Pallborðið cover

Pallborðið

visir

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm

0:00 0:00

Þættir

Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm 24 Sep 2026

Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur, eða þann 8. október. Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mættust í Pallborðinu.

Línurnar lagðar fyrir spennandi þing 03 Sep 2026

Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum. Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.

Satt, logið og umdeildar auglýsingar 27 Aug 2026

Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun. Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar.

Hasar í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 26 Aug 2026

Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? 20 Aug 2026

Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.

Já-arar og nei-arar í Pallborði 20 Aug 2026

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Evrópusambandið: Nei eða já? 23 Jul 2026

Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.

Ofbeldisalda hjá ungmennum 20 Mar 2025

Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.

Umferðaröryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld 13 Mar 2025

Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.

Hvar stendur Ísland gagnvart Trump, tollastríði og breyttri heimsmynd? 06 Mar 2025

Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi.

Brýnustu verkefnin í borginni 27 Feb 2025

Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.

Áslaug Arna og Guðrún í Pallborðinu 24 Feb 2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir, frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins, mættu í Pallborðið til Vésteins Arnar Péturssonar.

Fjórir berjast um formannssætið í VR 18 Feb 2025

Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.

Kjaradeila grunnskóla- og leikskólakennara 05 Feb 2025

Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.

Handboltaæði runnið á þjóðina 22 Jan 2025

Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.

Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum 25 Nov 2024

Margrét Helga Erlingsdóttir, fréttamaður, fær til sín þau Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, Eirík Bergmann, stjórmálafræðiprófessor við Bifröst, Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við HÍ og Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema við Hí til að rýna í stöðuna á lokasprettinum.

Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar 18 Nov 2024

Hlaðvarpsstjórnendur sem halda úti umfjöllun um kosningarnar mættu í myndver til þess að fara yfir stöðuna. Þórhallur Gunnarsson úr Bakherberginu, Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott, Gísli Freyr Valdórsson hjá Þjóðmálum og Þórarinn Hjartarson sem heldur úti Einni Pælingu.

Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál 13 Nov 2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru gestir Pallborðsins í dag. Til umræðu voru meðal annars nýjustu vendingar í skoðanakönnunum og pólitíkinni og skóla- og heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt. Pallborðinu stýrði Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður.

Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? 11 Nov 2024

Í þetta skiptið tekur Berghildur Erla á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ölmu Möller landlækni í leyfi sem leiðir lista Samfylkingar í Kraganum, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni sem fer fyrir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Bergþóri Ólasyni, þingmanni og oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Formenn Framsóknar, Flokks fólksins og Samfylkingar ræða málin 06 Nov 2024

Nú er röðin komin að formönnum síðustu þriggja flokkanna sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Þetta eru Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins sem mættu í settið til Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns.

Sjónum beint til vinstri 04 Nov 2024

Margrét Helga Erlingsdóttir fékk til sín þær Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, leiðtoga Sósíalistaflokks Íslands á sviði Alþingis og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformann Pírata.

Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri 30 Oct 2024

Elín Margrét Böðvarsdóttir fékk til sín formenn flokka á hægri væng stjórnmálanna, flokka sem eru líkir um sumt en ólíkir um annað og teygja sig mislangt til hægri frá miðjunni. Þetta eru þau Bjarni Benediksson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Arnar Þór Jónsson, formaður hins nýstofnaða Lýðræðisflokks, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.

Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mætast 28 Oct 2024

Berghildur Erla fær til sín Grím Grímsson yfirlögregluþjón sem er í 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóra Kaldvíkur sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Víðir Reynisson, sviðsstjóra almannavarna, sem er oddviti Suðurkjördæmis fyrir Samfylkingu og Höllu Hrund Logadóttur fráfarandi orkumálastjóra og forsetaframbjóðanda sem leiðir lista Framsóknar í Suðurkjördæmi.

Nýliðar í landsmálapólitík mætast 24 Oct 2024

Elín Margrét Böðvarsdóttir fékk til sín þau Snorra Másson, fjölmiðlamann og oddvitaefni Miðflokksins, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar sem sækist eftir 3. sæti Sósíalistaflokksins, Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR og oddvitaefni Flokks fólksins og Ólaf Adolfsson, lyfsala og oddvitaefni Sjálfstæðisflokksins.

Kanónur kveðja og rýna í stöðuna 22 Oct 2024

Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður fékk til sín þau Steinunni Þóru Árnadóttur, þingmann Vinstri grænna, Oddnýju Harðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmann Pírata og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra.

Rannsókn lögreglunnar á meintri byrlun og símastuldi 17 Oct 2024

Þóra Arnórsdóttir fyrrverandi ritstjóri Kveiks, Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni og Flóki Ásgeirsson lögmaður voru gestir í Pallborðinu á Vísi. Þáttastjórnandi var Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir

Stjórnarandstaðan komin í kosningagír 15 Oct 2024

Bergþór Ólason, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru gestir Pallborðsins að þessu sinni, þar sem til umræðu var tilkynning Bjarna Benediktssonar um ríkisstjórnarslit og kosningavikurnar fram undan.

Hvernig þingmenn yrðu Arnar Þór, Jón Gnarr og Þórður Snær? 01 Oct 2024

Stjórnmálaflokkar setja sig í stellingar fyrir alþingiskosningar, sem þó eru ekki formlega á dagskrá fyrr en næsta haust. Pólitíkin var í öndvegi í Pallborðinu þar sem Arnar Þór Jónsson, Jón Gnarr og Þórður Snær Júlíusson ræddu við Kristínu Ólafsdóttur.

„Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? 24 Sep 2024

Staða heimilanna og fyrirtækja á haustmánuðum, útlitið í efnahagsmálum og efnd loforða í tengslum við kjarasamninga voru til umræðu í Pallborðinu. Stjórnandi var Hólmfríður Gísladóttir en gestir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík.

Lokasprettur æsispennandi kosningabaráttu 28 May 2024

Snorri Másson ritstjóri Ritstjórans, Ólöf Skaftadóttir fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og Örn Úlfar Sævarsson, hugmyndasmiður voru gestir Pallborðsins á Vísi þar sem rýnt var í baráttuna um Bessastaði.

Makar forsetaframbjóðenda 10 May 2024

Felix Bergsson, Jóga Jóhannsdóttir og Kristján Freyr Kristjánsson eru gift hvert sínu forsetaefninu. Þau voru gestir Kristínar Ólafsdóttur í Pallborðinu á Vísi.

Halla Hrund, Katrín og Baldur 03 May 2024

Halla Hrund Logadóttir, Katrín Jakobsdóttir og Baldur Þórhallsson voru gestir í Pallborðinu á Vísi í dag.

Kappræður Helgu Þóris og Eiríks Inga 30 Apr 2024

Eiríkur Ingi Jóhannsson og Helga Þórisdóttir voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu. Þau bjóða sig fram til forseta Íslands.

Kappræður Arnars Þórs, Ásdísar Ránar og Ástþórs 26 Apr 2024

Forsetaframbjóðendurnir Arnar Þór Jónsson, Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Ástþór Magnússon mættust í Pallborðinu á Vísi í umsjón Hólmfríðar Gísladóttur.

Kappræður Höllu, Katrínar og Steinunnar Ólínu 23 Apr 2024

Halla Tómasdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðendur voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu.

Baldur Þórhalls, Jón Gnarr og Halla Hrund 19 Apr 2024

Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Jón Gnarr voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu á Vísi.

Fortíðardraugar og framtíðaráskoranir nýrrar ríkisstjórnar 10 Apr 2024

Nýjustu vendingar í pólitíkinni voru til umræðu í Pallborðinu í dag. Gestir Pallborðsins voru Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, og Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Konunglegt klúður og forsetafabúleringar 14 Mar 2024

Fólk út um allan heim veltir því nú fyrir sér hvað hefur drifið á daga Katrínar prinsessu af Wales og á litla Íslandi virðast menn bíða eftir því að nafna hennar Jakobsdóttir stígi undan feldi og tilkynni af eða á um forsetaframboð. Anna Lilja Þórisdóttir, blaðamaður og royalisti, Einar Bárðarsson, plöggari og plokkari, og Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi forsetaframboðsstýra, mæta til leiks í Pallborðinu í dag til að svara þessum spurningum og fleiri. Hólmfríður Gísladóttir er þáttarstjórnandi þáttar.

Útlendingamálin í brennidepli 08 Feb 2024

Útlendingamálin og staðan sem upp er komin varðandi einstaklinga sem fastir eru á Gasa voru til umræðu í Pallborðinu. Gestir þáttar voru Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Nína Helgadóttir, teymisstjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum.

Veðurstofan gagnrýnd fyrir að deila ekki gögnum 31 Jan 2024

Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum. Fjallað er um málið í Pallborðinu en gestir þáttar eru Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, Dr. Ólafur Rögnvaldsson, stofnandi og eigandi Belgings, og Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athuguna- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofu Íslands.

Deilan um þátttöku Íslands í Eurovision harðnar 26 Jan 2024

Á Ísland að sniðganga Eurovision? Kiknar RÚV undan þrýstingi og hættir við þátttöku? Breytist allt með þátttöku Palestínumanns í Söngvakeppninni? Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, Margrét Kristín Blöndal, tónlistarkona og aðgerðasinni, og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur voru gestir Kristínar Ólafsdóttur í Pallborðinu á Vísi þar sem þátttaka Íslands í Eurovision var til umræðu.

Hvað heldur stjórnarflokkunum saman? 24 Jan 2024

Stjórnarþingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Vinstri grænum og Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki ræddu stöðuna á stjórnarheimilinu við Heimi Má Pétursson í Pallborðinu á Vísi.

EM-pallborðið: Hitað upp fyrir milliriðilinn 18 Jan 2024

Stefán Árni Pálsson fékk Bjarna Fritzson, þjálfara ÍR og fyrrverandi landsliðsmann, og Einar Jónsson, þjálfara Fram, til að spá í spilin og gera upp frammistöðu íslenska liðsins á mótinu til þessa í EM útgáfu af Pallborðinu.

Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? 17 Jan 2024

Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna mættu til Heimis Más Péturssonar fréttamanns í Pallborðið á Vísi í dag, til að ræða stöðuna í pólitíkinni.

EM-pallborðið: Allt undir í fyrsta leik 12 Jan 2024

Ísland mætir Serbíu í fyrsta leik á Evrópumótinu í handbolta. Liðið leikur einnig með Svartfellingum og Ungverjum í riðli. Einar Jónsson, þjálfari Fram, og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, og fyrrum landsliðsmaður verða gestir Stefáns Árna Pálssonar í Pallborðinu. Þar verður hitað upp fyrir mótið, rætt við íþróttafréttamenn Stöðvar 2 og Vísis sem staddir eru í Munchen í Þýskalandi.

Hvað felst í þjóðarsátt og fyrir hverja er hún? 10 Jan 2024

Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Kjaraviðræður, kjarasamningar og möguleg þjóðarsátt voru til umfjöllunar. Gestir þáttarins voru Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, og Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara.

Hver tekur við af Agnesi? 05 Jan 2024

Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Pétur Markan biskupsritari, séra Jóna Hrönn Bolladóttir og séra Örn Bárður Jónsson eru gestir. Fjallað er um biskupskjör og stöðu þjóðkirkjunnar.

PISA könnun og menntamálin - seinni hluti 07 Dec 2023

Fyrrverandi menntamálaráðherrar ræða hvað sé hægt að gera vegna niðurstöðu PISA kannannar. Lilja Alfreðsdóttir, núverandi menningar-og viðskiptaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Illugi Gunnarsson ræða um þróunina, rýna í vandann og um leiðir til að snúa þróuninni við.

PISA könnun og menntamálin - fyrri hluti 07 Dec 2023

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Sigríður Ólafsdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst ræddu menntamál og PISA könnunina.

Átta vikur þar til kjarasamningar renna út 05 Dec 2023

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóra SA og Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ mættust í Pallborði Vísis og fóru yfir komandi samnininga.

Tengd hlaðvörp