VAKTINN cover

VAKTINN

Vaktinn

Almyrkvinn markaði kaflaskil í lífi Íslendinga. Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN vaktinpod@gmail.com

Almyrkvinn markaði kaflaskil í lífi Íslendinga. Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN vaktinpod@gmail.com

11. E.A. - Leðurblökur, Biskup Íslands og Dacia Duster

0:00 0:00

Þættir

11. E.A. - Leðurblökur, Biskup Íslands og Dacia Duster 11 Nov 2026

Það er svona kristilegra ívaf í þessari viku. Hvernig tekst Biskupi Íslands að halda hliðum heljar lokuðum?

10. E.A - Kokkalandsliðið og þeirra tíu tonna flutningur 05 Nov 2026

Við förum yfir þung mál í þætti vikunnar en reynum að vera í léttari kantinum einnig. Kynnumst heimskasta skriðdýri heims sem er svo í rauninni ekki eins heimsk og hún lítur út fyrir að vera.

9. E.A. - Borgarlínan 29 Oct 2026

Við tölum nú samt ekkert mikið um borgarlínuna í þessum þætti. Þetta er clickbait titill.

8. E.A. - Steinunn Vals og Hollywood 22 Oct 2026

Við fengum kæran gest í Georgstof stúdíóið en það var áhrifavaldurinn Steinunn Ósk Valsdóttir sem nýverið er komin heim úr kröfugöngu í Evrópu. Hún sagði okkur frá mótmælum sínum og frá Hollywood.

Sjöundi E.A - Plágan 08 Oct 2026

Við ferðumst um allan heim í þætti dagsins. Rússland, Kongó, Víetnam, Mið-Afríku Lýðveldið, Laos, Indland, Ástralía. Maður er í raun fljótari að telja upp lönd í heiminum sem við ræðum ekki í þætti dagsins.

Sjötti E.A. - Stóra umboðsskrifstofumálið 01 Oct 2026

Fengum góðan viðmælanda til að útskýra stóra umboðsmálið fyrir okkur.

Fimmti E.A - Geimstyrjaldir og Sniðgangan 2026 23 Sep 2026

Hér er hann. Fimmti þáttur. Slönguinnrásin á Ibiza er aðal umræðuefni þáttarins.

Fjórði E.A - Fimm stjörnu skriðdýrahorn 15 Sep 2026

Les þetta einhver?

Þriðji E.A. - WOD í Tallinn 04 Sep 2026

Hvað er þetta fkn wod dæmi

Annar E.A - Vosbúðarráð Reykjavíkurborgar 25 Aug 2026

Fréttir vikunnar eða svona þær stærstu. Kynnumst vosbúðarráði Reykjavíkurborgar sérstaklega vel.

Fyrsti E.A. (Eftir almyrkva) - Nýtt upphaf 18 Aug 2026

Almyrkvinn geðugi markaði kaflaskil í lífi allra Íslendinga. Við förum yfir ferðalög og skátamót. Skriðdýrahornið er á sínum stað.

Bjarnfreðarson Bindi III 03 Apr 2026

Kaflaskil og tvöfallt skriðdýrahorn í tilefni þess.

Bjarnfreðarson Bindi II 20 Feb 2026

Þáttur vikunnar er ótrúlegur. Skriðdýrahorn vikunnar snýst að mestu leyti um að valdefla konur og förum yfir óskalög. Arnþrúður Karls er undir borði og valdeflum svo karla þegar líður á þáttinn.

Bjarnfreðarson Bindi I 30 Jan 2026

Fyrri hluti yfirferð okkar á Bjarnfreðarson myndinni. Förum í raun um víðan völl. Munum ekki einusinni hvað eðlutegundin í skriðdýrahorninu heitir, hún er svo óþekkt. Og með þriðja augað. Gætum skrifað mörg þúsund orð um þessa tegund. Haha þetta er ótrúleg tegund. Eðlan geðuga.

Áramóta Meme Sprengja 01 Jan 2026

Þetta er Run it back á meme sprengju með ögn örðuvísi sniði. Förum mjög vel yfir Covid-19 faraldurinn.

S03E07 - "Jólafur Fagnar Hannesson er kominn á kreik." 14 Dec 2025

Það er jólabragur yfir þessu hjá okkur núna. Förum yfir Axolotl og þéttingu byggðar. The Rock eða Steini í áttunni og margt fleira

Stóra Meme-Sprengja Vaktans 14 Nov 2025

Vaktarseríurnar eru eins konar gróðrastía fyrir hin ýmsu meme. Við Vaktarbrósar elskum vaktirnar og við elskum memes svo við ætlum í þættinum að þessu sinni að fara yfir nokkur af ástsælustu meme-um Íslands. Ef ykkur finnst eitthvað vanta á listann ekki hika vik að skjóta því á okkur á Instagramið okkar.

S03E06 - Þú beygjir og þú borar 02 Oct 2025

Einstaklega skemmtilegur þáttur þessa vikuna gjörsamlega smekkpakkaður af frösum.

S03E05 - “Baráttan um brauðið” 11 Sep 2025

Til þess er málið varðar. Gott að koma eftir frí. Skoðum kónginn sjálfan, King Cobra. Það eru slöngur sem verða 5.5(!!!!!!) metrar að lengd. Georg fer með okkur víða einnig. Baráttan um brauðið er lýsandi titill fyrir margar sakir. Eru berklar the real fordæmalausu tímar?

Aukavaktinn - Ingvi | Sigurður Hrannar 31 Jul 2025

Í aukavakta vikunnar fáum við til okkar Sigurð Hrannar Hjaltason en hann er sá sem bjó til karakterinn Ingva í Fangavaktinni.

S03E04 - "Er pabbi þinn með þér?" 10 Jul 2025

Risa þáttur. Rooney, Ronaldo og Darius Vassell. Skoðum Gharial og snertum á frægasta íþróttaleik sögunnar. Það í faglegri yfirferð.

S03E03 - “Ég er ekki konan þín.” 26 Jun 2025

Kæru vinir. Þátturinn þessa vikuna er jafn fræðandi og hann er skemmtilegur. Kvíðaköst, eitur, útrýming og kjólar. Takk.

S03E02 - “Hvítt í tappa!” 11 Jun 2025

Kæru vinir Mikil veisla framundan. Georg vantar aðstoðarmann og færum vel og vandlega yfir hvaða hættur leynast á vinsælustu sumaráfangastöðum íslendinga. Njótið vel kæru vaktarbrósar.

S03E01 - "Heimsveldi heimskunnar" 29 May 2025

Fyrsti þáttur í yfirferð okkar á seríu 3. Skriðdýrahornið á sínum stað og við förum "back to the roots" Skoðum linoleum dúka og dyslexíu. Njótið vel kæru vinir.

S03E00 - Kuldakast í Kringlunni 12 May 2025

Kæru vaktarbrósar og brósur. Loksins er komið að því. Ný syrpa að hefjast og í þætti dagsins leggjum við á borð fyrir veisluna sem framundan er. Förum yfir skemmtilega keppni sem haldin var í Kringlunni á sínum tíma og heyrum í skipuleggjendum og sigurvegara. Skriðdýrahornið fékk frí þessa vikuna og verður því tvöfallt í næsta þætti. Njótið vel kæru vinir.

Aukavaktinn - Ragnar Bragason 03 Apr 2025

Loksins er komið að þeim eftivænta. Ragnar Bragason leikstjóri Vaktarseríanna fer með okkur eins langt á bakvið tjöldin og mögulegt er.

Atvinnuviðtalið - Guðjón Smári 24 Mar 2025

Guðjón Smári er útvarpsmaður á FM957 og mikill aðdáandi vaktarseríanna. Guðjón Smári hefur líkt og Ólafur Ragnar tekið þátt í söngvakeppni á Stöð 2 og unnið í útvarpinu á FM. Hann mætir til okkar með faglega yfirferð sína á Dagvaktinni og kynnumst við honum og hans tengingu við þættina vel. Minnum á Pubquiz á fimmtudag næstkomandi kl. 21:00

Viðhafnarútgáfa Vaktans - Dagvaktin edition 29 Jan 2025

Þorvar og Grétar einir bestu vinir okkar vaktarbrósa eru mættir í settið og eru tilbúnir til að gefa okkur nýja sýn á seríuna. Við förum í verðlaunaafhendinguna frægu og síðasta skriðdýrahorn seríunnar þar sem við kynnumst manninum Professor Alfred Romer en hann var langt á undan sinni samtíð. Takk fyrir samfylgdina í gegnum Dagvaktarseríuna og heyrumst fljótt aftur.

Dagvaktin Grand Final - "Þú ert besti vinur minn." 15 Jan 2025

Í þessum grand final förum við yfir margt. Skoðum ræðuna hans Georgs og hvaðan hún sótti innblástur. Förum yfir Phoenix Reptile Expo 2018 og til hvers eru snúningsprikin sem börn og fáránlingar veifa á 17. júní? Síðast en ekki síst svörum við að sjálfsögðu spurningunni sem allir spurðu sig um eftir síðasta þátt, er Gugga að rísa upp eins og fönix? Framundan er að sjálfsögðu Viðhafnarútgáfan og njótið vel þessara lokaþáttar af Dagvaktinni kæru vinir.

S02E10 - "Ert þú hrísmóðir?" 18 Dec 2024

Loksins er komið að næsta þáttarþætti. Margt, mjög margt, sem þarf að fara yfir í dag. Bolsévikar og Romanov, hvað er það eiginlega? Hver er munurinn á hrísmóðir og ljósmóðir og heyrum í Bergþóri stórsöngvara. Þessi þáttur er einfaldlega úr efstu hillu. Vægast sagt. Góðar stundir.

Atvinnuviðtalið - Kristín og Starkaður Pétursbörn 25 Nov 2024

Kæru hlustendur, í Oranjeboom þætti vikunnar fáum við í heimsókn systkinin Kristínu og Starkað í Georgstof stúdíóið. Þau eru mun dýpri í vaktarheimum en flestir og var einstaklega gaman að fá þeirra sýn á seríurnar. Glöggt er gests augað eins og sagt var fyrir hart nær 50 árum og þau orð eru jafn sönn í dag og þau voru þá. Njótið einstaklega vel.

S02E09 - "Nú er ekki tími til að tilla." 24 Oct 2024

Í þætti dagsins skoðum við dýnamíkina sem ríkir á milli Georgs og Óðins auk þess sem við reynum að kafa í baksögu Óðins. Hefur hann jafnvel unnið á Bjarkarlundi áður? Hvað er merkilegast við kameljón? En og aftur ströndum við á umræðu um Aristóteles og Alexander þar sem við höfum ekki kynnt okkur fræði Hómers nægilega vel og lofum við góðri skýrslu í næsta þætti.

S02E08 - "Gugga að smíða geimflaugar!" 16 Oct 2024

Okkar kæru félagar í Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb með okkur að vana. Förum yfir skröltorma, Aristótales og Alexander. Sláum auðvitað á þráðinn í góða einstaklinga og skoðum eldhúsið hans Víglunds á Saurum. Að ógleymdri umræðu um hnit og þá sérstaklega austur og vestur.

S02E07 - "Ég hef aldrei komið til Minsk." 03 Oct 2024

Okkar bestu vinir eru Oranjeboom - Coolbet - Álfurinn - Skúbb Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt. Kynnumst Tokay Gecko-um og hvað eru eiginlega gular vatnsmelónur. Hvetjum ykkur til að biðja herra hótelstjóra að slaka á ykkur einum ísköldum meðan þið hlustið.

Atvinnuviðtalið - Þráinn Orri og Arnar Þór 18 Sep 2024

Þráinn Orri og Arnar Þór kíktu í Georgstof stúdíóið. Þeir félagar eru pungdjúpir í Vaktarheimum og þekkja alla frasa og öll atriði út og inn. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna en einnig þökkum við Coolbet, Oranjeboom, Álfinum og Skúbb.

S02E06 - "Kjánalegt?" 12 Sep 2024

Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Nú færum við inn í mikið breytingaskeið Dagvaktarinnar. Hvernig er sú upplifun að koma til fyrirheitna landsins, Komodo? Förum yfir Battle Royale - Animal edition og kynnumst föðurást. Njótið vel kæru vinir.

S02E05 - "Það þurfti að lensa út úr kvikindinu." 21 Aug 2024

Okkar ástsælustu eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Í þessum þætti er mikið sem þarf að kryfja. Hlustendur fá að kynnast Komodo drekum loksins og við ræðum sveitaböll. Sólinn Sandó upp með hendur allir saman. Gleymum auðvitað ekki að ræða Æsufellið og skoðum betur skattstjórann. Góðar stundir.

Atvinnuviðtalið - Kristján Andri sagnfræðingur 25 Jul 2024

Að vana eru vinir okkar Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb. Kristján Andri fer yfir kommúnisma og tengingu stefnunnar við Vaktarseríurnar og þá sérstaklega Georg Bjarnfreðarson. Skoðum byltingar, agabrot og að sjálfsögðu móður sagnfræðinnar, framtíðina.

S02E04 - "Gling-Gló hét hljómplatan." 17 Jul 2024

Okkar bestu vinir eru sem áður Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Í þætti vikunnar kryfjum við ýmis mál til mergjar. Förum yfir ferðasögu þar sem takmarkið var að bera hin eitruðu Gila skrímsli berum augum. Afhverju hræðist einhver háhyrninga og þó að við höfum ekki mikinn smekk fyrir tónlist Bjarkar þá eru mæður okkar miklir aðdáendur. Njótið hlustendur kærir.

Aukavaktinn - Gugga / Ólafía Hrönn Jónsdóttir 11 Jul 2024

Okkar kæru vinir eru Álfurinn, Oranjeboom, Coolbet og Skúbb. Við fengum Guðbjörgu Ragnarsdóttur til okkar. Við köllum hana Guggu, hún er ekki kölluð neitt annað hér í sveit. Förum yfir víðan völl með henni. Hvernig er að vera fjallkonan og hvernig var 17. júní skemmtun á Reykhólum?

S02E03 - "Fyrirgefðu að ég rakst óvart utan í þig" 03 Jul 2024

Okkar allra bestu félagar eru sem fyrr Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb. Þetta er sveppaþátturinn frægi. Hvaðan koma "froskarnir" í Garðabæ? Kvenfélög og Fjallkonur. Tökum nokkur símtöl í tónlistarfólk og aktivísta á hinum ýmsu sviðum. Góðar stundir.

S02E02 - "Þetta er fjölskylduhótel, ekki afdrep fyrir lostalæti." 19 Jun 2024

Maður minn. Okkar frábæru félagar í Oranjeboom, Álfinum, Coolbet og Skúbb komu clutch fyrir þennan þátt því hann er þétt pakkaður. Við förum yfir busanir, kvenfélög og skátamót í Hveragerði. Semsagt stiklað á stóru að vana í bland við djúpköfun þar sem kafað er ofan í kjölin á þætti tvö. Hann er mikilvægur hvað varðar aðlögun karaktera að breyttu sögusviði, sveitinni. Góðar stundir.

S02E01 - "Hvar ertu með liminn Ólafur?" 05 Jun 2024

Gott að vera komnir aftur kæru vaktarbrósar. Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb og þökkum við þeim kærlega fyrir. Í þætti dagsins köfum við djúpt og kynnumst Reykhólshreppi af alvöru. Álfasögur, Leynivopnið og bolir sem frítt með dóti sem þú verslar í stórmörkuðum. Skoðum líka upphaf skátahreyfingarinnar. Njótið.

Atvinnuviðtalið - Gunnar Birgisson 17 Apr 2024

Gunnar Birgisson er góðkunningi flestra landsmanna eftir að hafa verið tíður gestur heima í stofum á sunnudagskvöldum. Það sem fæstir kannski vita er að Gunnar er einnig einn mesti aðdáandi Vaktarseríanna sem finnst og því ber að fagna. Við fórum um víðan völl. Hvaða leik opnar Gunnar sínar skákir á, Western Union svindlið sem hann varð fyrir og fáum faglega skýrslu um Natteskiftet, norsku útgáfu Næturvaktarinnar. ____ Atvinnuviðtalið eru þættir þar sem við fáum til okkar góða gesti og ræðum þættina frá sjónarhorni aðdáenda. Við leitumst eftir því að kynnast því hvernig fólk túlkaði þá á mismunandi hátt.

Aukavaktinn - Georg / Jón Gnarr 14 Apr 2024

Við gætum ekki gert þetta án okkar bestu vina sem eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Þáttur dagsins er í þyngri kantinum. Jón Gnarr er mættur í Georgstof stúdíóið og má með sanni segja að farið sé yfir víðan völl. Lögleiðing skriðdýra, starfsmannasjóðurinn og hvernig sér Jón fyrir sér lífið á Bessastöðum? Ætlar hann að leyfa því að gerast að sýklum þar sé bara gefið að drekka svo þeir verða feitir og pattaralegir?

Aukavaktinn - Gestur Valur Svansson 10 Apr 2024

PubQuiz Vaktanns 19. apríl á Álfinum í Breiðholti.

S01E13 - VIÐHAFNARÚTGÁFAN 03 Apr 2024

Þá er komið að stóru uppskeruhátíðinni og þökkum við Oranjeboom, Álfinum, Útilegumanninum, Skúbb og Eldey Films fyrir að hjálpa okkur við að gera hana að veruleika. Hér snýst allt um seríuna í heild sinni. Við hringum í Pálma fyrrum verslunarstjóra á bensínstöð Skeljungs við Laugaveg og veitti hann okkur innsýn í líf starfsmanns við bensínstöðina á þessum tíma. Hvað stóð uppúr í seríunni? Georg leggur línurnar fyrir komandi seríur og sýnir að hann vill vera aðal. Ferðumst aftur í tímann á hestvögnum. Takk fyrir okkur.

S01E12 - "Má það vera á kreditkortanúmeri móður minnar?" 20 Mar 2024

Við erum hér þökk sé Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - Eldey Films. Tilfinningaþrungin stund en það er komið að síðasta þættinum. Uppgjör á uppgjör ofan. Barn verslar á kreditkortanúmeri móður sinnar. Förum í utanlandsferð og skoðum hvort það sé turn-off að aðili af hinu kyninu vilji versla rúm í IKEA frekar en í verslun sem býður upp á vörur sem fara betur með bakið á manni. Takk.

S01E11 - "Styður þú klám?" 14 Mar 2024

Okkar allra bestu vinir eru Álfurinn, Oranjeboom, Útilegumaðurinn, Skúbb og Eldey Films. Kæru hlustendur, það er komið að því. Nú býðst ykkur að hlusta á okkur ræða um læðuna og dekkin... og rotturnar. Sprengjum nokkrar bólur, eru starfsmenn bensínstöðva klámfíklar og kynfræðsla Vaktans í fyrsta skipti. Njótið.

Aukavaktinn - Daníel / Jörundur Ragnarsson 08 Mar 2024

Vá. Jörundur Ragnarsson sjálfur kom til okkar og ræddi við okkur um Daníel Sævarsson og fleira. Flestir ættu að þekkja Daníel en hver er Jörundur? Fæstir vissu hvað væri framundan þegar hann mætti seint á Hyundai Accentinum sínum í prufu hjá téðum leikara Ragnari Bragasyni en eina sem maður getur sagt er bara rest is history. Þökkum Jörundi kærlega fyrir komuna. Takk.

Tengd hlaðvörp