Lestin
RÚV
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Pólitískir einkennisbúningar og mennskustimpill á listaverkum
Þættir
Svansmerkið, Fair Trade, Blómið, lífræn vottun, Skráargatið, Íslensk framleiðsla. Slíkir gæðastimplar eru vel þekktir á neysluvörum sem við kaupum í verslunum, En nú er að verða til markaður fyrir slík upprunavottorð fyrir listaverk, stimplar sem segja okkur að verkin séu samin af mannfólki en ekki spunagreindarforritum. Við skoðum málið. Hverjir voru grástakkar og blámenn? Á millistríðsárunum var deilt um hvort banna ætti pólitíska einkennisbúninga hér á Íslandi. Á Norðurlöndunum var það raunin, en hér á landi gekk bannið ekki í gegn. Pontus Järvstad, sagnfræðingur, rekur þessa sögu í þættinum,
Aðeins 1% af 266 fréttaskýringum Kastljóss á þessu ári fjölluðu um áhrif loftslagsbreytinga á íslenskt samfélag og aðeins 0,8% um loftslagslausnir. Þetta kemur fram í nýtti úttekt í tímaritinu Umskipti sem Jean-Remi Chareyre heldur úti. Eru fjölmiðlar hættir að fjalla um loftslagsmál og af hverju? Við ræðum málið við Jean-Remi og Kjartan Kjartansson, blaðamann á Vísi sem hefur fjallað ítarlega um loftslagsmál undanfarin 15 ár. Við ræðum svo um höfundarétt, frjálsar upplýsingar og gervigreind við Önnu Tumadóttur framkvæmdastjóra Creative Commons sem er stödd á landinu þessa dagna. Iceguys - The movie nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Strákasveitin vinsæla heldur til Bandaríkjanna til að hita upp fyrir Backstreet Boys, eða svo halda þeir. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina fyrir Lestina.
Verum viðbúin nefnist bæklingur sem almannavarnir senda frá sér á dögunum, með ráðleggingum um hvernig sé best að undirbúa sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu. Nýlega birtist bresk könnun sem sýndi að feður af þúsaldarkynslóðinni væru líklegastir til að fara alla leið í slíkum undirbúningi, eða heimsendapreppi. Kristján ræðir við annan millenial föður, tónlistarmanninn Helga Sæmund, um neyðarvistir og hamfaravitund. Draumar manna og véla eru viðfangsefni Hauks Más Helgasonar í pistli vikunna. Charles Darwin, langir gíraffahálsar og sjálfsmynd mállíkana koma meðal anars við sögu. Tengdasonur Bandaríkjaforseta, Jared Kushner, hefur verið nokkuð til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum undanfarna mánuði eftir að bók og heimildarmynd um hann komu út. Hann hefur meðal annars fengið það hlutverk að stilla til friðar á átakasvæðum, en nýtir hins vegar tækifærin sem gefast til að græða á tá og fingri.
Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fer yfir það sem bar hæst á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár. Tónleikar með íslensku hljómsveitinni Scam og breski rapparinn The Streets í Eldborgarsal Hörpu eru þar á meðal. Svo förum við af einni hátíð yfir á aðra. Þann 11. nóvember hefst sviðslistahátíðin Reykjavík Dance Festival. Að því tilefni heyrum við frá gangandi vegfarendum í Reykjavík hvaða lag fær þau til að dansa. Innslagið er unnið í samstarfi við Dagmar Lilju Stefánsdóttur sem verður með í Radio Bounce, útvarpsstöð sem fer í loftið á laugardaginn á FM 106.1 og er hluti af Reykjavík Dance Festival. Kristján Guðjónsson segir frá hlaðvarpsþáttum sem fjalla um nígeríska tónlistarmanninn Fela Kuti, en hlaðvarpsþættirnir hafa vakið verskuldaða athygli. Þar er tónlist, sögu og pólitík fléttað saman á frábæran hátt.
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson Houle og Agnar Freyr Stefánsson segja frá. Við kíkjum líka í röðina á Airwaves, þar sem fólk er komið að sækja armböndin sín, og fáum að heyra hvaða tónleikum það er spenntast fyrir. En svo er það ástin. Hvernig fjallar heimspekin um ástina? Emma Björg Eyjólfsdóttir ritstýrir tímaritinu Hugur, tímarit Félags áhugamanna um heimspeki, og að þessu sinni er ritið tileinkað ástinni. Við ræðum Emmu Goldman, Ethan Hawke og Kant.
Teitur Magnússon heimsækir Lestina og spjallar um nýja breiðskífu, Askur, sem kom út í september. Teitur hefur verið í eðalsveitum eins og Ojba Rasta, Fallegum mönnum og Slugs en hefur nú gefið út fjórar breiðskífur með þjóðlagaskotinni söngvaskáldatónlist. Gervigrein.is nefnist vefsíða sem skoðar fréttir sem birtast á íslenskum fjölmiðlum og segir notendum hversu líklegt sé að fréttin sé skrifuð af eða með aðstoð gervigreindar. Við ræðum við manninn á bakvið síðuna, Henrý Þór Jónsson. Við hringjum til Ítalíu og heyrum um skemmdarverk á listaverki í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum. Eyðileggingin gat hins vegar bara af sér umbreytingu á verkinu. Við spjöllum við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur um vandræði sem verða að lukku.
Í þætti dagsins förum við í göngutúr með Lísöndru Týru Jónsdóttur, danshöfundi og gjörningalistakonu. Hún er að undirbúa frumsýningu morgundagsins, á dansverkinu Op.5, sem verður sýnt á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Við ræðum við hana um piss, skólagöngu á meginlandinu og samband hennar við líkamann. Haukur Már Helgason, rithöfundur, gæti brugðið hlustendum í dag. Hann heldur áfram að hugsa upphátt um tækniþróunina sem á sér stað í samtímanum. Fríða Þorkelsdóttir ræðir við fatahönnuðina Thelmu Rut Gunnarsdóttur og Karítas Spano, um fatamerkið þeirra, Suskin.
Við hefjum þáttinn við Brandenborgarhliðið í Berlín þar sem svokölluð Z-kynslóðarmótmæli fóru fram síðastliðinn Laugardag. Mótmælin eru innblásin af mótmælunum í Frakklandi og kröfurnar eru keimlíkar. Ríkisstjórnin á að hætta að skera niður og hætta stríðsrekstri. Lóa Björk ræðir við nokkra fundargesti og skipuleggjendur mótmælanna. Popplagið Petal með Ariönu Grande verður krufið með tónlistarmanninum og poppsérfræðingnum Friðriki Margrétar Guðmundssyni. Og þar sem Lóa Björk er komin aftur til starfa kveðjum við Fríðu Þorkelsdóttur sem hefur leyst hana af undanfarna mánuði.
Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga og eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin sem er eftir Fjodor Dostojevskí kom upphaflega út árið 1880 og fjallar um þrjá bræður, svallarann Dmítrí, hugsuðinn Ivan og dýrlinginn Aljosha, og morð á föður þeirra. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Við spjöllum við Illuga um hvernig það er að lesa upp svona stórvirki. Þetta eru 1200 útprentaðar blaðsíður, rúmlega 100 lestrar, sem eru 50 klukkutímar í hlustun. Fjord eða Fjörður er eldfim og umdeild, margverðlaunuð mynd eftir rúmenska leikstjórann Christian Mungiu. Myndin fjallar um íhaldssama kristna norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og lendir þar í átökum við barnaverndaryfirvöld, sem finnst uppeldisaðferðir fjölskyldunnar ótækar. Kolbeinn Rastrick hefur mjög sterkar skoðanir á myndinni. Um síðustu helgi fór í loftið ný útvarpsstöð, reyndar ekki alvöru FM-útvarpsstöð heldur Plat-útvarp. Það eru plötuútgáfan Plata og plötusnúðahópurinn Plútó sem standa að Plat Radio sem ætlar að senda út í mynd og hljóði brakandi ferska raftónlist leikna í kjallara við Hlemm. Við fáum til okkar Guðmund Arnalds og Örlyg Arnalds sem standa að stöðinni. Við kíkjum líka á nýja útgáfu á Ódysseifskviðu og heyrum tónlist sem mun hljóma á Iceland Airwaves í næstu viku.
Þegar rithöfundur fær ekki listamannalaun eitt árið ákveður hann að ráða sig í Sauðburð. Brátt kemst hann að því að bærinn sem hann hefur ráðið sig á er allt annað en hefðbundinn. Stórir karakterar og margvíslegar pælingar aðkomumanns úr borginni mynda frásögn sem er áleitin og mennsk, en ekki síst spennandi. Hermann Stefánsson ræðir við okkur um sína nýjustu bók, Sauðburð í Lestinni í dag. Við pælum svo í myndefni og sannleika á tímum spunagreindar. Ofurhugar í Skjálfandafljóti, Elliði Vignisson, fljúgandi furðuhlutir og bandaríski myndlistarmaðurinn Trevor Paglen koma meðal annars við sögu. Og svo er það Airwaves-listamaður dagsins. Að þessu sinni er það 22 ára rappari frá Harlem sem kallar sig Liim.
Í dag ganga Ísraelsmenn að kjörborðinu í fyrsta sinn síðan hryðjuverkaárásir Hamas voru gerðar þann 7. október 2023. Sigurstranglegastir þykja flokkar Netanjahús, sitjandi forsetisráðherra, og miðjuflokkur Gadi Eisenkots, fyrrum yfirmaður í ísraelska hernum. Afar ólíklegt er að annar þessara flokka nái hreinum meirihluta og mögulegt að smærri flokkar ísraelskra araba muni skipta sköpum við stjórnarmyndun. Rafn Ágúst Ragnarsson, blaðamaður á Vísi, kemur til okkar og ræðir stöðuna. First Love, Fyrsta ástin, fyrsti hljóðgervillinn frá íslenska fyrirtækinu Love kemur í verslanir síðar í vikunni. Hann hefur verið nokkur ár í smíðum, er framleiddur í Kína, Filippseyjum og á Íslandi og kostar 89.900 krónur. Við forvitnumst um græjuna og fáum tóndæmi hjá Kára Halldórssyni og Markúsi Bjarnasyni stofnendum fyrirtækisins. Erum við kýr framtíðar? Haukur Már Helgason veltir fyrir sér þessari spurningu í sínum fjórða pistli um gervigreind og samfélagið. NATO, Palantir og beljur sem skilja ekki peninga koma meðal annars við sögu í pistlinum
Fyrir helgi kom út platan Líf 2. Tónlistarkonan Tatjana Dís hefur getið sér gott orð á undanförnum árum með hljómsveitunum Digital Ísland og Ex Girls en stígur hér fram í fyrsta sinn sem sóló-artisti. Við tókum stöðuna á Tatjönu. Kvikmyndin Vaterland eða Föðurland eftir Pavel Pavlakovski var ein af sigurmyndunum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún fylgir eftir rithöfundinum Thomas Mann og dóttur hans Eriku á ferðalagi um klofið Þýskalandi beint í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. 82 mínútur, svarthvít og hyldjúp bíómynd. Við fáum Gauta Kristmannsson prófessor í þýðingafræði til að spjalla við okkur um Thomas Mann og Föðurland. Við fáum pistil frá Frakklandi. Einar Már Jónsson var á staðnum fyrir tæpum 60 árum þegar stúdentar mótmæltu í París 1968 og nú fylgist hann aftur með mótmælum ungs fólks í landinu. Hann lýsir því hvernig staðan blasir við honum eftir mótmæli helgarinnar.
Heimildamyndin NAZA var sýnd í Bíó Paradís í gær. Í myndinni koma fram 24 hermenn úr ísraelska hernum undir nafnleynd og afhjúpa þær aðferðir sem herinn hefur notað í þjóðarmorðinu á Palestínumönnum sem hefur geysað frá hryðjuverkaárás Hamas þann 7. október 2023. Myndin hlaut afar góðar viðtökur á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september en leikstjórar hennar, Yuval Abraham og Rachel Szor, hafa þurft að fara í felur vegna harðra viðbragða samlanda sinna í Ísrael. Við ræðum myndina nánar í þættinum í dag. Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen tekur á móti Katrínu Helgu Ólafsdóttur sem hefur í haust heimsótt vinnustofur ýmissa listamanna. Berndsen hefur aðsetur á Hólmaslóð og í stúdíói hans má finna verkfæri, bækur, málverk og ýmsar skemmtilegar græjur sem gera alls konar hljóð. Danska heimildarmyndin Osugiak: eða Hvítagull Grænlands fjallar um krýolítnámur sem Danir ráku á vesturströnd Grænlands í meira en 130 ár fram til ársins 1987. Myndin vakti hörð viðbrögð eftir að hún var sýnd í Danska ríkissjónvarpinu í fyrra og var tekin úr sýningum þar auk þess sem fréttastjórinn sem bar ábyrgð á því að myndin var sýnd var rekinn. Bryndís Björnsdóttir og Kristín Loftsdóttir mæta og segja frá myndinni sem verður sýnd í kvöld í Norræna húsinu sem hluti af viðburðinum Frásgnarfullveldi og ritstkoðun.
Tölvunördar leika sér nú að því sameina tvo ólíka tölvuleiki með nýrri tækni. Aðferðin felst í að afbyggja leikina (e. reverse engineer) og byggja þá svo upp aftur sem einn leik. Þetta þótti áður óhugsandi en með tilkomu gervigreindar getur hver sem er gert tilraunir heiman frá. Ljóst að þessi tækni getur afbyggt ýmis forrit og komið þeim upp annars staðar með breytingum. Nú hefur opnast fyrir möguleika sem ekki var fyrirséður. Við fáum Guðmund Arnar Sigmundsson, netöryggissérfræðing, til að ræða málið við okkur. Birgitta Björg færir okkur sinn síðasta pistil um einkarýmið. Hún hefur í pistlaröð sinni fjallað um bíla, farsíma og heyrnartól en snýr sér nú að sundlaugum. Á laugardaginn fara fram stórtónleikar Queens of The Stone Age í Laugardalshöll. Löngu uppselt er á tónleikana enda er sveitin eitt vinsælasta rokkband síðari ára. Lestin ræddi við adáanda hljómsveitarinnar Daða Jónsson.
Z-kynslóðin mótmælir nú í Evrópu eftir bylgju mótmæla ungs fólks víða um heim á undanförnum árum. Það var í september sem mótmæli nemenda gegn lélegum aðbúnaði í skóla sínum í Suðaustur-Frakklandi hröttu af stað mótmælahreyfingu menntaskólanema í landinu. Mótmælin hafa breiðst út og núna um helgina náðu þau hámarki þegar meira en hálf milljón manna fór út á götur Parísar og annarra borga Frakklands. Það kom til harðra átaka og ýmis konar skemmdarverk framin. Í Lestinni dag ætlum við að skoða tákn Z-kynslóðar mótmælendanna í Frakklandi og víðar, sem gjarnan eru fengin úr internetmenningu, og förum yfir önnur einkenni sem mynda rauðan þráð milli mótmæla sem fara fram á mjög ólíkum stöðum. Svo er það bíó um sjónvarp. To catch a predator nefndust vinsælir þættir sem sjónvarpsmaðurinn Chris Hansen stýrði í upphafi aldarinnar – en þar var notast við tálbeitu til að koma upp um fullorðna menn sem héldu að þeir væru að fara að hitta einstaklinga undir lögaldri. En hversu langt er í lagi að ganga í gerð sjónvarpsefnis og í nafni skemmtunar? Að þessu er spurt í kvikmyndinni Primetime sem byggir lauslega á sögu Hansen, mynd í leikstjórn hins unga og umtalaða Lance Oppenheim. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina. Við fáum pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi um augnablikið þegar gervigreindin leysti einhverjar þekktustu óleystu stærðfræðigáturnar, kláraði stærðfræðina á einu bretti og gerði þar með alla mannlega stærðfræðinga óþarfa.
Popplagakrufning Lestarinnar snýr aftur í þætti dagsins. Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, kryfur lag sem hefur verið mikið spilað að undanförnu, Kominn heim, með Kristmundi Axel og Bubba Morthens. Hljómar lagið eins og AI eða er þetta áhrifarík einlægni? Við hringjum svo til Berlínar og forvitnumst um bestu evrópsku útvarspþættina þetta árið en fjömiðlaverðlaunin Prix Europa for fram í síðustu viku. Lóa Björk Björnsdóttir segir okkur meðal annars frá áhrifaríku viðtali við stríðsglæpamann sem starfar við ræstingar og frönskum þáttum um fíkn og fjölskyldulíf.
Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin því gríðarleg. Sögusvið leiksins er sólríka syndabælið Vice City og verður borgin sem er fyrirmyndin - Miami í Florida - undirlögð auglýsingum og kynningargjörningum næstu vikur. Stikla fyrir leikinn kom út fyrr í dag og hafa milljónir skoðað hann nú þegar. Það eru rétt tæplega 30 ár frá því að fyrsti leikurinn í seríunni kom út á vegum lítils leikjaframleiðanda í Dundee í Skotlandi. Eins og nafn leiksins gefur til kynna, “stórfelldur bílaþjófnaður” fengu spilarar færi á að leika smákrimma og framkvæma hin ýmsu glæpaverkefni, en einnig flakka frjálsir umi í umfangsmiklum og opnum leikjaheimi. Við ræðum við tölvuleikjafræðing um seríuna og spennuna eftir GTA6, einn af höfundum fyrsta GTA leiksins, og fáum sögur og minningar frá fjölbreyttum hópi fólks.
Í Lestinni í dag fjöllum við um nýja kvikmynd sem gagnrýnendur geta ekki verið sammála um. Digger, í leikstjórn Alejandros Inárritu, fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell, sem leikinn er af Tom Cruise. Þrátt fyrir stórleikara og gríðarlegt fjármagn gekk opnunarhelgin vægast sagt illa en Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands er ekki sama sinnis. Myndin er þess eðlis að erfitt er að ræða hana án þess að spilla söguþræðinum og því setjum við viðvörun á umfjöllun okkar í dag, vilji hlustendur láta koma sér á óvart í bíó. Rithöfundurinn og skáldið Birgitta Björg Guðmarsdóttir flytur nýjan pistil í pistlaröð sinni um einkarýmið. Að þessu sinni er það farsíminn sem er henni hugleikinn.
Sjónvarpsþættirnir Widows Bay fjalla um illa vætti sem ásækja heimamenn og túrista í samnefndum smábæ. Þetta er grín-hryllingur sem hefur sankað að sér verðlaunum að undanförnu. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi rýnir í þættina. Við fáum svo pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi. Að þessu sinni gluggar hann í nýrri skýrslu sem nefnist hinu upplífgandi titli: “Gervigreind til góðs” en hana skrifaði starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Norsk bókhilla, Project panama og frelsisbarátta málma koma meðal annars við sögu í pistli Hauks Más. En við ætlum hins vegar að byrja á fréttum dagsins. Í gær bárust fregnir af því að enn eitt rússneskt gagnaver hefði verið sprengt í loft upp af Úkraínumönnum - það þriðja á einni viku. Gagnaverið var í eigu Yandex sem er eitt stærsta rússenska tæknifyrirtækið, og heldur meðal annars út vinsælli leitarvél og ýmiskonar þjónustu sem lá niðri í kjölfarið. En það sem hefur vakið meira athygli er sú staðhæfing Zelensky Úkraínuforseta að vegna árásarinnar hafi virkni rússneskra vef-botta sem dreifa áróðri og misvísandi upplýsingum á samfélgsmiðlum minnkað til muna. En hvað er hæft í því?
Grunur leikur á því að verðlaunasaga hinna afrísku smásagnasamkeppni Caine hafi verið unnin af gervigreind. Lestin kannaði málið og leitaði upplýsinga hjá Forlaginu um það hvernig þau leggja mat á sögur, myndefni og ljóð sem þeim berast í samkeppnum. Þá kemur gömul smásaga eftir Roald Dahl við sögu auk þess sem við ræðum önnur vandræðaleg mál í tengslum við höfunda sem villa á sér heimildir, bæði hér heima og utanlands. Við hringjum svo til Berlínar og ræðum við Ólaf Sveinsson um íslensku költ heimildarmyndina Hlemmur sem kom út árið 2002. Aðalpersónurnar eru strætóbílstjóri sem er að byggja sig upp eftir áratugalanga neyslu, menn sem glíma við andleg veikind, trúlofað par með þroskahömlun, og tveir drykkjumenn sem ýmist gista fangageymslur eða sofa á götunni. Allt er þetta fólk sem venur komur sínar á Hlemm og dvelur þar langdvölum af ýmsum ástæðum. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís síðar í mánuðinum.
Í nóvember í fyrra fóru tvær íslenskar listakonur með heimskautarannsóknarskipinu Kronprins Haakon í leiðangur á norðurheimskautið að rannsaka hafsbotninn. Þær fylgdust með skipinu brjótast í gegnum heimskautaísinn, vélmennið Ægi 6000 kafa niður á 4 kílómetra dýpi, og áþreifanlegri spennu hagsmuna vísindamanna og olíuleitarmanna. Leiðangurinn var hluti af Extremes verkefninu sem verður kynnt frekar í Norræna húsinu um helgina. Þorgerður Ólafsdóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir segja frá í Lestinni í dag. Sviðslistahátíðin Komum út í mínus fer fram í annað sinn á laugardaginn. Hátíðin mun standa yfir í 12 klukkustundir þar sem gestum verður boðið upp á ýmis konar sviðslistir, dansnámskeið, uppistand og gufubað svo eitthvað sé nefnt. Við forvitnumst um hátíðina. Katrín Helga Ólafsdóttir kíkir svo á vinnustofu hjá tónlistarmanninum Tómasi Jónssyni, en hann á gríðarstórt hljómborðasafn. Þetta er önnur vinnustofuheimsókn Katrínar í vetur.
Teiknimyndin Sundruð eða Hold it together hlaut nú helgina verðlaun sem besta íslenska stuttmyndin á RIFF. Myndin fjallar um sundferðir ungs innflytjanda á Íslandi og þörfina fyrir félagsleg tengsl. Við ræðum við höfund myndarinnar, hina fransk-malísku Fanny Sissoko, sem gæti ekki búið hér klakanum ef ekki væri fyrir sundlaugarnar. Undanfarnar vikur hafa einkarými verið Birgittu Björg Guðmarsdóttur verið hugleikin í pistlum sínum. Að þessu sinni eru það einka- og sameiginleg rými í umferðinni: bílar, strætó og reiðhjól. Gervigreind er farin að verða meira áberandi í barnaefni. Lestin kíkti í bókabúð ásamt myndhöfundi þar sem við skoðuðum barnabækur með þetta í huga. Þar vöknuðu ýmsar spurningar, meðal annars um höfundarétt, þroska barna og stétt myndhöfunda. Þá spjölluðum við við bóksala sem íhugar að krefja útgefendur um að staðfesta skriflega að gervigreind hafi ekki verið notuð í þeim verkum sem hann hyggst selja. Þá skoðum við nýja bók Skoppu og Skrítlu þar sem meintur myndhöfundur reyndist ekki vera raunveruleg manneskja. Útgefendur sem ráða erlenda aðila af netinu til að gera myndefni fyrir sig þurfa greinilega að hafa varann á.
“Ef við útvistum viti okkar til véla og sannfærum þær um að útrýma þær þó ekki, þá mun okkur ekkert skorta.” Mögulega erum við á leið inn í heim án skorts. En hvað þýðir það fyrir mannlega tilveru og samfélagið? Haukur Már Helgason rithöfundur flytur okkur sinn fyrsta pistl í Lestinni þetta haustið, hann ætlar að hugsa upphátt um tækniþróunina sem stendur nú yfir, og í dag er það skorturinn sem er viðfangsefnið - eða öllu heldur skortur á skorti. Við förum líka í heimsókn í Marshallhúsið, nánar tiltekið í Þulu Gallerí, sem er þar til húsa. Weaving Cosmologies – dreymendur og draumgjafar er heiti samsýningar 5 listamanna þar sem þeir velta fyrir sér trúarlegum heimsmyndunarkenningum, líkömnuðum nálgunum, skáldskap og sögulegum rannsóknum í verkum sínum, líkt og segir í sýningartexta. Ásdís Þula, eigandi gallerísins fór með okkur um sýninguna. Og svo fáum við okkar þá Rafael og Carlos, sem eru báðir frá Mexíkó. Á dagvinnutíma starfa þeir sem arkitekt og kokkur en á kvöldin spila þeir í reykvísku cumbia-hljómsveitinni La Dimenson og haldi úti suðuramerískum tónlistarkvöldum í borginni undir merkjum Kumbíavíkur. Nú um helgina halda þeir í annað skipti árlega tónlistarhátíð, með heimildamyndum, ljósmyndasýningu, skífuþeytingum og auðvitað lifandi tónlist.
1867 nefnist ný breiðskífa með tónlistarkonunni Alaska 1867 sem kom út á dögunum. Alaska, eða Kolfreyja Sól eins og hún heitir réttu nafni, hefur vakið athygli undanfarið ár fyrir bersögla rapptexta og töffaraskap, en á nýju plötunni sækir hún í fjölbreyttari áttir en áður. Þetta er poppplata sem sækir í ýmiskonar raf- og danstónlist. Kolfreyja kemur í Lestina og ræðir hvernig málmur og vatn mótaði hljóðheim plötunnar, andspyrnuna gegn gervigreindarslori og sagnamennsku í dægurtónlist. Við ræðum svo nokkrar verðlaunamyndir af RIFF sem lauk um helgina. Gunnar Theodór og Sigga Regína ræða La Gradiva, If Luck Will Come, Do You Love Me og fleiri.
Um eitt þúsund Íslendingar mættur í stóra sal Háskólabíós í vikunni til að berja hjartaknúsarann og kúltúrbarnið Alexander Skarsgaard augum, en hann er heiðursgestur á RIFF. Þrátt fyrir tæknilega örðugleika við sýningu myndar hans The Wicker var stemningin eldheit. Gagnrýnendur Lestarinnar rýna í myndina, auk þess sem Lucy Lost, Teenage Sex and Death at Camp Miasma og The Loneliest Man in Town verða teknar fyrir. Um svipað leyti og samfélagsmiðillinn TikTok var að nema land á vesturlöndum, þá var að verða til í heimalandi miðilsins nýtt form kvikmyndagerðar, sérstaklega þróað til að fanga athygli fólks á snjallsímaskjánum. Þetta var árið 2018 og Duanju nefndist þetta nýja form, leiknar seríur með örstuttum þáttum, yfireitt í kringum tvær mínútur. Nú er fyrsta íslenska örþáttaröðin fyrir síma komin til sögunnar. Við ræðum við Unnar Stein Sigurðsson um þættina sem nefnast Skólinn.
Hexekver er heiti lítt þekktrar galdrabókar frá 1859. Hinn fjölkunnugi bóndi Þorsteinn Guðmundsson skrifaði bókina á sínum tíma en nú er hún fáanleg á ensku í öllum helstu bókabúðum. Við ræðum við þýðendurna Kára Pálsson og Giorgiu Sottotetti um rúnir og galdra. Svo fáum við glænýjan pistil um einkarýmið eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, en að þessu sinni beinir hún sjónum sínum að byltingarkenndri uppfinningu, heyrnartólunum. Og fyrir þá hlustendur sem hafa saknað Lóu Bjarkar sem hefur verið fjarri góðu gamni undanfarið ætlum við að spila innslag úr Tengivagninum frá því í sumar þar sem hún kíkti í hundagöngutúr á Hólmsheiði með rithöfundinum Ófeigi Sigurðssyni.
Brjálaðar boltamömmur á hliðarlínunni á leik í fimmta flokki kvenna rífast í dómaranum og lenda í átökum sín á milli. Þessa mynd kannast flestir við sem tengjast fótboltahreyfingunni á einhvern hátt. Og þetta er einn þráðurinn í nýjum íslenskum gamanþáttum Boltamömmur sem eru sýndir á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Við skoðum líka niðurstöður nýrrar rannsóknar sem fjallar um endalok kvikmynda. Er öld hinna gleðilegu Hollywood-endalokanna liðin? Samljóða er ritvinnslusmiðja sem fer fram á hverjum miðvikudegi á Borgarbókasafninu í Grófinni. Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld, stýrir þar vinnustofum sem hún kallar Bútasaumsljóð. Þar skrifa þátttakendur texta út frá orðum sem þeir elska, orðum sem þeir þola ekki eða orðum sem vekja áhuga þeirra á einhvern annan hátt. Þátttakendur með íslensku sem annað mál eru hvattir til að taka þátt, enda kemur ýmislegt í ljós þegar gests augu líta á tungumálið okkar. Á föstudaginn sendir Karólína líka frá sér ljóðabókina Lífskán, ljóðsögu um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Karólína hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að bókinni og nú kemur það út hjá Benedikt. Við heyrum svo um viðskiptamanninn sem átti þá frábæru hugmynd að fá Íslendinga til að skemmta sér í janúarmánuði með því að borða skemmdan mat, og bjó þar með til hefð sem þúsundir Íslendinga elska að sameinast um enn þann dag í dag. Björn Teitsson fjallar um menningararf og mat í fjórða og síðasta pistli sínum í lestinni þetta haustið: Þorramatur, Kentucky Fried, Pad Thai, og Kebabpizza koma meðal annars við sögu.
Væntanlegt dómsmál vekur upp spurningar um höfundarétt og persónuvernd. Söngvaranum Elvari hefur verið stefnt fyrir að nota hljóð úr vinsælu myndbandi þar sem tvær stelpur rífast harkalega um mann sem heitir Elvar. Önnur þeirra leitar nú réttar síns, en hún er ekki sátt við að rödd sín hljómi í laginu. Við skoðum fleiri svipuð dæmi, bæði úr íslenskri og erlendri tónlist. Afdrifarík ferð John Snorra Sigurjónssonar og fleiri fjallagarpa á tind K2 veturinn 2021 er til umfjöllunar í opnunarmynd RIFF í ár. Við rýnum í heimildarmyndina The Last First: Winter K2. Við rýnum einnig í La Pieta, Yön lapsi (eða Barn Næturinnar) og Dissociated Me. Við lifum stóran hluta tilveru okkar í tækjum og stafrænum rýmum, en mörg þeirra er ekki sérstaklega aðgengileg fólki með fatlanir. Aðgengileiki í hönnun hins stafræna heims skiptir æ meira máli. Við ræðum þetta og fleira við Irene Pereyra, einn stofnenda hönnunarstofunnar Anton & Irene, sem er hér á landi vegna alþjóðlegu hönnunarráðstefnunnar AGI Open sem fram fer í lok vikunnar. Spunagreindarpizzu-app og mikilvægi kjarnorku koma einnig við sögu.
Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja gallað en aðrir óheiðarlegt. Við ræðum við Sigmund Halldórsson, sérfræðing hjá VR, um algrími á íslenskum vinnumarkaði. Katrín Helga Ólafsdóttir kíkti í heimsókn á vinnustofu tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu. Nýr pistlahöfundur, rithöfundurinn Birgitta Björg Guðmarsdóttir, fjallar um einkarými í lok þáttar.
Nú á dögunum kom út á bók fyrsta íslenska myndasagnaserían. En það var myndasaga byggð á Njálssögu - fjallaði um njálsbrennu og hefnd Kára. Myndirnar gerði teiknarinn Halldór Pétursson og birtust þær vikulega í Lesbók Barnanna, fylgiriti morgunblaðsins árin 1959 og 60. En nú loksins er hefur þetta brautryðjendaverk verið tekið saman og gefið út á bók. Við ræðum við ritstjórana Jón Karl Helgason og Bjarni Hinriksson. Saga veitingarekstrar á Íslandi er fremur stutt og kannski umfram allt saga af fallvaltleika og ótryggu rekstrarumhverfi. Björn Teitsson heldur áfram að flytja okkur pistla um matarmenningu. Og að þessu sinni fjallar hann um veitingahúsið - athyglisverðar orðsifjar, Meg Ryan og kjúlingur í körfu koma meðal annars við sögu í pistlinum. Við byrjum á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á morgun. Við flettum í bæklingnum og ræðum meðal annars Club Kid, Amicar, The Siege of Paradise svo einhverjar myndir séu nefndar.
Á undanförnum vikum höfum við frétt af stöðugt fleiri samfélagsverkefnum og skapandi rýmum í Reykajvíkurborg sem er verið að loka. Víðsvegar um borgina hefur iðnaðarhúsnæði sem er í einhverskonar biðstöðu, byggingar sem er óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, verið leigt út undanfarin ár til listamanna og ýmiskonar samfélagsverkefna. Í Gufunesi, í Skerjafirði, á Sævarhöfða og á Bergþórugötu. En nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf. Í þætti dagsins ætlum við að flakka um grasrótina í Reykjavík, flökkum milli listarýma og samfélagsverkefna sem horfa nú fram á óvissa framtíð.
Á undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af Lost, fjölskyldan safnast ekki saman á föstudögum til að horfa á Idol stjörnuleit eða Á tali með Hemma Gunn. Er menningin að glata möguleikanum á að sameina heiminn, sameina Íslendinga, sameina stóra hópa ólíks fólks? Er mónókúltúrinn dauður? Til þess að ræða þetta höfum við fengið til okkar þau Nínu Hjálmarsdóttur, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Ísabellu Lenu Borgarsdóttur (bellamix69), plötusnúð, og Gísla Martein Baldursson, umsjónarmann Vikunnar. Í spilara RÚV er nú að finna skandinavíska þáttaröð sem slegið hefur í gegn í Skandinavíu. Upp úr aldamótum hóf utangarðs-unglingur Í Norður-Noregi, Selina, að blogga. Áður en hún vissi af hafði hún öðlast landsfrægð og var orðin að umdeildum áhrifavaldi. Fylgst er með Selinu Rekviem for Selina, eða Svanasöngur Selinu er umfjöllunarefni Brynju Hjálmsdóttu, sjónvarpsgagnrýnanda að þessu sinni.
Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn. Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur. Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands.
Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu. Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn. Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist. Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.
Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak. Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina. Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu. Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu.
Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið. Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins. Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?
Margir þekkja hina ævintýralegu fornbókaverslun Bókina, sem stendur á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Lestin heimsótti ræddi við eigandann, Ara Gísla Bragason, um breytingar sem hafa nýlega orðið á búðinni, bókakostinn og ferðamennina sem sækja mikið í búðina. Þá ræddum við einnig við gesti og gangandi og tókum púlsinn á stemningunni í þessari miðbæjarperlu. Þessa dagana er hægt að sjá tvær nýjar en mjög ólíkar íslenskar myndir í kvikmyndahúsum - önnur er heimildarmynd um jökla og tengingar milli kynslóða, en hin er söngvamynd byggð á lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Kolbeinn Rastrick rýnir í báðar myndirnar, Um tímann og vatnið og Hvar er draumurinn? Íslenska svartmálmshljómsveitin Misþyrming hefur undanfarna mánuði ferðast milli tónlistarhátíða og leikið með einni stærstu stjörnu öfgarokkheimsins undanfarna áratugi, hinum pólska Nergal söngvara hljómsveitarinnar Behemoth. Saman hafa þeir leikið þrjátíu ára gamla plötu í heild sinni. Við fáum til okkar Dag Gíslason, forsprakka Misþyrmingar og ræðum um Sventevith.
Öld ímyndunaraflsins nefnist ný bók eftir Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara - sem vill ekki láta kalla sig framtíðarfræðing. Í bókinni skorar hann samtímann á hólm og veltir fyrir sér stöðu mennskunnar á tímum gervigreindar. Fríða og Kristján spjalla við Berg um gervigreind, bækur, líkamleika og kapítalisma.
Það er alþjóðlegur dagur læsis. Læsi er í þó nokkurri útrýmingarhættu en bara rétt rúmlega helmingur íslenskra unglinga býr yfir grunnhæfni í lesskilningi. Við veltum fyrir okkur hvers konar samfélag tekur við þegar lestur og bækur hætta að skipta máli, það sem á ensku er kallað post-literate samfélag. Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir hafa skapað öðruvísi leikhúsupplifun í Tjarnarbíói undir yfirskriftinni Tilboð mánaðarins. Í stað hefðbundinna uppsetninga er hér á ferðinni leiklestur og miðinn kostar bara 2000 krónur. Í kvöld mun Hjörtur Jóhann Jónsson, leikari, lesa fyrsta verk Tyrfings Tyrfingssonar, Grande. Næstu vikur ætlum verður matargerðarlist í Lestinni á þriðjudögum. Björn Teitsson ætlar að flytja okkur pistlaröð um matarmenningu, hvernig við njótum og neytum matar og matartengds menningarefnis í samtímanum. Í fyrsta pistlinum fjallar hann um kokkinn og sjónvarpsmanninn Anthony Bourdain heitinn, sem var mikil rokkstjarna meðal matarperra. Nýlega kom út kvikmyndin Tony sem byggir á ævi hans og endurminningum.
Í þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi. Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni sem það er að þróa. Meira en 1200 gervigreindar-agentar frá OpenAI sem voru í prófunum fundu leiðir til að eiga í samskiptum sín á milli, hópurinn skipulagði sig, laumaðist út af afmörkuðu æfingasvæði sínu, og hakkaði og gerði óskunda hjá hugbúnaðarsíðunni Hugging Face. Við ræðum málið við Tryggva Frey Elínarson hjá Datera. Brynja Hjálmsdóttir kemur við og segir frá þáttaröðinni Furious. Um er að ræða lögguþætti sem gætu þó höfðað til þeirra sem hafa ekki gaman af lögguþáttum alla jafna.
Hið Íslenska bókmenntafélag gaf nýlega út glæsilegt yfirlitsrit yfir verk Sigvalda Thordarson arkitekt. Albína Thordarson, arkitekt og dóttir Sigvalda, skrifaði bókina eftir að hafa safnað upplýsingum um verk föður síns um árabil en Pétur H. Ármannsson ritar aðfararorð og kafla um mótunarár arkitektsins. Líkt og flestar bækur um arkítektúr inniheldur hún mikinn fjölda teikninga og ljósmynda en þar er líka farið yfir ævi Sigvalda, sem fæddist árið 1911 en varð aðeins 52 ára gamall. Albína segir okkur frá bókinni og ræðir einnig arkítektúr nútímans. Bandaríski rappparinn Yasin Bey, sem er þó betur þekktur sem Mos Def, er á leiðinni til Íslands þar sem hann leikur á tónleikum í næstu viku. Mos Def sló fyrst í gegn um miðjan tíunda áratuginn, en nýtur mikillar virðingar í hip-hop heiminum. Davíð Roach ætlar að rifja upp feril kappans, en nýtilkomið flóð amerískra gullaldarrappara til landsins kveikir þó einnig tilvistarlegar pælingar um tímann og aldurinn. Og við ætlum líka að heyra um 30 ára gamlan geisladisk, Strumpastuð, sem var einn sá allra vinsælasti á íslandi árið 1996 og er loksins komin á Spotify. Jónatan Garðarson gaf diskinn út á sínum tíma og greinir frá tilurð hans.
Á morgun kemur út skáldsagan Maríuklefinn, eftir Eirík Guðmundsonn rithöfund og útvarpsmann, en fullfrágengið handrit af bókinni fannst í fórum Eiríks eftir að hann lést árið 2022. Þetta er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari í Lissabon skrifar til ástarinnar sinar Maríu, hann skrifar um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum. Í tilefni af útgáfunni verður haldið málþing í Eddu á morgun þar sem vinir og fræðimenn varpa ljósi á feril Eiríks sem skáldsagnahöfundar, dagskrárgerðarmanns í útvarpi og fræðimanns. Við ræðum þetta við Jón Kalman Stefánsson rithöfund. Jacob Levy Moreno lagði grunninn að leikrænni geðmeðferð, sýkódrama, á fyrri hluta síðustu aldar en hann var frumkvöðull á sviði hópmeðferða í geðlækningum. Trausti Ólafsson, leikhúsfræðingur tók diplómapróf í sýkódrama í Bretlandi árið 2003 og hefur reglulega síðan leitt hópa í geðleikhúsi. Nú hefur hann skrifað bókina Geðleikhús Moreno - Lifandi skáldskapur í rými, þar sem hann fer yfir hugmyndafræði geðleikhússins og hvernig slíkar vinnulotur eru settar upp. Við ræðum við Trausta á heimili hans í Kópavogi.
Rétt tæpum 30 árum eftir að rappstjarnan Tupac Shakur var myrtur í Las Vegas hefur sá sem fyrirskipaði morðið loksins verið sakfelldur. Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd hér á landi fyrir helgi. Myndin byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar frá árinu 2019. Myndin notast við gríðarlegt magn af heimamyndböndum frá Andra, mömmu hans og afa, til að velta fyrir sér framgangi tímans og bráðnun jökla vegna loftslagsbreytinga. Við spjöllum við Andra Snæ og leisktjóra myndarinnar, hina óskarstilnefndu, Söru Rosa. Við kíkjum svo aftur á Hamraborg festival sem nú fer fram í Kópavogi. Í gær sagði Silfrún Una okkur frá bílagjörningi sínum en í dag mun hönnuðurinn Tomas Pausz segja frá lifandi tæknilistaverki sem hann vann ásamt gagnasérfræðingnum Miguel Angel Crozzoli.
Við kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar. Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um að vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora, meðal annars. Við veltum svo fyrir okkur stöðu fjölmiðla. Í kvöld fer í loftið síðasti kvöldfréttatími Sýnar - eða Stöðvar 2 eins og hún hét lengi. Það eru rétt tæp 40 ár frá því að stöðin hóf að sjónvarpa fréttum og hefur verið mikilvægur hluti af íslensku fjölmiðlalandslagi. En nú verður slökkt á myndavélunum, Hvað segir þetta um stöðu fjölmiðlunar og blaðamennsku á Íslandi í dag, geta hlaðvörp og vefmiðlar tekið keflinu og hvað þýðir þetta fyrir lýðræðið og samfélagslega umræðu í landinu. Við ræðum við Eyrúnu Magnúsdóttur og Eirík Hjálmarsson.
Viðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo, jafnvægi vinnu og einkalífs og meltingarvandræði. Við spjöllum við Vigdísi Häsler lögfræðing um þættina.
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
Um helgina bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann Magnússon væri látinn, 62 ára að aldri. Steinn Ármann er þekktur fyrir hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, leikritum og talsetningum - Kötturinn Keli í Stundinni Okkar, Sveppi í Veggfóðri, Siggi Sæti í Latabæ en hann vakti fyrst athygli sem annar hluti gríntvíeykisins Radíusbræður sem komu eins og stormsveipur inn í íslenskt grín á tíunda áratugnum. Jón Gnarr kíkir í heimsókn og við ræðum uppistand Radíusbræðra, óheflaðan húmor og grínseríuna Limbó sem var slaufað af RÚV eftir tvo þætti.
Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi. Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag. Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.
Það er 20. ágúst og í dag fagnar Lestin fimmtudagsafmæli góðvinar þáttarins, ljóðskáldsins og menningargagnrýnandans Ásgeirs H. Ingólfsson. Ásgeir lést eftir skammvinn veikindi í byrjun síðasta árs og hefur skilið eftir sig skarð í íslensku menningarlífi. Hann fjallaði reglulega um kvikmyndir og bækur í hina ýmsu prent- og vefmiðla, ekki síst á bloggsíðunni sinni Menningarsmygl. Hér á Rás 1 var hann verið með árlega pistla frá kvikmyndahátiðunum í Berlín og Karlovy Vary í Tékklandi - en þar í landi bjó hann undanfarinn áratug. En Ásgeir var einnig skáld og nú í tæka tíð fyrir afmælið er komin út þriðja ljóðabók Ásgeirs, Næsta stríð, og á morgun verður veisla, útgáfuhóf, bíósýning, ljóðakvöld til heiðurs honum í Bíó Paradís. Við ræðum um hugsjónir og list Ásgeirs H. Ingólfssonar við tvo vini hans Val Gunnarsson og Jón Bjarka Magnússon.
Í Lestinni í dag miðvikudaginn 19. Ágúst ætlum við að hrekjast um miðjarðarhafið undir lok bronsaldar með sjálfum Ódysseifi. The Odyssey eftir bandaríska leikstjórann Christopher Nolan hefur notið mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum í sumar. Myndin byggir á einu höfuðriti vestrænna bókmennta, Ódysseifskviðu sem eins og Illíónskviða er eignuð gríska skáldinu Hómeri - og hún var líklega rituð fyrir meira en 2700 árum en hafði áður varðveist í munnlegri geymd í einhverjar aldir. Við ræðum við Svavar Hrafn Svavarsson prófessor og sérfræðing í heimspeki fornaldar um það hvort Nolan nái að fanga kjarna Ódysseifskviðu.