Japp cover

Japp

Katrín Aagestad og Hildur Scheving

Katrín Aagestad og Hildur Scheving jappa á léttu nótunum um allt sem er merkilegt og ómerkilegt.

Katrín Aagestad og Hildur Scheving jappa á léttu nótunum um allt sem er merkilegt og ómerkilegt.

#22 Áhugamál

0:00 0:00

Þættir

#22 Áhugamál 09 Nov 2026

Hvað telst eiginlega áhugamál? Er það rautt flagg að eiga engin áhugamál? Og myndirðu fá ick ef kærastinn þinn væri atvinnumaður í hobby horsing? Í þessum þætti jöppum við um allt frá frímerkjasöfnun, brimbrettum og heklun yfir í fuglaskoðun, skrítin áhugamál og þá eilífu freistingu að kaupa allan búnaðinn fyrir eitthvað sem maður ætlar að prófa. Þátturinn er í boði IDE House of Brands, Hydrate Cocowater og Indó.

#21 Arnar Freyr og tölvuleikir 02 Nov 2026

Arnar Freyr frá tölvuleikjahlaðvarpinu Checkpoint Podcast mætir í Japp og við förum um víðan völl í heimi tölvuleikjanna.

#20 Spúkí 26 Oct 2026

Allt sem er spúkí og örlítið yfirnáttúrulegt 🎃 Íslenskar draugasögur, nornaveiðar, galdrabrennur og hryllingsmyndir sem hafa haldið fyrir okkur vöku. Nóg af hrolli, hjátrú og hlátri í þessum þætti 🕷️ Jappið er í samstarfi við IDE House of brands 🤝

#19 Nostalgía 19 Oct 2026

Nostalgíuferð aftur í gamla góða daga! Rifjum upp Juicy gallana, Spice Girls, sveitaböllin og dramatíkina í The O.C. Við ræðum tískuslysin, tónlistina, fyrstu skotin og allt það sem mótaði æsku okkar.

#18 Árný Fjóla og sveitin 12 Oct 2026

Í þessum þætti fáum við okkar fyrsta gest, hana Árnýju Fjólu! Við förum í sveitina og spjöllum um allt milli súrheisturna og traktora!

#17 Fegrunaraðgerðir 05 Oct 2026

Japp um útlit, fegurðarstaðla og allt sem við gerum til að líta aðeins betur út. Við rifjum upp hinn stórkostlega klikkaða raunveruleikaþátt The Swan, skoðum fegurðartrend í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur hversu langt við erum tilbúin að ganga í leitinni að „fullkomna“ útlitinu.

#16 Auglýsingar 28 Sep 2026

Auglýsingar sem við munum ennþá, slagorð sem sitja föst í hausnum og markaðsbrellur sem virka aðeins of vel. Af hverju munum við sumt í áratugi og hvað fær okkur eiginlega til að kaupa?

#15 Sjórinn (sjávarfang og sæhestar) 21 Sep 2026

Í þessum þætti jöppum við um sjóinn 🌊 Allt frá hafmeyjum og sjósundi yfir í Keikó og furðulegar staðreyndir úr djúpinu.

#14 Afmæli eða sköpunardagar? 17 Sep 2026

Í þessum þætti jöppum við um allt sem tengist afmælum 🎂 Afmælishefðir, afmælisstress, bestu og verstu afmælin, gjafir, veislur og allt sem fylgir því að eiga fæðingardag🎈

#13 Skvísu stærðfræði (e. girl math) 07 Sep 2026

Hvenær verða peningar ókeypis og hver er raunverulegur máttur ókeypis heimsendingar? Sokkinn skvísukostnaður og skvísa rað. Allt þetta og meira til í nýjasta Jappinu!

#12 Topp3 listar 31 Aug 2026

Í þessum þætti er allt sett í topp 3. Allt frá því augljósa yfir í það sem enginn bað um að væri sett á lista.

#11 Haustið og kósý maxxxing 24 Aug 2026

Endalaust japp um allt sem einkennir haustið, rútínu álag, súpur og pumpkin spice.

#10 Já eða nei (EKKI UM ESB) 17 Aug 2026

Ef þú vilt pásu frá Jágúst og Neigúst þá er þetta þáttur fyrir þig. Kjósum já eða nei um allt nema ESB.

#9 Týpur 10 Aug 2026

Japp um allar þær týpur sem umkringja okkur. Skinkan, baby goons, týpan okkar og hvað kemur eftir millenial green?

#8 Atvinna og fyrri störf 04 Aug 2026

Hér jöppum við um undarleg störf, draumastörfin, önnur störf sem eru ekki endilega mjög spennandi og allt þar á milli.

#7 Skammarkrókurinn 27 Jul 2026

Hlutir, fólk og fyrirbæri sem við viljum senda í skammarkrókinn.

#6 Ein stór samsæriskenning! 20 Jul 2026

Jappað um hinar ýmsu kenningar og samsæri. Hvernig voru píramídarnir eiginlega byggðir, hvað varð um Avril Lavigne og er Monopoly karlinn með einglyrni eða ekki?

#5 Gamla internetið, ADSL & GG 13 Jul 2026

Japp um gamla internetið og yfir í það nýja, söknuður betra.net tímanna og hvar er word bréfaklemman í dag?!?

#4 Sólviskubit og íslenska sumarkonan 06 Jul 2026

Hvað gera íslendingar þegar sumarið kemur? Allt undir miðnætursólinni er rætt í þessum þætti.

#3 Frægir íslendingar 29 Jun 2026

Frægir og ekki frægir og smá frægir. Við jöppum um frægð á íslandi og góða íslandsvini.

#2 Gellusjónarhornið: Fótbolti og go sports! 22 Jun 2026

Okkar persónulega og gellulega sjónarhorn á fótbolta og aðra eins íþróttaiðkun.

#1 Myndirnar sem mótuðu okkur 14 Jun 2026

Hið fyrsta japp, meðal annars um kvikmyndir með toxísk skilaboð til ungra kvenna sem við marineruðumst í sem unglingar.

Tengd hlaðvörp