Hlaðvarp Heimildarinnar cover

Hlaðvarp Heimildarinnar

Heimildin

Í hlaðvarpi Heimildarinnar má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.

Í hlaðvarpi Heimildarinnar má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.

Eitt og annað: Eitt er að lofa, annað að efna

0:00 0:00

Þættir

Eitt og annað: Eitt er að lofa, annað að efna 08 Nov 2026

Flestir leiðtogar vildu draga úr svínaeldi til útflutnings, en útflutningur á grísum hefur aldrei verið meiri.

Eitt og annað: Málverkið af danska kónginum 25 Oct 2026

Í Friðriksborgarhöllinni á Norður – Sjálandi má sjá málverk af dönskum þjóðhöfðingjum, langt aftur í aldir. Fyrsta málverkið af Friðriki X eftir að hann varð konungur Danmerkur var afhjúpað fyrir skömmu. Verkið er umdeilt.

Eitt og annað: Óttast stefnubreytingu hjá DR 10 Oct 2026

Danskir leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, myndatökumenn og fleiri sem unnið hafa að gerð leikinna sjónvarpsþátta hjá Danska sjónvarpinu, DR, óttast stefnubreytingu undir stjórn nýs yfirmanns. Minni áhersla verði lögð á gerð vandaðra leikinna þáttaraða, sem hafa verið ein helsta skrautfjöður DR mörg undanfarin ár og skapað miklar tekjur.

Eitt og annað: Comté eða ekki Comté 27 Sep 2026

Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa, því hafa framleiðendur Comté ostanna fengið að kynnast að undanförnu.

Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1 18 Sep 2026

Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna Magnússonar með Rósu Þorsteinsdóttur, fáum innsýn í dagskrá hátíðarinnar og spjöllum við Atla Frey Hjaltason um þjóðdansa, tónlist og þjóðlistir. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem við tökum púlsinn á stærstu þjóðlistahátíð landsins.

Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps? 13 Sep 2026

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niðurskurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennskunni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangursskipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkjaforseta.

Eitt og annað: 50 þúsund slysagildrusvalir 02 Aug 2026

Á húsum í Danmörku eru að minnsta kosti 50 þúsund svalir sem eru beinlínis hættulegar, að mati Dönsku byggingatæknistofnunarinnar. Fyrir skömmu lést húsvörður íbúðablokkar í Kaupmannahöfn þegar litlar svalir á húsinu hrundu.

Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi 19 Jul 2026

Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.

Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina 05 Jul 2026

Ungum Dönum sem hjóla daglega í skólann eða til vinnu hefur fækkað talsvert á síðustu árum. Í Danmörku fjölgar bílum ár frá ári og á heimilum þar sem áður var til einn bíll eru þeir nú iðulega tveir, jafnvel þrír.

Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum 21 Jun 2026

Þótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.

Eitt og annað: Glansinn hverfur af stígvélunum 07 Jun 2026

Svartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum um háglansandi skófatnað varðanna.

Eitt og annað: 50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar 22 Feb 2026

Sirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með stærsta þjóðgarði heims.

Eitt og annað: Þýski bílabransinn í bobba 08 Feb 2026

Flestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið fram undan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum árum „reykspólað“ inn á bílamarkaðinn.

Eitt og annað: Fjölgun í hernum veldur vanda 25 Jan 2026

Fjölgað verður um mörg þúsund manns í danska hernum á næstu árum. Slík fjölgun mun, að mati sérfræðinga, hafa mikil áhrif á danskan vinnumarkað og kalla á vinnuafl frá öðrum löndum. Framleiðsla vopna og skotfæra verður jafnframt stóraukin í Danmörku.

Eitt og annað: Kuggurinn: Á meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku 11 Jan 2026

Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.

Þjóðhættir #73: Jólaskammturinn, laufabrauð og mandarínuát 23 Dec 2025

Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól! Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Færa sig sífellt upp á skaftið 21 Dec 2025

Á Eystrasalti og svæðinu þar umhverfis eru mestar líkur á að Rússar reyni að beita hervaldi gegn NATO-ríkjum. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Leyniþjónustu danska hersins. Rússar færa sig í auknum mæli upp á skaftið og sýna ógnandi framferði.

Þjóðhættir #72: Sjálfbærni og matarhættir 16 Dec 2025

Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Hægfara aldursforseti 14 Dec 2025

Kemst þótt hægt fari er málsháttur sem flestir kannast við. Hann á sannarlega við grænlandshákarlinn sem verður ekki kynþroska fyrr en við 156 ára aldur og getur orðið 400 ára, eldri en nokkurt annað hryggdýr. Hann setur þó engin hraðamet, nær mest 2,7 kílómetra hraða á klukkustund, syndir kafsund.

Þjóðhættir #71: Ljósmæður, meðganga og hjátrú 09 Dec 2025

Að þessu sinni verður umfjöllunarefni þáttarins spennandi nýsköpunarverkefni sem tveir nemendur í þjóðfræði, Birta Diljá Ögmundardóttir og Kári Thayer, unnu síðastliðið sumar í samstarfi við Þjóðháttadeild Þjóðminjasafn Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands og Evu Þórdísi Ebenezerdóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Hafa sofið á verðinum 30 Nov 2025

Ef netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum saman í lok október, vegna bilunar. „Danir og margar aðrar þjóðir hafa sofið á verðinum,“ sagði ráðherrann.

Þjóðhættir #70: Á slóðum þjóðlagatónlistar, þjóðdansa og þjóðernis 18 Nov 2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Eitt þekktasta skip í sögu Danmerkur 16 Nov 2025

Margir þekkja hið vinsæla lag Kim Larsen, Jutlandia, en það hefst á orðunum „Det var i 1949 eller cirka der omkring da der var krig I Korea“. Færri þekkja sögu þessa merka skips sem hófst árið 1934 og lauk fyrir 60 árum í Bilbao á Spáni.

Þjóðhættir #69: Reðursafnið, gestabækur og torfbæir 11 Nov 2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Þjóðhættir #68: Fjárréttir á Íslandi fyrr og nú 04 Nov 2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Stolið fyrir milljónir á hverjum degi 02 Nov 2025

Þjófnuðum úr dönskum matvöruverslunum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Í fyrra var daglega stolið vörum fyrir 5,5 milljónir danskra króna. Þar við bætast þjófnaðir úr annars konar verslunum. Kaupmenn vita vart sitt rjúkandi ráð í baráttunni við þjófana.

Þjóðhættir #67: Skynjun einstaklinga á návist framliðinna 28 Oct 2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Þjóðhættir #66: Alþýðutónlist og Vaka - þjóðlistahátið 21 Oct 2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.

Eitt og annað: Óvissan um flaggskipið 05 Oct 2025

Árum saman hefur ríkt mikil óvissa um framtíð Palads, eins elsta kvikmyndahúss Kaupmannahafnar. Allar hugmyndir varðandi framtíð hússins hafa hingað til verið slegnar út af borðinu en nýjasta hugmyndin fær jákvæð viðbrögð.

Eitt og annað: Titringur í kálgörðunum 21 Sep 2025

Í Danmörku eru tugir þúsunda smáhýsa, svonefnd kolonihavehus, sem mörg hver hafa verið byggð í leyfisleysi og í trássi við lög og reglur. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn vilja nú bregðast við og koma böndum á óreiðuna eins og það er orðað. Eigendur smáhýsanna eru uggandi.

Eitt og annað: Vilja fleiri kistur en færri duftker 07 Sep 2025

Margir danskir kirkjugarðar eru í fjárhagskröggum. Breyttir greftrunarsiðir valda því að tekjur garðanna hafa minnkað og duga ekki fyrir rekstrinum.

Eitt og annað: Hafmeyjan með stóru brjóstin 31 Aug 2025

Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn er þekkt víða um heim og flestir ferðamenn sem koma til borgarinnar í fyrsta sinn leggja leið sína út á Löngulínu til að sjá hana með eigin augum. Önnur og stærri stytta, Stóra hafmeyjan, hefur verið talsvert í fréttum að undanförnu, brjóst hennar fara fyrir brjóstið á embættismönnum í Dragør.

Eitt og annað: Enn lengist biðin 17 Aug 2025

Eftir margra ára seinkun og alls kyns vafstur var í apríl 2020 tilkynnt að göngin undir Femern beltið og samnefnt sund sem eiga að tengja Danmörku og Þýskaland saman yrðu tilbúin árið 2029, jafnt fyrir bíla og járnbrautarlestir. Nú er enn einu sinni komið babb í bátinn.

Eitt og annað: Kókaín, bananar og ferðatöskur 10 Aug 2025

Starfsfólki í 12 Coop verslunum í Danmörku brá í brún þegar verið var að bæta á bananahillurnar fyrir skömmu. Í bananakössunum voru ekki eingöngu bananar heldur einnig mörg hundruð kíló af kókaíni. Notkun á kókaíni hefur þrefaldast í Kaupmannahöfn á tíu árum og sömu sögu er að segja frá mörgum Evrópulöndum.

Eitt og annað: Ungir Svíar fengnir til að fremja voðaverk í Danmörku 27 Jul 2025

Tveir menn voru nýlega dæmdir til þungra refsinga í Bæjarrétti Kaupmannahafnar. Dómarnir hafa vakið athygli því þetta var í fyrsta sinn sem dæmt hefur verið, í Danmörku, fyrir að skipuleggja morð og ráða mann til verksins.

Samtal við samfélagið #15: Innflytjendur á Íslandi 07 Jul 2025

Ísland hefur tekið umtalsverðum breytingum undanfarna áratugi. Eftir að hafa löngum verið eitt einsleitasta samfélag í heimi er nú svo komið að nær fimmti hver landsmaður er af erlendu bergi brotinn. Innflytjendur hafa auðgað íslenskt samfélag á margvíslegan hátt og mikilvægt er að búa þannig um hnútana að allir sem hingað flytja geti verið virkir þátttakendur á öllum sviðum mannlífsins. Til að fræðast nánar um innflytjenda hérlendis er í þessum þætti rætt við Dr. Löru Wilhelmine Hoffmann, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, þar sem hún tekur þátt í verkefninu “Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi.” Hún starfar einnig sem stundakennari við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst. Sjálf er Lara þýsk en rannsóknir hennar hverfast um fólksflutninga, dreifbýli, tungumál og listir en hún varði doktorsritgerð sína í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri árið 2022. Titill doktorsritgerðarinnar er „Aðlögun innflytjenda á Íslandi: Huglægar vísbendingar um aðlögun innflytjenda á Íslandi byggðar á tungumáli, fjölmiðlanotkun og skapandi iðkun.“ Guðmundur Oddsson prófessor í félagsfræði við HA ræddi við Löru en í spjalli þeirra var komið inn á upplifun innflytjenda af inngildingu, hlutverk tungumálsins, stærð málsamfélaga, samanburð á Íslandi og Færeyjum og börn flóttafólks.

Eitt og annað: Færri vilja kunna brauð að baka 06 Jul 2025

Dæmigerður sunnudagsmorgunn er í hugum margra Dana skreppitúr í bakaríið eftir rúnstykkjum og vínarbrauði, og áður fyrr með viðkomu hjá blaðasalanum. Sífellt færri vilja gera baksturinn að ævistarfi og margir bakarar neyðast til að hafa lokað á sunnudögum. Lærðum bökurum hefur fækkað um 50 prósent á 10 árum.

Samtal við samfélagið #14: Ein af þessum sögum 02 Jul 2025

Ýmsir þættir hafa áhrif á hvar við ákveðum að búa til lengdar og hversu vel okkur líður í heimahögunum. Nýleg rannsókn sýnir til að mynda að einstaklingar sem búsettir eru í fáumennum byggðarlögum hérlendis og upplifa slúður um sitt ástarlíf eru tvöfalt líklegri til þess að ætla að flytjast búferlum en aðrir sem ekki upplifa slíkt. Til að færa okkur í allan sannleika um áhrif slúðurs á búsetu og búsetuánægju og margt fleira er í þessum þætti rætt við Dr. Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sérfræðing við Rannsóknasetur byggða- og sveitarstjórnarmála við Háskólann á Bifröst. Gréta lauk doktorsgráðu í félagsfræði frá Háskólanum á Akureyri á síðasta ári en titill ritgerðarinnar er „Ein af þessum sögum: Félagslegt taumhald, fólksflutningar og slúður: ungar konur í litlum byggðarlögum á Íslandi.“ Guðmundur Oddsson prófessor í félagsfræði við HA ræddi við Grétu en í spjalli þeirra kennir ýmissa grasa.

Samtal við samfélagið #13: Væntingar barna af erlendum uppruna til menntunar 17 Jun 2025

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Evu Dögg Sigurðardóttur en hún tók nýlega við stöðu lektors í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Eva lauk doktorsnámi í félagsfræði frá Kent háskólanum í Bretlandi árið 2021. Í doktorsritgerð sinni einbeitti hún sér að væntingum erlendra nemenda á Íslandi til framtíðarinnar. Þær Sigrún ræða um doktorsnámið hennar, helstu niðurstöðurnar úr ritgerðinni með áherslu á stöðu erlendra nemenda í íslenska menntakerfinu.

Eitt og annað: 0,0 prósent alkóhól 15 Jun 2025

Eftirspurn eftir óáfengum bjór eykst stöðugt. Í fyrra náði aukningin níu prósentum á heimsvísu. Því er spáð að þessi þróun haldi áfram á komandi árum og dönsk bjórfyrirtæki bregðast við.

Eitt og annað: Kannski ekki deigur dropi úr krananum 08 Jun 2025

Ef ekki verður gripið til aðgerða má búast við miklum skorti á ómenguðu neysluvatni á Kaupmannahafnarsvæðinu á næsta áratug. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá fyrirtækinu Hofor sem sér um öflun og dreifingu orku og vatns í Kaupmannahöfn og nágrenni.

Þjóðhættir #65: Hlautbollar, draumkonur og Jarðskinna 05 Jun 2025

Gestur þáttarins er að þessu sinni Kári Pálsson, þjóðfræðingur. Kári er fróður um ýmislegt sem tilheyrir fortíð okkar og sögu en hann var ungur þegar áhugi hans á þjóðsögum, Íslendingasögunum og norrænni trú kviknaði.

Samtal við samfélagið #12: Áherslur og skipulag verkalýðsfélaga 02 Jun 2025

Hvergi á byggðu bóli er stéttarfélagsaðild eins mikil og Íslandi en um 90% launafólks hér á landi tilheyrir stéttarfélagi. Styrkur verkalýðshreyfinga hérlendis sem erlendis ræðst hins vegar ekki einungis af fjölda félagsbundinna meðlima heldur ekki síður af áherslum, skipulagi og því hvernig verkalýðsfélög kjósa að beita sér.

Samtal við samfélagið #11: Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri 27 May 2025

Stundum æxlast lífið þannig að hlutir frestast og það á svo sannarlega við um hlaðvarp vikunnar. Í því ræðir Sigrún við Bjarka Þór Grönfeldt sem var lektor við Háskólann við Bifröst þegar viðtalið var tekið vorið 2023. Síðan hafa leiðir Bjarka legið í ýmsar áttir, en hann var meðal annars aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar fyrrverandi Félags- og vinnumarkaðsráðherra en vinnur nú sem sérfræðingur í samfélagsmálum hjá Landsvirkjun. Bjarki lauk námi í stjórnmálasálfræði frá Háskólanum í Kent í desember 2022, en hann hefur meðal annars skoðað sjálfhverfu, ófrjálslyndi og hvernig þjóðernishyggja hafði áhrif á stuðning við lýðheilsuaðgerðir á tímum heimsfaraldurs. Í hlaðvarpinu ræða þau Sigrún um námsferil hans, stjórnnmálasálfræði og helstu rannsóknaráherslur.

Eitt og annað: Með ömmu um hálsinn? 25 May 2025

Dönsk kona hefur sent danska þinginu tillögu sem gerir ráð fyrir að nota megi ösku látinna Dana í skartgripi. Lögum samkvæmt er það bannað í Danmörku en heimilt í mörgum löndum. Margir Danir vilja rýmri reglur varðandi jarðneskar leifar ættingja.

Þjóðhættir #64: Draumar, huldufólk og rökkrin: Þjóðsagnir íslenskra kvenna 21 May 2025

Gestur þáttarins er Júlíana Þóra Magnúsdóttir doktor í þjóðfræði, en doktors rannsókn Júlíönu bar yfirskriftina „Með eigin röddum: Sagnahefðir íslenskra kvenna undir lok nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar“. Í þættinum segir Júlíana frá rannsókn sinni, en hún greindi sagnir 200 kvenna, sem varðveittar eru í hljóðritasafni Árnastofnunnar. Þetta eru sagnir sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði þegar hann ferðaðist um landið. Hann safnaði þó ekki bara sögnunum heldur líka mikilvægum upplýsingum um samhengi þeirra, sem Júlíana greindi í rannsóknum sínum.

Samtal við samfélagið #10: Ójöfnuður í menntun: Framtíðarsýn og áskoranir innflytjenda í atvinnumálum 20 May 2025

Í þessum nýja þætti af hlaðvarpinu tekur David Reimer viðtal við Thomas Zimmermann sem er nýdoktor við félagsfræðideild háskólans í Frankfurt.

Þjóðhættir #63: Flateyri, sveppasósur og svæðisvitund 14 May 2025

Gestur þáttarins er Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur. Sæbjörg Freyja er búsett á Flateyri sem var vettvangur meistararitgerðar hennar í þjóðfræði. Þar rannsakaði Sæbjörg hvað felst í svæðivitund þeirra sem búsettir eru á Flateyri og samskipti ólíkra hópa samfélagsins. Sæbjörg hefur enn gaman að því að velta fyrir sér samfélaginu sem hún býr í og hvað hefur áhrif á viðhorf íbúanna þar.

Samtal við samfélagið #9: Trúarlegar víddir stjórnmála og pólitískar víddir trúarbragða 12 May 2025
Eitt og annað: 100 ára og enn að stækka 11 May 2025

Árið 1920, þegar dönsk stjórnvöld keyptu landskika á Amager-eyjunni við Kaupmannahöfn, grunaði líklega fáa að þarna yrði innan fárra áratuga fjölmennasti vinnustaður í Danmörku. Kastrup-flugvöllur er 100 ára.

Tengd hlaðvörp