is

Hjartans mál - 7. þáttur 28 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Tilgangur“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

Við erum einstök - 9. þáttur / Ferðalagið með gleðinni 26 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum níunda þætti fjallar hún um gleðina og ferðalagið með gleðinni. Á þessum covid tímum finnst mörgum erfitt og að það sé lítið sem hægt er að gleðjast yfir og þakka fyrir, en þegar betur er að gáð er ótrúlega margt sem við tökum sem sjálfsagðan hlut en getum svo sannarlega þakkað fyrir. Þegar gleðin tekur völd hefur þakklætið sig til flugs – og hjartað hlýnar. þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir. Njótið <3

Verkfærakassinn 26 - Anna Lóa og Hamingjuhornið 25 Mar 2021

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann Gestur 26. þáttar Verkfærakassans er Anna Lóa Ólafsdóttir flugfreyja, kennari, náms- og starfráðgjafi og rithöfundur ásamt því að bera fjölmarga fleiri hatta. Anna Lóa heldur út vefsíðunni Hamingjuhornið og samnefndri síðu á Facebook, auk þess að hafa gefið út bókina „Það sem ég hef lært“ sem hún byggir m.a. á skrifum sínum á umræddum síðum. Í viðtalinu ræðir Anna Lóa líf sitt, áskoranir og lærdóm á einlægan og fallegan hátt en í samtalinu skín í gegn ástríða Önnu Lóu fyrir því að bæta sitt eigið líf og annarra um leið. Áhugavert viðtal við áhugaverða konu. Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir www.thuskiptirmali.is

Fyrirmyndir í tali og tónum - 31 23 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Silja Rós Ragnarsdóttir. www.tonasmidjan.is

Æðruleysið - 8. Þáttur - Halldóra Skúla / fyrsti hluti 23 Mar 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum áttunda þætti fær Þórdís Jóna til sín magnaða konu frá þýskalandi hana Halldóru Skúladóttur í settið til að ræða þær aðferðir sem hún er að vinna með til að hjálpa fólki að styðja við og styrkja sjálfið, dáleiðslu, NLP og fleira. Í þessu áhugaverða viðtali fara þær víða og m.a. tala um heilan sem dramadrottningu og hvernig gott er að skilja og eiga samtal við hann okkur til gagns og gamans. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!! http://www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 6. þáttur 21 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum sjötta þætti deilir Íris með okkur eigin hugrenningum og er umfjöllunarefni þáttarins samkennd í eigin garð. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson www.thuskiptirmali.is

Við erum einstök - 8. þáttur / Sannleikurinn minn!! 19 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. „Í þessum áttunda þætti fjallar hún um sannleikann , já sannleikann sinn , en hvað er sannleikur ? Sannleikurinn er tvennt í senn: Annarsvegar sá hversdagslegi eiginleiki þess sem við höldum fram, trúum og förum eftir og hinsvegar óræður og næstum því yfirnáttúrlegur hlutur: samsvörun þess sem sagt er við það sem er í raun og veru og alveg óháð því sem sagt er. En eins og málshátturinn segir við okkur „Sannleikurinn er sagna bestur“. þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

Verkfærakassinn 25 - Gígja Árnadóttir 18 Mar 2021

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann Gestur 25. Þáttar Verkfærakassans er Gígja Árnadóttir fyrrverandi náms- og starfsráðgjafi. Gígja sem er 78 ára gömul segir okkur frá áhugaverðri ævi sinni á lifandi og skemmtilegan og einlægan hátt eins og henni einnig er lagið. Hún ræðir m.a. hvernig Einar á Einarsstöðum læknaði heilaæxlið hennar á einni nóttu, ákvörðun sína að fara í nám til Kanada nýfráskilin um fimmtugt, kennsluferilinn þar sem hún var m.a. einn af fyrstu tölvukennurum á Íslandi á tíma þar sem tæknin var að ryðja sér til rúms og andlegt ferðalag sitt þar sem m.a. koma við sögu heilun, álfar, huldufólk, annar sigur á krabbameini og svo margt, margt fleira. Ævintýralegt viðtal við kraftmikinn brautryðjenda á flestum sviðum lífsins. Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Njótið! http://www.thuskiptirmali.is

Æðruleysið - 7. þáttur / Sandra Björg 16 Mar 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum sjöunda þætti fær Þórdís Jóna til sín frábæran gest hana Söndru Björg Helgadóttur til að ræða meðal annars um SMART formúluna til markmiðasetningar og fleira skemmtilegt og fræðandi. Mikilvægi þess að eiga sér drauma, þekkja sjálfan sig og árangursbrekkuna mögnuðu. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 5. Þáttur 14 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Litróf tilfinninga“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands. Við færum henni Ágústu Ósk bestu þakkir fyrir. <3 þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson www.thuskiptirmali.is

Verkfærakassinn 24 - Hrabbý 11 Mar 2021

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 24. Þætti bregður Hrabbý sér hinum megin við borðið og fær til sín gestastjórnanda hana Ölmu Hrönn englareikimeistari. Í þættinum fá hlustendur að kynnast henni Hrabbý stjórnanda Verkfærakassans aðeins betur þar sem hún spreytir sig á hinum ýmsu spurningum sem hún hefur lagt fyrir viðmælendur þáttarins hingað til. Þær stöllur ræða lífið og tilveruna þar sem Hrabbý segir m.a. frá sjálfri sér, sínu andlegu ferðalagi og ýmsum lærdómi sem hún hefur dregið af því. Áhugavert viðtal þar sem hún Hrabbý bregður sér hinum megin við borðið. Njótið!!

Æðruleysið - 6. Þáttur 09 Mar 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum 6. þætti ætlar Þórdís Jóna að velta fyrir sér mikilvægi gilda. Eru gildi mikilvæg, hvernig og afhverju skipta þau okkur máli ? Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!!

Hjartans mál - 4. þáttur 07 Mar 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Mætum kvíðanum“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. - Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson Njótið!!

Æðruleysið - 5. Þáttur / Nökkvi Fjalar 02 Mar 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum fimmta þætti fær Þórdís Jóna ungan atorkusamann mann og góða fyrirmynd hann Nökkva Fjalar Orrasson í spjall um sjálfsmynd drengja og þau velta jafnframt fyrir sér mikilvægi sjálfsmyndar og uppbyggingu hennar. Í spjalli þáttarins er farið víða og m.a. yfir það hversu mikilvægt það er að eiga góð og innihaldsrík samtöl við drengi jafnt sem stúlkur og almennt okkar allra á milli. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir http://www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 3. Þáttur 28 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Bognum - brotnum ekki“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. - Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson www.thuskiptirmali.is

FYRIRMYNDIR í tali og tónum - 30 26 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Bjarni "Töframaður" Baldvinsson. www.tonasmidjan.is

Við erum einstök - 7. Þáttur / Hvað vilt þú ? 26 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Í þessum sjöundi þætti heldur hún áfram þar sem frá var horfið í síðasta þætti, þar sem hún talaði um mannhelgi. Hér segir Ingibjörg okkur sögu af því hvernig hún uppgötvaði hæfileika sem hún hafði og afneitaði og hvað hún gerði til þess að nýta sér þá í dag til gleði og gerði þá að atvinnu sinni. Þetta ferli krafðist þess að hún væri með góða mannhelgi". þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

Verkfærakassinn 23 - Ragnhildur Vigfúsdóttir 25 Feb 2021

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 23. þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Ragnhildi Vigfúsdóttur markþjálfa og ráðgjafa um þá umbreytingu sem varð á hennar lífi eftir að hún ákvað að breyta um starfsvettvang ríflega fimmtug, söðla algjörlega um og fylgja hjartanu í átt að því að láta draumana sína rætast. Ragnhildur var m.a. í fyrsta hópi markþjálfa sem útskrifuðust hér á landi og einnig í fyrsta útskriftarhóp í jákvæðri sálfræði hérlendis. Ferðalag Ragnhildar er um margt áhugavert og sýnir okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að finna ástríðuna sína og fylgja henni eftir. Ragnhildur segir okkur frá ferðalaginu og því áhugaverða starfi sem hún nú sinnir við að hjálpa öðrum að finna sitt hugrekki og láta draumana rætast. - Áhugavert viðtal við kraftmikla og skapandi konu! Njótið!! Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Æðruleysið - 4. þáttur / Fanney Dóra 23 Feb 2021

Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. í þessum fjórða þætti fær Þórdís Jóna til sín góðan gest, Fanneyju Dóru Veigarsdóttur sem hefur frá mögnuðum hlutum að segja m.a.hvað varðar val á starfsferli, hvernig hún fór að því að vinna sig út úr lágu sjálfsmati ásamt erfiðleikum í samskiptum við annað fólk. Þær spjalla um almenningsálítið og hvernig hægt er að tækla það og fara jafnframt yfir marga skemmtilega og áhugaverða hluti sem snýr að mannlegu eðli. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

FYRIRMYNDIR í tali og tónum - 29 20 Feb 2021

Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk, gesti sem spjalla við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Rebekka Sif www.tonasmidjan.is

Við erum einstök - 6. þáttur / Mannhelgi 19 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Hvað er mannhelgi og hvaða máli skiptir hún fyrir okkur ? Í þessum þætti segir hún Ingibjörg okkur allt um það, segir okkur sögu úr sínu lífi og tengir þá sögu við mannhelgi sína" þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir www.thuskiptirmali.is

Verkfærakassinn 22 - Heimir Logi 18 Feb 2021

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 22. þætti Verkfærakassans liggur leið okkar upp í Kjós þar sem Hrabbý hittir fyrir viðmælanda þáttarins, Heimi Loga. Heimir hefur um árabil boðið upp á svitahof eða sweat en einmitt þar lágu leiðir hans og Hrabbýjar saman fyrir um 10 árum síðan. Yfir tebolla ræða þau um lífið og tilveruna og Heimir deilir með okkur lífshlaupi sínu, erfiðleikum æskuáranna, 20 árum af harðri fíkniefnaneyslu, uppgjöfinni sem leiddi til bata og nýja manninum sem hefur verið í sífelldri mótun í gegnum bráðum 26 ára edrúmennsku og sjálfsvinnu. Lífsviðhorf Heimis Loga er til eftirbreytni og þar er leiðarstefnið mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi, hlusta á æðri leiðsögn og umfram allt, elska sjálfan sig og aðra. Njótið! <3 þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Æðruleysið - 3. Þáttur / Harpa Rós og Rebekka 16 Feb 2021

Velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum þriðja þætti höldum við áfram að forvitnast um markþjálfun og mikilvægi hennar að mati þáttastjórnanda. Þórdís Jóna fær til sín frábæra gesti, systurnar Hörpu Rós og Rebekku Gísladætur. þær eru nýútskrifaðir markþjálfar og með mikla sýn og drauma um framhaldið. Í spjalli þáttarins er farið yfir mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig og drauma. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir http://www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 2. þáttur 14 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd, þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Heiðu Ósk rödd. Heiða er fíkni og forvarnaráðgjafi, auk þess að vera NLP markþjálfi. Hennar sérsvið eru fíkn, bati, fjölskyldumál og persónuleg markþjálfun. Grein dagsins fjallar um hraða dagslegs líf og hversu mikilvægt það er að hægja á sér og njóta að vera þátttakandi í eigin lífi. - Við þökkum Heiðu Ósk hjartanlega fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

Verkfærakassinn 21 - Nina Wolf Feather Björg 11 Feb 2021

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 21. þætti Verkfærakassans er viðmælandi Hrabbýjar hún Nína Wolf Feather Björg. Umræðuefnið er lífið sjálft og stundum ævintýralegt ferðalag Nínu í leit að sjálfri sér. Í þessu einlæga spjalli ræðir Nína m.a. um það hvernig er að alast upp sem næmt barn í umhverfi sem ekki skilur mann auk þess sem hún talar á opinskáan hátt um ævilanga glímu sína við kvíða og meðvirkni. Hæfileiki Nínu til að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og smitandi hlátrasköll hennar lita viðtalið og sýna okkur í verki hvernig má alltaf sjá ljós við enda ganganna. Nína er svo sannarlega stormsveipur sem margt má læra af. Þó ekki sé nema óbilandi hugrekki hennar og staðfesta í að læra að elska sjálfa sig og gefast aldrei upp. Þar getum við líklegast öll svo sannarlega tekið hana til fyrirmyndar. Njótið! þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir www.thuskiptirmali.is/

FYRIRMYNDIR í tali og tónum 28 10 Feb 2021

Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk, gesti sem spjalla við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Jónína Björg www.tonasmidjan.is

Æðruleysið - 2. þáttur / Ásta Guðrún 09 Feb 2021

Velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum öðrum þætti fær hún til sín góðan gest og mikla fyrirmynd hana Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur markþjálfa. Í spjalli þeirra fara þær yfir víðan völl í málefnum sem snýr að markþjálfun og þeirra ástríðu sem þær deila varðandi fjölskylduna og að þekkja sjálfan sig. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir www.thuskiptirmali.is

Hjartans mál - 1. þáttur 07 Feb 2021

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum fyrsta þætti fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Geturðu lánað mér“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. - Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson http://www.thuskiptirmali.is

Verkfærakassinn 20 - Hugleiðsla - Stefanía frá Heillastjörnu 04 Feb 2021

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 20. Þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Stefaníu Ólafsdóttur frá Lótushúsi og Heillastjörnu.is. Stefanía kynntist sjálf hugleiðslu fyrir nær 2 áratugum og kennir nú í Lótushúsi ásamt því að halda hugleiðsluvefnum Heillastjarna.is þar sem nálgast má fjölbreyttar hugleiðslur fyrir börn og unglinga. Stefanía segir okkur frá sínu persónulega ferðalagi þar sem hún lærði að takast á við fullkomnunaráráttu, kvíða og streitu og kynntist um leið sjálfri sér upp á nýtt. Fræðandi og áhugavert viðtal við sannan brautryðjanda! Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir www.thuskiptirmali.is

Tengd hlaðvörp