Rauða borðið cover

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns

0:00 0:00

Þættir

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns 14 Nov 2026

Laugardagur 14. nóvember Helgi-spjall: Ómar Stefáns Ómar Stefánsson myndlistarmaður, satanisti, galdramaður og guðspekingur segir frá lífi sínu og list, dauða sínum og öðru dundi.

Föstudagur 13. nóvember - Vikuskammtur: Vika 46 13 Nov 2026

Föstudagur 13. nóvember Vikuskammtur: Vika 46 Þau koma að Rauða borðinu, Rósa Líf Darradóttir læknir og dýravinur, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri House of Grace, Kjartan Orri Þórsson Miðausturlandafræðingur og Riitta Anne Maarit Kaipainen, viðskiptafræðingur og stjórnarkona hjá VG og VGR og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af framhjáhaldi, njósnum, illri meðferð og snjókomu.

Rauða borðið 12. nóv - Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf 12 Nov 2026

Fimmtudagur 12. nóvember Uppljóstrari, Grindavík, reynsluboltar, fyrirgefningin og kommúnulíf Einar Logi Pétursson dýra-aðgerðasinni segir Gunnari Smára frá því hvers vegna hann braust inn í svínabúið Stjörnugrís, hvað hann sá og hverju hann vill áorka með uppljóstrun sinni. Hvað segja Grindvíkingar þremur árum eftir hamfarirnar þegar uppkaupatilboð á húsnæði hafa verið kynnt? Björn Þorláks ræðir við Pál Val Björnsson. Sigurjón Magnússon fær til sín í fréttaspjall Steingerði Steinarsdóttur, Guðmund Þ. Ragnarsson og Sigga Storm í þættinum Reynsluboltar. Séra Vigfús Bjarni ræðir fyrirgefninguna, Ásdís Olsen ræðir við hann. Ásdís Olsen kynnir sér kommúnulífsstíl á Suðurlandi.

Rauða borðið 11. nóv - Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin 11 Nov 2026

Miðvikudagur 11. nóvember Hjólhýsasamfélag, útlendingar, gervigreind, geðvernd, heimsmálin og Samstöðin Hvers vegna er litið niður á fólk sem kýs að lifa öðruvísi? Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa, segir mikla fordóma og ranghugmyndir ríkja um hjólabúa og gagnrýnir harðlega framkomu Reykjavíkurborgar, ekki síst Einars Þorsteinssonar. Ásdís Olsen ræðir við hana. Margt er líkt með viðhorfum Íslendinga til útlendinga í dag og fyrir ríflega 30 árum. Stefán Jón Hafstein rýnir í eigin þáttagerð á Stöð 2 í beinni útsendingu árið 1995, 31 árs gamla heimild þegar margir Íslendingar höfðu áhyggjur af örfáum útlendingum. Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst, og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um hvaða áhrif gervigreindin hefur þegar haft og mun hafa. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur í umræðu með Birni Þorláks eftir nokkurt hlé. Hann ræðir nýjar rannsóknir um hvernig heilinn starfar og hvernig ný vísindaleg sannindi breyta viðhorfum og meðferð. Vaxandi veikindi opinberra starfsmanna verða einnig til umfjöllunar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin, Úkraínu- og Íranstríðin og afleiðingar þeirra á valdahlutföll í heiminum. Gunnar Smári ræðir við nokkra þáttastjórnendur á Samstöðinni utan Rauða borðsins. Þau María Hjálmtýsdóttir í Bókaborðinu, Kári Jónsson í Sjávarútvegsspjallinu, Kristín Helga Gunnarsdóttir við Græna borðið og Sigurður Jóhannesson í Manngildi ræða við hann og Valur Gunnarsson segir frá þætti sem hefur göngu sína innan tíðar, Hvernig í ósköpunum enduðum við hér?

Rauða borðið 10. nóv - Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn 10 Nov 2026

Þriðjudagur 10. nóvember Trumptíminn, neytendur, hagspá, fæðingarorlof, ljóð og elsti bílstjórinn Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára um sögulegar kosningar í Bandaríkjunum og stöðu Trump eftir þær. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakana ræðir við Björn Þorláks um hvers vegna vöruverð í búðum ætti að hafa lækkað í mörgum tilvikum þegar jafnvel hækkanir hafa orðið ofan á. Róbert Farestveit sviðstjóri hagsviðs Alþýðusambandsins og Ágúst Arnórsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um horfur í efnahagslífinu en ASÍ sendi nýverið frá sér hagspá. Er íslenska fæðingarorlofskerfið hugsað út frá vinnumarkaði eða þörfum barna? spyr Ásdís Olsen í viðtali við Rögnu Sigurðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar og Ásdísi Arnalds, doktor í félagsráðgjöf. Jovana Pavlović og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad voru að senda frá sér ljóðabækur og ræða við Gunnar Smára um ljóðið, íslenskuna, pólitík og ástina. Hilmar Mýrkjartansson, 98 gamall, fyrrum atvinnubílstjóri, hóf akstur strætó árið 1948 og ekur enn. Hann segir Birni Þorláks sögur við Rauða borðið.

Rauða borðið 9. nóv - Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun 09 Nov 2026

Mánudagur 9. nóvember Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir okkur frá ótrúlegum staðreyndum um glæpi sem koma á borð Stígamóta. Því miður er ekkert lát á. Konur sem leiðast út í vændi gera það oft til þess að eiga fyrir mat, fyrir sig og börnin. Sigurjón Magnús ræðir við Drífu. Ill meðferð dýra á svínabúi hefur valdið undrun og fordæmingu. Andrés Ingi Jónsson, stjórnarformaður í samtökum um dýravelferð, segir að undanþágur stýri eftirliti. Grísir hjá Stjörnugrís fara að hans sögn óttaslegnir inn í dauðann. Björn Þorláks ræðir við Andrés. Stytting framhaldsskólans í þrjú ár var mistök að mati þriggja nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ, sem láta sig dreyma um að stjórnvöld vindi ofan af skaðanum. Björn Þorláks ræðir við Margréti Norðfjörð, Óliver Elvarsson og Silja Kolbrún Skúladóttir. ,,Þau halda að þau séu ódauðleg og séu í tölvuleikjum,” segir Páll Halldór Halldórsson sem er þekktur sem Rally Palli en hefur rannsakað hræðilega banaslysið sem varð á Krísuvíkurvegi nýlega þar sem 3 ungmenni létust. Ásdís Olsen ræðir við Pál. Jean-Remí Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, gefur lítið fyrir nýlega umfjöllun í Kastljósi um loftslagsmál. Hann ræðir umhverfismál og fjölmiðlun í samtali við Björn Þorláks.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigga Kling 09 Nov 2026

Laugardagur 7. nóvember Helgi-spjall: Sigga Kling Hver er konan á bak við litríku spákonuímyndina? Sigga Kling er engri lík – skrautleg, skemmtileg, skapandi og óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Hún segir frá ástarsorg sem olli straumhvörfum í lífi hennar, móður sinni sem vildi ekki lifa og æskuárunum á Snæfellsnesi hjá ömmu sinni sem þjónaði Thorsurunum og málaði allt húsið blátt til heiðurs Sjálfstæðisflokknum. Sigga deilir líka ljóðmælum, óvæntri innsýn og lífssýn sinni af einstakri hreinskilni. Í einlægu og fjörugu spjalli kynnumst við nýrri hlið á Siggu Kling í viðtali við Ásdísi Olsen.

Synir Egils 8. nóv - Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar 08 Nov 2026

Sunnudagurinn 8. nóvember Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingar og Illugi Jökulsson blaðamaður og ræða helstu fréttir og stöðu mála hér heima og erlendis. Þá koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar og Magnús Magnússon ritstjóri og framkvæmdastjóri Skessuhorns og ræða stöðu fjölmiðla og umræðunnar í samfélaginu. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 45 06 Nov 2026

Föstudagur 6. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd og Bragi Páll skáld fréttir vikunnar í umsjá Björns Þorláks. Kjarnorkutíst upplýsingafulltrúa, raðáhrif í kjölfarið, Reykjavík Bangkok norðursins – eða ekki, upphafið að endalokum Trump, sögur brottrekinna starfsmanna, umhverfismál, hamfarapakki heimilanna, bækur og gott fólk verða til umræðu.

Rauða borðið 5. nóv - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland 05 Nov 2026

Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líklega að glíma við meðvirkni, segja Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Anton Ísak Óskarsson, en þau þekkja meðvirkni af eigin raun. Þau segja opinskátt frá eigin reynslu, leiðinni út úr meðvirkni og léttinum við að losna úr fjötrum meðvirkninnar í viðtali við Ásdísi Olsen. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Rúnar Guðbrandsson leikstjóri og leikkonurnar Guðfinna Gunnarsdóttir og Íris Árný Magnúsdóttir ræða við Gunnar Smára um uppfærslu Leikfélags Selfoss á leikgerð upp úr þessari vinsælu bók. Gérard Lemarquis kennari sem lengi var fréttaritari Le Monde og AFP á Íslandi ræðir um ástandið í Frakklandi við Gunnar Smára.

Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni 04 Nov 2026

Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.

Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar 03 Nov 2026

Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.

Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar 02 Nov 2026

Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.

Synir Egils 1. nóv - Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf 01 Nov 2026

Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ræða pólitíska strauma vestan hafs og austan og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson 31 Oct 2026

Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og segist loksins frjáls til að tjá sig um ýmislegt sem sumum gæti þótt skrýtið og ekki endilega fræðilegt. Í þessu opinskáa Helgispjalli við Ásdísi Olsen ræðir hann geðsjúkdóma, andlegar og trúarlegar hefðir, hugvíkkandi efni, mikilvægi þjáningar og þrautsegju fyrir andlegan þroska, nær-dauðareynslu, daoisma og tilgang lífsins. Haraldur er starfandi geðlæknir og formaður Lífspekifélags Íslands og hefur meðal annars kennt trúarlífssálfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands og var lengi yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands,

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44 30 Oct 2026

Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bækur og fleira.

Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir 29 Oct 2026

Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.

Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs 28 Oct 2026

Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horfur í heimshagkerfinu, verðbólgu og vaxandi ríkisskuldir og þær áskoranir sem íslenskt efnahagslífs stendur frammi fyrir. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi bregst við ummælum forstjóra ÁTVR um að stofnunin sé að skoða heimsendingu á áfengi. Björn Þorláks ræðir við hann fleiri álitamál er varða lýðheilsu, forvarnir, frelsi og fíkn. Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson er enfants terrible íslenskrar myndlistar, sýningar þeirra vekja yfirleitt skjálfta og mikil viðbrögð. Þeir ræða við Gunnar Smára um listina, manneðlið og sýningu sem þeir opnuðu í gær. Guðmundur S. Brynjólfsson rithöfundur og djákni segir Gunnari Smára frá bók sinni Pár Guðs sem fjallar um ris og fall Finn Magnússonar, eins frægasta Íslendings sinnar tíðar.

Rauða borðið 27. okt - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin 27 Oct 2026

Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.

Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn 26 Oct 2026

Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með orðræði sinni um múslima. Drífa Snædal talskona Stígamóta og Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ráðgjafi og stofnandi Áfram stelpur ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og afleiðingar hans. Jovana Pavlović forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð segir Gunnari Smára frá serbnesku kosningunum þar sem listi stúdenta vann stórsigur og Luciano Dutra þýðandi segir Gunnari Smára frá brasilísku kosningunum þar sem Lula vann sigur í seinni umferð eftir að hafa tapað þeirri fyrri. Gísli Bachmann, stjörnuspekingur mætir aftur í viðtal til Ásdísar Olsen og útskýrir hvernig stjörnuspekin virkar og Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ræðir nýjustu bók sína og ferilinn við Björn Þorláks.

Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall 25 Oct 2026

Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar 24 Oct 2026

Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skiptinemaárinu í Bandaríkjunum sem breytti lífssýn hans, kynnum við föður sinn á fullorðinsárum, baráttunni við Orkuveituna og leyndarmálinu á bak við hamingjuna. Og auðvitað nýja hárinu!

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 43 23 Oct 2026

Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43 Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.

Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt 23 Oct 2026

Fimmtudagur 22. október Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar Smára. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Hjörvar fyrrum þingmann, Vilhjálm Bjarnason fyrrum þingmann og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing um fréttir líðandi stundar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitaefni, umdeildan sýknudóm Landsréttar í nauðgunarmáli, vanhæfi eða ekki vanhæfi sveitarstjóra og samkeppnismál í samtali við Björn Þorláks. Draumey Aradóttir lýsir í samtali við Ásdísi Olsen ævintýri sem hún upplifði í ljóðabókinni Syngur í skógi.

Rauða borðið 21. okt - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar 21 Oct 2026

Miðvikudagur 21. október Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir ræða við Gunnar Smára um Högg, sýningu Þjóðleikhússin á sögu manns sem verður valdur að dauða annars og hvernig hann og foreldrar fórnarlambsins lifa af með sorg og sekt. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir Ásdísi frá því hvernig sálgreining getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálf betur og þeirri miklu sjálfsvinnu sem hún vann sjálf til að geta hjálpað öðrum. byggði upp bakdeild í Stykkishólmi sem færði mörgum bata og vakti víða athygli.

Rauða borðið 20. okt - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók 20 Oct 2026

Þriðjudagur 20. október Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.

Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn 19 Oct 2026

Mánudagur 19. október Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.

Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka 18 Oct 2026

Sunnudagurinn 18. október Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins 17 Oct 2026

Laugardagur 17. október Helgi-spjall: Edda Björgvins Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42 16 Oct 2026

Föstudagur 16. október Vikuskammtur: Vika 42 Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.

Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla 15 Oct 2026

Fimmtudagur 15. október Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og ævisöguritari Gunnars Gunnarssonar ræða um sambandsríki Norðurlandanna í tilefni af fyrirlestri Gunnars Wetterberg á morgun. Jean-Rémi Chareyre segir Gunnari Smára frá Umskipti tímariti um framtíðarvelsæld og þolmörk jarðar. Sigurður Skúlason segir Gunnari Smára frá andlegri þroskasögu sinni og bókinni Í leit að því sem er, sem fjallar um það ferðalag. Heilsumarkþjálfinn landsþekkti, Erla Guðmundsdóttir örmagnaðist og grét í þrjár vikur. Hún leitaði sér aðstoðar og komst að því að hún hafði lent í einelti, verið meðvirk og aftengd sjálfri sér. Hún lærði að hlusta á innsæið, velja það sem nærir hana og láta álit annarra ekki stjórna sér. Ásdís ræðir við Erlu.

Rauða borðið 14. okt - Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið 14 Oct 2026

Miðvikudagur 14. október Trumptíminn, Cornellmálið, umhverfismál, listamenn og samtalið Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fara yfir stöðuna á Trump með Gunnari Smára, samning hans við Pútín og aðrar tilraunir hans til að bæta stöðu sína fyrir kosningarnar eftir tæpar þrjár vikur. Getur kona í vímu veitt upplýst samþykki? Sú spurning er nú í brennidepli eftir Cornell-málið, sem hefur orðið táknrænt fyrir umræðuna um kynferðisofbeldi í Bandaríkjunum. Drífa Snædal frá Stígamótum og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari, ræða málið við Ásdísi Olsen. Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins ræðir ýmis umhverfismál við Björn Þorláksson, svo sem vindorku, ferðamennsku og sjókvíaeldi. Nýjar hugmyndir um grunnlaun til starfandi listamanna hefur verið komið á víða í Evrópu og nú kalla íslenskir listamenn eftir grunndvallar framfærslu. Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum og Jóna Hlíf Halldórsdóttir forseti Bandalags íslenskra listamann ræða við Ásdísi Olsen. Lísa Margrét Gunnarsdóttir háskólanemi og Vigdís Jóhannsdóttir í hópi skipuleggjenda, fara yfir samtalið sem forseti Íslands hratt af stað um helgina. Þær ræða helstu atriði sem komu fram í vinnu fólksins og hvað við þurfum að endurskoða. Björn Þorláks ræðir við þær.

Rauða borðið 13. okt - Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur 13 Oct 2026

Þriðjudagur 13. október Menning, klofningur, handanheimurinn, þjóðnýting, nýjar bækur Logi Einarsson menningarmálaráðherra, Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarmaður og formaður Samband íslenskra myndlistarmanna og Atli Bollason listamaður og menningarýnir ræða við Gunnar Smára um menningarastefnuna, hver hún er og hver hún ætti að vera. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ræðir við Gunnar Smára um komandi þing ASÍ en hún segir Alþýðusambandið klofnara nú en fyrir fjórum árum þegar hún og félagar hennar gengu af þinginu. Hún ræðir einnig mögulega úrsögn Eflingar úr ASÍ. Við skygnumst inn í aðra vídd með þeim Ester Sveinbjarnardóttur og Sigrúnu Gunnarsdóttur, en þær eru í góðu sambandi við leiðbeinendur að handan. Í samtali við Ásdísi Olsen ræða þær um framtíð heimsins, friðarferlið í Evrópu, hækkandi tíðni, hvað gerist eftir dauðann, hvernig þær vinna með „drauga“ og hvernig við heilum það sem situr í okkur frá forfeðrunum. Jón Ferdinand Estherarson, formaður sósíalista, telur rétt að þjóðnýta bankana, leysa þá upp í núverandi mynd. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna.Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá bók sinni um Dauðadæmd – sakamál á 18. öld, um fólk sem dæmt var til dauða og þrælkunarvinnu á sínum tíma. Viðtalið er ekki fyrir viðkvæma.Komin er út ný skáldsaga eftir Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing. Haukur tekst á við liðinn tíma fyrir austan, á Seyðisfirði jólin 1966. Hann segir Birni Þorláks hvers vegna hann skrifaði bókina log les einnig upp úr henni.

Rauða borðið 12. okt - Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar 12 Oct 2026

Mánudagur 12. október Forseti ASÍ, Djöflar, markaðsbrestur, gervigreind, Hugarafl og laxar Þeir Arnaldur Grétarsson starfsmaður Félags hjúkrunarfræðinga, ritstjóri og framleiðandi og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu vilja báðir verða forseti Alþýðusambandsins. Þeir segja Gunnari Smára frá hvers vegna og hvernig ASÍ þeir vilja sjá. Stefán Jónsson leikstjóri, Hlín Agnarsdóttir þýðandi og leikarahjónin Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna á Djöflum eftir Lars Norén sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Margt bendir til markaðsbrests og jafnvel markaðsmisnotkunar á fasteignamarkaði. Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Samtaka leigjenda bendir á að leiga á íbúðum sem fólk missti í hruninu hafi margfaldast. Björn Þorláks ræðir við hann. Hjálmar Gíslason nörd og framkvæmdastjóri Grid ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hættuna af henni og ávinning og sérstöðu Íslands. Auður Axels hjá Hugarafli ræðir mismunandi nálgun á geðræn málefni, fíkn og fleira. Þau Ólafur Örn Ævarsson geðlæknir sem oft hefur rætt málin á Samstöðinni eru ekki sammála um alla hluti. Björn Þorláks ræðir við Auði. Á fimm árum hafa 20 milljónir laxa drepist í sjókvíum hér á landi sem er til marks um óboðlegar aðstæður. Sigurður Héðinn Harðarson fluguhnýtingamaður hefur tekið saman frá MAST og birt viðkvæmar upplýsingar um fiskeldi. Björn Þorláks ræðir við hann.

Synir Egils 11. okt - Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands 11 Oct 2026

Sunnudagurinn 11. október Synir Egils: Kjaramál, efnahagur, hitamál, hlýnun jarðar og kólnun Íslands Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Brynjar Níelsson borgarfulltrúi, Guðrún Johnsen doktor í hagfræði og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða kjaramál og önnur efnahagsmál og hitamál hér heima og erlendis. Síðan koma þau Andri Snær Magnason rithöfundur, skáld og aðgerðasinni, Hafdís Hanna Ægisdóttir náttúrufræðingur og forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands og Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri og ræða hlýnun jarðar og áhrif hennar á Ísland og hafið í kringum landið og hvað ber að gera í loftslagsmálum. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Berglind Häsler 10 Oct 2026

Laugardagur 10. október Helgi-spjall: Berglind Häsler Berglind Häsler var gestur okkar í Helgispjallinu að þessu sinni. Berglind hefur víða komið. Hún missti eiginmann sinn, Svavar Pétur Eysteinsson, eða Prins Póló sem var listmannsnafn hans. Það var krabbamein sem tók Svavar. Berglind rekur og stýrir fyrirtækinu Havarí. Það er Sigurjón Magnús sem ræðir við Berglindi.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41 09 Oct 2026

Föstudagur 9. október Vikuskammtur: Vika 41 Atlaga gegn mennsku og menningu, aftökur í beinni, hroki og hleypidómar í verkalýðshreyfingunni og árshátíðarferð atvinnulífsins til Króatíu eru meðal umræðuefna í fréttaþættinum Vikuskammti. Tengist þetta kannski allt? Gestir eru Gunnar Alexander Ólafsson hjá ÖBÍ, Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, Valgerður Árnadóttir hvalavinur og baráttukona og Jökull Sólberg Auðunsson sósíalisti. Leigubremsur og framtíð hvalveiða verða einnig til umræðu. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.

Rauða borðið 8. okt - Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn 08 Oct 2026

Fimmtudagur 8. október Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Jónína Hauksdóttir formaður skólamálaráðs KÍ og Anton Már Gylfason formaður félag stjórnenda í framhaldsskólum útskýra sýn verkalýðshreyfingar kennara á menntastefnuna. Gunnar V. Andrésson, Einar Kárason og Kristín Ástgeirsdóttir voru gestir þáttarins að þessu sinni. Helstu mál samfélagsins voru rædd af þekkingu og reynslu. Fyrir nokkrum árum skrifaði Sigrún Huld Þorgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur bókina Ný menning í öldrunarþjónustu. Í bókinni hvetur hún til bættrar og breyttrar hugsunar gagnvart umönnun aldraðra, en gæti niðurstaðan hafa reynst þveröfug? Björn Þorláks ræðir við hana. Luciano Dutra fer yfir liðnar kosningar í Brasilíu með Gunnari Smára og ræður í áhrifin af þeirri hægri bylgju sem þar reið yfir. Í viðtali við Ásdísi Olsen ræðir Reynir Grétarsson um nýju bókina sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann veltir fyrir sér huganum, hugsunum sem halda okkur föstum og því hvernig öðlumst frelsi og tengjum við okkur sjálf. Guðmundur Torfason og Víðir Sigurðsson töluðu um landsliðin, karla, kvenna og undir 21 árs sem og fyrirkomulag Íslandsmótsins. Þeir eru sáttir með árangur karla landsliðsins og bíða og vona að konurnar færist nær næsta heimsmeistaramóti sem verður í Brasilíu.

Rauða borðið 7. okt - Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú 07 Oct 2026

Miðvikudagur 7. október Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú Valur Ingimundarson prófessor ræðir við Gunnar Smára um nýjan samning um Grænland, mögulegt sjálfstæði Grænlands og hvað staða Grænlands segir okkur um stöðu Íslands. Tónlistarfólkið og skólastjórnendurnir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Edda Austmann og Róbert Þórhallsson ræða niðurskurð til tónlistarskólanna. Börn sem vilja stunda tónlistarnám geta lent í því að fá hvergi inni í Reykjavík eða bíða lengi, lengi. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Kristján Kristjánsson prófessor í heimspeki við háskólann í Birmingham segir Gunnari Smára frá stöðu menntamála á Íslandi og Eistlandi. Skáldaæð Þórarins Eldjárns er galopin sem stendur og sendir hann frá sér þrjár bækur um þessar mundir, hvorki meira ná minna. Björn Þorláks ræðir við Þórarin um lífið, listina, bækurnar og íslenskuna. Séra Dagur Fannar Magnússon fríkirkjuprestur ræðir við Ásdísi Olsen um trú.

Rauða borðið 6. okt - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó 06 Oct 2026

Þriðjudagur 6. október Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stundakennari, Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður og Guðmundur Hálfdanarson prófessor ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump og stjórnar hans á Bandaríkin og heiminn, kosningarnar framundan, heimsókn Marco Rubio til Íslands og fleiri tengt Trump. Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari stúlknaliðsins Aþenu, segir Ásdísi Olsen frá köllun sína að gefa börnum í Efra-Breiðholti tækifæri til valdeflingar. Viðar Halldórsson félagsfræðingur ræðir normalíseringu áfengisdrykkju í samtali við Björn Þorláks. Rósa Magnúsdóttir prófessor ræðir við Gunnar Smára um Kaldastríðsborgina, bók sína um leiðtogafundinn fyrir fjörutíu árum og hvernig kalda stríðið mótaði mannlífið í Reykjavík. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands ræðir við Björn Þorláks um rekstur hljómsveitarinnar.

Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind 05 Oct 2026

Mánudagur 5. október Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind Gylfi Zoega prófessor ræðir um efnahaginn við Gunnar Smára, eru að verða straumhvörf hér heima og enn frekar erlendis? Krísan innan SÁÁ vindur enn upp á sig. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Dóra Jóhannsdóttir leikkona, Ásdís Olsen fjölmiðlakona og Björn Þorláks blaðamaður þekkja öll vel til starfa innan SÁÁ. Þau ræða vandann með hispurslausum hætti. Pálmi V. Jónsson prófessor ræðir umönnun aldraða við Gunnar Smára út frá umfjöllun um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. 65% íslenskra karla tengja það við karlmennsku að leysa ágreining með ofbeldi, samkvæmt nýrri rannsókn sem Norræna ráðherranefndin lét gera. Þórður Kristinsson, mannfræðingur og doktor, segir karlmennskuboxið óþarflega þröngt á Íslandi og tengir þessar niðurstöður við skelfileg skilaboð samfélagsmiðla um að karlmennska feli í sér að vera sterkur, hafa stjórn og standa uppi sem sigurvegari. Ásdís Olsen ræddi við Þórð. Hafsteinn Einarsson dósent við tölvunarfræðideild HÍ ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hvort þróun hennar sé stjórnlaus og geti frekar skaðað en bætt mannlífið.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson 03 Oct 2026

Laugardagur 3. október Helgi-spjall: Stefán Pálsson Stefán Pálsson sagnfræðingur sem hefur verið áberandi í borgarmálunum er gestur Björns Þorlákssonar í helgi-spjalli. Stefán ræðir æsku sína og uppvöxt og sem mótar einstakling, svo sem Gettur betur!

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40 02 Oct 2026

Föstudagur 2. október Vikuskammtur: Vika 40 Þær koma að Rauða borðinu, þær Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarkona, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Stefanía Silfá Sigurðardóttir nemi í blaðamennsku og Brynhildur Bolladóttir formaður samtaka um bíllausan lífsstíl og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af róandi lyfjum, upplausn, efnahagslegum sársauka, mislukkuðum aftökum, deilum og tilraunum til samtals.

Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi 01 Oct 2026

Fimmtudagur 1. október Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kærði leyndina. Á sunnudag verða sýndar saman í Bíó Paradís heimildarmyndirnar Lalli Johns og Hlemmur, báðar veita innsýn í undirheima Reykjavíkur. Ólafur Sveinsson leikstjóri Hlemms, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir verkefnastjóri á Kvikmyndasafni, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða myndirnar og undirheimana við Gunnar Smára. Hvað gerist þegar karlmenn sem hafa alla ævi vanist því að vera sterkir og sjálfstæðir þurfa skyndilega að þiggja hjálp? Matti Osvald markþjálfi hefur um árabil leitt karlahópa í Ljósinu, þar sem krabbameinsgreindir menn koma saman og deila reynslu sinni. Umsjón hefur Ásdís Olsen. Í tilefni af umræðu um gervigreind ræðir Gunnar Smári um mannlega hugsun við Finn Déllsen prófessor í heimspeki, en það er einmitt mannleg greind sem vélunum er ætlað að líkja eftir. Þarf að fjölga þingmönnum til að jafna atkvæðavægi? Þeirrar spurningar spyr doktor Þóroddur Bjarnason byggðafræðingur vegna hugmynda um breytingar. Björn Þorláks ræðir við hann.

Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar 30 Sep 2026

Miðvikudagur 30. september Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Rebecca Lív Biraghi barnastjarna og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona segja Gunnari Smára frá Svikasögum í Borgarleikhúsinu. Ingveldur Ýr Jónsdóttir, formaður KÓRÍS, Margrét Bóasdóttir frá Landssbambandi blandaðra kóra, Arnar Halldórsson frá Karlakórasambandinu og Sunna Karen Einasdóttir frá Ungíkór- nýju sambandi barna og ungmennakór ræða við Björn Þorláks um kórsöng og kórstarf og nýjan áfanga og viðurkenningu.

Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar 29 Sep 2026

Þriðjudagur 29. september Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir samlífi örveru og manna. Í samtali við Björn Þorláks kallar þær almenning til aðstoðar í þágu vísindanna. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni með Birni Þorláks. Í kvöld ræða þeir skuldbindingar SÁÁ og Bókun 35. Guðmundur Ragnar fór til Brasilíu til að læra shamanisma hjá töfralækni Huni Kuin-frumbyggja í Amazonregnskóginum. Í samtali við Ásdísi Olsen ræðir hann hjónaband sitt með dóttur töfralæknisins í Pinuya-þorpinu. Þar hefur hann fundið innri frið, sátt og langþráða tilfinningu að tilheyra.

Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar 28 Sep 2026

Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig vandinn horfir við henni. Thomas Möller já-ari og Erna Bjarnadóttir nei-ari ræða við Gunnar Smára um stöðu Íslands gagnvart Evrópu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess hversu langt Evrópusambandið er til í að teygja sig Kanada. Óðinn Jónsson, blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv, spáir í spilin um framtíð frétta og fjölmiðlunar hér á landi í samtali við Björn Þorláks. Hvað breytist þegar keppinautar Rúv hverfa frá þjónustu, einn á fætur öðrum?

Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir 27 Sep 2026

Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví 26 Sep 2026

Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39 25 Sep 2026

Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.

Tengd hlaðvörp