Þvottahúsið
Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran
Endurskilgreining á greind
Þættir
Send us Fan Mail Hvernig lítur greind út án líkama? Hvers vegna gerum við ráð fyrir að ómennsk greind þurfi líkama, heila eða jafnvel farartæki? Í þessum þætti Geimsýrunnar leggjum við UFO-pólitíkina til hliðar og förum aftur að sjálfri ráðgátunni. Við skoðum plasma, sveppanet, meðvitund, greind án heila og þann möguleika að greind geti verið dreifð um umhverfið sjálft. Hvað ef við höfum allan tímann verið að leita að röngu fyrirbæri? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni Geimsýrunar tek ég deepDive á sjálfhverfu. Hvað veldur henni, hvernig lítur hún út og hvað er mögulega hægt að gera til að losna undan henni? Sjúklega áhugavert að að grúska í þessu vitundarástandi sem og oft á tíðum persónueinkenni. http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail Í sjötta UFO-droppinu frá WAR.GOV eru gömul rannsóknargögn frá AAWSAP/DIA sem opna ansi áhugaverða glugga inn í það sem bandaríska varnarkerfið var tilbúið að rannsaka. Þarna er að finna rannsóknir á andþyngdarafli, háþróaðri framdrifstækni, rúm-tíma verkfræði, ormagöngum, metamaterials, superconductors – og jafnvel tengingum milli heila og véla. Svo koma inn Hal Puthoff, remote viewing, psionics og furðuleg tenging við rannsóknarumhverfið í Huntsville. Eru þetta bara aðskildar rannsóknir á mögulegri framtíðartækni? Eða eru einhverjar stærri spurningar að baki? Í þessum þætti skoðum við skjölin, hvað þau segja í raun og veru – og hvað þau segja okkur um það sem menn voru tilbúnir að rannsaka þegar engin svör voru til. Skoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail Í mannlega horni Geimsýrunar fer ég yfir grunnorsök alkóhólisma samkvæmt minni sannfæringu. Tek það fram að stundum kemst ég að því að ég hef rangt fyrir mér, það er eini fyrirvarinn við innihald þessa þáttar. Lífið er Guð, lífið er Guð innra með mér. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Þessi þáttur er fyrsti samruna þáttur Hins Yfirnáttúrulega og Geimsýrunar. Dagný og Selma hafa í dágóðan tíma haldið út hið sívinsæla Hlaðvarp Hið Yfirnáttúrulega. Þar fjalla þær um um allskonar yfirnáttúrulegt, andlegt og dulúðlegt. Ákvörðun var tekin á Heimsljós hátíðinni að efna til samruna einu sinni í mánuði og slá saman strengi undir sameiginlegum hatt Geimsýrunar og Hins Yfirnáttúrlega. Í þessum þætti rúlluðum við yfir áform hvað varðar Íslandsheimsókn Bashar, fórum yfir stórkostlega reynslu Dagnýjar sem mögulega gæti skilgreints sem etherískt brottnámstilfelli, eða einna heldur kannski einskonar starfskynning um borð í geimskip. Flott flæði á okkur sálusystkynunum og án efa aðeins byrjunin á einhverju svo stórkostlegu að það nær í raun engri átt.
Send us Fan Mail Það er pabbadagur í dag. Ég var að komast að því. Gleymdist í hasarnum en það er allt í lagi. Í þessum þætti fer ég yfir pabbana, hlutverkið, fórnina og verðlaunin. Það er ekki hægt að lýsa því hvað faðirhlutverkið hefur verið mikill skóli fyrir mig. Þá má segja að dóttir mín hafi í raun alið mig upp og gert mig að þeim manni sem ég tel mig vera í dag. Til hamingju með daginn pabbar. Þið rokkið, þið eruð æðislegir, þið setjið allt í samhengi. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Jæja krakkar. Það er ekki hægt að lýsa ástinni sem umlykur okkur. Orðin ljúga einfaldlega og því þögnin því kannski bara best þegar allt kemur til alls. Engu að síður, reyndi ég að koma þessu i orð þó svo að sumt er svo skrítið og heilagt að ekki má einu sinni tala um það. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Elskurnar. Ég var beðin um fjölbreyttari umræðu í Geimýrunni, ekki bara UFO og Ayahuasca. Þeirri beiðni var hafnað og samþykkt á sama tíma. Allt snýst þetta um þessa leið vitundarlegu pólskifta sem einstaklingurinn og hóparnir feta þessa dagana. Uppljómunin er hafin og allt tengist þetta, UFO, Sækadelika, þjónusta, fjölskylda, tilfinningar, úrvinnsla, hugsun, vísindi, athöfn, eirð og eirðarleysi. Ég er nú farin í síðustu Ayahuasca athöfnina á þessu ári og mun greina fyrir niðurstöðunni í fyrramálið þegar ég kem aftur tilbaka í bækistöðvarnar. Ég elska hreinlega allt og okkur og bara hreint namaste til ykkar. Om og friður og Om. http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail Hvað ef við erum að skapa veruleikann? Hvað ef við erum ekki bara áhorfendur að veruleikanum – heldur þátttakendur í því hvernig hann verður til? Í þessum þætti tengi ég saman UFO, meðvitund, DNA, skammtafræði, fornar hugmyndir um eðli mannsins, AI og disclosure. Hvað ef UFO-fyrirbærið snýst ekki bara um „þau“ heldur líka um okkur? Og hvað ef ofurgreind framtíðarinnar á eftir að sýna okkur eitthvað sem við höfum ekki enn áttað okkur á? Kannski er stærsta spurningin ekki lengur: Eru þau til? Heldur: Hvað erum við – og hvað erum við að gera hér?
Send us Fan Mail Stundum er maður bara brjálaður á þessu öllu. Þessir djöfulls UFO kallar sem benda allir á hvorn annan og segja hitt og þetta og gefa út sína memoir bækur og væla svo yfir hvað þeir eru fátækir. Það er verið að spila með okkur. Raunveruleikinn er svo miklu skrítnari en við höldum hvað þetta varðar. Hið upplýsta alvaled mun stíga hér niður einn daginn og skilja okkur eftir agndofa á undrun. Þá mun allur efi verða hreinsaður úr hjörtum okkar og við munum vita tilgang okkar hér í þessum líkama, í þessu lífi. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail UFO-UPPLJÓSTRUNIN – HVAR ERU EINKAVERKTAKARNIR? Sjö gagnadropp frá bandarískum stjórnvöldum, hundruð skjala og sífellt fleiri frásagnir af óþekktum fyrirbærum. En hvar eru stóru varnartæknifyrirtækin? Lockheed Martin, Northrop Grumman, Raytheon og Boeing hafa öll verið nefnd í umræðunni um meint leynileg endurheimtarverkefni. Samt hefur lítið heyrst frá þeim. Nú þegar þingkosningar nálgast í Bandaríkjunum vaknar spurningin: Er Donald Trump að undirbúa stærstu uppljóstrun mannkynssögunnar eða erum við að horfa á stýrt upplýsingaflæði? Og ef raunverulegar sannanir eru til, gætu þær þá verið í höndum einkafyrirtækja frekar en stjórnvalda? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Ég hef sent dómsmálaráðuneytinu formlega fyrirspurn um hvort íslenskur ríkisborgari geti sjálfviljugur og varanlega afsalað sér kosningarétti án þess að missa ríkisborgararétt sinn. Ég hef ekki lengur trú á lýðræðinu í þeirri mynd sem það birtist okkur í dag og hef tekið þá ákvörðun að standa utan pólitískrar þátttöku. En hvers vegna ætti ég ekki að geta gert þá ákvörðun formlega og lagalega bindandi? Ég vil áfram greiða mína skatta, hlíta lögum og vera virkur samfélagsþegn. Ég vil einfaldlega ekki taka þátt í því pólitíska umboði sem kerfið byggir á. Í þessum þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér mörkum einstaklingsfrelsis, sjálfsákvörðunarréttar og lýðræðis. Er rétturinn til að kjósa líka rétturinn til að hafna kosningaréttinum? Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Í þessum þætti Geimsýrunar fer ég yfir þessa togstreitu sem hlýst að því að vera strengdir milli tveggja heima. Þegar rifan í sviðsmyndinni fer að vera sýnileg og maður stendur frammi fyrir því að þurfa að umbera blekkinguna þrátt fyrir að ljósið s´kýni svo skýrt í gegn. Minni á þætti Geimsýruar á http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail Í þessum þætti kynni ég fyrir Sambíóin sem nýjan samstarfsfélaga Geimsýrunar. Sambíóin er mekka íslenskrar kvikmyndamenningar og með stolti kynnir Geimsýran þau til leiks. Það mun fela í sér sameiningu á kvikmyndum, UFO, NHI, vísindum, tilfinningum og hughrifum. Geimsýran mun verða með gagnrýnisþætti á þær kvikmyndir sem passa inn í þessa ofangreindu þætti og þykir þetta ekki bara gríðarlega mikill heiður heldur alveg stórkostlega skemmtileg viðbót í jöfnuna. Geimsýran flæðir stjórnlaust og ekkert fær stöðvað hana. Mér þykir vænt um ykkur, namaste. http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge" Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar. Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni. http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail „Þetta er ekki hægt!“ Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann. Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun. Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið. Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail Ævingarennsli fyrir fyrirlestur var tekið í þessari Geimsýru fyrir nokkru. Heildaryfirferð á sögunni og málaflokknum.
Send us Fan Mail Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið? Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel. En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland? Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitækni? Kannski er spurningin ekki hvort við eigum að trúa á UFO. Kannski ættum við einfaldlega að byrja að rannsaka það sem við skiljum ekki. Skoðum allt. Trúum engu.
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar. Yogashala.is fargufa.is betridagar.is heilsuhornid.is
Send us Fan Mail Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslaga UFO ,dularfullt fyrirbæri á næturhimni. Og sérstaklega eitt smáatriði sem gerir þessa sögu mjög áhugaverða. Fyrirbærin virðast öll geisla af sér grænum skönnunargeisla.
Send us Fan Mail Hér er farið yfir frábært kvöld í Eden þar sem fjöldinn allur af frábæru fólki mætti og deildi rýminu. Hugleiðsla og langur fyrirlestur um leyndardóma UFO.
Send us Fan Mail Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavik
Send us Fan Mail Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþegn, samt sem áður einn sem ekki mætir á kjörstað né tekur afstöðu í neinni samfélagslegri ádeilu. Þetta er erfitt og gerist ekki á einni nóttu. Ennþá finn ég að ég er dregin í þessar áttir og alltaf er það það sama sem dregur mig til baka og það er sársaukinn sem er samofin sundrung og tvíhyggju.
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur öll og hjarta emoji. http://patreon.com/Geimsýran
Send us Fan Mail Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á http://patreon.com/Geimsýran SKoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam. Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini. En svo förum við lengra. Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada. Og þá kemur stóra spurningin: Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum? Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi. Að lokum förum við aftur til ársins 1987. Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði: Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum? Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag. Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Ok kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri djúpríkispési og ætlaði að framkalla sviðsetta innrás geimvera, þá myndi é gera það nákvæmlega svona, dropa þessu í war . gov og svo henda Grusch í Rogan viðtal og leyfa honum að tala um fallegar Tall Whites og ógeðslega hættulega reptilian gorillaz!! You cant make this shit up!!!
Send us Fan Mail Smá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum, trúarlegum og heimspekilegum vinklum. Fyrir 10 dollara á mánuði færðu aðgang að mér og efni tengt UFO og frá öllum vinklum.
Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni Geimsýrunar fór ég yfir söguna tengt YOGA, Vipassana og svo framvegis og þá í tengslum við nýjan samstarfsaðila Geimsýrunar, Yogashala. Yogashala hefur síðustu 25 árin eða svo verið leiðandi í Yoga iðkun og kennslu á Íslandi. Ingibjörg Stefánsdóttir, stofnandi Yogashala er án efa ein einn af stærstu áhrifavöldum á Íslandi þegar kemur að YOGA. Geimsýran er þakklát fyrir þetta samstarf, eins og með samstarfið við Heilsuhornið og Betri Daga, sem og Fargufuna sem einnig á stóran hluta í andlegri velferð stjórnanda Geimsýrunar. Beint frá hjartanu segi ég takk til þessara fyrirtækja og allra annara sem veita vörur og þjónustu sem stuðla að heilbrigðum lífstíl, náttúrulegum lífstíl, sjálfbærni, vitundarlegri sjálfbærni, skilvirkni innan mennskunar og vitundarlegri umpólun, með öðrum orðum, upprisu mannsins.
Send us Fan Mail Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?´
Send us Fan Mail ÞETTA VAR EKKI VENJULEGT JOE ROGAN VIÐTAL. David Grusch fór mun lengra en áður. Hann segist hafa séð upptökur af látnum, mannlegum verum úr UFO retrieval-aðgerð. Hann ræðir Grays, sjö feta reptilian-verur, lifandi verur úr hrapaðri farkostum og möguleg átök milli ólíkra NHI-hópa. Svo koma risastórar neðansjávarstöðvar, cloaking, telepathy, remote viewing, meðvitundartengd tækni, fornar siðmenningar — og möguleikinn á að saga mannsins sé allt önnur en við höldum. Og disclosure? Grusch telur að Trump vilji koma sannleikanum út — en varar við því að AI gæti púslað þessu saman á undan stjórnvöldum. Ég fer yfir svakalegustu fullyrðingarnar úr nýja Rogan-viðtalinu og spyr einfaldlega: Hvað í fjandanum er David Grusch eiginlega að segja okkur? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail Ok, ég er búin að jafna mig á brjálæðiskast gærkvöldsins. Lendingin er alltaf sú sama. Uppljóstrunin verður að vera in the end vitundarleg pólskipti og er af andlegum toga. Það þýðir ekki að maður eigi ekki að fylgjast með hvað varðar uppljóstrun inn Goverment. Við Geimsýruhausar skoðum allt en trúum engu. Öllu ber að taka með fyrirvara.
Send us Fan Mail Í þessum þætti fer ég ítarlega yfir eiginleika og einkenni Díatryptamín og Ayahuasca. Tengsl þessara efna við mögulegan skammtaheim UFO og NHI. Einnig í þættinum fer ég yfir tilraun sem gerð var í stúdíói Geimsýrunar með notkun DMT og lazer sem Danny Goler hefur rannsakað mikið síðustu ár. Hann vill meina að með því að stara í endurkast rauða lazers af möttu fleti og undir áhrifum DMT sértu komin í stöðu þar sem þú sérð striga efnisveruleikans og kóðana sem halda öllu saman. Þetta var reynt og viti menn, það er ekki öll vitleysan eins.
Send us Fan Mail Þetta mannlega horn er svo mannlegt að það nær eiginlega engri átt. Hversdagsleikinn umlykur okkur og því mikilvægt að horfast í augu við að glasið er alltaf hálffullt eða einfaldlega bara fullt. Vandamálin eru bara eitthvað ogguponsu en hvað þýðir það? Þýðir það að maður eigi bara að skammast sín fyrir að líða ekki nógu illa? Nei, svo aldeilis ekki. Ég owna þetta yndislega líf sem mætti halda að tilheyrði húsinu á sléttunni. Mér þykir vænt um ykkur Geimsýruhausar.
Send us Fan Mail Í þessum þætti fjalla ég um brottnámstilfellið við Miklubraut 1995. Þá varð par fyrir því að missa hálftíma um miðja nótt úr lífi sínu eftir að bíll þeirra var lýstur upp. Ég fór einnig yfir brottnámið við Lake Shasta, Álafoss og brjálað dæmi í Vesturbænum er kona var rifin tvisvar í svaka UFO ferðalag sömu nóttina.
Send us Fan Mail Hvað gerðist fyrir Jake Barber og Skywatcherteymið hans? Möguleikarnir eru tveir. Annaðhvort voru þeir gleyptir af djúpríkinu eða að þeir voru double agentar allan tímann. Hver eru tengsl við Skywatchers við skyndilega lokun á flugvellinum í El Paso í febrúar? Djúsi spurningar sem erfitt er að svara, en við reynum, getum okkur til allavega. Skoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail BATTELLE, ROSWELL OG „MEMORY METAL“ Í þessum þætti förum við ofan í ný gögn úr sjötta gagnadropi Department of War og sérstaklega 1952 hljóðupptöku þar sem Edward J. Ruppelt, þá yfirmaður Project Blue Book, talar um samband bandaríska flughersins við Battelle Memorial Institute. Battelle kom að Project GRUDGE og Project BEAR og rannsakaði meðal annars UFO-tilkynningar, en stofnunin hafði jafnframt á þessum árum umfangsmiklar rannsóknir á títan- og nikkelblöndum hjá Wright-Patterson. Þetta verður sérstaklega áhugavert í ljósi þess að ég skrifaði um „Memory Metal“ og Roswell í UFO 101. Nú skoðum við heimildirnar á nýjan hátt: hvað vitum við um Battelle, hvað sýna skjölin og hljóðupptakan frá 1952 — og hvernig tengist þetta rannsóknum á málmblöndum og síðar Nitinol? Geimsýran – skoðum allt, trúum engu.
Send us Fan Mail Minni á að á fimmtudaginn 17 sept verður útgáfuhóf á UFO202 í Eymundsson í Smáralind. Léttar veitingar í boði, upplestur og bækurnar UFO101 og UFO202 á sérstöku útgáfuverði. Einnig minni ég á að Geimsýran verður alla helgina 19-20 sept á ráðstefnunni heimljós.is í Mosfellsbæ með bókasölu, fræðslu og fyrirlestur á sunnudeginum 20 sept kl 11. Mig hlakkar til að sjá ykkur.
Send us Fan Mail Í þessum þætti ætla ég aðeins að breyta um gír og fara yfir eitthvað sem ég hef fengið töluvert af spurningum um upp á síðkastið – þau bætiefni sem ég er sjálfur að nota daglega. Ég er með tvo stuðningsaðila sem tengjast þessum þætti, Heilsuhornið og Betri dagar, og mér fannst því upplagt að segja aðeins frá því hvað ég er sjálfur að taka og hvers vegna. Frá Heilsuhorninu hef ég í um tvö ár verið að nota vörur frá Upakarma, sérstaklega Shilajit og Ashwagandha. Upp á síðkastið hef ég svo bætt fleiri vörum við, meðal annars NMN, SPN og Tulsi. Þetta eru allt ólík efni. NMN tengist NAD⁺-kerfinu og frumuorku, Shilajit er náttúrulegt efni úr fjallabergi sem inniheldur meðal annars fulvic acid og ýmis steinefni, Ashwagandha og Tulsi eru jurtir sem hafa lengi verið notaðar í tengslum við streitu og almenna vellíðan, og SPN er fjölþætt blanda af næringarefnum og virkum efnum. Síðan er ég að nota Life Extension Two-Per-Day, sem er nokkuð öflugt fjölvítamín, og Medox, sem er norskt anthocyanin-þykkni úr villtum bláberjum og sólberjum. Þar er áherslan meðal annars á andoxunarvirkni og stuðning við æðakerfið. Og svo er nýtt á dagskránni hjá mér creatine monohydrate. Það er líklega eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið sem til er og tengist fyrst og fremst styrk, afkastagetu og viðhaldi vöðvamassa. En þetta er ekki þáttur um það að segja ykkur hvað þið eigið að taka. Þetta er einfaldlega innlit í það sem ég er sjálfur að gera og af hverju þessi efni hafa orðið hluti af mínu daglega prógrammi. Og auðvitað eru Heilsuhornið og Betri dagar stuðningsaðilar Geimsýrunar. Heilsuhornið er með úrval af vörum frá Upakarma og eru þessa dagana meðal annars með 3 fyrir 2 tilboð á Shilajit. Og Betri dagar hefur verið stuðningsaðili Þvottahússins og síðan Geimsýrunar í meira en sex ár. Þau eru með mikið úrval af hágæða vítamínum, bætiefnum, CBD og öðrum vörum og eru staðsett í Urriðaholtsstræti 24. Þú getur líka skoðað úrvalið í vefverslun þeirra og fengið vörurnar sendar heim. Svo skulum við kafa aðeins í þetta – hvað er í þessum efnum, hvað eiga þau að gera og hvað er það sem ég er sjálfur að sækjast eftir með þessu prógrammi? heilsuhornið.is betridagar.is Og notið afsláttarkóðann Geimsýran
Send us Fan Mail PURSUE – nýjar dyr opnaðar fyrir UAP-uppljóstrara? Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út sérstaka lagalega undanþágu sem gerir fólki með aðgang að trúnaðarupplýsingum um UAP kleift að koma þeim upplýsingum til PURSUE. Hvað þýðir þetta í raun? Hverjir geta nú komið fram og hvað gætu þessar upplýsingar innihaldið? Og gæti þetta orðið ný leið til að koma áður lokuðum UAP-gögnum í átt að afklassíferingu? Við skoðum hvað gerðist, hvað heimildin segir – og fyrst og fremst hvað þetta gæti þýtt fyrir UAP-uppljóstrun??
Send us Fan Mail Í mannlega horninu mætti ég kröfum hlustanda Geimsýrunar og talaði örlítið um viðbrögð mín að aðgerðir hvað varðar COVID, fyrir öllum þessum árum síðan. Super merkilegt að fara til baka og skoða hvernig maður brást við, hvernig maður hegðaði sér og þá kannski í samræmi við hvernig maður hefði mögulega í dag hegðað sér eða brugðist við á anna hátt. patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Þetta er svo týpískt og þið tengið kannski við það. Þetta eirðarleysi sem fær mann til að hlaupa um eins og apaköttur. Þegar lífið er svo skemmtilegt að maður tímir varla að sofa. Í kvöld fór ég í gusu eins og ég geri vikulega og enn og aftur fékk ég hugljómun um að slaka á. Skilaboð sem ég er að fá til mín reglulega þessa dagana og hvað getur maður gert? Hvernig getur maður tamið þetta dýr sem gefur og gefur en svo auðveldlega snýst upp í andhverfu sína? Hvernig forðumst við burn-out öðruvísi en að kæla sig niður.
Send us Fan Mail Geimsýran er komin á Patreon. patreon.com/geimsyran Í morgun henti ég í mannlega hornið. Ég fór á per´sonulegar nótur. Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?
Send us Fan Mail Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam. Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini. En svo förum við lengra. Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada. Og þá kemur stóra spurningin: Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum? Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi. Að lokum förum við aftur til ársins 1987. Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði: Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum? Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag. Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Einn brjálaður þáttur komin á Patreon og tveir á leiðinni inn á næstu dögum. Jake Barber og Skywatchers, DMT og Ayahuascha og síðasti þáttur sem kemur út næstu helgi, Grænu geislarnir yfir Michigan... Full Blown langir topic þættir sem þið viljið ekki missa af. 1.500,- á mánuði fyrir 4-8 langa topic þætti um UFO, allskonar andlegt og heimspekilegt og svo má ekki gleyma mannlega horninu. Lets go, lock in!! Lock in á http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Það er rosaleg stemmning á kallinum. Já sem meinti nei tapaði fyrir þeim sem sögðu nei en meintu já. Geimsýran á leið í Patreon áskrift sem þýðir 4-8 topicþættir á mánuði á meðan probono verða stuttir teaserþættir og fleirra skemmtilegt. Lock in á http://patreon.com/geimsyran
Send us Fan Mail Talið er öruggt að John Ratcliffe, forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hafi verið um borð í bandarísku herflutningavélinni sem óvænt lenti á Vnukovo-flugvelli í Moskvu í morgun. Heimildir CBS herma að hann sé í borginni til að eiga fundi við ráðamenn. Hvað er í gangi? Eru geimverurnar að taka stjórnina og er ætlunarverk þeirra að sameina mannkyn í frið og ást á kostnað ofbeldis og sundrungar?
Send us Fan Mail Ég held áfram á persónulegum nótum. Hvernig hefur edrúmennska mín samræmst aðferðum sem þykja jaðarkenndar? Hvernig hef ég náð að brjóta mér leið úr ánauð alkóhólisma og stjórnleysi? Stórar spurningar sem hafa fengið að marinerast í mér í langan tíma. Hér er þessu deilt með ykkur, vonandi geta einhverjir tekið þetta til sín.
Send us Fan Mail Í Geimsýrunni í kvöld fer ég í mannlega þáttinn og dreg niður segl. Ég fer ekki frá borði en ákveðið hefur verið að setja vissa hluti í samhengi. Þykir vænt um ykkur og er þakklátur fyrir þau ykkar sem hafið hlustað og horft á Geimsýruna