Lof mér að tala cover

Lof mér að tala

Hanna og Kristín

Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! ‎ Instagram: @lofmeradtala Tiktok: @lofmeradtala

Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! ‎ Instagram: @lofmeradtala Tiktok: @lofmeradtala

Lof mér að tala: 53. Lof mér að þegja (í bili)

0:00 0:00

Þættir

Lof mér að tala: 53. Lof mér að þegja (í bili) 15 Aug 2026

Elsku hlustendur, í dag kemur út síðasti þáttur Lof mér að tala í bili. Þetta ferli hefur verið einstaklega gefandi, gæfuríkt og umfram allt skemmtilegt. Það er fyndið að hugsa til þess að eitt lítið samtal á Lebowski bar leiddi til gerð þessarar hlaðvarps- enda erum við hreykin af því að vera eina hlaðvarpið á landinu sem hóf göngu sína á ógeðslegasta bar landsins. Þetta er þó ekki það síðasta af Lof mér að tala. Þegar aðstæður leyfa, lofum við að tala aftur. Við þökkum hlustunina og kveðjum ykkur með bros á vör. - Hanna og Kristín.

Lof mér að tala: 52. Gullbrá og minkarnir þrír 30 Jul 2026

Lausaganga minka í Mosfellsdal, berkjöldun í húsgagnaverslun, frábær íslensk kvikmynd og hríðskotarifflar voru meðal viðfangsefna þáttarins. Prettyboychokko hefur fengið nóg en Kristín hefur einnig fengið nóg af ákveðinni hegðun ungmenna í dag. Hanna gefur ekki mikið fyrir umtalaða epík Cristopher Nolans og svo er það stóra spurningin: Hvort erum við að fara til Akureyrar eða til Eyja? Þetta og fleira í nýjasta þætti Lof mér að tala! Þátturinn er í samstarfi við Gluggagæjana.

Lof mér að tala: 51. Sverrir Bergmann og íslenska sauðkindin 24 Jul 2026

Stelpurnar fóru um víðan völl í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala! Bandóðir frakkar á tjaldsvæði, íslenska sauðkindin að koma sér í háska, Youtuberar og leiðinlegasti úrslitaleikur í sögu HM voru til umræðu í þætti dagsins. Fm95BLÖ, aka óskadrengir þjóðarinnar, halda stórtónleika í AK city um verslunarmannahelgina. Kristín spyr sig hvers vegna allir á Íslandi voru aukaleikarir í The Odyssey og Hanna hneykslast á ókurteisu fólki á tjaldsvæðum. Þetta er m.ö.o einstaklega viðburðaríkur þáttur!

Lof mér að tala: 50. Ein þjóð, margir áhrifavaldar 16 Jul 2026

Kristín er lasin og tekur regluleg hóstaköst í gegnum þáttinn sem er gjöf sem gleður. Gummi Kiró er orðinn umboðsmaður áhrifavalda, Taylor Swift gifti sig á fáránlegum stað, Erling Haaland VS. Jude Bellingham átti sér stað (ef þú veist, þá veistu) og systir Gretu Thunberg kemur til sögunnar en hún er vægast sagt áhugaverð týpa. Stelpurnar kíktu í bíó og kryfja það en Kristín vill biðja Magnús Jochum afsökunar. Siggi Stormur ber einn ábyrgð á veðurfari Reykvíkinga en það styttist í sólmyrkvan fræga. Þetta og fleira í #letmetalk

Lof mér að tala: 49. Hatursglæpur í parísarhjóli 09 Jul 2026

Stelpurnar koma sterkar tilbaka eftir hrakfaföll síðasta þáttar! Hatursglæpir við kirkjur, íslensk áhrifavaldapör á samfélagsmiðlum, vafasamur tónlistarsmekkur og íslenskt djammsumar voru meðal umræðuefna þáttarins. Lizzo hatar feitt fólk og gaf út plötu sem heitir Tík. Svo má auðvitað ekki gleyma að drengjakollur Kristrúnar Frostadóttur er allur. Njótið þáttarins!

Lof mér að tala: 48. Sumarsæla á Hard Rock 05 Jul 2026

Loksins er nýjasti þátturinn kominn í hús (eða það sem er eftir af honum… þetta kemur allt saman í ljós…)Siggi Bond er víst orðinn rasisti, Olivia Rodrigo gaf út tónlist, Trump yfirgaf landið og veitingastaðurinn Hard Rock kemur við sögu, eins og svo oft áður. Kristín skilur ekki HM æðið sem er svoleiðis að tröllríða landanum en Hanna horfði á Hunger Games í fyrsta skiptið og uppgötvaði hamingju í fyrsta sinn. Hvílík gleði.

Lof mér að tala: 47. Bróðir Jakob (feat. Jakob Birgisson) 24 Jun 2026

Jakob Birgisson, uppistandari og bróðir Hönnu, er gestur í þessum nýjasta þætti af Lof mér að tala. Árshátíð íslensku sumarkonunnar á Þingvöllum, súkkulaðiplata Sólrúnar Diego, óhapp á hvalveiðiskipi og kvíði voru til umræðu. Jakob og Hanna ræða barnæskuna og ýmsa kvilla í fari þeirra beggja. Við förum yfir komandi uppistandssýningar Jakobs um allt land í sumar og heyrum skemmtilegar sögur úr uppistandinu. Ásamt því svarar Jakob spurningum hlustenda! Þið viljið ekki missa af þessum nýjasta þætti LMAT<3

Lof mér að tala: 43. Bjór í strætó 20 May 2026

Við erum komnar aftur. Did you miss us? Það hefur aldrei liðið svo langt á milli þátta í sögu LMAT og það heyrist, enda einstaklega óreiðukenndur þáttur. Ný borgarstjórn og misgóð kosningaloforð, leiðinlegir foreldrar á samfélagsmiðlum, gallaðir Tiktok algóritmar, Eurovision (sem enginn fylgdist með), þjóðarréttur Búlgaríu og spurning hvort maður eigi bara að byrja að gefa börnum bjór í strætó. Hanna heldur því fram að Austur-Evrópa verði á alla vörum í sumar og Kristín vill opna salatbar. Það er rant-að mikið en aðallega hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala!

Lof mér að tala: 42. Risa tilkynning 29 Apr 2026

það er RISA TILKYNNING í þessum þætti sem þú vilt ekki missa af! #spennandi Stelpurnar fóru um víðan völl. Einstakt ástarævintýri Kristínar í Amsterdam (not), Rosalía, leiðinlegar sveitastjórnarkosningar og vafasamir leiðtogar. Svo eitthvað sé nefnt. Hvort sem að þú ert lengst uppi eða lengst niðri þá er þessi þáttur Lof mér að tala eitthvað fyrir þig!

Lof mér að tala: 41. Ljóð frá ástkonu 22 Apr 2026

Sólin skein í Reykjavík og hér er mikið um að vera. Týpurnar á Bastard, efnahagsvandamál Færeyinga, hvað er með óléttar konur og Vesturbæjarlaug? Stelpurnar leituðu til hlustenda og lesa upp það sem liggur þeim á hjarta. Kristín liggur ekki á skoðunum sínum um trúbadora og þá sérstaklega einn ákveðinn - en hún er svo sem ekki vön því að liggja á skoðunum sínum. Hanna les upp lista sem lítið vit er í og vitleysan nær ákveðnu hámarki hér í 41. þætti Lof mér að tala!

Lof mér að tala: 40. Dánartilkynning á Coachella 15 Apr 2026

Við erum #beliebers Stelpurnar eru flippkisar í dag, enda voru þær í galsa á meðan upptöku stóð. Hiti á Coachella, Justin Bieber að fara á kostum, falsaðar dánartilkynningar og lágflug yfir Vestmanneyjum eru meðal viðfangsefna þáttarins. Okkur finnst Ari Edwald taka furðulegar ákvarðanir og Hönnu finnst fólk sem veltir fyrir sér bílastæðum í borginni leiðinlegt. Kristín lenti í fyrirferðamiklum júllum á tónleikum og vill ræða það. Lets talk about it.

Lof mér að tala: 39. Krossfestu mig á Smitten 08 Apr 2026

Þögn er betri en þarflaus ræða. Brandarahorn Hönnu lítur dagsins ljós. Krossfestingar, víkingaþrep með Gumma Emil á hálendinu, trúboðar á Pride, að sprauta sig með HGH efni, Smitten að vera með óþarfa upplýsingar um fólk og leitin að sumarvinnu sem ætlar engan enda að taka. Jú og Kristín stofnaði nýjan sértrúnaðarsöfnuð, Náttúrubörn. Endilega tjékkið á því. Ert þú náttúrubarn og góður leiðtogi? Ert þú góð fyrirmynd? Þá færð þú sumarvinnu hjá Lof mér að tala ehf. Fyrsta verkefnið: hlusta á nýjasta þáttinn.

Lof mér að tala: 38. Páskaunginn les fan fiction (feat. Tinna Tynes) 01 Apr 2026

Tinna Tynes, aka Penis, kom til okkar í stúdíóið. Penis er einstaklega glögg og hnyttin en hún er upprennandi sviðshöfundur. Misskemmtilegar grunnskólagöngur, Wattpad, Inga Sæland og verstu páskar frá upphafi eru meðal umræðuefna þáttarins. Vegna mikillar eftirspurnar tók Tinna það á sig að skrifa fan fiction um stelpurnar sem þið, kæru hlustendur, fáið að njóta góðs af. Kristín les upp óhuggulega kynlífsfantasíu sem tengist hryðjuverkum (þið lásuð rétt), á meðan Hanna lítur yfir farinn veg… #takkfans

Lof mér að tala: 37. Swing klúbbur á Nesinu 25 Mar 2026

Seint koma sumir en koma þó. Ógöngur pars í barneignum, swing klúbbar á Seltjarnarnesi, Netflix þættirnir Inside the manosphere, afmælisgleði hjá Hönnu og ógeðsleg hostel eru meðal viðfangsefna þáttarins. Stelpurnar velta fyrir sér hvort það sé eðlilegt að sálfræðingurinn manns hætti með manni og fara yfir kostulegar ferðasögur sem tengjast öpum og geðveikum breskum konum. Jú, svo er nýtt hljóðbrot!

Lof mér að tala: 36. Jesúbull í Múlaþingi 18 Mar 2026

Íslenski barinn, ástarsamband Kristínar og Marons Birnis, sumarbústaðir, Jésúbull í Múlaþingi og stúdentakosningar. En Kristín vill að fólk hlutgeri sig meira sem og bandarísku leikkonuna, Meryl Streep. Enda er hún einstaklega sexý. Stelpurnar svara spurningum hlustenda, sem voru jú margar en snerust líka margar hverjar að… samkynhneigð? Lífið er veisla og þið, kæru hlustendur, eruð veislugestir.

Lof mér að tala: 35. vbmm? (feat. Una Ragnars) 12 Mar 2026

Una Ragnarsdóttir er komin aftur til okkar! Í þetta sinn til að ræða dægurmenningu og leiksýninguna Kabarett, sem hún mun frumsýna í næstu viku í Þjóðleikhúskjallaranum. Abudabí, Timothee Chalamet að vera hrokafullur (með eða á móti?), nýja platan hjá Harry Styles og Óskarsverðlaunin. Kristín segist hafa verið með vafasamar hugmyndir sem barn og Hanna er komin með nóg af tónlistinni á Röntgen! Takk Una fyrir komuna.

Lof mér að tala: 34. Suicide boys og kaþólska kirkjan 04 Mar 2026

Kæru hlustendur, velkomin í 34. þátt Lof mér að tala. Stelpurnar eru eldhressar og eins og svo oft áður leyfa þær hlustendum að svamla um í viskubrunni sínum. Davíð Oddsson, Kaþólska kirkjan, 69, BBL, Jim Carrey, Laufey gerir collab, Bjarkar eftirherma og síðan er spurning hvort Erika Kirk sé orðin… lesbía? Kristín kemur með reynslusögu sem tengist slæmum tónlistarsmekk og Hanna fer á kostum.

Lof mér að tala: 33. Kjarnorka og Grafarvogur 18 26 Feb 2026

Nýr þáttur! Stelpurnar ræddu um kjarnorkuvopn, konudaginn og Rússa á Ólympíuleikum. Óheppilegt atvik á verðlaunahátíð er rætt (úff) og Kristín segir frá ótrúlegum næturævintýrum sínum um helgina sem tengjast Grafarvogi 18. Jú og hvað gerði Bill Gates eiginlega af sér? Þátturinn er í samstarfi við Regn app!

Lof mér að tala: 32. Cancelled í leðuról 20 Feb 2026

Það var mikið hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Ætti að vera hægt að fara í þungunarrof í Bónus? Af hverju er ekki til nein íslensk bíómynd um BDSM? Kristín gefur einhleypum karlmönnum ráð fyrir konudaginn en Hanna segir frá traumatíserandi reynslu sem tengist klippingu. Framhjáhald, tær, bolludagurinn og Andrés (ekki öndin) voru meðal viðfangsefna þáttarins. Þátturinn er í samstarfi við Regn app

Lof mér að tala: 31. Maka- og markalausar á Valentínusardeginum 11 Feb 2026

Stelpurnar gefa öllum ástföngnu hlustendum sínum ráð um hvað væri gaman að gera á Valentínusardeginum, sem er næstkomandi laugardag. Ofurskálin, fólk á tánum í ræktinni og andlega veikir unglingar eru meðal viðfangsefna þáttarins. Annars er bernskan krufinn en börn eru víst byrjuð að mynda tilfinningaleg tengsl við vélmenni á netinu. Við förum yfir stöðu snapchat kvennanna í samfélaginu í dag, enda þurfum við á þeim að halda. Þátturinn er í samstarfi við Regn app.

Lof mér að tala: 30. Guð er andlega veik kona 04 Feb 2026

LOF MÉR AÐ TALA ER 30 ÁRA! Stelpurnar deila sögum úr lífi þeirra. Kristín les úr dagbókarfærslum frá skiptinámsdögunum sínum á Spáni en þar koma við sögu ástarjátning spænsks bekkjarbróðurs og graftarkýli, betur þekkt undir nafninu Tvíburabróðir. Grammy verðlaunin, fuglaflensan og dauðir smáhundar. Stelpurnar velta því fyrir sér af hverju allir og ömmur þeirra eru í Epstein skjölunum. Jú, svo tók önnur stelpnanna Hopphjól í jarðaför ömmu sinnar… tune in til að vita hvor þeirra framdi þann glæp<3

Lof mér að tala: 29. Alþjóðlegt kyntákn 30 Jan 2026

Hæhæ stelpur, verið velkomnar í 29. þátt Lof mér að tala! Margt er rætt og völlurinn er víður, eins og svo oft áður. Prófkjör, kyntáknið Kristín, handbolti, Beckham drama, Hallmark myndir og komment hjá gaurum á instagram. Jú svo er Dónald víst pabbi Íslands…

Lof mér að tala: 28. Lesbíur í krísum 21 Jan 2026

Þessi þáttur er ekki af verri endanum! Stelpurnar ræða til að mynda vændiskaup þingmanna og eitt ákveðið deyjandi listform. Þær fengu fagmann til að þýða internet slangur og veittu hlustendum ýmis ráð við vandamálum sem þeir sendu inn - margt var um lesbíur í krísum en sumt beintist að strætóskýlum. Vonandi nýtast ráðin sem flestum hlustendum! Þetta og margt fleira í þessum þætti af Lof mér að tala!

Lof mér að tala: 27. Háskólagellur 14 Jan 2026

Gleðilegan nýjan þátt! Þessi er stuttur og laggóður… flugdólgar, Golden Globes, endurkoma Harry Styles, jamaíski hreimurinn, borgarpólitíkin og litlir kóngar (iykyk), enn og aftur, TAKK FYRIR AÐ HLUSTA!

Lof mér að tala: 26. Feitar, lágvaxnar og sköllóttar (feat. Hildur Halla Þorvaldsdóttir) 09 Jan 2026

Fyrsti þátturinn á nýju ári! Stelpurnar eru einstaklega ferskar, enda komnar með góðan gest í hús… bjóðum Hildi Höllu Þorvaldsdóttir, fellow konu og micro áhrifavald velkomna. Trend, arabískar lýs, hvítt stolt, ferðasögur frá helvíti og Heated Rivalry. Jú svo má ekki gleyma nýja hljóðbrotinu frá Kristínu… ÞETTA ER VEISLA!

Lof mér að tala: 25. 2025 recap! 31 Dec 2025

SÍÐASTI ÞÁTTURINN 2025! Elsku Hinrik er staddur á Kanarí þannig stelpurnar fengu til sín nýjan tímabundin hljóðmann, hana Þórhildi Þorsteinsdóttur. Bjóðum hana velkomna<3 Stelpurnar fara yfir fréttir og viðburði ársins, segja frá markmiðum og áramótaheitunum sínum en Kristín spilar tvö ný hljóðbrot. Hanna spáir fyrir um hvað verði í tísku árið 2026. Þátturinn er kaotískur og viðburðaríkur, alveg eins og árið sjálft. GLEÐILEGT NÝTT ÁR ELSKURNAR OG TAKK FYRIR STUÐNINGINN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA! #uppi

Lof mér að tala: 24. Jólageðveikin 22 Dec 2025

GLEÐILEGA HÁTIÐ! Stelpurnar eru ferskar. Hinrik líka. Margt er rætt. Jólaboð, tónleikar, lélegar jólagjafir en Kristín segir frá einni slíkri (úff), grjót í möndlugraut og almenn vitleysa. Kristín er einstaklega greindarskert í þessum nýja þætti, bæði upp á orðalag og já almennri rökhugsun en hún Hanna er orðin smá þreytt á jólunum. Njótið hátíðarinnar og því sem eftir er af árinu! #uppi

Lof mér að tala: 23. „Ég er sjúklingur" 16 Dec 2025

Endajaxlatökur, netflix, sjúklingar og jólasveinar. Hanna er bólgin og aum en Kristín er ósátt með það að vera komin á þann aldur að verða þunn eftir örfáa drykki (). Annars þá þylur Hanna upp hámhorf síðustu viku sem var vægast sagt sláandi. Stelpurnar svara örfáum spurningum hlustenda og ræða frétt vikunnar. Svo er fyrirsögn vikunnar ekki af verri endanum. LETS GO!

Lof mér að tala: 22. Q&A og 6-7 helgin 09 Dec 2025

Stelpurnar áttu rosa menningarlega 6-7 helgi. Kristin fór í leikhús og í bíó á kvikmyndina Wicked: for good. Hanna djammaði til 5. Margt var rætt, þ.á.m sogtæki frá Temu, kókdrama í Garðabæ og jólalög en stelpurnar svöruðu misgáfulegum spurningum frá þeirra dyggu hlustendum. Jú svo fékk Kristín hrós frá engum öðrum en fyrrverandi menningarmálaráðherra… túnið inn og þér munið heyra.

Lof mér að tala: 21. The Joey Show (feat. Jóhann Kristófer) 01 Dec 2025

KEMST HANN OFAR?! Við fengum engan annan en fjöllistamanninn Jóhann Kristófer í stúdíóið til okkar í dag. Jóhann eða Joey Christ, eins og hann er oft kallaður, hefur komið víða að. Hann stofnaði útvarpsstöð, leikstýrði raunveruleikaþáttunum Æði, hefur leikið í ýmsum leikverkum og gaf nýverið út plötuna Joey 3. Stelpurnar ræða aðeins við hann um ferilinn og upphafið en síðan er farið um víðan völl. Við ræðum m.a um ólæsi íslenskra drengja, jólatónlist, Roskilde útihátiðina og Joey segist ekki vilja hlaupa maraþon á tásunum… þetta og meira í #letmetalk.

Lof mér að tala: 20. Að klóna eða ekki klóna 24 Nov 2025

VELKOMIN Í 20. ÞÁTT LOF MÉR AÐ TALA! Veikindi, rónar, Beggi Másson, raunveruleikaþættir, kynsjúkdómar og konseptið að eyða sex milljónum í að klóna dýr. Kristín segir frá ævintýrum sínum á Balí undir lok þáttar og Hanna grét úr hlátri, en Kristín grét úr sorg. Enda bjóðum við öllum tilfinningum velkomin hér í Lof mér að tala❤️.

Lof mér að tala: 19. Problematic á hrekkjavökunni 04 Nov 2025

Wowowow velkomin í 19. þátt Lof mér að tala!Stelpurnar eru ferskar eftir mikla djamm helgi, enda var hrekkjavakan að ganga um bæ. Hanna segir okkur frá versta búningnum sem hún hefur farið í og Kristín segir frá problematic búningum. Röntgen, ný tónlist, Aron Kristinn og rasistar í miðflokknum. Það er sem sagt eitthvað fyrir alla í nýjasta þætti LMAT #takkfans.

Lof mér að tala: 18. Lélegir DJ-ar og feik meðganga 27 Oct 2025

Verið hjartanlega velkomin í fyrsta þátt vetrarins!Kristín og Hanna byrja veturinn vel, þær eru þunnar en bera það með sóma, ekki skömm, enda kvenfyrirmyndir. Hér í 18. þætti er farið um víðan völl: Kvennaverkfall, hrekkjavökubúningar, lélegir DJ-ar og nýtt áhugavert par er kynnt til leiks. Annars liggur Hanna ekki á skoðunum sínum hvað varðar frægan Færeying. Þar sem langt er liðið frá síðasta þætti eru fréttir vikunnar þrjár - og ekki eru þær af verri endanum. Tune in on #letmetalk

Lof mér að tala: 17. Brostu, þú ert í Reykjavík 14 Oct 2025

Jæja nýr þáttur!!!Stelpurnar ræða hin ýmsu mál, jafnt merkileg og ómerkileg. Missir maður sjónina við það að taka Ozempic? Fjölskylduboð og kvíðnar ömmur eru meðal viðfangsefna. Stelpurnar kynntu stefnuskrá nýs stjórnmálaflokks sem þær hafa sett á laggirnar fyrir komandi sveitastjórnarkosningar - Brosandi borg. Þær fara með skemmtilegar rangfærslur og velta sér upp úr heimspekilegum spurningum: Var Hitler gyðingur? Eru konurnar í Miðflokknum einungis tvær? Og af hverju var skatturinn að loka kaffihúsi í Smáralind? Eins og alltaf, lofum við veislu!

Lof mér að tala: 16. Ókristilegar 07 Oct 2025

Velkomin í 16. þátt Lof mér að tala! Hér er ein risa stór tilkynning: LJÓÐIÐ ER KOMIÐ AFTUR og Hanna hefur lestur á ný! Stelpurnar eru í stuði og hafa frá mörgu að segja: Ókristilegir prestar, munnmök og lagatextar, tískustraumar, nýr íslenskur stjórnmálaflokkur lítur dagsins ljós og Taylor Swift gaf nýverið frá sér plötu sem allir… hata? This and more on #letthemtalk.

Lof mér að tala: 15. Ungfrú Ísland Teen er AI vélmenni 02 Oct 2025

VIÐ ERUM KOMNAR AFTUR - did you miss us? Play er farið á hausinn, hvítasta Hollywood par allra tíma segir skilið við hvort annað, Hanna heldur því fram að Erika Kirk sé AI vélmenni og fyrirbærið Ungfrú Ísland Teen er sett á laggirnar. Jú, og Hanna og Kristín eiga báðar í ofbeldissambandi við prentara. Ekki missa af þessari veislu!

Lof mér að tala: 14. Lóan er komin (feat. Lóa Björk Björnsdóttir) 21 Sep 2025

Stelpurnar fengu til sín útvarpskonuna og grínistann , Lóu Björk Björnsdóttur. Lóa hefur frá miklu að miðla en stelpurnar fengu að svamla smá í hennar viskubrunni, það mætti segja að lífsins alvara hafi tekið yfir hér hjá okkur í Lof mér að tala. Meðal viðfangsefna voru: hlutverk samfélagsmiðla í dag, útlitskröfurnar blessuðu, hugarfar og margt, margt fleira.

Lof mér að tala: 13. Veipum friðsamlega 10 Sep 2025

Heil og sæl, land og þjóð og verið velkomin í þrettándann. Vá, mikið um að vera og mikið um að ræða! Stelpurnar kryfja Óktoberfest, velta hugtakinu “baddie” fyrir sér og Kristín gerir tilraun til þess að íslenska það. Umræðuefni á borð við bragð bann nikótínvara, fólk sem rekur við á tónleikum og sterk matarlykt koma við sögu. Hinrik og Kristín áttu hvor um sig móment með frægu fólki sem ber að nefna, frétt vikunnar er ekki af verri endanum og lögin sömuleiðis (eða hvað?) Þetta og meira í #letmetalk

Lof mér að tala: 12. Við og hin 03 Sep 2025

12. ÞÁTTUR ER KOMINN Í HÚS OG LÝÐURINN TRYLLIST Stelpurnar hafa frá mörgu að segja eins og svo oft áður. Skemmtiferðaskip, tónleikar á háskólatorgi, tásublæti, möguleg Fifth Harmony endurkoma og Októberfest nálgast. Hinrik og Hanna smökkuðu gonster og segja okkur frá þeirri skemmtilegri reynslu. Kristín býður upp á nýtt tónverk og það má segja að allir verði að hlusta á þann unað. Þetta og meira í #letmetalk

Lof mér að tala: 11. Hin heilaga þrenning: Ástin, þágufallssýki og Gonster 27 Aug 2025

Mætti bjóða yður Gonster?Hanna og Kristín ræða hin ýmsu mál, bæði stór og smá! Karlmenn í hælasokkum, blæti fyrir smökkun orkudrykkja og þemabrúðkaup eru meðal viðfangsefna þáttarins. Kristín skammast sín fyrir lag vikunnar, Hanna kynnir nýjan lið og fan vikunnar er ekki af verri endanum…Ástin er í loftinu eins og svo oft áður og stelpurnar ræða eina ákveðna trúlofun #ástin.

Lof mér að tala: 10. Ástandið 20 Aug 2025

The one where Kristín og Hanna rífast um Iceguys… Velkomin í 10. þátt af lof mér að tala! Stelpurnar hafa aldrei tekið upp jafn kaótískan þátt og endurspegla viðfangsefni þáttarins það svo sannarlega: Októberfest, gymbros, conceptið að eggja fólk og hvernig týpur fara á Iceguys tónleika. Hanna og Kristín spyrja einnig þeirrar mikilvægu spurningu sem hljómar svona: Hvar…. Er…. Patrik Atlasson?

Lof mér að tala: 9. Vinnandi konum er best að lifa (feat. Gríma Valsdóttir) 08 Aug 2025

OMG NÝR ÞÁTTUR OG FRÁBÆR GESTUR!! Hanna og Kristín fengu til sín Grímu Valsdóttur, vinkonu og snilling, til að ræða hinar ýmsu vinnur sem þær vinkonur hafa unnið í gegnum tíðina! Störfin eru eins mismunandi eins og þau eru mörg og stelpurnar tala misvel um reynsur sínar i störfunum…. Verslunarmannahelgin var rýnd í þaula og stelpurnar segja frá misgáfulegum ákvörðunum sínum yfir helgina. Ljóð vikunnar er af betri kantinum og það mætti segja að enginn maður mætti missa af lestri þess…. Við lofum góðri skemmtun að vana, í þessum 9. þætti Lof mér að tala:))

Lof mér að tala: 8. Druslur í Texas 28 Jul 2025

OMG NÝR ÞÁTTUR!! Í þessum 8. þætti af Lof mér að tala fara stelpurnar um víðan völl. Á meðal viðfangsefna eru mömmur á Facebook, furðuleg viðbrögð Íslendinga þegar þeir heyra í brunabjöllu, hinir ýmsu tónleikar og vægast sagt umdeild samtök….. Sumarbragur er yfir stelpunum og Hanna kemur með hugmyndir fyrir hlustendur um hvað sé hægt að gera um verslunarmannahelgina en Kristin um hvað henni… finnst aðlaðandi? Lofum veislu, eins og alltaf! :))

Lof mér að tala: 7. Son, wife and God 20 Jul 2025

HVAÐ GERÐIST Á 7 DÖGUM? EKKERT. EN 7. ÞÁTTUR AF LOF MÉR AÐ TALA ER KOMINN ÚT… Því miður komst okkar elskulegi tæknimaður og vinkona, Hinrik, ekki þar sem hann er fyrir norðan að elta veðrið. Í hans stað kom hún Ingibjörg Fía, vinkona og hugsuður. Þátturinn var því ögn kaótískari en venjulega og við afsökum langa bið eftir nýjum þætti... ekki örvænta þó því við lofum veislu. Hver eru umræðuefnin? Jú þau eru alltaf jafn víðfemd: Nýtt JB albúm, hið endalausa eldgos, sundkennsla í grunnskólum og auðvitað kötturinn Diego, svo eitthvað sé nefnt.

Lof mér að tala: 6. Kyntröll í Flatey 10 Jul 2025

WHATS POPPIN? BRAND NEW LOF MÉR AÐ TALA JUST HOPPED IN. Í 6. þætti ræða stelpurnar m.a. Bubba Morthens, kvennaboltann, íslensku sumarkonuna og hina klassísku íslensku útilegu en stelpurnar fóru í eina slíka í Flatey á dögunum. Hanna kynnir einnig inn nýjan lið… Þetta og fleira í #letmetalk

Lof mér að tala: 5. Tiktok frægðin og bjór í Kringlubíó 01 Jul 2025

HÆHÆ ÞETTA ER SARA Í JÚNÍK, LOF MÉR AÐ TALA VAR AÐ DROPPA NÝJUM ÞÆTTI! Hanna og Kristín eru alltaf jafn málefnalegar. 10 ár síðan fyrsta serían af SKAM kom út, tónlistarkonan Lorde gaf út nýja plötu í vikunni, íslenska bíómenningin verður skoðuð og greind. Eins og svo oft áður kemur bærinn við sögu en Hanna liggur ekki á skoðunum sínum um American bar, ásamt öðrum menningarlegum stöðum í Reykjavík DownTown. Þetta og meira í #lofméraðtala

Lof mér að tala: 4. Hæ, hó, jibbí, jei 18 Jun 2025

Another day, another Lof mér að tala. Kristín er þunglynd en Hanna er til í að ræða um hátíðardaga! Helstu viðfangsefni þáttarins eru eftirfarandi: 17. júní sem concept, barnamyndin ljóta litla lifran, Brynjar Níelsson og fallegar mjóar konur á tánum. Ásamt fleiru.

Lof mér að tala: 3. Barcelona debrief (feat. Una Ragnars) 13 Jun 2025

Tell a friend to tell a friend, the bitch is back!Halló halló, við erum komnar aftur beinustu leið frá Barcelona (borið fram barþelona) og í þetta sinn erum við með gest. Já, hún Una Ragnarsdóttir er hérna með okkur og við förum um víðan völl: Primavera útihátíðin, ógeðsleg hostel á meginlandinu, flugferð frá helvíti og ástartjáning spænskra karlmanna. Vonandi höfum við verið aufúsugestir #takk.

Lof mér að tala: 2. Málefnalegar gellur með bílpróf 04 Jun 2025

Í þætti vikunnar fögnum við vinkonurnar stórum áfanga í lífi Kristínar. Hin heila þrenning, FM95BLÖ, Taylor Swift og smørrebrød er meðal viðfangsefna þáttarins. Vikan er krufin og lög vikunnar fá að líta dagsins ljós

Lof mér að tala: 1. Lof mér að byrja 29 May 2025

Hér í fyrsta þætti Lof mér að tala fara Hanna og Kristín um víðan völl. Við ræðum Justin Bieber, áfengisvanda ungmenna á Kirkjubæjarklaustri og hvað Hanna er með ömurlegan tónlistarsmekk. Við segjum orðið „ógeðslegt” rúmlega þrjátíu sinnum og tölum um tengingu okkar við Kaþólsku kirkjuna. Verið öll velkomin og megi Guð blessa ykkur og íslenska forystuféð. Amen.

Tengd hlaðvörp