Taboo hlaðvarp cover

Taboo hlaðvarp

Árni Björn og Guðrún Ósk

Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum foreldrar þriggja dásamlegra barna og elskum að lifa lífinu. Það er okkar markmið að tala um ögrandi og stundum erfið málefni út frá okkar reynslu. Það er allt stutt í húmorinn hjá okkur og við tökum okkur ekki of alvarlega. Mottó-ið okkar er ”lífið er of stutt til að vera venjuleg”. Ef þér finnst gaman að kafa undir yfirborðið og vilt hlusta á raunveruleg samtöl um það sem við öll hugsum en fáir segja upphátt - þá er Taboo fyrir þig. Athugið að þættirnir eru ekki ætlaðir yngri en 18 ára.

Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum foreldrar þriggja dásamlegra barna og elskum að lifa lífinu. Það er okkar markmið að tala um ögrandi og stundum erfið málefni út frá okkar reynslu. Það er allt stutt í húmorinn hjá okkur og við tökum okkur ekki of alvarlega. Mottó-ið okkar er ”lífið er of stutt til að vera venjuleg”. Ef þér finnst gaman að kafa undir yfirborðið og vilt hlusta á raunveruleg samtöl um það sem við öll hugsum en fáir segja upphátt - þá er Taboo fyrir þig. Athugið að þættirnir eru ekki ætlaðir yngri en 18 ára.

Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir

0:00 0:00

Þættir

Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir 02 Oct 2026

Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo. Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er félagsráðgjafi að mennt, jógakennari, fyrirlesari og fararstjóri en umfram allt bara ótrúlega opin og skemmtileg manneskja sem er óhrædd við að tala um lífið eins og það er. Við fengum Bjargeyju til okkar í virkilega skemmtilegt og einlægt spjall þar sem við fórum út um víðan völl. Við ræddum meðal annars sambönd, kynlíf, sjálfsmynd, stefnumótaheiminn og hvernig það er að byrja aftur að deita á fullorðinsárum með aðeins meiri lífsreynslu og kannski aðeins skýrari hugmynd um hvað maður vill. Ótrúlega skemmtilegt spjall og eins og alltaf fórum við um víðan völl! Njótið vel :)

Þáttaröð 2 - Þáttur 9. - Helgi Jean Claessen 25 Sep 2026

Hæ elskurnar Þessi þáttur var algjör negla! Við fengum til okkar Helga Jean aka KakóHelgi aka Graðasti maður íslands. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall og fengum að heyra söguna hans Helga og hvar hann er staddur í dag í sínu ferðalagi. Ræddum um fjölástir, kynlíf, hugvíkkandi ferðalög, Kakóserimóníur, Kakókastalann ofl. ofl. Njóttu vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur 8. - Gott kynlíf? 14 Sep 2026

Velkomin í nýjan þátt af Taboo. Við förum svolítið um víðan völl en ræðum aðallega hugtakið "gott kynlíf". Hvað er það og hvað þarf til? Er til eitthvað eitt rétt "gott kynlíf" eða er þetta afstætt. Er hægt að vita með vissu að maður sé góður í kynlífi? Skemmtilegar pælingar. Njótið vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur7. - Matilda Gregersdotter 07 Sep 2026

Í þessum þætti fengum við frábæran gest eða hana Matildu Gregersdotter. Matilda er MCC markþjálfari með yfir 20 ára reynslu sem markþjálfi. Hún er líka mikil áhugamanneskja um Tantra, kynlíf og hinn andlega heim. Hún kom að stofnun Wild Love hátíðarinnar sem hefur verið haldin árlega undanfarin á hér á Íslandi og hún skrifaði líka bókina "Daily Sex" sem er hálfgerð dagbók þar sem hún talar um þá ákvörðun að stunda kynlíf daglega með manninum sínum, sem hún hefur núna gert síðan 2008! Ótrúlega skemmtilegt, fræðandi og nærandi spjall við magnaða konu. Njótið vel.

Þáttaröð 2 - Þáttur 6. - Kynorka = Lífsorka 10 Jun 2026

Hæ öll Í þessum þætti tölum við um kynorkuna og hvernig það er hægt að nýta hana sem lífsorku og drifkraft í lífinu. Njótið vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur 5. - Kara og Viktor aka Lovetwisted 29 May 2026

Velkomin aftur! Í þessum þætti fáum við í fyrsta skipti gesti til okkar! Mikil tímamót fyrir Taboo :) Við spjöllum við parið Köru og Viktor sem ganga undir nafninu Lovetwisted bæði á SDC, onlyfans og fleiri vettvöngum á netinu. Þau eru virk í lífsstílnum, eru í opnu sambandi og hafa haldið stærstu swing party á Íslandi. Ótrúlega gaman að fá þau í spjall til okkar. Njótið vel.

Þáttaröð 2 - Þáttur 4. - Að taka skrefið 21 May 2026

Hæ og velkomin aftur! Í þessum þætti ræðum við aðeins um hvernig það er að taka skrefið og byrja að explore-a hluti saman sem par, hvort sem það er swing, opin sambönd etc. Þetta getur verið erfitt og tricky og við förum aðeins yfir okkar sögu og okkar lærdóm af þessu. Njótið vel

Þáttaröð 2 - Þáttur 3. - Snapchat og samfélagsmiðlar 11 May 2026

Hæ þið! Í þessum þætti ræðum við um taboo hliðina af Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Snapchat er ákveðið fyrirbæri útaf fyrir sig sem okkur fannst mjög gaman að ræða um. Ef þið viljið fylgja okkur á snapchat þá finnið þið okkur undir @taboo.parid Njótið vel

Þáttaröð 2 - Þáttur 2. - Viðurkenning 24 Apr 2026

Hæ hó og velkomin aftur Í þættinum í dag spjöllum við um viðurkenningar og þá aðallega þörfin á að fá viðurkenningu frá öðrum. Hvaðan það kemur og hvernig það snertir við okkur. Njótið vel.

Þáttaröð 2 - Þáttur 1. - $ex Workers 17 Apr 2026

Hæ elsku bestu! Við erum mætt eftir smá frí og verðum vikulega næstu vikurnar. Mikið af spenanndi þáttum framundan í þáttaröð 2. Við ætlum að kafa dýpra í ákveðin málefni eins og opin sambönd og swing sem dæmi en í þættinum í dag ræðum við um $ex Workers. Ótrúlega áhugavert viðfangsefni að okkar mati. Njótið vel.

Þáttur 24. - Að hössla 04 Mar 2026

Fyndinn þáttur þar sem við spjöllum um hvað það getur verið skrýtið og steikt að reyna hössla annað fólk þegar maður er í opnu sambandi. Stutt og laggott en skemmtilegt. Erum ennþá að prufa okkur áfram með nýjar græjur, vonandi eru hljóðgæðin í lagi :)

Þáttur 23. - Power play / Dom og Sub / Valdaleikur 16 Feb 2026

Hæ og verið velkomin aftur :) Í þessum þætti ræðum við um það sem kallast "power play" eða "power exchange" sem er eitt form af "kink" og er oft sett undir eitt af þeim kinkum sem eru undir BDSM. Förum aðeins yfir okkar reynslu og hvernig við erum að fikra okkur áfram. Okkur finnst þetta ótrúlega spennandi og hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst!

Þáttur 22. - Virðing í samskiptum 23 Jan 2026

Hæ hó elsku hlustendur! Í þætti 22 köfum við í smá pælingar í tengslum við virðingu í samskiptum og hvernig okkar samskipti og hlutverk hafa breyst innan sambandsins í gegnum árin. Njótið vel.

Þáttur 21. - Misræmi um langanir í samböndum 14 Jan 2026

Jæja þá erum við komin aftur eftir stutta pásu yfir hátíðirnar. Við mætum tvíefld aftur til leiks. Í þessum þætti ræðum við um misræmi um langanir í samböndum og hvernig við höfum tæklað það hjá okkur. Njótið vel :)

Þáttur 20. - anal kynlíf 19 Nov 2025

Hæ og verið velkomin í Taboo! Í þættinum í dag förum við aðeins yfir það hvað er lifandi hjá okkur þessa stundina. Helst er það nýja meðferðarrýmið okkar, Kjarninn, þar sem við munum bjóða upp á nudd, markþjálfun ofl ofl. Ásamt því tölum við aðeins um Onlyfans síðuna okkar og hvernig það gengur en þið getið fundið okkur þar undir @icelandiccouple. Svo köfum við djúpt, mjög djúpt inn í anal kynlíf og okkar reynslu. Njótið vel :)

Þáttur 19. - sjálfsfróun/sjálfsunaður 12 Nov 2025

Hæ elsku bestu! Í þessum þætti förum við á flug og ræðum um sjálfsfróun, sjálfsunað, að rúnka sér og allt þar á milli :) Vonandi njótið þið vel!

Þáttur 18. - Sex dates og Check-ins 24 Oct 2025

Í þessum þætti förum við yfir "sex dates" og check-ins sem hefur hjálpað okkur gífurlega. Tölum um okkar reynslu og hvernig við gerum þetta. Vonandi njótið þið vel!

Þáttur 17. - að vera öðruvísi 16 Oct 2025

Í þessum þætti tölum við um það hvernig það er að vera öðruvísi og að lifa óhefðbundnum lífsstíl. Förum út um víðan völl. Njótið vel!

Þáttur 16. - Onlyfans 30 Sep 2025

Í þessum þætti ræðum við um Onlyfans og muninn á klámi og kynþokkalist. Við tölum um afhverju við byrjuðum með Onlyfans og addressum slúður og mynddreifingar á netinu sem hefur komið upp. Mjög þörf umræða og eitthvað topic sem við brennum heitt fyrir. Vona að þið njótið!

Þáttur 15. - Kynlífsspurningaspil 26 Sep 2025

Verið velkomin í Taboo! Pínu óhefðbundinn þáttur í dag en við förum yfir kynlífsspil og hvernig það hefur hjálpað okkur að opna á allskonar skemmtilegar umræður. Við skiptumst á að spyrja hvort annað að djúsí spurningum. Opnuðum á alls konar pælingar. Vonandi njótið þið vel!

Þáttur 14. - Pegging 18 Sep 2025

Í þessum þætti tölum við um pegging sem er heldur betur hot topic. Pegging er í miklu uppáhaldi hjá okkur og hefur nokkrum sinnum komið upp hjá hlustendum sem topic sem við ættum að ræða. Vonandi hafið þið gaman að þessum þætti og ekki hika við að senda á okkur ef það koma upp spurningar eða vangaveltur :) Njótið vel!

Þáttur 13. - Rifrildi 11 Sep 2025

Í þrettánda þætti förum við yfir eitthvað sem öll pör lenda í.... rifrildi! Við förum yfir hvernig rifrildin hjá okkur hafa þróast í gegnum tíðina og hvernig við reynum að tækla það þegar það er uppi ágreiningur. Njótið vel!

Þáttur 12. - Afbrýðisemi 05 Sep 2025

Í þætti 12 tökum við fyrir risastórt viðfangsefni sem er afbrýðisemi. Afbrýðisemi á sér svo margar hliðar og hefðum við geta rætt um þetta í marga klukkutíma. Hér förum við yfir hvernig við höfum tæklað afbrýðisemi í okkar sambandi. Njótið vel.

Þáttur 11. - Kynlíf 28 Aug 2025

Risastór þáttur þar sem málefnið er kynlíf....... ekki beint lítið topic! Við förum um víðan völl og þetta er klárlega vol. 1 um kynlíf og munum við tækla þetta aftur seinna, ekki spurning! Njótið vel!

Þáttur 10. - Q&A spurningar 21 Aug 2025

Til að fagna 10 þáttum þá ákváðum við að opna fyrir spurningar frá hlustendum. Ótrúlega skemmtilegur þáttur og okkur finnst svo gaman að frá feedback og spurningar frá hlustendum. Vonandi skemmtið þið ykkur jafn vel og við gerðum!

Þáttur 9. - Klám 14 Aug 2025

Í þessum þætti förum við yfir okkar skoðun á klámi og öllu því tengdu. Ræðum um klám, "ethical" klám, OnlyFans og fleira. Njótið vel!

Þáttur 8. - Tvíkynhneigð 07 Aug 2025

Í þætti 8 förum við yfir tvíkynhneigð og þá aðallega yfir tvíkynhneigð karla enda er það miklu meira taboo heldur en tvíkynhneigð hjá stelpum. Virkilega áhugaverður þáttur að okkar mati og er þetta málefni sem við höfum ekki mikið heyrt rætt um. Þarft málefni og vonandi eru einhverjir þarna úti sem tengja við þetta. Njótið vel!

Þáttur 7. - Threesome / trekantur 31 Jul 2025

Í þætti sjö förum við yfir eina ákveðna fantasíu....... algengasta fantasían meðal karlmanna en ekki kvenna sem er áhugavert! Sú fantasía er threesome eða trekantur eða þríleikur eða hvað þú vilt kalla það :) Við förum yfir okkar reynslu og tölum líka aðeins um throuple tímabilið okkar, það var lærdómferli! Vonandi hafið þið gaman að.

Þáttur 6. - Fantasíur 24 Jul 2025

Í þætti 6 tölum við um fantasíur og allt sem fylgir þeim. Vel djúsí þáttur! Hlökkum til að heyra ykkar fantasíur!

Þáttur 5. - Swing / SDC 18 Jul 2025

Í fimmta þætti ræðum við Swing eða "lífstílinn" eða "rólusamfélagið" eða hvað þú vilt kalla þetta. Förum yfir okkar reynslu og þá hluti sem okkur finnst mikilvægir ef þú ætlar að prufa þig áfram í þessum heimi. Vonandi fróðlegt fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á þessu og munið að þið megið alltaf hafa samband ef þið eruð með spurningar eða vangaveltur! Við minnum á að þættirnir okkar eru ekki ætlaðir yngri en 18 ára :)

Þáttur 4. - Kynlífsklúbbar 11 Jul 2025

Í fjórða þætti förum við yfir okkar reynslu af kynlífs eða swing klúbbum. Þetta er umfangsefni sem við finnum oft fyrir að fólk hefur mikinn áhuga á og finnst gaman að forvitnast. Ræðum um okkar reynslu á léttum nótum og hvernig við myndum hanna okkar eigin lúxus kynlífsklúbb ef við myndum opna þannig. Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur.

Þáttur 3. - Opin sambönd 04 Jul 2025

Í þætti þrjú köfum við í opin sambönd, polyamory, swing ofl. og spjöllum á léttum nótum um okkar reynslu af þessu öllu saman. Þetta er skemmtilegt topic sem við munum eflaust ræða um aftur við tækifæri. Vonandi eruð þið tilbúin að stíga út fyrir normið með okkur.

Þáttur 2 - nekt 26 Jun 2025

Í þætti tvö af Taboo förum við í málefni sem er okkur mjög kært - nekt! Af hverju er nekt bönnuð á samfélagsmiðlum? Af hverju er ekki eðlilegast í heimi að vera nakin í saunu? Hvað veldur og eigum við að breyta þessu? Getum við breytt þessu? Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur.

Þáttur 1 - intro 25 Jun 2025

Í fyrsta þættinum af Taboo kynnum við okkur sjálf og hugmyndina á bakvið hlaðvarpið Taboo. Stuttur fyrsti þáttur og er stefnan sett á að vera með þátt vikulega. Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur. Verið velkomin og takk fyrir að hlusta!

Tengd hlaðvörp