Snorri Másson ritstjóri cover

Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

Fréttir vikunnar | Sá sem segist vera undirbúinn er að ljúga

0:00 0:00

Þættir

Fréttir vikunnar | Sá sem segist vera undirbúinn er að ljúga 13 Nov 2026

Eitthvað mikið er að gerast. Stóru tæknifyrirtækjunum í Bandaríkjunum virðist vera í þann mund að takast að búa til svonefnda ofurgreind mun fyrr en talið var og sumir spá því að það gerist strax á næsta ári. Svartsýnustu menn óttast að vitvélarnar nái því stigi von bráðar að vera máttugri en maðurinn í flestu sem skiptir máli, með tilheyrandi ófyrirséðum afleiðingum, á sama tíma og bjartsýnin tröllríður auðvitað öllu líka; ótrúlegar sögulegar framfarir í stóru vandamálum mannkynsins, í krabbameini, Alzheimer, fátækt og öðru sem okkur getur dottið í hug. Í millitíðinni er allt að fara af stað. „Ég óttast að eftir því sem þessi veldisvöxtur heldur áfram verði breytingarnar meiri en við ráðum við að laga okkur að,“ eru skilaboðin frá tæknirisunum. Djúp samfélagsleg röskun fer að líkindum í hönd og þar undir eru tugir þúsunda starfa á Íslandi. Við förum yfir þrjár sviðsmyndir Almannaróms: hægfara umbreytingu, ungt fólk án atvinnu og uppbrot án ábata. Og hvað verður um mannfjöldaspár og innflytjendastefnu þegar öllu er snúið á hvolf? Að lokum er flutt stutt hugleiðing til minningar um Mörð Árnason, málfræðing og alþingismann, en greint var frá andláti hans í þessari viku.

Fréttir vikunnar | Sigur „fjölbreytileikans“ í Bandaríkjunum, Woke 2.0 og brottfararstöð í bið 06 Nov 2026

Af ýmsu er að taka á þessum fallega föstudegi. Demókratar unnu stórsigur í bandarísku þingkosningunum. Hver er með sína skýringu á því. Spilling er nefnd, lífskjarakrísan, efnahagsástandið og svo stríðið í Íran. En ef maður tekur mið af túlkun Samfylkingarinnar virðist þetta allt vera hálfgert aukaatriði. Stóra málið í þeirra augum: Fólkið valdi „fjölbreytileikann“ þar vestra. Við skyggnumst bak við slíkar yfirborðsklisjur og förum yfir raunverulegar ástæður þeirra pólitísku tíðinda sem urðu í Bandaríkjunum í vikunni. Síðan er það brottfararstöðin, sem átti að vera stóra málið í útlendingamálum á síðasta þingi. Svona brottfararstöð hljómar ágætlega á blaði. Fólk á bara að geta verið þarna nokkra daga og vera svo sent úr landi. En þegar maður fer í brottfararstöðvar annars staðar í Evrópu fattar maður að veruleikinn er allt annar. Þar ílengist fólk mánuðum saman og milljarðakostnaður hleðst upp, sem væri mögulega sparaður með því að breyta grunnkerfinu í staðinn. Nú er búið að fresta þessu sem var svona mikið þjóðþrifamál um heilt ár án þess að nokkur blikki auga. Hvað segir það um árangur ríkisstjórnarinnar í þessum mikilvægasta málaflokki okkar tíma? Ritstjórinn fer líka yfir tillögu Miðflokksins um bann við algerri hulningu andlits. Að lokum er það söguhornið. Jón Ólafsson ritstjóri og alþingismaður vildi koma á fót íslenskri nýlendu í Alaska þar sem Íslendingar áttu að geta lifað sem íslensk þjóð, ríkari og fjölmennari en heimaþjóðin. Ritstjórinn les upp úr bók sem Jón skrifaði um þetta árið 1875 og rekur helstu röksemdir fyrir verkefninu sem aldrei varð að veruleika. Menn hafa oft og tíðum miklar vonir og væntingar um glæsta framtíð en veruleikinn er síðan allur annar. Það er kannski ákveðið þema í þessum þætti..

Fréttir vikunnar | Stóra stöðnunin, hin óþarfa unga kynslóð, betlandi ráðherra og hagvöxtur fyrir hvern? 30 Oct 2026

Ritstjórinn lifir góðu lífi og rifjar upp nýleg samskipti við Fjölmiðlanefnd sem stendur blessunarlega vaktina. Mikilvægt er að nú verði myndað jákvætt samband við þennan mikilvæga hagaðila. Dagskrá þáttarins: Hagkerfi sem stækkar án þess að allir njóti endilega góðs af, vaxtarplan ríkisstjórnarinnar og aðferðir hennar til að vinna gegn markmiðum þess, ungt fólk á tímum gervigreindar og skipulagðir glæpahópar á Íslandi. Síðan reiknum við út hvað fást margir sérsveitarmenn fyrir 150 milljónir sem sendar eru til útlanda í staðinn. Hagkerfið hefur sannarlega stækkað en Ísland hefur ekki beint orðið ríkara. Við förum yfir stóru stöðnunina og nýtt vaxtarplan ríkisstjórnarinnar, sem var enn volgt úr prentaranum þegar atvinnuvegaráðherra mætti í ræðustól til að útskýra að það væri bara svona almennt um gott atvinnulíf, en ekki ætlað að taka á raunverulegum vanda hagkerfisins. Hver vill ekki almennt gott atvinnulíf? Síðan er það unga fólkið. Maður heyrir stundum að ungir Íslendingar séu bara svo latir að hreinlegast sé að ráða útlending. En ef atvinnulífið gefst upp á unga fólkinu, þá er ekki nema von að þau öðlist ekki trú á sjálfum sér heldur. Nú bætist gervigreindin við. Líkamlegu störfin mönnuð erlendis frá, skrifstofustörfin farin til gervigreindarinnar og hvað á þá að gera við ungu kynslóðina? Að lokum: Yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar á okkar litla Íslandi og dómsmálaráðherra heldur blaðamannafund um fyrirhuguð verkefni sem enginn peningur er til í. Kannski væri hreinlegra að byrja á að ræða við formann eigin flokks. Það er nefnilega til nægur peningur í ýmislegt annað. Hvað eru það margir sérsveitarmenn?

Fréttir vikunnar | Viðreisn í áfalli, falleinkunn Ingu, og sjálfsmynd Sjálfstæðisflokksins 23 Oct 2026

Til umræðu: Bókun 35 og málstaður Íslands í höndum utanríkisráðherra, brotthvarf Jóns Gnarr úr Viðreisn, stafarugl í skólakerfinu, öryggisátak í Mjóddinni og grunnskólum og fleiri fjölmenningarplástrar, og svo sjálfsmyndarleit Sjálfstæðismanna í tengslum við ýmis slík mál. Kæru vinir, það er föstudagur og hlaðvarpið hefur göngu sína á nýjan leik. Frá því að ritstjórinn, sem þá var, tók sæti á Alþingi hefur hlaðvarpsframleiðslan ekki náð sér á strik en nú er full ástæða til að snúa aftur til reglulegrar framleiðslu. Við tökum upp þráðinn með sömu einföldu kjörorðin: ást á ættjörðu, ást á sannleika. Það er meira en nóg að ræða um lífið, tilveruna og landsins gagn og nauðsynjar. Ríkisstjórnin virðist eiga erfitt með að jafna sig eftir Evrópusambandsáfallið og Jón Gnarr er genginn úr Viðreisn. Við gerum grein fyrir þeirri stöðu sem hann hlýtur að hafa verið kominn í gagnvart klíkunni í kringum formanninn og þar kemur erlent hatursrit við sögu! Um leið veltum fyrir okkur hvers vegna utanríkisráðherra virðist áhugasamari um kröfur Brussel en málsvörn Íslands vegna Bókunar 35. Síðan förum við yfir einkunnakerfið sem á nú að laga með því að skipta út bókstöfum fyrir tölur. Í raun er þó framkvæmd ráðherra öll meingölluð og fær falleinkunn, en þó ekki lægri en fjóra. Við ræðum líka öryggishlið í skólum, opin landamæri og Sjálfstæðisflokk í leit að sjálfum sér. Að lokum: Hvers vegna fær fólk ekki að nýta fæðingarorlofið sitt? Félagsmálaráðherra er með nýtt svar sem felur í sér nöturlega viðurkenningu á því sem marga hefur lengi grunað, að misréttið er sparnaðaraðgerð.

Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar 28 Mar 2025

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.

Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon. 15 Mar 2025

Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.

Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu 25 Jan 2025

Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?

Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina 19 Nov 2024

Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð. Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki landsstjórnin, segir Jakob Frímann.

Ég býð mig fram 19 Oct 2024

Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“

Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín 11 Oct 2024

Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel 04 Oct 2024

Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni 27 Sep 2024

Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara 20 Sep 2024

Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills 13 Sep 2024

Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun 06 Sep 2024

Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar 30 Aug 2024

Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið 23 Aug 2024

Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat 15 Aug 2024

Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/mogginn/dagmal/thjodmalin/251780/%3F_t%3D1723759196.5559003 Hér má nálgast þátt Skoðanabræðra um Nassim Nicholas Taleb: https://www.patreon.com/posts/327-allt-um-einn-110181893?utm_medium=clipboard_copy&utm_source=copyLink&utm_campaign=postshare_creator&utm_content=join_link

Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði 09 Aug 2024

Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið 02 Aug 2024

Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.

Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar 26 Jul 2024

Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund) 17 Jul 2024

Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridley, stöðu Íslands og Bretlands í evrópsku samhengi, við ræðum Evrópusambandið, um misfellur í frjálslyndu lýðræði nútímans og margt, margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki 12 Jul 2024

Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni) 05 Jul 2024

Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins. Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.

Fréttir vikunnar | Bakslag í woke fjárfestingum (með Bjarna Herrera sjálfbærniráðgjafa) 04 Jul 2024

Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa út nýja bók. Við förum yfir bakslag í „ESG“-fjárfestingum, þar sem fólk er hætt að vilja fjárfesta í sjálfbærnimerktum verkefnum sem skila slæmri arðsemi. Allir í sjokki? Bjarni hefur enn trú á verkefninu. Við víkjum einnig að áframhaldandi fylgistapi Sjálfstæðisflokksins og svo að Mannréttindastofnun Íslands. Líklega eru þetta ekki ótengd mál. Loks mál Julian Assange og þýðing þess fyrir viðhorf okkar til eigin stjórnvalda. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Valdarán millistjórnandans og PC-væðing fyrirtækja 21 Jun 2024

Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, starfsmannabyltingar, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“ 14 Jun 2024

Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen) 07 Jun 2024

Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar 31 May 2024

Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm

Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina 24 May 2024

Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og loks Rafstorm.

Fréttir vikunnar | Halla Hrund ruglast, fjallkonan og gervigreind lýgur vísvitandi að ritstjóranum 17 May 2024

Í fréttum vikunnar förum við yfir byltingar í gervigreind og átök innan eins mikilvægasta fyrirtækis heims á því sviði, við tökum gervigreindina tali (skrýtin uppákoma) við ræðum þjóðernishyggju þá og nú, nefnum þar misheppnaða bókargjöf forsætisráðherra og svo förum við yfir rugling hjá Höllu Hrund og skandala í hennar sögu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og einnig Rafstorm.

Fréttir vikunnar | Leiðbeiningar fyrir nýja vinstrið, málfrelsi mótmælenda og heilagir embættismenn 10 May 2024

Í fréttum vikunnar er fjallað um draumórakenndar ráðleggingar fyrrverandi þingmanns til hins svonefnda nýja vinstris (loftslagsmál, femínismi og alþjóðahyggja koma þar við sögu), fjallað er um mótmæli gegn Ísrael vestanhafs, áskoranir kjarnafjölskyldunnar, forsetaframbjóðanda Morgunblaðsins og minnkandi lífslíkur á Íslandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Velferðarkerfi og opin landamæri fara ekki saman – viðtal við David Friedman 03 May 2024

David D. Friedman er eðlisfræðingur að mennt en hefur lagt stund á lögfræði og hagfræði með áherslu á frjálsa markaði og anarkókapítalískt kerfi. Hans framlag til anarkókapítalískrar hugmyndafræði er þýðingarmikið. Faðir David var Milton Friedman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði. Í þessu viðtali fer David yfir siðferði og löggæslu í Íslendingasögunum, sem hann hefur rannsakað sérstaklega út frá hagfræðilegu sjónarhorni, við fjöllum líka um peninga, um opin og lokuð landamæri, um velferðarkerfi, um löggjöf almennt, um það hvað Milton Friedman, pabba hans, hefði þótt um Bitcoin og svo margt margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup og Reykjavík Foto.

Fréttir vikunnar | Órólega deild Samfylkingarinnar, enskuverðlaun og hættulegar upplýsingar 26 Apr 2024

Fréttir vikunnar að þessu sinni fjalla um verðlaun Byggðastofnunar fyrir stjórnsýslu á ensku, hörð viðbrögð við að gagnrýna þau verðlaun, innflytjendastefnu Samfylkingarinnar, loftslagsmál, stórhættulegar upplýsingar og skoðanir Prettyboitjokko á hefðbundnum kynjahlutverkum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Fréttir vikunnar | Réttlát reiði Jóns Gnarr, bestu gjaldmiðlarnir og árásir á fundafrelsið 19 Apr 2024

Farið er yfir „þjóðarhöll“ í fjármálaáætlun og henni att saman við íslenska tungu, Bitcoin-helmingun er tekin fyrir og ummæli bardagakappa um austurríska hagfræði, niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir, ráðstefnu National Conservatism í Brussel, Ólympíuleika án lyfjaprófa og loks deilur á milli Drake og Rick Ross. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Nýtt kalt stríð, óáhugaverð ríkisstjórn og samhengislausir forsetar 12 Apr 2024

Ríkisstjórn, forseti, ofbeldi Bjarna Benediktssonar, orkuöflun, nýtt kalt stríð og þjóðmenning Íslendinga án þess að menn biðjist afsökunar á henni.

Fréttir vikunnar | Forsetaframbjóðendur dæmdir, dánaraðstoð Viðreisnar og hatursorðræða í Skotlandi 05 Apr 2024

Í fréttum vikunnar að þessu sinni er fjallað um frammistöðu forsetaframbjóðendanna hingað til, gerð athugasemd við ræðuhöld þeirra, farið yfir hugmyndir Viðreisnar um aukna dánaraðstoð, nýja hatursorðræðulöggjöf í Skotlandi, séreignastefnu á undanhaldi og stríðsrekstrarmaskínuna í Bandaríkjunum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Fréttir vikunnar | Innræting í grunnskólum, horfnar færslur Felix og ballið búið hjá sveitarfélögum 29 Mar 2024

Í fréttum vikunnar er fjallað um kynjamál sem nú er kennt í grunnskóla í Reykjavík sem réttlætismál, vikið er að horfnum færslum Felix Bergssonar og ummælum hans um þjóðtunguna, farið er yfir femínískar vopnasendingar, fjármál sveitarfélaga og hægrisveiflu í háskólanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Hlaðvarp | Kjartan Þórisson um Noona, frumkvöðlalífið, gervigreind, paradís, heimsendi og geimverur 27 Mar 2024

Það er andi í Kjartani Þórissyni, sem er á meðal fremstu frumkvöðla sinnar kynslóðar í íslensku atvinnulífi. Hann er aðeins tuttugu og átta ára gamall en er framkvæmdastjóri og stofnandi Noona, fyrirtækis með viðskiptavini í yfir tuttugu löndum og samtals vel á fimmta tug starfsmanna. Í þættinum er farið um afar víðan völl, allt frá umræðum um heimsmál og gervigreind til spádóma um annaðhvort heimsendi eða paradís á jörðu. Hlaðvarpsviðtöl Snorra Mássonar ritstjóra eru unnin í samstarfi við vefverslunina www.sante.is.

Fréttir vikunnar | Gaslýsingar kynjafræðinnar, Kristrún vs. Þórdís Kolbrún og jafnréttisskólakerfi 22 Mar 2024

Í fréttum vikunnar er gagnrýni sósíalistaforingja svarað, farið er yfir kaup Landsbankans á Tryggingarmiðstöðinni, farið er í saumana á breyttum viðhorfum í samfélaginu til kynjafræði sem fræðigreinar (Karlmennskan að leggja upp laupana) og svo er rætt um jafnréttishugsjónina í skólakerfinu, ásamt nýstárlegri lausn Breta við leikskólavandanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Stærra ríkisvald fyrir launþega, gervilýðræði og ert þú hægripopúlisti? 15 Mar 2024

Í fréttum vikunnar er fjallað um þá útbreiddu afstöðu að eðlilegt sé að gefast einfaldlega upp fyrir hruninni fæðingartíðni í landinu (og að það sé „hægripopúlismi“ að gera það ekki), svo er rætt um þá reglulegu stækkun ríkisvalds sem fylgir hverjum kjarasamningi sem gerður er á almennum vinnumarkaði, epískt nýtt vélmenni sem gæti breytt heiminum, nýtt skilti Reykjavíkurborgar í Breiðholti, TikTok-bann í Bandaríkjunum og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Tilneyddir forsetaframbjóðendur, rasismi og óreiða í transsamtökum 08 Mar 2024

Í fréttum vikunnar er fjallað um stríðshauka tilneydda í forsetaframboð, stöðu Íslands ef Bandaríkin glata áhrifum sínum, „hatursatkvæði“ Í Eurovision, rasisma á íslenskum samfélagsmiðlum og nýja skýrslu upp úr gögnum sem lekið var frá alþjóðlegum transmeðferðarsamtökum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

Grein | Af hverju er Bitcoin í hæstu hæðum? 04 Mar 2024

Grein á www.ritstjori.is: „Upphafið að endalokunum“ var fyrirsögn Viðskiptablaðsins um stöðu Bitcoin fyrir tæpu ári. Staðan núna: Bitcoin hefur aldrei í sögunni verið verðmætara gagnvart krónu.

Fréttir vikunnar | Hættulegir Sjálfstæðismenn í umferðinni, skordýr í matinn og Bitcoin 01 Mar 2024

Í fréttum vikunnar er farið yfir nauðsyn þess að koma ríkisfjármálunum í lag, farið er yfir rafmyntir og vantraust í garð Seðlabankans, styttingu framhaldsskólanna, skaðsemi nikótínpúða, skattahækkanir Sjálfstæðisflokksins og svo misheppnaðar tilraunir þess sama flokks til að „leggja niður jafnlaunavottun.“ Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

Grein | Vituð þér enn, eða hvað? 26 Feb 2024

Það er bitastæð svört pilla að hætta að treysta Google. Grein af ritstjóri.is.

Fréttir vikunnar | Tvískinnungur gagnvart pólitískum ofsóknum, íslenska í leigubílum og Google endurskrifar söguna 23 Feb 2024

Í fréttum vikunnar er farið yfir tvískinnung manna í afstöðu til Rússa og Bandaríkjamanna þegar kemur að ofsóknum stjórnarandstæðinga, farið er yfir kostnað í hugsanalögregluátaki forsætisráðherra, heildarsýn ríkisstjórnar í útlendingamálum er skoðuð og vöngum velt yfir glóbalískri frjálslyndri verkalýðshreyfingu og loks lýsir ritstjórinn yfir áhyggjum af endurskrifun sögunnar á vegum Google. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

Fréttir vikunnar | Slaufunarmenning elítusport, PC-væðing Ölgerðarinnar og vinnustaðaleikskólar 16 Feb 2024

Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, viðbrögð við stefnubreytingu Samfylkingarinnar í flóttamannamálum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

Grein | Bjarni hafi opnað landamærin og kvarti nú yfir fánum á Austurvelli 13 Feb 2024

Einar Þorsteinsson borgarstjóri sækir í sig veðrið eftir embættistöku og skaut föstum skotum á utanríkisráðherra á Viðskiptaþingi... Hljóðbrot af Viðskiptaþingi. Meira um málið á www.ritstjori.is.

Fréttir vikunnar | Góð bóluefni, fyrirmæli forsætisráðuneytisins og 2% íbúa í fangelsi 09 Feb 2024

Í fréttum vikunnar er farið yfir nýtt rétthugsunarátak forsætisráðuneytisins, endurkjör forseta El Salvador, kostnað skattgreiðenda við fyrirspurnafár, bólusetningar gegn mislingum og margt fleira sérlega forvitnilegt. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

Grein | Dregið úr latínukennslu við MR 05 Feb 2024

Varðhundar klassískrar menntunar hafa alltaf áhyggjur þegar þeir lesa slíkar fyrirsagnir. Hér má þó halda því fram að málið sé ekki endilega grafalvarlegt, þótt sporin hræði... (lat. vestigia terrent!)

Tengd hlaðvörp