Kaosklúbburinn
Kaosklúbburinn
Þrjár vinkonur og mæður með þér í kaosinu. Alexandra, Áslaug og Konný ræða hin ýmsu málefni - öll velkomin í klúbbinn. 100% trúnaði heitið.
Þrjár vinkonur og mæður með þér í kaosinu. Alexandra, Áslaug og Konný ræða hin ýmsu málefni - öll velkomin í klúbbinn. 100% trúnaði heitið.
AFSLÁTTUR AFSLÁTTUR
Þættir
Smáhrifavaldarnir ræða yfirvofandi afsláttardaga, eða afsláttarmánuð kannski frekar. Förum í gömlu góðu liðina, hvort myndiru frekar?, 2 staðreyndir 1 lygi, random meðmæli vikunnar og kaos vikunnar.
TW - Ræðum fæðingarþunglyndi frá mínútu 00:20:00 til sirka 1:05:30. Liðirnir okkar að sjálfsögðu á sínum stað ásamt þessu þunga en á sama tíma mikilvæga málefni - fæðingarþunglyndi. Ef þú tengir við það sem rætt er í þessum þætti, endilega leitaðu til heilsugæslunnar, ljósmóður eða annarra fagaðila.
Vinkonurnar ræddu Tiktok trendið víðfræga “segðu mér að þú sért mamma án þess að segja það”. Liðirnir 2 staðreyndir og 1 lygi, hvort myndiru frekar og kaos vikunnar voru á sínum stað, ásamt nýjum óvæntum lið.
Fanney Dóra kom í skemmtilegt gelluspjall til okkar. Við fórum um víðan völl og ræddum til dæmis börnin, foreldrahlutverkið og samfélagsmiðla.
Ræðum nöfn og förum yfir sögur frá hlustendum. Liðurinn “Hvort myndiru frekar?” í boði hlustenda, förum í nýjan lið; random meðmæli vikunnar og svo er kaos vikunnar auðvitað á sínum stað.
Íslenska útgáfan af Tiktok-trendinu “we listen and we don’t judge” þar sem við ræðum ýmsa áhugaverða hluti. Munið bara að þetta er allt í 100% trúnaði.
Í þætti vikunnar ræðum við fyrsta klúður Kaosklúbbsins, erfitt hvort myndiru frekar og tökum fyrir hluti sem við gerum sem lætur okkur líða eins og við séum aðeins betri en aðrir.
Afmælisþáttur Alexöndru og Konnýjar og við ræddum hið heita umræðuefni, samfélagsmiðla.
Alexandra og Áslaug ræða um allskonar leikskólatengt, fara yfir leikskólatöskuna og að sjálfsögðu kaos vikunnar.
Ræðum meðgöngurnar okkar sjö í ekkert svo stuttu máli, daginn og veginn og kaos vikunnar.
Í þessum þætti ræðum við staðreyndir úr síðasta þætti, förum í skemmtilega liði og ræðum hluti sem við hefðum viljað vita um ýmislegt sem tengist því að vera fullorðinn.
Velkomin í Kaosklúbbinn! Í þessum þætti fáið þið að kynnast þáttastjórnendum, þeim Alexöndru, Áslaugu og Konný.