Heimsglugginn cover

Heimsglugginn

RÚV

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.

Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu

0:00 0:00

Þættir

Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu 12 Nov 2026

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um nokkuð af því sem er efst á baugi í erlendum fréttum, stríð Rússlands við Úkraínu og friðarviðræður, stjórnmálastöðuna í Bandaríkjunum þar sem Demókratar bættu enn einu öldungadeildarþingsætinu við sig og hafa nú 55, stjórnarmyndunartilraunir í Svíþjóð og Ísrael, kosningaúrslit á Nýja-Sjálandi og óróleika í grænlenskum stjórnmálum.

Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum 05 Nov 2026

Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þátturinn var tvöfalt lengri en venjulega.

Kosningar í fjórum ríkjum 29 Oct 2026

Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni.

Mikil seigla í hagkerfi heimsins 08 Oct 2026

Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnvel þegar kreppur skelli á eins og eftir hrunið 2008 hafi flest hagkerfi verið fljót að jafna sig.

Allt í hnút á Norður-Írlandi 01 Oct 2026

Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur. Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli.

Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús 24 Sep 2026

Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir Grænlands. Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólanna í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungríkisins Danmerkur. Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið jóðsótt og fæðst mús.

Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð 17 Sep 2026

Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastöðuna í Svíþjóð. Þar er ljóst að hægri stjórn Ulfs Kristersson hefur misst meirihluta sinn og að Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna, reynir að mynda stjórn. Það verður ekki auðvelt því flokkarnir sem hún þarf að fylkja að baki sér eru ósammála um mjög margt.

Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta 10 Sep 2026

Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.

Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál 03 Sep 2026

Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er svo súrefnislaus að hann er nánast lífvana, fiskar, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið. Þá var rætt um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands. Í lokin var greint frá stöðunni í kosningabaráttunni í Svíþjóð þar sem spenna hefur aukist eftir að bilið á milli stjórnar og stjórnarandstöðu minnkaði mikið.

„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“ 27 Aug 2026

Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála. Bogi ræddi einnig um vandræði danska flotans við Grænland þar sem hætt var við eftirlitsferð sem Hvidbjørnen átti að fara í til Grænlands. Ástæðan er að ekki tókst að manna skipið.

Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð 20 Aug 2026

Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við upphaf seinna kjörtímabils síns ætla að verða boðberi friðar og krafðist þess að fá friðarverðlaun Nóbels. Fréttaskýrandi BBC segir að arfleifð hans gæti orðið eilífðarstríð við Íran. Í Svíþjóð er allt útlit fyrir ósigur stjórnar hægristjórnar Ulfs Kristerssons í kosningum 13. september. Tíu prósentustiga munur er á fylgi stjórnarinnar og fylgi mið- og vinstriflokka í stjórnarandstöðunni. Fréttaskýrendur segja að engri ríkisstjórn hafi tekist að ná upp svo miklum mun á svona skömmum tíma.

Farage tekst á við ruslatunnu 13 Aug 2026

Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemur ætíð fram í búningi með ruslatunnulíki á höfðinu. Count Binface hefur verið nefndur Fötufés, Ruslgrímur, Tunnuhaus og Tunnufés í íslenskum fjölmiðlum. Við heyrðum í Heimsglugganum nokkur brot úr viðtali við hann sem Alastair Campbell og Rory Stewart tóku við hann í þætti sínum The rest is politics.

„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál 02 Jul 2026

„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið. Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öðlaðist heimsfrægð með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum 1970. Við heyrðum Clayton-Thomas syngja You've Made Me So Very Happy.

„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ 25 Jun 2026

Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vinstri sveiflu innan Demókrataflokksins og óvinsældir Trumps forseta. Sigríður Rut segir mögulegt að vinsældir forsetans geti aukist á ný því að mörgu leyti megi líkja fylgjendum Trumps við sértrúarsöfnuð.

„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ 18 Jun 2026

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friðarsamningarnir eftir fyrri heimsstyrjöld voru gerðir þar og eru af mörgum taldir ein af meginástæðunum fyrir seinni heimsstyrjöldinni. Erlingur og Bogi ræddu strategíska stöðu Bandaríkjanna og Írans. Margir fréttaskýrendur telja að þrátt fyrir hernaðarlega yfirburði hafi Bandaríkin beðið strategískan ósigur og staða klerkastjórnarinnar á Íran sé á margan hátt sterkari en áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran í febrúarlok í ár. Þá var rætt um aukakosningarnar til breska þingsins í dag. Andy Burnham reynir að komast á þing þar sem hann hyggst reyna að velta Keir Starmer úr sessi sem leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra.

„Ég elska verðbólgu…“ 11 Jun 2026

Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þar var einnig fjallað um hernaðaruppbyggingu Rússa á vesturlandamærum sínum sem Norðurlönd og Eystrasaltsríkin telja ógna sér.

Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku 04 Jun 2026

Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum og skattalækkunum við misjafnlega hrifningu hagfræðinga.

Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin 28 May 2026

Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166 milljónir króna. Hjónabandi Murrells og Sturgeon er lokið og hún kveðst ekki hafa vitað um fjárdrátt eiginmannsins og rannsókn hafi leitt í ljós sakleysi hennar. Í Svíþjóð hefur stjórnarandstaðan tæplega 10 prósentustiga forskot á stjórnarflokkana en kosið verður til þings 13. september. 53,9 prósent segjast styðja stjórnarandstöðuflokka í nýrri könnun, 44,2 prósent kveðast ætla að kjósa einhvern stjórnarflokkanna. Í lokin var rætt um stöðuna í átökum Bandaríkjanna og Írans og möguleika á friðarsamningum.

Norræn öryggismál og fleira 21 May 2026

Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í Finnlandi og fleiri ráðamenn og sérfræðingar. Í Heimsglugganum var einnig rætt um utanríkisráðherrafund NATO, freigátukaup Svía, stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku, aukna bjartsýni Úkraínumanna, heimsókn útsendara Trumps til Grænlands og stuttlega um heimsóknir til Kína þar sem svo virðist sem bæði Trump og Pútín hafi farið bónleiðir til búðar.

Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi 07 May 2026

Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höfuð og herðar yfir aðra breska stjórnmálaflokka mega muna fífil sinn fegri. Þetta eru Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sem eiga í vök að verjast. Reform og Plaid Cymru, sem vill að Wales verði sjálfstætt ríki í framtíðinni, keppast um að verða stærsti flokkurinn í Senedd, þingi Wales. Verkamannaflokkurinn hefur stjórnað Wales í næstum þrjá áratugi en er spáð þriðja sæti að þessu sinni. Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, virðist hins vegar eiga góða möguleika á að halda völdum. Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Bogi Ágústsson ræddu um skosk stjórnmál og kosningabaráttuna.

Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga 16 Apr 2026

Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föðurbróður sínum Aksel V. Johannesen. Daglega berast fréttir af því að Donald Trump skammi Leó páfa XIV og saki hann um vinstrimennsku, standi á sama þó að Íranir komi sér upp kjarnorkuvopnum og glæpamenn vaði uppi óáreittir. Í lok Heimsgluggans sagði Bogi Ágústsson frá minningarstund gyðinga vegna helfararinnar og kvaðst hafa fellt tár.

Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi 09 Apr 2026

Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest, var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um Ungverjaland og horfurnar í stjórnmálum.

Flókin staða eftir kosningar í Danmörku 26 Mar 2026

Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981. Skýrslan sýnir þróun og stefnur á Norðurlöndum á sviðum eins og lýðfræði, vinnumarkaði og efnahagsmálum. Skýrslan er unnin af Nordregio sem er rannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.

Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ 19 Mar 2026

Lýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í Siumut-flokknum á Grænlandi, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti, hafa sagt sig úr flokknum. Í Bandaríkjunum eiga ráðamenn í mestu vandræðum með að skýra ástæður árásanna á Íran og skýringar eru mótsagnakenndar. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1.

Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna 12 Mar 2026

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það leiði til umtalsverðra almennra verðhækkana um allan heim. Í Bretlandi beit Keir Starmer forsætisráðherra hressilega frá sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Hann á annars undir högg að sækja þó að engar sláandi upplýsingar kæmu fram í skjölum sem birt voru í gær um aðdraganda ráðningar Peters Mandelsons sem sendiherra í Bandaríkjunum. Skipan Mandelsons var umdeild og hann var rekinn úr starfi vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Útlit fyrir stjórnarskipti í Færeyjum og ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásirnar á Íran 05 Mar 2026

Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti.

„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“ 26 Feb 2026

Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta um stríðið í Úkraínu sem sagði Pútín Rússlandsforseta ekki geta unnið stríðið en vildi heldur ekki semja um frið. Þá var rætt um mikilvægar aukakosningar til breska þingsins í dag þar sem þrír flokkar geta unnið. Raving Monster Loony Party er ekki í þeim hópi en hlustendur fengu að heyra í frambjóðanda flokksins sem kallar sig Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið.

Millibilsástand í fjármálum heimsins 19 Feb 2026

Ásgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin. Ásgeir Brynjar segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfinu, dollarinn sé ekki lengur viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við.

Erna Solberg hættir eftir 22 ár sem formaður Høyre 12 Feb 2026

Heimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttlega um kosningar í Danmörku og Svíþjóð sem verða síðar á árinu.

Margt áhrifafólks í vandræðum vegna Epstein-skjalanna. 05 Feb 2026

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist úr starfi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, gæti misst stöðu sína vegna þess að hann skipaði Mandelson í sendiherraembættið. Í Noregi vill tæplega helmingur þjóðarinnar ekki að krónprinsessan Mette-Marit verði drottning vegna náinna tengsla hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann var dæmdur fyrir barnaníð.

Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi 29 Jan 2026

Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu stjórnmálaflokkarnir tveir sem lengst af hafa farið með völd, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, glíma báðir við tilvistarvanda. Ástæðan er uppgangur Reform, Umbótaflokksins, undir stjórn Nigels Farage. Reform nýtur mestra vinsælda breskra flokka samkvæmt nýjustu könnunum. Fjöldi málsmetandi fyrrverandi ráðherra hefur hlaupist á brott úr Íhaldsflokknum og gengið til liðs við Reform.

Úkraína og mögulegt samkomulag um Grænland 22 Jan 2026

Friðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi og Úkraínu, var gestur Heimsgluggans og ræddi stöðuna í Úkraínu. Hann segir viðstöðulausar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu hafa leitt til rafmagnsskömmtunar, ekki sé hægt að hita hús í höfuðborginni Kyiv þegar rafmagnið fari. Hann segir þessar árásir séu stríðsglæpi. Bogi Ágústsson ræddi einnig stuttlega um bresk stjórnmál þar sem Robert Jenrick hafi yfirgefið Íhaldsflokkinn og gengið til liðs við Nigel Farage og Umbótaflokk hans, Reform. Þá var rætt um málefni Grænlands þar sem Trump Bandaríkjaforseti hafi lýst yfir að samkomulag „til eilífðar“ hafi tekist.

Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland 15 Jan 2026

Samtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi Ísraelshers. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að annað þrep vopnahléssamkomulags á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að afvopnast og Ísraelsher að draga sig enn frekar frá Gaza. Þá skal alþjóðleg nefnd taka við stjórn á Gaza og fjölþjóðlegt friðargæslulið sjá þar um öryggi. Í lok Heimsgluggans var rætt um fund utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands með bandarískum ráðamönnum um Grænland. Ákveðið var að viðræðum yrði haldið áfram en Bandaríkjaforseti heldur til streitu kröfum um bandarísk yfirráð á Grænlandi.

Skrítin ásælni Trumps í Grænland 08 Jan 2026

Margir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem þeir vilja. Margt í málflutningi Donalds Trumps og annarra ráðamanna er beinlínis rangt, forsetinn hefur til dæmis haldið því fram að 30 þúsund manns búi á Grænlandi. Íbúar landsins eru nær tvöfalt fleiri eða tæp 57 þúsund.

Hlutabréfaverð vestra tvöfalt hærra en ætti að vera 11 Dec 2025

Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu og horfur í efnahagsmálum heimsins. Gylfi sagði að hann teldi að hlutabréfaverð í hlutfalli við hagnað fyrirtækja í Bandaríkjunum væri orðið tvöfalt hærra en það væri við eðlilegar aðstæður. Annars var Gylfi þokkalega bjartsýnn á horfur í efnahagsmálum heimsins og Íslands. Hann sagði að þrátt fyrir áföll ætti ekki að vera neitt óþolandi ástand á Íslandi þó að kannski muni ekki smjör drjúpa af hverju strái.

Úkraína og vandræði norskra og danskra krata 04 Dec 2025

Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna um fjárlög og staða Mette Frederiksen hefur veikst verulega eftir sveitarstjórnarkosningarnar í nóvember.

Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar 27 Nov 2025

Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans. Umræðuefnið var þátttaka Íslands í NATO og staða heimsmála. Davíð segir meðal annars að Íslendingar eigi allt undir því að alþjóðaskipulag sé virt og aðrar þjóðir viðurkenni að Ísland sé herlaust land. Rússnesk stjórnvöld hafi farið gegn þessu með innrásinni í Úkraínu og taka eigi alvarlega ógnina sem stafi af stjórnvöldum í Kreml.

Trump snýr við blaðinu og stórtap Jafnaðarmanna í Danmörku 20 Nov 2025

Aðalefni Heimsglugga vikunnar voru dönsk stjórnmál og úrslit sveitarstjórnakosninga þar sem Jafnaðarmenn misstu embætti borgarstjóra Kaupmannahafnar eftir að hafa farið með forystu í höfuðborginni í 123 ár. Fyrst var þó rætt um lög, sem Donald Trump staðfesti í gær, og kveða á um að Epstein-skjölin svokölluðu verði birt. Trump talaði í kosningabaráttunni fyrir því að skjölin yrðu birt, breytti svo um stefnu eftir að hafa tekið við forsetaembættinu á ný og sneri svo aftur við blaðinu um síðustu helgi þegar hann sá fram á að lögin yrðu samþykkt í fulltrúadeildinni þrátt fyrir andstöðu hans.

BBC í ólgusjó og kristalnætur minnst 13 Nov 2025

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um vandræði breska ríkisútvarpsins vegna mistaka í fréttaskýringaþættinum Panorama sem fjallaði um Donald Trump. Einnig ræddu þau um minningarathafnir um kristalsnóttina svokölluðu í nóvember 1938 þegar nasistar réðust á heimili, eignir og samkunduhús gyðinga. Kristalsnóttin er talin hafa markað tímamót í ofsóknum gegn gyðingum.

Kosningasvindl og ólga í Tansaníu 06 Nov 2025

Fjallað var um Tansaníu í Heimsglugga vikunnar og einnig kosningarnar í Bandaríkjunum sem voru í fyrradag. Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, þekkir afar vel til í Afríku, hefur búið og starfað í nokkrum löndum álfunnar og er einn höfunda bókarinnar Afríka sunnan Sahara í brennidepli II, sem kom út í fyrra. Tansanía er stórt land og þar búa um 47 milljónir manna en fréttir frá landinu eru ekki daglegt brauð í vestrænum miðlum. Ólga og blóðug mótmæli í tengslum við forsetakosningar þar í síðustu viku hafa verið í fréttum. Samia Suluhu Hassan var endurkjörin forseti með 98 prósentum atkvæða og augljóst að brögð voru í tafli. Jón Geir sagði okkur frá Tansaníu og við byrjuðum fyrir meira en hundrað árum.

Trump hundsar þrískiptingu ríkisvaldsins 30 Oct 2025

Bandarísk stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar. Bogi Ágústsson ræddi við Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara um skautun, kjördæmabreytingar, borgarstjórnarkosningar í New York, valdsvið forseta og margt annað.

Vandræðaprinsinn Andrés 23 Oct 2025

Bresk málefni voru til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um stöðuna í breskum stjórnmálum þar sem Umbótaflokkurinn (Reform) ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálaflokka í könnunum og hver krísan á fætur annarri ríður yfir Keir Starmer og stjórn hans. Bogi ræddi svo við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann um Andrés prins, yngri bróður Karls þriðja konungs. Andrés hefur þurft að hætta að nota aðalstitla vegna tengsla við bandaríska barnaníðinginn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Sífellt bætast við nýjar upplýsingar um tengsl þeirra og hefur málið valdið konungsfjölskyldunni miklum vandræðum og varpað skugga á störf konungs.

Hrökklast úr stjórnmálum vegna hatursorðræðu 16 Oct 2025

Anna-Karin Hatt, leiðtogi Miðflokksins (Centerpartiet) í Svíþjóð, hættir eftir einungis fimm mánuði í starfi vegna hótana og hatursorðræðu. Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu afsögnina í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig valdarán á Madagaskar þar sem forsetinn, Andry Rajoelina, flúði land eftir mikil mótmæli þar sem afsagnar hans var krafist.

Vopnahlé á Gaza og ný bók um fjölþáttaógnir 09 Oct 2025

Heimsglugginn hófst á umræðu um vopnahlé á Gaza sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skýrði frá. Trump tilkynnti á samfélagsmiðlum seint á miðvikudagskvöld að tekist hefðu samningar um vopnahlé Hamas og Ísraelsmanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðuna. Aðalefni Heimsgluggans var samtal Boga og Bjarna Braga Kjartanssonar alþjóðastjórnmálafræðings um nýja bók um fjölþáttaógnir. Bjarni Bragi er einn höfunda bókarinnar.

Ógnin frá Rússlandi rædd á leiðtogafundi Evrópuleiðtoga 02 Oct 2025

Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands. Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæta. PAS vill náið samstarf við Vesturlönd og inngöngu í Evrópusambandið.

Drónar, danska ríkissambandið og stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps 25 Sep 2025

Bogi Ágústsson ræddi fyrst við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um drónaflug í Danmörku sem Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra lýsir sem fjölþáttaárás. Þau ræddu svo vestnorræna samvinnu og breytta afstöðu Færeyinga til sambandsins við Dani. Jafnvel Sambandsflokkurinn vill breytingar og flestir Færeyingar virðast vilja samband sem líkist því sem var með Danmörku og Íslandi 1918-1944. Þá var rætt um stórkarlalegar yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í vikunni, allt frá lyfjamálum til Úkraínustríðsins.

Herská Frederiksen og Bretar smjaðra fyrir Trump 18 Sep 2025

Bogi Ágústsson fjallaði um dönsk varnarmál og heimsókn Trumps Bandaríkjaforseta til Bretlands. Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir ætluðu að kaupa langdrægar eldlaugar. Frederiksen lýsti ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem þáttaskilum í dönskum varnarmálum. Aðeins eru örfáir dagar frá því að tilkynnt var um kaup á loftvarnarflaugum sem voru mestu vopnakaup í danskri sögu. Donald Trump Bandaríkjaforseti er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gestgjafarnir hafa skemmt honum með íburðarmiklum seremóníum og skrautsýningum. Allt var þetta á bak við lokaða múra Windsor-kastala svo forsetinn yrði ekki var við nein mótmæli.

Pólitísk morð í Bandaríkjunum og stjórnmál í Noregi eftir kosningar 11 Sep 2025

Charlie Kirk, ungur hægrisinnaður áhrifavaldur, var skotinn til bana á fundi í Utah Valley-háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Rætt var um pólitísk morð í upphafi Heimsgluggans. Aðalefnið var þó stjórnmálastaðan í Noregi eftir kosningarnar á mánudag. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með kosningunum og var gestur Heimsgluggans.

Spennandi stórþingskosningar í Noregi 04 Sep 2025

Norðmenn ganga til kosninga um helgina og útlit er fyrir spennandi kosningar þó að margir telji að þokkalegar líkur séu á að Jonas Gahr Støre verði áfram forsætisráðherra. Verkamannaflokkur hans hefur farið með stjórnarforystu síðustu fjögur ár og frá því í febrúar setið einn í minnihlutastjórn. Verkamannaflokkurinn nýtur mests fylgis samkvæmt könnunum, næstur kemur Framfaraflokkurinn. Hann er pópúlískur hægriflokkur. Sylvi Listhaug, formaður flokksins, vill fækka innflytjendum og hún hefur talað fyrir þyngri fangelsisdómum. Flokkurinn hefur, eins og hægripópúlistar í mörgum öðrum löndum, farið mikinn um lög og reglu og vill skera niður fjárveitingar til umhverfis- og velferðarmála og minnka skriffinnsku.

Leiðtogafundur NATO og vandræði breska Verkamannaflokksins 26 Jun 2025

Bogi Ágústsson og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræddu niðurstöður leiðtogafundar NATO í Haag í gær. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo við Boga um vandræði breska Verkamannaflokksins. Stór hluti þingflokksins hefur lagst gegn frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu og niðurskurð um milljarða punda. Undir lokin sagði Björn frá því að Morgunvaktin er að fara í sumarfrí og Heimsglugginn sömuleiðis. Umsjónarmaður Heimsgluggans snýr sér að undirbúningi sjónvarpsþátta um „sögumisskilning“ Íslendinga þar sem leitast verður við að skoða sögu landsins í öðru ljósi en venja er.

Tengd hlaðvörp