Ekkert plan cover

Ekkert plan

Ekkert plan

Í hlaðvarpinu Ekkert plan mun áhrifavaldurinn Fanney Dóra fara um víðann völl - mjög bókstaflega um allt það sem tengist því að vera fullorðin stelpu kona. Í hlaðvarpinu ætlar Fanney Dóra að fullorðnast með ykkur. Hver þekkir ekki að verða alltíeinu fullorðin og þurfa að græja þetta allt sjálf? Sjálfsrækt, atvinna, sambandið, móðurhlutverkið, félagslífið, líkamsrækt og allt á milli himins og jarðar. Fanney Dóra ætlar að fá til sín góða gesti ásamt því að takast á við umræðuefnin með hlustendum. Ekkert plan en samt er allt á hreinu.

Í hlaðvarpinu Ekkert plan mun áhrifavaldurinn Fanney Dóra fara um víðann völl - mjög bókstaflega um allt það sem tengist því að vera fullorðin stelpu kona. Í hlaðvarpinu ætlar Fanney Dóra að fullorðnast með ykkur. Hver þekkir ekki að verða alltíeinu fullorðin og þurfa að græja þetta allt sjálf? Sjálfsrækt, atvinna, sambandið, móðurhlutverkið, félagslífið, líkamsrækt og allt á milli himins og jarðar. Fanney Dóra ætlar að fá til sín góða gesti ásamt því að takast á við umræðuefnin með hlustendum. Ekkert plan en samt er allt á hreinu.

Að vera kúl eða vera ekki kúl, það er spurningin ft. Perla í Wagtail

0:00 0:00

Þættir

Að vera kúl eða vera ekki kúl, það er spurningin ft. Perla í Wagtail 08 Nov 2026

Perla kom ekki tómhent í Ekkert plan heldur kveikti hún svo sannarlega í jólastemningunni! Perla stofnaði Wagtail fyrir átta árum og við ræddum aðeins um það og ótrúlega margt annað eins og okkur einum er lagið. Ekkert plan er í boði Landbankans og Happy Hydrate

Það má vera gaman að fjárfesta ft. Anna Lilja 01 Nov 2026

Tilgangurinn með Ekkert plan er að fullorðnast saman. Í dag ætlum við heldur betur að fullorðnast, því hvað er fullorðinslegra en að fjárfesta? Anna Lilja ætlar að fara yfir þetta allt saman með okkur og sýna okkur að þetta má vera skemmtilegt.

Þú ert mjög sæt með hár ft Tania Lind 25 Oct 2026

Í þætti vikunnar kom Tania Lind, hún hefur verið að kljást við Alopecia seinustu ár en það sem dró mig að henni er þetta magnaða hugarfar. Ég býð ykkur að fræðast með okkur en mikilvægast af öllu hlægja með okkur!

Það er heitt að vera hallærisleg 18 Oct 2026

Í þætti vikunnar förum við yfir markmiðaspjald ársins 2026, tvö vandamál í lausnahringnum og förum yfir markmiðasetningu og væntingar. Það var líka öfugsnúin vika því ég gleymdi náttfötunum í þetta skiptið.

Þú mátt segja þetta en ekki ég ft. Jakob Jóhann 11 Oct 2026

Það hlaut að koma að því að litli bróðir minn Jakob Jóhann kæmi hlaðvarpið. Við slúðruðum svolítið, fórum í lausnahringinn og fundum reyndar ekki lausn á öllu en áfram gakk. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate

Losaðu þig við óvelkomna orku ft. Ellý Ármanns 04 Oct 2026

Ellý Ármanns kom í Ekkert plan og gerði mig heldur betur orðlausa! Ég mæli innilega með því að hlusta á þáttinn í hvert einasta skipti sem þig vantar að komast á hærri tíðni.

Fórstu í bótox svikari? 27 Sep 2026

Í þætti sex af Ekkert plan fór ég inná ansi mörg sprengjusvæði. Ég legg til að þið hlustið með opnum hug og eins og alltaf þá verði þið að senda á mig ef þið tengið eða jú tengið alls ekki neitt. Þátturinn er í boði Happy Hydrate.

Mamma, það segir þetta engin ft. Mamma 20 Sep 2026

Það er enginn önnur en Mamma sem er mætt í hlaðvarpið að þessu sinni. Hún er minn eigin lífsþjálfi og flestir ættu að vilja hafa hana í sínu horni. Við förum yfir vandamál úr lausnahorninu gagnvart stjúpfjölskyldum. Þaðan förum við yfir víðan völl, hvorug með plan eins og við viljum hafa það.

Því sem þú ert ekki að breyta ertu að velja ft Fanney Skúla 12 Sep 2026

Fanney Skúla kemur í fjórða þátt af Ekkert plan og fer yfir lífið sitt seinustu árin með okkur. Hvernig er að vinna sem markaðsmanneskja, vera einstæð móðir og að hafa verið ung móðir - til að stikla á stóru.

Það eru bara lausnir guys 06 Sep 2026

Í þætti þrjú er nýr liður! Lausnahorn Fanneyjar byrjaði af fullum krafti með vandamál sem eflaust margir tengja við. Það er að sjálfsögðu ekki eina sem ég fer yfir í þættinum enda er ekkert plan.

Ég þarf að ögra þér aðeins ft. Kara Hólm 30 Aug 2026

Kara Hólm kom upp í rúm til mín og við ræddum um deitmenningu, body positivity og ýmislegt fleira, enda er ekkert plan og engin dagskrá.

Það er verið að öskra á þig 23 Aug 2026

í fyrsta þættinum fer ég yfir seinasta árið, hvernig frestunar áráttan endaði á að vera það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég hef fullorðnast mikið seinasta árið og ég hvet ykkur til að fullorðnast með mér!

Ekkert plan en með allt a hreinu 23 Aug 2026

Kynningarþáttur fyrir hlaðvarpið Ekkert plan!

Tengd hlaðvörp