Spegillinn cover

Spegillinn

RÚV

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nýtt frumvarp um orkumál, virkjanir og raforkuflutninga, öryggimál og Úkraína

0:00 0:00

Þættir

Nýtt frumvarp um orkumál, virkjanir og raforkuflutninga, öryggimál og Úkraína 13 Nov 2026

Í gær birtist í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það er mjög ítarlegt - með því eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum og þvi er ætlað að flýta fyrir uppbyggingu á raforkuinnviðum, einfalda leyfisveitingar og ýmislegt fleira. Rúnar Pálmason ræddi við Jóhann Pál um frumvarpið og við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar. Fari svo að Evrópa eða Evrópusambandið verði beinn þátttakandi í viðræðum um frið í Evrópu - hver eða hverjir gætu verið í forsvari? Og - hvað eiga rússnesk stjórnvöld við, þegar þau vilja tala um nýja uppbyggingu á öryggismálum í Evrópu, samhliða því að tala um Úkraínu? Björn Malmquist leitaði svara. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Mark Eldred

Þungt regluverk, Silfrastaðakirkja og brottrekstur Nvidia-forstjóra 12 Nov 2026

Samtök Iðnaðarins og framáfólk í þeirra röðum er á einu máli um að íslenskt regluverk sé of þungt í vöfum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir það sláandi hversu stór hluti stjórnenda iðnfyrirtækja hefur lent í flækjum vegna regluverks, úskýrra reglna eða hægrar afgreiðslu stjjórnsýslunnar á erindum þeirra. Rúnar Pálmason fjallar um málið. Það kostaði mikla vinnu og enn meiri þolinmæði að afla fjár til að koma hinni 130 ára Silfrastaðakirkju í gott horf. Það er ekki síst fyrir þolgæði og ákveðni Maríu Jóhannsdóttur, bónda í Kúskerpi í Skagafirði og formanns sóknarnefndar Silfrastaðakirkju að það tókst, og nú stendur kirkjan aftur á sínum stað, eins og ný. Ágúst Guðmundsson ræddi við Maríu og Björn Friðrik Svavarsson. Jensen Huang forstjóri tæknirisans Nvidia hætti störfum síðdegis eftir mikið fár sem tengist einkalífi hans, framhjáhaldi og ástarsamböndum bæði við konu sem er sökuð um að njósna fyrir Kína og við starfsmann fyrirtækisins. Anna Kristín Jónasdóttir skoðar málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Mótvægisaðgerðir vegna loftslagsmála, fyrirhuguð sala á Ljósleiðaranum 11 Nov 2026

„Víðtækur skilningur virðist ríkja á þeim hættum sem loftslagsbreytingar fela í sér, þótt aðgerðir skorti.“ Þetta er lykilsetning í nýútkomnu mati loftslagsráðs á skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaragerða í loftslagsmálum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Halldór Þorgeirsson, formann loftslagsráðs um mótvægis- og aðlögunaragerðir hér á landi í loftslagsmálum. Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í síðasta mánuði að veita umboð til aðgerða sem geta leitt til breytinga á eignarhaldi félagsins. Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað. En hvaða félag er Ljósleiðarinn og hvernig gengur reksturinn? Rúnar Pálmason ræddi um það við Þuríði Björg Guðnadóttur, framkvæmdastýru Ljósleiðarans. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Mark Eldred

Friðarviðræður í Abú Dabí og Loftslags(ginnungagapið 10 Nov 2026

Tveggja daga friðarviðræður sendimanna Úkraínu og Rússlands undir forystu Bandaríkjanna byrjuðu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í morgun. Menn sátu þar við í fjóra tíma og sendimenn frá Moskvu og Kænugarði vildu lítið um fundinn í dag segja. Haft er eftir utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, sem var reyndar ekki á fundinum, að hann hafi verið árangursríkur. Fulltrúar Evrópu eru í Abú Dabí og hafa rætt við sendinefndir Úkraínu og Bandaríkjanna en Rússar hafa ekki tekið í mál að hleypa þeim að fundarborðinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Ólafsson prófessor og sérfræðing í málefnum Rússlands. Enn er mögulegt að takmarka hlýnun Jarðar við 1,8 gráður, en til þess þarf markvissar, róttækar og umfram allt skjótar aðgerðir. Sporin hræða, því illa hefur gengið að draga úr losun - og hlýnun - undanfarin ár. Hvað gerist ef hlýnunin fer yfir tvær gráður? Og um hvað er rætt á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 31, í Tyrklandi? Elín Björk Jónasdóttir sérfræðingur í loftslagsmálum svarar því í samtali við Ævar Örn Jósepsson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Hlýnun umfram 1,5 óhjákvæmileg en hægt að halda undir 1,7 gráðu ef brugðist er við skjótt 09 Nov 2026

Jörðin mun óhjákvæmilega hafa hlýnað um meira en 1,5 gráður áður en þessari öld lýkur, þar sem ríki heims hafa einfaldlega dregið of lítið úr losun gróðuhúsalofttegunda til að hægt sé að forðast það úr þessu. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna um bilið á milli loftslagsmarkmiða og raunverulegs árangurs. Með róttækum og skjótum aðgerðum á næstu 15 árum megi þó takmarka hlýnunina við eina komma sjö til eina komma átta gráður. Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur í loftslagsmálum segir ekki útilokað að þetta takist, þrátt fyrir að notkun jarðefnaeldsneytis sé enn að aukast og losun minnki ekki að neinu ráð. Aðeins eitt land í heimunum, Sviss, nær enn að halda stýrivöxtum sínum í núlli, þar eru húsnæðislánin á eitt til tvö prósent vöxtum, verðbólga í 0.8 prósentum og jafnvel virðisaukaskatturinn óvenju lágur miðað við nágranna þess í Evrópu eða í 8.1 prósenti sem er þriðjungur af því sem innheimt er á Íslandi. Jón Björgvinsson kannar ástæður þessa.

Chrome-bækur læstar inn í skáp, nýtt gjald í höfnum, viðbrögð evrópskra ráðamanna við kosningum í Bandaríkjunum 06 Nov 2026

Í Hagaskóla í Reykjavík fá nemendur ekki lengur afhentar Chrome-bækur til afnota, heldur eru þær geymdar í læstum skápum og aðeins notaðar þegar þörf er á. Þess í stað er notast við bækur, ljósrit, blöð og blýanta. Rúnar Pálmason ræddi við Ómar Örn Magnússon skólastjóra Hagaskóla. Breytingu á lögum sem taka gildi um áramót og skylda hafnarstjórnir til að innheimta nýtt gjald af ákveðinni tegund skipa og báta, fylgir engin reglugerð. Þetta setur starfsfólk hafna um allt land í óþægilega stöðu, því leiðbeiningar um hvernig á hefja þessa nýju innheimtu eru ekki til. Ágúst Ólafsson fjallaði um málið og ræddi við Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur, umhverfis- og gæðastjóra Faxaflóahafna. Þótt núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum njóti takmarkaðra vinsælda í Evrópu, urðu fáir þar til að lýsa opinberlega yfir gleði sinni yfir sigri Demókrata í þingkosningunum vestanhafs á þriðjudaginn. Donald Trump á tvö ár eftir af embættistíð sinni og Evrópuríki þurfa áfram á stuðningi hans og samvinnu að halda - ekki síst hvað varðar Úkraínu. Björn Malmquist fjallaði um þetta í Speglinum. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Síld, verðtrygging og sigurbogi 05 Nov 2026

Það má segja að vertíðarskil séu hjá íslenska síldveiðiflotanum þessa dagana, en veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer að ljúka og þá hefjast veiðar á íslenskri sumargotssíld. Fjármálaráðherra stefnir á að leggja fram frumvarp sem takmarkar lánstíma verðtryggðra íbúðalána við 25 ár en nú er hægt að fá slíkt lán til allt að 40 ára. Sitt sýnist hverjum um þau áform. Arionbanki er styttingu hliðhollur en lífeyrissjóðir ekki. Rætt við Þóreyju S. Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Landssambands lífeyrissjóða og Má Wolfgang Mixa prófessor. Donald Trump forseta Bandaríkjanna er umhugað um arfleifð og áþreifanleg marki um forsetatíð sína. Meðal annars vill hann reisa mikinn sigurboga í Washington en það er umdeilt.

Úrslit þingkosninga í Bandaríkjunum, varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi 04 Nov 2026

Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum í gær. Það er algengt að flokkur sitjandi forseta tapi þingmeirihluta í kosningum á miðri setu hans en þessar niðurstöður og stærð sveiflunnar koma engu að síður á óvart. Kosningarnar snerust mikið um Donald Trump forseta, eins og hann lagði í raun upp með, en það kom á endanum niður á flokksbræðrum hans í Repúblikanaflokknum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sverri Steinsson, doktor í stjórnmálafræði og kennara við Torontoháskóla. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í lögreglunni á Suðurnesjum, er einn höfunda nýrrar löggæsluáætlunar til næstu fimm ára. Rætt var við hann um þörfina á því að fjölga lögreglumönnum um tvö hundruð á næstu árum, hlutverk lögreglu til að takast á við fjölþáttaógnir og áherslu á þjóðaröryggi. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Fylgi flokka og skipulögð brotastarfsemi 03 Nov 2026

Fylgi flestra flokka er á svipuðum nótum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups og var í síðustu könnun en Miðflokkurinn bætir mestu við sig, tveimur prósentum milli kannana, fær rúm 17% og er þriðji stærsti flokkurinn. Samfylkingin sem er stærst með 29%, tapar um prósenti milli kannana, Sjálfstæðisflokkurinn stendur nánast í stað með 25% og fylgi annarra flokka breytist líka lítið sem ekkert, Anna Kristín Jónsdóttir fékk Viktor Orra Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði til að rýna í stöðuna. Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið birti í liðinni viku. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er sérfróður um þennan málaflokk. Hann segir umfang þessarar brotastarfsemi mikla, hér sem annars staðar, en skipulögð glæpastarfsemi er talin einhver mesta ógn sem steðjar að vestrænum samfélögum. Ævar Örn Jósepsson talar við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Sala Fjarðarkaupa og kosningar í Bandaríkjunum 02 Nov 2026

Tilkynnt var í dag að Samkaup, dótturfélag Dranga hefðu keypt Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einu stóru matvöruverslunina sem stóð utan við stóru verslanarisana þrjá. Spegillinn leit við í Fjarðarkaupum og ræddi við viðskiptavini, forstjóra Dranga og sviðsstjóra hjá ASÍ um matvörumarkaðinn, samkeppni og verðlag. Í kosningum til fulltrúadeildar, þriðjungs öldungadeildar og fjöla ríkisstjóra í Bandaríkjunum bendir margt til sigurs Demókrata en spurningin er hver áhrifin verða á starfshætti forsetans.

Fjármál sveitarfélaga, traust fólks til lögreglu 30 Oct 2026

Flest stærstu sveitarfélög landsins hafa nú birt fjárhagsuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026. Og staðan er ekki góð - þótt hún sé vissulega misjöfn. Sambands íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing samtakanna, um niðurstöðuna og um stöðu sveitarfélaga almennt. Dómsmálaráðherra kynnti í vikunni löggæsluáætlun til næstu fimm ára, undir yfirskriftinni Traust lögregla - öruggt samfélag. Áætlunin er afrakstur vinnu stýrihóps um stefnumótun í löggæslu, sem ráðherra skipaði í byrjun árs. Áætlunin - eða stefnan - skiptist í þrjá yfirflokka: Traust lögregla, öruggt samfélag og svo fagleg og framsækin lögregla. Ævar Örn Jósepsson beindi sjónum síða að bræðingi úr tveimur fyrrnefndu flokkunum með einum höfunda áætlunarinnar, Rannveigu Þórisdóttur félagsfræðingi og sviðsstjóra þjónustusviðs hjá ríkislögreglustjóra.

Gagnaver og verkjalyf við ástarsorg 29 Oct 2026

Það lætur hátt í tölvunum í gagnaveri AtNorth í Reykjanesbæ, þær knýja gervigreind fyrir erlendan viðskiptavin. Búnaður verann er dýr og eftirlitið mikið við verið. Í Danmörku veldur aukin neysla á parasetamóli áhyggjum, ekki síst hjá ungu fólki sem tekur það ekki bara við hausverk, heldur líka alls konar almennri vanlíðan. Þróunin hefur ekki verið alveg sú sama hér en þó ber að varast ofskömmtun.

Kosningar í Ísrael annars vegar og Serbíu hins vegar, sjávarjarðir og sjókvíar 28 Oct 2026

Þingkosningar voru haldnar í Ísrael í gær. Þegar búið er að telja yfir 85 prósent atkvæða er ljóst að hvorug meginfylkingin í ísraelskum stjórnmálum mun ná hreinum meirihluta. Afar litlu munar á fylgi þeirra en hægri blokkin, sem Benjamin Netanyahu leiðir, hefur þó eilítið forskot á stjórnarandstöðuna, þar sem Gadi Eisenkot er forsætisráðherraefni. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson prófessor í sögu Miðausturlanda. Hvað gerist í Serbíu eftir kosningarnar á sunnudaginn, þar sem bundinn var endi á fjórtán ára valdatíð Alexanders Vucic forseta og flokks hans? Breytast samskipti Serbíu við nágrannaríkin, við Rússland - og hvað með umsókn Serbíu um aðild að Evrópusambandinu? Björn Malmquist fjallaið um það. Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitarfélaga nær aðeins út að þessari fjarlægð frá landi og einnig yfirráðasvæði eigenda jarða sem liggja að sjó. Sveitarfélög hafa lengi reynt að fá þessu breytt og vilja hafa frekara skipulagsvald en þarna segir og geta haft um það að segja hvað fer í sjóinn inni í fjörðum. Ágúst Ólafsson fjallar um úrskurð sem lögmaður landeigenda telur marka tímamót. Umsjón: Rúnar Pálmason Tæknimaður: Mark Eldred

AMOC-veltihringrásin og uppbygging gagnavera 27 Oct 2026

Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið stóð nýverið fyrir sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga og líklegar afleiðingar þess fyrir Ísland. Elín Björk Jónasdóttir vann að undirbúningi æfingarinnar. Hún er líka í stýrihópi sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem skipaður var til að fara yfir stöðu vísindalegrar þekkingar á AMOC og öðrum loftslagsvendipunktum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Á Íslandi starfa þrjú alþjóðleg gagnaversfyrirtæki sem reka sjö gagnaver. Fyrirtækin, sem eru að mestu í erlendri eigu, hafa aukið umsvif sín mikið og stefna öll að frekari uppbyggingu á Íslandi. Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur en þar sem þau eru öll í erlendri eigu að mestu má ætla að þau skili minna til landsmanna en stóru tölurnar gefa til kynna. Rúnar Pálmason ræðir við Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

10. bekkingar um breytingar á einkunnagjöf og uppbygging gagnavera 26 Oct 2026

Nemendur í efsta bekk grunnskólans fá einkunnir í tölustöfum ekki bókstöfum í vetur í fyrsta sinn um árabil. Verður skýrara og auðveldara að bera saman frammistöðu og árangur nemenda og skóla? Margir hafa sagt að tíminn sé knappur og útfærslan ekki ljós, ráðherra hefur litlar áhyggjur en hvað segja 10. bekkingarnir Guðdís Magnúsdóttir, Jakob Ægisson og Urður Óskarsdóttir. Ný greining Samtaka iðnaðarins sýnir að gagnaver á Íslandi nota 3,7% af raforku sem er framleidd hér, en gera má ráð fyrir að það hlutfall hækki á næstu árum. Gagnaverin á Íslandi eru að stækka og fleiri fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á að reisa hér gagnaver. Þetta þekkir Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun.

Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, mögulegar siglingar á milli Aberdeen og Seyðisfjarðar, óleyfilegar framkvæmdir við gagnaver Google í Finnlandi 23 Oct 2026

Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Innviðaráðherra hefur boðað heildarendurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs í haust. Sértæki byggðakvótinn eru aflaheimildir sem Byggðastofnun úthlutar. Strandveiðar og línuívilnun komu lakast út hvað byggðafestumarkmiðin varðar. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræddi við Vífil Karlsson. Hafnaryfirvöld í sveitarfélaginu Múlaþingi telja nauðsynlegt að fjölga verkefnum og styrkja höfnina á Seyðisfirði þar sem útlit er fyrir talsverðan samdrátt í flutningum um höfnina. Reglulegar landanir á fiski hafa þegar dregist verulega saman og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitar- og hafnarstjóri Múlaþings, segir einnig útlit fyrir samdrátt í komum skemmtiferðaskipa. Ágúst Ólafsson ræddi við hana. Skammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandlega afgirt svöðusár í annars ræktarlegum skóginum sem umlykur bæinn. Þar er búið að fella um 250.000 tré síðan í sumar, til að rýma fyrir gagnaveri á vegum Google. Opinber eftirlitsstofnun hefur stöðvað framkvæmdirnar og hyggst kæra þær til lögreglu. Það þykir mörgum heldur seint í rassinn gripið. Ævar Örn Jósepsson fjallaði um þessar framkvæmdir. Umsjón: Rúnar Pálmason. Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Leigumarkaðurinn, rjúpnaveiði og bólusetningar 22 Oct 2026

Fasteignamarkaðurinn er með dauflegasta móti. Í mörgum tilfellum eru nýjar íbúðir sem ekki seljast boðnar til leigu - en vandinn er að þær henta ekki allar leigumarkaðnum sérlega vel. Rúnar Pálmason ræðir við Vigni Má Lýðsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Igloo sem rekur vinsælan leiguvef, myigloo.is. Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun og bjartsýni ríkir meðal veiðimanna enda hefur rjúpnastofninn ekki verið sterkari í áratugi - rjúpnaveiðimönnum hefur aftur á móti fækkað mikið í gegnum árin. Ágúst Ólafsson talar við Áka Ármann Jónsson, formann Skotvís. Með bóluefnum og bólusetningu hefur sjúkdómum á borð við bólusótt verið útrýmt og í augsýn er að lömunarveiki fari sömu leið, segir Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Bólusetning, til dæmis gegn flensu og kóvid, geti haft áhrif til varnar fleiri sjúkdómum en þeim sem bólusett er við. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Áhrif gervigreindar á störf og atvinnuhorfur tölvunarfræðinga, líffræðileg fjölbreytni 21 Oct 2026

Viðmælendur Spegilsins segja að gervigreindin, sem hefur margfaldað afköst við hugbúnaðargerð, sé ein af skýringunum á auknu atvinnuleysi tölvunarfræðinga en margt spili inn í. Bæði eru þau bjartsýn á atvinnumöguleika tölvunarfræðinga til framtíðar. Sáttmálinn um verndun líffræðilegs fjölbreytileika er einn þriggja meginsáttmála sem þjóðir heims komu sér saman um á Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro sumarið 1992. Hinir snúa annars vegar að aðgerðum til að hamla gegn loftslagsbreytingum og hlýnun Jarðar, og hins vegar að vörnum gegn eyðimerkurmyndun. Óhætt er að segja að illa hafi gengið að ná þeim árangri sem að var stefnt.

Atvinnuleysi tölvunarfræðinga, Alberta og Kanada og norðurslóðastefna ESB 20 Oct 2026

Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum. Í október 2024 voru 128 með slíka menntun atvinnulausir en í september á þessu ári voru þeir orðnir 215. Rúnar Pálmason kannaði hverju sætir og ræddi við Ástu Ásgeirsdóttur hjá Vinnumálastofnun. Lengi hefur gætt nokkurrar tortryggni í Alberta-fylki í Kanada í garð stjórnarinnar í höfuðborginni Ottowa. Og sú tortryggni er ekki horfin þrátt fyrir að niðurstöður atkvæðagreiðslu í fylkinu sýndu afgerandi vilja íbúa í Alberta til að vilja vera áfram innanbúðar í Kanada. Hallgrímur Benediktsson, prófessor í Calgary í Albertafylki rýnir í úrslitin og þýðingu þeirra í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Evrópusambandið ætlar að auka samstarf við ríki á Norðurslóðum, sérstaklega hvað varðar öryggis- og varnarmál, samkvæmt uppfærðri stefnu sambandsins sem kynnt var í dag. Samstarf við Grænlendinga er hornsteinninn í þessari áætlun og andstaðan við orkuvinnslu á norðurslóðum er ekki eins afgerandi og í fyrri áætlun. Björn Malmquist fer yfir málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Dómur Danmörku fyrir að búa til barnaníð með gervigreind og sumarvinna ungs fólks á undanhaldi 19 Oct 2026

Nýlega féll dómur í Hæstarétti Danmerkur þar sem tekist var meðal annars á um hvort barnaníðsefni sem væri búið til með gervigreind skaðaði börn. Niðurstaða dómsins var að svo væri. Íslensk lög hníga í sömu átt segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við HR: Rannveig Rist fyrrverandi forstjóri álversins í Straumsvík ræddi nýlega um sjálfsmynd Íslendinga - þeir héldu að þeir væru svo kvikir og fljótir að bregðast við en væru í raun oft frekar staðnaðir og hlypu hver á eftir öðrum. Í ræðu sinni á ársþingi Samtaka atvinnulífsins vék hún líka að mikilvægi sumarvinnu ungs fólks, sem væri á undanhaldi.

Nýr forseti ASÍ, smábátasjómenn í ólgusjó 16 Oct 2026

Georg Páll Skúlason var í dag kjörinn forseti Alþýðusambandsins. Við ræðum við hann um deilurnar innan ASÍ, helstu verkefni, stefnu, gagnrýni á framgöngu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra og fleira. Fertugasti og annar aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst í gær og lauk síðdegis í dag. Þar var Kjartan Páll Sveinsson endurkjörinn formaður og hann ræðir um það helsta sem brennur á smábátasjómönnum í upphafi þessa fiskveiðiárs

Að vera eða vera ekki þingmaður Viðreisnar & átök í verkalýðshreyfingunni 15 Oct 2026

Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag og bar við ólíkum áherslum og ágreiningi um forgangsmál. Hann segist þó ætla að vera áfram í Viðreisn og styðja hvorutveggja flokkinn og ríkisstjórnina áfram, og hefur gert um það skriflegan samning við flokk sinn. Samkvæmt honum heldur Jón nánast óbreyttri nefndarsetu, auk þess sem hann hefur sama aðgang að stoð- og sérþjónustu þingflokksins og áður. Ævar Örn fer yfir þessa óvenjulegu stöðu með Evu Heiðu Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands. Átök og núningur milli formanna tveggja stærstu verkalýðsfélaga í Alþýðusambandi Íslands, Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar og Höllu Gunnarsdóttur formanns VR hefur verið áberandi í aðdraganda þings sambandsins sem lýkur á morgun. Þar verður kosin ný forysta og nýr forseti sambandsins. Ágreiningur í verkalýðshreyfingunni er ekki nýr af nálinni. Sigurður Pétursson sagnfræðingur telur að segja megi að tvær blokkir hafi myndast í síðustu kjarasamningum. Öðrum megin sé VR og hins vegar Efling og SGS, iðnaðarmannafélögin skiptist á milli en ekki gott að greina ástæðurnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Vondar fréttir frá Úkraínu, haustráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar vegna loðnuveiða, sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun 14 Oct 2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir vondar fréttir berast frá Úkraínu og um margt sé ástandið þar eins og á fyrstu dögum stríðsins fyrir fjórum árum. Haustráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir komandi loðnuvertíð olli vonbrigðum. Fólk með þroskahömlun er fullfært um að taka eigin ákvarðanir með réttum stuðningi segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun á Íslandi. .

Landspítalann skortir milljarða í reksturinn og björgunarskip Landsbjargar 13 Oct 2026

Fjármálaráðherra lagði fram hallalaus fjárlög þegar þing kom saman, tekjurnar sem þar var gengið út frá hafa þegar skerst um einn og hálfan milljarð vegna aðgerða stjórnarinnar til að stuðla að kjarasamningum og rekstrargatið sem blasir við Landspítalanum á næsta ári er upp á um tvo milljarða. Og það vantar víðar fé; til að ljúka fjármögnun á nýjum björgunarskipum Landsbjargar vantar um einn og hálfan milljarð.

Ólga í verkalýðshreyfingunni ekkert ný og fjölgar hægt í STEM- greinum 12 Oct 2026

Finnbjörn Hermannsson kveður ASÍ í vikunni, en hann hefur verið forseti ASÍ síðan vorið 2023. Hann segir að óstyrk hagstjórn og sveiflur á vinnumarkaði séu erfiðasta verkefnið en styrkur Alþýðusambandsins felist í samtakamættinum. Forsetar Tæknisviðs HR og Verkfræði og náttúruvísindasviðs HÍ segja báðir að gjá hafi myndast á milli framhaldsskóla og háskóla. Nemendur komi nú verr undirbúnir en áður sem geti haft áhrif á aðsókn í svokallaðar STEM-greinar í háskólunum.

Samskipti á vinnumarkaði, einmanaleiki og fæðingarþunglyndi 09 Oct 2026

Ólga og spenna eru ábyggilega þau orð sem hvað oftast koma upp þegar fjallað er um íslenskan vinnumarkað og kjarasamninga. Mikilli spennu var aflétt þegar loks varð ljóst í gær að samningum á almennum markaði yrði ekki sagt, upp þrátt fyrir að forsendur um verðbólguviðmið hefðu brostið. Niðurstaðan er sú að samningar halda næsta árið og svo kemur í ljós hvað tekur við. Einmanaleiki er vaxandi meinsemd víða og Ísland ekki undanskilið. Mæður í fæðingarorlofi segjast oftar einmana en áður og hlutfall þeirra sem sýna einkenni fæðingarþunglyndis hefur tvöfaldast á rúmlega áratug.

Sameining og sundrung í Suðurnesjabæ, mótmæli gegn nátturugjaldi og stækkunarstefna Evrópusambandsins 08 Oct 2026

VIðræður um nýjan meirihluta. í Suðurnesjabæ eru farnar af stað og sagðar ganga vel. Fyrri meirihluti sprakk eftir fjögurra mánaða samstarf og á miðju síðasta kjörtímabili þurfti líka að mynda nýjan meirihluta. Má kannski segja að það hafi verið frekar róstusamt í sveitarstjórninni í þessu tiltölulega nýja sveitarfélagi sem varð til fyrir um átta árum þegar Garður og Sandgerði gengu í eina sæng. Í bæði skiptin hefur verið vísað til ágreinings um hvort nýr gerfigrasvöllur eigi að vera í Sandgerði eða Garði. Róbert Ragnarsson sem hefur verið ráðgjafi við sameiningu margra sveitarfélaga neitar því að þetta sýni að sameiningin hafi ekki tekist. Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út í gær. Alls bárust 35 umsagnir, langflestar neikvæðar. Sveitarfélög á Suðurlandi benda meðal annars á að ósanngjarnt sé að gjald sem þetta sé eingöngu lagt á þá ferðamenn sem fara Gullna hringinn. Umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar er ítarlegust, alls 39 blaðsíður. Rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra þeirra. Stækkunarmál Evrópusambandsins verða ofarlega á dagskrá leiðtogafundar sambandsins í Brussel í næstu viku. Framkvæmdastjórn ESB leggur til varnagla fyrir verðandi aðildarríki, og Úkraínumenn eru ekki sáttir við hugmyndir um að takmarka aðgang þeirra að innri markaðnum.

Launaþróun, vextir, verðbólga og samningar; mótmæli í Frakklandi 07 Oct 2026

Á fundi Seðlabankans í morgun, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega fjallað um launaþróun hér á landi og hún borin saman við launaþróun erlendis. Þar kom fram að bæði nafnlaun og raunlaun hafa hækkað mun meira hér en til dæmis á öðrum Norðurlöndum. Launakostnaður á hverja unna stund er jafnframt sá mesti í Evrópu ef launatengd gjöld eru tekin með. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, lagði mikla áherslu á að ekki væru forsendur til að hækka laun hér frekar. Ekki eru allir sammála honum um það. Rúnar Pálmason tók saman. Á milli 250 og 500 þúsund manns, fyrst og fremst menntskælingar og stuðningsfólk þeirra og þá ekki síst foreldrar þeirra og háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland í gær og kröfðust betri aðbúnaðar í framhaldsskólum. Þetta voru fjölmennustu mótmælin frá því að ungmenni byrjuðu að loka aðgangi að menntaskólum um miðjan september. Lokuðu skólarnir skipta nú hundruðum. Og það sér ekki fyrir endann á þessum fjölmennu mótmælum, sem hófust sem stuðningsaðgerð við kennara í einum skóla en eru löngu farin að teygja sig langt út fyrir skólakerfið. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Torfa Túliníus prófessor og sérfræðing í frönskum þjóð- og stjórnmálum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Gengi krónunnar, Marco Rubio, skortur á íslenskum námsgögnum 06 Oct 2026

Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira frá því í sumar. Frá áramótum nemur styrkingin um fjórum komma sjö prósentum og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí. Ein evra kostaði rúmlega 147 krónur um áramótin en stendur nú í 137 krónum - er sem sagt um 7 prósentum ódýrari - en hafa verður í huga að evran hefur almennt gefið eftir gagnvart öðrum gjaldmiðlum - stórum og smáum. Heimsókn Marcos Rubios utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands staðfestir náin og góð tengsl ríkjanna að dómi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem var á sameiginlegum blaðamannafundi með kollega sínum í Safnahúsinu í morgun. Rubio sagði að það sýndi sig enn og aftur að landafræði skipti máli. Frumvarp sem átti að bregðast við lakri stöðu námsgagna á Íslandi, og hefur í fjórgang verið sett á þingmálaskrá, verður ekki tekið fyrir á þessu þingi. Tveir fyrrverandi ráðherrar menntamála úr jafnmörgum ríkisstjórnum reyndu að fá frumvarpið samþykkt, en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Ládeyða í kauphöllinni, mjólkurkvóti og ísbirnir 05 Oct 2026

Veltan í íslensku kauphöllinni hefur ekki verið minni og viðskipti ekki verið færri frá árinu 2020. Ávöxtunin hefur heldur ekki verið upp á marga fiska, svona almennt séð og OMX 15-vísitalan sem mælir gengi á bréfum 15 stærstu félaganna, lækkað um 11 prósent það sem af er ári. Rúnar Pálmason þýfgaði Magnús Harðarson, forstjóra kauphallarinnar, um ástæður þessa og horfurnar. Mikla eftirspurn eftir mjólkurkvóta má rekja til þess að færri yfirgefa greinina, að mati kúabónda. Vatnaskil urðu í mjólkurframleiðslu þegar gömlu básafjósin voru bönnuð fyrir rúmum tíu árum. Á aðlögunartímanum sem á eftir fylgdi fækkaði kúabúum mikið en bú þeirra sem uppfærðu í ný fjós stækkuðu fyrir vikið. Mjólkurbóndi segir jafnvægi að komast á geirann en fjármagnskostnaður sé töluverður hluti af útgjöldum bænda. Gréta Sigríður Einarsdóttir forvitnaðist um þetta og ræddi við þau Atla Má Traustason og Sigurbjörgu Ottesen. Ísbjörninn er mögulega sú dýrategund sem hvað oftast er nefnd - og fjallað um - í tengslum við yfirstandandi loftslagshamfarir og afleiðingar þeirra, enda hvítabirnir miklar og tignarlegar skepnur þar á ferð, sem augljóslega verða illilega fyrir barðinu á þeim. Sérstakur stofn á suðausturodda Grænlands er þó undantekning þar á og hefur aðlagað sig breyttum heimi. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Skipulagsmál og byggingamarkaðurinn, ebólufaraldur í Kongó, þjóðhátíðardagur Kína 02 Oct 2026

HMS - eða Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Yfir fjögur þúsund manns hafa dáið í ebólufaraldrinum sem geisað hefur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan í maí og rúmlega 8.300 smit hafa verið staðfest í sjö héruðum landsins. Kínverjar héldu upp á þjóðhátíðardag sinn og forseti Kína hefur gert víðreist.

Staða kjarasamninga og angist friðelskandi Norðmanna 01 Oct 2026

Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að ákveða hvort hin svonefndi stöðugleikasamningur Samtaka atvinnulífsins og margra stærstu stéttarfélaga landsins fái að standa, þrátt fyrir að verðlagsforsendur hans séu brostnar. Verðlagsforsendur samninganna eru þær að 12 mánaða verðbólga mælist ekki yfir 4,7 prósent í ágúst á þessu ári. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár og mælist nú rétt undir sex prósentum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði í dag tillögu að sameiginlegri yfirlýsingu allra hagsmunaaðila, um aðgerðir til að ná niður verðbólgu og tryggja að samningar haldi. Þessa tillögu hyggst hún leggja fram á ríkisstjórnarfundi á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ, um hvað þurfi að vera í þessari tillögu til að þetta markmið forsætisráðherra náist. Í vikunni hafa verið opnir fundir í eftirlits- og stjórnskipunarnefnd norska Stórþingsins þar sem fjöldi ráðamanna hefur mætt fyrir nefndina til að svara fyrir peningastreymi, venjur og menningu í utanríkisráðuneytinu. Hvort kunningskapur og óformleg tengslanet ráði þar miklu og Jeffrey Epstein kemur líka við sögu. Kveikjan er hvort fjárstreymi frá norska utanríkisráðuneytinu til hugveitu í New York sem stjórnað var Terje Röd-Larsen hafi verið óeðlilega mikið. Anna Kristín Jónsdóttir kynnti sér málið, sem gæti jafnvel leitt af sér bresti í sjálfsmynd norsku þjóðarinnar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Bókun 35 og málshöfðun ESA gegn íslenska ríkinu, tómar íbúðir í Hafnarfirði 30 Sep 2026

Hin margumtalaða Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið er orðin að dómsmáli, eftir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, tilkynnti í morgun að stofnunin hefði vísað þessu máli til EFTA dómsstólsins. ESA hefur um langt skeið krafist þess að bókun 35 yrði innleidd í íslenskt lagaumhverfi, en málið er umdeilt; frumvarp um bókunina hefur í fjórgang verið lagt fram á Alþingi - nu síðast fyrir nokkrum dögum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var þá utanríksráðherra Sjálfstæðisflokks lagði fyrst fram frumvarp um hana vorið 2023 en það kom aldrei til annarar umræðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur tvisvar áður lagt fram frumvarp um bókun 35 og mælir væntanlega fyrir því fjórða sinni í byrjun næstu viku. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Árna Pál Árnason, einn þriggja stjórnarmanna í ESA um ákvörðun stofnunarinnar um málsókn og tímasetningu hennar, og Ævar Örn Jósepsson ræðir við Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík um málsóknina og bókunina sjálfa. Eins og fram hefur komið í Speglinum ríkir mikið ójafnvægi á byggingamarkaði. Í nýlegri skýrslu HMS kom fram að á landinu eru um 1.900 íbúðir sem eru fullbúnar en hafa ekki selst og standa tómar. Margar þeirra hafa staðið tómar í meira en eitt ár - og slíkar íbúðir eru hvergi fleiri en í Hafnarfirði, eða 213. Rúnar Pálmason ræðir þessa óvenjulegu stöðu við Orra Björnsson, formann bæjarráðs Hafnarfjarðar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Erfið staða á byggingamarkaði, lögmannafélagið um breytingar á hegningarlögum 29 Sep 2026

Um 1.900 nýjar og tilbúnar íbúðir tómar - 85% fleiri en fyrir ári. Margar hafa verið til sölu í heilt ár. Atvinnuleysi í bygginga- og mannvirkjagerð fer vaxandi, dæmi eru um að öflug fyrirtæki séu að draga verulega úr starfseminni og í gær bárust fréttir af því að 20 manns hefði verið sagt upp hjá Íslenskum aðalverktökum. Tólf umsagnir bárust við frumvarpsdrög um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum sem sett voru inn í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, Marel og loftmengun i Kína 28 Sep 2026

Leiðtogar heims flykktust til New York í síðustu viku á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að ræða helstu áskoranir í alþjóðasamfélaginu, og leiðtogavikunni lýkur í dag. Það var setið þétt á bekknum þegar þingið var sett og Antonio Guterres aðalritari Sameinuðu þjóðanna flutti sína síðustu ræðu á allsherjarþingi. Um næstu áramót verða tvö ár liðin frá því bandaríska fyrirtækið JBT tók Marel yfir - en Marel hafði lengi verið eitt af allra öflugustu fyrirtækjunumm á Íslandi. Höfuðstöðvar Marel eru ekki lengur í Garðabæ heldur í Chicago í Bandaríkjunum og starfsfólki í Garðabæ hefur fækkað. Fyrir fjórtán árum sást fjallahringur Peking ekki nema örsjaldan í gegnum mengunarmistrið en bláhimnna eða heiðskírir dagar voru þar þrjú hundruð í fyrra.

Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald 25 Sep 2026

Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar hans á meðan hann var á sjúkrahúsinu eftir aðgerðina. Inga hefur ítrekað sagt að upplifun þeirra Guðmundar af aðdraganda þess að hann sagði af sér sé ólík. Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn - það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi - verður lagt á frá og með 1. maí á næsta ári, samkvæmt drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var kynnt í vikunni.

Ísland, losun og loftslagsmálin, samningur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna 24 Sep 2026

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að gera þurfi miklu meira miklu hraðar, ef Ísland á að ná settu markmiði um 41% samdrátt á samfélagslosun fyrir árið 2030, og segir margt þegar hafa veið gert og fleira í bígerð til að auka líkur á því. Hins vegar er hann efins um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Ekki hefur enn verið skilgreint hvað í þessu hugtaki felst, og það sé því í raun nánast marklaust. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jóhann Pál. Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands og Múte B. Egede utanríkisráðherra landsins var vel fagnað þegar þeir komu til Nuuk frá New York í gærkvöld. Þeim var létt: Eftir ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland væri öryggi Bandaríkjanna nauðsynlegt og þau þyrftu að ráða því, var samningur milli ríkjanna þriggja um varnir og öryggi í höfn. En hvað felst í honum? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Skammvinnt verkfall flugvirkja og aðstæður vestrænna fréttamiðla í Moskvu 23 Sep 2026

Ljóst varð í morgun að ríkisstjórnin ætlaði sér að setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair. Ekki kom þó til þess því flugvirkjar aflýstu verkfallinu. Icelandair og flugvirkjar lýstu því yfir að næstu fjórar vikur yrðu nýttar til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara. En þó að verkfallið hafi verið stutt, hafði það töluverðar afleiðingar. Rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, prófessor og Finnbjörn A. Hermannsson forsta Alþýðusambands Íslands. Bæði viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússlandi og svo ýmsar skorður sem Rússar leggja sjálfir á fjölmiðlun og fjarskipti í landinu gera það að verkum að fyrir erlent fjölmiðlafólk er erfitt að ferðast til Rússlands og að senda þaðan fréttir um lífið í landinu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk þó vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðum þingkosningum, í Moskvu.

Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og kólnun á byggingamarkaði 22 Sep 2026

Rætt við Nicole Simone Keller, teymisstjóra losunarbókhalds Umhverfis- og orkustofnunar um nýja skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Rætt við Jónas Má Gunnarsson, aðalhagfræðing Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um kólnun á byggingamarkaði.

Umbrotatímar í þýskum stjórnmálum, lóðamál trúfélaga og breytt staða Svalbarðabúa 21 Sep 2026

Katastrófa er hugtakið sem hvorutveggja þýskir stjórnmálaskýrendur og Friedrich Merz Þýskalandskanslari nota um úrslit þingkosninganna í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Með því er í senn átt við sögulega mikið fylgi þjóðernisöfgaflokksins Alternative für Deutschland, AfD, og enn frekar þá staðreynd að flokkur kanslarans, Kristilegir demókratar, CDU, náðu ekki inn manni, í fyrsta sinn í sögunni. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur í Berlín ræðir stöðuna í þýskum stjórnmálum við Ævar Örn Jósepsson. Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér. Rúnar Pálmason kynnti sér málið og talaði við Öldu Völu Ásdísardóttur hjá Ásatrúarfélaginu. Norrænir ríkisborgarar, þar á meðal Íslendingar, hafa getað öðlast norskan ríkisborgararétt eftir búsetu á Svalbarða án þess að hafa búið á norska meginlandinu - en nú gæti það breyst. Ástrós Signýjardóttir fjallar um þettal Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Rúnar Pálmason.

9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind 18 Sep 2026

80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni. Sífellt fleiri nýta sér gervigreind og áhyggjur af þróun hennar aukast. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hjá Fenris Creations segir eðlilegt að áhyggjur fylgi hröðum tæknibreytingum en hefur efasemdir um að ábyrgasta nálgunin sé að hægja á. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir Stjórn útsendingu: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Kosningakerfið, skattbyrði millistéttarinnar, mállýskur skógarþrasta 17 Sep 2026

Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til, þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja tillagan, sem snýst um úthlutun jöfnunarsæta til kjördæmalista, og hefur áhrif á hringekjuna svokölluðu, þarf samþykki tveggja þriðju hluta á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur því þingstyrk til að samþykkja meginbreytingarnar sem hópurinn leggur til. Rúnar Pálmason ræðir við Ólaf Þ. Harðarson. Sérfræðingum Visku, stéttarfélags háskólamenntaðra, reiknast svo til, að heildarálögur á íslenskar fjölskyldur með það sem kalla má millitekjur - sem sagt hvorki láglauna- né hálaunafólk - séu nú þegar þær mestu sem tíðkast á Norðurlöndunum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing Visku. Fáir syngja betur en skógarþrösturinn - en þeir, eins og flestir aðrir, syngja þó hver með sínu nefi eins og Hlynur Steinsson líffræðingur hefur komist að - og Ásrún Aldís Hreinsdóttir talaði við. Umsjón: Rúnar Pálmason, tæknimaður Kormákur Marðarson.

Dagur íslenskrar náttúru 16 Sep 2026

Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september. Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Góð ráð dýr í Hafnarfirði, orð Trumps um sameiningu Írlands og áhrif gervigreindar á háskólanám 15 Sep 2026

Áhrif gervigreindar á háskólanám og orð Bandaríkjaforseta um sameinað Írland eru til umfjöllunar í þætti dagsins. En við byrjum í Hafnarfirðinum.

Hröð þróun gervigreindar 14 Sep 2026

Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur. Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarblaðamaðurinn Ben Taub. Rannsóknir hans leiddu í ljós að þrír aðskildir hópar á sporbraut um Trump unnu á endanum saman að því að reyna að ná yfirráðum á Grænlandi. Landakort sýna á flötu blaði jörð sem er kúlulaga. Þau kort sem nú eru algengust eru sprottin af sýn sem varð til á tímum landvinninga og nýlendna. Landakort hafa löngum verið notuð í áróðursskyni, segir Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.

Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sögur eftirlifenda 11.september og Íslendingar hafa ekkert að segja um varnir landsins 11 Sep 2026

Tuttugu og fimm ár frá hryðjuverkaárásum á Bandaríkin og samband sem snýst um hagsmuni Bandaríkjanna, fremur en Íslands eru umfjöllunarefni dagsins. En við byrjum á gjaldtöku á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir að frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt gjald á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, sem á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð, verði opinberað og lagt fram í samráðsgátt í næstu viku

Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið, aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður 10 Sep 2026

Donald Trump hefur ítrekað viðrað hugmyndir um að Ísland verði eitt Bandaríkjanna. Hann gerði það til dæmis í símtali 2024 við Bjarna Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fjöldi þeirra sem fá styrk frá Sjúkratryggingum til að kaupa heyrnartæki hefur rúmlega tvöfaldast á um 10 árum.

Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns 09 Sep 2026

Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna. En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.

PISA-könnunin og fylgdi samsæriskenninga og stjórnmálaskoðana. 08 Sep 2026

Niðurstöður nýjustu PISA-könnunar voru kynntar í dag og voru verri á flestum sviðum en í síðustu könnun. Umboðsmaður barna telur niðurstöðurnar, sem ná líka til þess hvernig börnum líður, mjög alvarlegar. Annars staðar á Norðurlöndum eru niðurstöðurnar sagðar áfall og skammarlegar. Kosningaúrslitin í Saxlandi-Anhalt, þar sem hægriöfgaflokkurinn Alternative für Deutschland, fékk langmest fylgi allra flokka, varpa ljósi á fyrirbæri sem sálfræðingar og stjórnmálafræðingar hafa rannsakað æ meira undanfarin ár: hvernig vantraust á stofnunum getur smám saman breyst úr afstöðu til einstakra mála í heila heimsmynd. Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingur hefur rannsakað fylgnina og útskýrir í Speglinum.

Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð 07 Sep 2026

Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni. Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núverandi ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðunnar. Rætt við Anders Svenson sænskan blaðamanna um horfurnar.

Tengd hlaðvörp