Þjóðmál cover

Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp

0:00 0:00

Þættir

#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp 13 Nov 2026

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson mæta á Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin. Í upphafi er farið yfir glæsilegt Hátíðarkvöld Þjóðmála og verðlaunahafa ársins, rætt um nýtingu starfsmanna Þórkötlu á bílskúr í Grindavík og rýnt í lokasprett hlutafjárútboðs Bláa lónsins. Þá er borin saman skattastefna jafnaðarmanna í Danmörku, ákvörðun Kópavogsbæjar að lækka fasteignaskatta á fyrirtæki, stöðuna í Landsvirkjunarmálinu, nýjustu verðbólguspár fyrir komandi vaxtaákvörðun, ákvörðun ESA um að fella niður rannsókn á Lyfjaveri tveimur árum eftir húsleit og nýlegt bréf Fjölmiðlanefndar til ráðherra. Þá tökum við fyrir fasta liði eins og venjulega, gefum gjafir og kynnum nýjan leik í aðdraganda jólanna.

#475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti 09 Nov 2026

Kaffispjall vikunnar er tekið upp á Retreat hótelinu í Bláa lóninu. Þar er rætt við Grím Sæmundsen, stofnanda og stjórnarformann Bláa lónsins, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, í aðdraganda hlutafjárútboðs félagsins sem fram fer í vikunni. Við rýnum í stóru spurningarnar varðandi fyrirhugaða skráningu félagsins, ástæður þess að nú er stefnt á hlutabréfamarkað, um uppbygginguna og vöxtinn framundan, kaupin á Arctic Adventure og hvernig það fer saman við rekstur baðlóna og hótela, fjárfestingar í öðrum baðlónum, fjárhagslega stöðu félagsins og fleira. Þá er einnig rætt um boðaða skattahækkanir á ferðaþjónustuna, vöxt greinarinnar á liðnum árum og stöðu hennar nú, breytt áhættumat vegna jarðhræringa og margt fleira.

#474 – Viðtal – Karl Wernersson 08 Nov 2026

Við ræðum við Karl Wernesson athafnarmann í sérstökum aukaþætti. Karl hélt nýlega erindi, sem barið heitið „17 ár í súpunni“, þar sem hann rakti þau málaferli sem hafa litað líf hans í að verða tvo áratugi. Við ræðum hvernig mismundandi dómar hafa haft afdrifaríkar afleiðingar á Karl sem og aðra sem honum tengjast, ósamræmi í kerfinu, lífið á bakvið luktar dyr, fjárhagslegar afleiðingar og margt fleira sem þessu tengist.

#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda 06 Nov 2026

Þórður Gunnarsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta léttir og kátir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum enn á ný um vanda Viðreisnar þar sem Landsvirkjunarmálið og staða fjármálaráðherra eru meðal annars í brennidepli auk þess sem bent er á enn fleiri dæmi sem sýna hvers konar kerfisflokkur Viðreisn er orðinn. Þá er rætt um tíst framkvæmdastjóra Flokks fólksins sem vill draga fram kjarnorkusprengjurnar, ummæli utanríkisráðherra í garð fv. forseta, stöðuna í Bandaríkjunum eftir kosningar fyrr í vikunni, nýjan þjóðarpúls, ummæli forsætisráðherra um ferðaþjónustuna og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, bíómyndameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#472 – Kaffispjall með Boga Nils 03 Nov 2026

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mætir í yfirgripsmikið viðtal þar sem farið er beint í kjarnann á rekstri og framtíð félagsins. Við ræðum afkomuna og horfur í rekstri, áhrif eldsneytisverðs, flotaendurnýjun, breytta samsetningu farþega, eldfim kjaramál, samskipti við flugstéttir og áskoranir við að tryggja samkeppnishæfni án þess að skaða orðspor félagsins. Þá er einnig rætt um raunverulegt markmið fyrirhugaðrar starfsemi á Möltu, hvenær vænta megi aukinnar arðsemi, umræðu markaðsaðila um skort á leiðtogum innan hluthafahópsins, helstu vaxtartækifærin í náinni framtíð og margt fleira.

#471 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Tómasi Þór – Þar sem er reykur er eldur 30 Oct 2026

Sigríður Á. Andersen og Tómas Þór Þórðarson mæta á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin í stjórnmálum, efnahagslífi og samfélagsumræðunni. Af nógu er að taka, mögulegum heimsendingum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, súra stemningu innan Viðreisnar sem og skattastefnu flokksins sem segist ekki vilja hækka skatta en gerir það samt, hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar, hugmyndir um sölu á Ljósleiðaranum, komu trúaröfgamanns til landsins, svansvottaða viðburði og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og fleira allt á sínum stað.

#470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður 27 Oct 2026

Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta og þess að réttarríkið standi undir nafni. Þá ræðum við einnig um önnur samfélagsmál, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu.

#469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí 23 Oct 2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja 20 Oct 2026

Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar greinar hans þar sem kallað er eftir auknu frelsi í samfélaginu, skort á stuðningi við þau verkefni sem hann hefur lagt áherslu á, beitingu húmors í stjórnmálum, forsetaframboð, slaufunarmenningu og margt fleira.

#467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun 16 Oct 2026

Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma 13 Oct 2026

Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira.

#465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður 09 Oct 2026

Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svið, hraðaspurningar og bókameðmæli.

#464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar 06 Oct 2026

Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. Sjónum er einnig beint að brothættri stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Björn rifjar upp fyrri ummæli sín um að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði sem alvöru stjórnmálaflokkur og metur þá þróun sem orðið hefur. Að lokum er slegið á sögulega strengi þegar farið er yfir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjevs í Höfða, en í vikunni eru liðin 40 ár frá þeim sögulega viðburði sem Björn fylgdist náið með sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.

#463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af 02 Oct 2026

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ, kosningastjóra á launum hjá utanríkisráðuneytinu og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar og hraðaspurningar, auk þess sem viðmælendur stíga á svið með eigin málefni.

#462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt 29 Sep 2026

Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veitingastaði, hvernig heimsendingum kann að verða háttað í framtíðinni og margt annað.

#461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja 25 Sep 2026

Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll hálaunastétta, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni í íslensku atvinnulífi. Einnig er rætt um tilefni og tilgang funda sem utanríkis- og forsætisráðherrar sækja nú erlendis, úrillan fjármálaráðherra, stöðu fjölmiðla og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, viðmælendur reima á sig skó og stíga á svið, skoða mögulega ferðafélaga, mæla með bókum og svara hraðaspurningum.

#460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði 22 Sep 2026

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra og óverðtryggðra lána við mismunandi vaxtastig, um sparnað og fjárfestingar, raunhæf dæmi um fasteignakaup ungs fólks og margt fleira.

#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni 18 Sep 2026

Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bílaleigur sem eru að fá Skattinn í bakið eftir að hafa farið að ráðum Skattsins, áhrif gervigreindar á hagkerfið og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar.

#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna 15 Sep 2026

Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á hegðun fólks, um afskipti hins opinbera af fjölmiðlum og margt fleira. Hér er um að ræða aðgengilegt samtal fyrir alla sem vilja dýpri skilning á samfélagsmálum, efnahagslífinu og frelsisbaráttunni á Íslandi í dag.

#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað 11 Sep 2026

Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur reima á sig skóna og stíga á svið.

#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum 08 Sep 2026

Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar.

#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar 04 Sep 2026

Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar.

#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál 31 Aug 2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira.

#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið 28 Aug 2026

Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun 25 Aug 2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.

#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa 21 Aug 2026

Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.

#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni 19 Aug 2026

Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.

#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann 18 Aug 2026

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.

#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar 14 Aug 2026

Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.

#447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns 11 Aug 2026

Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir jafnframt áhrif þess þegar ríkið stýrir álagningu á meðan launakostnaður hækkar, hvers vegna ný líftæknilyf breyta framlegðinni, hvernig séríslenskar mönnunarkröfur reyna á rekstur um allt land, jafnvægislistina á milli samfélagslega mikilvægrar heilbrigðisþjónustu og sjálfbærs atvinnurekstrar og margt fleira.

#446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður? 07 Aug 2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

#445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir 30 Jul 2026

Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra – þó það sé rætt að einhverju leyti líka. Við ræðum um það hvort að hægt sé að miðast við pylsuvísitöluna, um takmarkað fjármálalæsi þingmanns Samfylkingarinnar, sögu peninga og framtíð íslensku krónunnar, vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum, skatta og stærð ríkisvaldsins og margt fleira. Þá förum við yfir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar og hraðaspurningar þar sem meðal annars er spurt um bekkpressumet, olíuleit og bestu viðskiptaráðin.

#444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti 28 Jul 2026

Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.

#443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki 24 Jul 2026

Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.

#442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða 21 Jul 2026

Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferlið hefur í för með sér fyrir venjulegan borgara, hvaða áhrif þetta ferli kann að hafa á samkeppnishæfni landsins og margt fleira.

#441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr) 17 Jul 2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.

#440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni 14 Jul 2026

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að sambandinu sé það sem ætti að vera í forgangi hjá okkur næstu 5-10 árin.

#439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna 10 Jul 2026

Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.

#438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu 07 Jul 2026

Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.

#437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf 03 Jul 2026

Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.

#436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi 30 Jun 2026

Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.

#435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur 26 Jun 2026

Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.

#434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku 23 Jun 2026

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögulega upptöku evru og þá hver áhrifin kunna að vera á lífeyriskerfið hér á landi og um leið stöðu almennings, samkeppni við erlenda sjóða, stöðu ungs fólks sem fær fasteignalán hjá sjóðunum og margt fleira.

#433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur 19 Jun 2026

Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma fyrirtækja segi ekkert til um rekstur þeirra, gaslýsingu um ríkisfjármál, ásýndarstjórnmál og margt fleira. Þá eru hrós vikunnar og hraðaspurningar á sínum stað – auk þess sem við mælum með bæði bók og bíómynd þessa vikuna í eldhressum þætti.

#432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf 16 Jun 2026

Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel efnahagslega með því að lækka skatta og auka svigrúm fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að athafna sig í landinu (oft þvert gegn vilja Evrópusambandsins), mýtur um ástæður þess að matvælaverð lækkaði í Svíþjóð og Finnlandi á sínum tíma, ótrúverðuga stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, afskipti ríkisins af bílainnflutningi og óraunhæf markmið um orkuskipti, barnfóstruríkið sem vill setja okkur reglur um allt mögulegt og margt fleira.

#431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita 12 Jun 2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, hugmyndafræðilegan slag um bankaskatta, ESB-vegferðina sem tekur á sig sífellt skrýtnari mynd, hlutdrægni Rúv, einkennilegt innlegg Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá er hrós vikunnar og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar að sjálfsögðu á sínum stað.

#430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi 09 Jun 2026

Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fólks á fjárfestingum og fleira í þeim dúr. Gestirnir horfa einnig fram á veginn og meta teikn á lofti um kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, brothættan byggingarmarkað og áskoranirnar framundan í íslensku hagkerfi. Þá er einnig fjallað um viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins, til dæmis boðaðar skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem bætist þá við skattahækkanir á sjávarútveg og ferðaþjónustu.

#429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið? 05 Jun 2026

Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild, leyndardóminn um bein Jónasar Hallgrímssonar, breyttar fyrirsagnir á vef Rúv og margt fleira. Þættinum lýkur á léttari nótum með almyrkvasúkkulaði Nóa Síríus, hrósi vikunnar og krefjandi hraðaspurningum frá gestum Kringlukrárinnar.

#428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin 03 Jun 2026

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur við næst á hennar vegferð. Samhliða því að horfa fram á veginn stiklar hún á stóru á viðburðaríkum pólitískum ferli sínum, allt frá fyrstu skrefunum í ungliðahreyfingunni yfir í krefjandi ráðherraembætti.

#427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna 02 Jun 2026

Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða flugmanna, oftúlkanir stjórnvalda og ríkisfjölmiðilsins á skýrslu um kosti í gjaldeyrismálum, horfurnar í hagkerfinu, ómarkvissar forsendur fjárlaga og margt fleira.

Tengd hlaðvörp