Með lífið í lúkunum
HeilsuErla
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
131. Skömmin var aldrei mín. (Áföll, fíkn, meðvirkni, meðvitund, hugrekki og sjálfsvinna). Hrund Ottósdóttir
Þættir
Í þættinum ræðir Erla við Hrund Ottósdóttur, höfund bókarinnar Skömmin var aldrei mín. Í þessari sjálfsævisögu deilir Hrund sögu sem snertir djúpt. Saga um fjölskyldubönd, þögn, áföll, fíkn, sorg og missi, en ekki síður um hugrekki, sjálfsvinnu, að rjúfa gömul mynstur og finna leiðina út úr gömlum vítahring. Þetta er samtal sem minnir okkur á að við berum ekki ábyrgð á því sem við urðum fyrir en á sama tíma að við berum ábyrgð á okkur og okkar hegðun. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 🌱 -SPÍRAN. Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf. Gjafabréf frá einu af þessum fyrirtækjum er tilvalið í jólapakkann! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og var tekinn upp í Klakinn studio. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 🌱 -SPÍRAN. Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og átökum. Hlustaðu einnig á viðtalið sem Erla tók við Viðar í júlí 2024. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson. Þar ræða Erla og Viðar um hvernig tæki og tól hafa aukið samskipti við fjærsamfélagið en gallinn er að þau hafa takmarkanir og minnka mannleg tengsl. Snjalltæki soga mennskuna úr og eftir stendur bara það sem er skrifað. Það er ekki bara það sem við segjum (eða skrifum) heldur þetta ósýnilega, líkamstjáning, raddblær ofl sem skiptir svo miklu máli. Við erum ekki eins meðvituð um nærumhverfi okkar og þá tapast augnsamband ofl. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, ábyrgð, nærveru, val og það hvernig við sjálf getum haft áhrif á það hvernig við upplifum lífið. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðar hér! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg samskipti, tilgangur og fleira séu allt jafn mikilvægir þættir til þess að upplifa heilbrigði. Kristján Þór sem hefur sérhæft sig í offitu, næringu og lýðheilsu bendir einnig á mikilvægi þess að finna rót vandans í langvinnum krónískum sjúkdómum til þess að hægt sé að snúa við þróun þeirra. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara og vara sem eru það ekki og áhrif þeirra á náttúruna og heilsuna. Bæði heilsu þeirra sem vinna með efnin og þeirra sem nota þau. Kvennakvöld HeilsuErlu 10.október. Kvöld sem þú vilt ekki missa af! Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér! Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa Edda Björgvins- Húmor og heilsa Elísabet Reynis- Næring og heilsa Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó) Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld. Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði. Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst. p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is *Matseðill. Þú getur valið um: 1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu. 2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk. 3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni. Prentaðu út blaðið Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur) Merktu við daglega. Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira. Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar. Einnig má finna verkefnið á Instagram Sérstakar þakkir til samstarfsaðilanna minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í raun eru það litlu hlutirnir sem við gerum á hverjum degi sem hafa mest áhrif á hegðun okkar og líf. Venja er einfaldlega hegðun sem við endurtökum svo oft að hún verður næstum sjálfvirk. Og þess vegna geta venjur annaðhvort orðið okkar sterkasti bandamaður eða versti óvinur. Ég mæli með að lesa bókina Atomic Habits eftir James Clear. Hann bendir á að markmið segja okkur hvert við viljum fara, en það eru daglegu venjurnar sem ráða því hvort við komumst þangað. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall. Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka. Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira. Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita sér aðstoðar. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu. Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra undir sólinni, leitaði hún sér hjálpar og fór í efnaskiptaaðgerð sem bjargaði heilsu hennar. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum. Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan. Njótið vel! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur. „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf. Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi. Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni’s Instagram The Fiercely Fueled Podcast A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle. 🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty). 💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi. Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health. Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance. She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life. Follw Katie on Instagram A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Nutrilenk. 🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty). 💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira. Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum. Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 en fyrir framlag sitt til góðgerðarmála. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu. Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum. Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja góðar upplýsingar og ráðleggingar frá öllu bullinu sem er í umferð. Það er mikilvægt að hlusta á líkamann, innsæið og skynsemina. Hvað er líkaminn að segja okkur? Erum við þreytt eða slöpp? Getur það verið vegna þess hvernig ég er að gera eitthvað sem hefur þessi neikvæðu áhrif á heilsuna mína? Er ég kannski að sofa allt of lítið? Er ég ekki að hitta fólk/vini? Er ég að borða rusl? Er ég að hreyfa mig of lítið eða of mikið? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi. Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á. Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum. Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið. Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 🌈 -SONETT. Lífrænt vottuð hreinsiefni. Án rotvarnarefna, ilmefna og kemískra efna 💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Næsta lotunám hefst 30.apríl. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years. Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving. She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane from Iowa to Orlando several times a year to visit her daughter and friends. You can see a short video from the interview on Instagram A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Bio-Kult. 🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your)fegurð (beauty). 💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play, and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira. Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta heilsu sína og heilbrigði með fræðslu og ráðgjöf. Hún hefur gefið út margar bækur og er með ýmis námskeið í boði á thorbjorghafsteins.is 💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða. Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna. Lilja þurfti að taka þá erfiðu ákvörðun að flytja frá sonum sínum þegar þeir voru aðeins 11 og 14 ára gamlir en eina leiðin til að klippa á andlegt ofbeldi fyrrum maka, var að fara nógu langt í burtu. Næsta Öndunar námskeið hjá Art of Living/IAHV verður 17.-19. apríl. Kennt er af Lilju í Grundargerði 7. Verð fyrir 42.000 fyrir vinnandi en 32.000 fyrir alla aðra og verkalýðsfélög taka venjulega þátt. Nánari upplýsingar má finna á: www.artofliving.org, www.IAHV.org og áhugasamir geta haft samband við Lilju í síma +354 6928302 eða sent henni tölvupóst hjartanslist@yahoo.com. Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM Soft Picks PRO? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu. Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning sem er einn frægasti Crossfittari heims og elskar að takast á við krefjandi verkefni. Áhugasamir geta fundið Ingu á Instagram. Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM batterístannburstann? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets. Andrew emphasizes the need for education in making informed health choices and the benefits of innovative supplementation methods, particularly for children. He concludes with a call to embrace healthy choices and supplementation positively. A huge shoutout to my sponsors <3 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Better You 🌱 -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘 -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your)fegurð (beauty). 💦 -UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play, and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Takeaways Andrew Thomas founded Better You after a personal health journey. Magnesium is crucial for cellular function and overall health. Nutritional decline is influenced by food processing and soil quality. Education empowers individuals to make better health choices. Children's health should be prioritized in nutritional discussions. Supplements should be tailored to individual needs and deficiencies. Oral sprays can enhance absorption compared to traditional tablets. Organic products generally offer better nutritional value. Healthy dietary choices are essential for long-term health. Health is a state of feeling good and being free from discomfort. Chapters 00:00 Introduction to Andrew Thomas and Better You 05:57 Understanding Magnesium's Role in Health 12:06 The Importance of Soil and Food Quality 17:56 The Role of Education in Nutritional Choices 24:11 Vitamin B12: Importance and Deficiency 30:10 Vitamin D: Sources and Requirements 35:34 Understanding Vitamin D Dosage and Maintenance 42:20 Child-Friendly Supplements: Making Health Fun 47:23 The Importance of Core Nutrients vs. Fads 53:21 The Role of Astaxanthin and Natural Antioxidants 01:00:04 Defining Health: A Personal Perspective 01:06:55 Focusing on Children's Health and Nutrition Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda. Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma. Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar jafningjafræðari. Hún tók fyrsta skrefið í átt að draumnum sínum síðastliðið haust þegar hún byrjaði með alveg dásamlegt hlaðvarp, Tilveruna þar sem hún ræðir við fólk sem talar hreint út um lífið og raunveruleikann, tilvistarkreppur og upprisur. Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu, ónæmiskerfinu, tilfinningum okkar, hugsunum, fyrri reynslu og aðstæðum í lífinu. Þá getur svefn, næring, hreyfing, félagsleg tengsl okkar og andleg líðan haft mikil áhrif á framgang verkja. ATH. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í þættinum! Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱 -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum. Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið. Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða eftir að hvatningin hellist yfir þig því mögulega gerist það aldrei. Í febrúar ætla ég að bjóða þér í 28 daga Heilsuáskorun. Þú setur þér EITT stórt markmið sem þú ætlar að gera daglega allan febrúar mánuð. Þetta getur verið að taka út slæman ávana sem er ekki að gagnast þér lengur og hefur neikvæð áhrif á heilsuna eða að bæta inn nýrri góðri venju. Hugmyndir eru t.d. að bæta inn daglegri hreyfingu, bæta inn grænmeti í öll mál, sleppa áfengi, sleppa viðbættum sykri, skrifa í þakklætisdagbók, taka D vítamín, nota tannþráð, sofa í 8 klst og svo framvegis. Hvernig virkar áskorunin? Þú sækir blaðið FRÁBÆR FEBRÚAR og prentar það út (Efstu tvö blöðin eru eins nema annað er með fallegri bakgrunn, þriðja blaðið er svo dæmi um hvernig fylla skal út). Þú velur þér svo eitthvað EITT sem þig hefur lengi langað til að gera og mun hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína. Þú merkir svo inn daglega (gerir X við hvern dag mánaðarins). Þar að auki getur þú sett inn allt að 8 aðrar venjur sem þig langar að gera sem allra oftast í febrúar og hakað við þær þá daga sem þú gerir þær. Eftir 28 daga verður þetta stóra markmiðið eða heilsuvenja vonandi orðinn mikilvægur hluti af þínu lífi og þú tekur þá ákvörðun um það hvort að þú haldir henni áfram eða ekki. Sama hvernig gengur, ekki gefast upp! Þó það komi einn og einn erfiður dagur, hoppaðu bara strax aftur á heilsuvagninn þinn og haltu áfram. Það væri gaman að heyra hvernig gengur. Sendu mér skilaboð á Instagram eða ef þú deilir einhverju í story þá má endilega tagga @heilsuerla GÓÐA SKEMMTUN! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði. Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám í Læknisfræði og P-DTR meðferðinni sem bjargaði honum og hjálpaði honum að ná heilsu aftur. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱 -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Smá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun. Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið. En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar. Vagus taugin er bæði skyn og hreyfitaug og er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins (sefkerfisins), eins konar bremsa líkamans. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱 -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í skírnargjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er. Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4. Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 sek. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag. Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025. Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar. Öll eru velkomin og við ætlum að reyna að ná samtals 2026 ferðum í Himnastiganum þennan dag! Munið að margt smátt gerir eitt stórt. Hægt verður að mæta hvenær sem er yfir daginn, frá nýársdagsmorgni til miðnættis á nýársdag. Það má ganga, hlaupa eða skríða. Þeir sem mæta geta svo sett inn mynd af sér og sínum í Facebook viðburðinn og þar verður einnig hlekkur til þess að skrá fjölda ferða. Ef þið setjið í story á Instagram má endilega tagga HeilsuErlu Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira. Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér? 🌱 -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. 20% afsláttur af brúnku með kóðanum: erla20. 💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira. Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár. Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 - HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér? 🌱 - SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur við aðrar íþróttagreinar. Svo ræðum við auðvitað um undirbúninginn fyrir mótið, ferðalagið á HM, keppnina sjálfa og allt í kringum það. Ég set reglulega inn frá æfingum á Instagram og áhugasamir um ólympískar lyftingar geta einnig fylgt Kára og Lyftingarsambandi Íslands (LSÍ) Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun? Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsvitundar. Viðbrögð okkar eru samspil af líffræðilegri næmni, sögulegri reynslu og persónuleika og samhengis í núinu /daglegri líðan. Mig langar einnig að hvetja ykkur til þess að hlusta á fyrra viðtal við Önnu um heilsumissi í kjölfar áfalls og nýju Heilsumolana um Þörfina fyrir því að hafa stjórn og sambandið við okkur sjálf. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár. 🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal 💗 Þín fegurð - Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann. 💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Skemmtilegt spjall við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um tengslin eða sambandið við okkur sjálf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um þörfina fyrir það að hafa stjórn. Hvað liggur að baki? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!