Sérstök endalok Hamborgarafabrikkunnar
Þættir
Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Skatturinn og lögreglan mættu á veitingastaðinn og innsigluðu hann. Almennt séð fara skatturinn og lögreglan ekki í slíkar aðgerðir gegn veitingahúsum og öðrum fyrirtækjum nema að þau skuldi skatta eða opinber gjöld, Hvað gerðist eiginlega hjá Hamborgarafabrikkunni og af hverju lokaði staðurinn? Athygli vekur að fyrri eigendur veitingastaðarins seldu hann til nýrra eigenda í mars eftir að hafa skilað tapi árið á undan og eftir að hafa reynt að selja staðinn um hríð. Nýi eigandi staðarins var sjávarútvegsfyrirtæki með enga reynslu á veitingamarkaði og hætti framkvæmdastjóri nýju eigenda Hamborgarafabrikkunnar hjá staðnum í byrjun júní. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt líf. Fjarskiptastofa viðurkennir að samband gæti hafa versnað sumstaðar en batnað annarstaðar. Stofnunin hefur takmarkaðar heimildir til inngripa. Niðurstöður umfangsmikilla mælinga á útbreiðslu farsímasambands liggja fyrir í byrjun desember.
Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Baldvin Þorsteinsson, forstjóri og annar stærsti hluthafa Samherja, svarar spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra. Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin væru orðin stærstu hluthafar Samherja. Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum á þeim tíma og hafa verið sagðar margar framhaldsfréttir um þau síðastliðin ár. Helsti kjarninn í umræðunni um viðskiptin árið 2020 var að þau snérust um kvóta og kvótakerfið og hvernig fyrirtæki sem ráða yfir þessari sameign þjóðarinnar fara á milli kynslóða. Viðskiptin hafa farið fram í nokkrum liðum í gegnum árin og er hér reynt að kortleggja heildarumfang þeirra. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku. Þegar litið er til stóru bankanna þriggja sést að þeir skiluðu samanlagt um 79 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Í þætti dagsins er sjónum beint að stöðu og hagnaði bankanna - og deilum um bankaskatt. Rætt er við Snorra Jakobsson, hagfræðing, og Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu, Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði. Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð segir að það sé óvenjulegt fyrirkomulag að til standi að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti og að talsvert hafi verið rætt um málið í sveitarfélaginu. Lækninnn og forstjóri Ríkiseigna segja að ekkert verði af sölu hússins með þessum hætti og að á endanum standi til að selja það með opnum hætti á markaði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins. Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs Ólafssonar í Samskipum á skipafélaginu síðastliðna þrjá áratugi. Upphaflega var Samskip skipadeildin í rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga en fyrirtækið var gert að sérstöku hlutafélagi árið 1991. Eitt af því sem hefur ítrekað komið upp á viðskiptaferli Ólafs Ólafssonar, eftir að hann eignaðist Samskip til að byrja með í gegnum þetta þýska fyrirtæki, eru ítrekuð dæmi um leynd yfir viðskiptum sem hann tengist með eða í gegnum erlenda aðila. Þetta kom meðal upp í viðskiptum hans með Samskip, Búnaðarbankann og í Al Thani-viðskiptunum svokölluðu árið 2008. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Þó mest athygli hafi farið í bókaförgun og ritskoðun í tengslum við útgáfu Thorsarabókarinnar fyrir tuttugu árum, var sjálft efni bókarinnar mun eldfimara. Upplýsingar um falið fé og eignir Kveldúlfsbræðra. Það átti ekki síst við um þann þeirra sem var forsætisráðherra og hafði þvertekið fyrir að hann eða fjölskyldan ættu ólöglegar peningaeignir erlendis. 150 árum eftir að ungur danskur innanbúðardrengur steig á land á Borðeyri við Hrútafjörð og sá þar tækifæri sem fáir aðrir sáu, gætir enn áhrifa Thors og veldis hans á Íslandi. Umsjón: Helgi Seljan
Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni konu sinnar en óskaði í staðinn eftir umfjöllun um sig og son sinn. Þannig breytt kom bókin út. Guðmundur Magnússon hefur nú gefið bókina út í sínu upprunalegi handriti. En hvað var svona viðkvæmt; hver var þessi fyrrverandi eiginmaður, og af hverju var hann myrtur á leið heim til sín eftir klór?
Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við ríkið um rekstur á hjúkrunarrýmunum. Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljóna króna á mánuði fyrir rúmlega 10 þúsund fermetra eða samtals rúmlega 9 milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag Hvernig kom það til að þessi leigusamningur var gerður á þessum tíma? Rætt er Teit Guðmundsson, framkvæmdastjóra Heilsuverndar og eiginmann eins eiganda hússins í Urðarhvarfi, um þennan leigusamning og rekstur hjúkrunarrýmanna. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing, þar sem hún var í opinberum erindagjörðum í vikunni. Rætt er við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.
Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda. Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska efnahagsbrotalögreglan Ökokrim er nú að gera rannsókn á þessu í öllu landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst. Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað í íslensku samfélagi eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur birti fréttaskýringu um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudaginn. Er algengt að menn með fortíð úr undirheimunum starfi við barnavernd á Íslandi? Rætt er um þetta við framkvæmdastjóra barnaverndar Reykjavíkur, Þyrí Höllu Steingrímsdóttur. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar sjá þó margir kosti við sameiningarnar og telja að ef rétt verði farið að geti breytingarnar orðið landsmönnum öllum til góða. Í þætti dagsins verður rætt við dómsmálaráðherra, lögreglumenn og lögreglustjóra og við veltum því upp hvort breytingin feli í sér aukið samstarf og skilvirkni – og hvort hætt sé við að landsbyggðin líði fyrir breytinguna. Umsjónarmaður: Ólöf Rún Erlendsdóttir
Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um einkarekstrarvæðingu á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er meðal þeirra mála sem ratað hafa í fréttir á síðustu vikum. Rætt er um þessa byrjun nýja meirihlutans við prófessorinn Evu Heiðu Önnudóttir sem segir að hún þurfi ekki að koma á óvart og að meirihlutinn þurfi að marka sér stefnu eftir áratuga valdasetu sósíaldemókratískra afla í Reykjavík. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og þarf að fá vinnu- og tekjutap sitt bætt vegna örorku. Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún hafði lent í bílslysi í Reykjavík. Ágreiningurinn í máli snerist um það hvort reikna ætti skaðabæturnar út frá lágmarkslaunum eða meðaltekjum tanntækna en Elva Björk var í því námi þegar slysið átti sér stað. Nítján lögmenn hafa sent erindi um dóminn til dómsmálaráðherra þar sem þeir fara fara fram á að skaðabótalögum verði breytt i ljósi hans. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna.
Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðaeigandi á Íslandi. Bubbi Morthens tónlistarmaður blandaði sér í þessa umræðu og hefur hann sterkar skoðanir á Ratcliffe um hvernig eigi að minnka eða stöðva umsvif hans á Íslandi. Rætt er við Bubba og Gísla Ásgeirsson, talsmann Ratcliffes á Íslandi og framkvæmdastjóra fyrirtækisins Six Rivers, sem hefur allt aðra sýn en Bubbi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir - þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Rætt er við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóra í Fjallabyggð, og Hildigunni H. H. Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar hún var sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Samherji rekur einnig skreiðarþurrkun á Dalvík. Katrín á fyrirtækið á móti eiginmanni sínum. Ástæðan fyrir því að þessi viðskiptatengsl fyrirtækis Katrínar koma fram núna er að deilur hafa staðið yfir um starfsemi skreiðarþurrkunar Samherja á Laugum. Hópur íbúa á Laugum hefur beitt sér fyrir því að fiskþurrkun verði hætt þar vegna umhverfisáhrifa starfseminnar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi starfsleyfi skreiðarþurrkunarinnar úr gildi nú í september. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í þætti dagsins förum við til Frakklands þar sem ekkert lát er á mótmælum og óeirðum. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og Kristínu Jónsdóttur, sem er búsett í París.
Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni. Fjallað er um þennan sögulega ríg á milli framleiðanda Coca Cola og Pepsi á Íslandi og rannsókn Samkeppniseftirlisins á Ölgerðinni. Birt eru viðtöl við Andra Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Ölgerðarinnar, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Önnu Regínu Jónsdóttur, forstjóra CCEP. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að gæta þess að óháðir stjórnarmenn gæti hagsmuna þeirra. En hver skipar óháðu nefndirnar?
Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot. Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta kemur fram í sölutölum frá ÁTVR fyrir síðasta ár. 50,3 prósent af öllum seldum áfengiseiningum sem ÁTVR selur og 47 prósent af öllum seldum lítrum koma frá Ölgerðinni. Er viðskiptasamband Ölgerðarinnar og ÁTVR óeðlilegt eða ekki? Rætt er Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur forstjóri ÁTVR um þetta. Einnig er rætt við Arnar Sigurðsson, vínkaupmann í Santé, um fyrirferð Ölgerðarinnar á áfengismarkaði og innkaupakerfi ÁTVR. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá Samgöngustofu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja. Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða eftir því að þeir fá slíkar sendingar. Arnhildur Hálfdánardóttir útvarpskona á Rás 1 fjallar um þetta og veruleika Wolt-sendla á Íslandi í útvarpsþættinum Þetta nútímalíf: Á rúntinum með Wolt-sendli: Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann Rætt er við Arnhildi um Wolt í þætti dagsins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða mun hann vilja halda áfram að fjárfesta þar, meðal annars í Manchester City? Og hverjar eru pólitískar afleiðingar málsins? Andy Burnham forsætisráðherra hefur dregist inn í það með ummælum um að fjárfestarnir frá Abu Dabi séu of stórir til og mikilvægir til að þeir geti yfirgefið Bretland. Önnur lið í deildinni hafa áhyggjur af pólitískum afskiptum af málinu og að rannsóknin og refsing Manchester City verði í skötulíki. Rætt er við Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa sem er sérstakur áhugamaður um fjármál fótboltafélaga. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september og er nú líka orðið að pólitísku og viðskiptalegu hneyksli sem teygir anga sína frá Englandi til arabíska furstadæmisins Abu Dhabi. Rætt er við Sigrúnu Davíðsdóttur, blaðamann og stjórnmálaskýranda sem hefur verið búsett í London um árabil, og Magnús Þorkel Bernharðsson, sagnfræðiprófessor sem er sérfræðingur í sögu Miðausturland, um þetta fordæmalausa mál. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti dagsins beinum við sjónum að nýju vígbúnaðarkapphlaupi á tímum þar sem árangur í afvopnun er rifjaður upp. Rætt er við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði, og Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir dómanna höfðu legið óbirtir mánuðum saman og farið þannig gegn reglum Dómstólasýslunnar. Umsjón: Ólöf Rún Erlendsdóttir
Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár vikur. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Rómönsku-Ameríku. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar er rætt við Guðmund Ármann Pétursson, formann Þroskahjálpar, og Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur, prófessor emiritus í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Einnig er rætt um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og stöðuna í réttindabaráttu Þroskahjálpar sem í ár fagnar 50 ára afmæli. Í þætti gærdagsins sagði Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat.
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat. Þetta er fyrri þáttur af tveimur en í næsta þætti er rætt við prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og formann Þroskahjálpar.
Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að fólk sætti sig oft við þessi svik og vilji jafnvel ekkert endilega að fólk rannsaki þau. ,,Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin." Elín segir að áætlað fjárhagstjón Íslendinga vegna slíkra netglæpa hafi verið 427 milljónir króna á fyrsta helmingi þessa árs. Þetta er mikil aukning á milli ára en til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið í fyrra og tæplega 200 milljónum króna árið 2024. Hugsanlegt er að á milli 80 og 90 prósent slíkra svika megi rekja til Nígeríu. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru glæpahópar í Nígeríu sem sérhæfa sig í Íslandi og tala við íslensk fórnarlömb á íslensku sem líklega er þýdd af gervigreind. Rætt er við Elínu Agnesi og Alexander Logi Jónsson sérfræðing í netsvikamálum hjá Arion banka. Hann hefur unnið við þetta í tvö ár, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall, og er að verða þekkt nafn hjá þeim sem fylgjast með netsvikamálum í kerfinu. Alexander kannast við það að fólk geti jafnvel sætt við að greiða peninga til svikara fyrir samskipti. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Við förum til Hafnarfjarðar í þætti dagsins þar sem bærinn hefur hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi - fyrir erlent starfsfólk sem kemur hingað til lands í skemmri tíma - við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg, rétt við Vellina. Gert er ráð fyrir allt að 130 húsum og um 260 íbúðum sem verða um 35 fermetrar. Töluverð ólga hefur þó verið í bænum vegna áformanna. Nú hafa rúmlega tvö þúsund sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem staðsetningunni er mótmælt. Rætt er við dósentana Má Wolfgang Mixa og Kolbein Hólmar Stefánsson, og Elínu Sigríði Óladóttur, íbúa á Völlunum í Hafnarfirði.
Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis um að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleidd með réttum hætti í íslensk lög. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur haft á stefnuskránni að höfða mál gegn Íslandi fyrir að hafa ekki innnleitt bókun 35 með réttum hætti. Gunnar Þór telur að slíkt dómsmál þurfi ekki að fara fram þar sem Hæstiréttur Íslands hafi lagt línurnar með orðum sínum í dómunum í máli Önnu Bryndísar. Skiptar skoðanir eru hins vegar um þetta mat á þýðingu máls Önnu Bryndísar og á bókun 35 sem slíkri. Sigríður Andersen er þingkona Miðflokksins og hefur hún tjáð sig mikið um bókunina á Alþingi. Hún er á móti frumvarpinu sem utanríkisráðherra lagði fram í síðustu viku og ætlar að berjast gegn því. Rætt er við Gunnar Þór og Sigríði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019. Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til ákveðinna greiðslna í fæðingarorlofi. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þegar tekjutengdar greiðslur heldur einungis lágmarksgreiðslur. Anna Bryndís ákvað að leita réttar sínar í málinu þar sem hún taldi niðurstöðuna vera brot á EES-samningnum. Hún ræðir um þessa sjö ára baráttu sína við íslenska ríkið í viðtali við Þetta helst. En hvaða máli skiptir þessi dómur í stóra samhengi hlutanna og er hann sögulegur? Gunnar Þór Pétursson er prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti. Hann segir dóminn í máli Önnu Bryndíar vera sögulegan að mörgu leyti og að hann hafi bæði lögfræðilegar og mögulega pólitískar afleiðingar. Dómurinn tengist hinni svokölluðu bókun 35 sem snýst tengsl EES-samningsins við löggjöfina í þeim ríkjum sem hafa tekið upp samninginn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarrisanum Samherja. Þar er eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið. Um hvað snýst þessi tímabundna lokun á fiskþurrkuninni og hversu umfangsmikil er skreiðarsala Íslendinga til Nígeríu? Rætt er við Elvar Einarsson fiskútflytjanda frá Dalvík, Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttakonu og birt svör frá Samherja um fiskþurrkunina. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking.
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Sendlarnir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki, þeir séu gerviverktakar hjá Wolt og að laun þeirra fyrir sendlastörfin hafi verið lækkuð um helming á árinu. Rætt er við lögfræðinginn Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur hjá ASÍ um Wolt og sænska doktorsnemann Pontus Blume sem skrifar doktorsritgerð um fyrirtækið og önnur giggfyrirtæki. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu viðræðna og mögulega lagasetningu stjórnvalda við Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í samningatækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, á þorrablótinu til Nefndar um eftirlit með lögreglu Fjallað er um mál Helga í þætti dagsins og rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur varahéraðssaksóknar um nefndina sem hefur eftirlit með störfum lögreglu. Umsjón: Gréta Sigríður Einarsdóttir
Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn. Í umfjöllun í fréttum um þetta gagnavert hefur komið fram að alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Akur DC muni byggja gagnaverið og að búið sé að tryggja samning við ónafngreindan viðskiptavin. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þessi viðskiptavinur Microsoft en stofnandi og eigandi þess er bandaríski kaupsýslumaðurinn Bill Gates sem er einn ríkasti maður í heimi. Ef gagnaverið verður byggt verður þetta í fyrsta skipti sem einn viðskiptavinur kaupir alla þjónustu tiltekins gagnavers á Íslandi. Rætt er við Þóru Helgadóttur Frost, viðskiptaþróunarstjóra hjá Akur Capital, og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóra í Norðurþingi, um byggingu gagnaversins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir
Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.? Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins. Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum. Stærstu hluthafar íslenskra banka eru þessir lífeyrissjóðir en þessir sjóðir eru hins vegar ekki mjög virkir hluthafar. Þannig geta einkafjáfestarnir, það er að segja þeir sem ekki eru lífeyrissjóðir, oft og tíðum ráðið talsvert meiru en hluthafallslegur eignarhlutur þeirra virðist bera með sér. Umsjón: Helgi Seljan
Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, og Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks hér á landi. Hann er þátttakandi í rannsóknarverkefni um þessa sögu þar sem hún er tengd við samtímann. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru. Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigusvikamál í víðara samhengi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri. Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir
Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað. Að mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann að ríkisstofnunin ætli sér að knésetja hann og hans búskap í Brimnesi. Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft að stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og að þetta sé þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess að Heiðar hefði fengið mun minna fyrir bréfin sem hann seldi Gavia. Fjallað er um þessa deilu í þætti dagsins og útskýrt um hvað hún snýst. Umsjón: Helgi Seljan