Vikulokin
RÚV
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Nálgast má Vikulokin í mynd í beinni útsendingu á ruv.is á laugardagsmorgnum, og í sjónvarps spilara RÚV.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Nálgast má Vikulokin í mynd í beinni útsendingu á ruv.is á laugardagsmorgnum, og í sjónvarps spilara RÚV.
Samgöngumál, Grindavík og tæknitruflanir
Þættir
Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00. Í fyrsta hluta verður rætt við Ara Edwald, borgarfulltrúa Miðflokksins og Pál Val Björnsson, kennara og fyrrverandi þingmann, meðal annars um stöðu Grindavíkur, samgöngumál og umferðartafir í Reykjavík. Bára Hlynsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant ræða truflanir hjá Microsoft, hneyksli hjá Nvidia og tölvuleikinn Grand Theft Auto 6 í öðrum hluta. Í þriðja hluta verður rætt við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra um samgöngumál og byggðaáætlun.
Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins. Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins. Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.
Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins. Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú. Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag. Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB. Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi. Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum. Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta. Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.
Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag. I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa Aldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækni Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni II. hluti: ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ III. hluti: Vikan á þingi Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum. I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysi Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Björgin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ II. hluti: Landsvirkjun og Hörður Arnarson Andrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafi Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur III. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og frið Halla Tómasdóttir, forseti Íslands Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur. Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra er gestur þriðja hluta, þar verður meðal annars rætt um boðað náttúru- og innviðagjald, hvalveiðar og nýja stofnun atvinnuveganna.
Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja. Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor. Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.
I. hluti: PISA - Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla - Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi - Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla II. hluti: Þingsetning og fjárlög - Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins - Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands - Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál
Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað. Fyrsti hluti: - Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Annar hluti: - Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark - Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins - Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Þriðji hluti: - Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi - Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum - Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla
Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing. Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins. Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.
Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur. Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.
Í Vikulokunum var farið yfir fréttir vikunnar, almyrkvann og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar o.fl. Við greinum stöðuna í samfélaginu og ræðum sálarlíf klofinnar þjóðar. Gestir voru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Orri Hauksson, verkfræðingur og fjárfestir og Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur. Umsjón: María Sigrún Hilmarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá. Þau ræddu meðal annars komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður Íslands við ESB, minnkafár í Mosfellsbæ og viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið Rest is Politics. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Karl Frímannsson skólameistari Mennatskólans á Akureyri. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum, átökin við Persaflóa og loftslagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna 4. júlí voru Gunnar Sigurðarson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gestir Vikulokanna 27. júní voru Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins.
Gestir Vikulokanna eru María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Rætt var um þinglok og stóru málin á þingi í Vikulokunum 13. júní. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, voru viðmælendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gestir Vikulokanna voru Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins. Meðal annars voru til umræðu húsnæðismál, samgöngumál og fánareglur borgarinnar. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson
Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir
Gestir í Vikulokunum 16. maí voru: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi og fyrrverandi fréttamaður
Gestir Vikulokana eru Helga Vala Helgadóttir, Víðir Reynisson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Gestir Vikulokanna eru Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður hjá Sýn, Valur Grettisson blaðamaður hjá Heimildinni og Óttar Kolbeinsson Proppé verkefnastjóri hjá Almannarómi. Þau ræddu meðal annars um stöðuna á vinnumarkaði, umfjöllun Kveiks um vændi, komandi sveitarstjórnarkosningar og gervigreind. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Viðmælendur í Vikulokununm 25. apríl voru: Ágúst Bjarni Garðarsson, ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Pétur Markan, bæjarstjóri í Hveragerði Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gestir Vikulokanna eru Arnheiður Hjörleifsdóttir, Guðmundur Smári Guðmundsson og Steinþór Logi Arnarsson og þátturinn er sendur út frá Borgarnesi. Til umræðu eru samgöngur á landi og sjó, sameiningarmál á Vesturlandi, stórframkvæmdir og skipulagsmál í litlum sveitarfélögum og sjávarútvegurinn.
Gestir Vikulokanna eru Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE, Hálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings og Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður menningar-, markaðs- og atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Þau ræddu meðal annars komandi sveitarstjórnarkosningar, Artemis-II leiðangurinn og flug erlendra flugfélaga til Akureyrar. Umsjón: Ágúst Ólafsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Andrés Jónsson almannatengill. Þeir ræddu meðal annars Artemis-II geimferðina, átökin í Mið-Austurlöndum, efnahagsmál, Evrópumál og stöðu stjórnmálaflokka. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir þáttarins voru þau Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis. Til umræðu var meðal annars fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni, húsnæðismál, kjaramál og verðbólga. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður VG og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Þau ræddu meðal annars efnahagsmál, Evrópusambandsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Gestir í Vikulokunum 14. mars voru: Birgir Ármannsson Heiða Kristín Helgadóttir Sólveig Anna Jónsdóttir Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Gestir Vikulokanna eru Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Lilja Alfreðsdóttir og Sigmar Guðmundsson. Viðfangsefni þáttarins var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Útsending: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna eru Sigríður Mogensen sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins, Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. Þau ræddu alþjóðamál, efnahagsmál, samfélagsmiðla og komandi kosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna voru Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík. Til umræðu voru leikskólamál, barnavernd og veikindaréttur opinberra starfsmanna.
Gestir Vikulokanna voru Árni Snævarr sagnfræðingur, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, ráðgjafi, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, og Ingunn Lára Kristjánsdóttir samfélagsmiðlafréttamaður. Til umræðu voru Epstein-skjölin, öryggisráðstefnan í München, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og fleira. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Gestir Vikulokanna voru Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og fjárfestir, Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og Vilhjámur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistar- og félagsfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands, Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálafræðingur og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræddu meðal annars um mótmæli í Bandaríkjunum vegna framgöngu ICE, áhrif samfélagsmiðla og áskoranir fjölmiðla á tímum gervigreindar, ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og stöðuna í Íran. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Gestir Vikulokanna eru Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingar og Davíð Stefánsson formaður Varðbergs. Þau ræddu alþjóðamál, varnar- og öryggismál, efnahagsmál, stöðuna á vinnumarkaði og komandi sveitar- og borgarstjórnarkosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Í þættinum er fjallað er alþjóðamál. Árás Bandaríkjahers á Venesúela og afleiðingar og eftirmála hennar, mögulegt hernám Bandaríkjanna á Grænlandi, mótmælin í Íran og fleiri erlend fréttamál. Gestir þáttarins í eru Helgi Hrafn Gunnarsson, tækniráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun og Bjarni Bragi Kjartansson Alþjóðstjórnmálafræðingur. Umsjónarmaður: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Það sem bar hæst í fréttum vikunnar gerðist utan landsteinanna en þó nær okkur en oft þegar um erlendar fréttir er að ræða. Bandaríkin lögðu hald á rússneskt skip innan efnahagslögsögu Íslands, og í kjölfar árásarinnar á Venesúela hefur þrýstingur á Grænland aukist. Hér heima urðu hrókeringar innan ríkisstjórnarinnar, nánar tiltekið í ráðherraflokki Flokks fólksins. Guðmundur Ingi Kristinsson tilkynnti að hann hygðist láta af embætti mennta og barnamálaráðherra vegna veikinda. Inga Sæland tilkynnti í gær að hún hygðist taka við mennta- og barnamálaráðuneytinu og Ragnar Þór Ingólfsson kemur nýr inn í hennar stað í embætti félags- og húsnæðismalaráðherra. Svo eru fólk um allt land farið að undirbúa sveitarstjórnarkosningar í vor. Flokkar og framboð búa sig undir að stilla upp listum og hinir og þessir eru að leggjast undir feld varðandi framboð.
Gestir þáttarins voru þeir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags Íslenskra bifreiðaeigenda. Þeir ræddu meðal annars um lög um kílómetragjald sem tóku gildi um áramótin og áhrif þess á neytendur og ferðaþjónustuna.
Gestir Vikulokanna eru Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona hjá Gímaldinu, Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði og Börkur Gunnarsson fyrrverandi rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Þau ræddu fréttir á árinu sem er að líða og komandi ár. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Þingmennirnir Bergþór Ólason, Hildur Sverrisdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson fara yfir þingstörfin á haustþinginu sem var að ljúka og ræða tillögur menningarráðherra um aðgerðir til að styrkja einkarekna fjölmiðla. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Útsending: Jón Þór Helgason
Gestir Vikulokanna eru Arnór Sigurjónsson fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu öryggis- og varnarmál, sniðgöngu Íslands í Eurovision og sæðisgjafamálið. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Gestir Vikulokanna voru þau Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og varaþingmaður Viðreisnar, Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður borgarráðs og oddviti Pírata í borgarstjórn og Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Rætt var um nýja samgönguáætlun, ákvörðun menntamálaráðherra um að framlengja ekki skipunartíma skólameistara, fjárlög og borgarmál.