Ólafssynir í Undralandi cover

Ólafssynir í Undralandi

Útvarp 101

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Framtíðin er framhjáhald

0:00 0:00

Þættir

Framtíðin er framhjáhald 15 Nov 2026

"Framtíðin er framhjáld" kann að stinga ykkur í augun, kæru hlustendur en framtíðin gæti heldur betur ráðist af framhjáhaldi. Líklega hefur eitt framhjáhald aldrei vegið þyngra en nú allt frá dögum Trojustríðsins! Mælum með hlustun. Elskum ykkur öll!

Pressure is a privilege 08 Nov 2026

Það er margt á dagskránni þennan sunnudaginn hjá Ólafssonum, kæru vinir. Það er eiginlega ekki fræðilegur möguleiki að hægt sé að telja það upp hér. Þið verðið bara að hlusta - og hlustið vel. Við elskum ykkur öll.

Komum Neó heim! 01 Nov 2026

Þáttur dagsins er af óundirbúnu tagi, enda leiddi könnunin góða í ljós að þið saknið slíkra þátta. Þessir þættir hafa tilhneygingu til þess að fara um víðan völl og þar ætti þessi þáttur ekki að gefa neitt ekkert eftir. Svo er stór tilkynning handan við hornið! Munið það bara að vera góð hvort við annað og munið einnig það kæru hlustendur, að við elskum ykkur öll. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ 0:00 Leyndarmál í vinnslu 6:27 Halloween eða öskudagur 11:36 Serrano og Happatreyjur 15:08 Óundirbúnir á ný 20:15 Lækning við öldrun 28:10 Vélmenni á heimilið 35:13 Gervigreindin á hugsanir okkar 41:07 Agentinn hans Tony Robbins 50:54 Teya og RKV Foto 54:59 Kúr og litla skeiðin 1:02:28 Börnin fara sjálf út 1:08:38 Þrýstingur og demantar

Við erum öll á leiðinni á bætur 25 Oct 2026

Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: borgaralaun fyrir 2035. Farið með það á koddan. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ 0:00 Bannaðir á Spotify 3:29 Niðurstöður könnunarinnar 11:49 Serrano-vinningshafinn dreginn 18:50 Hvað eru borgaralaun? 22:57 Covid-samsærið 36:00 Ríkið eða tæknirisarnir? 42:09 Nvidia, álið og Kerecis 59:05 Jóladagatal Happatreyja 1:07:10 Aftur að borgaralaunum 1:13:17 Gefa peningar tilgang? 1:22:58 Neuralink 1:34:26 Spá þáttarins

Ungur að eilífu 18 Oct 2026

Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Söngur og live show 4:40 RKV Foto og Teya 7:54 Veislustjórn og nýtt lén 10:03 UBI kynnt til leiks 11:29 Lyf gegn öldrun 17:10 Fljúgandi bíll frá Teslu 21:23 Verða dýr þunglynd? 28:32 Laxveiði og fiskadráp 35:33 Leikhús, Serrano og Happatreyjur 41:25 Er internetið dautt? 46:18 Ef mannkynið deyr út 53:30 UBI bíður og lokaorð

Margt leynist í regnskóginum 11 Oct 2026

Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort við annað. Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/ Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/ Umræðuefni: 0:00 Seal og könnunin 3:41 Undralandspeysan 8:52 Reykjavík Foto og Happatreyjur 12:59 Pabbi Arons smíðaði stúdíóið 16:14 Slettur og umsagnir 19:39 Ash Dykes í Kongó 23:24 Hættulegustu dýrin 27:35 Frumbyggjar 43:52 Teya og Serrano 48:22 Hvar er Daniel? 53:21 Glötuð þekking 1:03:08 Lísa og gervigreindin

WE ARE SO BACK 04 Oct 2026

Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/

Jólaspecial (ft. Steindi Jr., Stjörnu-Sævar & Teboðið) 14 Dec 2025

Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!

Ólafssynir kveðja (í bili) 31 Aug 2025

Þá er komið að kveðjustund í bili kæru vinir. Ólafssynir þakka fyrir sig. Verið góð við hvort annað og munið að við elskum ykkur öll.

Ólafssynir í næstsíðasta sinn (í bili) 24 Aug 2025

Já kæru vinir. Þið lásuð rétt. Ólafssynir eru á leið í smá frí. Í þessum þætti hleypum við ykkur inn á filterslausan fund um framhaldið þar sem Ólafsdóttir úr Teboðinu kemur einnig við sögu. Segið ykkar skoðun í textaboxi á Instagram því við gætum þurft á ykkar hjálp að halda. Við elskum ykkur öll með tölu.

Margt leynist í loftinu 17 Aug 2025

Hér fáiði sunnudagsþáttinn sem þið hafið svo lengi beðið eftir. Þemað liggur í loftinu, hvort sem það er tengt hræðslu eða geimskipi. Verið góð hvort við annað og munið; Við elskum ykkur öll.

Augnablik í svartholi 11 Aug 2025

Kæru vinir. Enn einn mánudagsþáttuinn. Við afsökum þetta auðvitað og færum ykkur rosalegan þátt að launum. Ekki fara í fýlu út í okkur <3.

Þjóðhátíðarfarsi 01 Aug 2025

Það er komið að verslunarmannahelgi kæru vinir! Að sjálfsögðu verða Ólafssynir á sínum stað í Vestmannaeyjum og við vonumst til að hitta þig!

Djúpríki 28 Jul 2025

Ólafssynir mæta í stúdíó þriðja mánudaginn í röð. Við lofum að gefa út næsta þátt fyrr. Elskum ykkur öll.

Móðuharðindi & Butterfly effect 21 Jul 2025

Gleðilegan mánudag kæru Undralendingar. Hér fáiði einn af gamla skólanum. Takk fyrir að hlusta á okkur.

Bakveikir Ólafssynir 14 Jul 2025

Kæru vinir, sorry hvað við erum seinir á ferðinni þessa vikuna. Við erum bakveikir.

Er erfitt að vera Aronmola? (ft. Ploder, Joey Christ & Teboðið) 04 Jul 2025

Þessi þáttur er eiginlega eintóm sýra frá a-ö. Meiri föstudagsþáttur en sunnudags, svo afhverju þá ekki að gefa hann út á föstudegi? Vonum að þið hlustið til enda. Elskum ykkur öll.

Er þriðja heimsstyrjöld handan við hornið? 29 Jun 2025

Án þess að hljóma eitthvað sérstaklega svartsýnir þá er óneitanlega uppi sú staða að heimurinn er að sturlast. Ólafssynir velta vöngum yfir þessu og stöðu Íslands í allri þessari ringulreið eins og þeim einum er lagið. Athugið að þátturinn er tekinn upp fyrir viku síðan svo margt gæti hafa breyst. Elskum ykkur öll.

Er hægt að vera þynnri? 22 Jun 2025

Þynnka er eitthvað sem mannkynið hefur glímt við frá örófi alda. Ólafssynir líka. Eigið yndislegan sunnudag.

Við erum ekkert nema hormón 15 Jun 2025

Hormón er eitthvað merkilegasta fyrirbærið þarna úti og býður upp á fjöldan allan af kanínuholum. Ólafssynir féllu ofan í eina þeirra en eftir hlustun á þáttinn ættuð þið að vera sannfærð um að við lifum í sýndarveruleika.

Takið vítamínin ykkar 08 Jun 2025

Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá vítamínum yfir í kynlíf. Ekki missa af Undralestinni þennan sunnudaginn kæru vinir.

Fan theories 01 Jun 2025

Hér fáiði nokkrar kanínuholur kæru hlustendur. Gleðilegan sunnudag!

Ye, gyðingar & einangrun mannskepnunnar 25 May 2025

Það var nóg á prjónunum hjá þeim Ólafssonum í þætti dagsins eins og venjulega. Verið góð hvort við annað.

San Fran Eurovision 17 May 2025

Hér fáiði þátt á laugardegi í tilefni af Eurovision kæru vinir. Njótið kvöldsins og munið að vera góð við hvort annað.

Kvíðacastið 11 May 2025

Já kæru vinir. Kvíðinn kemur og kvíðinn fer. Kvíðinn kemur aftan að manni þegar síst skyldi og hlífir engum. Þessi þáttur fjallar þó um alls konar og er mjög skemmtilegur. Fleira var það ekki.

Hugsanalestur 04 May 2025

Nýverið kom upp sú hugmynd hvort einhverfir byggju yfir þeim hæfileikum að geta lesið hugsanir. Að sjálfsögðu er þetta kenning á þessu stigi en hvað vitum við? Getur verið að því einhverfari sem manneskja er því líklegri sé hún til að geta lesið hugsanir? Sjáum hvað setur.

Djúpar spurningar 27 Apr 2025

Í þætti dagsins förum við á dýpið og spyrjum okkur spurninga sem fæstir spyrja sig. Munið það þó, gott fólk, að við eigum öll okkar sannleik. Eigiði yndislega viku.

Krýsuvík vaknar (Fall íslenskrar siðmenningar) 20 Apr 2025

Hélduði að við værum hættir með dómsdagsspár? Aldeilis ekki. Það vill svo til að Krýsuvíkureldstöðin hefur legið í dvala í um 900 ár og gárungar tala nú um að hún sé komin á tíma. Hvað það mun þýða fyrir borgarbúa er erfitt að segja en í þættinum gera Ólafssynir sitt besta í sviðsmyndagreiningu á þessum ógnvænlega atburði.

Dirty gervigreind 13 Apr 2025

Kæru vinir nær og fjær! Við óskum ykkur gleðilegs sunnudags og færum ykkur þennan þátt úr smiðju Undralandsins á silfurfati. Verði ykkur að góðu og njótið dagsins.

Aron svarar spurningum úr Ungfrú Ísland 06 Apr 2025

Það var góð orka í Undralandinu í dag þar sem ýmsar umræður áttu sér stað. Aron spreytir sig m.a. á spurningum úr Ungfrú Ísland, en það er vægast sagt ólíklegt að hann muni stíga á svið í síðkjól í bráð. Eigiði dásamlegan sunnudag elsku vinir og munið að vera góð hvort við annað.

Eftirsjár & mýtur 30 Mar 2025

Gleðilegan sunnudag gott fólk. Ekki láta eftirsjá vera hluti af þínu lífi. Ekki heldur trúa öllu sem þú heyrir. Fleira var það ekki frá Ólafssonum, nema það sem kemur fram í þættinum.

Velmegun okkar byggir á þrælum fortíðar 23 Mar 2025

Já kæru hlustendur, í dag bjóðum við upp á 52 mínútur af heilaleysi, en aftur á móti áhugaverðum umræðum um byggingar, þrælahald og margt fleira. Hafið það náðugt þennan sunnudaginn.

Einræðisherrar: Napóleon (Ásamt Nilla og Gunnari Smára) 16 Mar 2025

Þeir mættu til okkar tveir helstu sérfræðingar landsins í Napóleon fræðunum, þeir Níels Thibaud og Gunnar Smári. Þeir hafa unnið hörðum höndum að uppsetningu á Níels er Napóleon undanfarið og koma því glóðvolgir í Undralandið. Þessi þáttur er sá fyrsti í röðinni "Einræðisherrar" en við munum koma til með að fá fleira skemmtilegt fólk til að ræða við okkur um helstu einræðisherra mannkynssögunnar.

Frægðin verður mörgum að falli 09 Mar 2025

Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Við Ólafssynir færum ykkur 155.þátt Undralandsins. Í þættinum ræðum við stórleikara, óskarinn, minnisglöp og fleira skemmtilegt. Verið góð hvort við annað.

Draugar, álfar og óendanleiki 02 Mar 2025

Það var ýmislegt sem kom til umræðu í þætti dagsins eins og titill þáttarins segir til um, en líklega var óvæntasta uppákoma þáttarins sú að það færðist til hljóðnemi í stúdíóinu þegar að talið barst að draugum. Ekki missa af þessum, kæru Undralendingar!

AK special X Egill Ploder 23 Feb 2025

Þeir Ólafssynir voru á ferð og flugi um helgina ásamt Agli Ploder, góðvini þáttarins.

Við lifum í hermi 16 Feb 2025

Já kæru hlustendur! Það getur eiginlega ekki annað verið en að við séum bara dýr á tilraunastofu einhversstaðar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það eru allar líkur á því að við munum komast að því í náinni framtíð og þá verður það væntanlega skammtatölvan sem mun leysa það vandamál. Spurningin er hins vegar sú hvað í fjandanum við gerum þegar við áttum okkur á því að við lifum í hermi?

Face your fear 09 Feb 2025

Já kæru Undralendingar - mætið óttanum ykkar. Eigið yndislega viku!

Vertu hvatvís! 02 Feb 2025

Kæru Undralendingar! Í þætti dagsins mæta Ólafssynir með skottið á milli lappanna og útskýra Live-show havaríið. Hvatvísi gæti spilað þar hlutverk en svo fer umræðan á einhvern furðulegan hátt út í völd. Góðar stundir.

Persónulegar nótur 26 Jan 2025

Já þeir eru mættir aftur í stúdíóið, ferskari en aldrei fyrr. Þeir fara á persónulegu nóturnar í dag og ræða fæðingarsögu Arnarssonar og ræða svo Donald Trump. Eigið góða viku kæru Undralendingar

Sveppi í Undralandi: Njáluslóðir - Seinni hluti 19 Jan 2025

Í þessum seinni hluta færist fjör í leikinn.

Sveppi í Undralandi: Njáluslóðir - Fyrri hluti 12 Jan 2025

Í þessum fyrri hluta Njáluslóða förum við aftur í tímann með Sveppa.

Áramótaheit & Manifestation 05 Jan 2025

Fyrsti þáttur ársins er ekki af verri endanum. Það er það eina sem þið þurfið að vita. Það er okkar einlæga ósk að þú náir að manifesta velgengni á árinu. Gleðilegt nýtt ár elskurnar!

Saga Garðars í Undralandi 29 Dec 2024

Gleðilega hátíð kæru hlustendur! Saga Garðars kíkti við í Undralandinu til að taka upp síðasta þátt ársins með okkur. Í þættinum förum við um víðan völl en þó er þema dagsins að sjálfsögðu áramót en Saga hefur sjálf komið að nokkrum áramótaskaupum sem hafa ekki klikkað. Sannkölluð áramótaveisla í Undralandinu. Verið góð við hvort áfram á nýju ári.

Hálfgerð Jóla-nostalgía (ft. Jóhannes Haukur) 22 Dec 2024

Já þið lásuð rétt kæru hlustendur. Nú fara jólin að nálgast og að sjálfösgðu hentum við í jóla-nostalgíu eins og fyrri ár. Eins og oft vill þó gerast þá fór umræðan um víðan völl og meðal annars poppaði Jóhannes Haukur upp hjá okkur. Gleðilega hátíð kæru hlustendur og hafið það huggulegt yfir hátíðarnar!

Shrinkflation jól 15 Dec 2024

Shrinkflation er eitt af verkfærum djöfulsins og Ólafssynir segjum henni stríð á hendur. Annars viljum við óska ykkur kósý jóla og munið að vera góð við hvort annað, alltaf.

Egill Ploder í Undralandi: Kviss skandallinn (The men tell all) 08 Dec 2024

ATH að þessi þáttur inniheldur upplýsingar um nýjasta Kviss þáttinn á Stöð 2. Egill mætti í Undralandið í sérstakan "The men tell all" þátt þar sem Kviss skandallinn var krufinn til mergjar.

Stjórnmál á mannamáli með óháðum Snorra Mássyni 28 Nov 2024

Snorri Másson er góðvinur Undralandsins og því fengum við hann til að fara yfir stefnur og strauma í stjórnmálum á mannamáli. Því verður þó ekki leynt að drengurinn er sjálfur í framboði og til að gæta hlutleysis var inngripum beitt ef umræðan varð of fjólublá. Úr varð þáttur sem mun að öllum líkindum gera þig, kæri hlustandi, fróðari fyrir kosningar á laugardag og vonandi samræðuhæfari í næsta matarboði!

Steindi Jr. í Undralandi: Stjörnuvættir - 3.hluti: Frelsislogi 24 Nov 2024

Hér fáiði 3.hluta af þriggja hluta seríu þar sem við tökumst á við geimveruinnrás á jörðina ásamt Steinda.

Steindi Jr. í Undralandi: Stjörnuvættir - 2.hluti: Frá glötun til vonar 17 Nov 2024

Hér fáiði 2.hluta af þriggja hluta seríu þar sem við tökumst á við geimveruinnrás á jörðina ásamt Steinda.

Tengd hlaðvörp